Lögberg - 16.10.1930, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. OKTÓBER 1930.
Bls. 7,
Hvað ertu að gera
fyrir sálir
Áminning til hinna kristnu.
Elskulegu bræður og systur í
Kristi! Dagur fráhvarfsins nálg-
ast með hröðum skrefum, og sá
dagur einnig, er drottinn kemur
til að taka sína úr þessum heimi
(Les 2. Tím. 3 1—6, 1. Tessal. 4,
16— 17)t.
E!g er algerlega viss og sann-
færður um, að yfirstandandi tíð
er svo alvarleg, að eg finn mér
skylt að áminna með þessujp fáu
crðum alla, er eg næ til.
Hvar sem guðelskandi menn er
að finna, þá, sem gefa gætur að
aldaranda tímanna, þá verður
þeim ljóst, að yfirstandandi náð-
arstund verður mæld og burtu
'dregin. Sá tími er nú kominn, að
tala verður hreinlega og einlæg-
lega og spyrja:
“Hvað ertu að gera fyrir sálir?”
ítitningin segir að eitt sé nauð-
synlegt fyrir alla kristna menn,
hvar í heimi er, nefnilega, að
sérhver þeirra hafi skyldu að gæta,
sérstakt verk að vinna. Þú, sem.
af náð hefir tekinn verið út úr
suðupotti afguðadýrkunar og nið-
urlæging syndanna, sem nú hótar
þessum heimi kollvörpun óttalegri
en Sódómu og Gómorru, þú ert
boðberi Krists. Það gerir engan
mismun hver staða þín er eða
verkahringur, þú átt að vera
hreinn og stöðugur straumur milli
Krists og heimsins.
Hefir þú nokkurn tíma yfirveg-
að þetta? Hafir þú gert það. þá
getur þú ekki neitað honum um
ávöxt þinna andlegu þjáninga
horium, sem eitt sinn hékk milli
tveg<gja bófa á Golgata, og það
einmitt fyrir þig.
Trúið mér, að aldrei í allri ver-
aldarsögunni hefir verið meirs
fráhvarf en nú.'
Og þeim vonda er ekki
meiri alvara að villuleiða neinn
fremur en þig. Hann veit, að til-
hneiging mannshjartans er niður
á við, jafnan bundið við jörðina
og það, sem henni tilherir. Hann
hefir í hug að draga þig frá
Kristi. taka frá þér þá athygli,
sem þú ættir að hafa frelsaranum
til handa, á meðan þú álítur sjálf-
an þig óhultan og ekkert að ótt-
ast. Hann vill sérstaklega hafa
þig til að þóknast heiminum dá-
lítið, annað hvort í klæðnaði,
hegðun, í framkomu, eða í and-
legri fáfræði, einhverju því, sem
komið gæti milli þín og Jesú.
Kæri, kristni lesari, eg vara þi'g
við. Taktu eftir slægð óvinarins,
skildu þessa hættu og láttu hann
ekki varpa sínu moldryki í augu
þér, sem kemur af stað óhlýðni
við guð. — Mundu, að þú getur
ekki kent vanþekkingu um á hin-
um mikla degi. Þú ert að eins ó-
hultur á meðari Kristur er þér alt
í öllu. Látum oss þess ve'gna leit-
ast við að lifa nálægt guði. Haf
nánari umgengni við Krist og
hans vilja, svo að þín þjónusta
megi viðvara í allri heild. Ætt-
um við ekki nú að spyrja, eins og
í augliti hans, sem hjörtun rann-
sakar: Hvað erum við að gjöra
fyrir sálir? Hvað mikla um-
hyg^ju hefi eg sýnt um afturhvarf
annara til guðs?. í hverju sýni
ég ábyrgð mína í þessu efni? Hefi
ég verið hjálp eða hindrun? Hefi
ég útbreitt eða eytt? Veltið þessu
fyrir yður í dýpsta grunni hjart-
ans. — í 1421. sálmi Davíðs stend-
ur skrifað: “Enginn getur um
mig”. (Eftir ensku þýð.): “Eng
inn hirðir um mína sál.” Guð
gæfi, að við værum ekki rík 5
slíkri vanrækt. Að væna kristið
fólk um slíka vanrækslu, myndi
sumum finnast langt frá sanni, en
dæmin eru deginum ljósari í þessu
efni, og það svo undrum sætir.
