Lögberg - 20.04.1933, Síða 8
Bls. 8
LíÖGB'ERG. FIMTUDAGINN 20. APRÍL, 1933
+■ --------------------— ------—+
Úr bœnum og grendinni
+■-------------—— ------—.— -----—+
BOKBAND! BOKBAND!
Bækur halda sér aldrei til lengdar nema því aðeins, að
þær séu vandlega bundnar inn.—Við leysum af bendi
greiðlega, vandað bókband við sanngjörnu verði.
The Columbia Press Limited
695 SARGENT AVE., Winnipeg, Man.
Skuldarfundur á hverju föstu-
dagskvöldi.
Mr. og Mrs. Maurice John Page,
í Hnausa, Man., urSu nýlega fyrir
þeirri sorg aÖ missa ungan son,
Rodney Keith aÖ nafni, er andaÖist
þann 31. marz,—fagur lítill sveinn.
KveÖjuathöfn fór fram- frá Page
heimilinu þann 4. apríl, að viÖstödd-
um ástvinum’ og nágrönnum. Lík
barnsins var lagt tii hvíldar í River-
ton grafreit. Sóknarprestur jarÖ-
söng.
ÁætlaÖar messur í norðurhluta
Nýja íslands næstu sunnudaga:—
23. apríl, Hnausa, kl. 2 síÖd.; 30.
apríl, Geysir, kl. 2 síðd.; 7. maí,
iRiverton, kl. 2 síðd.; 7. maí, Ár-
borg, kl. 7 síÖd. (ensk messa).
Samtal viÖ fermingar-ungmenni
á þremur fyrstnefndu stööum.
Mrs. S. C. Thorsteinsson (hair-
dresser) verður stödd á Gimli í eina
viku, frá 24. apríl til 1. maí, n.k.,
til þess aÖ gefa “Permanent Waves”.
Mrs. D. Thordarson, Gimli, Man.
gefur frekari upplýsingar.
Two large rooms and kitchenette
on first floor, to let. Phone 29 746.
Mrs. Oliver, 854 Home St.
ATHYGLI—St. Hekla I.O.G.T.
heldur Tombólu og dans til arðs
fyrir sjúkrasjóð sinn, mánudaginn
8. maí. Oft er þörf en nú er nauð-
syn að styrkja slík fyrirtæki. Nán-
ar auglýst síðar.
Kona óskar eftir ráðskonu stööu,
helst í Alberta eða Saskatchewan.
Hún er alvön húsverkum og kann
mjög vel til matreiðslu og annara
innanhússverka. Ritstjóri Lögbergs
gefur frekari upplýsingar.
Mr. og Mrs. O. Finnbogason frá
Gunnworth, Sask., komu til borgar-
innar í vikunni, sem leið, og á
þriðjudaginn var lögöu þau af stað
héðan áleiðis til íslands. Gera þau
ráð fyrir að dvelja þar um þriggja
mánaða tíma. Foreldrar Mr. Finn-
bogasonar eru búsett á Akureyri.
Þau eru Jón Finnbogason og kona
hans, sem eitt sinn voru í Winnipeg
og margir hér munu síðan kannast
við.
G.T. Spil og Dans á hverjum
þriðjudegi í G.T. húsinu Sargent
Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að
kvöldi. Jimmie Gowler’s Orchestra.
Þrenn verðlaun fyrir konur og
þrenn fyrir karla: $5; $2; $1.
Vinnendur þessa viku: Mrs. Stib-
bard, I. Hamel, Miss C. Garrett,
Mr. Stackurski, E. Burns, L. V.
Elliott. ,
Sérá H. Sigmar messar sunnu-
daginn 23. apríl að Hallson kl. IX
f. h. og Gardar kl. 2 e. h.. Allir
velkomnir.
Mr. Jakob Sigvaldason frá Víðir,
Man var staddur í borginni í síðustu
viku.
