Lögberg - 03.09.1931, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. SEPTEMBER 1331.
Bls. 3.
SOLSKIN
TRYGGUR HUNDUR.
(Þýtt).
Maður nokkur, sem hét M. de Cherville, átti
búgarð úti á landi; þar voru skepnuhús, grasi-
vaxnar engjar og alt gert eins aðlaðandi og
mögulegt var fyrir hunda, því eigandinn var
sérlega mikill hundavdnur; .hann áltti marga
hunda. Suma hafði hann alið upp vegna þess,
að hann gat ekki fengið það af sér, að drepa
hvolpana; sumir höfðu komið þangað sem
flækingar og hann hafði ekki kjark til þess að
reka þá burt.
Maður sem h'ann hafði til þess að líta eftir
'búgarðinum, hét Pétur.
Einu sinni kom Pétur heim með fótbrotinn
hund í fanginu og sagði livað fyrir hann hefði
komið. Eigandi hundsins var umferðalæknir
og hafði hundurinn orðið undir vagnhjóli.
Hann fótbrotnaði og gat því ekki gengið.
Ferðalæknirinn hafði konu sína og litla dóttur
með sér. Þau voru öll gangandi og gátu ekki
borið hundinn með sér.
Pétur sá, J)egar slysið vildi til og ferða-
læknirinn bað hann að taka hundinn og líta eft-
ir honum þangað til hann kauni til baka. Kvaðst
hann mundi koma eftir þriggja mánaða tíma.
Hann sagðist skyldi borga um tvö cent á dag
með hundinum.
Pétur var laginn og vel að sér; hann setti
beinbrotið á hundinum, batt um það og setti
við spelkur. Eftir 'tvo eða þrjá daga liafði
hvutti vanist á það, að ganga fullum fetum
á þremur fótum og eftir hæfilega langan tíma
greri beinbrotið svo hann fékk full not lapp-
arinnar.
Pétur kallaði hundinn “Saqbi” vegna þess,
að það var nafn ferðalæknisins, sem átti hund-
inn.
Þessi hundur var al’s ekki fallegur; hann
var gulur, með mörgum mórauðum blettum.
En hann liafði ýmsa siði, sem Pétri þótti mjög
gaman að; og eftir nokkurn tíma fór honum að
þykja svo vænt um þetta kvikindi, að hann
vanrækti hina hundana, sem voru þó miklu
fallegri. Allir hinir hundarnir voru samt góð-
ir við Saqvi, og ökki var hægt annað að sjá,
en að honum liði vel — það sást ekki á neinu, að
honum leiddist.
Þrír mánuðir liðu, en ferðalæknirinn kom
ekki aftur. Enn þá liðu sex mánuðir. Þá var
það einn góðan veðurdag, að M. de Cherville
var úti í trjágarði sínum; hann lieyrði alt í einu
að hundur var að gelta hátt og ýlfra innan við
járngrindurnar hjá framdyrunum.
Hann gætti betur að og sá, að þarna var
Saqvi; hann hoppaði, hljóp og hringsnerist;
gelti, góldi og ýlfraði og revndi af öllum mætti
að komast út í gegn um grindurnar. Hann
var auðsjáanlega frá sér muminn af gleði.
Fyrir utan grindurnar stóð tólf ára gömul
stúlka tötralega til fara og hrópaði: “Það er
hann “Tapin” okkar! Það er litli hundurinn
okkar! Aumingja Tapin! En hvað hann er
orðinn feitur!”
Hundurinn sleikti hendurnar á litlu stúlk-
unni í gegn um járngrindurnar, og vrar auðsjá-
anlega ofsaglaður.
Stúlkan hljóp í burtu; hundurinn rendi að
komast út í gegn um grindurnar til þess að
fylgja henni, en komst ekki. Eftir stutta stund
kom stúlkan aftur með ferðalæknirinn, föður
sinn.
Hundurinn sýndi sama fögnuðinn og sömu
gleðina, þegar hann sá föður stúlkunnar. Ferða-
læknirinn hafði ekki getað komið því við að
koma aftur eftir hundinum, eins og hann hafði
lofað.
“Sá hefir svei mér braggast,” sagði hann
við dóttur sína. “Hann fæst aldrei til þess að
koma með okkur aftur; hér hefir farið svo v7el
um hann, að hann mundi strjúka hingað aftur,
þó við tækjum liann með okkur. Hann veit, að
hann ætti ekki svona gott hjá okkur.”
“Við skulum sjá,” sagði M. de Cherville.
“Það gerir ekkert til, þó þú reynir. ”
Hann sagði það ekki af því hann héldi, að
hundurinn fengislt til þess að fara, heldur til
þess að losna sem fyrst við ferðafólkið.