Ó, slíkt hneyksli! Kristið fólk
á leið til himins að láta sér standa
á sama um syndara á leið til hel-
vítis. Ó, slík harðneskja, sálir að
eyðileggjast fyrir augum vorum,
og engin hönd útrétt til að bjarga,
engin rödd til að lýsa elsku guðs
til hinna týndu!
Bræður og systur, verið sönn
guði til handa. Mætið þessari
spurningu í hans augsýn: Hvað
ertu að gjöra fyrir sálir
Munu frændur og vinir og ná-
búar kalla á hinum mikla degi og
segja: “Eg hefi lifað nálægt hon-
um (eða henni) svo árum skíftir.
Hann vissi, að ég var á leiðinni til
heljar. Hann varaði mig aldrei
v:ð. Eg er tapaður, og hann sagði
mér aldrei hvernig eg hefði getað
frelsast.”
Verður slíkur vitnisburður gegn
þér á þeim degi? Kæri lesari, lát
mig minna þig á, að þessi dýrðar-
dagur náðarinnarer nálega á enda.
Vér lifum nú þar sem postulinn
kallar’ “hættulegar tíðir” (sjá 2.
Tím, 3, 1). Þess vegna er það
okkar skylda, að líta alvarlega
inn í vort eigið ástand og þjón-
ustu. Vér stöndum í sporum
þeirra, sem hafa opnað augu og
eyru fyrir sannleikanum. Mjög
svo dýrðleg staða! Á aðra hönd,
ef vér sláum úr og í — (6og eg
óttast að þeir séu margir, guð
einn veit þá tölu), — þá er það
voðaleg staða. Guð gefi að hvorki
sá, sem skrifar, né sá, sem les,
séu sekir í að hafa að eins ljós
játningarinnar, en ekki a n d a
sannleikans; hafi að eins játning
varanna, en ekkert í hjartanu.
Við ættum heldur að hafa hreins-
aða samvizku og æfð hjörtu, að
öllu leyti fyrir Krist, ætíð leit-
andi að sálum, sem allar eru dýr-
mætar í hans augum.
“Sá vísi dregur að sér sálir”
(Orðskv. 11, 30), eða “vinnur
sálir.” Eg veit, að allir hafa ekki
sómu gjöf, allir geta ekki talað
fyrir fjöldanum; allir eru ekki
færir um að prédika í fjölmenni,
en sannarlega þær, eða aðrar
gjafir vantar ekki eins mjög og
lítillætis-náðina. Gætum við ekki
rétt út kristileg smárit eða talað
orð við þurfandi sál? . Ef *þú
hefir hæfileika til að tala lang-
stundum saman um veðrið eða
mismunandi verkleg spursmál, eða
stjórnmál, eða félagsmál, þá hef-
irðu alla þá hæfileika sem þörf
tr til að tala mjúklega aðvörun
1:il hugsunarleysingja, eða benda
spyrjandi sál á Jesú. Við erum
hans vitni, ættum því að vera sem
lifandi straumur frá guðs hjarta
til sálna. “Svo áminni eg yður
bræður, í guðs náðar nafni, að
þér framseljið líkarni yðar sem
fórn, lifandi, helga, guði þóknan-
lega, sem er skynsamleg guðs-
dýrkan yðar”. (Róm. 12, 1).
Guðs barn ætti ætíð að muna,
að það er dýru verði keypt, það
er með blóði Krists, muna að það
tilheyrir Kristi, muna, að “þér er
uð ekki yðar eigin eign”; muna,
að nú þegar er hann guði gefinn
fyrir dauða drottins Jesú. Muna,
að blóði og smurningar viðsmjörj
hefir verið rjóðað eyrað, höndina
og fótinn. Á eyrað, til að hlýða
á hans oðorð; á höndina, til að
gjöra hans vilja, og á fótinn, til
að ganga á hans vegum.
