Lögberg - 02.01.1930, Side 2
Bls. 2.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. JANÚAR 1930.
Kínverskt œfintýri.
í hverjum einasta bæ í Kína eru
fleiri eða færri menn, sem gert hafa
að iðju sinni, að segja fólki æfin-
týri og sögur. Þeini er ávalt vel
tekið. En einkum hópast menn þó
að “shoa shú dí’-—sögumönnum—
um hátíðar og á tyllidögum, ög
þykir góð skemtun.
Sögurnar, sem þannig hafa mynd-
ast og svo gengið í erföir frá ó-
munatið til vorra daga, skifta tug-
um þúsunda. Fæstar hafa þær ver-
ið skráðar og hafa yfirleitt lítið
bókmentalegt gildi. Af þeim er þó
ýmsan fróðleik að fá um Kínverja
að fornu og nýju. Þær lýsa oft all-
vel skapgerð þerra og hugmyndum
um trú og siðgæði. — Þær fjalla
þá um æðri völd, er mennirnir lúta,
um óumflýjanlegt endurgjaldslög-
mál, um “Tjen-lí” — guödómlegt
réttlæti—, sem hlýtur að hafa fram-
gang sinn.
Bá-örh.
Einu sinni fyrir langa löngu,
þegar y firvoki voru handgengin al-
múganum og guðir og andar leit-
uðu samneytis við mennina, var uppi
maður sá, er Djó Lá-örh hét. Einu
sinni sem oftar var hann við vinnu
á akri sínum. Veður var heitt svo
að hann langaði til að halla sér út
af í skóginum, sem þar var skamt
frá. Þegar hann nú gekk stíginn
inn í skóginn, kemur hann að lækj-
arsprænu, gengur niður meö henni
og finnur þar hellisskúta og fer þar
inn. En brátt varð hann þess var,
að hellirinn vikkaði mjög eftir því
sem innar kom, Alt í einu sér hann
fram undan sér hús, er stendur i
yndisfögrum garði. Alt var þar
hreyfingarlaust og undraverð kyrð
og friður yfir öllu, svo að hann
hugði að húsið væri mannlaust.
Djó Lá-örh litaðist nú um, en
loks rak forvitnin hann inn í húsið,
og reikaði hann þar um ótal sali.
Hann var maður ráðvandur og
hugði því ekki að taka neitt af öll-
um þeim dýrgripum, sem hann sá
og þreifaði á. En er liann kom þar
að, er sjaldséð tófuskinn hékk,
stóðst hann ekki freistinguna, en
tók það með sér. Fór hann siðan
beina leið heim til sín, læsti skinn-
ið niður, og gekk svo til vinnu sinn-
ar úti á akrinum, eins og ekkert
hefði i skorist. Þegar hann tók að
pæla moldina, heyrir hann átakan-
legan grát, og að það er kona sem
grætur. Honum heyrðist sem grát-
urinn komi úr fjarlægð—en þó svo
nærri. Hann lítur þangað, sem
honum heyrist gráthljóðið koma
frá, og sér þá unga stúlku standa
þar í sólskininu, baðaða i tárum.
Hann þóttist vita, að hér væri kom-
in vera úr öðrum heimi.
#
“Hví grætur þú svo sáran ?” spyr
hann.
“Eg er að leita að tófuskinninu
mínu,” svaraði stúlkan. “Mér þótti
svo afar vænt um það og lít aldrei
glaðan dag, fyr en eg finn það aft-
ur.”
Djó Lá-örh var hygginn maður,
en fátækari en svo, að hann gæti
keypt sér konu. Honum fanst nú
bera vel í veiði. ‘Viljir þú giftast
mér, skal eg útvega þér skinnið aft-
ur; að öðrum kosti skalt þá láta*
mig i friði við vinnuna, því að degi
hallar og bráðum dettur myrkrið
á ”
Eftir allmiklar bollaleggingar tók-
ust samningar með þeim, og um
kvöldið, kom hann með konu heim
í litla og fátæklega hreysið sitt.
Um nóttina, meðan konan svaf,
læddist Djó Lá-örh fram og brendi
tófu9kinnið. Öskuna og leifarnar,
sem ekki brunnu, lét hann í ofur-
lítið skrín, lagði skrínið inn í holu
í veggnum og byrgði fyrir með
kalkskán.
Þau bjuggu nú í litla hreysinu
í mörg ár, og farnaðist vel. Þau
urðu að leggja hart á sig; en konan
tók sinn þátt í erfiðinu, og eftir
nokkur ár datt engum annað í hug,
en að þau væru venjuleg kínversk
bændahjón, sem börðust í bökkum
á lítilli jörð, eins og miljónir manna
höfðu gert á undan þeim.
