Lögberg - 02.03.1933, Síða 4

Lögberg - 02.03.1933, Síða 4
Rta. 4. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. MARZ, 1933 Högtjerg Oeflð út hvern flmtudag af TBE COLUMBIA PREBS L I MI TE D 69 5 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba. Utanáakrift ritstjðrans. EDITOR LÖGBERG. 695 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram fhe "Lögberg" is printed and publíshed by The Columbia r*rees, Limited, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. PHONEB S6 327—86 328 Skiftir um átefnu Þess var getið með örfáum orðum hér í blaðinu í síðustu viku, að Mr. Bennett hefði lýst yfir því í sambandsþinginu, að hann væri því hlyntur, að gagnskiftasamningar væru nú gerðir við Bandaríkin. Þykir þetta miklum tíðindum sæta, því það er öllum Canadamönn- um vel kunnugt, þeim er nokkuð vita um stjórnmál þessa lands, að jafnan síðan Mr. Bennett fór fyrst að gefa sig við stjórnmál- um, hefir hann verið viðskiftum Canada við Bandaríkin mjög andvígur. Árið 1911 átti Canada kost á mjög hag- kvæmum gagnskiftasamningum við Banda- ríkin. Þeim var hafnað, eins og kunnugt er. Þeim var ekki liafnað vegna þess, að þeir þættu óhagkvæmir, eða af einhverjum sér- stökum göllum, sem á þeim þættu vera, heldur vegna þess, að íhaldsflokkurinn var andvígur' öllum slíkum viðskiftasamningum við Banda- ríkin. Almennar kosningar fóru fram það ár og íhaldsflokkurinn vann mikinn sigur. Mik- ill meirihluti kjósendanna voru þá líka mót- fallnir gngnskiftasamningum við Bandaríkin. Mr. Bennett barðist þá mjög örugglega gegn þeim, bæði í kosningahríðinni og eins eftir að þingið kom saman eftir kosninganiar. Það ár var Mr. Bennett fyrst kosinn á þing. Sömu stefnu hefir íhaildsflokkurinn jafnan fylgt síðan. Við síðustu kosningar, 1930, hélt Mr. Ben- nett því enn fram og það mjög ákveðið, að viðskifti þessa lands við Bandaríkin væru Canada til mikils tjóns. Hann sagði fólkinu það hiklaust, að það riði á því, að hækka mikið tolla á þeim vönim, sem hingað flyttust frá Bandaríkjunum. Og þegar Mr. Bennett var kominn til valda, stojS hann fyllilega við orð sín, hvað það snerti að hækka tolla á innflutt- um vörum frá Bandaríkjunum og vama því með ýmsu móti, að vörur þaðan fyttust til þessa lands. Hepnaðist þetta svo vel, að ár- ið 1929 námu innfluttar vörur frá Banda- ríkjunum $868,012,229, en 1932 var sú upphæð komin ofan í $351,686,674. Stjórnin var mjög ánægð með þetta og sömuleiðis blöðin, sem liana styðja. Hitt var ekki nærri eins gott, að 1929 hafði Canada selt vörur til Bandaríkj- anna fyrir $499,612,145, en árið 1932 fengnm vér aðeins $235,186,674 fyrir þær vörur, sem Canada seldi til Bandaríkjanna. Af þessum ástæðum sat Canada uppi með mikið af vör- um, sem ekki var hægt að selja. Gat það nú naumast lengur dulist nokkrum þeim, sem um þessi mál hugsuðu, að hagurinn af tollstríð- inu við Bandaríkin, og reyndar aðrar þjóðir líka, var heldur lítill fyrir Canada. Lítur út fyrir að Mr. Bennett sé nú farinn að sjá það, engu síður en aðrir menn, eins og reyndar vænta mátti, að eini vegurinn til að geta selt þær vörur, sem Canada hefir að selja út úr landinu, er sá að taka aftur vörur frá þeim þjóðum sem Canada skiftir við. Canada á þess ekki kost, frekar en aðrar þjóð- ir, að selja sínar vörur öðrum þjóðum fyrir peninga, en kaupa