Kæri lesari! lát ekki hina lof-
uðu vera ótrúa sínum brúðguma.
Vanræk ekki tækifæri þín og sam-
félag heilagra. Lát heldur iií
þitt vera vitni góðra verka, mak-
legs endurgjalds frá hinum elsk-
aða meistara. Tíminn er tak-
markaður, sendisveinninn verður
bráðum kallaður heim og hans
erindi um eilífð lokið. Tími fagn-
aðar og gleði er nú fyrir hönd-
um. Því lúður guðs og rödd höf-|
uðengilsins mun senn gjalla um!
víðan himin , boðandi endurkomu'
Lins langþráða. “Eg er morgun-
stjarnan sú hin skæra” (Op. 22,
16), látum oss því “iðja og biðja”,
því á þeim degi munum vér óska,
að vér hefðum verið trúrri og á-
reiðanlegri í þjónustunni hér
niðri. Ættum við ekki að leitast
við að vera það nú, sem vér þá
myndum óska að vér hefðum ver-
ið? Gjöra n ú það, sem vér þ á
myndum óska að vér hefðum
gjört. , !
Að endingu, kæri lesari, áminni
eg þig, að skoða þetta frá öllum
hliðum, í ljósi og nálægð hins al-1
valda. Óskandi væri, að þú og eg
gætum fundið, hversu áríðandi
það er.
Thora B. Thorsteinsson,
þýddi.
Búnaðarframkvæmdir
Reyðarfirði í ág. 1930.
í kauptúnum á Austfjörðum er
nú vaknaður almennur áhugi fyr-
ir ræktunarmálum. Búnaðarfélag
íslands hefir sent Pálma jarð-
yrkjuráðunaut Einarsson til kaup-
túnanna, í fyrrasumar og sumar,
til að leiðbeina um ræktunina og
koma skipulagi á ræktunarmálin
eftir staðkáttum og atvinnuhátt-
um hvers staðar.
Eskif jörður.
Eskfirðingar hafa tekið prest-
setrið Hólma á leigu. Hefir jarð-
yrkjuráðunauturinn mælt land
jarðarinnar, lagt á það fram-
ræslukerfi og gert kostnaðará-
ætlun um ræktunina. Jafnskjótt
og þeim áætlunum var lokið, tóku
Eskfirðingar til óspiltra málanna
að brjóta landið og munu þeir
í huga, að kaupa dráttarvél
að vori og hefja stórfeldar fram-
kvæmdir.
Borgarfjörður.
Fyrir kauptúnið í Borgarfirði
var undirbúin ræktun á stóru
lnadssvæði síðastliðið sumar. —
Hreppurinn keypti dráttar,vél í
vor og hefir látið vinna allmikið
með henni í sumar.
Reyðarfjörður.
Búnaðarfélag Reyðfirðinga hef-
ir farið þess á leit við ríkisstjórn-
ina, að fá leigða jöbðina Kolla-
leiru, sem er ríkiseign, til ræktun-
ar og hagbeitar, fyrir íbúa Búð-
areyrarþorps. í trausti þess, að
ríkisstjórnin bre'gðist vel við þessu
nauðsynjamáli þorpsins, hefir nú
búnaðarfélagið keypt dráttarvél í
félagi við þrjú önnur búnaðarfé-
lög á Héraði. Einnig hefir það
fengið Pálma Einarsson til að
framkvæma nauðsynlegar undir-
búningsmælingar og 'gera kostn-
aðaráætlanir. Ræktanlegt land á
Kollaleiru er 100 hektarar og
verður hafist handa um ræktun
þess jafnskjótt og búnaðarfélag-
ið hefir fengið það til umráða.
Fáskrúðsfjörður.
Fáskrúðsfirðingar hafa keypt
jörðina Kirkjuból fyrir nokkrum
arum. Jörðin hefir stórt og gott
land til ræktunar, og liggur mjög
vel við ;4 afnota fyrir þorpsbúa,
enda hafa þeir þegar tekið til að
rækta landið, en nú er þeim mjög
í hug, að hefjast handa í stærri
stíl og taka vélar í þjónustu rækt-
unarinnar og reka hana á féla'gs-'
legum grundvelli.