Þau eignuðust son og dóttur.
Drengurinn hét Bá-örh, og var 8
ára gamall, þegar hér var komið
sögunni, en stúlkan 5 ára. Einu
sinni, þegar konan sat og spann hör
og börnin léku sér í kringum hana,
fanst Djó Lá-örh sem hann væri
hamingjusamasti maður í heimi.
Og þá fór hann að hugsa um lof-
orð sitt, að afhenda henni skinnið.
hann hafði óttast, að ef hún fengi
skinnið, mundi hún yfirgefa sig; en
nú gæti varla verið hætta á því að
hún færi frá honum og börnunum.
Hann tók hamar, opnaði holuna í
veggnum, tók skrínið og gaf konu
sinni.
“Þetta er mér mikilsvert einmitt
nú,” sagði hún og brosti. Hún helti
öskunni úr skríninu, lagði skinn-
tætlurnar til hliðar og hélt svo á-
fram að spinna.
Þetta þótti manninum góðs viti
og gekk með börnunum til svefnher-
bergis og lagðist til svefns. Hús-
freyja setti nú rokkinn frá sér. Hún
tók eina skinntætluna og togaði hana
og teygði milli handanna, uns hún
var orðin eins stór og skinnið upp-
haflega hafði verið. Þá hélt hún
því upp við birtuna og brosti á-
nægjulega. Því næst varpaði hún
því yfir herðar sér og hvarf — og
sást aldrei framar.
Djó Lá-örh dó af harmi, og litla
dóttirin hans af vanhirðu. — Bá-
örh var nú einn eftir, fátækt og
munaðarlaust barn, sem enginn hirti
um að liðsinna. Og svo varð hann
að fara út í heiminn og biðja sér
beininga.
Fyrsti maðurinn, sem Bá-örh
hitti, var flökkumaður, sem hafði
sér til viðurværis að flétta körfur
úr viðartágum. Hann var gamall og
mjög iskyggilegur útlits. En Bá-
örh bað þó um að fá að vera með
honum, og gamli maðurinn lét það
eftir honum. Þeir ferðuðust nú um
öll héruð landsins. Þeir sváfu í kof-
um og skuggalegum afkymum á næt-
urnar, bæði sumar og vetur. Einu
sinni fenti þá inni í hofi í Norður-
: Kína. Mat höfðu jæir engan né
| eldivið. Þeir reyndu að ryðja sér
veg út, en ]>ess var enginn kostur,
og urðu því að hýrast áfram í hof-
1 inu. Þeim jxitti nú ekki vel á horf-
j ast. En þegar minst varði, tóku
j þeir eftir stórri hersveit, er fór þar
um. Gamli maðurinn hrópaði nú á
hjálp, en hermennirnir virtust hafa
! öðru að gegna. Faðir héraðsstjór-
j ans var nýlátinn, og hafði hermönn-
unum verið gefin skipun um að
! ryðja veg til grafreitsins. Gamla
j manninum fanst, að j>eir að minsta
j kosti mundu geta útvegað honum
matarbita. Þeir sögðust engu vilja
sinna honum, nema ef svo væri, að
hann gæti útvegað þeim unglings-
pilt til jarðarfararinnar. Lengi
höfðu ]>eir leitað eftir pilti og stúlku
til að kviksetja með líkinu; stúlku
j höfðu þeir fundið, en engan pilt.
“Eg hefi einmitt piltinn, sem
j ykkur vantar,” svaraði gamli mað-
1 urinn. — Gekk honum þá alt að
j óskum, er hann hafði selt litla Bá-
• örh j>eim í hendur.
j Hermennirnir fluttu Bá-örh með
sér til bústaðar héraðsstjóra; var
hann lokaður inni í litlu herbergi,
ásamt stúlkunni, sem einnig átti að
kviksetja. Bá-örh tók þá eftir því,
að reknir voru járnfleinar hér og
þar í veggina, og kom nú strax til
hugar, hvað gera skyldi. Hann los-
aði stærsta fleininn og stakk hon-
um á sig.
Jarðarfarardagiu'n voru þau færð
i fín föt og látin ganga á undan
líkfylgdinni, til grafarinnar. Gröf-
in var stór og veggirnir múraðir.
Fyrst var kistunni komið fyrir; þá
\ar Bá-örh og stúlkan látin inn í
gröfina, ásamt venjulegum fjölda
af hestum og hundum; því næst
kómu alls konar búsáhöld, eldhús-
gögn, matvæli og vín og annað það,
sem þeim framliðna mætti að gagni
verða í öðrum heimi. Var svo múr-
að fyrir grafarmunnann.
