Lögberg - 09.07.1931, Qupperneq 1
44. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 9. JÚLÍ 1931
NÚMER 28
Kirkjuþingið
Niðurl.
Kirkjuþingið hafði ein átta
mál á dágskrá alls: Heimatrú-
hoð, heiðingjatrúboð, Jóns Bjarna-
sonar skóli, Betel, sunnudags-
skólamál, unglingafélög, sam-
hand kirkjufélagsins við önnur
lútersk kirkjufélög, útgáfumál.
'Hafa öll þessi mál áður verið á
dagskrá þingsins og var því í
Jietta sinn ekki um nein nýmæli
að ræða. Hefir þegar verið v*ik-
ið að tveimur þessara þingmála.
Trúboðinu er haldið áfram í
sama horfi o!g að undanförnu og
sömuleiðis kristindómsfræðslu
barna og unglinga. Samband
kirkjufélagsins við önnur kirkju-
félög, var lítið rætt á þessu þingi.
Hafa sumir mikinn áhuga á því
máli, en aðrir líta svo á, að það
sé ýmsum vajikvæðum bundið.
Það kirkjufélag, sem aðallega
hefir verið talað um að samein-
ast, er “The United Lutheran
Uhurch in America”. Þó hefir
*‘The American Lutheran <Con-
ference” einnig komið til orða.
LJrðu allmiklar umræður um þetta
mál á kirkjuþinginu í fyrra og
var framkvæmdarnefndinni þá
falið að hafa málið til meðférð-
ar til kirkjuþingsins, sem nú var
haldið. Hafði framkvæmdar-
nefndin valið þrjá menn úr sín-
nra hóp til að hafa málið til með-
ferðar. Samkvæmt tillögu þeirra
var málinu frestað til næsta
kirkjuþings, til frekari undir-
húnings.
Um útgáfumálin er ekki mik-
3ð að segja. Kirkjufélagið er
ekki að gefa út neinar bækur eða
rit, nú sem stendur, nema Sam-
eininguna. Sú útgáfa iborgar sig
ekki. Ekki nærri því. Mun nú
flestum ljóst, að útgáfa íslenzkra
rita hér í landi, er síður en ekki
arðvænleg. Hér stendur þó nokk-
uð sérstaklega á. Félagið, sem
gefur út Sameininguna, er lang-
fjölmennasta félag íslendinga hér
í landi, telur um hálft níunda
Jtúsund manna, og það kostar ekjci
nema rúma þúsund dali, að gefa
ritið út. Hér þarf því ekkert
nema ofurlítil samtök félags-
manna sjálfra, svo sem sjö hundr-
uð kaupendur, sem borga blaðið
reglulega á hverju ári. Því ekki
að gera það?
Embættismenn kirkjufélagsins
voru endurkosnir, séra Kristinn
K. Olafson forseti; séra Jóhann
Bjarna/son skrifari og Finnur
Johnson féhirðir. Aðrir vara-
menn voru kosnir, en áður höfðu
verið: séra Haraldur Sigmar var
kosinn vara forseti, séra E.
Fafnis varaskrifari og A. C. John-
son varaféhirðir. í framkvæmd-
arnefnd voru kosnir hinir sömu
og áður, nema Finnur Johnson.
í hans stað var kosinn J. J. Myres.
I Betel nefndinni eru allir hinir
sömu og verið hafa. Úr skóla-
nefndinni gengu þeir A. P. Jó-
hansson og T. E. Thorsteinsson.
1 þeirra stað voru kosnir Eggert
Fjeldsted og séra E. H. Fáfnis
Tvo fyrstu dagana var þingið
haldið í kirkju Gardarsafnaðar,
en síðasta daginn í Vídalíns-
hirkju. Hún er eitthvað sex míl-
ur austur og þrjár mílur norður
frá Mountain. Þar var því slitið
seint á laugardagskveldið — eða
kannske það hafi verið liðið eitt-
hvað lítilsháttar fram á sunnu-
dagsmorguninn. Þingið gekk því
óvanalega fljótt og það gekk yf-
irleitt vel. Má það mikið þakka
forsetanum, sem er ágætur fund-
arstjóri.