Pétur, sem var bezti vinur liundsins, kom út
og alt heimilisfólkið, en livutti skifti sér ekkert
af því. Þegar dyrnar voru opnaðar, stökk hann
út, flaðraði upp um ferðalæknirinn og dóttur
hans til skiftis með óstjórnlegum gleðil'átum, og
fór með þeim án l>ess að líta við liinu fólkinu.
Hjá fyrri eigendum sínum hafði hann verið
svangur, þyrstur og kaldur; á síðari staðnum
lifði hann í allsnægtum; en jafnvel þó fátæktin
blasti við lionum með ferðalækninum, en alls-
nægtir í hinum staðnum, mátti það nú meira,
að ferðafólkið voru fyrstu vinir hans — honum
fanst hann heyra því til.
Siff. Júl. Jóhwmesson.
THE DOMINION OF CANADA .
Vitið þið hvernig það nafn varð til? Eg
býst við, að sum ykkar viiti það, en mér þykir
trúlegt, að þið vitið það ekki öll. Það var á
þessa leið:
1 desembermánuði árið 1-866, mættu nokkrir
fulltrúar frá Canada í Westmin^ter Palace hót-
elinu í Lundúnaborg á Englandi. Þeir voru þar
til þess að ræða og undirbúa ásamt fulltrúum
ensku stjórnarinnar lögin, sem átti að sam-
þykkja fyrir Canada. Þau lög eru kölluð “Brit-
ish North America Acf”. Það er stjórnarskrá
eða grundvallarlög þessa lands; þau öðluðust
gildi árið 1867. Þá er talið að Oanada sem ríki
lmfi fæðst eða orðið til.
Fulltrúarnir komu sér ekki saman um það
í fyrs/tu, hvað þetta nýja sambandsríki ætti
að heita. Sir John Macdonald, leiðtogi canad-
isku fulltrúanna, vildi kall að það fonungsríkið
Canada; en Derby lávarður, sem var utanríkis-
ráðherra Englendinga, var hræddu um að orðið
“konungsríki” mundi móðga Bandarríkjamenn.
Hin vegar voru Canadamenn ákveðnir í því, að
land þeirra skyldi ekki kallað “nýlenda” eins
og sumir höfðu viljað.
Einn daginn, þegar þetta hafði verið rætt
af 'miklu kappi og menn gátu ekki orðið sam-
mála, var fundi slitið að kveldi með talsverð-
um hita.
Einn fulltrúanna hét Sir Leonard Tilly;
hann var frá New Brunswick. Það var vani
hans, frá því liann var barn, að lesa alt af
kafla úr biblíunni áður en hann fór að hátta.
Kaflinn, -sem hann las í þetta skifti, var sjö-
tugasti og annar (72.) Sálmur Davíðs. Part-
ur af lionum liljóðar þannig á ensku: “He
slmll have Dominion from sea to sea and from
the River to the ends of the earth.” A ís-
lenzku er það svona: “Og hann skal ríkja frá
hafi til hafs; frá fljótinu til endimarka jarð-
ar. ” — Þetta fanst Sir Tilly vera svo góð lýs-
ing á. því, sem menn gerðu sér vonir um að
Canada mundi verða, að hann sagði fulltrúun-
um frá því. Þetta leiddi til samkomulags og
féllust allir á að ríkið skyldi kallað “Tlie
Dominion of Canada.”
Þið hafið sjálfsagt tekið eftir því, að á
skjaldarmerki Canada stendur þessi se'tning:
“A mari usque ad mare”, sem þýðir: “Alla
leið frá hafi <til hafs.” Þessi roð voru volin í
sambandi við söguna.
Sig. Júl. Jóhcmnesson.
F R E L S 1
Frelsið helga og hreina,
himnesk veran skær!
er þín dvölin eina
okkar heimi fjær?
Viltu vitrast eigi
veröld staddri í neyð?
Attu aðeins vegi
Efst um stjarna skeið?—Stgr. Th.
Fá orð og hugmyndir eru það, sem við
mennirnir elskum meira, en orðið frelsi, en
orðið frelsi er dregið af orðinu frjáls, sem þýð-
ir laus, óháður.
“ %
Margir menn á öllum öldum hafa látið lífið
fyrir frelsi sitt og þannig metið frelsið meira
en lífið.
Enn í dag eru mennimir að keppa eftir
þessu mikla hnossi, að vera frjálsir, engum
'háðir, fá að ráða sér sjlfir. Frjáls og fullvalda
þjóð. eru orð, sem við Islendingar könnumst
vel við og’ höfum oft heyrt, bæði fyr og síðar,
og einkum nú eftir að þjóð vor endurheimti
si'tt forna frelsi í stjómarfarslegri merkingu.