Strax og hætti að heyrast til lík-
fylgdarinnar, tók Bá-örh fram
járnfleininn og fór að bora holu á
milli steinanna. Nokkru eftir sól-
arlag skriðu þau ofboð varlega út
úr gröfinni og hlupu alt hvað af
tók í áttina til fjalla. Inn á milli
f jallanna 'réðist leópard á stúlkuna
og reif hana á hol. “Þú hefir tekið
frá mér förunaut minn,” hrópaði
Bá-örh örvinglaður, “taktu mig nú
einnig óarga villidýr!” Honum til
mikillar undrunar svaraði leópard-
inn: “Eg hefi satt hungur mitt.
Og svo ert þú heldur ekki af mensk-
um uppruna; ákvörðun þín er svo
háleit, að æfi þinni getur ekki lokið
með þessum hætti. Far þú leiðar
þinnar!”
Bá-örh rakst á annan förumann,
er Wang-y hét, og slóst í fylgd með
honum. Ferðaðist hann með honum
í mörg ár, og var nú orðinn stór
maður og óvenjulega gervilegur.
Einu sinni voru þeir úti í skógi
að rífa upp viðartágar. Sér þá Bá-
örh hvirfilvind mikinn koma á móti
sér; en inn í hvirfilvindinum miðj-
um var galdranorn, er hélt á fag-
urri mey, sem sifelt hrópaði á hjálp.
Bá-örh hjó eftir galdranorninni
með sigðinni, en hún hélt áfram
helsærð. Hann flýtti sér á eftir,
og kom þá á troðning, sem lá að
djúpum brunni. Sneri hann þá aft-
ur til Wang-y og sagði frá öllu, sem
fyrir hann hafði borið. En Wang-y
lét sem hann heyrði það ekki.
Nokkru seinna rákust þeir á op-
inbera tilkynningu frá keisaranum
sjálfum. Lofar hann þar miklum
launum }?eim, er kynni að hafa
fundið dóttur hans, sem horfið
hafði í síðasta stormviðri, og ekki
sést aftur. Sneru þeir nú hið bráð-
asta aftur til skógarins. Wang-y lét
Bá-örh síga niður í brunninn. Kom
hann þá auga á mjóan gang, sem
hann svo fór inn í. Alt í einu var
hann staddur í stórum helli, og var
vatn á gólfinu.
1 hliðarhelli sá hann meyna sitja
aðframkomna af söknuði og ótta.
—“Vertu hugnraust,” hrópaði hann,
“eg er kominn að sækja þig, og mun
fara með þig til föður þíns.”—
Skamt þaðan sá hann galdranorn-
ina að dauða komna af sárum.
Þau fóru nú eftir göngunum
fram í brunninn. Wang-y dró
meyna upp úr, og fór undir eins
með hana til hallarinnar; en Bá-örh
skildi hann eftir niðri í brunninum.
Hvað átti hann nú til bragðs að
taka.
I hellinum rakst Bá-örh á afar-
stóran fisk, hálfdauðan. Tók hann €ins og( Zam-Buk.
þá hníf og ætlaði að skera stykki
af honum. En þá fór fiskurinn alt
í einu að tala við hann: “Þú þarft
ekki að drepa mig þér til matar.”
Er Bá-örh leit við, sér hann rétt hjá
sér borð, hlaðið ljúffengustu krás-
um. Settist hann að því og saddi
hungur sitt.
“Sértu nógu þolinmóður,” hélt
fiskurinn áfram, “mun eg hjálpa
þér að komast héðan; annars verð -
0F MARGAR
STÚLKUR—
hræðast vetrarkuldann, vqgna
þess, að hann gerir þær veður-
bitnar í andliti og þær fá saxa í
höndurnar og kuldabólgu.
Með því að nota Zam Buk, get-
ur maður algerlega varið húðina
gegn frostinu og vetrarstormun-
um. Þú þarft ekki annað en nota
Zam Buk Medicine Soap, þegar
þú þværð þér og bera svo á þig
Zam-Búk amyrsl á eftir.
Það er ekkert til, sem heldur
skinninu eins mjúku og fallegu,
Jurtirnar, sem
það er búið til úr, eru þess eðlis,
að þær eyða öllum sárum og gera
skinnið áferðarfallegt og mjúkt.