lítið eða ekkert af þeim. Því fyr sem stjórnmálamenn allra þjóða sjá þennan sannleika og geta fengið sig til að vera sanngjarnari, því betra. Eftir því að dæma hvernig Mr. Bennett fórust orð í þinginu hinn 20. febrúar, verður ekki betur séð en hann hafi skift um stefnu í þeim efnum, sem hér er um að ræða. Hann virðist nú hafa fallist á þá stefnu, sem þeir Laurier, Cartwright og Fielding héldu fram fyrir tuttugu til þrjátíu árum. Þeir héldu því fram, að viðskifti milli þessara tveggja landa, Canada og Bandaríkjanna, væru á allan hátt eðlileg og Canada riði því meira á því, að komast að hagkvæmum gagnskiftasamning- um við Bandaríkin heldur en nokkura aðra þjóð í heimi. Slíkir gagnskiftasamningar stóðu Canada til boða 1911, en var þá hafnað. Hvort Mr. Bennett kann að hafa eitthvað fyrir sér í því, að hægt sé að komast að svipuðum samning- um nú, eða einhverjum hagkvæmum samning- um skal hér látið ósagt. En það, að Mr. Ben- nett hreyfir þessu máli nú, 'bendir heldur í þá átt. Ef Mr. Bennett er hér full alvara, sem eng- in ástæða virðist til að efa, þá hefir hann á- reiðanlega skift um stefnu. Það er hér sagt af því það er sannleikanum samkvæmt og svo ljóst að ekki getur verið um að villast. Það er honum alls ekki til óvirðingar. Ekki nema rétt að skifta um stefnu, ef maður sér villu síns vegar. Hvar eru takmörkin ? Fjárhagur Manitoba fylkis er langt frá því að vera í góðu lagi. Fylkisstjórninni h'epnast ekki að láta tekjurnar mæta útgjöldunum. Útgjöldin eru meiri en tekjurnar. Það er mikill tekjuhalli. Manitoba fyllci hefir hér svipaða sögu að segja, eins og hin fylkin. Dálítið lakari heldur en sum þeirra. Tölu- vert betri en önnur. Sömu sögu hefir lands- stjórnin að segja og sömuleiðis flestar bæjar- stjórnir og sveitastjórnir. Vitaskuld er þetta ekkert nýtt. Þess vegna er það, að landið er í biljóna skuldum og fylkin í milj- óna skuldum, og borgirnar líka, að meira fé hefir verið notað heldur en inn hefir komið. Tekjur hafa verið minni en útgjöld og því hafa skuldir safnast. Hvað Manitoba fylki snertir, þá hefir stjórnin á ýmsan hátt verið að reyna að draga úr útgjöldunum. Skattana þykir nú naumast gerlegt að auka úr því sem komið er, eða ekki svo að miklu muni. Etf það er rétt, að ekki sé hægt, eða gerlegt að auka tekjumar, þá er vitanlega ekkert fyrir hendi annað en minka útgjöldin, eða sökkva dýpra og dýpra í skuldir og það er Manitoba, eins og hin fylkin, nú að gera. En í hvert sinn sem það kemur til mála, að draga eitthvað úr útgjöldunum, þá rísa upp verkamanna l)eiðtogarnir og mótmæla öllu slíku harðlega. Ef þeim á vel að líka má aldrei lækka kaup nokkurs manns og það má helzt engin útgjöld lækka, nema ef vera kynni til lögreglu og réttarfars. Það verður ekki betur séð, en þeir menn vilji halda uppi útgjöldunum til allra opinberra þarfa og þjónustu, eins og þau hafa mest verið, án tillits til þess, hvað tekjunum líður. E/n þess- ir menn hafa líka nokkuð til síns máls og þeir hafa mikið fylgi, að minsta kosti í Win- nipeg. • En svo kemur hinn mikilsmetni fylkis- þingmaður, Sanford Evans, sá, sem fledri atkvæði hlaut heldur en nokkur annar, við eíðustu fylkiskosningar, og segir þing- inu að fjánnálastefna stjómarinnar sé öll vitlaus. Hann segir að stjórnin ætti als ekki að eyða meini, en hún tekur inn. Hún megi ómögulega gera það, því með því háttalagi aukist skuldirnar meir og meir og slík stefna hljóti að leiða til gjaldþrota. Vitanlega þarf engan fjármálaspeking til að sjá það, að ef meiru er eytt en inn er tekið, þá er Jiað engin gróðavegur og getur ekki gengið í það óendanlega. Hver ein- staklingur, sem það gerir, er á leiðinni til gjaldþrota. Sama er að segja um opinberar stofnanir og stjórnir. Það liggur því ekki nærri, að vér séum nokkuð að finna að þess- ari bendingu frá Mr. Evans, því hún er í sjálfu sér réttmæt, þó það geti stundum verið réttmætt, að eyða í bili meiru en aflað er. En þegar fjármálamaður, eins og Mr. Evans, segir stjórn og þingi, að ekki megi eyða meiru en aflað er, þá getur maður naum- ast annað en látið sér finnast, að maður verði fyrir miklum vonbrigðum, þar sem hann gerir enga tilraun til, að benda á ráð út úr fjármála vandræðunum. Það er alveg þýð- ingarlaust að segja einni stjórn, að hún verði að gera þetta eða hitt, sem hún sjálf veit ekki hvernig á að gera, án þess að benda henni á eitthvert ráð til að gera það. Sjíálfsagt vilja langflestir, að fjárhagur fylkisins sé góður, og sjálfsagt viljá lang- flestir góðgjarnir menn að tekjur fylkisins geti að minsta kosti mætt útgjöldunum, en vandinn er sá, að finna veg til þess, að þetta megi verða. Mr. Evans segir ekki hvernig þetta megi verða. Hann segir ekki einu sinni hvort hann vill hækka skattana, eða minka útgjöldin. Hann er bara að finna að gerðum stjórnarinnar, án þess að benda á nokkur ráð til bóta. Þetta er svo sem ekki neitt nýtt. Það er gömul aðferð minnihluta flokka á þingum, að finna að við stjórnina, hver sem hún er, án þess að segja henni hvernig hún gæti gert betur. Þeir bara segjast sjálfir geta gert betur, þó sú verði oft ekki raunin á. Það lítur oft svo út, að flokksfylgið eigi sér eng- in takmörk. Það er áreiðanlega ekki ósanngjarnt af íbúum Manitobafylkis, að þeir krefjist þess af þingmönnum sínum, hvaða flokk sem þeir tilheyra, að þeir, eins og nú er ástatt, leggi fram alt sitt bezta, til að bæta hag fylkisins oð ráða fram úr vandamálum þess, en Iáti flokksfylgið eiga sig fyrst um sinn. Rœða Einars S. Jónas- sonar þingmanns Gimli kjördcemis, flutt í fylkisþinginu í Manitoba, þann 15. febrúar, 1933 Einar P. Jónsson þýddi. Herra forseti! Um leið og eg stend á fætur til þess að ljá stuSning tillögu hins háttvirta þingmanns Winnipegborg- ar, Mr. Maybanks, get eg ekki var- ist þess aÖ láta það í ljós, hve mér er ábótavant er til þess kemur að gera málefni þessu þau skil, er æskilegt væri; þó vil eg skýra for- sætisráðgjafanum frá því, að eg met mikils þann heiður, er Gimli kjör- dæmi hefir með því fallið í skaut, að eg, sem fulltrúi þess, og nýgræð- ingur á þingi, skyldi verða fyrir vali til þess að inna þetta hlutverk af hendi. Eg get ekki látið hjá líða, að óska forsetanum til hamingju með endurkosningu sína; ber það ótvi-. rætt vitni um það hve samvizku- samlega hann heíir int af hendi starf í þessu virðingar og vandasama em- bætti. Eg get heldur ekki leitt hjá mér, að flytja Mr. Bracken árnaðaróskir í tilefni af hinum glæsilega kosn- ingasigri hans í sumar er leið. Verkamannaflokknum óska eg einn- ig til hamingju með þann liðsauka er honum bættist í kosningunum, sem og íhaldsflokknum fyrir það sjaldgæfa fylgi, er einn af fram- bjóðendum hans hlaut; á eg þar við háttvirtan þingmann Winnipegborg- ar, Mr. Evans. Ekki tel eg það ólíklegt, að ýms- um af hinum háttvirtu samþings- mönnum mínum, kynni að þykja ó- maksins vert, að hlusta um stund á nokkrar sögulegar skýringar við- víkjandi kjördæmi mínu. Nafnið Gimli á rót sína að rekja til hinnar norrænu goðafræði, og gilti um bú- stað guðanna, eða síheiðan himin æ- varandi réttvísi; þó hafa þeir at- burðir gerst i kjördæminu ekki alls fyrir löngu, er vakið hefðu getað hjá ýmsum þá hugmynd, ^ð ekki væri alt með feldu um nafnið, eða með öðrum orðum, að kjördæmið fyrir þá sök, svaraði ekki allskostar til nafns. < Landnemarnir fyrstu, synir og dætur hins islenzka þjóðstofns, lentu að Gimli þann 22. dag október mánaðar árið 1875 við vesturströnd Winnipegvatns, þar sem Gimli þorp nú stendur. 1 þeim hóp voru um tvö hunduð manns, konur, menn og börn; höfðu þessir Birkibeinar dvalið veturinn á undan í grend við Kinmount i Ontariofylki. Ferðin frá Winnipeg til Gimli tók fulla sjö daga; vegalengdin er um sextíu míl- ur; siglt var eftir ánni á opnum flat- botnuðum kænum. Enginn minsti undirbúningur hafði þá verið gerð- ur þar nyrðra að framtiðardvöl. Veturinn lagðist snemma að. Þess- ir harðsnúnu æfintýramenn áttu í fyrstu ekki annars úrkosta, en að hafast framan af við í tjöldum, þar til tekist hafði að hrófa fyrstu bjálkakofunum upp. Vistir voru af næsta skornum skamti; um ávexti var ekki að ræða, og ónóg og óholl fæða varð þess valdandi að fjöldi fólks veiktist úr skyrbjúg um vet- urinn og því nær þriðjungur inn- flytjendanna týndi lífi. Sumarið eftir bættust um þúsund íslenzkir nýbyggjar í hópinn; þá hafði dálitl- um gripastofni verið komið á fót i nýlendunni, og þó nokkru sáð af garðaávöxtum, og var hætta sú, sem frá skyrbjúgnum stafaði að miklu leyti úr sögunni. En hér fór sem oftar, að ekki er ein báran stök. Umsjónarmönnum innflytjendanna hafði af einhverjum ástæðum hlaup- ist yfir að koma auga á eitt einasta bóluveikis tilfelli, er dró alvarlegan dilk á eftir sér. Þessi ægilega plága fór herskildi um nýbygðina og skildi eftir sig mikinn val. Ekki kæmi mér það ókunnuglega íyrir þó sá yrði dómur sögunnar, að þeir tveir vetr- ar, sem hér er um að ræða, muni hafa leitt í ljós átakanlegri fingra- för hvers konar þrauta, en nokkurt annað tímabil í nýlenduþroskun fylkisins. Frá þessu þrekrauna tíma- bili íslenzku frumherjanna norður við vatnið, lifa enn í endurminning- unni margar dýrðlegar myndir af sjálfsafneitun og drenglund. Árið 1877 fór nokkuð að birta til, og frá þeim tima verður ekki annað með sanni sagt, en að ferill Islendinga niður við vatnið, hafi ver- ið glæsilegur þroskaferill. Megin þorri nýbyggjanna á þessum slóð- um, stundar fiskiveiðar og landbún- að. Frá árinu 1899 og fram um upp- haf styrjaldarinnar 1914, fluttist inn í Gimli kjördæmi mikill fjöldi Pólverja og Úkraníu-manna frá Galizíu, er þá taldist til Austurrik- is, en nú til Póllands. Þá var svo komið að Islendingar höfðu náð haldi á flestum þeim jarðnæðum, er næst lágu Winnipegvatni, sem og fram með íslendingafljóti. Þessi nýi aðkomulýður átti því ekki ann-. ars úrkosta, en að sætta sig við ból- festu á jörðum, er innsveitis lágu, og voru margar hverjar alt annað en líklegar til hagsældar. Hvergi nærri sætti fólk þetta sömu þrek- raunum og hinir íslenzku frumherj- ar; þó átti það vitanlega heldur ekki ávalt alt sjö dagana sæla. Margt af fólki þessu er nú komið vel á veg í menningarlegu tilliti, og farnast vel. Þess vil eg láta getið, herra for- seti, og það svo, að ekki orki tvi- mælis, að þrátt fyrir atburð þann, er kom fyrir í Árborg á öndverðum yfirstandandi vetri, er svo langa langt í frá, að Pólverja eða Úkraníu menn þar nyrðra skorti drottin- hollustu til móts við aðra borgara, eða vi]ji virða að vettugi viðurkent ríkisvald. Atburður sá, er hér um ræðir, er aðeins talandi vottur um það, hverju óvarfærni fárra manna getur stundum til vegar komið. Eg hefi átt samleið með fólki þessu í full þrjátíu ár, og átt við það margs- konar viðskifti; eg hefi gegnt sýslan í tuttugu og eitt ár, sem skrifari og féhirðir sveitarfélags, þar sem það er í allmiklum meirihluta, og eg tel á meðal þess ýmsa af minum beztu trúnaðarvinum. Mér er það þvi ó- segjanlegt ánægjuefni, að geta lýst yfir því, og það einmitt á þessum stað, að eg skoða þetta fólk yfir- höfuð að tala iðjusamt og sparneyt- ið fólk, með eindreginn áhuga í þá átt að ryðja sér braut í þessu landi sem þegnhollir borgarar. Engum heilskygnum manni dylst það, að íbúar þessa fylkis horfast í augu, um þessar mundir, við margs- konar örðugleika, og mér dylst það ekki heldur, að þegar svo er ástatt, ætlast almenningur þráfaldlega til of mikils af stjórnum sínum, hvort heldur er um að ræða héraðsstjórn- ir, fylkisstjórn eða sambandsstjórn. Mér skilst að einmitt þegar á þol- rifin reynir, velti hvað mest á bjargráðum og bjargráðahug hvers einstaklings i hverju sveitar eða bæjarfélagi um sig. Og til þess nú að færa að því rök að hér sé ekki vindhögg slegið, finn eg hjá mér hvöt til þess að víkja nokkrum orð- um að mínu eigin bygðarlagi, Gimli- bæ, og umhverfi. Fólkið á þessum stöðvum sýnist að hafa komið sér saman um það, að verjast í lengstu lög (þess, að gripa til stuðnings af þvi opinbera. Og eins og nú standa sakir minnist eg ekki eins einasta tilfellis, er á þann hátt nýtur aðstoðar. Þettfa ber þó ekki þannig að skilja, að engir þurfi eða hafi notið utanaðkomandi aðstoðar. Framan af önnuðust hin og þessi félög um það, að veita þeim er bágt áttu, nauðsynlega aðstoð. En brátt kom í ljós, að slíkt var ýmsum annmörkum bundið, og að hag- kvæmari leið var æskileg. Með það fyrir augum var stofnuð nokkurs- konar miðstjórn, er síðar var nefnd “Associated Charities”, er skipuð var tveimur fulltrúum úr hverju starfandi félagi; hefir sú nefnd jafnan staðið í nánu sambandi við ástæður almennings i héraðinu. Hin ýmsu félög og fyrirtæki hafa lagt í sameiginlegan sjóð eftir því sem efni og ástæður leyfðu; auk þess hafa sjóðinum bæst drjúgar tekjur af söngsamkomum, dans og spila samkomum, er stuðlað hefir verið til að hálfu miðstjórnarinnar (Cen- tral Committee). Allar þær sam- komur, er þessi félagskapur átti frumkvæði að, voru með afbrigðum fjölsóttar, og gáfu þarafleiðandi af sér góðan arð. 1 meir en þriíijung aldar hafa Dodd'a Kidney Pills veriB viBurkendar rétta meðaliB viB bakverk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hj.á öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, eBa sex öskjur fyrir $2.60, eBa beint frá The Dodd’s Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. Á siðastliðnu f járhagsári, greiddi nefnd þessi yfir fjögur hundruð dali úr sjóði sínum til líknar bág- stöddum, auk þess sem safnað var til úthlutunar allmiklu af gömlum fötum, og föt endurbætt; intu þetta verk af hendi konur, er sæti áttu í miðstjórn líknarnefndarinnar. Hlið- stæð starfsemi þessari viðgengst einnig á mörgum öðrum stöðum í kjördæminu; ber öll starfsemi, er í slíka átt gengur, ljósan vott um • glæddan bræðralagsskilning, og er þá vel. Eg tel vist, að væri svipaðri starfsaðferð beitt víðar í bæjum og þorpum fylkisins, myndi gróðinn verða auðsær i víðari merkingu en þeirri peningalegu. Fram að síðastliðnum desember, var aðeins um tvö tilfelli að ræða í Gimli sveitarhéraði, er fjárstuðning ur af hálfu hins opinbera kom til greina, og nam hann, segi og skrifa, aðeins níutiu dölum. Þessi f járveit- ing skiftist í jöfnum hlutföllum nið- ur á milli sambands, fylkis og hér- aðsstjórnar. Um níutíu og sjö af hundraði þess fólks, er í Gimlisveit býr, er af svokölluðum útlendum uppruna; hvorugt það tilfelli sem nú hefir nefnt verið, átti rót að rekja til hins útlenda uppruna; þetta finst mér svo athyglisvert, að ekki væri rétt að fram hjá yrði þegjandi geng- ið. Eg hefi ekki við hendi skýrslur um ástandið í Bifröstsveit, annari sveitinni innan vébanda kjördæmis- rníns; þó skilst mér, eftir þeim upp- lýsingum, sein eg þegar hefi aflað mér, að gjaldendur þar, sem flestir eru af íslenzkum og Úkraníu stofni, hafi með elju, atorku og hagsýni, að mestu leyti komist hjá því, að grípa til ákvæða um stuðning af hálfu liins opinbera, og má það kallast vel að verið. Eins og áður var tekið fram, byggist lífsviðurværi kjósenda minna mestmegnis á landbúnaði og fiskiveiðum; þegar verð á þeim vör- um, sem þessi störf framleiða, er einungis lítill hluti þess, sem fyrir þær var borgað fyrir þremur árum, og þegar þess er jafnframt gætt, að lífsnauðsynjar, sem bændur og fiski- menn verða að kaupa hafa ekki lækkað hlutfallslega í verði, þá ligg- ur það í augum uppi hversu mikla erfiðleika þeir eiga við að búa. Bændur eru ekki svo efnum bún- ir, að þeir geti keypt sér ný vinnu- áhöld; þeir verða því að gera við gömul verkfæri og bjargast við þau; það hafa þeir neyðst til að gera nokkur undanfarandi ár. Þessu geta þeir ekki haldið áfram mikið lengur, nema því aðeins að gagnger breyting verði til batnaðar í náinni tíð, verður bóndanum ókleift að halda áfram; hann verður bókstaf- lega að leggja árar í bát og hætta. Verð á netjuifi hefir lækkað hlut- fallslega mjög lítið; þetta er alvar- legur þrándur í götu fiskimannsins; hann verður að neyta allra krafta til þess að geta lifað hinu allra ein- faldasta lifi, og verður það stundum um megn. Eg vildi óska að sam- vinnandi kröftum yrði til þess var- ið, að greiða fyrir sölu megin afurð- anna, sem landbúnaðurinn og fiski- veiðarnar gefa af sér með hærra verði en nú á sér stað-. Siðastliðið ár hófst nokkurs kon- ar stríð í Winnipeg um mjólkur- verð. Sú lækkun, sem átti sér stað á verði þessarar vöru, var kænlega látin koma niður á framleiðandan- um; þetta komst svo langt, að bónd- inn varð að selja mjólkina fyrir neð- an framleiðslukostnað. Af þessu leiddi óhjákvæmilega það, að rnjólk- urframleiðslan þvarr, svo ekki leit

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.