Lögberg - 17.04.1930, Síða 1

Lögberg - 17.04.1930, Síða 1
1 iONE: 80 3lj Se’"*n Ls*» j i im l'uJjjí!S *** F" Service and Satisfaction PHONE; 86 311 Seven l.ines \0V CjL *Tcv*£* For Better Dry Cleaning and Laundry 43. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 17. APRÍL 1930 NUMER 16 Frá Islandi +•—■■ ■+ Úr Húnaþingi í marz. Laust fyrir miðjan nóvember s. 1., þann 10., 11. og 12., dreif niður af norðri mikla fönn, svo til vandræða horfði. Allar sam- göngur teptust nema fyrir lausa- menn á skíðum. Fljótlega snerist áttin í austur-suð-austur, oft með feikna hvassviðri, dreif fönnina saman í stórskafla. Breytti svo von bráðár og hleypti öllu í gadd. Allan desember og janúar mánuð var ráðandi áttin austan-suðaust- an. 1 janúar var víða orðið hag- skarpt fyrir hross og mikið vatns- leysi. í sumum sveitum í Austur- Húnavatnssýslu hefir að | mestu verið innigjöf á sauðfé síðan um miðjan nóvember s. 1.— FiskafliJ var hann jafnframt prófastur í Húnaflóa enginn vegna ógæfta. Skepnuhöld hafa, að því er frézt hefir, víða verið sæmileg. Þó hefir lungnaveiklunar í sauð- fé orðið vart hingað og þangað, t. d. í Hrútafirði, Svínadal, Langa- dal og norður á Skaga, en fregnir um það ekki greinilegar. Heilsufar hefir verið misjafnt, sumstaðar gengið æði vond in- flúensa og lagt alla í rúmið. Þó ekki valdið manndauða. Sjúkra- húsið á Blönduósi alt af fult, þótt væri stækkað siðastliðið sumar. Uppskurðir þar með flesta móti í vetur, og allir hepnast vel. Þann 12. nóv. s. I. var auka- sýslufundur á Bjlönduósi út af hinni væntanlegu hafnargerð á Skagaströnd. Fasteignanefndin ferðaðist í s. 1. nóvember og desember um Vind- hælishrepp, 1 suðurhlutlann, og Engihlíðarhrepp. Enn fremur lauk hún við Blöndósinn. Áhuginn fyrir aukningu síma- sambanda virðist fara vaxandi. Frézt hefir, að á næsta sumri verði lögð Miðfjarðarlínan og ennfr. símalíná frá Hvammstanga út Vatnsnes að vestan að Illuga- stöðum. Þess utan mun vera bú- ið að senda landsímastjóra beiðni um lagningu á smá línuspottum, samkvæmt einkasímalögunum, t. d. niður Ásana til Blönduóss, um Hagabæina—samband við Blöndu ós — enn fremur í fremri hluta Vatnsdals í sambandi við land- símalínuna þar og jafnvel víðar. Frézt hefir, að g. næsta sumri eigi að setja upp rafstöð í Stóru- Giljá í Þingi. Framkvæmd verks- ins mun hafa á hendi Bjarni Run- ólfson frá Hólmi. Gert er ráð fyrir að orkan verði 20 hestöfl. Búist er við, að flutningur á bif- reiðum muni minka, og stafar það af hækkun flutningsgjalda. Munu bændur ekki treysta sér til að greiða þann aukna skatt, með því viðhorfi, sem nú er á búnað- arsviðinu. EWci er enn kunnugt, hve al- menn þátttaka verur í þjóðhátíð- inni, en búast má við, að marg- ir verði að sitja heima, sem fara vilja, en ástæður á heimilunum leyfa ekki brottför margra. í október s. 1. andaðist að Stað- arbakka í Miðfirði frú Guðrún Einarsdóttir frá Sámsstaðabrekku, hátt á sextugs aldri. — Vísir. ferð í prestakalli sínu í fyrradag (sd. 16. niarz)i. Hann mun hafa hnigið af baki milli bæja og var hann örendur, þegar að, honum var komið. Með séra Bjarna pró- festi er hniginn í valinn einn af ágætismönnum ísl. prestastéttar. Hann var fæddur á Bjarteyjar- sandi