Lögberg - 13.08.1931, Page 4
Bls. 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. ÁGÚST 1931.
RobínfHood
FIiOXJR
ENDURBORGUNAR ABYRGÐIN
tryggir yður
Úr bœnum
Símanúmer Jónasar Jónasson-
ar, 663 Pacific Ave., er 21 504,
ekki 501241.
Á fimtudaginn í vikunni sem
leið, komu til borgarinnar Mr. og
Mrs. G. J. Oleson, Glenboro, og
einnig Mr. Guðjón Storm og son-
ur hans. .
Mr. og Mrs. John Frederickson,
frá Glenboro, og dóttir þeirra,
voru stödd í borginni um helg-
ma.
Kona óskar að fá vist nú strax,
á heimili þar sem er húsmóðir,
en ekki mörg börn Upplýsingar
á skrifstofu Lögbergs.
Mr. og Mrs. Hallur O. Halls-
son og Miss Sigurborg Thorla-
cius, tfrá San Francisco, Cal.,
komu til borgarinnar í síðustu
viku.
Mr. Jón Sumahliðason frá Kan-
dahar, Sask., var stddur í borg-
inni á föstudaginn í vikunni sem
leið.
Mrs. Rúnólfur Marteinsson lagði
af stað um miðja vikuna í kynnis-
för til dóttur sinnar, Mrs. C. E.
Hill, að Whitewater, Man.
Mrs. G. Skúlason frá Geysir,
Man., og börn hennar tvö, Jónas
og Kristín, hafa verið stödd í
borginni undanfarna daga. Komu
til að sækja íslendinlgadaginn í
River Park á laugardaginn.
Nýr píanókennari
Eins og sjá má af auglýsingu
á öðrum stað hér í blaðinu, er Mr.
Frank Thorolfson í þann veginn
að hefja kenslu í píanóspili að
heimili foreldra sinna, þeirra Mr.
og Mrs. Halldór Thorolfsson, 728
Beverley Street hér í borginni.
Um Frank má með sanni segja,
að hann er sérlega efnilegur mað-
ur og vel að sér í list sinni; þeir,
sem heyrt hafa hann leika á pí-
anó, munu fljótt hafa sannfærst
um, að þar væri enginn miðlungs
maður á ferð. Má ganga' út frá
því sem gefnu, að hann skjótt
fái fríðan hóp og mikinn íslenzkra
píanónemenda.
Tvö björt og rúmgóð herbergi,
með eða án húsgagna, fást til
leigu, að 762 Victor Street. Ann-
að herbergið er á fyrsta gólfi, en
hitt á því þriðja.
Miss Margrét Backman, hjúkr-
unarkona frá New York, er fyrir
skömmu komin til borgarinnar, í
kynnisför til móður sinnar, Mrs.
Salóme Backman, að 634 Victor
Street, og systkina. Miss Backn
man ráðgerir að devlja hér fram
undir næstu jól..
Hin
gœfusama
fjölskylda—
—er sú sem ekki reiðir sig á lukk-
una, heldur treystir á SPARAÐA
PENINGA.
Peningar I spari sjóði, sem aukið
er við á hverjum borgunardegi,
er tryggasta vömin gegn skorti
I framtíðinni.
Yðar eigin sparibanki fullnægir
að öllu leiti kröfum yðar í þessum
efnum.
3%% VEXTIR
Opin 10 til 6
Á láugardaga, 9.30 til I
PROVINCE o/ MANITOBA
SAVINGS OFFICE
Donaid St., at Ellice Ave.,
and 984 Main St.,
Winnipeg
Þriðjudaginn 4. ág. voru þau
Ingi Gunnar Jörundsson og Laura
Mary Hotston, bæði til heimilis í
Winnipeg, gefin saman í hjóna-
band, af séra Rúnólfi Marteins-
syni, að 493 Lipton St. Heimili
brúðhjónanna verður í Winnipeg.