Fljótsdalshérað.
Á Héraði fer áhugi bænda fyr-
ir ræktun vaxandi. Mun þar al-
ment stefnt að því, að afla heyja
eingöngu á ræktuðu landi. Sveinn
Jónsson á Egilsstöðum hefir feng-
ið jarðyrkjuráðunautinn til að
mæla allar engjar sínar o'g gera
áætlun um ræktun þeirra. Er
ekki ósennilegt, að Sveinn inuni
fyr en varir koma víðáttumiklum
engjum í tún. — Mgbl.
Rafgeymir Drumm’s
Hinn írski hugvitmaður, Dr.
Drumm í Dublin, hefir nú látið
reyna hinn nýja rafgeymi, sem
hann hefir verið að endurbæta
siðan í fyrra, og minst var ný-
lega hér í blaðinu. Tilraunin va*
gerð 27. fyrri mánaðar á aðalálmu
Suðurlands járnbrautarinnar írsku
og hafði mörgum sérfræðigum
verið boðið að vera þar við. Til-
raununum var haldið áfram allan
daginn í sérstökum vagni, og var
hugvitsmaðurinn sjálfur við-
staddur ásamt ýmsum merkum
raffræðin'gum og öðrum vísinda-
mönnum.
Ef miðað er við þyngd þessa
rafgeymis, þá er talið, að hann
taki helmingi meira af rafmagni
en nokkur annar rafgyemir, sem
nú er notaður, og hann eyðir tvis-
var þrisvar sinnum minna raf-
magni en notað er á rafmagns-
sporbrautum, með þeim aðferð-
um, sem nú tíðkast, hvort sem
straumnum er veitt eftir teinum
eða þráðum, sem strengdir eru
yfir sporbrautinni. Hleðsluút-
búnaðurinn er mjög einfaldur, o'g
rafmagnið leiðist inn í vagninn
um tvo víra.
í geymi tilraunavagnsins voru
77 hólf (cells), 15x10x8 þuml. að
stærð, og vegur hvert þeirra 60
til 70 pund, eða geymirinn allur
um hálfa þriðju smálest. Hólfin
má gera stærri, ef nauðsyn er á
meira afli. Er þetta ein tegund
hinna svo kölluðu lútar-geyma.
Tilraunirnar viritust leiða í
ljós, að vagninn gæti dregið járn-
brautarlest með 50 enskra mílna
hraða á klukkustund, en geyminn
varð að hlaða við hvern 30 mílna
áfanga, eji það er einn kostur
þessa geymist, að ekki er nema
fáar mínútur verið að hlaða hann.
Það skiftir mjög miklu, að
geymirinn sé ódýr í rekstri, en
það verður hann því að eins, að
hann endist vel. En það þykir góð
ending, ef hann þolir fimm ára
notkun á járnbraut. En eins og
auðskilið er, þá er engin reynsla
fengin enn í þessu efni. Dr.
Drumm er sjálfur sannfærður
um, að geymirinn muni endast
svo lengi. En nú er talið líklegt,
að fyrst verði að reyna hann i
fimm ár við drátt á venjulegum
járnbrautum, áður en hann nái
nokkurri verulegri útbreiðslu, ei?
til þess þarf að útbúa sérstaka
rafmagnslest, sem tæki 150 til
200 farþega, og það kostar um 10
þúsund sterlingspunda. Er búist
við, að írska stjórnin og járn-
brautarfélagið, sem gert hefir
þessa fyrstu tilraun, muni sam-
eiginlega vinna að því að reyna
þessa uppfundningu til þrautar.
—Vísir, 10. sept.
Héraðshátið
Vestur-ísfirðinga að Framnesi
við Dýrafjörð.
MACDONALD'S
Fine QiJt
Bezta tóbak í heimi fyrir þá, sem
búa til sína eigin vindlinga.
Gefinn með
IIC-JAG
pakki af vindlingapappír.
