Lögberg - 07.11.1929, Blaðsíða 5

Lögberg - 07.11.1929, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. NÓVEMBBR 19-29. Bla. 5. ICELANDIC MILLENNIAl CELEBRATIDN E Montreal - Reykjavik S.S. ANDANIA Siglir frá Montreal 6. Júní 1930 Cunard línan hefir opinber- lega v e r i ð k j ö rin af sjálfboSa- nefnd Vestur- íslendinga til að flytja heim íslenzku Al- þingishátíðar gestina. B. J. Brandson, forseti. G. Stefánsson, Dr. B. H. Olson, S. Anderson, G. Johannson, S. K Hall, A. C. Johnson, Jonas Palsson, P. Bardal, M. Markusson, W. A. Davidson. L. J. Hallgrímsson, J. H. Gíslason, H. A. Bergman, E. P. Jónsson, Dr. S. J. Johannesson. A. B. Olson, Spyrjist fyrir um aukaferðir. Aríðandi að kaupa farbréf sem fyrst, til að tryggja sér gott pláss. Frekari upplýsingar á öllum skrifstofum Cunard-félagsins, eða hjá J. H. Gíslason, Convener Volunteer Committee, 409 Mining Exchange Building, Winnlpeg, Canada. Miss Thorstina Jackson, Passenger Executive Department GUNARO LINE, 25 BROADWAY, NEW YORK, N. Y. Frá Islandi Reykjavík, 3. okt. 1929. Jón Guðmundsson, framkvæmd- arstjóri B. S. R., druknaði hér á höfninni um kl. 4 í nótt, með þeim hætti, að hann ók í lokaðri bif- reið út af bryggjunni við austur- garð hafnarinnar. Bifreiðin náð- ist upp í morgun, og var líkið í henni. — Jón heitinn var fæddur á Hrafnhóli í Hjaltadal 18. febr. 1890, og ólst upp þar nyrðra, en hafði verið mörg ár hér syðra, fyrst á Vífilsstöðum, hjá Þorleifi bróður sínum, en fluttist suður hingað til bæjarins og var einn af þeim er stofnuðu Bifreiðarstöðv- ar Reykjavíkur. Ásmundur P. Jóhannsson, fast- eignasali frá Winnipeg, er nýkom- inn hingað til bæjarins norðan úr Húnavatnssýslu. Hann gerði sár það til gamans í norðurferðinni, að fara í göngur með gömlum sveitungum sínum. Hreptu þeir vond veður og lágu úti tvær nait- ur í hríð og rigningu, en Ásmund sakaði ekki, þó að hann væri orð- inn óvanur slíkum svaðilförum. — Vísir. Fréttabréf. Þingeyri við Dýrafjörð, 1. okt. Heyafli hefir orðið sæmilegur víðast hér í firði.. Tún voru víð- ast vel sprottin og nýting ágæt. en útslægjur voru fremur lélegar. Sífeldir þurkar hafa hamlað gróðri á áburðarlausri jörð. Notkun tilbúins áburðar var í ár meiri en nokkru sinni fyr. Á- rangurinn er þó misjafn. Mun þekkingu á réttri notkun áburð- arns vanta hér sem víðar, og ætti ríkisstjórnin að sjá um, að leiðar- vísir væri látinn í té öllum not- endum áburðarins. Afli á þilskip hefir verið ali- sæmilegur og hefði orðið ágætur, ef atfli hefði eigi brugðist alger- Iega í ágústmánuði. Héðan hafa gengið fimm handfæraskip með hjálparvélum og þrír smærri mót- orbátar. Afla hæsta skipið var “Phönix” með 330 skpd. þurfiskj- « ar í fimm mánuði. Á því voru 10 til 14 menn. Afli á smábáta var tregur. Kolkrabbi hefir verið mikill hér í firði, enn fremur bæði millisíld og hafsíld, en eigi veidd vegna þes, að íslaust er í íshús- inu. Hin nýja Fordson dráttarvél hefir þegar byrjað