á Hvalfjarðraströnd 9. maí 1867, og varð þannig 63 ára, fátt í tveim mánuðum. Hann gekk inn í lærða skólann 1883 og út> skrifaðist þaðan 1888. írið 1891 gekk hann á prestaskólann og út- skrifaðist þaðan 1893. í öllum prófum hlaut séra Bjarni lofs- einkanir, enda var hann náms- maður í fremstu röð. Síðan fékst hann við kenslu í Reykjavík nokkra vetur, en vígðist vorið 1897 til Brjámslækjar, sem hann þjónaði til dauðadags. Frá 1902 1 Barðastrandarsýslu. Bjarni prófastur var mikill mannkostamaður, prýðilega' gáf aður, lærður vel og bókamaður mikill, trygglyndur og einlægur og stakasta valmenni. Hann vildi í engu vamm sitt vita og reyndi í öllum greinum að koma fram til góðs. Var hann því af öllum, sem honum kyntust, elsk- aður og virtur og átti alla tíð mestu vinsældum að fagna sökum ljúkmensku sinnar og annara mannkosta. Sem prestur var hann jafn-vel metinn, enda kennimaður góður og barnafræðari ágætur, Er því fyrir allra hluta sakir mikil eftirsjón að séra Bjarna prófasti. Bjarni prófastur var kvæntur Kristínu Jónsdóttur (prests á Breiðabólstað í Vesturhópi Sig- urðssonar), er áður var gefin séra Þorvaldi Stefánssyni. í Hvammi. Lifir hún mann sinn háöldruð Ekki var þeim barna auðið, en stjúpsynir séra Bjarna, þeir séra Jón Þorvaldsson á Stað og Árni skólakennari á Akureyri Mgbl. Dr. J. H. HELZTU HEIMSFRÉTTIR +■ Manitobaþinginu slitið Því var slitið á mánudaginn í þessari viku. Var þetta hið þriðja þing hins átjánda kjörtímabils. Fóru þingslit fram með vanalegri viðhöfn og ávarpaði fylkisstjór- inn þingmennina nokkrum orðum og þakkaði þeim fyrir alt sem að þeir höfðu gert í þinginu. Þing- menn voru heldur fáir viðstadd- ir, ekki nema 28, hinir höfðu far- ið heim til sín um helgina. Brack- en forsætisráðherra var ekki við- staddur; var farinn til Churchill, eða eitthvað norður í óbygðir, og er Hon. R. A. Hoey settur forsæt- isráðherra á meðan. Ekki verður annað sagt, en að þetta þing hafi leyst mikið verk af hendi, jafnvel óvanalega mik- ið, sem aðallega kemur til af því, að mörg lagafrumvörp þurfti að semja og samþykkja í sambandi við náttúruapðæfi fylkisins, sem það nú tekur við, 15. júlí í sumar. Alls hélt þingið 59 fundi og sam- þykti 106 lagafrumvörp, og er það óneitanlega góð viðkoma á einu ári. Þrettán frumvörp, sem lögð voru fyrir þingið, náðu ekki fram að ganga. Samkomulag milli þingmannaanna og þingflokk- anna, mun hafa verið með betra móti. Á föstudagskveldið í síð- ustu viku, kastaðist þó nokkuð í kekki, og var þá ekki þingfundi slitið fyr en klukkan fjögur um nóttina. Ágreiningsefnið var út af erfðaskatti. Macdonald erfðamálið Nú lítur út fyrir, að þessu marg-umtalaða máli sé lokið. Hefir stuttlega, en all-greinilega, verið skýrt frá aðalatriðum þess hér í blaðinu. Stubbs dómari réði til að kosin væri þingnefnd, til að rannsaka þetta mál frá öllum hliðum. Var tillaga borin fram í þinginu þess efnis, en feld með öllum atkvæðum gegn þremur, verkamannaflokks þingmannanna. Þó réði Stubbs dómari einnig til þess, að sakamál væru höfðuð gegn tveimur niönnum út af þessu máli, þeim W. A. Irish og John A. Forlong. Frá máli Ir- ish hefir áður verið skýrt, að lög- regludómarinn taldi enga ástæðu til sakamáls