HALDIÐ SAMAN MYNDASEÐLUNUM
Z79
Um íslenzkar nútímabókmentir
á ítölsku.
Prófessar Giacomo Prampolini
í Milano, hefir annast útgáfu á
júníhefti ítalska ritsins “II Con-
vegno” og er heftið alt um Is-
land o'g sýnisþættir úr íslenzkum
nútímabókmentum.
Heftið byrjar með stuttum sögu-
legum inngangi um Island og
frásögn um nokkra helztu rithöf-
unda síðari ára, einkum þá, sem
útg. hefir tekið eitthvað eftir í
ritið.
Þvínæst eru þrjár þjóðsögur,
og þá vísur o'g kvæði eftir þessa.
Bólu-Hjálmar, Sig. Breiðfjörð,
Sveinbj. Egilson, Pál Ólafsson,
Steingr. Thorsteinsson, Matthías,
Kristján Jónsson, Stephan G. og
Einar Benediktsson. En að lok-
um eru 5 smásögur, Heimþrá eft-
ir Þorgil Gjallanda, Þurkur eftir
Einar H. Kvaran, Gamla heyið eft-
ir Guðm. Friðjónsson, “Á Fjör-
unni” eftir Jón Trausta og Kolu-
fell eftir Si'g. Nordal. Er gaman
að sjá þessi ísl. kvæði og sögur í
ítalskri Þýðingu. — Mgbl.
SMÁVEGIS.
Hún: Borðaðu nú ekki of mik-
ið, Hans minn. Mundu eftir því,
sem læknirinn hefir sagt, að þú
verðir að gæta hófs bæði í mat og
drykk.
Hann: Hvern fjandann varðar
mi'g um læknirinn? Heldurðu að
eg fari að svelta mig í hel til þess
að treina í mér lífið?
— Þú ætlar að giftast stúlku,
sem hefir 50 þús. króna tekjur af
eignum sínum á ári, o!g samt ætl-
arðu að telja mér trú um það, að
þú giftist henni af ást!
— Já, það er alveg satt. Eg
elska peningana!
Hátíðin var sett kl. 2 e. h. laug-
ardaginn 2. ágúst, af Jóhanni Ól-
afssyni hreppstjóra á Þin'geyri.
Þar næst var guðsþjónusta, pré-
dikaði próf. Sigtr. Guðlaugsson,
Núpi. — Að guðsþjónustupnni af-
lokinni var kaffihlé til kl. 4%. Þá
hélt Kristinn bóndi Guðlaugsson
á Núpi hátíðarræðu. Var áður
sungið “Ó, guð vors lands” og að
ræðunni lokinni kvæði, sem un'g-
ur maður hér hafði orkt. — Þá
sagði Ólafur Ólafsson skólastjóri
á Þingeyri skilmerkilega frá Al-
þingishátíðinni á Þingvöllum og
var það góður fengur þeim, sem
ei'gi gátu sótt hátíðina. — Kl. 6%
voru íþróttir. Tíu stúlkur frá
Þingeyri, undir stjórn Viggó Nat-
hanaelssonar íþr.kennara, sýndu
leikfimi. — Voru þær prýðilega
æfðar, svo unun var á að horfa.
Á eyrum úti við Hjarðardalsá
voru mörg tjöld reist og götur á
milli. í einu tjaldinu var síma-
stöð. Stórt veitin'gatjald hafði
og verið sett þar upp og veitti
kvenfélagið “Von” á Þingeyri
kaffi, öl o. s. frv. þar báða dag-
ana. Sérstakt eldhúsi hafði og
verið bygt þar, danspallur 12x18
álnir með bekkjum í kring dg
ræðustól áföstum og náðhús fjög-
ur yfir ánni. Var öllu vel fyrir
komið. — Tuttugu íslenzkir fánar
bíöktu á hátíðasvæðinu allan tím-
ann.
Gestirnir höfðust við í tjöldum
við ána um nóttina. Sumir fóru
heim á bæi í kring, en aðrir til
Þingeyrar.