Ef svo er komið, að skinnið er
orðið hrufótt og sárt, þá hefir
Zam-Buk tvöfalda þýðingu. Það
fyrst og fremst tekur úr allan
“Kristilegt félag ungra kvenna”
vill leitast við að sameina allar
þær konur, sem trúa á Guð föð-
ur skapara sinn, Jesúm Krist frels-
ara sinn, 0g Heilagan anda, hugg-
ara sinn, samkvæmt Guðs upin-
beraða orði í heilagri ritning; sem
ennfremur eru sameinaðar í Guðs
kærleika og hafa láhuga á mál-
efni Drotins og vilja taka hönd-
um saman um það, að Guðs ríki
komi og Guðs nafn helgist á með-
al ungra kvenna.” —
Ýmsum aðferðum er beitt með-
al hinna mörgu félagsheilda víðs-
vegar um heiminn, til þess að ná
þessu takmarki, og væri það altof
langt mál, ef upp ætti að telja,
einungis mætti nefna fáein dæmi;
í erlendum stórborgum, þar sem
ytra skraut og íburður dylur oft
sviða, svo að segja strax, og það,
eyðir öllum skaðíegum gerlum, og og einatt saurug skúmaskot, hef-
gerir skinnið aftur mjúkt og á- j ir K F pj. K. leiðbeiningarstöð
ferðai fallegt. fyrir ungar stúlkur, sem koma ó-
Zam-Buk er bezta meðal, sem i /
, hægt er að fá við frostbólgu, saxa kunnugar til borganna. Á jarn-
v , .. I í höndum, bruna og öUu öðru því brautarstöðvum getur að líta bók-
urðuher um aldur og æfi Eg er 11Qfu 50c. askjan. Fæst hjá lyf-8tafi féla^ina auglýsingu,
dreki hins syðra himinhliðs; en I sölum * ,
vegna yfirsjónar minnar sendi öld- . ~_____ _____________________ hvar leiðbeinmgarstofuna se að
ungur himinsins mig hingað í þetta
varðhald. En eftir 7 sinnum 7 daga,
annan dag annars mánaðar, er eg
aftur frjáls, og mun þá flytja þig
aftur til jarðar.”
finna. Þangað leitar fjöldinn all-
Fáein orð um K.F.U.K. ur af ungum stúlkum, sem ant er
Eftir Guðrúnu Lárusdóttur. j um sóma sinn vilJa try?gja
_____ sér góðan félagsskap.
Eg hefi eigi ósjaldan orðið þess Þá á félagið víðast hvar í borg-
Meðan á þessu stóð fór Wang-y vör, að hér á íslandi er mörgum um og bæjum hús eða heimili,
á fund keisarans og krafðist laun- lít kunn starfsemi Kristilegs félags þar sem ungar stúlkur eru boðn-
anna. “Er þetta maðurinn, sem ! ungra kvenna, eða K.F.U.K., eins ar og velkomnar, hvort heldur til
bjargaði þér?” spurði hann prins- og félagið er kallað i daglegu tali. dvalar um lengri tíma, fyrir mjög
essuna dóttur sína. “Það hlýtur Fg vildi fegin ráða ofurlitla bót á sanngjarnt verð, eða um stundar-
víst að vera, svaraði hún. “En eg þvi meg þessum línum. j sakir, svo sem við lestur góðra
man J>ó ekki neitt af því sem fyrir j Fyrir rúmum aldarfjórðungi bóka eða með handavinnu sína.
mig bar frá því er galdranornin tók þei{i;igi; gtarfsemin ekki hér á landi,1 Heimili þessi eru hin snotr-
m(lg Jatlga 1,1 sa dagsbirtuna | en bafði þá nág útbreiðslu víðs- ustu; vingirni og hlýindi mæta
attur; og ]>a var þessi gamli maður! .. , ... , t *> >.-» . , , ,.
, , , r. , vegar um onnúr lond. Nu starfar aðkomustulkunm, hun finnur, að
hja mer. Eg hefi þo eitthvert hug- 6 , „ , . , , , , ,
K.F.U.K. 1 öllum heimsalfum. 1 her er hun velkomin, her a hun
fyrrasumar hélt félagið alheims-j vini, þótt hún sé öllum ókunnug,
fund í Buda-Pest. Þar mættu full- og hún gengur brátt úr skugga
trúar frá 34 löndum (1 frá ísl.). um, á hvaða grundvelli vináttan
Fundinn sátu um 500 konur, yngri hvílir. — Alt, sem þér viljið, að
og eldri, af margvíslegum þjóð-' mennirnir gjöri yður, það skuluð
flokkum og tungumálum, en sam- þér 0g þeim gjöra.—Það, sem þér
einaðar í áhuga fyrir málefni gjörið einum af mínum minstu
drotins á meðal hinna ungu. j bræðrum, það hafið þér gjört
Laust fyrir síðustu aldamót stofn- mér. — Það eru kenningar og lífj
aði séra Friðrik Friðriksson K. F. Jesú Krists, sem stærfsemin styðstl
U. K. hér í bænum. Var hann þá við. Það verður ávalt hlýtt og
boð um, að eg hafi gefið einhverj-
mn hálfa hárnál mína fyrir einhvern
greiða.”
