Lögberg - 03.09.1931, Blaðsíða 8

Lögberg - 03.09.1931, Blaðsíða 8
Bls. 8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. SEPTEMBER 1931. RobinfHood FI/ÖUR. Or þessu mjöli fást fleiri og betri brauð Ur bœnum Rev. og Mrs. E. H. Fáfnis, voru stödd í borginni á mánudaginn. Mr. Magnús’ Pétursson, frá Langruth, var staddur í borginni á þriðjudaginn. Mr. Tryggvi Ingjaldsson var staddur í borginni á þriðjudaginn. Séra Jóhann Bjarnason hefir verið í borlginni tvo undanfarna daga. Dr. A. V. Johnson, tannlæknir, verður í Riverton á þrjðjudaginn, hinn 8. þ. m. Mr. Sigurður Sigurðsson, kaup- maður frá Calgary, var í boginni í þessai viku. íslenzk kona óskar eftir ráðs- konustöðu á íslenzku heimili. Upplýsingar á skrifstofu Lög- ber'gs, eða að 779 Beverley stræti, Winnipeg. Sími 29 065. John J. Arklie, gleraugna- og sjónprófunar sérfræðingur, verð- ur á Ericsdale Hotel fimtudag- inn þann 11. sept. Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá Glenboro og tvö af börnum þeirra, i voru í borginni á þriðjudaginn og miðvikudaginn. Höfðu farið til Petersfield, Man., og voru á heimleið. Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar heldur sinn fyrsfea fund eftir sum- arfríið, á fimtudaginn í næstu viku, hinn 10. september, í sam- komusal kirkjunnar, kl. 3 e. h. Þessi fundur verður skemtifundur og öllum safnaðarkonum er boðið að koma, hvort sem þær tilheyra kvenfélaginu, eða ekki. Yönduð skemtiskrá. Eleanor Henrickson Alþýðuskólarnir í Winnipeg voru opnaðir á þriðjudaginn í þessari viku. Skólabörnin eru um fjörutíu þúsndir og kennararnir sextán hundruð. Sunnudaginn 6. sept. messar séra Sjg. Ólafson í Hnausakirkju kl. 2 e. h. og í Geysiskirkj kl. 8.30 síðdegis. Séra N. S. Thorlaksson er nú sem stendur vestur í Vatnabygð- unum og verður utanáskrift hans fyrst um sinn: c-o W. H. Paulson, Leslie, Sask. Sunnudaginn 6. sept. messar séra H. Sigmar að Gardar kl. 11, í Fjallakirkju kl. 3 e. h. og að Mountain kl. 8 að kveldi. Allir velkomnir. Hannyrðafélagið íslenzka held- u: sinn fyrsta fund, eftir sumar- fríið kl. 8 á miðvikudagskveldið, hinn 9. september, í samkomusal Fyrstu lútersku kirkju. Mr. og Mrs. F. S. Frederick- son, að 585 HomeStr. hér í borg- inni, eru í þessari viku að fljrtja tii Glenboro. Utanáskrift þeirra verður því hér eftir: Glenboro, Man. Teacher of Piano Playing w Studio—977 Dominion Street Phone 30 826 Þrír ungir menn, Jóhann Frið,- riksson, Bjarni A. Bjarnason og Theodór Sigurðsson, eru í þessari viku að leggja af stað til Seattle, Wash., þar sem þeir ætla að ganga á lúterska prestaskólann 1 vetnir. Björg Frederickson ®cacf)cr of tfjc $Jíano Announces the re-opening of her Studio Telephone 34 785 Frank Thorolfson i TEACHER OF PIANO Studio 728 Beverley Street Phone 26 513 Símið pantanir yðar - ROBERTS DRUG STORE’S Ltd. Ábyggilegir lyfsalar Fyrsta flokks Afgreiðsla. Níu búðir — Sargent and Sherbrooke búð—Sími 27 057 Hagnar H. Ra£nar Piano and Theory Teacher. Joint Studio