Lögberg - 17.12.1931, Page 3

Lögberg - 17.12.1931, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. DESEMBER 1931 Bls. 3. 1 meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf- sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. Hockey-leikar Fálkarnip höfðu sinn fyrsta hockey leik ^.IVesley skautahringn- um á mánudagskveldið þ. 9. sept. og var fyrsti leikurinn milli Can- ucks o!g Víkinga, og var sókn og vörn hörð á báðar hliðar, og fóru leikar svo, að þeir skildu jafnir; það var skotið tveimur í höfn hjá hvorum. *A. Jóhannesson skaut einum í höfn fyrir Víkinga og Carl Hallson einu sinni. Fyrir Can- ucks skutu í höfn Ingi Jóhannes- son og W. Bjarnason. og endaði leikurinn þannig, að þeir voru jafn- ir, og er ekki hægt að segja ann- að en að þeir léki allir vel, þegar þess er gætt, að þetta var fyrsti leikurinn, og eftir honum að dæma þá er gott útlit fyrir, að það verði margir harðir leikir á milli þessara fjögra hockey flokka, sem við höfum, því þeir sem vinna að lokum, fá þann heiður að verja bikarinn, sem Þjóðræknisfélagið 'gaf í fyrra til árlegrar samkepni á meðal íslenzkra hockey félaga, og er vonandi að bæði Selkirk, Gimli, Árborg og Riverton og fleiri bæir búi sig vel undir að taka þátt í samkepninni um bikarinn og sýni þar með Þjóðræknisfélaginu, að þeir meti þá höfðinglegu fejöf, scm gefin var til þess að efla hockey-íþrótt hér á meðal landa og ætti að vera góð hvatning til þess að koma upp eins góðum hockey-flokk eins og gömlu Fálk- arnir voru á sinni tíð. Við höfum mennina til þess, það vantar því ekkert nema framkvæmd og vilja. og ætti þessi bikar að verða til þess að vekja un!gu piltana upp og hina eldri líka til þess að hvetja þá og styrkja þá, bæði með góðum ráðum og hjálpa þeim dá- lítið peningalega líka, ef þörf gerist. Þeir sem léku fyrir Canucks voru þessir: J. S. Bjarnason hafn- vörður, A. Johnson, Ingi Jóhann- esson, W. Bjarnason, C. Munroe, R. Jóhannesson, F. Árnason og G. Stephenson. Fyrir Víkinga voru þessir: Ernie Reid hafnvörður, Harald Bailey, H. Gíslason, A. Árnason, A. Jó- hannesson og C. Davidson. í seinni leiknum lenti þeim sam- an Ran!gers og Natives, og var sá aðgangur furðu harður, og urðu Rangers að lúta þar i lægra haldi framan af, en svo vöknuðu þeir við ófarirnar, sáu að við svo búið mátti ekki standa, heldur yrði að berjast upp á líf og dauða. Var þá hafin bæði sókn og vörn á báð- ar hliðar; hafði þá hafnvörður á Natives hlið, Albert Dolloway, nóg að gera að stöðva þá skothríð er á hann dundi síðari hluta leiks- ins, og gerði hann það vel, svo að leikurinn endaði með því að hvor flokkur hafði skotið fjórum sinn- um í höfn og skildu því jafnir, hvorugur gat á öðrum unnið og vantaði þó ekki viljann til þess. Þeir sem skutu í höfn fyrir Rang- ers voru þessir: Carl Johnson, Harry Edgington, H. Pálmason og Matt. Jóhannesson. Fyrir Natives skutu þeir í höfn: Árni Jóhannesson, W. igmundson tvisvar og S. Anderson. Þeir sem léku fyrir Natives voru þessir: Albert Dolloway hafn- vörður, 0. Johnson, Jí. Thorstein- son, Á. Jóhannesson og S. Ander- son, En fyrir Rangers þeir: K. Pálson hafnvörður, H. Bjarnason, C. Johnsonf, Matt. Jóhannesson, H. Edginton, Palmateer og W. Jó- hannesson. Frá flokki Fálkanna verður sagt seinna; þeir eru í St. James Intermadiate deild, og byrja þeir að leika þar í næstu viku. Það eru sex flokkar í þeirri deild og erum við að reyna okkar bezta til að keppa við þá, og við vonumst eftir að verða nógu hraustir til að vinna þá. Við gerum okkar bezta, og það getur enginn betur gert. Pete Sigurdson. SILFURBRÚÐKAUP. Silfurbrúðkaup áttu þau hjón, Kristlaugur og Margrét Anderson, Ánborg, Man., hinn 21. nóvember síðastl., og var þess minst með samsæti, sem þeim þá var haldið að 1089 Sherburn Str. 