Tvö erindi voru flutt á þing-
inu. Hið fyrra flutti Dr. Björn
Jónsson á fimtudagskveldið, er
hann nefndi “Þörfin að afkvista”.
®r það erindi nú þegar prentað
1 Sameiningunni. Hitt erindið
flutti séra Guttormur Guttorms-
s°n á laugardagskveldið. Það
nefndi hann “Fráhvarf frá lög.
tuáli kristindómsins á vorri tíð.”
Á föstudagskveldið fóru fram
rúmálaumræður. Þar var séra
• H. Fáfnis málshefjandi, og um-
ræðuefnið var: “Aðferð til að
Landnámshátíðin
í Argyle
Eins og kunnugt er, var það á-
kveðið, að fimtíu ára landnámsaf-J
mæli íslenzku bygðanna í ArgyleJ
yrði hátíðlegt haldið að Grund,1
dagana þann 4. og 5. yfirstandandi
mánaðar. Sú varð breyting á, að
sökum óvenjulega mikils regns,1
varð að fresta hátíðarhaldinu um
einn dag; hátíðin varð öllum, er
hlut áttu að máli, til hinnar mestuj
sæmdar. Frekari greinargerð bíð-j
ur næsta blaðs. Að þessu sinni
birtist að eins hið afar-snjalla
frumherjaminni Dr. Björns B.
Jónssonar, ásamt hinu prýðilega
kvæði frú Jakobínu Johnson.
Umhverfis jörðina á
átta dögum
Flugmennirnir Wiley Post og
Harold Gatty, luku ferð sinni um-|
hverfis jörðina og komu til NeWj
York, hinn 1. þ. m. Frá því þeirj
lögðu af stað og þangað til þeir
komu heim aftur, voru 8 dagar,
15 klukkustundir og 51 mínúta,
en af þeim tíma voru þeir á flugi
að eins 4 daga, 10 klukkustundir
og 8 mínútur. Alls lentu þeir og
stóðu eitthvað við, meira og
minna, á 13 stöðum, en vega-j
lengdin, sem þeir flugu, er rétt,
um 16,000' mílur. Heita mátti, að
ferðin gengi slysalaust, og er
þetta sú lang-fljótasta ferð, sem
farin hefir verið umhverfis jörð-
ina. Loftfarið, sem þessir tveir
menn notuðu, heitir Minnie Gae.
Það er ekki mjög stórt, en afar-
traust og fljótt í ferðum.
Algeng frímerki
Hingað til hefir orðið að nota
sérstök frímerki (excise stamps)
á bankaávísanir og póstávísanir.
Nú þarf þess ekki lengur, og dug-
ir að láta algeng tveggja centa
frímerki á slíkar ávísanir.
Óeirðir í Calgary
í vikunni sem leið urðu skærur
all-alvarlegar í Calgary milli at-
vinnulausra manna og lögregl-
unnar og særðust þar tveir lög-j
reglumenn og þrír af hinum, og
eitthvað um þrjátíu manna voru
teknir fastir. Fullyrt er, að kom-
múnistarnir eigi sök 1 þessu.
vekja áhuga fyrir starfsmálum
kirkjunnar.”
Á sunnudaginn, kl. 11 f. h.,
voru guðsþjónustur haldnar í sjö
kirkjum bygðarinnar. íslenzka
byg<6in í North Dokota er bein-
línis auðug af kirkjum. Einn
söfnuðurinn, Gardarsöfnuður, á
tvær kirkjur. Eg held kirkjurnar
séu of margar, eins og nú er hátt-
að samgöngutækjum, að minsta
kosti fyrir prestinn. Ef tjl vill
væri þar líka þörf að afkvista.