Club with P. Pálmason every month. Pupils prepared for exams. Studio—566 Simcoe Street Phone 39 632 | Jfónö Pfarnaáonar öfeólt | = 652 Home Street = Veitir fullkomna fræðslu í miðskólanámsgrein- = EE um, að meðtöldum XII. bekk, og fyrsta bekk j= EE háskólans. Þessi mentastofnun stjómast af == = kristilegum áhrifum. tJrvals kennarar. = Sðkum þess, hve aðsókn að skólanum af öðrum •: þjóðflokkum, virðist ætla að verða geysi-mikil í ár, er áríðandi að íslenzkir nemendur sendi umsóknir = = sínar um inngöngu sem allra fyrst. = == Skrásetning hefát 1 6. september = = Leitið upplýsinga hjá = SÉRA RÚNÓLFl Marteinssyni, B.A., B.D. = skólastjóra. EE = Sími: 38 309 = SIGURDSSON, THORVALDSON COMPANY, LIMITED General Merchants Utsölumenn fyrir Imperial Oil, Limited Royalite Coal Oil, Premier Gasoline, Tractor and Lubricating Oils ARBORG Phone I RIVERTON Phone I MANIT0BA, CANADA HNAUSA Phone 5 I — ring 14 Miss Emilie Olson, frá Glen- boro, var skorin upp á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni, síðast- liðinn mánudag. Uppskurðurjnn hepnaðist vel, að þvi er frézt hefir. Hinn 26. ágúst síðastl. eignuð- ust þau hjónin, Mr. og Mrs. Carl Finnbogason, að 3.18 Langside | Str. hér í borginni, dóttur, sem vigtaði að eins 2% pund, þegar hún fæddist. Síðan hefir barn- inu farið vel fram. Labor Day Picnic, verður hald- ið í skemtigarðinum að Hnausa, Man., þann 7. sept. næstkomandi. Verður þar margt til skemtana, margskonar íþróttir o. fl. Dans verður í Hnausa Hall að kveldinu og spilar hljómsveit Rivertonbúa við dansinn. Séra N. S. Thorlaksson messar næsta sunnudag, þ. 6. sept., í Hóla- söfnuði kl. 11 f.h., að Leslie kl. 3 e. h. og að Elfros kl. 7.30 að kvöldi (ensk guðsþjónusta). Mið- að er við Mountain Time. Allir velkomnir. Almenn guðsþjónusta verður haldjn, ef guð lofar, í kirkjunni að 603 Alverstone St., sunnudag- inn 6. sept., kl. 3 e. h. Ræðumað- ur G. P. Johnson. Allir vel- komnir. Mrs. S. W. Melsted, 673 Banna- tyne Ave., hefir dvalið undanfar- inn tveggja vikna tíma vestur í Kandahar, Sask., hjá dóttur sinni o)? tengdasyni, Mr. og Mrs. S. Indriðason. Hennar er von heim á föstudaginn kemur. Mrs. S. C. Thorsteinson, er starf- rækir Beauty Parlor í Mundy’s Barber Shop, býður $10.00 virði af Permanent Wave fyrir $5.00. Til- boð þetta stendur aðeins í stuttan tíma, og þess vegna ættu konur að gefa sig fram, sem allra fyrst. Messur í Gimli Prestakalli næsta sunnudag, þ. 6. sept., eru fyrir- hugaðar sem hér segir: í gamal- mennaheimilinu, Betel, kl. 9.30 f. h.; í kjrkju Árnessafnaðar kl. 2 e. h. og í kirkju Gimlisafnaðar kl. 7 að kveldi. Séra Jóhann Bjarnason prédikar í öll skiftin. Tveir nemendur Jónasínu Jó- hánnes&on, sem tóku próf s.l. júní hjá Toronto Conservatory of Mus- ic, eru: Junior Pianoforte, hon., 73,: Laufey Lifman, Árborg. Prjmary Theory, lst cl. hon., 84: Baldur Guttormsson, Geysir. Miss Jóhannesson byrjar að kenna nú þegar á heimili sínu að Árborg. Phone 60. Sjálf lauk hún prófi