“Hm,” sagði keisarinn, “líklegt
þykir mér vera, að einhver meiri
og betri maður hafi frelsað þig en
Wang-y þessi, og mun eg fyrst um
sinn ganga frá loforði mínu.”
Á öðrum degi annars mánaðar
var drekinn látinn laus. Skifti hann
þá um ham og fékk sitt upphaflega
útlit. Hann fór niður að vatninu
og bað Bá-örh að fara sér á bak.
leggja aftur augun og halda sér vel. eða Kristilegt félag ungra manna.1 boðum hans.
Drekinn fór svo með hann á fleygi- | Fg minnist þess nú, er eg rita lín-! Á meðal verksmiðjustúlkna í
ferð niður í vatnið. Áður en Bá- . ur þ^gg^ hve kalt andaði þá stórborgum, hefir félagið víða
on gæti gert ser grein f>rir llva® j stundum í garð séra Friðriks og leitast við að koma á fót ýmis-
þurt^land^^81, °nUm a , hve lítt margir skildu viðleitni konar starfsemi, sem öll miðar í
Hann fór beina leið til hallarinn-
ar og sagði nú keisaranum frá öllu
nýskeð búinn að stofna K. F. U. M. bjart á heimilunum, sem hlýða
margir skildu
j hans fyrir æskulýðinn. En hverj- kristilega átt, bæði með ókeypis
1 ir mundu nú vilja óska þess, að kvðldskólum, fræðandi fyrirlestr-
eins og það hafði fyrir hann borið - starfsemin hefði ei^ verið hafin? í um’ ^frsamkomum, handavinnu-
Var svo farið með hann á fund I Eg get ekki stilt mig um að segja námsskeiðum o. s. frv.; en aðal-
prinsessunnar. Rankaði hún þá 1 ofurlítið frá upphafsatriðum K. F. tilgangurinn er þó sá, að leiða
skyndilega við sér og mundi eftir U- K- hér 1 Keykjavík. Það væri ungu stúlkurnar til Krists, og
öllu, sem fyrir þau hafði borið. Og [ el{1{i óhugsanlegt, að frásögn mín kenna þeim í návist hans að meta
er Bá-orh sýndi þeim nálarhelming- j kynni að glæða áhuga fyrir félag- sitt rétta manngildi.
inn og' helmingarnir voru bornir inu og málefni þess.
saman, tók það af öll tvímæli. i Séra Friðrik Friðriksson hafði
Bá-örh fékk prinsessunnar og
varð frægur hershöfðingi. Dó hann
Sumstaðar héfir félagið stofnað
vistráðningastofur. Þangað snúa
i hárri elli mikils metinn af allri
þjóðinni. En ]>að er af Wang-y að
segja, að honum voru fengnir tötr-
ar hans og hann rekinn út úr höll-
inni.
Ó. Ó. þýddi.
LANDAMERKI, SEM LIGGJA
Á MILLI HJÓNA.
Etiffarandi saga er sögð frá
ósló, og seljum vér hana ekki
dýrar en vér keyptum:
stofnað K. F. U. M. með fáeinum sér stúlkur, sem vilja vera sér úti
drengjum, er héldu fyrstu fund-1 um góðan samastað, sömuleiðsis
ina sína í bæjarþingstofunni, sem húsfreyjur, sem óska eftir góðum
er í efri hæð hegningarhússins við stúlkum. Eg hefi átt tal við
Skólavörðustíginn. Annað húsnæði unga stúlku, sem starfaði á þess-
áttu þeir ekki þá. Séra Friðrik1 háttar skrifstofu í Parísarborg.
hefír stundum, bæði í spaufei og “Vandalaust verk var það ekki,”
alvöru, minst á “tugthús”-veru sagði hún, “en oft var það veru-
sína, en happasæl hefir hún orðið lega ánægjulegt, þegar við sáum
og blessunrrík fyrir marga. Það starfið bera góðan árangur.”
voru hreinir lofgjörðar-ómar, semj Hvarvetna, þar sem félagið hef-
bárust frá fundum drengjanna,; ir kynt sig og starf sitt, hefir
eins og andlegir vorboðar, sem töl- það eignast óskift traust allra
uðu einkum til hinna ungu, áður góðra manna, og eigi ber það ó-
en ungu stúlkurnar fundu einnig1 sjaldan við, nú orðið, að stúlkur,
yrra varð ósló að lata af hv8t hj-á sér tiJ þegs gtofna með sem ætla sér utan, biðji um árit-
en 1 við Aker 179 skattgreið- gér svipaðan félagsskap, og hvert an eða heimilisfang K. F. U. K.
en ur, sem heima eiga a Kirke-' áttu þær þá að gnúa gér> annað í því landi, sem þær ætla til, og
vejen, en ut af þessu hafa risið en tJJ &éra Friðrikg Friðriksson- eg veit ekki betur, en að þeim
yms vandræði. Til dæmis er það ar> hJns sjáJfkjörna foringja hinn- hafi gefist -það vel.