að brjóta landið, en eftir nokkurrá stunda vinnu bilaði einn hluti vélarinnar. Var svo endurbætt eftir því 'Jem hægt var, á vélaverkstæði hér, en bilaði fljótt aftur. Hefir því dráttarvélin verið aðgerðarlaus að mestu til þessa atf þessum orsök- um. Mun vera almennur áhugi fyrir því hér, að hún *geti notast sem mest og bezt. 9 Látinn er hér nýlega Einar (Krynjólfsson, ffjörgamall mað- ur, faðir Sig. Fr. Einarssonar fiskimatsmanns hér. Enn frem- ur lézt nýlega að heimili sínu hér í firði, Mýrum, Ingibjörg Guð- mundsdóttir, kona Friðr. Bjarna- sonar fyrv. hreppstjóra. Var hún af hinni nafnkunnu Mýraætt og er sú ætt kunn um alt Vesturland og víðar. Vöruverð svipað og áður. Nýtt nautakjöt er selt héf á 1.25—1.75 kr. Ullarverð nær 3.00 kr. fyrir hvíta vorull. Töðuverð 7—8 au. pundið, úthey 6 au. pundið. Stór- fiskur fullstaðinn kr. 0.38 kg., en smáfiskur 0.35 au. Uppskera úr moldargörðum fremur góð, en aftur urðu sand- garðar gersamlega ónýtir, vegna hinna miklu þurka. Vatnsskortur hefir verið mjög tilfinnanlegur hér á Þingeyri í sumar, brunnar alveg þurrir. Eru hér margir smábrunnar til og frá um þorpið, og ekki sameiginleg vatnsleiðsla svo sem vera bæn.— Eigi enn verið raflýst hér, en nokkur hús fá orku frá vélaverk- stæði Guðm. J. Sigurðssonar. Er enginn lækur hér nærtækur fyrri en inni í botni fjarðarins, yrði það 15-18 km. leiðsla, ef vatnsafl- ið þar yrði tekið til notkunar fyrir kauptúnið hér. ó. J. —Vísir. Reykjavík, 10. okt. Frú Ingibjörg Pálsdóttir, kona séra ólafs ólafssonar, fyrv.' pró- fasts í Hjarðarholti, andaðist að heimili sínu hér í bænum í fyrri- nótt eftir stuta legu. Hún var hálfáttræð að aldri. Frá Siglufirði er símað: Ótíð, norðangarður í gær með stórbrimi. Bátar voru ekki á sjó. Línuskip- in Fjölnir, Fróði og Alden voru einnig inni. Brimið braut alla bryggjuna á Bakka. — E.s. Baltic, aukaskip Eimskipatfélags íslands, liggur hér, til þess að taka síld. Það rakst á hafnarbryggjuna 0g braut tvö skrúfublöðin og skemdi bryggjuna talsvert. — Sjópróf verður haldið í dag. — Ráðgert er að draga Baltic til Akureyrar og skipa miklum hluta farmsins upp þar og freista að setja nýja skrúfu í skipið. í nótt hlóð hér niður talsverð- um snjó. Nokkrar kindur flæddi í briminu í gær, undir Strókum, rak þær dauðar. Hér er nýlega látinn Jakob Þor- kelsson óðalsbóndi í Dalabæ, sjö- tugur að aldri, merkisbóndi. — Austfjörðum og víðar. Fékst hann mikið við skipasmíði, sem líka tengdist við nafn hans, er hann jafnan var nefndur Guðmundur skipasmiður. Þess er vert að geta um Þor- björgu, er hún kom 17 ára til Eyj- ólfs Magnússonar, — föður Gunn- steins skálds á Unaósi, — að til þess var tekið, um frábæra nám- fýsi hennar og viðleitni í þvi að draga til stafs, að hún hélt gler- broti yfir ljósreyk, bjó sér til stýl og krotaði á það stafagerð. Er húsbóndi hennar varð þessa var, lét hann ekki standa á því, að fullnægja þeirri námslöngun, er hann fann svo ákveðna hjá