Sunnudaginn 3. ágúst hélt svo
hátíðin áfram og hófst með guðs-!
þjónustu kl. 9 árdegis. Prédikaði
séra Jón ólafsson prestur í Holti
í önundarfirði. Síðan mælti séra
Böðvar Bjarnason fyrir minni ís-
lands. Svo sýndu nokkrir ung-|
lingar sund þar við Framnes-j
ströndina, undir stjórn V. Nath-|
anaelssonar. Björn Guðmunds-
son skólastjóri á Núpi mælti fyr-
ir minni Jóns Sigurðssonar. Frið-|
rik Hjartar skólastjóri í Súg-
andafirði flutti ræðu fyrir minni
héraðsins. —
Eftir það frjálsar skemtanir, og
klukkan sex var hátíðinni slitið
t-.f Jóh. hreppstjóra Ólafssyni.í
Óskaði hann gestunum góðrar
heimferðar og þakkaði gott fram-
íerði allra hátíðargesta. —
Veðrið var mjög gott báða dag-
ana, sólskin og blíða fyrri da'g-;
inn, en seinni daginn lítið eitt
s\ alara. Hátíðina sóttu um 900— I
1000 manns, flest úr Dýrafirði,
Önundarfirði, Súgandafirði og
ísafirði og víðar. — Mgbl.
kosti 2 tveggja tonna þunga, ætti lega kominn eftir dalnum alt að
hann að geta annast flutninga-, Brennu. En þar eru nú að eins
þörf framdælinga að sumrinu; f jórir bæir ofar, og ekki mjög langt
og að vetri til er ísinn oftast bezti a milli.
vegur fyrir sleða. —Skorrdæling-! 1 suðurhlið Þverfells liggur gat-
ar verða þó að fá, áður langt um an skamt frá árgljúfrinu. Á einum
líður, ökuslóð inn í bygðina fyrir stað þar sprettur upp lind, milli
ofan vatnið. Að norðanverðu er
að mestu sjálfgerð braut frá
Grund inn á Gunnarseyri, en það-
an að seglgili í Fitjahlíð, sem er
lan!gur kafli *um 6—7 km.), þarf
víðast mikla vinnu til að ryðja
braut. Auðgerðara er það sunn-
götu og gljúfurs, með einkennilega
dimmbláu vatni. Það er hið bragð-
bezta og lystugasta vatn, sem eg
hefi drukjdð. Gæti ég trúað, að
það væri “ölkelda”. Þegar eg sum-
arið 1875 var í “kláðaverði” þar
um slóðir, hélt eg til nokkra daga
an vatnsins. Þar er einkum á' fyrst um vorið á Gilsþremi, sem er
kaflanum frá Þófagilseyri inn efsti bær í Lundar-Reykjadal,
fyrir bæinn í Svanga, um 1% km.i meðan býgður var skálinn, sem eg
að lengd, sem lagfæra þarf tili bjó í um sumarið. Hitti eg þá
muna.
Síma í efri hluta dalsins ætti
að leg'gja frá Stóru - Drangeyri
(þar sé símastöð að Vatnshorni
eða Fitjum. Hefir verigð gert
lind þessa eitt sinn, er eg var þyrst-
ur. Eftir það gerði eg mér þar
leið um daglega, og drakk teyg úr
iindinni, þótt óþyrstur væri. En
siðan hefi eg ekki átt leið þar,)
ráð fyrir sima að Fitjum úr.Lund-j Flókadalur er styttri en hinir,
ar-Reykjadal (frá Brennum). Það °8 fábygðari. Hann er tvískift-
er yfir háan og brattan háls, mjög, ur > fa.lla tvær ár um hann, Flóka-
erfiða flutningsleið. Þó leiðin frá, dalsá og Geirsá, en báðar stuttar.
Drageyri sé nokkru lengri (að Síipaálmu (frá Stóra-Kroppi) ætti
Fitjum', er hún að öllu öðru hag- aÖ leggja að Geirshlíð eða Hæli.
kvæmari og tiltækile'gri.