Tveir skólapiltar, eða jafnvel
fleiri, geta fengið fæði og hús-
næði að 637 Home Street, svo að
segja beint á móti Jóns Bjarnason-
ar skóla. Finnið' húsráðendur að
máli, eða hringið upp 71 234.
Sunnudaginn 16. ág. prédikar
séra N. S. Thorlaksson í Péturs-
kirkju að Svold, kl. 11 f.h.; í Hal'l-
son kl. 3 e. h. og í Vídalíns kirkju
kl. 8 að kveldi. Sama dag pré-
dikar séra H. Sigmar í Gardar-
kirkju kl. 11 f. h.; í Eyford kl. 3
e. h. og í Fjallakirkju kl. 8 að
kveldi. Allir velkomnir.
■Mrs. Fred. Hanson, 467 Jesse
Ave., Winnipeg, Man., sem hefir
verið um mánaðartíma á skemti-
ferð að heimsækja Mrs. Arthur
T. Anderson, Vancouver, B. C.,
og Mrs. P. Gislason, Bellingham,
Wash., lalgði á stað heimleiðis
föstudagskveldið þ. 6. þ. m.
Laugardaginn þann 1. ágúst,
voru gefin saman í hjónaband í
Fort Rouge sameinuðu kirkjunni,
þau Mr. I. Árnason og Miss Elsie
Wyatt. Dr. C. E. Bland fram-
kvæmdi hjónavígsluna.
Brúðguminn er sonur Svein-
björns heitins Árnasonar og frú-
ar hans, en brúðurin er dóttir
Mr. og Mrs. Charles A. Wyatt.
Að aflokinni vígsluathöfninni,
lögðu ungu hjónin af stað í
skemtiför austur til vatnanna
miklu. Framtíðarheimili þeirra
verður hér í borginni, og setjast
þau að í GainsboroUgh Apts. á
Sherbrooke stræti, er heim kem-
ur úr ferðalaginu.
Eftirtaldir meðlimir stúkunnar
Skuld, Nr. 34, I.O.G.T., voru sett-
ir í embætti fyrir yfirstandandi
ársfj, þann 5. þ.m., af umboðsm.
hennar Guðm. M. Bjarnasyni:
F.Æ.T.: Ásb. Eggertsson.
Æ. T. Sigurður Oddleifsson.
V T.: Þóra Gíslason.
Kap.: Mrs. Brandson.
Rit.: Guðj. H. Hjaltalín.
A. R.: Lárus Scheving.
Fjármr.: Stefán Baldwinson.
Gjaldk.: Magn. Johnson.
Drótts.: Súsanna Guðmundson.
A. D.: Ásdís Jóhannsson.
Skrásetj.: Gunnl. Jóhannsson.
Org.: Ida Holm.
Vörð.: Friðb. Sigurdsson.
—Fundi sína heldur “Skuld” á
miðvikudagskvöldum, í G. T Hall.
Munið það. G. H. H.
Messur í Gimli prestakalli,
næsta sunnudag, þ. 16. ágúst, eru
fyrirhugaðar sem hér segir: 1
gamalmennaheimilinu Betel kl.
9.30 f. h. í kirkju Árnessafnaðar
kl. 2 e. h., og í kirkju Gimlisafn-
aðar kl. 7 e. h. Séra Jóhann
Bjarnason prédikar í öll skiftin.
<£
\
\
v\
SENDIÐ
RJÓMA
yðar til
Manitoba
Co-operative Dairies
Limited
WTNNIPEG - BRANDON
DAUPHIN
Dr. T. Greenberg
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
Tuition High School
Math’s and Science
A. L. Oddleifson
B. Sc„ S. E. I. C.
Ste, 6 Acadia Apts., Victor
Street. Phone 31769
Frank Thorolfson
TEACHER OF PIANO
Studio 728 Beverley Street
Phone 26 513
Practice limited to:
EYE, EAR, NOSE & THROAT
Office Hours: 11—1 and 2—5
Beginning Sept. lst.
Dr. H. FREDERICK
TIIOREAKSON
522 Cobb Bldg. Seattle, Wash.
Teiephone: Main 3853
Veitið athygli ?
