Lögberg - 05.11.1931, Qupperneq 2
Bls. 2.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. NOVEMBER 1931.
\
Xögberg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LTD.,
Cor. Sargent Ave. og Toronto St.
Winnipeg, Manitoba.
Tcdsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
Utanáskrift blaSsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Ldgberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The '"LfiKberK” is printed and published by
The Columbia Press, Limited,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manltoba.
Ramsay MacDonald
* Þó greint sé á um margt, munu tæpast verða
mikið skiftar skoðanir um það, að Ramsay Mac-
Donald beri höfuð og herðar yfir flesta, ef ekki
alla, stjórnmólamenn brezka, sinnar samtíðar;
lítilmagninn á í honum einn sinn tryggasta vin;
mannúðarmálin eiga, þar sem hann er, líka einn
sinn tryggasta vin ; og þó Ramsay MacDonald
í skoðanalegu tilliti liafi staðið, og standi enn,
jafnaðarmannastefnunni næst, þá er nú svo
komið, að hann stendur öllum flokkum ofar,
sem andlegur aðalsmaður og óumdeildur leið-
togi heillar þjóðar; en hann er meira en það;
á svúði heimsmálanna, er hann alment talinn
einn allra áhrifamesti sáttasemjari, þeirra, er
nú eru uppi.
Skiftar voru nokkuð skoðanir um það,
hvernig Ramsay MacDonald mundi reiða af,
eftir að hann tókst á hendur forustu samvinnu-
stjómarinnar; spáðu ýmsir því, að slíkt mundi
ríða honum að fullu sem stjórnmálamanni; að
hin nýja stjórn mundi kvistast í ótal agnir í
kosningunum, og hann sjálfur jafnvel ekki eiga
afturkvæmt; en hér fór á annan veg; því eigi
aðeins vann hin nýja þjóðstjóm frægari sigur,
en dæmi munu til í sögu brezku þjóðarinnar,
heldur og Ramsay MaoDonald persónulega
líka; það var þjóðin sjálf, sem sigurinn vann,
hvað sem fyrri flokkahleypidómum leið.
Enginn þarf að ætla, að Ramsay MacDonald
standi uppi einangraður á þingi, þótt þing-
meirihluti sá, er hann styðst við, beri nýtt
heiti; vinir hans og velunnarar, em þó vafa-
laust margfalt fjölmennari utan þings en inn-
an, sem ráða má glegst af því, að hinir fornu
flokksbræður hans, svo miljónum skifti, fylktu
liði og studdu til sigurs í nýafstöðnum kosn-
ingum, fjöldann allan af þeim þingmönnum, er
nú mynda hinn nýja þjóðstjómarflokk, og verð-
ur slíkt einungis réttilega skráð í tekjudálk
Ramsay MacDonalds.
Foringi íhaldsmanna og sá, er næstur geng-
ur Ramsay Macdonald í samvinnustjóminni,
Stanley Baldwin, lýst yfir, þá er hljóðbært varð
að fullu um úrslit kosninganna, gð enginn einn
flokkur öðrum fremur, gæti tileinkað sér kosn-
ingasigurinn; það væri þjóðin öll, er gengið
hefði sigrandi af hólmi.
Raddir hafa komið fram um það, að með
stofnun hinnar nýju þjóðstjómar, muni Ramsay
MacDonald hafa 'brugðist verkamanna samtök-
unum. Getur annað eins mikilmenni og hann,
nokkra sinni brugðist nokkru því, er hann ber
fyrir brjósti?
Um verkamanna samtökin í heild, fórust
Mr. Ramsay MacDonald einhverju sinni þann-
ig orð:
“Eg staðhæfi, að þegar um samtök verka-
manna er að ræða, sé ekki tjaldað til einnar
nætur; þau geta breytt um farveg; það gera
fljótin líka, og þó halda þau áfram að vera fljót
eftir sem áður; verkamanna flokkurinn brezki,
en enginn áhlaupaflokkur, er alt ætlar að leggja
undir sig í sömu andránni; stefna hans er hæg-
vaxandi straumfall aukins ásmegins og lifandi
trausts á þroskamátt gróandi þjóðlífs, sem jafnt
og þétt er að tevgja limið upp á við, og verða
skal að lokum ljómi hans dýrðar og ímvnd hans
veru.” .