henni. Lét hann þá kenna henni skrift með börnum sínum, er hann hélt kennara tfyrir á heimili sínu. Þetta var nokkuð einstætt dæmi í þá daga, að húsbændur létu sér þannig ant um vandalausa ung- linga, er hjá þeim voru sem vist- ráðin hjú. Sýnir þetta, sem margt fleira, eðallyndi Eyjólfs Magnús- sonar, sem einkennir marga hans ættingja. Fyrir hin fögru og hugljúfu minningarorð, er dr. Sig. Júl. Jö- hannesson hefir sett fram um hina framliðnu, góðu konu, er dóttir hennar, sem hér hefir ver- ið minst á, honum innilega þakk- lát. Skrifar kunnugur, í grend við Árboig. í meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar r.étta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. Til safnaðafólksins í Vatnabygðunum. Holt, Renfrew efnisgæði á loðkápum skara fram úr! Það er ekki sagt út í loftið, held- ur viðurkend staðreynd, að Holt Rentfrew loðkápur eru þær beztu, sem til eru í Canada. Þetta á ekki að eins við verðið, heldur einnlg efnisgæðin, sem er undirstaða þess almenna trausts, sem vér njótum, og hinnar fallegu gerðar á hverri kápu, sem ber vort nafn. Komið og gerið sjálfir saman- burðinn. Borgunarfrestur fáanlegur Holt, Renírew Company Limited Canada’s Largest Furriers. Est. 1837 Frá Vestmannaeyjum er símað: í fyrradag var loks leiði til Vík- ur, í gær til Eyjafjallasveitar. Hefir margt fólk komið til bæj- arins í þeim ferðum.. Spítalamálið er mikið rætt og um deilt mál hér manna milli. ítarlegar greinir hafa og birzt um málið í blaðinu Víði. Samkomu- lag hefir enn ekki náðst um reglu- gerð fyrir spítalahúsið síðastlið- inn vetur. Nýtt frumvarp til reglugerðar var til fyrstu umræðu bæjarstjórnar í gær. Samkomu- lagsvon lítil. Verður þó væntan- lega afgreitt á næsta fundi. Bæjarstjórnin hefir samþykt að kaupa Röntgentæki í sjúkrahúsið frá þýzku firma. Þau verða sett upp í haust af þýzkum Röntgen- verkfræðingi, Gastmeyer. Verð tækjanna er um 9,500 kr. Róðrar eru nær engir sökum ó- gæfta. — Mgbl. Fyrir löngu var eg búinn að ætla mér, að líta inn á safnaðar- heimilin og önnur, sem starfi voru eru vinveitt, þetta haust, ef að vegir, veður og aðrar ástæður leyfðu. Eg er ekki úrkulavonar enn þá um, að mér takist þetta, og verðuf mér það til mikillar ánægju. Mér er ætíð sérstaklega 1 júft að kynnast tfólki á þeirra eig- in heimilum og tala við það um hvaða efni, sem kann að vera efst huga þeirra í það skiftið. Þér megið því búast við mér í næstu framtíð, kæru vinir. En svo er mál með vexti, að eg hefi talsverðan áhuga fyrir Jóns Bjarnasonar skóla, tframtíð hans og velgengni; þar að auki er eg einn í skólaráðinu. Eins og öll- um er kunnugt, þarf hann á fé að halda á hverju ári tiil starf- rækslu, og þetta verður að kor frá Fólki kirkjufélagsins. Mér kom til hugar, að ekki væri óviðeigandi, að gefa fólki tækifæri til að afhenda mér hvað sem því sýnist fyrir þetta þarfa og lofsverða fyrirtæki, um leið og eg fer í kring að heim- sækja það. En eg vona og treysti