Mr. J. J. Bíldfelí er umboðsmað-
ur C.P.R. félagsins og línufélag-
anna hinna, sem fólksflutninga
annast milli Canada og Evrópuland-
anna, þar á meðal íslands. Gerðu
þeir landar, sem kynnu að hafa í
hyggju að ferðast til Evrópu, vel í
því að finna Mr. Bíldfell eða skrifa
honum, áður en þeir kaupa sér far-
bréf. Er hann reiðubúinn að veita
allar nauðsynlegar upplýsingar því
ferðalagi viðvíkjandi. Mr. Bíldfell
er að finna að 1101 McArthur
Building, Winnipeg. Sími 95 952.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag þ. 23 apríl n. k., eru fyr-
irhugaðar þannig, að morgunmessa
verður í gamalmennaheimilinu Betel
kl. 9.30 f. h., en kvöldmessa í kirkju
Gimlisafnaðar kl. 7 e. h., ensk messá.
—Mælst er til að fólk f jölmenni.—
Samkoma verður haldin í fund-
arsal Fyrstu lútersku kirkju á mið-
vikudagskveldið í næstu viku, undir
umsjón kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar. Hefir verið vandað til
samkomunnar eins og æfinlega þeg-
ar kvenfélagið á hlut að máli. Má
þar sérstaklega minna á stuttan
sjónleik i einum þætti, sem sumar
af kvenfélagskonunum taka þátt í
Samkoman byrjar kl. 8.15. Að-
gangur 25 cents.
Munið eftir sumarmálasamkom-
unni í Fyrstu lútersku kirkju í
kveld, fimtudag.
Mr. S. G. Hafsteinn frá Pikes
Peak, Sask., var staddur í borginni
á miðvikudaginn í þessari viku.
Jón Bjarnason Academy
Gjafir
S. S., Winnipeg.............$15.00
Icel. Chess Club (A.S.B.).. 10.00
Vinur skólans í Langruth.... 5.00
og fyrir árbók skólans:
Sigurður Antoniusson, Baldur 5.00
B. T. Isberg, Baldur......... 1.00
Mrs. K. Thorsteinss., Baldur 0.50
O. Anderson,. Baldur........ 2.00
Með vinsamlegu þakklæti,
S. W. Melsted,
gjaldkeri skólans.
On Saturday Eve., April I5th
the Jon Sigurdson Chapter of the
I.O.D.E. paid a surprise visit to
Mrs. Thorsteinn Borgford, who has
been Regent of the chapter for 6
years, and is just recovering from
a very severe illness, and presented
her with a lifemembership certifi-
cate and pin.
The presentation was made by
Mrs. J. Hughes and Mrs. B. J.
Brandson.
Mrs. Hart gave a paper on the
year’s work of the Provincial Chap-
ter; the remainder of the evening
was spent in Bridge. The prize
winners were Mrs. Jac. Kristjan-
son and Mrs. E. Hanson.
Veðráttan í Júlí
Votviðrasamur mánuður
Eftir mánaðaryfirliti Veðurstof-
unnar.
Loftvægið var í júlímánuði 1.6
mm. fyrir neðan meðallag á öllu
landinu, frá 0.9 mm. á Rauðarhöfn
til 2.0 í Reykjavík og Vestmanna-
eyjum.
Hitinn. Lofthiti var 0.2° yfir
meðallag á öllu landinu, tiltölu-
lega hlýjast sunnanlands, því að
þar var hitinn rúmlega 1° yfir
m'eðallag (mest 1.6° á Eyrar-
bakka)\. Á vestanverðu landinu og
suðaustanverðu var lofthitinn víð-
ast í góðu 'meðallagi, en norðan
til á Vestfjörðum tíg á Norður-
landi og Norðausturlandi var kald-
ara en venjulega í þessum mán-
uði—kaldast var á ísafirði, 1°
undir meðallagi.—Sjávarhitinn við
strendur landsins var 0.1° fyrir
neðan meðallag, mestur við Vest-
mannaeyjar (1.3° yfir meðall.) og
minstur við Teigarhorn eystra
(1.7° fyrir neðan meðallag). —
Jarðvegshitinn var hjá rafstöð-
inni við Elliðaárnar 10.6° á met-
ersdýpt og 7.8° á tveggja metra
dýpt. Á Sámsstöðum í Fljótshlíð
var hann 7.9° á metersdýpt.