fagt’ a hin nýíu bæjamörk hafi ar krigtiJegU æskuhreyfingar. I Þá hefir félagið ætíð og all-
egi e tir einu húsi endilöngu,; gn séra Frigrik færðist undan staðar, þar sem það starfar,
þannig, að helmingurinn af hús-
inu fylgdi Aker, en helmingurinn
í fyrstu. Drengimir skipuðu önd-j reglubundna félagsfundi, þar sem
vegi hjá honum. En þá varð einni Guðs orð er haft um hönd, og eru
Óslo. Og svo var fanð að reikna JJtJ stúJkunni gem nú er vel met-! allar konur, þæði utan félags og
A4- V, >■ V. o-P __;__.
út hverjir af íbúum hússins ætti
að greiða gjöld til ósló og hverjir
til Akers. Þegar það var nákvæm-
lega athugað, kom upp úr kafinu,
in kona hér í bænum, að orði; j innan, hjartanlega velkomnar á
“Þurfa stúlkur þess ekki að verða þá fundi, ekkert síður hér í bæ,
sláluhólpnar eins og drengir?” —' en hvarvetna annars staðar, þar
, Spurning barnsins kann að virð-j sem K. F. U. M. er að verki.
að landamerkin lagu 1 gegn um agt brogJeg ega þarnaleg, en hvað Vitanlega er starfsemi félags-
svefnherbergi hjá einum hjónum gem um þa& er. géra Friðrik ins 0fur smávaxin vor á meðal,
og skiftu hjónaruminu 1 tvent’ færðist ekki lengur undan beiðni og þolir enganj samjöfnuð við
þannig, að bóndinn svaf í ósló, stúlknanna( og _ K F u. K. varð starf K. F. U. K. í öðrum löndum.
en konan í Aker. tJJ Samt sem áður telur félagið hér|
Nú kom fleira til greina. Það Stofnun féla(gsins, með( fáein-,í bænum marga meðlimi; er þeim
varð að aðgæta, hvar bóndinn um unglingsstúlkum, eða öllu skift í tvær deildir, aðal-deild fyr-|
hefði verið aðfaranótt 1. janúar heldur börnum, þótti þá enginn ir stúlkur frá 16 ára aldri, ðgi
til þess að vita, hvar hann ætti gtórviðburður og var að litlu get-!yngri deild, en hana skipa stúlk-l
að greiða skatt. Bæjarstjórnin ið Hver hirðir um sögu frækorns-j ur frá 12—16 ára. — DeildirnarJ
í ósló bjóst við því, að hann hefði inS( sem faJið er f myrkri mold? halda báðar uppi reglubundnumj
sofið heima hjá sér. En skatta-^ Fn þá á orgmá ögnin í sér fólgið 'fundum með prédikun, bæn og
nefndin í Aker var glúrnan. lífsmagn, sem borið fær sýnileg-J sálmasöng. Þar að auki eru
Hún krafðist þess, að rannsókn^ an ávöxt. — Starfi félagsins hef-j saumafundir, þar sem félagskon-
færi fram í þessu máli, og svo ir miðað áfram, hægt að vlsu, í ur koma saman með handavinnu
var þeim báðum stefnt fyrir rétt.j jíkingu við jurtina, sem teygir sigj sína, en hana leggja þær að jafn-
manninum, sem átti þessa nótt eftir JjoginU( og það erU vissulega aði til hins árlega bazaars, seiti
að hafa sofið í þeim helmingi margar góðar minningar tengdar félagið heldur nokkru fyrir jól-
in. Reykjavíkurbúar kannast all-
ir við bazaar K. F. U. K., og hafa
hjónarúmsins, sem átti heima i við bókstafina fjóra: K.F.U.K.
ósló og konunni, sem svaf í þeim En hver er þá stefna félagsins
helmingnum, sem\átti Iheima íj j gfarfsaðferð? Þeirri spurningu fyrir löngu viðurkent, að þar
Áker. I verður bezt svarað með því, að^ verður komist að góðum kaupum
Við yfirheyrsluna varð mað-| segja í stuttu máli frá grundvall- 4 hentugum og snotrum jólagjöfum.
•urinn að kannast við það, að þessa^ aratriðum félagsins og stefnu-j Bazaarinn er aðal tekjugrein fé-
nótt hefði hann ekki verið heima skrá, sem sameiginleg er um öll lagsins, enda leggja margar fé-
hjá sér. — Lesb. lönd, þar sem félagið starfar: j lgskonur mjög að sér fyrir hann.
' Félagið hefir upp á síðkastið
stutt kristniböð á m,eðal heið-
ingja, og stúlkurnar 1 yngri deild-
inni háf'a gefið með “fóstur-
barni”, munaðarlausu stúlkubarni
í Kína og kostað það á skóla þar.
í Hafnarfirði er og allfjölmenn
félagsdeild, sem starar með svíp-
uðu fyrirkomulagi; einnig í Vest-
mannaeyjum.
Þótt framkvæmdirnar séu í smá-
um stíl vor á meðal, langar K. F.
U. K. til þess að styðja eftir mætti
kjörorð félagsins, en það er alls-
staðar eitt og hið sama:
— “Allar ungar stúlkur fyrir
Krist.”! — Lesb.
Eiríkur Briem prófessor
Síra Eiríkur Briem andaðist að
heimili sonar síns Eggerts Briems,
þann 27. nóv. s.l.
Hann var fæddur 17. júlí 1846, á
Melgraseyri í ísafjarðarsýslu. For-
eldrar hans voru: Eggert sýslumað-
ur Gunnlaugsson Briem og kona
hans Ingibjörg dóttir Eiríks Sverris-
sonar sýslumanns.
Síra Eiríkur lærði undir skóla hjá
cand. theol. Davíð Guömundssyni,
er síðar varð prestur að Hofi.
Stúdentsprófi lauk hann vorið 1864.
Haustið 1866 gekk hann í presta-
skólann og tók guðfræðipróf vor-
ið eftir. Næstu árin var síra Eirík-
ur skrifari hjá Pétri biskup, en
1873 var honum veitt Þingeyrar-
klaustur. Vígðist hann þangað þjóð-
hátíðarárið og tók að búa í Stein-
nesi. Prófastur varð hann í Húna-
vatnsprófastsdæmi þrjú seinustu
árin fyrir norðan. Árið 1880 varð
síra Eiríkur kennari við prestaskól-
ann og var það þangað til presta-
skólinn var lagður niður með stofn-
un Háskólans 1911.
Snemma tók síra Eiríkur að fást
við opinber mál. Átti hann sæti í
heppsnefnd Sveinstaðahrepps á
pfestsskaparárum sínum nyrðra, en
síðar í bæjarstjórn Reykjavíkur eft-
ir að suður kom. Hann var þing-
maður Húnvetninga 1881—'91, kon-
ungkjörinn J>ingmaður frá 1901—
19Í5. Var hann löngum forseti
sameinaðs þings og sýnir það traust
samþingsmanna á honum. Við
stofnun Landsbankans 1886 varð
síra Eiríkur gæslustjóri og var j>að
þangað til árið 1912. Síra Eiríkur
var stofnandi Söfnunarsjóðsins og
forstjóri frá 1886 — 1920. Hann
átti mjög lengi sæti í stjórn Bók-
mentafélagsins og var um skeið
formaður þess. Hann var í stjórn
Þjóðvinafélagsins, Landsbókasafns-
ins, Búnaðarfélags Suðurámtsins
og síðar Búnaðarfélags Islands.
Kvennaskólans í Húnavatnssýslu
og Kvennaskólans í Reykjavík og
fjölda annara félaga, sem of langt
yrði upp aö telja. Hann átti sæti
í milliþinganefnd um kirkjumál,
sem starfaði frá 1904—1906. Bar
hann þar fram tillögu um gagngerða
breytingu á launum presta og náði
sú tillaga fram að ganga i aðalat-
riðum.
Mikið hafði síra Eiríkur ritað um
dagana. Reikningsbók kom út eftir
hann 1869 og hefir til skamms tíma
verið notuö til kenlsu. Stafrófs-
kver gaf hann út 1893, og kom það
í fjölda útgáfna rlæsta áratugi.
Hugsunarfræði hans kom út 1897.
Hann hefir og ritað mikið í tíma-
ritin, m. a. mjög merka grein um
Jón Sigurðsson og einhver fyrsti
maður var hann hér á landi, sem
kendi mönnum að ávaxta fé.
Það er til marks um fjölhæfni
síra Eiríks, að meðan hann var
biskupsskrifari tók hann aö lesa
sjómannafræði og kendi nokkrum
ungum mönnum hér í bænum.
Meðal þeirra var Markús Bjarna-
son, er síðar varð forstöðumaður
Stýrimannaskólans. Gekk Mark'ús
að afloknu námi hjá þessum fjöl-
hæfa guðfræðingi, undir próf hjá
foringjunum á “Fyllu” gömlu og
stóðst j>að vel.
Síra Eríkur kvnætist 1874 Guð-
rúnu Gísladóttur, læknis Hjálm-
arssonar. Andaðist hún árið 1893
Af Ibörnum þeirra lifir aðeins eitt:
Eggert óðalsbóndi i Viðey.
Síra Eiríkur kvæntist 1874 Guð-
starfsmönnum og aldrei óstarfandi.
Að hverju sem hann vann var
hann allur í starfinu og jafnvígur
sýndist hann vera hversu óskyld
sem störfin voru. Mestur þáttur
eru hin andlegu störf hans, og verð-
ur þar hvað minnisstæðust stofnun
Söfnunarsjóðsins, en ekki eru síð-
ur eftirtektarverð búskaparár hans
sem prests á Steinnesi. Varð bú
hans j>ar á fáum árum úr litlum
efnum með stærstu búum héraðs-
ins.
Heimilislíf síra Eiríks var fyrir-
mynd á allan hátt.
Hann var hvers manns hugljúfi
og vildi allra mein bæta og hverj-
um að gagni verða. Hann var ræð-
inn og skemtinn svo að af bar. Báru
allar viðræður hans vott um göfug-
an hugsunarhátt og augljósa við-
leitni að fræða, bæta og fullkomna.
Oft voru þær kryddaðar með góð-
látlegu gamni og fyndni. Og eng-
an átti hann sinn líka að segja frá
gömlum viðburðum er tekið höfðu
allan hug hans. Kom þá bezt í ljós
hve minnið var afburða gott.
Síra Eiríkur var vitmaður mikill
og fjölmentaður. Enginn efi er á
því að meðan hann átti sæti á þingi
var enginn honum fremri í fjöl-
breyttri þekkingu á þingmálum,
heilli og öruggri dómgreind og vel-
vilja til lands og þjóðar. Hann
vann ekki með orðmælgi, því hann
var málstirður maður, en störf
hans lágu mest við undirbúning
málanna. Mun hann hafa átt meiri
jjátt í undirbúningi þingmála en
nokkur annar jjingmaður honmn
samtíða. Og enginn þingmaður
vann með heitari og göfugri áhuga
að Jjingmálum en hann. Annars
þarf ekki að fjölyrða neitt um vits-
muni, drengskap og mannkosti
Eiriks Briems. Hin mörgu trúnað-
arstörf er honum voru falin eru
þar þegjandi og óbrigðul vitni.
Vitni, sem ekki bregðast, og fylgja
þessum sæmdarmanni út yfir gröf
og dauða.
Eiríkur Briem var hár maður á
velli og tígulegur, hægur, prúður og
festulegur í allri framgöngu og bar
alt látbragð hans vott um höfðings-
skap.
Flótti þýskra bænda frá
Rússlandi.
Þess var nýlega getið í skeytum
í Morgunbl., að 11 þúsundir rúss-
neskra bænda af jjýskum ættum,
hefði tekið sig saman um það, að
flýja land, vegna þess hvernig á-
standið er í bolsaríkinu, og leita til
Kanada. Búandlið þetta átti aðal-
lega heima í Síberíu og hjá ánni
Wfolga. Tók það sig upp í stórum
hópum og fór til Moskva til þess
að fá feyfi stjórnarinnar að fara úr
landi. Reyndi ráðstjórnin að telja
bændum hughvarf og fá þá til þess
að setjast aftur, en þeir sátu fastir
við sinn keip og héldu kyrru fyrir
utan við borgarhlið Moskva, ein-
ráðnir í jjví, að hverfa ekki til sinna
bústaða aftur.
Þegar Þjóðverjar fréttu um þetta.
skarst rikisstjórnin í leikinn og var
samþykt á þingfundi að hjálpa þess-
um bændum til þess að fá sér nýj-
an samastað. — Er ráðgert að koma
sem flestúm fyrir í Austur-Prúss-
landi, en hjálpa öðrum til þess að
komast til Kanada og Suður-Ame-
ríku, þar sem þeir geta búið við
betri kjör heldur en í Rússlandi.
Þeir eru einkennilegir hinir nýju
]>jóðflutningar frá Rússlandi. —
Fyrst taka nokkur hundruð Svíar
sig upp frá bústöðum sínum í Rúss-
landi, hlaupa frá búiun og jörðum,
°g þykjast hafa himin höndum tek-
ið er Svíþjóð tekur þá slyppa og
snauða í faðm sinn.—Og nú kemur
annar þjóðflutningur, mörgum sinn-
um stórfeldari, og aftur er reyndin
sú, að ættland flytjendanna vill taka
við þeim sem best og reynir að
greiða, götu þeirra eftir því sem hægt
er.
Rosedale Kql
Lump $12.00 Stove $11.00
FORD COKE $15.50 Ton
SCRANTON HARDKOL
POCA LUMP og
CANMORE BRICQUETS
Thomas Jackson & Sons
370 COLONY ST. PHONE: 37 021