Óðum fer nú að líða að kveðju-
samsæti því, sem ákveðið hefir ver-
ið að haldið skuli Björgvin Guð-
mundssyni tónskáldi og fjölskyldu
hans, í Good Templara húsinu,
þann 17. þ. m.
Aðgöngumiðar fást í bókaverzl-
un O. S. Thorgeirssonar, og á
skrifstofu Lögbergs og Heims-
kringlu, auk þess sem meðlimir
söngflokkanna, er að samsætinu
standa, hafa þá einnig til sölu.
|Margir vilja kveðja BjöPgvin
og þakka honum samveruna; þess-
vegna er vissara að tryggja sér
aðgöngumiða í tæka tíð.
HÚS TIL SÖLU.
Fjögra herbergja hús, vel bygt
og í góðu ástandi, til sölu nú þeg-
ar ásamt fellegum bletti innlgirt-
um, sem gefur af sér í meðalári
tonn af heyi. Einnig er gott
geymsluhús á lóðinni. Húsið er í
Breiðuvík í Nýja íslandi, fast við
Winnipegvatnii að eins kvart-
mílu frá skemtigarðinum. Innan-
hússmunir verða einnig seldir,
svo sem stólar, borð, rúmstæði,
ofn og stó o'g ýmislegt fleira. —
Komið og sjáið og semjið við und-
irritaðan eiganda.
Hnausa, Man., 28. júlí 1931.
Gunnar Thordarson.
Meiri mjólk—
Betri heilsa
Glas af hreinni, bragðgóðri
City Milk á hverjum degi, er
reglulegt heilsulyf. Fyrir unga
og gamla er ekkert annað betra.
Um bækur
Þú getur verið ríkur, án þess
að ei'ga nokkuð. Margur fátæk-
lingurinn er rikari en sá, sem
getur veitt sér jarðnesk gæði. Það
*
sklftir mestu máli, hvernig vér
kunnum að færa oss það í nyt,
sem oss mætir. Bók er pappír,
prentsverta og kápa. Til þess
að hún verði annað og meira,
verðurðu að hafa ti'leinkað þér
efni hennar. Bókasafn, ,sem
aldrei er notað, er eins og kölk-
uð gröf, og óhreyfðar bækur í
iöngum hiliuröðum, eru eins og
líkkistur fræfera feðra. Og þó
hefir þeim peningum aldrei verið
varið að óþörfu, sem farið hafa
fyrir bækur. Þær eru eins og
alabastursbuðkur konunnar. í
þeim eru dýrmæt smyrsl, sem
aldrei þrjóta, hve oft sem þú hef-
ir þau um hönd. Innstæða í bók-
um er höfuðstóll, sem aldrei
rýrnar. — J. Ramsay MacDonald.
—Eimr.
Bréf úr Húnaþingi
6. júlí 193(1.
Veðráttan í maí til júníloka
óvenjulega þurkasöm. Austan og
norðaustan átt með næturfrost-
um. Grasspretta því með minsta
móti, ber á kali í túnum, einkum
í vestursýslunni. Enn fremur hef-
ir brunnið af harðlendum tún-
um vegna hinna rniidu þurka. —
Sauðburðartíð var hin bezta og
víðast góð afkoma með sauðfé.
lím mánaðamótin júní og júlí var
fé rúið ofe rekið til fjalla. Virðist
þar betri gróður en í sveitum.—
Fyrstu dagana af júlí hvesti upp
af norðri með nepju, kulda og
hreggi, á takmörkum að vinn-
andi væri útivinna. Stóðu kuld-
ar þessir fram yfir 6. þ. m. Menn
búast ekki við að heyskapur
byrji fyr en um miðjan mánuð-
inn.
Mikið er unnið hér að vegun-
um, sízt minna en endranær. Frézt
hefir, að kaup verkamanna við
opinbera vinnu, muni sama sem
s. 1. ár.
Þessa mánuði hefir heilsufar
verið hið bezta. Þótt kalt hafi
biásið, hafa margir dagar verið
sólríkir. Héraðslæknirinn, Krist-
ján Arinbjarnarson, er nú á för-
um með fjöilskyldu sína til út-
landa, ætiar hann að dvelja þar
árlangt. Árna menn hinum góða
lækni og vinsæla manni góðrar
ferðar og heimkomu.
Á manntalsþingunum í vor lét
fornmenjavörður friðlýsa ýmsa
fornfræga sögustaði. Bendir þetta
í þá átt, að þetta muni gert um
land aflt. Á hann þjóðarþökk fyr-
ir framtakssemina.
Ferðamannastraumurinn er orð-
inn allmikill, byrjaði um 20. f. m„
þegar Holtavörðuheiði var orðin
fær. Hún er talin óvanalega
þur.
Á Húnaflóa hefir verið tölu-
verður afli og mjög góður um
tíma í austurflóanum, en beitu-
skortur var fram um miðjan júní.
Nú er fiskur farinn að dýpka á
sér, enda stöðugar ógæftir um
iengri tíma.
Frézt hefir, að laxveiði í ám
muni frekar treg enn sem komið
er, en silungsveiði í fjallavötn-
um er með mesta móti. Því mið-
ur stunda hana fáir, aðeins fá-
ein heimili inst til dala.
Á síðustu árum hafa refayrð-
lingar selst fyrir hátt verð og
orðið einstöku mönnum og sveit-
um góð tekjulind. Nú eru þeir,
sem annað, verðlítil vara, iítt
seljanlegir. Sagt er, að boðið sé
í gráyrðlinga tíu krónur, en mó-
rauða þrjátíu.
Ekki hefir enn frézt um hrossa-
markaði í sumar, en þeirra væri
mikil þörf. Hér í sýsiu er mikið
fé fast í hrossum fram yfir þarf-
ir og verði grasprestur, væri
mikil þörf á að létta einhverju
af fóðrum fyrir næsta vetur.
Engum tvímælum veidur, að
fólk hér hlustar hugfangið á
messurnar í kirkjunum í Reykja-
vík. Mun þar miklu um valda,
að söngkraftar eru þar góðir, ó-
líkir þeim, sem gerast í sveita-
kirkjum alment, enda ekkert gert
enn af hálfu þess opinbera til að
tryggja það, að söngstjórar í
kirkjum út um landið geti aflað
sér nægilegrar mentunar til að
verða starfi sínu varnir. Al-
menn óánægja virðist vera yfir
því, hve árgjaldið til útvarpsins
er hátt. Vonast menn eftir því,
að þingið í sumar lækki það að
mun. Aftur á móti virðast menn
koma sér saman um að æskilegt
væri, að minna af tíma og pen-
ingum væri varið til grammó-
fónsútvarps. Karlakór K.F.U.M.
’vildu margir heyra oftar.
Fyrstu daga þessa mánaðar
kom sá, er þetta ritar, í skólann
á Reykjum. Það, sem lokið er af
byggingunni, er prýðiilega unnið,
og öliu er haganlega fyrir komið,
annað en gluggar á suðurhlið
hússins, fullnægja ekki og þurfa
umbóta. Með góðum kenslukröft-
um, verður skólinn mik-iis virði,
en tilfinnanle'ga vantar hann
símasamband við hið góðkunna
heimiili Tannstaðabakka og bif-
reiðastöðina á Tannstöðum, en
þessir bæir eru þar skamt fyrir
norðan. Símasamband þetta þarf
skólinn að fá sem fyrst. Enn-
fremur vantar bifreiðaveg að
skólanum, því margt bendir tii,
að þar verði mikil umferð á sumr-
um, jafnvel sumarbústaður
margra úr fjarliggjandi héruð-
um. — Vísir.
Hjálmar Jóhannesson
Hjálmar Jóhannesson, um langt
skeið bóndi á Svarfhóli í Geysis-
bygð, andaðist þann 25. júlí, á
heimili sonar síns, Sturlaugs og
Guðleifar konu hans, í Riverton,
Man.
Hjálmar heitinn var fæddur á
Svarfhóli í Laxárdal í Dalasýslu,
6. janúar 1858. Foreldrar hans
voru Jóhannes Halldórsson og
Sesselja Bjarnadóttir. Hjálmar
kvæntist Guðbjörgu Sturlaugs-
dóttur, ættaðri úr sömu sveit ár-
ið 1886; fluttu þau sama ár til
Ameríku og reistu bú í Norður-
Dakota, í grend við Mountain. Þar
dvöldu þau þangað til vorið 1901,
er þau fluttu til Canada og námu
land í Geysisbygð; nefndi Hjálny
ar landnámsheimlli, Svarfhól,
eftir fæðingarstað sínum á ís-
landi.
Börn þeirra hjóna voru fimm,
og eru fjögur á lífi: Sesselja Sig-
ríður, kona Hermanns Thorvarðar-
sonar bónda á Svarfhóli í Geýsis-
bygð; Kristín Guðbjörg, kona
Sveins kaupm. Thorvaldssonar í
Riverton; Sturlaugur Halldór,
kvæntur Guðleifu Kr'istjánsdátt-
ur Snæfeld; og Jóhannes Ágúst,
ókvæntur. — Tvö börn tóku þau
hjón til fósturs, annað kom með
þeim frá íslandi, Sigurður Jóns-
son hann lézt í N.Dak.; hitt upp-
eldisbarnið, Sesselja Sigurbjörns-
dóttir (Mrs. Guðmundsson) bróð-
urdóttir Hjálmars, er til heimil-
is í grend við Árborg, Man.
Konu sína misti Hjálmar heit-
inn árið 1912. Eftir það stund-
aði hann búskap með börnum sín-
um, þar til þau komust til full-
orðinsára.
Siðustu árin var hann mest til
heimilis hjá Sesselju dóttur sinni
og Hermanni tengdasyni sínum á
Svarfhóli.
Hjálmar lézt í Riverton, sem
þegar hefir verið á minst, hafði
hann notið umönnunar Sturlaugs
sonar síns og Guðleifar konu
hans síðustu æfistundirnar. —
Kærlieksrík samúð tengdi Hjálm-
ar og hörn hans saman, bæði fyr
og síðar.
Hjálmar var einn af hinum
“kyriátu í landinu”, dugandi mað-
ur, yfiriætislaus og tryggur. —
Landnemi var hann, bæði í N.-
Dakota og Nýja íslandi. Hans
er sárt saknað af börnum hans
og tengdáfólki, barnabörnum,
vinum og samferðafólki.
Jarðarför Hjálmars fór fram
frá Geysiskirkju, en þar hafði
hann átt andlegt heimili, þann 27.
júlí, að viðstöddum ástvinum,
sveitungum og vinum.
S. ó.
Látin er að Unalandi við Riv-
erton, þann 29. júlí, Mrs. Guð-
finna Eyjólfsson, ekkja Gunn-
steins heitins Eyjólfssonar skálds
og tónfræðings, er lézt 1910. Hún
var af merkum ættum af Austur-
landi, vel gefin kona og stilt, hin
ágætasta móðir. Þjáðst hafði
hún um hríð af innvortis sjúk-
dómi, er leiddi hana til bana..
Öll börn þeirra hjóna, níu að
tölu, eru á lífi. — Jarðarförin fór
fram þann 31. júlí, frá heimilinu
og lútersku kirkjunni í Riverton,
að viðstöddum mannfjölda. Sókn-
arpresturinn jarðsöng. — Þess
arar merku konu mun minst
síðar. S. Ó.
NIAGARA FOSSARNIR.
Lengi hefir því verið viðbrugð-
ið, að dropinn holaði bergið blátt;
þetta sannast á Niagara fossun-
um; af því bergi drýpur vænn
dropi, um þrjár miljón gallónur
á hverri mínútu, enda sér það á,
að Skeifu-foss, sem er nyrðri foss-
inn, Canada megin í ánni, er 800
fetum ofar nú en fyrir 250 ár-
um. f syðri álnum hafði berg-
brúnin nagast minna, en fyrir
skömmu hrapaði úr bjarginu, svo
að þar er skarð, 200 feta vítt og
150 feta langt Fóðum mönnum
þykir, sem af því isjáist, hver
verða muni afdrif þessara frægu
fossa: að smá-hverfa þar til flúð-
ir koma í stað þeirra eftir nokk-
ur þúsund ár. Fossarnir teljast
20 til 25 þúsund ára að a'ldri, eft-
ir því sem haft er eftir fossa-
fræðingum.
ZAM-BUK
Græðir Meiðsli og Varnar
BLÓÐEITRUN
LIHITED
Sími: 87 647
Jón Bjarnason Academy
GJAFIR
Víðines-söfnuður, samskot
við messu ............... $8.20
Mrs. J. Halldórsson, Langruth,
(í minningu um séra Hjört
Leó) ................... 10.00
Mrs. Björg Johnson, Wpg. 5.00
S. W. Melsted, gjaldk.
PELISSIEO
COUNTRY CLUB
-TPECIAL
The BEER that Guards
Q,UALITY
Phones: 42 304
41 lll
Frá íslandi
Rvík, 2. júlí 1931
Kl. hálfsjö í gærborgun vakn-
aði allur bærinn við hvin mikinn.
Var þá Zeppelin kominn, mikið
fyr en menn bjuggust við. Hafði
sézt til hans úr Vestmannaeyjum
kl. 6 Og auk þess hafði hann sent
tvö loftskeyti hingað áður en hann
kom, svo að þeir, sem þyrftu að
vita, vissu um ferðalag hans.
Hann flaug lágt yfir bæinn í
hring og heyrðist glögglega dyn-
urinn í hreyflunum. Kom nú
heldur en ekki kvik á bæjarbúa.
Þustu þeir upp úr rúmunum og
klæddust í snatri, en er þeir komu
út, var Zeppelin farinn og stefndi,
til norðurs. Menn vissu þó, að
hann mundi ekki alfarinn og fór
nú hver sem vetlingi gat valdið
suður á öskjuhlíð. gangandi,
hjólandi og akandi. Höfðu bratt
safnast þúsundir manna um-
hverfis svæði það á háhlíðinni,
er rutt var 1874 áður en þjóðhá-
tíðin var haldin þár. — Á miðju
svæðinu var nú lagður niður stór
kross úr hvítum segldúk og skamt
frá var flaggstöng og á hana
dreginn íslenzki máninn.
íSkömmu eftir að Zeppeiin hafði
sveimað yfir bæinn, brunaði póst-
bíllinn suður eftir með póstinn.
Var hann í tveimur pokum og
voru þeir bundnir saman. Aust-
an í öskjuhlíðinni var bíll við
bíl, svo að naumast var hægt að
fara um veginn. Plóstpokarnir
voru nú teknir af bílnum og born-
ir þangað sem hvíti krossinn var.
Stóðu þar menn yfir þeim, þeir,
sem áttu að hengja þá á krókinn
hjá loftfarinu. Var nú ait tilbú-
ið og stóð nú ekki á öðru, en að
floftfarið kæmi aftur.
En það er af því að segja, að
það flaug upp yfir Akranes', síð-
an norðan við Akrafjall og inn
Borgarfjörð. Flaug það mjö'g
lágt yfir Borgarnes, og fanst
mönnum það skríða rétt yfir hús-
þökunum. — Hélt það svo lengra
inn með firðinum og alla leið upp
í Stafholtstungur. Sást það þar
frá mörgum bæjum og jafnvel frá
bæjum í Hvítársíðu, Þverárhlíð
og víðar. Fanst öllum það vera
rétt hjá sér, til dæmis þeim í
Síðumúla. Þótti fólki afar mik-
ið til þeirrar sjónar koma og var
uppi fótur og fit víða um hérað-
ið. Þó höfðu menn ekki átt von
á loftfarinu þangað og þá alflra
sízt svona snemma, því að út-
varpið hafði skýrt frá því kvöld-
ið áður, að það kæmi ekki fyr en
um hádegi. Fór því fólk á sum-
um bæjum al'gerlega á mis við að
sjá þetta furðuverk nútímans.
Zeppeiin sneri nú aftur og flaug
svipaða leið til baka og ffir
Borgarnes og svo rakleitt hing-
að. Kom hann til iReykjavíkur
aftur klukkan hálfátta. — Mgbl.
BETRI MELTING OG
MEIRA ÞREK
Veikburða og kjarklítið fólk nýtur
mikíllar blessunar af Nuga-Tone.
petta ágætis meðal hreinsar eitur-
gerla úr líkamanum, sem ræna styrk-
leik og heilbrigði tauganna og vöð-
vanna og llffæra yfirleitt. Nuga-
Tone gefur þér góða matarlyst,
styrkir magann og heilsuna yfirleitt
mikillega. Láttu ekki bregðast að
fá þér flösku af Nuga-Tone — það
fæst h|já lyfsölum. Hafi lyfsalinn það
ekki við hendina, þá láttu hann út-
vega það frá heílsöluhúsinu.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
6)27 Sargent Ave„ Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
H0TEL C0R0NA
Cor. Main St. and Notre Dame.
fAustan við Main)
Phone: 22 935
GORDON MURPHY, Mgr.
Þar sem íslendingar mætast.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
flutningum lýtur, smáum eða stór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
'Heimili: 762 VICTOR STREET
Sími: 24 500
íslenska matsöluhúsið
par sem íslendingar 1 Winnipeg og
utanbæjarmenn fá sér máltíðir og
kaffi. Pönnukökur, skyr, hangikjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandl.
VEITIÐ ATHYGLI!
Eg undirrituð hefi nú opnað
BEAUTY PARLOR
í Mundy’s Barber Shop, Portage
Ave„ næst við McCullough’s
Drug Store, Cor. Sherbrooke
and • Portage Ave.
Heimasími: 38 005
Mrs. S. C. THORSTEINSON
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Blml: 28 411
BJört og rúmgóð setustofa.
Market og King Street.
C. G. HUTCHISON, elgandi
Winnipeg, Manitoba.
Kveðjusamsœti
verður lialdið, í heiðurskyni við Björgvin
Gutðmundsson tónskáld og fjölskyldu lians, í
Goodtemplarahúsinu, næstkomandi mánudags-
kveld, hinn 17. þ. m., kl. 8. Fjölbreytt skemtun,
svo sem ræður, einsöngur, kórsöngur og al-
mennur söngur. Ágætar veitingar. Aðgöngu-
miðar fást hjá Lögbergi, Heimskringlu, O. S.
Thorgeirsson og hjá meðlimum íslenzku söng-
flokkanna. Kosta $1.50. Allir velkomnir.
Ban£ield*s
August
Sale
OF QUALITY
FURNITURE
IN NOW ON
It is many years since your
Dollars would Buy so much mm'tÆ?/ l1 \
value in Furniture and Home luJSiwU 11:
Fumishings, as it will do
during our “Great August
Furniture Sale.”
This Semi-Annual Sale is
a thrifty event for home
lovers who desire quality
merchandise to tastefully
furnish their homes. We do
not show suites and pieces
built for Sale Purpose, but
“OUR REGULAR STOCK”
reduced to Bargain Prices. _
Let us show you the newest designs and Finishes, you
wiil be pleased with our Sale Prices, and — the convenience
of easy weekly or monthly payments will meet with your
approval.
TRADE IN Your Old Furniture
It is no(t necessary to select suites or pieces at high
prices. You may exchange anything you choose on
any article or suite three times its appraised value.
It’ScaVaiue is the same ^
“The Reliable Home Furnishers’
492 Main St. Phone 86 667
t