Úrkoman var mikil, 75% yfir
meðallag, eða sinnum meðal-
úrkoma á öllu landinu. Tiltölu-
Ie!ga var hún mest á Norðurlandi
og Austurlandi, á Akureyri 270%
umfram meðallag, og þar næst á
Höfn í Bakkafirði. Úrkomudagar
voru fleiri en venjulega, frá 1—8
eftir landsfjórðungum. Mest mán-
aðarúrkoma mældist eins og
venjulega, í Hveradölum á Hellis-
heiði, 219.8 mm. Þar var líka mest
úrkoma á sólarhring, 77.7 mm. Á
Grænhól vestra var óvenjulega
mikil rigning og vatnágangur að-
faranótt 2. júlí og hlupu þá skrið-
ur úr fjöllum.—
Þoka var mjög tíð norðan lands
og austan, en annarsstaðar kring
um meðallag.
Vindátt. Norðan og norðaust-
an átt var tíðust. Veðurhæð tæp-
lega í meðallagi en logn sjaldnar
en í meðallági. Stormdagar eru
aðeins taldir fjórir.
Snjólag. Flestar stöðvar telja
fjöll í þessum mánuði alauð upp
í 600 m. hæð. Um snjókomu í
bygð er þó getið á Hornströndum
fyrst í mánuðinum.
Jarðskjálftar. Jarðskjálftamæl-
arnir í Reykjavík sýndu hræringu
hinn 12. júlí og voru upptök henn-
ar skamt frá Reykjavík. Tvær
hræringar aðrar sýndu mælarnir
hinn 7. júlí og áttu þær báðar
upptök sín í Mexico.—Mbl.
WONDERLAND
THEATRE
Fri. - Sat.—
“SIGN OF THE CROSS”
Mon. - Tues.—
“HALFNAKED TRUTH”
“Penguin Pool Murder”
Wed. - Thurs.—
“MY WIFE’S FAMILY”
Borðbúnaðar verðlaunakvöld, miðv. og
fimtud. Einnig fimtud. nónsýning
Open every day at 6 p.m.—Saturdays
1 p.m. Also Thursday Matinee.
Véibátur ferst
med fimm mönnum.
ísafirði, 30. marz.
Vélbáturinn Páll frá Hnifsdal
hefir farist i fiskiróðri í fyrradag,
geríji snarpa norðankviðu um kvöld-
ið og var sjór á lóðamiðum. Fjórir
vélbátar héðan leituðu hans í gær,
en leitin bar engan árangur. Á
bátnum voru fjórir menn:
Haldór Pálsson, formaður, eig-
andi bátsins, 54 ára, kvæntur. Á
mörg börn. Flest uppkomin.
Jón Helgason úr Hnífsdal, 20 ára.
Gunnar Guðmundsson, 19 ára og
Guðfinnur Einarsson, 20 ára, báðir
úr Grunnavíkurhreppi.
Jón, Gunnar og Guðfinnur voru
allir ókvæntir.
Halldór Pálsson var einn af
fremstu formönnum hér vestra, al-
kunnur dugnaðarmaður og sjósókn-
ari. Hafði verið óslitið formaður
frá tvítugsaldri og aldrei hlekst neitt
á.
—Mbl.
Islandingasögur á
dönsku
Að frumkvæði Gunnars Gunnars-
sonar skálds var ráðist í það fyrir
nokkrum árum að gefa íslendinga-
sögur út á dönsku. Hafa þær komið
út í heftum og er nú 21 og siðasta
heftið nýlega komið út.—
Alls eru sögurnar í þrernur stór-
um bindum og hefir verið vandað
svo til útgáfunnar, sem kostur hefir
verið á. Þýðendur hafa verið : Vilh.
Anderson, Johs. Bröndum-Nielsen,
Gunnar Gunnarsson, Knud Hjortö,
Ludvig Holstein, Johannes V. Jen-
sen, Tom Kristensen, Hans Kyrre
og Thöger Larsen. Um útgáfuna
hafa þeir séð Gunnar Gunnarsson,
Johs. V. Jensen og Hans Kyrre.
Prófessor Jón Helgason dr. phil.
hefir haft eftirlit með þýðingunum
að því er frummálið áhrærir, en
Johs. Bröndum-Nielsen háskólapró-
fessor að því er dönskuna áhrærir.
Margar myndir af sögustöðunum
eru í bókinni. Eru þær gerðar af
málaranum Johannes Larsen, sem
ferðaðist hér um land tvö sujnur til
þess að teikna þær. Ennfijemur
fylgja ættartölur, sem dr. Jón
Helgason hefir tekið saman, og kort
af þeim stöðvum þar sem helstu
sögurnar gerast, teiknað af mælinga-
manni C. Anderson.
Gyldendal hefir gefið sögurnar út
og fengið til þess styrk, bæði frá
ríkissjóði Dana og sáttmálasjóði.
Enn fremur hefir Ny Carlsbergs-
sjóðurinn lagt fram styrk til þess
að gera myndirnar.
—Mbl.
AkureyrardeiJunni
lokið
Akureyri 25. marz.
Samningar hafa tekist i deilunni
um tunnusmíðina. Vinna skal að
tunnusmíðinni í ákvæðisvinnu,
þannig, að verkamennirnir beri úr
býtum alt það, er inn kemur, að
frádregnum kostnaði og greiðslu til
verksmiðjueigenda. í lok hverrar
vinnuviku skal greiða verkamönn-
um eina krónu á klst., miðað við að
unnið sé í 10 klst. vöktum, en það
er 25 aurum undir stundakauptaxta.
V erkamannafélagið hafði áskilið, að
tveir menn væri útilokaðir frá vinnu
við tunnugerSina, en bæjarstjórnin
neitaði að verða við þeirri kröfu, og
féll þá félagið frá henni. Niður
skulu falla skaðabótakröfur og máls-
höfðanir í sambandi við deilu þessa.
—Mbl.
Ivar Kreuger goðum-
líkur
Síðan Ivár Kreuger féll á “svind-
ilbraski” sínu, hafa Ameríkumenn
gert alt sem þeir hafa getað til þess
að útbásúnera það hver viðsjáls-
gripur hann hafi verið í viðskiftum,
og vara alla menn við því að skifta
við þau firmu, sem hann hafi verið
viðriðinn.
Þetta hefir nú máske haft tilætluð
áhrif í Ameríku, en í Austurlöndum
er alt öðru máli að gegna. Því með
allri sinni þekkingu á viðskiftalífi
og “bluff” hefir Ameríkumönnum
eigi tekist það enn að setja sig inn i
hugsunarhátt Austurlandaþjóða.
Og þvi segja nú Persar, Indverj-
ar, Kínverjar og Tapanar, að úr því
að Kreuger hafi verið svo mikill
snillingur í viðskiftum, að hann hafi
getað leikið á sjálfa “Yankeeana,”
þá hljóti hann að hafa verið goðbor-
inn og haft styrk til þess frá æðri
verum. Fer álit Kreugers því dag-
vaxandi meðal þessara þjóða.
Lesb.
Alheimsmanntal
Á árinu, sem leið hefir í fyrsta
skifti verið gefin út opinber skýrsla
um manntal i öllum heimi. Það er
þjóðabandalagið, sem hefir gefið
skýrsluna út og er manntalið tekið
á tímabilinu 1931—1932. Sýnir það,
að á jörðunpi búa 2,012,800,000
menn og vantar þó eflaust fjöldaj
villimanna í Afríku, á Suðurhafs-1
eyjum og Suður-Ameríku. Eftir
heimsálfum skiftist mannkynið
þannig:
Asía 1,103 miljónir; Evrópa 506
miljónir; Amerika 252 miljórtir;
Afríka 142 miljónir; Ástralia 10
miljónir.
En meðal þessara 2,000 miljóna
manna, er ekki einn einasti, sem get-
ur bent á það hvernig mannkynið á
að lifa bærilegu lífi, segir þýskt
blað.
—Lesb.
Bústaður Amundsens
verður þjóðareign.
Merman Gade hefir boðið norska
ríkinu að gefa því “Uranienborg” í
Svartskog í Oppegaard-héraði, sem
var bústaður Roald Amundsens.
Hann hefir sett þau skilyrði fyrir
gjöfinni, að í bústaðnum verði
geymdir þeir munir, sem Amundsen
hefir átt og að stofa hans verði lát-
in óhreyfð eins og hann skildi við
hana. Hann hefir líka óskað þess,
FALCON CLEANERS
&DYERS
680 Sargent Ave.
Dresses, Coats, Men’s Suits
Dry Cleaned and Pressed
85c
Hats Cleancd and Blocked
Phone 39 877
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norinan Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
að einhver, sem var með Amundsen
á ferðum hans, yerði látinn búa
þarna og hafa umsjón með bústaðn-
um. Gert er ráð fyrir að ríkið þurfi
að leggja fram 6,000 krónur til þess
að endurbæta bústaðinn og leggja
þar inn rafljós, en viðhaldið kosti v
um 800 krónur á ári.
Lesb.
Reynsluhjónaband og doktorspróf
Tveir kvenstúdentar í Simons
College í Boston, Jeanne Converse
og Elisameth Harrington, báðar af
góðum ættum, hafa ákveðið það að
yfirgefa háskólann um tveggja ára
skeið, til þess að ganga í reynslu-
hjónaband. Þær auglýsa nú eftir
ungum mönnum, sem vilja búa með
þeim í hjónabandi i tvö ár, en ekki
lengur, þvi að þær ætla að nota
reynsluna til þess að skrifa doktors-
ritgerðir um hjónabandið.
Enginn karlmaður hefir enn gefið
sig fram.
—Lesb.
Vortíska í París
Vorið er að byrja í París og með
því kemur ný tíska. Kvenfólkið er
orðið leitt á því að ganga í loð-
kápum sínum. Það er sífeldur
straumur um göturnar af konum,
sem ekki sýnast gera annað en horfa
í búðarglugga, og ekki tala um ann-
að en hver vortískan muni nú best,
sú sem Patou kemur með, Chanel
eða Lanvin.
En vortískan er þegar byrjuð að
ryðja sér til rúms. Nú eru stráhatt-
ar það allra besta—og kvenskart úr
kopar. Nú vill kvenfólkið ekki sjá
aðra skartgripi en þá, sem gerðir
eru úr kopar, þessum gljáandi, eld-
lita málmi. Hálsfestar, armbönd,
belti, skóspennur, töskulásar, já
jafnvel baugar, verður alt að vera
úr kopar.
Vorblóm
EASTER LIEIES, Cut or in Pots,
ROSE BUSHES, ÚYDRANGEAS,
All Cut Flowers.
Verö lægra en niðri í bœ *
Sargent Florists
678 SARGENT AVE.
(við Victor) SlMI 35 676
N O T I C E
IN THE matter of the ESTATE
of MAGNUS JOHNSON, late of the
town of Selkirk in Manitóba, la-
bourer, deceased.
All claims against the above Estate
must be sgnt to the undersigned at
801 Great West Permanent Building,
Winnipeg, Manitoba, on or before the
16th day of May, A.D. 1933.
Dated at Winnipeg in Manitoba, this
5th day of April, A.D., 1933.
T. E. Thorsteinson and S. Sigurdson,
Executors.
Per Joseph T. Thorson, their Solicitor.
íslenska matsöluhúsið
Par sem íslendingar I Winnipe* og
utanbœjarmenr, fá sér máltlBir og
kaffl. Pönnukökur, skyr, hangikjö*
og rúllupylsa á taktelnum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slml: 17 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandl.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greíölega um alt, aem a8 •
flutningum lýtur, smáum eöa »tór-
um. Hvergi sanngjarnara verö.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Stml: 24 500
4
CARL THORLAKSON
úrsmiður
6J27 Sargent Ave., Wlnnipeg
Heima3imi 24 141
EARN
By Day—
LEARN
By Night
(I Dominion Business Gollege )
II QheMalI. WINNIPEG. > \
—------ —-------mv
\ V
Our Evening Classes offer you the opportunity to make
profitable use of your spare time for increasing your
earning power.
Clerks can become Stenographers; Stenographers can be-
come Private Secretaries; Bookkeepers can become Ac-
countants, Auditors or Office Managers, and so on up-
ward.
The tuition fees for our Evening Classes are only seven
dollars a month. It is a small investment that pays enorm-
ously in increased ability and earning power.
ENROLL MONDAY
DAY and EVENING CLASSES
EVENING CLASSES
Monday and Thursday
DOMINION BUSINESS G0LLE6E
— ON THE MALL
Branch Schools in Elmwood, St. John’s and St. James