Lögberg - 14.07.1932, Síða 8
Bls. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1932.
RobiniHood
FI/ÓUR.
Þetta mjöl er fljótast og þœgi-
legast að vinna úr, og er drýgra
Ur bœnum
*—■—-----------—■—
Heklufundur í kvöld, fimtudag.
____________________-—¥
og grendinni
—+
Mr. H. J. Stephenson, kom til
borgarinnar frá New York á
Til leigu rúmgott
753 McGee St.
herbergi að
H. Gíslason.
mánudaginn.
Guðsþjónusta boðast í kirkju
Konkordíasafnaðar sunnud. þann
24. júlí, og sunnudagsskóli eða
kirkjuþingsfréttir að lokinni guðs-
þjónustu. S. S. C.
Séra Jóhann Bjarnason býst við
að messa í kirkju Mikleyjarsafn-
aðar sunnudaginn þ. 24. júlí, kl. 2
e. h. Fólk í Mikley er beðið að
láta fregn þessa berast til allra,
er til geta náð, og að fjölmenna
Við messuna.
Stúd. theok Bjarni A. Bjarna-
son messar væntanlega næsta
sunnudag, þ. 17. júlí, kl. 2 e. h., í
kirkju Lúterssafnaðar að Otto, en
kl. 7.30 e. h. í kirkju Lundarsafn-
aðar. Mælst er til að fólk fjöl-
menni við messurnar.
íslendingar, sem koma til borg-
arinnar og sem heldur kynnu að
vilja gista hjá löndum sínum en á
einhverju gistihúsinu, geta feng-
ið ágæta gistingu, herbergi og
máltíðir, ef þeir óska, hjá Mrs. G.
P. Thordarson, 866 Winnipeg
Ave., Winnipelg. Sími 22 790.
Sunnudaginn 17. júlí verða
messur í prestakalli séra H. Sig-
mar sem fylgir: í Péturskirkju kl.
11 f. h. og að Mountain kl. 8 að
kveldi. Allir velkomnir.
Samdægurs (17. júlí) kl. 2 e. h.
mætir nefnda þeirra manna, er
stóð fyrir júbílhátíðinni 1 N. Dak.
1928 og síðar gaf út Minningarrit-
ið. Er búist við að nú verði sú
nefnd uppleyst. Fundurinn verð-
ur í Fjallakirkju. Verður fundur-
inn settur með stuttri guðsþjón-
ustu af forseta nefndarinnar.
Mrs. Theresse Johndahl, dóttir
G. Goodmans úrsmiðs í Hallock,
Minn., hefir nýlega verið skipuð
til að gegna póstafgreiðslustörf-
um í Hallock. Er skipunarbréf
hennar dagsett í Washington, D.
C., og undirskrifað af Hoover for-
seta og Brown póstmálaráðherra.
hinn 2. júlí, og er hún því vænt-
anlega nú um það leyti að taka
við þessu embætti.
Gefin saman í hjónaband í
Yorkton, Sask., voru í síðustu viku
Peter Peterson frá Arnes, Man.,
og Vigdís, dóttir Mrs. G. J.
Magnusson í Winnipeg. Hjóna-
vígsluna framkvæmdi Rev. Dr. R'.
J. McDonald. Ungu hjónin tóku
sér ferð á hendur í bíl um suð-
urhluta Saskatchewan fylkis, en
framtíðar heimili þeirra verður
að Arnes, Man.
Messur í Gimli prestakalli eru
fyrirhugaðar íþannig sunnudag-
inn þ. 17. júlí: messað verður að
morgni til að Betel, kl. 9.30, og í
kirkju Gimli safnaðar kl. 7 að
kvöldi. Séra Jóhann Bjarnason
prédikar. Mælst er til að fólk
f jölmenni.
Séra S. O. Thorlaksson, frú
hans og fjölskylda, lögðu af stað
frá Winnipeg á þriðjudaginn í
þessari viku. Fóru þau fyrst til
Grand Forks, þar sem nú eru
stödd foreldri séra Octavíusar.
Þaðan fara þau til Minneota og
verða þar um næstu helgi, en fara
svo til Seattle, Wash. Verða þau
þar nokkra daga, en sigla þaðan
undir mánaðamótin næstu áleið-
is til Japan. Þau Rev. og Mrs.