Anœgjuefni
Sérhver sá, er að því vinnur, að útbreiða
sanna þekkingu á Islandi og íslenzkum sérkenn-
um meðal erlendra þjóða, er sannur þjóðræknis-
maður.
Alveg nýskeð, barst oss í hendur nóvember-
heftið af tímaritinu Canadian Geographical
Journal, er að þessu sinni flytur, meðal annars,
prýðilega ljósa og vandaða ritgerð um ísland,
íslenzka menning og staðháttu, eftir hinn unga
og efnilega, vestur-íslenzka lögfræðing, J.
Ragnar Johnson. Það er öðru nær, en að rit-
gerð þessi sé nokkur smásmíði, því hún er tutt-
ugu og tvær blaðsíður að stærð; prýðir liana
fjöldi ágætra mynda.
Tímarit það, sem hér um ræðir, er eitt allra
vandaðasta tímaritið, bæði að efni og frá-
gangi, sem gefið er út hér í landi, og víðlesið,
þó enn sé tiltölulega ungt; ekkert, nema það
bezta, fær þar inngöngu.
Mörgu af voru unga fólki, er enskan tamari
en íslenzkan; þó ann það fslandi og íslenzkum
söguminjum engu að síður; hér er um rit-
gerð að ræða, er finna ætti meðal þess frjóvan
jarðveg.
Þökk sé J. Ragnari Johnson fyrir ræktar-
semi þá, er hanu hefir sýnt stofninum íslenzka
með þessari ágætu ritgerð.
Hugurinn reikar víða
Eftir Guðm. Elíasson.
(Framh.)i
Góðan daginn, Mr. Smith, get-
urðu sagt mér hvaða mánaðar-
dagur er í da!g?
Já, það er laugardagur í dag,
annar maí.
Þótti þér ekki snjóa töluvert í
nótt? og það lítur helzt út fyrir,
að það muni snjóa í allan dag. En
það eru blessuð hlýindi í .veðrinu,
samt held eg að þessi snjór verði
nú kyr hjá okkur 3. mí, en svo
fer hann allur fjórða maí. Það
verður nokkuð blautt um núna
nokkra daga, en tíðin má heita
inndælis góð; skógurinn er farinn
að laufga. Eg er búinn að vera
nærri 40 ár í þessari Ameríku
Leifs hins hepna landi, og hefi átt
heima bæði í Norður Dakota og
Manitoba, o!g eg man ekki eftir að
hafa lifað svona góða vortíð, að
fáeinum miður skemtilegum storm-
dögum undanteknum, og þá daga
ætlaði sandfolkið að drepa mann,
undir eins og maður kom hérna
austur fyrir skóginn. Það er al-
veg sama hvar maður er, og þó
ekki sé búið að kroppa landið
nema fáein ár, og hvað góður sem
jarðvegurinn er, þá er bannsett
moldviðrið komið; en til hverg er
að vera að blóta vindinum eða
veðrinu? Mennirnir þykjast nú
svo fullkomnir að viti og verk-
hyggindum, að þeir ættu að geta
framleitt lifibrauð handa sér og
'SÍnum, án þess að gjöra jarðveg-
inn ónýtan á fáum árum.
Já, en blessaður vertu, aldrei
er of mikið af þessum almáttuga
dollar. “Get-rich-qjuick” segir mál-
tækið enska, og það er sú bezta
setning, sem enskurinn hefir bú-
ið til.
Það getur vel verið að þér þyki
það, Mr. Smith, en eg fyrir mitt
leyti efast stórlega um, að nokkur
þrjú orð í einni setningu, eða einu
máltæki, sem til er í enska mál-
inu, hafi valdið meira böli í heim-
inum, en einmitt þessi.
Nei, það skil eg aldrei; um að
gera að þurfa ekki að vlnna,
hvorki með höfðinu eða höndun-
um, nema sem styzt af æfinni,
taka lífið á lofti, það er vegur-
inn.