í Junior Counterpoint, með lst class hon- orsi, 84. Bennett í Winnipeg Bennett forsætisráðherra var í Winnipeg á laugardaginn, á leið til Ottawa frá Calgary. Átti hann þá langt tal við Bracken forsæt- isráðherra Manitobafylkis. Voru þar einnig viðstaddir flestir hin- ir fylkisráðherrarnir og tveir af ráðherrunum frá Ottawa, þeir Robert Weir búnaðarráðherra og T. G. Murphy innanríkisráðherra. Umtalsefnið var aðallega það, að reyna að ráða einhverja bót á at- vinnuleysinu, sem nú kreppir svo mjög að fólki í Manitoba, eins og annars staðar. Telst svo til, að nú séu um fjörutíu þúsund at»- vinnuleysingjar í Manitoba. öll- um virðist nú ljóst, að eitthvað þarf að gera til að bæta úr þessu og það meira en minna, en að finna ráð og möguleika til að gera það, gengur erfiðlega. Sveit- arstjórnir, bæjarstjórnir og fylk- isstjórnir hafa ekki þau peninga- ráð, að þær geti gert nema lítið eitt af því, sem gera þarf. Kem- ur þá til Sambandsstjórnarinnar kasta, eins og Bennett forsætis- ráðherra hefir hvað eftir annað viðurkent. Farið hefir verið fram á, að sambandsstjórnin Iegði fram 80 per cent. af því fé, sem nauðsynlegti er 'til atvinnubóta, en hvað Manitoba snertir að minsta kosti, er hún ekki viljug til að leggja fram nema 50 per cent. utan Winnipeg, en helzt ekki nema 35 per cent. í Winni- peg. ar sem aðrar stjórnir, en sambandsstjórnin, hafa yfir mjög takmörkuðu fé að ráða, þá lieðir þetta að sjálfsögðu til þess, að miklu minna verðuc gert, en gera þarf, og er ekki annað sjáanlegt nu sem stendur, en að atvinnu- leysið haldi áfram og úr því verði ekki bætt svo miklu muni, fyrst um sinn, en þó eitthvað. Alt sýnist það þó vera á huldu og óákveðið enn sem komið er. Það lítur út fyrir, að sambandsstjórn- inni sé ofvaxið að fást við þetta mikla vandamál. Louis Clifford Jacobs (Dánarfregn.) Ungmennið Louis Olifford Jacobs, fyrrum til heimilis að Wynyard, Sask., andaðist með sviplegum og sorgle!gum hætti, sunnudaginn 22. marz s. 1. Var hann á leið frá Seattle til Blaine, Washington, og ók mótorhjóli. Stór bifreið, er hann hugðist ak aka fram hjá, mun hafa tekið ó- væntan hliðarkipp, snortið mót- orhjólið og slegið því flötu. Varð það bráður bani hins unga manns. Hann fæddist 29. nóv. 1910, að Leslie, Sask., sonur hjónanna I. Jacobs, hérlendrar ættar, og Fann- eyjar Jónsdóttur frá Akureyri, systur, Alberts C. Johnson og þeirra systkina. Sjö ára gamall var Louis tekinn til fósturs af hjónunum Páli Eyjólfssyni og Þorbjörgu Bjarnadóttur, að Wyn- yard, Sask. ólst hann þar upp, ásamt fóstursystur sinni Þor- björgu Helgadóttur Bjarnason, konu Sigfúsar Halldórs frá Höfn- um, fyrv. ritstj. Hkr. Fóstur- föður sinn misti hann haustið 1923. Þótt ungur væri tók hann þá við búverkum fyrir fóstru sína og gegndi þeim með dugnaði og trúmensku í fjögur ár. Mrs. Eyj- ólfsson brá þá búi og leigði jörð- ina. Dvöldu þau næsta vetur í California. Með vorinu 1928 héldu þau aftur norður á bóginn, og vann Louis ýmist að fiskiveiðum eða landbúnaði næstu 2 árin. 1 fyrravor hélb hann aftur vestur á ströndina ,og staðnæmdist eink- um í Bellingham. Átti hann þar vingjarnlegt athvarf á heimili Stefáns Jónssonar, er fyrrum bjó að Wynyard, Sask. Vinna var ó- átöðug og var Louis oft á ferð- inni á mótorhjóli sínu milli Se- atitle, eftir að fóstra hans settist þar að, og Vancouver, þar sem móðir hans nú bjó með seinni manni sínum, Daníel Jónassyni. í Blaine voru líka fermingarsyst- kini hans og nágrannar að aust- an, þar sem var fjölskylda Jóns K. Bergmann. Louis var gott mannsefni. Var hann gæddur miklu líkamsþreki og góðri greind. Hægur um fas og fá talaður, en hugsaði mörgum fremur um alvöruhliðar og gátur mannlegs lífs. Áreiðanlegur til oi ða og verka. Neytti hvorki víns né tóbaks, og hélt sig að góð- um félagsskap aðeins. Bar fram- koma hans og hugsunarháttiur þess á allan hátt vott, að hann var alinn upp á einu ágætasta heimili sinnar bygðar. Fósturforeldrum sínum unni hann mjög, og fann til ríkrar á- fcyrgðar gagnvart fóstru sinni, Engu að síður var hann móður sinni góður sonur, skrifaði henni góð bréf og heimsótti hana, hvattur tiil þess, en eigi lattur, af fósturfólki sínu, enda mun móðir hans hafa haft hin beztu áhrif á hann í öllum greinum gegn um bréf sín, þótt eigi dveldu þau samvistum, eftir að hann var í fóstur tekinn. Þrátt fyrir skóla- námið og búverkin, sem á hon- um hvíldu, lét hann fúslega að óskum fóstru sinnar að sækja fermingarundirbúningj til mín, veturinn og vorið 1926, um til- tölulega langan veg. Var fram- koma hans öll hin Ijúfasta í því sambandi. Heimsótti hann mig hér á ströndinni í fyrravor, og hafði eg þá ekki séð hann í nokk- ur ár. Var ánægjulegt að sjá hann hafa þroskast bæði að þreki og drengskap. Jarðsetningin fór fram frá útfararstofu Blaine-bæjar, mið- vikud. 25. marz, með aðstoð þess, er þetta ritiar, að viðstöddum fóstru hans og móður og all- mörgum öðrum aSs'tandendum, svo og Ungmennafélagi íslenzku Fríkirkjunnar, sem hann var orð- inn vel kunnugur o'g hafði ætlað sér að starfa í. Hann var borinn til grafar af fermingarbræðrum sínum, hér stöddum, og öðrum ungmennum. Var eflaust óvenju- hljótt í huga þeirra allra, þessa kveðjustund, því að hann hafði dvalið meðal þeirra daginn áður en hann dó, hraustur og glaður. Fr. A. Friðriksson. —P.t. Seattle, 15. júní 1931. Kveðja í tilefni af heimför Björgvins. Eftir Guðm. A. Stefánsson. Hreinar lindir hugarstrauma hefja vinar brag. Öll við skulum á þeim svífa yfir sjó í dag. Hyllir okkur úthafsdrotning yzt við norðurbaug, hún réttir með hendi sinni helga minnistaug. Siglum því um himin heiðan, hlýjum vindum á, látum oss í einin'g fagna undramey að sjá; hún upp rís í hafsins djúpi hrein, með tigna brá, og í mjallar möttli sínum mætir okkur þá. Hvar sem hennar arfar eru út um víðan heim, munu hennar lindir lýsa ljúft í huga þeim. Á berglindum brjósta þinna barstu alla þá, því ei munu megir gleyma meðan hjörtun slá. Hljóm af tónum hreinna linda hafsins gyðja slær. Hún að þínum fótum fellur, fjalladrotning kær. Orkulindir strauma sterkra streyma út í geim, þú á víðum vegum hafsins varpar hljómum þeim. Undir sverði er oss hulin æfisa!ga þín, þegar land var ísum undir, eyjan fagra mín. Svo er líf á vorum vegum vafið hugarþey, líkt og sagnaröldin auða er á Garðarsey. Þegar að við heyrum hljóma hörpu þinni frá, þá er sem þú, móðir mætust, magnar hugar þrá, því úr glóðum enn þá eru eldheit kynt þín bál, þá vér finnum arineldinn inst í vorri sál. Hafsins mega álar eigi Atlants slíta bönd, því að brú úr böndum sterkumi bindur þessa strönd. Niðjar Leifs hins hepna halda helgan Vínlands fund; mun þeim ei úr minni líða manndóms þrek og lund. Móðir, þér vér helgað höfum hér vort líf og mátt, og við öll frá anda þínum eigum sterkan þátt. Því vér sendum boð með bróður berglind þinni frá, að þÚNert vor mætust móðir marardlúpum á. Jakob F. Bjarnason TRANSFKR Annast greiðlega ura alt, sem að flutningum lýtur, smáum eða stðr- um. Hvergi sanngjarnara verð. Heimili: 762 VICTOR STREET Sími: 24 500 Mr. ÓIi Kárdal frá Gimli, Man., var staddur í borginni um síð- ustu helgi. Er hann, sem kunn- ugt er, gæddur ágætri tenórrödd, og hygst að stunda söngnám hér í vetur, ef kringumstæður leyfa. JÓN BJARNASON ACADEMY GJAFIR. Frá Langruth, Man.— Mrs. Sigurborg Gottfred .... $1.25 Mrs. G. Thorleifson ...... 1.25 Mrs. Guðrún Hellgason .... 2.00 Mrs. P. Jónasson.......... 1.00 Mrs. B. Thompson ......... 2.00 B. Ingimundarson.......... 3.00 Jón Valdimarsson ......... 3.00 Gísli Johnson ............ 5.00 Jóhann Halldórsson ....... 5.00 Sigurður Finnbogason ..... 1.00 Mrs. Guðfinna Bjarnarson 2.00 Mrs. Jóhanna Erlendson .... 1.00 Jón Marteinsson..............50 í minningu um séra Hjört sál. Leó, frá safnaðarlim hans 5.00 Mrs. Thora Johnson ......... 2.00 Mr. og Mrs. R. W. Polson 10.00 Valdimar Bjarnarson ........ 1.00 Frá Reykjavik, Man.— Guðm. Kjartanson............ 2.50 Mrs. G. Olafson............. 1.50 Árni Björnson .............. 2.00 Vinkona .... .............. 2.00 Mrs. Valgerður Erlendson 5.00 Mrs. E. Sigurdson ......... 5.31 Guðm. Ragnar Sigurdson.... 10.00 Eyvör Guðbj. Sigurdson.... 10.00 Óskar Sigurdson............ 1.00 Árni Pálsson .............. 2.00 Frá ^Vapah, Man.— J. R. Johnson ............. 3.00 Gísli Johnson.............. 3.00 Mrs. J. R. Johnson......... 2.00 Guðmundur Pálsson ......... 1.00 Frá Siglunes P.O.— J. A. Johnson ............. 2.00 Frá Hayland, Man.— Samskot við guðsþjónustiu, sunnud. 23. ág........... 13.00 Frá Stony Hill, Man.— Miss Pálína Johnson ....... 1.00 Brynjólfur Johnson......... 1-00 Guðjón Rafnkelsson ........ 5.00 Frá Otto, Man.— Si!gurbjörn Benediktssonl... 10.00 Frá Lundar, Man.— Mrs. H. J. Leó ............. 3.00 Vinur..................... 5.00 Kári Byron ............... 3.00 Ágúst Magnússon ........... 5.00 Dr. N. Hjálmarsson ...... 10.00 Mrs. Oddný Magnússon.... 5.00 Mrs. Sigríður Eiríksson .... 5.00 G. K. Breckman,.......... 10.00 Martin Johnson Ocean Falls, B.C.......... 5.00 Gefið í minningu um Mrs. P. P. Jökull og margra dána ást- vini, af vinum þeirra dánu 50.00 S. F. Olafsson, Wpg........ 10.00 Friðrik Kristjánsson, Wpg 5.00 | S. W. Melsted. --- * iStaddir voru í borginni í byrj- un vikunnar, þeir Thordur Thord- arson, kaupmaður; J. B. Johnson, Guðm. Sólmundsson, Guðmund- ur Magnússon og Jón Josephson, allir frá Gimli; auk þessi Mr. B. J. Lífmann frá Árborg. Mr. Stone Stone, 719 William Ave., hefir verið í tuttugu og fimm ár í þjónustu T. Eaton félagsins og gegnt þar mikilvægri ábyrgðar- stöðu. Sem viðurkennin'garvott f.vrir dyggilega unnið starf, gaf félagið honum úlnliðsúr úr skíru gulli með viðeigandi áletran og afhenti honum þakkarávarp. Auk þess veitti félagið honum tveggja mánaða hvíld frá starfi, umfram venjulegt sumarfrí. Þau Mr. og Mrs. Stone lögðu af stað í bíl vestur til Banff í vik- unni sem leið og ráðgerðu að dvelja þar úm hríð, en ferðast svo þaðan til fleiri staða víðsvegar um Sléttufylkin. ------------------------------------------------- TIL SÖLU Námsskeið við tvo fullkomnustu vcrzlunar- skóla í Vestur-Camada, fást til kcmps nú þegar á skrifstofu Lögbergs, með miklum afslætti. Nú er hentugasti tíminn til þess að byrja nám vjð Business College. Þegar hart er í ári, kem- j [ ur það bezt í Ijós, hversu mentunin er mikils virði. Þeir, sem vél eru að sér, eiga venjulega \ forgangsrétt að atvinnu. ) Lítið inn á skrifstofu Lógbergs sem allra | fyrst, eða skrifið eftjr frekari upplýsingum. \ EATON'S for School Supplies At^Eaton’s provision has been madefor every need of the boy or girl at school. The Station- ery Section provides school equipment at low prices. Baker’s Geometry Sets 60c For nse with Baker’s Geo- metry books. Contains protractor, 6-inch ruler, compass, lever, parallel rul- er and set square. Peerless Exercise Books, 5 for 25c 68 pages, ruled and mar- gined. Suitable for pen and pencil use. Remarkable value. Collegiate’s Exercise Books 3 for 25c 108 ruled pages suitable for pen or pencil. Strong terra- cotta covers. School Paints 40c and 45c Reeves 4 and 8 colors school paints complete with brush. Canvas School Bags In shoulder strap or carry- ing-handle style; made of , checked or plain brown can- ! vas—roomy and convenient. j Priced from 35c to 85c each. Dominion Loose Leaf Books —Cover only, Nos. 13864 and 13866, at, each 50c. 100-Page Exercise Books, 3 for 25c Strong black leatherette cov- ers. Smooth surfaced paper —faintly ruled in blue and margined. School Companion Sets, 15c to 65c Attractively covered boxes— filled with school necessities —pencil, penholders,1 eras- ers, etc. Flexi-Ring Loose Leaf 3ook —Complete, 20c to 35c. Venus Lead Pencils —All grades. Each lOc Velvet Pencils —H.B., rubber tipped. Ea. 5c Music Dictation Books 2 for 15c. Station erg Section, Máin Floor, South. J'T. EATON C°um,ted

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.