Thorlaksson gera ekki ráð fyrir,
að koma aftur til þessa lands
næstu sjö árin. Hjónum þessum,
og börnum þeirra, fylgja hugheil-
ar hamingjuóskir fjölda vina.
íslenzkir nemendur við Daniel
Mclntyre Collegiate Institute
færðir úr 10. í 11. bekk:
1. A standing—
Gestur Brandson.
Norma Benson,
Ásta Elggertsson.
Grace Stanley (% íslenzk).
1 B standing—
Herman Eyford,
Vera Jóhannesson,
Laura Einarson.
Aurora Johnson,
Amy Eymundson,
Joan Hurdal.
Hörður Einarson.
Herbert Oddleifson.
Thelma Hallson,
Thelma Thorvaldson.
Pass—
May Gunnlaugson,
Hugrún Jonasson,
Frank Dalman,
Bill. Halldorson,
Margaret Christie,
Lillian Jonasson.
Isabel Sölvason,
Solveig Bjarnason.
Magnús Jónsson alþingismaður
tók sér far með Lyru í gærkveldi
til útlanda. Ætlar hann að sitja
fund norrænna þingmanna, og
verður sá fundur haldinn í Osló
bráðlega. Ásgeir Ásgeirsson for-
sætisráðherra mun einnig ætla að
sitja fund þenna. — Mbl. 17. júní.
r
igiuiirdssoiii=Tr horvaldsoini
Compaimy Limited
GENERAL MERCHANTS
Útsölumenn fyrir Imperial Oil Limited
Royalite Coal Oil, Premier Gasoline
Tractor and Lubricating Oils
ARBORG
Phone i
RIVERTON
Phone i
Manitoba, Canada.
HNAUSA
Phone 51, Ring 14
Dr. A. V. Johnson tannlæknir,
verður í Riverton á þriðjudaginn,
hinn 19. júlí.
Sameinaða kvenfélags
þingið
Islendingadagur
á Hnausum
íslendingadagur verður haldinn
að Hanusum, mánudaginn 1.
ágúst, í skemtigarðinum “Iðavöll-
um” og má búast við eins góðum
viðtökum, eða berti, en undan-
farið.
Þetta ársmót íslendinga í Nýja
íslandi er orðið svo alment viður-
kent og vel þokkað, að nálega all-
ir, bæði ungir og gamlir í bygð-
unum, kappkosta að komast
þangað.
Ein nýjung, fyrir næring and-
ans, verður að hlusta á Guðmund
dómara Grímsson, sem íslendingar
þekkja af orðspori, en sem fæstir
hér hafa séð. Flytur hann minni
ættjarðarinnar.
Aðrir ágætir ræðumenn og skáld
eru á hinni margbreyttu skemti-
skrá.
Þar verður enn fremur stúlkna-
flokkur í íslenzkum búningum, og
drengja flokkur frá Riverton, “Boy
Scouts”, sýna ýmsar æfingar.
Vér bjóðum alla íslendinga vel-
komna, og vonumst til að geta
gefið þeim eftirminnilegan dag. —
Skemtiskrá auglýst síðar.
Áttunda þing hins Sameinaða
kvenfélags var haldið • í Winni-
peg, í kirkju Fyrsta lút. safnað-
ar, 5. og 6. júlí. Erindsrekar frá
mörgum kvenfélögum mættu á
þinginu.
Forseti félagsins, Mrs. F. John-
son, setti þingið, o!g Mrs. H. 01-
son, forseti kvenfélag Fyrsta lút.
safnaðar, bauð alla erindsreka
og gesti velkomna.
Þingið var sett kl. 2 e. h. á
þriðjudaginn. Var þá tekið á
móti skýrslum embættiskvenna,
kvenfélaganna og erindsreka fé-
lagsins frá “The Manitoba League
Against Alcoholism”. — Skýrsl-
urnar sýndu það glögglelga, að
þrátt fyrir ýmsa erfiðleika, hef-
ir starfið gengið vel á þessu síð-
asta ári og að áhugi fyrir mál-
unum á dagskrá þingsins, er vel
vakandi. — Einnig barst félaginu
bréf frá Rev. K. K. Olafson, for-
seta kirkjuféla'gsins.
Á þriðjudagskveldið flutti Mrs.
E. H. Fáfnis, Glenboro, Man., er-
indi: “Story-telling to young
children”. Hefir Mrs. Fáfnis
gert kenslu yngri barna að sér-
fræðigrein og er hún því vel til
| fallin að tala um þetta efni.
