Lögberg - 16.07.1931, Blaðsíða 4
Bls. 4.
LOGBERG, FIMTUDAGINN 16. JÚEÍ 1931.
Robinf Hood
FLOUR
ENDURBORGUNAR ABYRGÐIN
tryggir yður
Úr bœnum
I! i
Gott uppbúið herbergi til leigu
að 605 Agnes St.; sími 86 126.
Messur í Argyie prestakalli 19.
júlí: Baldur, kl. 9 f.h.; Grund,
k!. 11 f. h.; Brú, kl. 2.30 e. h. og
Glenboro, kl. 7 e. h. ,' E. H. F.
Séra Haraldur Sigmar prédik-
ar á sunnudaginn kemur, 19. júlí,
í Kandahar kl. 11 f. h. og í Wyn-
yard kl. 3 e. h. Kveldmessu síð-
ar ráðstafað.
öKum þeim, sem hlyntir eru
skógræktarmá'i íslands, er vin-
samlega boðið, kl. 3 e.h. laugar-
daginn 18. júlí, heimili B. Magn-
ússonar, 428 Queen St., St. James.
Mr. Jón Einarsson frá Gimli,
Man., var staddur 'í borginni
seinni part vikunnar sem leið.
Hann er kominn yfir áttrætt, en
er ern og skýr og glaðlegur eins
og áður.
í greininni um kirkjuþingið, í
síðasta blaði, var sagt að Mr. T.
E. Thorsteinson hefði gengið úr
skó’aráði Jóns Bjarnasonar skóla.
Þetta er ekki rétt. Það var séra
Carl J. Olson, sem úr gekk, og
var í hans stað kosinn séra E. H.
Fáfnis.
Mrs. Chr. Albert lagði af stað
til Chicago á miðvikudaginn í
vikunni sem leið. Gerði hún ráð
fyrir að dvelja þar svo sem mán-
aðartíma hjá syni sinum og
tengdadóttur, Mrs. og Mrs. K. K.
Albert.
Fræðimaðurinn góðkunni, Magn-
ús Sigurðsson á Storð, var tadd-
ur í borginni á þriðjudaginn.
Mr. og Mrs. Jón Thorsteinson
frá Kandahar, tvær dætur þeirra
og tengdasonur, eru stödd í borg-
inni um þessar mundir.
Mrs. Franz Thomas frá Chi-
cago, er stödd í bor’ginni og
verður hér tveggja vikna tíma
hjá vinum og vandafólki.
Dr. og Mrs. Biörn B. Jónsson
lögðu af stað fyrir helgina síð-
ustu til St. Paul og Minneota.
Gerðu þau ráð fyrir að vera þar
syðra svo sem hálfsmánaðar
tíma.
Fimtudaginn 9. júlí, voru þau
Árni Páll Matheson og Ingi-
björg May Thorlakson, bæði frá
IWinnipeg Beach, Man., gefin
saman í hjónaband, af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lip-
ton St.
Picnic til Gimli. Næsta sunnu-
dag, 19. júlí, verður skemtiferð
Goodtemplara og annara til Gimli.
Verður farið með C.P.R. lestinni
kl. 10 að morgni; fargjald $1.25,
og 65c. fyrir börn. í Gimli Park
byrjar prógramið kl. 2: söngur,
framsögn, ræður og frumsamin
kvæði. Sérstaklega verður ung-
lingastúkunnar á Gimli minst við
það tækifæri, sem er þá 25 ára.
í kirkjunni að 603 Alverstone
stræti, — almenn guðsþjónusta
sunnudaginn 19. júlí, kl. 7 að
kveldinu. Ræðumaður: Páll Jóns-
son. Einnig á fimtudagskveldið
á sama stað, kl. 8, bæn og biblíu-
lestur. Fólk er beðið að hafa
lútersku sálmabókina með sér.
Allir velkomnir.
Hingað komu til borgarinnar
síðastliðið föstudagskvöld, úr*
ferðalagi suður um Bandaríki.
Mr. og Mrs. H. T. Halverson, frá
Regina, |Sask., ásamt tveimur
börnum sínum. Einnig var með
í förinni Mrs. Þórunn .Tónasson,
móðir Mrs. Halverson. Gestir
þessir hurfu heimleiðis á sunnu-
daginn.