því, að á- hugi minn fyrir skólanum spilli hvergi fyrir heimsókninni, og auð- vitað verð eg jafn-góður vinur fólks, hvernig sem það lítur á þetta mál, en eg hygg, að fjölda- margir hafi sömu skoðun á því og eg. Þeir, sem áður hafa lofað viss- um upphæðum árlega, gjöri svo vel og láti mig hafa þær nú. Eins og öllum er kunnugt, eru undirstöður skólans þessar: al- menn mentun, canadiskt þjóðerni, íslenzkt þjóðerni og kristindómur. Þessir fjórir straumar renna sam- an í eitt í huga, hjarta og sál nemenda hópsins. Hefir lífið nokkuð göfugra að bjóða? Með vinsemd og bróðurhug, Yðar ávalt, Carl J. Ólson. LeiSrétting meS íkýringum í æfiminningu Þorbjargar Guð- mundsdóttir Borgfjörð, sem birt- ist í Lögbergi 26. sept. þ.á., eru nokur atriði, sem ber að leið rétta. Þar er ekki rétt tilfært, að Guð- mundur faðir Sveins Jiafi verið Ásmundsson, því hann var Ás- grímsson. Ekki er það heldur nákvæmlega rétt, að Jón sterki í Höfn, hafi verið langafi mgi- bjargar móður Sveins; því for- eldrar hennar voru Sveinn Snjólfsson í Snotrunesi og kona hans Gunnhildur dóttir Jóns sterka í Höfn í Borgarfirði eystra, •—bróðir Hjörliefs — Hafnarbræð- ur. (Sjá Annáll 19. aldar, annað bindi, 1. hefti). Þriðja atriði er, sem ekki er rétt tilfært, að maður Ingibjarg- ar, dóttur Sveins og Þorbjargar Borgfjörð, er nefndur Ramsey. Hann heitir Hermann von Ren- essi, þýzkur að ætt, og er hann seinni maður hennar; þau eru bú- sett í Árborg. Geta skal þess, að fyrri maður Ingibjargar hét Björn og var hann ættaður úr Mjóa'lirði, voru foreldrar hans Eyjólfur Ein- arsson og Þóranna Bjömsdóttir Geirmundssonar. Enn fremur er ekki rétt frá sagt, að Þorbjörg hafi þá verið sjö ára, er hún misti föður sinn. Hún var þá að eins þriggja ára. Geta skal þess til nánari skýring- ar, að faðir hennar var, sem sagt er, — Guðmundur Árnason að Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði (sem er á Austfjörðum, en ekki A Ströndum; hefir það verið í ó- gáti sett). Guðmundur var nafnkunnur á B0RGARAR! Hér eru taldir þeir, sem sækja um bæjarfulltrúa embættin uíidir merkjum The “Better Civic Covernment,,-félagsins Önnur kjördeild Luce, F. M. Maybanlc, Ralph Roberts, A. J. Þriðja kjördeild Barry, J. A. Calof, Rockmil Fyrsta kjördeild Andrews, H. (Bert) Borrowman, L. F. Simonite, C. E. Ráðið nú við yður í hvaða röð þér greiðið þeim atkvæði í yðar kjördeild Kosninya skrifstofa Önnur kjördeild 624 Ellice Ave. 504 Logan Ave. Kosninga skrifstofa Þriðja kjördeild 839 y2 Main St. 1422 Main St. Selkirk and McGregor. Kosninga skrifstofa Fyrsta kjördcild 892 Portage Ave. 529% Osborne Þessi bæjarfulltrúa efni eru studd af THE WINNIPEG CIVIC PRDGRESS ASSOCIATIDN sem hefir það augnamið 1. Að fá hæfa, sanngjarna og duglega menn til að ger- ast bæjarfulltrúar. 