'hér í bæn- urn, en þar býr Mr. H. Anderson, sem er bróðir silfurbrúðgumans. Gestinir voru um fimtíu og meiri hluti þeirra gamlir vinir frá Ár- borg. Mr. I. Ingaldson, fylkis þingmaður, stýrði samsætinu, en séra N. S. Thorlaksson guðrækn- isathöfninni, sem um hönd var höfð. — Samkvæmið var hið skemtilegasta. Nokkrar stuttar ræður voru fluttar. Mrs. C. Jó- hannesson skemti með einsöng og Lárus Björnson lék á slaghörpu og margir söngðvgr voru sungnir sem allir usngu. Kvæði var lesið, sem S. B. Beendictsson hafði ort, og fylgir það hér með. T I L Kristlaugs og Margrétar Andeson á 25 ára silfurbrúðkaupsdegi þeira, 21. nóv. 1931, í W.peg. Hér er glatt í glæstum sal, Gleðihljómur og vina tal, Menn að gömlum, góðum sið Gleðjast drykkjarborðið við. Fornir vinir finnast hér, Fjölmargt þeim á góma ber, Léttur hlátur og hlýlegt mál Hleypir lífi í glaða sál. Hlaðið borð með brynniveig— Betri lýða minnis-teyg — Minnir ,þeirra litla lýð Á liðinna alda kvöldmáltíð. Eftir fjórðungs aldar skéið, Erfiðleikans grýttu leið — Förugestir stutta stund Stanza út þenna gleðifund. Kristlau'gur er kominn hér, Kvikur og ern, sem betur fer, Hefir lengi’ að hetju sið Háð sitt stríð við mannlífið. Hefir margt að minnast á, Margt hann tröll á vegum sá, Erfiðleikans upp um fjöll, Erfiðleikans kyngi-tröll. Sinn úr skeiðum skjóma dró, Skildi beitti, lagði og hjó. Margan haus af herðum skar, Heilar ruddi fylkingar. Oft í dimmum darrar byl Dólgum tímans gerði skil, Alblóðugur til axla hann Orustuna tíðum vann. Er mest var hætta og minst um grið, Margrét honum stóð við hlið, Heillagyðja hverja stund, Hans að græða sára und. Ástin er betri hverjum hjör, Hún er lífsins sigurför, Einmana sig enginn fann, Ef ástargyðjan blessar hann. S. B. Benedictsson. A Thorough School! The “Success” is Canada’s Largest Private Commercial College, and the finest and best equipped business train- ing institution in Western Canada. It conducts Day and Evening Classes throughout the year, employs a large staff of expert teachers, and provides sufficient individual instruction to per- mit every student to progress according to his capacity for study. In twc'iit v-oiie yonrs, sinco tho founding of the “Suocoss” Businoss Coiloge of WinnipeK in 1909, npproximately 2500 loolandic students have onrollod ln this CoIleRe. Tlic dooidcd prcrerence for “Suocess” traininR is sÍRnifiennt, bocnuse Icelandors have a keen sense of oducational values, and ench yoar the number of ottr Icelandic students shotvs an increase. Day and Evening Classes Open all the Year The SUCCESS BUSINESS COLLEGE, Ltd. PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET- PHONE 25 843 Af jörðu ert þú kominn EFTIR C L E V E S K 1 N K E A D. “Þér hafið áreiðanlega mikið ímyndunar- afl,” sagði hann. Honum féll framúrskarandi vel það sem hún sagði. “Við skulum koma og getjast niður. ” Mann leiddi hana með sér að legubekknum, sem stóð þar við einn vegg- inn og þau settust þar. Hún sýndi enga mót- spyrnu. “Eg er ekki að slá yður neina gullhamra,” sagði hún þegar þau voru sezt þarna livort hjá öðru. “Eg veit það gierði ekkert gagn. Eg er bara að reyna a!