Þar sem í síðasta iblaði er sagt
frá samsæti, sem þeim Mr. og
Mrs. Ben. Hendrickson að 449
Burnell St. hér í bænum, var hald-
ið hinn 30. júní, er sú mikla mis-
sögn, að það hafi verið haldið í
minningu um 50 ára giftingaraf-
mæli þeirra. Þetta er alveg rangt,
því hjónin hafa bara verið gift í
15 ár. Og kemur þessi missögn
til af misslestri eða misheyrn.
Allir hlutaðeigendur eru beðnir
að afsaka þetta.
Meðlimir íslenzka karlakórs-
ins í Winnipeg, erú hér með vin-
samlega beðnir að mæta á fundi
í Sambandskirkjunni, á föstudags-
kveldið kemur, klukkan átta.
Afar áríðandi mál liggur fyrir
fundinum og er þess vegna skor-
að á aila meðlimi, að mæta stund
víslega. Enn fremur verða með-
limir að hafa með sér söngbækur
flokksins. Nefndin.
Þér njótið
með ánœgju
hvers einasta dropa af
CITY
MILK
Kaupið það sem þér
þurfið af ökumanni vor-
um á strætinu, eða sím-
ið beint til
Hið Sameinaða kvenfélag Hins
ev. lút. kirkjufélags íslendinga í
Vesturheimi, hélt ársþing sitt í
Langruth, Man., á föstudaginn
o!g laugardaginn í síðustu viku.
Var það fjölsótt og í alla staði
hið ánægjulegasta, að sögn þeirra
er þar voru. Konurnar frá Win-
njpeg, sem/ þingið sóttu, komu
heim á sunnudagskveldið. Áður
en þær lögðu af stað frá Lang-(
ruth, voru þær við guðsþjónustu,
sem séra E. H. Fáfnis flutti. Frá
þingi þessu verður skýrt í næsta
blaði.
Mánudaginn 6. júlí s.l. voru
gefin saman í hjónaband af séra
E. H. Fáfnis, þau Helgi Finnson
frá Milton, N. Dak., o'g Kristbjörg
Halldóra Johnson frá Baldur,
Man. Giftingin fór fram á heim-
ili Mr. og Mrs. Jónas Helgason,
þar sem brúðurin er að mestu
leyti alin upp, að viðstöddum
nánustu vinum og kunningjum.
Að giftingunni lokinni var sezt
að borðum og var þar veitt af ís-
lenzkri rausn, brúðhjónunum til
ánægju og aðstandendum til sér-
staks sóma. Milli 40 og 50 manns
sátu veizluna og óskuðu hinum
ungu hjónum farsældar og bless-
unar í framtíðinni. Framtíðar-
heimili þeirra verður við Milton,
N. Dak.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast gTelClega um alt, sem aC
flutningum lýtur, smáum eSa stðr-
um. Hvergl sanngjamara verð.
Helmill: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 600
Síðastliðið laugardagskvöld
voru gefin saman í hjónaband
þau Jón J. Jónsson frá Siglunes,
Man., og Annie Ethel Bush, héð-
an úr borginni. Séra Rögnvald-
ur Pétursson framkvæmdi hjóna-
vígsluna að heimili sínu, 45 Home
Street. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður í Siglunes póst
héraði. Brúð:guminn er sonur
Jóns heitins fyrrum alþingis
manns frá Sleðbrjót.
STYRKIR VEIK LÍFFÆRI.
Fðlk, sem hefir veik liffæri, ætti ekki
að láta hjá llða, að fá sér Nuga-Tone,
þetta merkilega læknislyf, er veitir
nýja krafta og nýtt fjör. Nuga-Tone
styrkir taugar og vöðva, nemur á
brott höfuðverk og drunga, styrkir
einnig nýrun, skerpir meltinguna og
eykur lifsþrðttinn. Látið ekki bregð-
ast að fá flösku af Nuga-Tone. Fæst
í lyfjabúðum. En hafi lyfsalinn það
ekki við hendina, þá getur hann á-
valt útvegað það frá heildsöluhúsinu.
Mrs. J. J. Bildfell kom til
borgarinnar á laugardaginn frá
Detroit, þar sem hún hefir verið
um tíma að heímsækja dætur
sínar, Mrs. Hrefnu McRea og Miss
Sylvíu Bildfell, sem útskrifaðist
þar í vor í hjúkrunarfræði. Með
Mrs. Bildfell kom að sunnan Mrs.
McRea og sonur hennar, og Mr.
J. A. Bildfell og Mr. Thor Mel-
sted. Höfðu þeir farið til Detroit
um mánaðamótin.
Gefin saman í hjónaband, þ.
11. júlí s.l., voru þau Mr. Clar-
ence Allden Shields, frá Trans-
cona og Miss Agnes Sigurbjörg
Peterson, til heimilis hér í borg.
Séra Jóhann Bjarnason gifti og
fór hjónavígslan frani að heimili
foreldra brúðarinnar, Mr. og
Mrs. IDaníels Féturssonar á
Gimli. Aðeins nánasta ættfólk
brúðhjónanna var viðstatt hjóna-
vígsluna.
iSéra Jóhann Rjarnason var
staddur hér í bænum nú í vik-
unni, á ,leið til Lundar, þar sem
hann býst við að starfa að kirkju-
le!gum málum síðari hluta þessa
mánaðar, fræða börn, sem að
nokkru leyti er búið að uppfræða,
til fermingar og hafa messur
sunnudagana 19. og 26. þ. m.
Síðari sunnudaginn er búist við
að fermingarmessa, ásamt altar-
isgöngu, fari fram i kirkju Lund-
arsafnaðar kl. 2 e. h. Fólk beð-
ið að veita þessu athygli og að
koma til messu báða sunnudag-
ana, þenna tíma sem séra Jóhann
verður starfandi á Lundar.
BÖRN!
Sex ástæður fyrir því að þér ættuð að drekka eingöngu
“MODERN DAIRY MILK”
(Gerilsneydd)
1. Aðferð vor við að hreinsa mjólkina eyðir algerlega
öllum bakterium og skaðlegum gerlum.
2. Ein mörk af “MODERN DATRY MILK’’ hefir
næringargildi á við þrjú egg.
3. “MODERN DAIRY MILK’’ er með afbrigðum
auðug af holdgjafa efnunum “A’’ og “B’\
4. Hver drengmr og stúlka ætti að drekka pott af
“MODERN DAIRY MILK’’ daglega og safna
lífsorku.
5. Prófessor Kenwood frá London Umversity mælir
með fulkomnum myndugleika, með gerilsneyddri
mjólk.
6. AÐVÖRUN! Mjólk, sem ekki er gerilsneydd, er á-
reiðanlega hættuleg. 1 henni eru ótölulegar þúsund-
ir af hættulegum gerlum.
MODERN DAIRY LTD.
Canada’s Most Uþ-to-Date Creamery
Phone 201 101
Vér vildum minna á, að síðasti
fundur þessa ársfjórðungs í stúk-
unni Skuld, I.O.G.T., verður hafð-
ur miðvikudaginn 22. júlí, og þá
fer fram kosning embæt-tismanna
fyrir næsta ársfjórðung; væri
því mjög vel viðeilgandi og áríð-
andi, að meðlimir stúkunnar fjöl-
mentu sem allra mest. Þar verð-
ur líka ekki síður nóg af glað-
værð og skemtun en að undan-
förnu. Þá verður skemtiferðin
til Gimli nýafstaðin og því nóg
af ánægjulegum leiðangurs end-
urminningum að minnast á.
Sérstaklega ættu þeir fáu, sem
ekki hafa gefið sér tíma til að
sækja fundi á yfirstandandi árs-
fjórðunlgi, að láta ekki farast
fyrir í þetta sinn að sækja fund.
Ferðalag fiskanna
Lögrétta hefir nokkrum sinn-
um áður sagt frá þeim merking-
um fugla og fiska, sem ýmsir
fræðimenn hafa framkvæmt á
seinustu árum og frá þeim skemti-
lega óg merkilega árangri, sem
nú þegar hefir fengist af ýmsum
þessum tilraunum um ferðalög
dýranna landa og heimsálfa
milli. Einkum hafa merkingar
þessar staðfest hin æfintýraleg-
ustu ferðalög farfuglanna, er
fuglar, sem merktir hafa verið á
ís’.andi, hafa seinna fundist eða
verið skotnir suður um Evrópu
og Afríku. Fiskamerkingarnar
hafa einnig leitt ýmislegt merki-
lelgt í Ijós um ferðalög fiskanna
og mun sumt af því sjálfsagt á
sínum tíma geta haft hagnýtt
gildi fyrir útvegsmál vegna upp-
lýsinga þeirra, sem merkingarn-
ar gefa um fiskigöngur. Lög-
rétta sagði sl. sumar frá fiski-
'göngum milli íslands og Græn-
lands, er það sást, að sex þorsk-
ar, sem höfðu verið merktir við
Grænland, veiddust við Island.
Síðan hefir meira í þessa átt
komið í ljós og segir dr. Bjarni
Sæmundsson svo frá því í Vísi
og Ægi:
En nú fyrir skömmu hefir
próf. Johs. Schmidt tjáð mér, að
tveir fiskar, sem merktir voru á
“Þór” við Vestmannaeyjar á vetr-
arvertíðinni 1929, hafi fundist
aftur, annar í maga á hákarli,
er veiddur var í Grænlandshafi,
við landgrunnsbrún iGrænlands,
beint vestur af ísafjarðardjúps-
minni (66. gr. n.br., 36. gr. vl.),
en hinn veiddist við Frederiks-
haab á suðvesturströnd Græn-
lands (62. gr. nbr.), fimtán mán-
uðum eftir að hann var merktur.
Þar með er sýnt og sannað, að
fullorðinn þorskur hefir gengið
frá suðurströnd (fslands suðuir
fyrir Grænland og góðan spöl
norður með suðvesturströnd
landsins, eftir að hrygningar-
tíminn var um garð geniginn,
sennilega í ætisleit, og hefði má-
ske komið aftur til nýrrar hrygn-
ingar, ef hann hefði ekki bitið á
krókinn hjá Grænlendingum.
Af þessu mætti ætla, að fiskar
þeir, er merktir voru við Græn-
land og veiddir hér, hafi verið
íslenzkir fiskar, sem hefðu
slangrað svona langt burtu óg
fengið á sig sönnun þess, að þeir
hefðu komið í vestur-grænlenzk-
an sjó. Og það lítur út fyrir, að
íslenzki þorskurinn sé nokkuð
víðförull í “sumarfríinu”, og
gæti eg trúað því, að það mundi
vera loðnan, sem lokkaði hann
svona langt frá átthögunum.
Þessi merkilega útkoma á
merkingunum við Vestmanna,-
eyjar, mun verða til þess, að enn
meira kapp verði bráðlega lagt
en áður á að merkja hér þorsk
við suður- og vesturströndina, og
vil eg enn hvetja fiskimenn vora
til að hafa góðar gætur á merkj-
um á fiski, og vanrækja ekki að
skila 'þeim sem finnast kynnu, á
skrifstofu Fiskifélags fslands,
eða til erindreka félagsins.
Dr. B. Sæm. hefir sagt Lög-
réttu, að síðan .þetta var skrifað,
hafi enn fundist fiskar merktir í
Grærtlandi^ í Vestmannaeyjum,
Grindavík og Faxaflóa. Alls
munu hafa verið 1 merktir við
Grænland um 1200 fiskar. Um
15 þeirra hafa nú þegar fundist
hér, eða verið skilað. — Lögr.
Jarðarför Guðmundar Björg-
vins Bjarnasonar, er var skip-
stjóri á mótorbátnum “Magnus”,
er fórst í brunaslysi á Winnipeg-
vatni þ. 22. okt. síðastliðið haust,
fór fram frá*kirkju Gimlisafnað-
ar, á Gimli, á mánudaginn var.
þ. 13. þ.m. Líkið fanst rétt fyrir
skemstu við austurströnd vatns-
ins, var flutt til Selkirk, og fór
jarðarförin fram undir umsjón
Moody - útfararstofunnar. Lík
enska mannsins, er fórst með
Guðmundi, fanst ofurlítið síðar,
fram undan Árnesbygð. — Jarð-
arför Guðmundar sál. var mjög
fjölmenn. Lifa hann foreldrar
hans, Mr. og Mrs. ólafur Bjarna-
son, á Gimli, sex systur og þrír
bræður, auk ekkju hans, er var
Guðbjörg Einarson, áður en þau
giftust, og einn sonur, þriggja
ára. Séra Jóhann Bjarnason
jarðsöng. Sðmulieðis talaði séra
J. P. Sólmundsson við jarðarför-
ina. Hinn ilátni skipstjóri var
kornungur maður, rúmlega hálf-
þrítugur, drengur góður og vin-
sæll.
Eitt sinn er þröngt var í búi
hjá W„ mætti honum maður, sem
spurði hvernig liði heima hjá
honum.
“Eins og í himnaríki,” sagði W.
“Hvernig þá?’?’
“Já — þar er hvorki etið eða
drukkið,”
Hún: Heimtaðu af mér hvað
sem þú vilt.
Hann: Nei, nú hristi ég höf-
uðið, elskan mín.
Atvinnuleysi
og samvinna Evrópuríkja.
Talið er, að atvinnuleysingjar
í hinurri ýmsu Evrópuríkjum, séu
tíu miljónir talsins. Albert
Thomas, forstjóri alþjóða verka-|
málaskrifstofunnar, hefir lagt;
fram tillögur, sem margir ætla
að muni hafa meiri áhrif en alt
friðarskraf og ráðstefnur, til þess*
að hrinda áfram þeirri hugmynd,
að stofnuð verði bandaríki Ev-
rópu. Verði tillögur hans sam-
þyktar og framkvæmdar, þá verð-
ur ekki eingöngu ráðin þót á at-
vinnuleysinu, heldur tekið stórt
skref í þá átt, að skapa einingu
í álfunni. — Á meðal tillagna
Thomas eru fjórar, sem snerta^
samgöngur, og mundi af fram- ■
kvæmd þeirra leiða, að þau mál
kæmist í langtum betra horf, en
nú er þannig ástatt, að hvert
ríki álfunnar um sig er að burð-
ast með sitt eigið vegakerfi, án
þess um það sé hugsað, að það
sé í samræmi við vegakerfi ann-
ara ríkja í álfunni. Thomas ger-
ir ráð fyrir tveim aðalæðum í
vegakerfi álfunnar, tveim al-
þjóðvegum: 1) Frá París um
Vínarborg til Aþenuborgar, og
2) frá Balkanskaganum til balt-
iska flóans. — Enn fremur legg-
ur Thomas til, að samræma skipa-
skurða-kerfi Evrópurikjanna. —
Meðal annars vill hann láta grafa
skurð milli Rínar og Rhone-ár og
koma skipaskurlunum í norður-
hluta Þýzkalands í gott samband
við Danube og skipaskurðakerfi
Frakklands í samband við skipa-
skurðakerfi austlægari landa. —
Framkvæmd þessara tillagna
mundi hafa ómetanlega viðskifta-
þýðingu fyrir öll ríki á megin-
landinu. Enn fremur hefir Thom-
as tekið upp á sína arma tillögu
Belgíumanna um alþjóðakerfi til
úthlutunar rafmagnsorku fyrir
alla álfuna. Mundi það hafa
feikna þýðingu að koma þeirri
tillögu í framkvæmd, ekki sízt
fyrir þau ríki, sem hafa litla
vatnsorku til umráða. Loks hef-
ir Thomas á prjónunum að sam-
ræma járnbrautakerfi Evrópu-
ríkja, með það fyrir augum, að
greiða fyrir flutningum og við-
skiftum. Thomas heldur því
fram, að framkvæmd seinustu
tillögunnar, sem nefnd hefir ver-
ið hér að framan, mundi veita
600,000 mönnum atvinnu um
fimm ára skeið, en ef samkomu-
lag næðist um framkvæmd allra
tillagnanna, væri alt atvinnuleysi
úr sögunni í Evrópu um langt
skeið. — Vísir.
Dr. Swen Hedin
og síðasta rannsóknarferð hans
í Asíu.
Sven Hedin er íyrir löngu
orðinn heimfrægur fyrir ferða-
lög sín og ýmsar rannsóknir í
Asíu. Þótt hann §é nú kominn
á sjötugsaldur, stendur hann enn
í stórræðum og hefir gert út
leiðangur til Mongólíu, sem nú
stendur yfir. Þeissi leiðangur
lagði upp frá Peking 1927 og er
enn ekki lokið, en Hedin sjálfur
er um þessar mundir á ferð í
Evrópu. Svæði það, sem rann-
sóknir þessa leiðangurs eiga að
ná yfir, er fimm miljónir fer-
kílómetra stórt. 1 leiðangrinum
tekur þátt fjöldi vísindamanna,
c-kki sízt fornfræðingar og mann-
fræðingar. Leiðangurinn hefir
300 úlfalda og þegar hann stanz-
ar, slær hann upp 23 tjöldum, og
má af þessu marka nokkuð
hversu mikill leiðangurinn er.
Hedin hefir skift honum í þrent,
og fer hver flokkur sína leið og
eru 300 kílómetrar milli flokk-
anna. Með þessu fyrirkomulagi
segist dr. Hedin ná miklu betri
og yfirígripsmeiri árangri en með
því, að láta allan leiðangurinn
halda saman. Hedin segir, að
árangur leiðangursins sé nú þeg-
ar orðinn svo góður, að það sem
í Svía hlut komi, sé nóg til þess
að fylla 20 söfn. — Kínversku
stjórninni var í upphafi lítið um
þessar rannsóknir, vildi láta Kín-
verja sjálfa framkvæma þær,
en ekki útlendinga, en Hedin
tókst að ná samkomulagi við þá
og segir að samvinnan við þá hafi
verið hin bezta.
Hann lætur vel af Kínverjum
og segir, að alt hafi verið með
FUNDARBOÐ
Sameiginlegur fundur fyrir
meðlimi stúiknanna Heklu og
Skuldar, verður haldinn í efri
sal G. T. hússins, mánudaginn
20. þ.m.,, kl. 8 e.h.
Fyrir fundinum liggur til
umræðu áríðandi málefni við-
víkjandi byggingunni.
FJyrir hönd fulltrúanefndar
“The Icelandic Good TemplarS
of Winnipeg”
J. Th. Beck, form.
E. Haralds, a. r.
<£
%
%
V
s\
k
SENDIÐ
RJ0MA
yðar til
Manitoba
Co-operative Dairies
Limited
WINNIPEG - BRANDON
DAUPHIN
kyrð og friði, er hann fór frá
Peking. Hann segir, að talið um
“gulu hættuna”, sem oft heyrist
á Vesturlöndum, sé hégómlegt
hjal og hugarburður. Kínv rjar
eru friðsamlegt fólk, segir hann,
þeip eru að eðlisfari miklu fwm-
ur kaupmenn og verkamerhr en
hermenn. Öll þjóðin er iðin” og
friðsöm. Hedin segist ekki trúa
á styrjöld Austurlanda og Vest-
urlanda. Kína fer fram með
hverju ári, sem líður. Það verður
nýtízkuland á grundvelli mörg
þúsund ára menningar.
Lögrétta mun síðar skýra nán-
ar frá þessum seinasta leiðangri
Hedins. Hann segist nú ekki leng-
ur taka þátt í mestu æfintýrunum
eins og áður fyr, það geri ungu
mennirnir, en hann segist vel geta
riðið enn þá langar dagleiðir á
úlfalda og sofið í tjaldi, og hann
stjórnar enn þá öllum leiðangrin-
um. Eg kann aldrei við það, að
sitja kyr, segir hann, æfintýrið og
óvissan lokkar mig enn þá sí og
æ. — Lögr.
Læknirinn vitjar um fanga,
sem er rúmfastur í steininum:—
Það er ekkert hættulegt, sem að
yður gengur. Þér verðið að halda
yður inni nokkra daga, og þá er
batinn vís.
Dr. T. Greenberg
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 30 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
H0TEL C0R0NA
Cor. Main St. and Notre Dame.
(Austan við Main)
Phone: 22 935
GORDON MURPHY, Mgr.
Þar sem Islendingar mætast.
íslenska matsöluhúsið
par sem Islendingar I Winnipeg og
utanbæjarmenn fá sér máltlðir og
kaffi. Pönnukökur, skyr, bangikjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Siml: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandi.
100 herbergi,
meB eöa án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR H0TEL
Blrnl: 28 411
Björt og rúmgöð setustofa.
Market og King Street.
C. G. HUTCHISON, eigandl.
Winnipeg, Manitoba.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
VEITIÐ ATHYGLI!
Eg undirrituð hefi nú opnað
BEAUTY PARL0R
í Mundy’s Barber Shop, Portage
Ave., ,næst við McCullough’s
Drug Store, Cor. Sherbrooke
and Portage Ave.
Heimasími: 38 005
Mrs. S. C. THORSTEINSON
J. S. McDiarmid
Chas. McDiarmid
McDIARMID BROTHERS
LIMITED
SASH, DOORS and MILLWORIC
LUMBER
Phone 44 584
600 Pembina Highway
Winnipeg, Man.
SIGURDSSON. THORVALDSON
COMPANY, LIMITED
General Merchants
Útsölumenn fyrir Imperial Oil, Limited
Royalite Coal Oil, Premier Gasoline,
Tractor and Lubricating Oils
ARBORG
Phone 1
RIVERTON
Phone I
MANIT0BA, CANADA
HNAUSA
Phone 5 I —
ring 1 4
Lipur afgreiðsla og vörugæði einkenna verksmiðju vora.
Stœrála brauðgerðarhús í Canada. Vér sendum vöruna
heim til yðar hvernig sem viðrar.
100 umboðssalar í þjónuáru vorri.
CANADA BREAD
COMPANY - - LIMITED
Portage Ave. and Burnell St. Phone 39 017-33 604 FRANK HANNIBAL, framkvæmdarstjóri