Og lionum, sem kom úr dýrð himnanna til
þess að leysa okkur mennina undah valdi liins
illa, honum sem við treystum, elskum og til-
biðjum í lífi og dauða, honum höfum við valið
þetta dýrðlega nafn: Frelsarinn. Hann nefn-
um við svo, því að hann mun frelsa fólk sitt
frá svndum þess. Við sjáum þannig, að orðið
frelsi og þýðing þess er einhver hinn allra
helgasti dýrgripur sem við eigum. En “vand-
farið er með vænan grip”, segir íslenzkt mál-
tæki, og sést á því að menn, sem lifað hafa á
undan okkur, hafa af reynslunni lært að sjá og
skilja, hve frelsið er dýrmætt og að vel verður
að gæta þess, til þess að glata því ekki fyrir
handvömm og hirðuleysi. Það er einmitt hin
sára reynsla að fá orð eða ekkert er jafn mis-
skilið og misnotað eins og einmftt þetta orð,
svo að hin dýrmætasta af gjöfum guðs verður
o-ft til vanblessunar í staðinn fyrir að vera til
blessunar eins og henni er ætlað að vera.
“Eitt einasta syndar augnablik,
sá agnarpunkturinn smár,
oft lengist í æfilangt eymadstrik,
hem iðrun oss vekur og tár.”
Til að skýra nánar hvað ég á við, a’tla ég
að taka eJtt lítið dæmi, sem liggur nærri okkur,
sem eigum heima í þessari stúku.
Það er saga, sem gerist daglega, að þegar
unglingarnir margir hverjir koma af barns-
aldrinum, fer þeim að finnast þröngt um sig í
stúkunni sinni. Þeim fer að finnast of lítið
frelsið, þá fer að langa til að prófa það, sem
stúkan varar þá við, og þeir fara að hlusita
eftir þeim röddum, sem segja þeim að það sé
ófi’elsi að vera í stúkunni, og það sé sjálfsagt,
að varpa af sér því oki og ófrelsi og gerast
frjáls og sjálfráður gerða sinna.
Svo byrja þeir fyrst að reykja, og síðan ef
til vill að drekka eins og við því miður oft sjá-
um da’mi tjl. Og nú halda þeir að þeir séu
frjálsir! En það kemur nú bráðum í ljós,
hversu frjálsir þeir eru, því að srnám saman
vex löngunin í vindlingana, þar til þeir ráða
ekki við neitt og verða nauðugir viljugir að
láta undan í hvert einasta sinn, sem löngunin
kvelur þá, og alt af fer þetta vaxandi, þangað
til þeir eru orðnir þrælar nautnanna, en þrælar
voru kallaðir ófrjálsir menn, sem oft var farið
illa með. Eyða þeir nú öllum aurum sínum og
heilsunni líka ti) þess að fullnægja fþessari
löngun; svo þegar veikindi og erfiðleikar
koma, hvað tekur þá við? Bærinn, sveitarfé-
lagið, eða þá gamlir fátækir foreldrar, sem eru
orðin lúin og slitin af erfiðinu við að ala þá
upp. Þannig fer oft fyrir þeim, sem ekki gæta
þess að fara vel með hinn mikla dýrgrip:
frelsið.
“Gætið þess, að nota ekki frelsið til færis
við holdið”, sagði hinn mikli postuli Páll, er
hann var að fræða hina kristnu söfnuði sína, og
átti við með því að þeir skyldu gæta þess, að
nota ekki frelsi sit't til að láta undan hinum
lægri og ógöfugri tilhneigingum sínum.
“Standið stöðugir, verið karlmannlegir,
verið styrkir”, sagði hann einnig.' Þið kann-
ist líka öll við hann Esaú, sem seldi fnimburð-
arréttinn sinn fyrir einn baunarétt. Hann var
fæddur með þeim réttindum, að mega vera
höfðingi og stjórnandi ættar sinnar, en hann
kunni ekki að meta það, en seldi hin dýrmætu
réttindi fyrir stundarnautn.
Yarið þig ykkur á því, börn, að fara jafn-
gálauslega með (hin Ihelgustu rðttindi ykkar,
að mega vera frjálsir menn, engu háð nema
guðs heilaga vilja, hinu sanna, fagra og góða.
— Smári.'
“NÚ ER SUMAR”
og hver sá vor á meðal, er eigi fagnar því ? En
margvíslegar brevtingar hefir sumarið í för
með sér. Nú hætta innifundir barnastúkn-
anna, með öllum sínum heilræðum og áminn-
ingum. Nú er skólum slitið og sumarleyfið
byrjað. Til hamingju með sumarleyfið,- börn!
“Smári” ann ykkur öllum frelsis og hvíldar.
En hann vill sem góður vinur fylgja ykkur á
leið, er þið hverfið úr funda- og skólasölunum,
og minna ykkur á nokkrar aðalreglur, sem
hvert barn skyldi jafnan í heiðri hafa og eftir
breyta:
1. Á heimilinu.—Hlýddu foreldrum þínum.
Vertu góður við systkini þín. Vertu ekki eig-
ingjarn. Gerðu foreldrum þínum alt til geðs,
eins og þér er unt.
2. 1 leikjum.—Skemtu þér, en þó í liófi.
Gerðu aldrei gys að leikfélögum þínum. Vertu
ekki þrætugjarn, stríðinn né hefnisamur.
3. Á gótum úti. — Víktu úr vegi fyrir full-
orðnu fólki. Heilsaðu glaðlega á hæverskan
hátt. Gerðu ekki gys að gömlum og farlaga
mönnum, sem verða á vegi þínum, en hjálpaðu
þeim eftir megni. Eltu aldrei drukkinn mann
á götu, og nem aldrei staðar í hópi reiðra
manna.
4. Gagnvart sjálfum þér. — Vertu stund-
vís. Hát'taðu snemma, og farðu snemma á fæt-
ur. Vertu orðheldinn og orðvar. Hafðu gát
á sjálfum þér í hvívetna, en skiftu þér ekki af
öðrum að þarflausu. Hafðu sóma fekólans
þíns jafnan fyrir augum, og haltu trúlega
skuldbindinguna við sfúkuna þína. Hafðu
ekki ljótt orÓbragð og segðu jafnan satt.
5. Almennar reglur. — Gættu allrar hæ-
versku á manna mótum. Gakk hreinlega og
hljóðlega um. Þú mátt hvorki rissa né rispa
þiljur eða hurðir, borð né bekki. Láttu auglýs-
ingar í friði.
Ef þú, ungur lesandi, breytir eftir þessu,
þá mun þér vel farnast. — Smári.
VORMORGUN I LAUGARDAL.
1. júní 1916.
Nú er bjart um hjarka sal,
bragir dýrir hljóma;
lengi þráði ég Laugardal
líta í vorsins blóma.
Vonir yngjast .... alt sem kól
aftur rís lír valnum,
þegar blessuð sumar sól
sindrar yfir dalnum.
Fjólur skreyta foldar barm,
fugl að hreiðri keðist,
við linda-nið og lamba jarm
lífið endurfæðist.
Áhyggjum og ýmsri þröng
£0118 ’ eg að gleyma og týna,
hér við fugla- og fossasöng
finn ég æsku mína.
—Dýrav. Þröstwr.
í nefið.
Vinir Wessels voru lengi að nauða á honum
að fara í þriðja sinn til Guldbergs ráðgjafa til
þess að biðja hann um embætti. Loks lét liann
undan og bjuggu þeir hann sem bezt til farar-
innar. Hafði hárkollu, silkibrækur og gekk fvr-
ir ráðgjafa. Guldberg spurði hann að heiti og
hngði W. þá að hann þekti sig ekki vegna hár-
kollunnar, reif hana af sér og tróð í vasa sinn.
G. Spurði hann um erindi, ogkvaðst W. sér falla
bezt að fá embætti, sem væri fyrirhafnarlaust.
en hátt launað. Guldberg vissi ekki við hvað
hann átti, og spyr aftur livað hann geti gert
fyrir hann—og velti tóbaksdósunum í hendi sér.
W. segir þá: “Kannske þér vilduð gefa mér f
nefið?” Hann fékk það og fór síðan burt.. G:
leit svo á að hann hefði ekki átt annað erindi en
að fá í nefið hjá sér. — Unga ísland.
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arta Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Offlce tlmar: 2—3 Helmill 776 VICTOR ST. Phone: 27 122 Winnipeg, Manitoba H. A. BERGMAN, K.C. talenzkur löofrœöinour ■krlfstofa: Room 811 McArthur Bulldlng, Portage Ave. P. O. Box 165« PHONES: 26 849 og 26 840
W. J. LlNDAL og BJÖRN STEFÁNS60N Islenzkir lögfrœOincrar á Ö8ru gölfi 325 MAIN STREET Talslmi: 24 963 Hafa elnnig skrlfstofur aC Lundar og Gimll og eru þar aC hitta fyrsta miO- vikudag I hverjum má.nud.
DR. 0. BJORNSON 216-220 Medical Arta Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta. Phone: 21 834 Office timar: 2—3 Heimlli: 764 VICTOR ST. Phone: 27 686 Wlnnlpeg, Manitoba
J. T. THORSON, K.C. tsienzkur löfffrœ/Hnour Skrlfst.: 411 PARIS BLDG. Phone: 24 471
DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arta Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tlmar: 3—6 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnípeg, Manitoba
J. Ragnar Johnson B.A., LL.B., LL.M. (Harv.) izlenzkur lögmaöur 910-911 Electric Railway Chambers. Winntpeg, Canada Slmi 23 082 Heima: 71763
DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arta Bldg. Cor. Grah&m og Kennedy Sta. Phone: 21 834 Stundar augna, eyrna, nef og kverka Bjúkdóma.—Er a8 hitta kl. 10—12 f. h. og 2—5 e. h. Helmili: 373 RIVER AVE. Talslmi: 42 691
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœOingur Skrifstofa: 702 CONFEDERATON LIFE BUILDING Main St. gegnt City Hall Fkene: 14 687
Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham and Kennedy Phone: 21 213—21144 Helmili: 403 675 Winnipeg, Man.
E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrceöingur 809 PARIS BLDG., WINNIPEG Residence Offlce Phone: 24 20« Phone: 89 991
DR. A. BLONDAL 202 Medical Arts Bldg. Stundar sérstaklega kvenna og barna sjúkdöma. Er aC hitta frft kl. 10—12 f. h. og 3—6 e. h. Offlce Phone: 22 296 Heimili: 806 VICTOR ST. Slmi: 28 180
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEO Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgC af Ollu tagi. Phone: 26 349
Dr. S. J. JOHANNESSON stundar lækningar og yflrsetur Til viCtais kl. 11 f. h. Ui 4 e. h. og fr& kl. 0—8 aO kveldinu »32 8HERBURN ST. SlMI: 30 877
A. C. JOHNSON 907 ConfederaUon Llfe Bldg. WINNIPEG Annast um fasteignlr manna. Tekur aO sér aO ávaxta spartfé fólks. Selur eldsábyrgC og blf- reiCa ábyrgCir. Skrlflegum fyr- irspurnum svaraC samstundls. 8krifstofus.: 24 263—Heimas.: 33 32«
Drs. H.R.& H.W.Tweed Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE: 26 545 WINNIPEG
DR. C. H. VROMAN Tannlceknir 605 BOTD BLDG., WINNIPEG Phoae: 24 171
Dr. A. B. INGIMUNDSON Tannlœknir 602 htEDICAL ARTS BLDG. Slmi: 28 840 Heimllis: 46 054 i G. W. MAGNUSSON Nuddlceknir 91 FURBT ST. Phone: 36 137 VtCtaJs tlmi klukkan 8 til 9 aO morgninum
DR. A. V. JOHNSON tslenzkur Tannlœknir 212 CURRT BLDG., WINNIPEG Gegnt pösthúsinu Slmi: 23 742 HeimiUs: 33 328 A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farlr. Allar útbúnaCur sá. be«U Enníremur selur hann allskonar mlnnlsvarCa og legsteina. Skrifstofu talslmi: 86 607 Helmilis talslmi: 68 301
SKIPSTJÓRI BJARGAR HUNDI.
Seint á síðastl. vetri var skip nokkurt á
leið, frá Liverpool til Indlands, og vom á því
allmargir verðmætir hundar, sem fara áttu til
Bombay. Þegar komið var suður í Biskava-
flóa, var eins liuiuþsins saknað. Hann hafði
verið bundinn á þilfarinu, en einhvern veginn
tekist að losá sig. Hans var árangurslaust
leitað í skipinu, en að því búnu lét skipstjórinn
snúa við og sigla aftur þá leið, sem vænta
mátti að farin hefði verið síðan liundurinn féll
fyrir borð, en þá var liðin um hálf klukku-
stund frá því er liann liafði síðast sézt. Hund-
urinn sást hvergi, en þó var enn sigld ein míla
og síðan snúið við og haldið liægt suður á bóg-
/ inn. Sást þá hundurinn skamt fram undan
sikipinu. Skipstjórinn, A. D. Turton, lét þá
skjóta báti fyrir borð, og náðist liundurinn
mjög þjakaður og að fram kominn. Var hon-
um hjúkrað sem bezt mátti, og eftir nokkurar
klukkustundir var liann orðinn alheill. Þótti
þessi nærgætni skipstjórans svo virðingarverð,
að hennar var getið í mörgum erlendum
blöðum. — Dýrav.