Þú meinar að taka frá öðrum,
láta öðrum líða illa, svo þér sjálf-
um geti liðið vel?
Nei, það er ekki það sem eg
meina; eg meina að taka það sem
fyrst út úr jörðinni, þreyta jörð-
ina, gjöra hana uppgefna.
Eins og húðarbykkju. Dáfalleg
hugmynd, dáfalleg meðferð á
henni móður okkar.
Það er sú hugmynd, spm mörg-
um hefir orðið að góðu, margur
orðið maður með mönnum fyrir.
En hver á svo að taka við hróf-
inu útslitna og úttaugaða.
Lánfélögin, auðfélögin. Um að
gera að taka rjómann ofan af,
draga svo það sem hægt er út á
skjankann og sleppa honnm svo.
Gott og vel, þú ert þá sjálfur
búinn með þessari útskýringu
þinni að samþykkja það sem eg
sa!gði, að valdið hefði mestu böli
í heiminum.
Og hvernig skilur þú það?
Bara eins og þú talar það sjálf-
ur. Eg þarf engu þar við að bæta.
Þú ert að taka frá öðrum með því
að misþyrma jörðinni, sem ól þig
og uppfóstraði, og gjöra bróður
þínum, sem er yngri og óreyndari
en þú, ómögulegt eða illmögulegt
að hafa sitt lifibrauð af landinu
á eftir! 'þér. Þú lo!gnast út af
og verður grafinn, fráskildur
þessum almáttuga dollar þínum,
og það er sannarlega ekki eftir-
'sjón í þér; en það gjalda aðrir
þinna verka.
Ekki nema bara lánfélögin, og
þau eru nógu rík; það þarf ekki
að vorkenna þeim.
En hvar tóku þau sinn gróða?
Eg er ekkert að hugsa um það,
mig varðar ekkert um það.
Þetta var það bezta, sem þú
gazt sa!gt, því nú skil eg, að þú
ert að svíkja sjálfan þig, og það
var aðal kjarninn, sem e!g var
að grafast eftir.
Kallarðu það að svíkja sjálfan
sig, að vera mikils metinn hjá
allsnægtum?
Nei, lifðu vel, því lífið er stutt.
Veiztu nokkuð hvað lífið er
langt? Þú sagðir að eg dræpist
og yrði grafinn, þú manst sjálf-
sagt eftir því.
Já, eg man það vei, en gat eg
nokkuð um, hvað lengi þú værir
dauður? Þarna mátaðir þú sjálf-
an þig aftur, og það fyrir fult og
alt. Það er gamla sagan, að hugsa
bara um daginn, sem er að líða.
Lánfélöjgunum gerir það minst
til, þó þau fái löndin aftur; alt
af er nóg af heimilislausa fólkinu,
sem neyðist til að fara að búa á
þessum úttæmdu löndum; því
hvert er að flýja?
Fátækt fólk fer ekki neitt, það
hvert er að flýja? Fátækt fólk
fer ekki neitt, það kemst ekkert.
kemst ekkert. Það verður því alt-
af endirinn á öllu lífsstríðinu, að
eins dauði verður annars líf.
Guð gaf okkur öllum jörðina til
að lifa af, mann fram af manni,
en fjárgræðgin hefir spilt svo
þessari gjöf, að til vandræða horf-
ir, ög nú er það umhttgsunarefni
allra góðra mann, og þeir eru, sem
betur fer, margir, á hvern hátt
bæta megi úr þessu • önigþveiti,
þessu böli, sem af því hefir leitt
að mennirnir hugsa of mikið um
arðinn, þetta að “verða-fljótt-
ríkur.”
“Þetta eru endalok vesturlands-
ins” heyrist sagt dagsdaglega. En
það er ómögulegt að kalla landið
hér annað en erfitt fyrir fá-
tækt fólk. Það er alt þakið skógi,
og verst af öllu er vatnsleysið.
Þeir sem hingað koma, þurfa að
koma með öxi á skafti og fara að
höggva, fyrst fyrir húskofanum
og “so on”, eins og Páll Jóhanns-
son segir. En jarðvegurinn er
góður og gefur von um góðar af-
urðir, ef vel er unninn. Minstu
þess, íesari góður, hvar sem þú
ert, að það gildir sama, gamla
setningin hér í Peace River hér-
aðinu í Brit. Columbia, eins og
annars staðar: “I sveita þíns and-
litis skaltu þíns brauðs neyta”. Eg
veit, að það má hártoga þessa
gömlu setningu, nú á þessari
menningaröld, en eg vona að orð
mín verði tekin blátt áfram og út-
úrdúralaust.
Annars lítur út fyrir að landar
mínir, íslendin!gar, ætli að verða
heldur seinir að ná sér í lönd hér,
það er að segja, 'svo það geti orðið
í samhengi íslenzk bygð. En auð-
vitað er altaf nóg landflæmi til
að skoða og byggja sér upp heim-
ili á; en hvort það er eins hag-
kvæmt eins og það, sem búið er að
taka, er ekki gott að fullyrða neitt
um. Það er að líkindum mikið
undir því komið, hvar járnbraut-
in, sem nú hefir endastöð sína í
Dawson Creek, verður lögð vest-
ur, og eins fyrir hina, sem hafa
fest sér bústað fyrir norðan
Peace River Crossing, hvert sú
braut, sem þar er, verður lögð. En
voandi verður það !gert upp á það
allra bezta fyrir fólkið, því svo
hafði istórmennum Brit. Col. fylk-
is farist orð, þegar fagnaðarhá-
tíðin var haldin í Dawson Creek
síðastliðinn vetur, í tilefni af því,
að farþegalest kom þangað í
fyrsta sinn; þeir kváðust vilja
gjöra alt, sem í þeirra valdi stæði
til þess að fólkinu gæti liðið vel
á komandi tímum, og sýnir það
gott og göfugt hjartalag mann-
anna, þegar þeir halda svoleiðis
tölur, o!g fá svo vel að borða á
eftir. Annai^s hefir manni nú
stundum fundist, að slíkar tölur
ekki bera tiltölulega mikinn á-
vöxt, og eins það, að járnbrautir
hafi ekki allatíð verið lagðar þar
sem þægilegast hefir verið fyrir
fólkið, og afleiðingin orðið sú,
að fleiri tugir mílna hafa verið
af hálf óaðgengilegu landi milli
sæmile!ga byggilegs pláss og bið-
stöðvar járnbrautarinnar.
Þegar eg nú að endingu athuga
og lít í huga mínum yfir þetta
Peace River hérað, þá finst mér
ekki þýða fyrir þá, sem hafa í
hyggju að flytjast hingað, að vera
að gugta við að leita sér upplýs-
inga, hvorki bréflega eða munn-
lega, sem kallað er, af þeirri á-
stæðu, að nú á tímum mundi það
ekki sýnast ókleift, þe!gar tekið
er tillit til þess, hvað akvegir og
ferðatæki eru orðin jafn auðveld
og þau eru. Að til dæmis fjórir
menn tækju sig saman 0g ferðuð-
ust hingað að skoða landsplássið,
sér til ánægju og öðrum til upp-
Iýsingar, það vlrtist að mínu áliti
vera hyggilegra. Fyrir unga og
uppvaxandi menn að eyða á þann
hátt tímanum, sem í raun og veru
er okkur öllum dýrmæt !gjöf, ef
rétt er að farið, er heillavænlegra,
heldur en að sitja inn i á hálf-
daunillum bjórknæpum og sötra
þar eiturlyf vínbruggaranna,
myrðandi allar mannlegar til-
finningar og alla lífs og sálaí
krafta, og verða svo á allan hátt
að aumingjum fyrir ár fram. Það
er, bæði hressandi og ánægjuleg
skemtun, að ferðast hérna um
norðvesturlandið, eg 'get borið um
það af eigin reynslu, og ef það
getur ekki bætt óslítandi strengj-
um á hörpuna þína, lesari góður,
þá ertu andlega og líkamlega dauð-
ur, þó þú haldir sjálfur, að þú sért
lifandi. En þú verður að gá að
því, að yfirbuga ekki lífsmynd
þína með eituráhrifum víns eða
tóbaks, því þó guð láti glaða sól-
skin yfir þig skína, yndislegt út-
sýni og dýrð náttúrunnar í henn-
ar margvíslegu myndum við þér
blasa, þá hefir þú ekkert gott af
því, ef þú vísvitandi blindar sjálf-
an þig.
Þegar þú kemur vestur í British
Columbia, þá máttu óhætt taka
undir með íslendingafljóts skáld-
inu og syngja:
‘^Heilnæmt er loftið í laufguðum
skóg,
þar leikur sér andsvalinn hreini.”
Já, 0g “forðabúr heimsins er fold
þessi nefnd.” Hefir ekki Norð-
vesturlandið mátt með sanni kall-
ast forðabúr heimsins? Jú, sann-
arlega, og hefði verið það um ald-
ur og æfi, hefði rétt verið með
farið. En hvað hefir skemt það,
hvað hefir á stórum svæðum eyði-
lagt fegurð þess og það skraut,
sem það hafði frá náttúrunnar
hendi, frá skaparans hendi? Hvað
nema fjárgræðgi mannanna, alveg
á sama hátt og fiskinn í Winni-
pegvatni. Er það ekki hún, sem
alt skemmir o!g eyðileggur alt og
alla, hvar í heiminum sem er?
Leiðinlegt, að geta ekki kveðið
niður visuna hennar Vatnsenda-
Rósu, eins ósamboðin mannlegu
hugsunareðli eins og hún virðist
vera, en er þó öllum kunn:
“Hrekkja spara má ei mergð”,
o. s. frv.
En fátæka og allslausa fólkið,
®em flutti vestur í Peace River
héraðið í sumar, var ekkert að
hugsa um að skoða eða spyrjast
fyrir. Það var bara að flýja sand-
eyðimerkurnar, sem það sagðist
koma frá í Manitoba og Saskat-
chewan. Það sá gras, þegar vest-
ur kom, sem skepnurnar sem það
átti eftir, gat fylt sig á. Sumt af
þeim hafði það blátt áfram skotið
áður en það fór af stað, sérstak-
lega hestana.
Þetta fólk þóttist vera komið í
paradís alsælunnar, bara fyrir
þessa ástæðu, að það sá gras, sem
skepnurnar gátu fylt sig á. Það
var ekkert að spyrja um landið
eða framtíðarmöguleika þess. Al-
veg á sinn máta var með fólk, sem
kom frá Californiu; það kom nú
bara í bílunum sínum; það var á-
nægt hvernig sem landið var, bara
ef það gat fengið vatn. Sumt af
því tók sér bújarðir austur við
Cutbank ána, og er það pláss það
ósléttasta, sem eg hefi séð, hvar
sem eg hefi farið, það er að segja
með pörtum; en Cutbank áin þorn-
ar aldrei, það er víst.
í dag er 16. júní. Það er alt af
sama góða tíðin, í hverri viku koma
skúrir o!g ein góð rigning var núna
fyrir miðjan mánuðinn. Fólkið
flykkist hingað jafnt og stöðugt.
24. júní—Það var þó talsvert
frost í nótt, sá töluvert á kartöflu-
grasi 4. júlí erum við Gunnlaug-
ur Björnsson á heimleið frá Daw-
son Creek. Það er reglulegur
sandbylur. Þegar kemur upp í
skóginn er nú ekki mikið til að
auk sandbylinn, nema þá það sem
getur þyrlast upp á aðal veginum,.
en það er ekki nóg til þess að við
fáum að sjá hvað sandbylur er.
auka sandbylinn, nema þá það sem
(Meira).
ÞAKKLÆTI.
öllum þeim, sem á einn eða
annan hátt greiddu veg okkar, er
húsið, sem við bjuggum í, brann
og ,við töpuðum öllum húsmunum
okkar, þökkum við innilega fyrir
aðstað þá, hjálpl og samúð, er okk-
ur var þá sýnd á svo margvísleg-
an hátt. Sérstaklega þökkum við
kvenfélagskonunum á Eyford, sem
eftir brunann færlu okkur gjaf-
ir o!g létu sér mjög ant um hag
okkar. Einnig Mr. og Mrs. J. J.
Myres, sem tóku okkur heim í hús
sitt og buðu okkur að vera sem
heima hjá okkur þar til fram úr
greiddist með húsnæði. Enn frem-
ur Guðm. Jónassyni á Eyford, er
marga daga eftir brunann vann
með okkur að því að koma okkur
fyrir á ný.
Alla þessa hjálp og velvild, á-
samt margra annara, sem við höf-
um ekki nefnt, biðjum við af ein-
lægni og þakklátum huga, að sá
megi launa, er alls er megnulgur.
—Crystal P.O., N. dag.,
29. okt. 1931.
Mr. og Mre. David Savage.
Bœndaglíman
Mig minnir eg iofaði að skrifa
fáeinar línur að Lögbergi, þegar
bændaglíman væri um garð geng-
in þetta árið.
Bændur hreinsa útsæðið sitt á
útmánuðum, meðan enn þá er
snjór á jörðu. Strax þegar autt
er orðið, eru allir komnir með
vinnuáhald sín út á akrana. Eng-
inn veit betur en þeir, að hann
uppsker ekki, sem gleymir að sá.
Alt að þessum seinustu tveimur
til þremur árum, hafa vonir
bændanna 0g hagsældartrú þeirra
verið sérstakle!ga vakandi og létt
þeim alla vorvinnuna. Eftir fjóra
fyrstu sólskinisdagana, frá því
þeir sáðu fyrstu kornunum, þá
fara þeir að líta eftir spírunum,
litlu frjóöngunum, og alt er þetta
í rétta átt.
Vonirnar lifa og ljósið skín. En
svo er að verða of þurt, og ekkert
rignir. En blessað lífið brýst um
í moldinni og berst fyrir tilveru
sinni, gegn óteljandi óvinum, og
verður daglega fyriir eyðile'ggj-
andi áföllum. En þá kemur regn-
ið, og það, sem enn þá lifir og
heldur velli, er nákvæmlega hirt
og afhent viðskiftalífinu, og þá
loksins fær bóndinn tima til að
líta upp og virða fyrir sér útlitið,
en þar eru fáar vonarstjörnur
sjáanlegar.
Ótti grípur bóndann, þegar hann
sér og sannfærist um, að hann á
ekki sitt framar undir sól og
re!gni, ekki framar undir því, sem
á öllum undanförnum öldum þótti
tvísýnast. Nú er það orðið bónd-
anum greiður og bjartur úrræða-
vegur. Hann veit, að aftur batnar
í ári, að aftur kemur góð uppskera,
en örlæti náttúrunnar getur ekki
lyft honum á hagsældar braut.
Vonar- og gleðistjörnur bænd-
anna eru byrgðar svörtum skýj-
um. Ríkishagsældin veltur á vel-
megun bændanna, en þeir tapa ár-
lega kjarki og hugdirfð fyrir
vonlausa þrælkun. í staðinn fyr-
ir, að þeir eiga að hafa réttmæta
ástæðu til að þrá landið, og kepp-
ast um að fá að eiga þar alt sitt
undir sól og regni, eins og nátt-
úran útjtlutar, og velferð ríkisins
útheimtir. Af hverj stafar öfug-
snúðurinn?
Þeir eru viðurkendir að vera
mestu listmálarar heimsins, sem
líkja bezt eftir fegurð náttúrunn-
ar. Er þá ekki .eðlilegast, þegar
eg er ungur og hefi valið mér
konu og við elskum hvort annað,
að frelsisþrá okkar o!g fegurðar-
næmi sem bezt borgið úti í al-
frjálsri náttúrunni úti á land-
inu? Það er vonlaus og sólskins-
blettalaus þrælkun á landinu, sem
veldur því, að menn vilja heldur
hanga svangir inni í bæjúm og
borgum, en að búa úti á blessuðu
landinu.
Það er ónáttúrlegt, að menn
skuli óttast landið. Fyrirkomu-
lagið verður að breytast. Það má
ekkert vera annað en of mikil sól
eða of mikið regn, sem tefur bónd-
ann á velferðarbraut hans.
Af því, sem eg er nú þegar bú-
inn að segja, er það auðsætt, að
bændaglíma ársins er ekki útkljáð,
þó búið sé að þreskja, og náttúr-
an hafi staðið skil af því, sem
í meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gigt, þvagteppu og mörgum. fleiri
sjúkdómum. Fást hjá öllum Ijrf-
sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
hún ætlar af mörkum að láta það
árið. Svo var það fyrir nokkrum
árum; nú er það öðru nær. Þá
fyrst koma klær auðvaldsins til
sögunnar. Rukkunarbréfunum
rignir einn á heimilin, o'g þjónar
auðvaldsins koma daglega í fín-
um bílum til að krefjast þess, að
samningum og loforðum sé full-
nægt. Á slíkum augnablikum eru
tilfinningar og ástand bóndans
ekki alveg ólíkt því, sem Jónas
Hallgrímsson lýsir um ástæður
rjúpunnar í skafrenningi, þegar
valurinn svífur yfir. Bóndinn
reynir að vísu að segja: Eg var ó-
heppinn 1 ár. En hann er ren!gd-
ur, og alt af haldið að honum að
hann sé að fela; hann er grunað-
ur um græzku, um kæringarleysi,
Á næstliðnu vori sáði nágranni
minn einn 160 ekrur með hveiti.
Af þessu landi fékk hann 425 mæla
þreskt hveiti nú í haust, og vant-
aði því 25 mæla á alla uppskeruna
til að hafa þrjá mæla af ekrunni
til jafnaðar. Þetta er minsta upp-
skeran hér í kring um mig, sem
eg hefi enn frétt af. Hins vegar
mun mesta uppskeran hér í kring
hafa orðið 12 mælar til jafnaðar
af ekrunni. Þreskikostnaður hef-
ir aldrei verið sanngjarnari síðan
hér byrjaði akuryrkja, 4 cents á
hvern mæli af höfrum og byglgi,
og 6 cents á hveiti mælinn. Mér
finst skylt að geta um þetta, þeim
til verðugs heiðurs, sem eru upp-
hafsmenn að þessu mannúðarlega
fyrirtæki, en það hygg eg að séu
í þessu nágrenni hinir ungu og
efnilegu þreskjarar, Guðmundss-
sons bræður skamt frá Elfros.
Þó nú þreskin!gin væri, allra þakka
verðast, ódýr á þessu hausti, þá
hrekkur afgangurinn illa til ann-
ara útgjalda. Sveitarstjórnin okk-
ar neyddist til að samþykkja það
á síðasta fundi sínum, að hafa
enga taxsölu á þessu hausti, af
því svo fjölda margir hafa eng-
ir. ráð með að borga skattana.
Neyðarúrræði þykir ]>etta, að
slaka á aðhaldinu, þegar lakast
er staðið í skilum, en það verður
ekki tekið þó með ofbeldi, sem
ekki er til.
Hausttíð er hér góð, enn sem
komið er, og heilbrigði manna aÞ
ment góð, það eg hefi til frétt. —
Læt e'g svo staðar numið að sinni.
Mozart, 28. okt. 1931.
Fr. Guðmundsson.
KLÁÐA—HRUFUR
og aðrir hörundssjúkdómar
Mýktir og læknaðir með Zam-Buk
Ointment 50c
SMedicinal Soap 25c
Night Classes
Mondays and Thursdays
7:30 to 10 p.m. AU year
\
They do not interfere with your regular
employment1, but they will qualify you for
advancement and a bigger position.
Five hours a week cannot be spent to
better advantage.
It is an opportunity which has increased
the earning powers of hundreds of young people.
Every subject essential to modern business
is taught and with the same thoroughness that
has always characterized our Day Classes.
You can enroll at any time but a commence-
ment with the beginning of the Fall session will
prove very helpful to you.
Our registering office is open from 8 a.m.
to 10 p.m. daily.
If you cannot conveniently come to see us
one of our educa^ional advisers will be pleased
to call upon you if you will ’Phone 37 161.
The Dominion Business College
The Mall
alio Winnlpeg
St. Jamei
Elmwood