Reykholtsdalur er bezt á veg
Gilsbakka), oð
Hvítársíðulínan
Þegar kaupstaðabúar fara að k0Tninn> vegaður að endilöngu o'g
íá greiðar samgöngur til hins fJórar símastöðvar í dalnum. Um
fagra, skógivaxna, heilnæma Hálsasveit er og bílfært, en eng-
Skorradals, og njóta þar hress-j in símastöð enn. Mun vera vænt-
ingar í sumarleyfum sínum, verð- anie2 ^rein (frá
ur Stóra-Drangeyri, tilvalin mið-' Stóra-Ási, er
stöð dalsins. Þar ætti að hafa kemur-
hreyfilbátinn, sem um vatnið ^e® skilningi og viturlegum
gengi, og bílveg þaðan inn í dal-l ráðum Þeirra> sem stjórna, fram-
inn. — Á Drageyri er mikið og lagi °% atorku hinna> er níóta
auðræktað túnefni. Bilvegurinn ei&a> góðri samvinnu allra, er
frá Hvalfirði um Geldingadraga, hiut eiga> ma vænta, að alt
hafi þetta bráðum “Igóða vegi.”
Grh. 17. ág. 1930.
—iLögr. B. B./>
Henry Ford
um framtíð kvenfólksins.
sem nú er að verða fjölfarnasta
leið milli landsfjórðunga, liggur
þar hjá túni og símalínan skamt
þar frá.
Lundar-Reykjadalur hefir og
■verið |án nútíðarsamgöngutækja. j
En nú er verið að byggja veg innj ______
í dalinn frá þjóðbrautinni við Henry Ford, bílakóngurinn svo-
Mannamótsflöt. Þegar sá vegur nefndi, hefir nýlega látið hafa
er kominn inn fyrir Skarð, sem eftir sér í frönsku tímariti 'ýms
máske verður nú í haust, má með ummæli um konur nútímans og
smáviðgerðum á stöku stað gera störf þeirra frá sjónarmiði þelrr-
bílfæra slóð inn í dalbotn og á- ar iðnmenningar og vélamenning-
fram austur fyrir Þverfellssanda.1 ar, sem hann trúir að verða muni
Milli Þverfells og Uxahryggs er menning framtíðarinnar enn þá
graslendiskafli, og þarf þar að meira en hún er nú.
gera vegarbót, svo bílfært sé. Ogj Öld vélanna, verður öld þægind-
Uxahrygg má ryðja *þó stórgrýtt' anna, segir Ford. Kvenfólkið
sé þar á kafla) ; en milli hans og! losnalr við marga erfiðisvinnu.
vegargerð Rafmagn verður komið um allar
sveitir, á afskekta bæi eins og í
Biskupsbrekku, þárf
á nokkrum kafla.
En þá er komið á bílveg þann
borgir. Iðnaðurinn hættir þá auð-
Borgar fj ar ðar dalir
Vegir og símar um þá.
Þar þótti byggilegt með gamla
laginu. Landgæði eru þar miki!
og fénaðurinn því arðsamur, semj
var aðalatriðið, meðan mest var,
lifað og nærst af afurðum hans,'
eins og þær lögðu sig í búin dag-|
lega. En síðan búnaðarhættir
breyttust og búskapurinn gerðist,
háður örum samgöngum og verzl-j
un, hefir þar þótt afskekt og
naumast byggilegt á sumum jörð-
um, vegna þess að minna er þar^
um akfæra vegi, símasambönd og
greiðar samgöngur en annars-1
staðar í nágrenninu. Klifabera-j
flutningur þykir nú neyðarúr-j
ræði, óviðfeldinn og dýr, og er
það, eins og viðskiftunum er nú
komið. Hefir því legið nærri, að
sumar jarðrir þar legðust í eyði.j
síðan vinnufólk varð torfengið!
og svo kaupdýrt, sem nú er.
En hlynna verður að þvi, að
þar þyki búandi eins o'g áður.
Samgöngutækin verða þar að gera
hið sama og annarsst&ðar: efla
hag manna og vellíðan.
Einkum' er það Skorradalur og
Lundar-Reykjadalur, sem enn eru
illa settir með samgöngurnar. í
Skorradal tekur hið mikla vatn
af undirlendið um dalinn miðjan
o!g er strjálbygð meðfram því, svo
hætt er við að dráttur verði á, að
gera bílfæran veg inn í bygðina
íyrir ofan yatnið. Þó eru lang-l
ii kaflar beggja megin þess greið-j
færir fyrir bíl með lítilli viðgerð
(malarstrendur olg eyrar). Nokk-
ur hluti leiðarinnar hvoru megin
þarfnast viðgerðar eða veru-
legrar lagfæringar til að vera ak-
fær. En væri til við það hreyfil-
bátur, sem flutt gæti að minsta
sem nú er notaður, þegar farinn vitað að safnast í borgirnar. Hann
er Kaldidalur. Og þetta er sú breiðist um allar bygðir og dreg-
leið, sem sjálfsagt er að notuð ur fólkið út í sveitirnar, að gras-
verði að sumarlagi, sé bílum far-j inu, trjánum og skepnunum. Á
ið alla leið milli Suðurands og þann hátt kemst fólkið undan há-
Norður- og Vesturands. Þá tekstj vaða og gný borganna og öðlast
af Kaldadalsolnboginn, sem gerir betra líf.
Ieiðina miklu erfiðari og lengri.j Ef kvenfólkið heldur vel á sinu,
Er ekki ráðlegt, að kosta miklu til segir Ford enn fremur, munu völd
þeirrar leiðar, hvorki í vegagerð, þess fara vaxandi, ekki í iðnaðin-
gistihúsabygging í von um ferða- um, heldur á heimilunum. Heim-
mannastraum, né öðru. Eins og iiið er markið, sem unnið er fyr-
Friðrik Björnsson frá Þverfelli ir, iðnaðurinn er ekkert takmark
hefir bent á, er LundarÆeykja-| í sjálfu sér, þann er einungis með-
dalsheiðin hin bezta, brattalaus og al til þess að vinna fyrir heimil-
auðgerð. Hún er sjálfkjörin, unz' in. Konum fer fremur fækkandi
vegur kemur inn fyrir HvalfjörðJ en fjölgandi í iðnaðinum, og eftrr
sem hætt er við að dráttur verði á.1 því sem iðnaðurinn eflist, mun
Lundar-Reykjadalur hefir mörg kvenfólkið alveg hverfa úr hon-
og mikil skilyrði til framfara og um, því konur vantar þá ná-
lífvænlegrar afkomu. Ræktunar-j kvæmni og velgengi hugans, sem
hæft og auðræktað land er þar^ iðnaðurinn krefst. Þær hafa ekki
mikið. Þar eru fossar bæði í
Tunguá og Grímsá. Reyðarvatn,
ofan við dalinn, er veiðisælt, og
lækir, sem falla í það (hentugt til
stangaveiða og Grímsá laxgeng
upp fyrir bygð. Hverir og laugar
eru í dalnum, á Englandi, Reykj-
um og Brautartungu. Og í Tungu-
ár-farvegi, fyrir ofan Vörðufell, er
heit laug, -hin hæstliggjadi, er eg
veit af í Borgarfirði. Hið fræga
Krosslaug er og við veginn í daln-
um. Og bráðum er sími væntan-
þolinmæði til þess að stjórna vél-
um og ^tæra sig ekki um það að
fullkomna sig í vélavinnu. Kon-
ur og menn eiga ekki að vera að
bítast í iðnaði og á vinnumarkaði.
Þau eiga að vinna saman. Úr
samvinnu þeirra mun koma miklu
betra líf og starf, en nú á sér
stað. Slík samvinna verður eins
og trú, en i trúnni er afar áhrifa-
mikill kraftur til göfgunar mann-
kynsins, sagði Ford að lokum. —
Lögr.
ROSEDALE KOL
Lump $12.00
Stove $11.00
Ford Coke $1 5.50 Ton
Scranton Hardkol
Poca Lump og
Canmore Bricquets
THOS. JACKSON & SONS
370 Colony St. Phone 37 021