ð gera yður skiljanlegt, mvers vegna mér getur litist vel á mann eins og yður, þótt eg- viti að honum þyki ekkert til mín koma. En eg skil það varla sjálf. Það er kannske vegna þess, að eg veit hve öllum þykir lítið til mín koma, en mikið til yðar koma, í þessum bæ. Það er líka kannske vegna þess, livað þér eruð mannslegur og fallegur og stór og sterkur. Eitt þykir mér undarlegt. Þér, svona stór og sterkur, sem ekki þurfið neinnar hjálpar við, hafið margt fólk, sem lítur eftir yður og gætir yðar á allan hátt, og það er margt annað, sem hjálpar til þess, þar á meðal þetta fallega og þægilega heimili. Eg hefi aldrei komið inn í svona heimili fyrri. Nú skil eg betur en áður, hvað fólk á við, þegar það er að tala um, að heimilið taki öllum öðr- um stöðum fram.” Hann tók ekki nákvæmlega eftir því, sem hún var að segja. Iívernig gat hann gert það, með þetta andlit, fallegra en nokkru sinni fyr í hálfdimmunni, rétt við hliðina á honum. Hún hafði verið t’jóðlátleg, næstum raunaleg. og svipurinn hafði Isamsvarað liennar Iblíðu og fögru rödd. Nú ,tók hann eftir því, að bæði svipurinn og röddin varð harðari en áður. “Hvar lialdið þér eg hafi verið í nótt sem leið?” “Eg veit það ekki. Hvar voruð þér?” “í tugthúsinu. ” “1 tugthúsinu! Hvernig komust þér þang- að ? ” “Það er nú liægðarleikur, þegar maður veit hvernig maður á að fara að því. Þekkið þér nokkuð Benedrs danssalinn?” “Já, eg þekki hann vel. Lögreglan kom þangað í gærkveldi. Eg var á leiðinni þangað með nokkrum piltum, þegar eg frétti, að lög- regluþjónamir væru þar. Mér þótti meir en lítið vænt um, að eg var ekki kominn þangað áður.” “Það hefði ekki gert yður neitt til. Þeir létu alla karlmennina fara. eir gera það æf- inlega. ,En þeir komu með stóran vagn og ráku okkur stúlkurnar allar inn í hann og fóru með okkur til lögreglustöðvanna, og þar vorum við lokaðar inni. Eg var að syngja þama í dans- salnum. Þetta var nærri búið að gera alveg út af við mig, eg varð svo hrædd. Eg gat ekki sofnað alla nóttina, ekki diir, og þegar eg sat þarna á fletinu, skein tunglið inn um glugg- ann. Eg sá rottu koma inn á gólfið og hún staðnæmdist í tungisbirtunni og horfði á mig með þessum einkennilegu augum, sem eru eins og smáperlur, og hún hristi kampana og mér fanst sem hún vildi segja: “Yelkomin á sorp- hauginn, félagi, því þar erum við nú háðar. Við eram úrskast, ekkert enma úrkast. Okkur hefir báðum verið sópað út með öðru rusli.” Og í morgun var eg látin koma fyrir lögreglu- réttinn og dómarinn sagði mér, að eg mætti fara, því þetta væri í fyrsta sinn, sem eg kæmi þar. Hann réði mér til að halda mér frá illum félagsskap. Eg vissi ekki hvað eg átti að gera, en eg var í allan dag að hugsa um það, sem dómarinn sagði, að eg ætti að halda mig frá vondum félagsskap. Svo sá eg í blaðinu, að hér vantaði vinnukonu, einmitt hér. Og eg kom hingað rakleiðis. Mér féll engan veginn vel í geð að verða vinnukona, en eg varð að breyta til og eg varð að forðast vondan félags- skap og eg vissi að hér var gott fólk, Fuller- ton fjölskyldan. Og nú er eg hér í góðum fé- lagsskap, á einu af allra beztu heimilum bæj- arins, að því er fólk segir.” Hún leit til hans afar kuldalega, og honum varð það fyrir að líta undan. Rétt í svipinn, vissi hann ekki hvað liann átti að gera. Hann, sem vanalega var svo öruggur, komst nú í bobba, og það bara fyrir augnaráði vinnukonu mðður hans. Hann varð að taka á því sem hann liafði til, til að ná sér aftur. “Ef þér hugsið svona, þá fyllið þér huga yðar með gremju og óánægju. Guð hefir gert okkur öll, eins og við emm.” Hann sagði þetta svo líkt, eins og móðir hans hafði sagt það, að Ellen gat ekki varist hlátri. “Fólki, ejns og þið eruð, er gjarnt til að kenna guði um marga hluti.” “Hvað emð þér að segja?” “Eg kannast við, að eg veit ekki hverjum eða hverju er um að kenna. En eg veit það, að þegar eg kom hér í kveld, til að vinna fyrir mér með heiðarlegu móti og til áð forðast all- an vondan félagsskap, þá var mér sýnd alveg eins miki lóvirðing, eins og þó eg væri óheið arleg stúlka. Hvað það snertir, að vera gott fólk eðas læmt fólk, þá er miklu meira updir því komið, hvernig við erum sett í lífinu, held- ur en hvernig við )' raun og vem erum. Eg reyndi að komast á réttan veg, en eg se ekki Ibetur, en mér sé þess algerlega varnað af öðrum.” Hún hallaði sér áfrarn, liafði olnbogana á hnjánum og studdi hönd undir kinn og horfði í eldinn, sem var að deyja út. “Eg és ekki til hvers er að vera nokkuð að P stríða við þetta.” Hugh skildi, að þetta var alger uppgjöf. Hann dró hana að sér og þau kystust fast og _ elngi. Hún lagði báðar hendurnar um háls honum og hallaði höfðinu að öxl hans. X. KAPITULI. Bjartan og fagran októbermorgun, sat Filson dómari í skrifstofu sinni og hafði heilan bunka af la!gabókum fyrir framan sig. Hann sýndist sokk- inn ofan í það, sem hann var að gera, en þó leit hann út í gluggann við og við og mátti af því ráða, að hann langaði út í góða veðrið. Við og við brosti hann ánægjulega um leið og hann skrifaði eitthvað, sem vafalaust hafði ein- hverja þýðingu í því máli, sem hann nú var að fást við, og jafnframt saug hann enn fastar vindilinn, sem hann hafði milli varanna. Eftir svo sem hálfan klukkutíma, lagði hann frá sér bækurnar og það var auðséð, að honum þótti _ vænt um að vera laus við þær, um stund að minsta kosti. Hann stóð upp og fór að ganga um gólf, með dálitla skrifbók í hendinni. Hann var eitthvað að tauta fyrir munni sér og sló út annari hendinni við og við, og það var rétt eins og hann hugsaði sér, að hann væri að tala við kviðdóminn. Þegar þetta hafði gengið um stund, kom hann eins og af hendingu auga á leðurpoka, sem var þar í einu __ horninu. Hann hætti alt í einu að tala við sjálfan sig. Hann brosti, næstum barnalega, en steytti hnef- ann að lagabókunum á borðinu og fleygði síðan skrifbókinni ofan á þær. Tók síðan eina kúluna í pokanum og fór að velta henni í lófa sinum. Hann var svo niðursokkinn í þetta, að hann gætti þess ekki, að hurðin var opnuð. “Mr. Fullerton er kominn,” sagði skrifstofu- stúlkan. Hún gat ekki varist því að brosa, þegar hún sá að dómarinn var að reyna að dylja hnöttinn fyrir aftan bakið. “Gerið þér svo vel að vísa honum hingað inn, Miss Warren.” “Halló, Dick,” sagði Filson og hélt um knöttinn. “í dag skal e!g sýna þér í tvo heimana. Eg er van- L ur við að vinna, en þú—” Hann þagnaði alt í einu, þegar hann sá hve vin- ur hans var alvarlegur og þungbúinn. “Heyrðu, Dick, hvað er að?” “Hvað er að!” hafði Fujlerton upp eftir hon- um. “Það er viðvíkjandi drengnum mínum, Hugh.” “Hvað gengur að honum?” spurði Filson og - varð nú varð nú líka alvarlegur. “Hann er flæktur í eitthvert kvennamál.” “Einmitt það. Eg held þú ætýir ekki að vera of [ harður við dren!ginn, Dick. Þetta hefir margan góðan manninn hent. Þú flaskaðir á þessu, þegar Iþú varst ungur, og eg líka.” “Harður við hann! Auðvitað ekki! En þú verður að hjálpa okkur út úr þessu, Sam.” “Auðvitað reyni eg það, Dick. En er þetta nokk- . uð alvarlegt.” “Það er stúlka, sem segir að hann sé faðir! barns, sem hún hefir eignast.” “Einmitt það. Er nokkuð hæft í því?” “Hæft í því? Vitaskuld ekki! Stúlkan var bara vinnukona hjá okkur.” Filson sneri sér undan og leit út um gluggann til að dylja brosið, sem læddist fram á varir hans. * “E'g er hræddur um, að náttúran þekki ekki þessar merkjalínur milli fólksins, sem þú hefir í huga. Við eru öll af jörðu komin, gerð af leir! jarðar.” “Já,” sagði Fullerton dræmt, en skeytti þessuml sannleika ekkert, eins og hann kæmi ekki málinu við. “Þetta er bara hrekkjabragð, ekkert annað. Bara tilbúningur, af því við höfum peninga. Get- urðu ekki séð það?” “Heimtar hún peninga?” “Eg hefi ekki séð hana, og Hugh ekki heldur. Hann er rétt nýkominn heim, utanlands frá. Hún hefir verið að reyna, að ná fundi hans, en eg vil ekki láta hana ónáða hann. Það 'getur ekki gengið. Hugh er ágætur piltur, og og rétt nýútskrifaður af háskólanum, með lofsamlegum vitnisburði. Hann eignaðist þar líka marga vini, auðugt fólk, sem á mikið undir sér, og nú þegar hann kemur heim og á að fara að ráða yfir eignunum, þá kemur þessi stelpuvargur til að ásækja hann og kasta skugga á fjölskylduna. E'g skal segja þér, Sam, að það ættu að vera lpg í landinu, sem vernduðu menn af góðum ætttum frá því, að verða fyrir slíkri óvirð- ingu.” Filson gat ekki að því gert, að brosa dálítið að þessari tillögu. “Það ættu kannske líka að vera önnur lög, sem vernduðu stúlkurnar, þó þær kunni sumar að vera gallagripir, fyrir sonum heldrimann- anna. Þetta er ekki gott, en hvað sem er um það, þá verður þú, hvað sem öllu öðru líður, að stilla þi!g, og segja mér söguna eins og hún, er; mér ríður á að vita allan sannleikann. Hérna er vindill, gerðu svo vel og fáðu þér sæti.” “Jæja þá,” sagði Fullerton og tugði vindilinn í ákafa, án þess að kveikja í honum. “Þegar Hugh var heima um jólin í vetur, kom þessi stúlka til Mrs. Fullerton til að vinna hjá henni. Hún var ung o!g falleg — að sagt er. Eg man auðvitað ekk- ert eftir henni, og eg efast um að Hugh mundi þekkja hana, þó hann sæi hana aftur. Það hefir líklega verið gamla sagan. Ungir og hraustir piltar eru oft ekki eins varkárir og þeir ættu að vera. Hann hefir líklega fallið í gildruna.” “Hu!gh viðurkennir það?” “Ó, já. En þú mátt ekki kasta þungum steini á drenginn. Undir kringumstæðunum var þetta ekki nema eðlilegt, og eins og við mátti búast.” ! “Já, og undir kringumstæðunum var það ekki| nema alveg eðlilegt, að stúlkan yrði móðir. Þú! skilur það, Dick,” bætti Filson við, þegar hann sá að vinur hans félst alls ekki á hans röksemdir, “við verðum að skoða þetta mál frá öllum hliðum. En stúlkan, hvað fer hún fram á?” PROFESSONAL CARDS DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tlmar: 2—3 Heimili 776 VICTOR ST. Phone: 27 122 Winnipeg, Manitoba DR. O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tímar: 2—3 Heimili: 764 VICTOR ST. Phone: 27 686 Winnipeg, Manitoba DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts BÍdg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tlmar: 3—6 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Stundar augna, eyrna, nef og kverka Bjúkdóma.