Síðari hluta sunnudagsins, var
skemtisamkoma haldin að Moun-
tain, í skemtigarði bæjarins, frá
kl. 2 til 6. Eg kom nokkuð seint
og fór snemma og get því ekki
vel frá því sagt, sem þar fór
fram. Fólkið var fjarskalega
margt, um tólf hundruð var mér
sagt. Mér fanst ég sjá alla Da-
kotabúa þarna í einu, þá sem ís-
lenzkir eru, á eg við, og marga
aðra víðsvegar að. Prestarnir
héldu ræður, en þær voru flestar,
eða allar stuttar. Þar var líka
skemt með söng og hljóðfæra
slætti. Ágætar veitingar handa
öllum og “kreppunnar” gætti
ekkert. En hitinn var óttalega
mikill. Mér finst eg aldrei hafa
séð eins marga sveitta íslendinga
eins og á þessari samkomu.
Viðtökumaír, sem kirkjuþings-
menn og gestirnir áttu að mæta,
voru .hinar ákjósanlegustu. Það
eru getrisnir menn og gestrisnar
konur í íslenzku ibygðinni í North
Dakota. Það hefir víst altaf ver-
ið svo og það er svo enn. Eg
gisti allar næturnar hjá Mr. og
Mrs. J. K. Olafson að Gardar. Eg
hefi aldrei gist nokkurs staðar,
sem mér hefir þótt betra að vera
en þar. F. J.
Alþingiskosningarnar
Lögberg skýrði frá því á sín-
um tíma, hverjir væru í kjöri við
Alþingiskosningarnar, sem fram
fóru á íslandi hinn 12. júní, og
síðar frá aðal úrslitum kosning-
anna. Nú eru rétt komnar frétt-
ir af því, hverjir kosningu hlutu
í öllum kjördæmum landsins,
nema fjórum, og skulu þeir nú
hér taldir.
í Reykjavík hlutu kosningu:
Jakob Möller, Einar Arnórsson,
Magnús Jónsson og Héðinn
Valdimarsson. Fékk listi Sjálf-
stæðisflokksins 5,576 atkvæði,
Alþýðuflokkurinn 2,628, Fram-
sókn 1,234 og kommúnistar 251.
í Hafnarfirði var kosinn,
Bjarni Snæibjarnarson læknir
með 741 atkv.; Stefón Jóhann
Stefánsson fékk 679 atkv.
Á ísafirði var kosinn Vilmund-
ur Jónsson með 526 atkv.; Sig-
urður Kristjánsson fékk 339 at-
kvæði.
Á Seyðisfirði var kosinn Har-
aldur Guðmundsson með 274 at-
kv.; Sveinn Árnason fékk 145 at-
kvæði.
Á Akureyri var Guðbrandur
ísberg kosinn með 598 atkv.; Ein-
ar Olgeirsson fékk 434, Kristinn
Guðmundisson 305 og Erlingur
Friðjónsson 158.
í Vestmannaeyjum var Jóhann
Jósefsson kosinn með 758 atkv.;
Þorsteinn Víglundsson fékk 235,
ísleifur Högnason 220 og Hall-
grímur Jónsson 34.
í öðrum kjördæmum landsins,
hlutu þeir kosningu sem hér seg-
ir, að svo miklu leyti, sem síðustu
fréttir ná:
Árnessýsla: Kosnir Jörundur
Brynjólfsson með 974 atkv. og
Magnús Torfason með 904; Ei-
ríkur Einarsson fékk 646 atkv.,
Lúðvík Nordal læknir 546 atkv.,
Einar Magnússon 211 atkv. og
Felix Guðmundsson 137 atkv.
Skagafjarðars.: Þar hlutu
kosningu Steingrímur Steindórs-
son með 813 atkv. og Magnús
Guðmundsson með 793 atkv.;
Jón Sigurðsson á Reynistað fékk
776 atkv., Brynleifur Tobiasson
fékk 778 atkv., Steinþór Guð-
mundsson fékk 47 atkv. og Lauf-
ey Valdimarsdóttir 37 atkv.