í nafni nefndarinnar,
G. O. Einarsson,
ritari.
íslendingadagurinn
í blöðunum síðast liðna viku
var ekki getið um það, á hvaða
tíma að morgninum f<ykið þarf^
að vera komið á biðstöðvarnar
m’eð fram Ellice og Sargent Ave.
Nú er búið að ákveða það, að kl. j
7.15 verður “bus” komið að Sher-^
brook eftir Ellice, og verða svo j
að eins nokkrar mínútur þar til
það stanzar á næstu stöð, og svo ^
áfram, því hrjngferðin tekur að-j
eins 20 mínútur. Einnig fer “bus”|
vestur William Ave., frá Isabel!
Str. kl. 7.15.—Þetta er fólk beðJ
ið að athuga, svo það verði komið
í tíma á hinar mismunandi
stöðvar.
Gert hefir verið ráð fyrir, að
fólk geti haft meðferðis matar-
körfur og smá-bögla, ef það vill.
Frú Olson, kona Dr. Baldur H.
Olson, hin góðkunna söngkona
hér í borg, hefir lofast til að koma
fram sem Fjallkona að deginum.
Nokkur breyting verður á þeirri
athöfn frá því, sem verið hefir
undanfarin ár, að því leyti, að
nú mælir Fjallkonan fram ljóð til
gesta sinna og syngur þau svo á
eftir ásamt nokkrum fleirum ís-
lenzkum lö!gum, sem öllum íslend-
ingum eru kunn og kær; verður
hún aðstoðuð af hljóðfærasveit
héðan úr Winnipeg.
;Skrúðganga verður hafin á
Gimli úti í listigarði bæjarins, þáj Henrickson.
er prógramið hefst kl 2 e. h., með
eitt af hinum stærstu ‘bus’.um
Winnipeg Electric fél. skraut-
búnu, hlaðið söngfólki, í broddi
fylkingar. Það verður reynt að
gera það tilkomumikla athöfn.
Byígður verður, að þessu sinni,
sérstakur pallur í listigarðinum
fyrir Fjallkonuna og lið hennar.
Verður sá pallur skreyttur með
hinum ljómandi fögru tjöldum, er
listamaðurinn Friðrik Swanson
hefir málað af Almannagjá á ís-
landi. Gefst þar hinum yngri ís-
lendingum, sem aldrei hafa til ís-
lands komið, kostur á að sjá hina
fögru og margumtöluðu Almanna-
gjá, þar sem þúsund ára minning-
arhátíð Alþingis var haldin árið
1930.
Fólk hér í bæ sem ætlar til Gimli j
með ‘bus’-unum þann 1. á!gúst, er
beðið að kaupa farseðla sína sem
fyrst, svo nefndin geti vitað hvað
margt fer.
Auk þeirra, sem áður hefir ver-
ið auglýst að hefðu farseðla til
sölu, hefir Mr. Ásbjörn Eggerts-
son, að 614 Toronto Str., útsölu á
þeim. •
G. P. Magnússon,
ritari.
Einnig flutti Mrs. A. Buhr,
Winnipeg, erindi: “Áhrif krist-
innar konu og móður á mannfé-
lagið.”. Hún benti á, með mjög
ljúfum orðum, hvernig kristin
kona !getur beitt áhrifum sínum,
á bæði heimili sitt og þann part
mannfélagsins, er hún umgengst.
Prógram var sem fylgir:
Piano Solo: Miss Dora Gutt-
I ormsson, Lundar, Man.
Vocal Duet: Mrs. K. Jóhannes-
! son og Mrs. Lincoln Johnson.
! Vocal Solo: Mrs. K. Jóhannesson.
i Vocal Duet: Mrs. Lincoln John-
! son og Mrs. K. Jóhannesson.
| Mrs. Frank Fredrickson spilaði
undir við sönginn.
Séra E. H. Fáfnis ávarpaði
þingið með nokkrum orðum. Lét
hann í Ijós ánægju sína yfir
starfi Sam. kvenfélagsins, sér-
staklega fyrir það, sem verið er
að vinna að kristindómsfræðslu
utígmenna. Hann óskaði félag-
inu til lukku með þetta nýbyrj-
aða þing og að félagið mætti eiga
mikla og góða framtíð. Hann tók
sérstaklega til þess, hve mikið
bæri á vinarhug og kærleika hér
hver til annara, þrátt fyrir það,
að margar eiga hlut að máli.