—Er aS hitta kl. 10—12 f. h. og 2—5 e. h. Heimili: 373 RIVER AVE. Taislmi: 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham and Kennedy Phone: 21 213—21144 Heimili: 403 675 Winnipeg, Man. DR. A. BLONDAL 602 Medical Arts Building Stundar sérstaklega kvenna og barna sjúkdéma. Er aö hitta frá kl. 10—12 f. h. og 3—5 e. h. Office Phone: 22 296 Heimili: 806 VICTOR ST. Slmi: 28 180 Dr. S. J. JOHANNESSON stundar lœkningar og yfirsetur Til viötals kl. 11 f. h. til 4 e. h. og frá kl. 6—8 að kveldinu 532 8HERBURN ST. SÍMI: 30 877 Drs. H. R. & H. W. Tweed Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE: 26 546 WINNIPEG Dr. A.B. INGIMUNDSON Tannlœknir 602 MEDICAL, ARTS BLDG. Simi: 28 840 Heimilis: 46 054 DR. A. V. JOHNSON Islenzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúsinu Slmi: 23 742 Heimilis: 33 328 A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allar útbúnaöur sá. beiU Ennfremur selur hann aliskonar mlxmlararöa og legsteina. Skrlfstofu talslmi: 86 607 Heimilis taislmi: 58 303 H. A. BERGMAN, K.C. Islenekur lögfrœSingur Skrlfstofa: Room 811 McArthur Building, Fortage Ave. P. O. Box 1656 PHONES: 26 849 og 26 840 W. J. LÍNDAL Og BJÖRN STEFÁNSSON islenzkir lögfrœOingar á ööru gölfi 325 MAIN STREET Talslmi: 24 963 Hafa einnig skrifstofur að Lundar og Gimli og eru þar aö hitta fyrsta miO- vikudag I hverjum mánuðl. J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœöingur Skrlfst.: 411 PARIS BLDG. Phone: 24 471 J. Ragnar Johnson B.A., LL.B., LL.M. (Harv.) islenzkur XögmaOur 910-911 Electric Railway Chambers. Winnipeg, Canada Slmi 23 082 Heima: 71 753 G. S. THORVALDSON BJl., LL.B. Lögfrœöingur Skrifstofa: 702 CONFEDERATON LIFE BUILDING Main St. gegnt City Hall Pbone: 24 587 E. G. Baldwinson, LL.B. Islenzkur lögfrceOingur 809 PARIS BLDG., WINNIPEG Residence Office Phone: 24 206 Phone: 89 991 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Lelgja hús. Út- vega peníngalAn og eldsábyrgö af öllu tagi. Phone: 26 349 A. C. JOHNSON 907 Confederation Life Bldg. WINNIPEG Annast um fasteignír manna. Tekur aö sér aö ávaxta sparlfé fðlks. Selur eldsábyrgö og blf- relða ábyrgöir. Skriflegum fyr- irspurnum svarað samstundls. Skrifstofus.: 24 263—Heimas.: 33 328 DR. C. H. VROMAN Tanntœknir 505 BOYD BLDG., WINNIPEG Phone: 24 171 G. W. MAGNUSSON Nuddlceknir 91 FURBY ST. Phone: 36 137 Viötata tlmi klukkan 8 til 9 aö morgninum Borgið Lögberg! “Hún hefir hvað eftir annað reynt að ná til Hugh. En e'g vil það ekki, eg vil ekki að hún hitti hann. Og nú hefir hún farið til lögmanns. Hann \ símaði mér rétt áðan og sagði mér, að ef eg ekki kæmi til sín í dag, þá tæki hann til sinna ráða. Eg vísaði honum náttúrlega til þín, og eg býst við hann komi hingað með stúlkuna eftir fáeinar mín- útur. Þú verður að komast að einhverjum samn- ingum við hann, Sam. Þú skilur það. Þetta má ekki komast út í almenning.” “Þú heldur, að hún heimti peninga?” "Hvað annað ætti hún svo sem að heimta?” “Hver er lögmaður mennar?” “Hvað heitir hann nú aftur? Yates, held eg að nafnið sé. Eg hefi aldrei fyr heyrt han3 getið.” “Eg þekki hann, ’ sagði Filson. “Þau þiggja peninga.’ KAUPIÐ ÁVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVE. EAST. - - WINNtPEG, MAN. Yrard Office: 6th Floor, Bank of Hamilton Chambers.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.