Rangárvallas.: Þar hlutu kosn-
ingu Jón Ólafsson bankastjóri
með 761 atkv. og Sveinbj. Högna-
son með 603 atkv.; Skúli Thorar-
ensen á Móeiðarhvoli fékk 581
atkv., Páll Zophoniasson fékk 557
atkv., Gunnar Sigurðsson frá
Selalæk, fyrv. þingmaður, fékk
237 atkv.
í Austur-Húnavatnssýslu var
Guðmundur ólafsson kosinn með
407 atkv.; Þórarinn Jónsson fékk
334 atkv.
í Vestur-Húnavatnssýslu var
Hannes Jónsson kosinn með 345
atkv.; Pétur Magnússon fékk 275
atkv., Sigurður Grímsson fékk
21 atkv.
í Mýrasýslu var Bjarni Ás-
geirsson kosinn með 449 atkv.;
Torfi Hjartarson fékk 349 atkv.
Norður-Múlasýsla: Þar voru
kosnir Halldór Stefánsson, með
619 atkv. og Páll Hermannsson
með 611 atkv.; Árni Jónsson frá
Múla fékk 313 atkv. og Árni Vil-
hjálmsson 307 atkv.
Suður-Múlasýsla: Þar voru
kosnir Sveinn Ólafsson með 854
atkv. og Ingvar Pálmason með
845 atkv.; Magnús Gíslason sýslu-
maður fékk 675 atkv., Árni Páls-
son 618 atkv., Jónas Guðmunds-
son 455 atkv. og Arnfinnur Jóns-
son 421 atkv.
Gullbringu- og Kjósarsýsla:
Þar var kosinn Ólafur Thors með
1039 atkv.; séra Brynjólfur Magn-
ússon fékk 368 atkv. og Guð-
brandur Jónsson 101.
Dalasýsla: Þar var kosinn Jón-
as Þorbergsson með 382 atkv.;
Sigurður Eggerz fékk 308 atkv.
iSnæfellsness- og Hnappadals
sýsla: Þar var kosinn Halldór
læknir Steinsson með 492 atkv.;
Hannes Jónsson fékk 475 atkv. og
Jón Baldvinsson 246 atkv.
Vestur - Skaftafellsssýsla: Þar
var kosinn Lárus Helgason með
Hveitisamlagið
Sú fregn flaug fyrir einn dag-
inn í vikunni sem leið, og kom
frá Ottawa, að hveitisamlagið
væri búið að vera. Það hefði
enga peninga til starfrækslu og
gæti enga peninga fengið og yrði
því að hætta. Þessi fregn reyndist
ekki að vera á rökum bygð.
Hveitisamlagið heldur áfram, þó
fyrirkomulagið verði nú nökkuð
annað, en verið hefir. Nú geta
samlagsbændur t. d. selt hveiti
sitt fyrir peninga út í hönd, ef
þeir vilja, eins og áður hefir ver-
ið getið um hér í blaðinu. Sjálf-
sagt hefir hveitisamlagið minna
um sig fyrst um sinn, heldur en
það hefir gert, en hvað Manito-
ba snertir, að minsta kosti, held-
ur það yfirráðum yfir kornhlöð-
um sínum, en þó með eftirliti
fylkisstjórnarinnar að einhverju
leyti. Hefir stjórnin styrkt
hveitisamlagið öfluglega í þeim
örðugleikum, sem það hefir átt
við að stríða vegna verðfalls
hveitisins, og hún gerir það enn.
Bracken forsætisráðherra flutti
langa ræðu um málið í vikunni
sem leið og hvatti bændur til að
halda fast við samvinnuhug-
myndina, þó ekki gengi alt að
óskum í bili.
Gullbrúðkaup
Á þriðjudagskveldið í vikunni
sem letð, hinn 30. júní, var þeim
Mr. og Mrs. Ben. Hinriksson, að
449 Burnell Str. hér í borginni,
haldið samsæti að heimili þeirra,
af nokkrum vinum, sem þá heim-
sóttu þau. Var tilefnið það, að
þá höfðu þau verið gift í 50 ár.
Mr. Árni Eggertsson afhenti þeim,
fyrir hönd gestanna, prýðisfall-
egan lampa. Síðar um kveldið
voru rausnarlegar veitingar fram-
reiddar, eftir að gestirnir höfðu
spilað ibridge og skemt sér með
ýmsu móti. Viðstaddir voru:
Mr. og Mrs. Ben. Hinriksson,
Mr. og Mrs. Árni Eggertsson,
Mr. og Mrs. J. Eggertsson, Mr.
og Mrs. J. Hendrickson, Mr. Og
Mrs. V. Hendrickson, Mr. og Mrs.
R. Hendrickson, Hr. og Mrs. P.
Reykdal, Mr. og Mrs. O. R. Phipps,
Mr. og Mrs. A. Hope, Mr. og Mrs.
R. Hod'gson, Mr. og Mrs. P Mor-
rison, Mr. R. Sigúrdson, Mr. H.
Sigurdson, Mr. og Mrs. G. M.
Bjarnason, Mr. og Mrs. L. Thom-
sen, Misses G. L. Thomsen og
O. Hendrickson.
Floginn til íslands
Fregn frá Friedrichshaven á
Þýzkalandi, hinn 30. júní, getur
þess, að þann da!g hafi Graf Zep-
pelin, undir stjórn Dr. Eckeners,
lagt af stað til íslands. Er sú
ferð gerð til undirbúnings undir
heimskautaflug síðar í sumar.
Tólf farþegar voru með loftskip-
inu.
390 atkv.; Gísli Sveinsson sýslu-
maður fékk 377 atkv.
Austur-iSkaftafellsssýsla: Þar
var kosinn Þorleiíur Jónsson í
Hólum með 317 atkv.; Sigurður
Sigurðsson frá Kálfafelli fékk
139 atkv. og Einar Eiríksson fékk
9 atkvæði.
Vestur-ísafjarðarsýsla: Þar
hlaut kosningu Asgeir Ásgeirs-
son fræðslumálastjóri með 541
atkv.; Thor Thors cand. jur. fékk
233 atkv. og Sigurður Einarsson
35 atkv.
Barðastrandars.: Þar var kos-
inn Bergur Jónsson sýslumaður,
meg 747 atkv.; Hákon Kristófers-
son bóndi í Haga fékk 332 atkv.
og Árni Ágústsson 61 atkv.
Borgarf jarðará.: Þar var kos-
inn Pétur Ottesen, með 603 atkv.;
Þórir Steinþórsson fékk 428 atkv.
og Sveinbjörn Oddsson 32 atkv.
iNorður-Þingeyjars.: Þar var
kosinn Björn Kristjánsson, kaup-
féla'gsstjóri á Kópaskeri, með 344
atkv.; Benedikt Sveinsson fékk
254 atkv. — Frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins, Jón Guðmunds-
son bóndi í Garði, dró framboð
sitt til baka skömmu fyrir kjör-
dag.
Vilhjálmur Stefánsson
um örlög íslendinga í Grænlandi
og um Dani og islendinga.
í Grænlandi og ýmsum öðrum
bygðum, þar sem Eskimóar eru,
fara fram miklar og merkar
rannsóknir á mannfræði og
menningarsögu og hafa varpað
ýmsu nýju ljósi á frumstig menn;
ingarlífs mannkynsins. Danir
hafa lagt mikla stund á þessar
rannsóknir, en einnig Ameríku-
menn og Englendingar^ og Þjóð-
verjar. Eitthvert nýjasta og
helzta ritið, þar sem safnað er
saman yfirliti um allan fróðleik
og allar rannsóknir viðvíkjandi
Grænlandi, er nú gefið út af
dönsku nefndinni, sem sér um
jarðfræði- og landfræðirannsókn-
ir á Grænlandi. Er það mikið
rit á ensku , og segir í fyrsta
bindi frá landsháttum, í öðru
bindi frá mannabygð í Grænlandi
fyr og nú, og í þriðja bindi frá
landnámi í Grænlandi og frá sögu
landsins frá upphafi o!g \il árs-
ins 1929.
Um þetta mikla verk hefir Vil-
hjálmur Stefánsson nýlega
skrifað í amerískt landfræðirit
(Geographical Review xx. 4) og
notar jafnframt tækifærið til þess
að skýra frá afstöðu sinni til
ýmsra merkra atriða í Grænlands
rannsóknunum, og með því að
hann er manna fróðastur um
þessi efni, en þau hugleikin
mörgum íslendingum, verður sagt
nokkuð frá grein hans.
Hann tekur fyrst til athugunar
grein eftir Birket-Smith um Græn-
lendinga nútímans o!g lýkur á
hana lofsorði, en bendir á nokkr-
ar skekkjur í henni og verður
það honum tilefni til þess að tala
um danskar Grænlandsrannsókn-
ir alment. Dæmin, sem ég hefi
tekið, segir hann, benda'á það,
að ■ dönsk ví^indamenska í sagn-
fræðum og málfræðum, að minsta
kosti eins og hún kemur fram í
þessu verki, sé ekki á sérlega háu
stigi, þegar hún fæst við forn-
norrænar frásagnir um Græn-
land. Norsk, þýzk og jafnvel
brezk fræðimenska stendur fram-
ar hinni dönsku, þó aí í Dan-
mörku sé að vísu búsettur sá
maður, sem mest mark má á taka
í fornnorrænum fræðum, sem sé
dr. Finnur Jónsson — en hann
er íslendingur. En það sem ein-
kennilegast er um þennan veik-
leika Dana, er það, að í nokkrar
aldir hafa þeir stjórnarfarslega
verið í nánu sambandi við ísland.
En hvers vegna eru þeir því svo
fjarlægir í andlegum efnum
(intellectually) ? Hvíla ef til vill
einhver álög á slíku sambandi,
að sínu leyti áþekk því, hversu
erfitt Englendingum virðist vera
það, að skilja íra*? Hefir hið
írsk-enka og hið íslenzk-danska
fyrirkomulag á pólitisku sam-
bandi það í för með sér, að fjar-
lægja þjóðirnar eða losa um and-
legt samband þeirra (to disunite
peoples intellectually) ?
Af atriðum þeim um sögu
Grænlands, sem Vilhjálmur Stef-
ánsson rannsakar sérstaklega í
grein sinni, skal hér aðallega get-
ið þess, sem hann segir um lok
íslendingabygðarinnar í Græn-
landi. Birket-Smith segir í sínu
riti, að það sé nú alment viður-
kent, að um miðbik 14. aldar
hafi hin nyrðri og minni bygð-
in, Vesturbygð, verið eydd af
Eskimóum og að sömu örlög hafi
gengið yfir hina bygðina líka. —
Þessar kenningar um árásir iEski-
móa á grænlenzku bygðirnar og
skyndilega auðn þeirra, telur
Vilhjálmur Stefánsson rangar og
spyr hvers vegna virða eigi að
vettugi rök Nansens á móti þessu
eða hvers vegna eigi að setja
fram sem örugga staðreynd,
kenningu, sem einungis sé danskt
sjónarmið, en virða ekki önnur
sjónarmið viðlits. Eskimóasagnir,
sem danskir fræðimenn hafa tal-
ið benda í sömu átt, hefir Nan-
sen einnig skýrt af miklum lær
dómi samkvæmt heimildum og út
frá persónulegri þekkingu sinni
á Eskimóum. Og niðurstaðan verð
ur langsamlega sú, segir Vilh.
Stefánsson, að alls ekki hafi ver-
ið um neina skyndilega útrým-
ingu, eðá endanlega eyðingu (fin-
al destruction)| íslendingabygð-
anna að ræða, heldur hafi ís-
Lendingarnir runnið saman við
Eskimóana í báðum bygðum og
þar í kring.
Það, að Eskimóarnir hafi út-
rýmt íslendingunum,- verður
einnig ósennilegt af öðrum á-
stæðum, sem hinar nýjustu forn-
fræðarannsóknir á Grænlandi
hafa leitt í ljós í öðrum sam-
böndum. Vilhjálmur Stefánsson
bendir í því efni einkanlega á
nýjustu áætlanir dr. Finns Jóns-
sonar um fólksfjöldann í íslend-
ingabygðum. Nansen áætlaði
(1911) að fjöldi Evrópumanna í
Grænlandi á miðöldum, hefði
aldrei verið ineiri en 2000 manns.
En nú gerir dr. Finnur ráð fyrir
því, að þeir hafi verið alt að því
9000, og er það mjög ólíklegt, ef
ekki ómögulegt, að Eskimóar
hafi yfirunnnið og útrýmt svo
miklum mannfjölda í skyndilegri
árás eða á skömmum tíma. Skyn-
samlegasta skýringin á örlögum
svo mannmargrar nýlendubygðar
er sú, að það sem átt hafi sér
stað með hvarfi hennar sem sér-
stakrar og sjálfstæðrar bygðar,
hafi ekki verið útrýming eða al-
eyðing, heldur þjóðblöndun eða
kynblendingur (racial amalga-
mation). Og þessi blöndun hef-
ir sennilega einkum farið fram
á öldinni milli 1400 og 1500.
Saga Grænlendinga er venjulega
látin enda um 1500, en nýjustu
viðburðir á sviði rannsóknanna,
gefa von um það, segir Vilhjálm-
ur Stefánsson, að takast muni
að rekja söguna lengra, sögu
grænlen^ku nýlendanna eftir
1500 og ef til vill koma henni í
sam'band við Frobisher-Davis
tíma brezkra landkannana og
máske geti hin nýja ötula Bristol-
rannsókn á brezkri verzlunar- og
siglingasögu hjálpað til þess. Það
er að minsta kosti víst, að íslend-
ingum var aldrei útrýmt alger-
lega í Grænlandi og sennilega
má rekja einhverja s.ögu þeirra
eftir 1500. — Lögr.
Veðrabrigði
Óvanalega miklir þurkar hafa
verið víðast hvar í Vestur-Can-
ada í alt vor og það sem af er
sumrinu. Hafa verið svo mikil
brögð að þessu, að uppskeruhorf-
ur eru víða mjög slæmar. Nú
fyrir helgina síðustu skifti um
veður, og hefir síðan rignt mik-
ið, víðast hvar í Manitoba og
einnig 1 Saskatchewan og Al-
iberta. Sjálfsagt hefir rigningin
komið of seint, til að bæta mikið
hveitivöxtinn, þar sem hann var
lakastur vegna þurkanna, en engu
að síður hefir regnið gert afar-
mikið gagn, því öllum gróðri fer
nú mjög mikið fram, þó áliðið sé_
orðið.
Bennett útnefnir tvo
Senatora
P. Burns hefir verið útnefnd-
ur senator frá Alberta, og Arthur
Marcotte, K.C., frá Saskachewan.
Er nú efri málstofan þannig
skipuð, að þar eru 47 íhaldsmenn
og 48 frjálslyndir. Eitt sæti er
autt og þegar Bennett er búinn
að skipa mann í það. verða þing-
flokkarnir jafn fjölmennir í efri
málstofunni.
Fjölmennasta borgin
Enn er London fjölmennasta
borgin í heimi, og hefir meira en
miljón íbúa fram yfir New York.
London er nú talin að hafa
8,202,818 íbúa. Er þar átt við
“ytri hringinn”, sem samsvarar
New York hinni meiri, bygðin í
nágrenninu talin með. íbúatal-
an í New York er, samkvæmt síð-
asta manntali, 6.981,917, eða
1,200,901 minni en í London.