“Til þess eru þing, að við sækjum
þangað skilning á okkar vanda-
málum og kraft til að framkvæma,
og þrótt og vilja til að starfa
enn betur en áður að þeim málum,
sem oss eru kærust.”
Á miðvikudaginn var sunnu-
dagsskólamálið, eða málið um
kristilega uppfræðslu ungmenna,
innleitt til umræðu, af Mrs. H. G.
Skýrði hún frá þessu
starfi frá byrjun og lagði fram
skýrslu yfir kostnað þann, er þetta
fyrirtæki hefir í för með sér. —
Vakti það aðdáun og þakklæti
þingsins til þeirra ungu kvenna,
er hafa svo góðfúslega tekið þetta
að sér sumar eftir sumar endur-
gjaldslaust. — Var þinginu tilkynt,
að Miss 'Ellen Frederickson og
Mi.ss Thora Oliver, Baldur, Man.,
hafi nú þegar boðist til þess að
verja nokkru af sínum frítíma í
sumar til þessa starfa, o!g munu
þær leggja á stað eftir tvær vikur.
Nefnd sú, er kosin var af Fram-
kv.nefnd til þess að annast sunnu-
dagsskólastarfið, hefir sent S. S.
blöð og bækur þetta ár til þeirra
stöðva er kensla var hafin á fyrir
þremur árum, því kennarar við
daglegu skólana þar hafa haldið á-
fram þessu verki. — Vottaði þing-
ið þakklæti til þessara kennara
fyrir þeirra góða starf.
í umræðum um þessa skýrslu
kom ljóslega fram, að erindsrek-
um allra kvenfél. er þetta sérstak-
lega mikið áhugamál. Var því
ákveðið að halda þessu verki á-
fram og útbreiða það eftir því
sem kraftar leyfa.
Mrs. H. Olson innleiddi umræð-
ur “Heimilis guðsþjónustur”, og
tóku svo mar!gar konur þátt í
þeim. Las hún svo grein úr maí-
númeri Sameingarinnar, er skýrir
frá, að félagið, “The Family Altar
League of America” er reiðubúið
að leggja til blöð, er færa bend-
ingar um þetta mál.
Var svo Bindindismálið tekið
til umræðu, og tóku margir er-
indsrekanna þátt í þeim. Er þetta
eitt af okkar stóru siðferðis-
málum.
Mrs. S. Guttormsson flutti þá er-
indi um “Börnin og náttúran”
(The Child and Nature Study),
o!g sýndi fram á hve hugmyndir
barnsins um náttúruna, ef þeim
er leiðbeint í rétta átt, geta hjálp-
að áfram heilbrigðum þroska.
Mrs. Hope söng tvö lög og Mrs.
H. Helgason skemti með píanó-
spili.
Var svo ekið á skemtivagni með
alla erindsreka og gesti þingsins
víðsvegar um til að sýna þeim
bæinn og þeim að því loknu veitt-
ur kveldverður í fundarsal kirkj-
unnar.
Hið fyrsta á skemtiskrá fund-
arins á miðvikpdagskveldið, var
erindi, “The Pioneer Woman”
flutt af Mrs. H. G. Henrickson.
Las hún svo kafla úr bókinni “The
Lantern in her hand”, eftir Ald-
ridge.
Trúboðar kirkjufélags vors.
sem eru nú rétt að leggja á stað
í þriðja sinn til Japan, voru stödd
á þinginu. Flutti Mrs. Thorlak-
son fyrirlestur, er hún nefndi:
“Myndir af Japán”. Sagði, að þó
að flest þar austur frá væri ólíkt
því sem við höfum vanist, þá væri
samt eitt, sem væri alveg eins:
þörfin á því að prédika og út-
breiða gleðiboðskap Jesú Krists
væri ómælanleg — eins og við
!gætum gert okkur grein fyrir:
þar sem um margar miljónir
sálna er að ræða.
Margarithe Thorlakson söng
japanská söngva.
Mrs. H. Helgason spilaði píanó
sóló, nokkur íslenzk lög, sem hafa
verið sett saman í eina heild af
Mr. George Boles. — Var þetta
indælt númer; einnig spilaði hún
þegar alþýðusöngvar voru sungn-
ir. — Miss Eyjólfsson spilaði tvær
píanó sólós. Mrs. S. C. Thor-
steinsson söng tvo söngva, en Miss
Elenor Henrickson spilaði fyrir
sön!ginn.