rannsóknar. í vik- unni, sem leið, kom fál Foílongs fyrir lögregluréttinn, og fór það á sömu leið, að lögregludómar- inn, R. B. Graham, táldi enga á- stæðu til frekari rannsóknar, en þar fór fram, og lét málsóknina niður falla. Dómurum í Manito- ba hefir sjáanlega sýnst sitt hverjum í þessu máli, en engin ástæða er til að efast um, að þeir hafi hver um sig farið eftir því, semj þeir sjálfir vissu sannast og réttast. / Reykjavík, 7 marz. Ólafur Stefánsson, bóndi í Kal- manstungu, andaðist í morgun í Landakotsspítala. Hann var fædd- ur í Kalmanstungu 24. ág. 1865, og hafði búið þar miklu rausnar- búi í nær 42 ár. Hann kvæntist árið 1890 Sesselju Jónsdóttur, frá Galtarholti, og lifir hún mann sinní ásamt tveim sonum og einni dóttur, sem öll eru upp komin. Þá fóstruðu þau og tvo drengi, sem enn eru á heimili þeirra, báðir milli fermingar og tvítugs. Ólafur heitinn var mikill mað- ur vexti og orðlagður atorkumað- ur. Hafði hann komið upp stóru steinhúsi í Kalmanstungu, og bætt jörðina á margan hátt, og mun þar lengi mega sjá ávöxt af starfi þessa mikla athafnamanns, sem átt hefir fáa sína líka að at- orku og dugnði. — Vísir. Reykjavík 18. marz. Séra Bjarni Símonarson á Brjáms- læk, varð brákvaddur í embættis- Frónskvöld með nemend- um Jóns Bjarnasonar skóla Skemtifundur Fróns, þann 8. þessa mánaðar, var að nokkru leyti frábrugðinn hinum skemti- fundum deildarinnar. í þetta sinn voru það nemendur Jóns Bjarna- sonar skóla, er sáu algerlega um skemtiskrána. Forseti Fróns, B. E. Johnson, stýrði fundi. Hafði hann nokkur inngangsorð fyrir skemtiskrá; mintist á starf skól- ans hvað íslenzku snerti, og trú- leik skólastjóra við þau mál, einn- ig umönnun hans og vináttu í garð ungra íslendinga vestan hafs. Skemtiskráin var öll á íslenzku Á píanó léku þær: Lily Bergson, Signý og ósk Bardal. Framsögn fluttu: Anna Guðmundsson, Mar- grét Ólafsson, Jónína Skafel og Birgitta Guttormsson. Samsöng höfðu nokkrar stúlkur frá skól- anum, undir stjórn Miss Salóme Halldórsson. Söng flokurinn sex íslenzk [lög (og fórst ágætlega. Eiga allir þessir ungu íslending- ar þakkir skyldar fyrir góða, ís- lenzka skemtun þetta kvöld. Ræðu flutti skólastjóri, séra Rúnólfur Marteinsson. Var það erindi í fám orðum um þýðing há- tíðarinnar á íslandi í sumar. Skýrði hann frá, hvernig þing var stofnað á íslandi og hvernig öllu var háttað við svoleiðis tækifæri í fornöld. Var erindi hans upp- fræðandi fyrir unga íslendinga, og er eg honum fullkomlega sam- dóma um, að þýðing eða merking þúsund ára hátíðarinnar hefði átt að vera innprentuð i hvert ís- lenzkt unglingshjarta vestan hafs. Ef allir íslendingar hefðu tekið höndum saman um að fræða ung- lingana um þýðing þessa atburð- ar, í öllum bygðum og bæjum og gert það að sínu áhugamáli sambandi við hátíðina, þá hefði mikið verið til gagns unnið. Nemendur skólans sýndu þetta kvöld, að íslenzkan er ekki á fall- anda fæti hjá þeim, og er það von mín, að þetta verði að eins byrj un á mörgum skemtikvöldum, sem meðlimir og vinir Fróns geti átt með nemendum skólans. B. E. J. Sér Ríkisheildinni hættu búna Eins og kunnugt er, hefir Can- ada nú sína eigin sendiherra í Liondon, Washington, París og Tokio, og þar að auki hefir Can- ada skrifstofur og sína eigin embættismenn í Geneva. Þetta kostar þjóðina $■610,487 á ári. Þegar þessi fjárveiting var til um- ræðu fyrir nokkrum dögum síðan á sambandsþinginu, mætti hún æði mikilli mótspymu. Sá sem sérstaklega lét til sín taka íþessu máli, var T. L. Church frá Tor- onto. Hann er íhaldsmaður og hábrezkur Canadamaður, eins og nærri má geta. Honum þótti þetta brask, ekki að eins mesti ó þarfi, heldur líka beinlínis hættu- legt fyrrr ríkisheildina. Honum fanst, að brezka ríkið mundi falla í mola, ef Canada héldi upptekn- um hætti, að ráða sjálf sínum utanríkismálum. “Þetta þýðir blátt áfram það,” sagði hann, “að Canada er að verða sérstakt ríki, óháð móðurlandinu.” Einhverjir fleiri tóku í sama strenginn, en forsætisfáðherra, Varði fimlega stefnu stjórnarinnar í utanríkis- málunum. Fiskiveiðar í Hudsonfló- anum Fyrir fáum dögum flutti Hon D. A. McKenzie ráðherra ræðu i Young Men’s Liberal Club, Win- nipeg, þar sem hann vék að fiski veiðunum væntanlegu í Hudsons- flóanum, þegar járnbrautin þang að væri fyllilega tekin til starfa Sagði hann meðal annars, að hann hefði býs„na áreiðanlegar heimildir fyrir því, að frá Churchill mundu \þorskveiðar verða stundaðar d stórum stíl, og taldi hann engan efa á því, að Hudsonsflóanum væru fiskimið góð, og mundi þar áður en langt líður verða veiddur mikill fiskur og ekki sízt þorskur. Er þetta samræmi við það, sem allir aðrir hafa haldið fram, sem nokkuð þekkja til, því allir háfa þeir sagt, að Hudsonsflóinn mundi reynast fiskisæll. Eru nú miklar líkur til, að þess verði ekki langt að bíða, að þorskur frá Manitoba verði verzlunarvara á heimsmark aðnum, sem fáum hefir kannske dotti í hug fyrir fáum árum. E. F. Hutchings dáinn Hann andaðist aðfaranótt mánu- dagsins í þessari viku, að heimili sínu í Winnipeg. Hann var 75 ára að aldri. Uppalinn var hann í Ontario, en kom ti‘l Winnipeg árið 1876 og var hér ávalt síðan. Einn af mestu iðjuhöldum Manitobafylk- is og maður stórauðugur. Eielson Come Home By Richard Beck. Weep not, Dakota, for your hero-son! Death is not death when fall the great of soul. Rejoice! His was a noble battle won; Written in stars his trail across the Pole. Proudly, Dakota, fold him to your breast; Home is the dauntless rider of the sky: A living symbol of the fearless quest For truth eternal—and he can not die. March 26, 1930. Alþýðurit Ur bænum +■------------------------—•+ Séra K. K. Ólafson, forseti kirkjufélagsins, var staddur í borginni þm miðja vikuna sem leið, á leið til Gimli. Hann kom þaðan aftur á föstudaginn og fór heimleiðis á laugardagsmorgun- inn. Messað verður í bænahúsinu, 603 Alverstone St., á föstudaginn langa, þ. 18. apríl, kl. 3 e. h. Séra Jóhann Bjarnason prédikar. Allir velkomnir. Séra Jóhann Bjarnason messar í Piney á páskadaginn, þ. 20. apr., kl. 2 e. h. Fólk er til getur náð, er beðið að íhuga þetta og koma til messu. Nær útnefningu Mrs. Ruth Hanna McCormick hafa Republicanar í Illionis út- nefnt til að sækja um Senators stöðu á Þjóðþingi Bandaríkj- anna. Hlaut hún 260,000 atkxæði fram yfir Senator Charles S. Deneen. Faðir frúarinnar var Senator, og það var líka maður hennar, en hún er ekkja. Næstu kosningar Þær fréttir eru hvað eftir ann- að að fljúga fyrir, að næstu al- mennar sambandsþing'skosningar eigi fram að fara nú bráðlega. Allar eru þær fréttir þó tilgátur einar, enn sem komið er, og hef- ir King forsætisráðherra fyrir fáum dögum lýst yfir því, að það sé enn algerlega óákveðið, hvenær næstu almennar kosning- ar í Ganada verði látnar fram fara. Herkostnaður Banda- ríkjanna Samkvæmt skýrslum hermála- deildarinnar, hefir heimsstyrj- öldin og afleiðingar hennar, kost- að Bandaríkin $51,400,000,000. Sömu skýrslur skýra einnig frá því, að stríðskostnaðurinn og ár- legur kostnaður til hers og flota, nemi 66 per cent, af öllum út- gjöldum stjórnarinnar. Ferð til Churchill fyrir- huguð Viðskiftráðin í öllum helztu bæj um í Saskatchewan, eru að taka sig saman um, að taka sér ferð á hendur til Churchill einhvern tíma í sumarí á sérstakri járn brautarlest, sem á að heita “Sas- katchewan-lestin”. Er ekki ólík legt að Manitobamenn geri hið sama. Garrick Leikhúsið. Hin fræga leikkona, Miss Ann Harding, leikur aðal hlutverkið í kvikmyndinni Her Private Life, sem Garrick leikhúsið sýnir nú. Það er hvorttveggja, að leikurinn er í sjálfu sér mjög skemtilegur, enda; leikur Miss Harding með afbrigðum vel. Einn af hennar miklu kostum sem leikari er sá, hve málrómurinn er afbragðs fallegur og skýr. Ráðskona óskast á góðu bónda- heimili nálægt Bellingham, Wash. Upplýsingar fást hjá M. J. Bene- dictson, Box 865, Blaine, Wosh. Steingrímur Thorsteinsson : Ljóðaþýðingar I. Reykjavík 1924. II. Reykjavík 1926. Utgiefandi: Axel Thorsteinsson. H. C. Andersen: Saga frá Sand- hólabygðinni. íslenzk þýðing eftir Steingrím Thorsteinsson. Reykja- vík. 1929. Útgefandi: Axel Thor- steinsson. Rökkur. VI. árg. Útgefandi: Ax- el Thorsteinsson. Reykjavík 1929. Rit þessi-bárust mér eigi alls fyrir löngu til umsagnar. Er mér ljúft, að geta þeirra að nokkru. Fáir eru fremur velgjörðamenn bókmenta vorra en þeir, sem, með vandvirkni og snild, snúa á ís- lenzka tungu merkum erlendum skáldverkum og ljóðum. Þeir brúa hafið; - veita frjófgandi straumum inn í hugarlönd þjóð- ar sinnar. Steingrímur Thor- steinsson vár á því sviði einna mikilvirkastur allra skálda vorra að fornu og nýju, og að sama skapi góðvirkur. Átti hann og til að bera hina helztu kosti góðs þýðanda: málsmekk, fegurðartil- finning og nákvæmni. Skáldinu entist því miður eigi aldur til að safna ljóðaþýðingum sínum í eina heild og gefa þær út. Hefir sonur hans, Axel, tekið sér fyrir hendur, að vinna það verk. Hef- ir hann þar með áunnið sér þökk allra þeirra, er góðum ljóðum unna. Tvö fyrstu bindi þýðinga- safnsins eru nú komin út. Munu fleiri á eftir fara. Það er eins og að koma á alls- herjar skálda-þing, að lesa þetta safn þýðinga Steingríms. Hér er að finna kvæði eftir rúm fimtíu skáld frá þrettán þjóðum heims, alt frá Bíon og öðrum skáldum forngrískum, til nítjándu aldar. Auk þess eru kvæði eftir ónafn- greinda höfunda. Og þýðandi hefir ekki ráðist á garðinn, þar sem hann var lægstur; hann hef- ir auðsjáanlega kunnað vel sam- vistunum við andlega höfðingja. í safni hans eru meðal -annara kvæði eftir þessa öndvegishölda í ríki ljóðlistarinnar. Saffó, Hór- azíus, Shakespeare, Byron, Burns, Goethe* Schiller, Heine, Petöfi, Tegnér, öhlenslæger, Björnson, og Longfellow fer þó fjarri, að allir séu taldir. Fjölbreytni er hér því mikil í kvæðaefnum og efn- ismeðferð; og margt er hér merk- iskvæða. Ef dæma má eftir fjölda þýðinga úr ljóðum ein- stakra skálda, er svo að sjá, sem Goethe, Byron, Petöfi, Schiller, Heine og Buri)s hafi verið Stein- grími kærastir. Er slíkt eigi að undra. Svo sem þýðandinn, fylgdu þeir hinni rómantisku stefnu, þó ólíkir væru annars að ýmsu. Þeir unnu heitt ættlandi, fegurð og frelsi; vegsömuðu glæsileik fornra tíða, ástina og hina ytri náttúru Ekki verður annað sagt, en að þýðingarnar séu yfirleitt mjög góðar, margar ágætar, nákvæm- ar, liprar og íslenzkar vel. Ekki ósjaldan líkjast þær fremur frum- orktum kvæðum en þýðingum Enda eru mörg þessi kvæði orðin almennings eign fyrir löngu síð- an; hafa “sungið sig” inn hjarta þjóðarinnar. Er hún að því skapi auðugri. Að ytra frágangi er útgáfan snotur. Nokkrar skýringar fylgja þýðingunum (þó aðeins fyrsta bindinu), höfundaskrá og efnis- yfirlit. Fyllri hefðu þó mátt yfirlit. Fyllri hefðu þó mátt vera frásagnirnar um sum merkis- skáldin, svo sem Blicher, Inge-Í mann og Uhland, að nokkrir séuj Söngflokkur Fyrsta lút. safnað- nefndir. Ónákvæmt er það að ar hqfir ákveðið að syngja hina segja, að The Courtship of Miles: fögru Cantötu Strainers, “The Standish, eftir Longfellow, sé Crucifixion” í kirkjunni á föstu- skáldsaga; það er söguljóð (nar- rative poem). Prentvillur eru fá- ar. Góð mynd af þýðanda framan við hvort bindi. daginn langa. Hinn ágæti tenor- söngvari, Mr. Linton Kent, að- er stoðar söngflokkinn. Samkoman byrjar kl. 7 að kveldinu. “Saga frá Sandhólabygðinni”, er ein hinna styttri skáldsagna æfintýra-skáldsins heimsfræga, I H. C. Andersens. En hann ritaði all-margar skáldsögur, eigi ó- merkar, víðlesnar á sinni tíð. Saga þessi gerist aðallega á Jót- landi, en þar var höfundurinn kunnugur, bæði landsháttum og Þórir Leifur Hannesson og Miss A'lice Catherine Dickenson, voru þann 18. marz gefin saman í hjónaband af séra Feath, að heim- ili brúðarinnar, 197 Johnson Ave. Elmwood. Samdægurs fóru þau áleiðis til Yorkton, Sask., þar sem brúðguminn hefir undanfarin ár verið ráðsmaður við verzlun Hud- íbuum. Er frasognin fjorleg, og „ ... _ -. , , , sons Bay felagms, og verður þar eigi oskemtileg, þo sagan se ' . raunasaga. Koma hér fram ýms- ir beztu kostir Andersens sem söguskáldsþin skarpa athygli hans, auðugt imyndunarafl og djúp samúð með mönnum. Þýð- ingin er góð, svo sem vænta mátti; f rágangur allur hinn prýðilegasti. “Rökkur” er minna að fyrir- ferð og eigi eins fjölbreytt að efni sem að undanförnu, en þó all-læsilegt. Þetta er innihald þess: “Hún var ekki dugs”, lag- leg smásaga, þýdd af Stgr. Thor- steinsson; byrjun á lengri sögu, “Vinasáttmálinn”; lýsing á Bel- gíu, helztu mönnum og borgum, lauslegt en eigi ófróðlegt yfirlit. L.oks eru nokkrar stuttar bóka- fregnir. útgefandi mun hafa í hyggju, að gefa út stærra hefti i ár og margþættara að innihaldi. • Richard Beck. framtíðarheimili þeirra. Á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl, verður haldin samkohaa í lútersku kirkjunni í Árborg. Auk söngs, sem þar verður, kappræða þeir þar prestarnir, séra Jóhann Bjarnason og séra Sig. ólafsson, um það, hvort æskilegt sé, að Vestur-lslendíngar Istuðli að út- flutningi fólks frá Islandi til Canada. Auk þess flytur séra Sig. stutt inngangs-erindi um: Vorþrá í íslenzkum skáldskap. — Fólk er beðið að fjölmenna. Góð skemtun á boðstólum. Samkom- an verður undir umsjón safnað- arnefndar. Inngangur verður seldur. Byggingar í Reykjavík á árinu 1929. Á árinu sem leið hafa verið reist hér í bæ 22 timburhús ein- lyft, og 132 steinhús, auk geymslu- húsa, vinnustofa, gripahúsa o. fl. Af þessum húsum eru 11 bygð eingöngu fyrir verzlun og iðn- rekstur, í 13 húsum eru bæði verzlanir og og íbúðir, en 127 hús eingöngu til íbúðar. íbúðirnar í þessum nýju hús- um skiftast þannig: 2 herbergi og eldhús, 48 3 4 5 6 7 8 91 61 30 7 8 9 Á föstudagsmorguninn, þann 11. apríl, lézt að heimili dóttur sinn- ar og tengdasonar, Mr. og Mrs. B. E. Johnson, 1016 Dominion St., Björn Björnsson Byron, 82 ára gamall. Björn var fæddur í Vatns- dal og bjó síðast á íslandi að Valdarás í Víðidal. Hann var sonur Björns Guðmundssonar og Gróu Snæbjörnsdóttur, og var albróðir séra Jónasar og Stein- dórs Björnssona, er druknuðu í héraðsvötnum 1871. Jarðarför Björns fór fram frá kirkjunni í Selkirk sunnudaginn þan 13. apr- íl. — Eru Islnadsblöð vinsamlega beðin að taka upp þessa dánar- fregn. Hafa þá alls bæzt við á þessu ári 2154 nýjar íbúðir. Af þeim eru 22 í timburhúsum og 232 í stein- húsum. Þessi 154 verzlunar- og íbúð- arhús, sem bygð voru á árinu, eru samtals 138,885 m., en þeg- ar geymsluhús, vinnustofur, gripa- hús o, fl. er talið með, er tenings- metratalan alls 135)200 og hafa allar þær byggingar kostað um 7 miljónir króna, eða um 50 kr. hver teningsmetri, og eru þá tald- ar með leiðslur o. fl. En ef tald- ar eru breytingar á eldri húsum, viðgerðir á lóðum og girðingar, þá nemur allur byggingarkostn- aður árið sem leið, ekki minna en 7% milj. króna. Hefir verið var- ið sérstaklega miklu fé þetta ár til þess að gera vandaðar stein- steypugirðingar í kring um húsa lóðir. — Mgbl. Sunnudaginn 6. april andaðist Sigurður Björnsson á heimili tengdasonar og dóttur, Mr. og Mrs. Peter Thorfinnson, að Moun- tain, N. Dak. Hefir hann ver;ð þar rúmfastur í allan vetur og oftlega mjög þjáður. Sigurður sál. var skagfirzkur að ætt og þar fæddur fyrir rúmum 76 árum. En til Ameríku fluttist hann fyrir 32 árum og hefir dvalið í íslenzku bygðunum í N. Dakota mest af þeim tíma. Hann eftirlætur eig- inkonu sína, Steinunni Jónasdótt- ur Samson, sem nú er búsett á- samt yngri syni sínum í Seattle, Wash., og 8 börn. Þau hjón mistu eina dóttur á barnsaldri, en hin átta börnin lifa föðurinn á- samt móður sinni.—Sigurður sál. var dugnaðarmaður og góður drengur, bjartsýnn, góðgjarn og hjálpfús. — Jarðarförin fór fram frá heimili Mr. og Mrs. Peter Thorfinnson og kirkjunni að Mountain, miðvikudaginn 9. apr., og fylgdi honum mikill fjöldi ættingja 'pg vina og samferða- manna til grafar. Séra H. Sig- mar jarðsöng. Hann var lagður til hvíldar í grafreit Vídalínssafn- aðar, við hlið dóttur sinnar, sem þar var jarðsungin fyrir mörgum árum. ✓

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.