2. Að styðja slík fulltrúaefni af alefli. Að fá borgarana til að taka meiri og öflugri þátt i bæjarmálum og geræ það alt árið. Að fá fólk til að grciða aikvæði—fá alt atkvæðis- bært fólk til að greiða atkvæði. ÞAÐ ER MÖGULEGT • Allir borgarar, sem vilja betri bæjarstjórn, sem vilja að Winnipeg taki framförum, vilja bættan hag samborgara sinna, hafa þeim skyldum að gegna, að greiða atkvæði sjálfir, og fá nágranna sína til að gera það. THE WINNIPEG GIVIC PROGRESS ASSOCIATION “Sé það gott fyrir Winnipeg, erum vér með þvi.” Gerist meðlimir þessarar bœjar-hreyfingar Aðal kosninga skrifstofa, 280 FORT ST. Sími: 80 327 CUT THIS OUT AND KEEP FOR REFERENCE CUNARD LINE 1840—1929 Elzta eimskipafélagið, sem siglir írá Canada. IM53 Jaaper Ara. EDMONTON 100 Plnder Block SASKATOON 401 Lancaster Bldft. CALGARY 270 Matn St. WINNIPEG, Man. 36 Welllngton St. W. TORONTO, Ont. 227 St. Sacrament St. Cunard línan veitir ágætar sam- göngur milli Canada og Noregs, Sví- þjóðar og Danmerkur, bæði til og frá Montreal og Quebec. Eitt, sem mælir með því að ferðast með þessari línu, er það, hve þægilegt er aö koma við í London, stærstu borg heimsins. Cunard linan hefir sérstaka inn- flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir Norðurlönd. Skrifstofustjórinn er Mr. Carl Jacobsen, sem útvegar bænd- um islenzkt vinnufólk vinnumenn og vinnufkonur. eða hcilar fjölskyldur.— Það fer vel um frændur yðar og vini, ef þeir koma til Canada með Cunard línunni. Skrifið á yðar eigin máli, eftir upp- lýsingum og sendið bréfin á þann stað, sem gefinn er hér að neðan. öllum fyrirspumum svarað fljótt og yður að kostnaðarlausu. Crnú Gjöíin, sem ávalt er kœrkomin en aldrei endurtekin Ljósmynd af sjálfumþér fyrir Jólin Látið taka h'ana nú, svo títni sé til að senda hana til annara landa fyrir jólin. Eaton myndasmiðirnir sýna svip yðar 0g sál í ljós- myndinni. Þess vegna þykir yðar nánustu vinum svo mikið varið í að fá mynd af yður eða börnum yðar, sem teknar eru í Eatons myndastofunni. Nú er tími til að láta taka myndir, sem komast þurfa til annnara landa fyrir jólin. The De Luxe1 ljósmyndir, eru í fallegum litum, gráum, gyltum og marglitum spjöldum, eru ágætar fyrir jólagjafir. Verð— , * 'í»j $1 2.00 tylftin Portrait Studio, sjöunda gólf, Portage ST. EATON C?,-,™ WINNIPEG CANADA MAliTIN & GO. FALLEGAR GERÐIR fyrir haustið I 929 K0MIÐ 0G VELJIÐ ÖR ÞAÐ BEZTA «6 ■ Kjósið hið bezta og fullkomnasta. Engin þörf að borga alt í einu. V0RUM HÆGU B0RGUNAR- SKILMÁLUM er svo fyrir komið, að borga má smátt og smátt í margar vikur eða mánuði, og með því móti er ótrúlega hægt að borga fyrir jafnvel verðmikla og ágæta hluti. Vér bjóðum yður með ánægju að njóta hlunninda vorra hægu borgunarskilmála Bara komið inn og spyrjið um þá. YFIRHAFNIR (Furskreyttar) $19.75 tll 79.50 FUR-YFIRHAFNIR Seal, Muskrat, Persian Lamb, Wombat og Goat Skins. $65.00 til $265.00 KJÓLAR Ef þér getið ekki keypt nú, þá haiið þetta tilboð í huga $11.75 til 35.00 2nd Floor Wpg. Piano Building MflRTIN & CO. EASY PANENTS LTD. Portage and Hargrave

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.