Allir fundir þingsins voru vel
sóttir; sýndi það áhugann fyrir
starfi félagsins. *— Fóru svo fram
kosningar embættiskvenna:
Forseti: Mrs. F. Johnson.
Vara-fors.: Mrs. R. Marteinsson
Skrifari: Mrs. B. S. Benson.
Varaskr.: Mrs. O. Stephensen.
Féh.: Mrs. H. G. Henrickson.
Varaféh.: Mrs. B. H. Bjarnason,
Langruth, Man.
í framkv.nefnd voru kosnar;
Mrs. S. Olafsson, Arborg.
Mrs. O. Anderson, Baldur.
Mrs. E. H. Fáfnis, Glenboro.
SIGURSÖNGVAR.
Svo heitir hin nýja söngbók,
sem Mr. G. P. Johnson hefir gef-
ið út. Mun það vera flestalt úr-
valsgóðir sálmar, vel við eigandi
alla ungmenna félags og heima-
trúboðs starfsemi. Allur frá-
gangur bókarinnar er hinn vpnd-
aðasti, og vonandi að allir góðir
íslendinngar veiti bókinni hinar
beztu viðtökur. Bókin inniheldur
102 sálma, prentaða á góðan bóka-
pappír. Verðið er að eins 50 cent.
Bókin sendist kaupanda að kostn-
aðarlausu hvert sem er í Canada
eða Bandaríkjunum. Utanáskrift
til útgefanda er: G. P. Johnson,
696 Victor St., Winnipeg, Man.
—Adv.
ítalska flugvélin brá sér í gær
suður í Skerjafjörð o!g settist þar.
Dvaldist hún þar nokkuð lengi og
munu flugmennirnir hafa verið
að athuga hvernig Skerjafjörður
og Fossvogur væri fallnir til þess
að hafa þar flugvélahöfn. — Mbl.
22. júní.
Heilbrigði
augna yðar!
SPURNING: Við hvern á
eg að ráðfæra mig viðvíkj-
andi augunum?
SVAR: pér skuluíS leita rá5a
hjá reglulegum augnlækni. Strax
þegar pér finnið eitthvað að aug-
unum, óg þér ættuð einnig að láta
augnlæknir skoða augu yðar
reglulega, með hæfilegu millibili,
hvort sem þér finnið að nokkuð
gangi að þeim eða ekki.
Gætið þess, að veikindi I aug-
unum er ekkert hégómamál, því
jafnvel smáveiklun, ef hún er
vanrækt, getur orðið þrálát og
hættuleg. Augnlæknirinn er fær
um að finna það, sem að er og
fara með það eins og við á. Hann,
sem getur sagt hvaða meðul skal
nota, ef þeirra þarf við, er lika
áreiðanlega færastur um að velja
yður gleraugu, sem skýra sjón-
ina og gera áreynsluna minni.
Sem gleraugnasalar er fara eft-
ir forskriftum lækna, förum vér
nákvæmlega eftir fyrirsögn lækn-
is yðar og efnið og verkið er hið
bezta og verðið mjög sanngjarnt.
Ritið “Your Eyes and Your
Health” gefið hverjum sem æskir.
Robert S. Ramsay
Prescription Optician
333 DONALD STREET
WINNIPEG
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
flutningum lýtur, smáum eða stór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slmi: 24 500
MOORE S TAXI LTD.
28 333
> Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Drögum blia og geymum. Allar
aðgerðir og ókeypis hemllprófun.
Brynjólfur Thorláksson
tekur að sér að stilla
PIANOS osr ORGANS
Heimiii 594 Alverstone St.
Sími 38 345
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
JOHN GRAW
Fyrsta ílokks klæðskeri
Afgreiðsla, fyrir öllu
Hér njóta peningar yðar sín að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196 '
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
Beauty Parlor
643 Portage Ave.
Corner Sherbrooke 8tr.
Mundy’s Barber Shop
Sími: 37 468 Heimlli: 38 005
Mrs. S. C. Thorsteinson
íslenska matsöluhúsið
par sem Islendingar I Winnipeg o*
utanbæjarmenr, fá sér máltiðir og
kaffi. Pönnukókur, skyr, hangikjð*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandl.