Lögberg - 21.12.1933, Blaðsíða 5

Lögberg - 21.12.1933, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER, 1933 Gleðileg Jól vinur ! Gagnkvœmur góðvilji fylgir handartaki vin- anna um jólin ! Skilningur sá, sem reynsla áranna í sam- bandi við jólin, hefir leitt í ljós, sannfærir alla um það, hve þá býðst sjaldgœft tækifæri á árinu, til þess að hrista af sér áhyggjur, gleyma hinum jarð- bundnu hlutum, en gefa sig í þess stað gleðinni og vináttunni á vald. Og jólin eru sá mikli viðburður, er Eaton’s notar til þess að óska sínum hundruðum þús- unda af vinum í Vestur-Canada, margfaldrar hamingju. Gleðileg Jól og farsœlt nýtt ár! 'T. EATON C<í-™ WtNNIPEQ CANADA E ATO N 'S Herman Julian Johnson MAKERS O F NEWSPAPER ILLUSTRATIONS Sorgir Á föstudaginn þann 15. þ. m. skeði sá hörmulegi atburður, að tvö börn þeirra Mr. og Mrs. Clarence Haney, í grend við Langruth þorp brunnu inni til dauðs. Var annað barnið tveggja ára, en hitt rúmra fjögra mánaÖa. Mr. Haney var að heiman, er sorgar atburðurinn vildi til, en móðirin við mjaltir. Yfir- völdin töldu rannsókn í málinu ó- þarfa. Þessi syrgjandi móðir, er hér um ræðir, er íslenzk í báðar ættir, og heitir Guðláug Vjilhelmina, feystir B. Bjarnasonar kaupmanns í Lang- ruth. Lögberg vottar hinum syrgj andi aðstandendum blessaðra, litlu, látnu barnanna, sína innilegustu samúð. FÆ.REYJAR EYDAST Sænski rannsóknarmaðurinn J. V. Sandberg, sem hingað kom í sumar á rannsóknarför sinni norður i höf, segir frá því i sænskum blöðum eft- ir heimkomu sína, að Færeyjar muni með tímanum eyðast og hverfa i hafið. Um miljónir ára hafa At- lantshafsstormarnir og brimrót mal- að björgin að vestan, svo að fyrir löngu er meir en helmingur af eyj- unum horfinn í sæ, segir hann. En það sem eftir er muni ef til vill standast í 100 þúsund ár, en það er aðeins örstuttur timi á jarðfræðis- mælikvarða. EINKENNILEG UR BEINA- EUNDUR Nýlega var verið að grafa fyrir vatnsveitu í Bleik skamt frá An- denes í Nöregi og fundu menn þar mörg hvalbein af mismunandi lengd, hið lengsta 80 cm. — Á mörgum beinunum er gat, þvert í gegnum sum, en eftir öðrum endilöngum. Virðist svo ,setn ól hafi verið brugð- ið í götin, því að það vottar fyrir sliti í brúnunum. Eitt beinið er 35 cm. langt og á það fægður sléttur flötur, en á flötinn er grafin mynd af hálfu víkingaskipi. Betra en ig&'K. ? ðím ■m annað, er senda má í 3folafet)ebjum er málblœr yðar Kallið upp foreldra og vini. Að hlusta á rödd yðar í tvær mínútur, veldur meiri ánægju en alt annað. Yfir Long Distance Sambandið UM HEIMA SÍMA YÐAR getið þér talað eins skýrt við hvern sem hefir síma, eíns og væri hann viðstaddur. Samtal að kveldi kost- ar tiltölulega mjög litið. Gleðileg Jól öllum til handa ! Manltoba Telephone System Stundum hafa heyrst raddir meðal okkar um þaS, að íslenzkir náms- rnenn slái nú meira slöku við lær- dóminn, og vinni sjaldnar sigur í samkeppninni við annara þjóða menn heldur en áður var. Ekki veit eg hvað satt kann að vera í þessu. En sé það á einhverjum rökum bygt, ættum við því fremur að sýna þeim sóma, sem enn halda uppi merkinu og gera garðinn frægan. Nú fyrir skömmu fluttu ensku blöðin hér í bænum mynd og fregnir af einum slikum námsmanni. Hann heitir Hermann Julian Johnson. Hefir hann hlotið það sem nefnt er “War Memorial Overseas Scholar- ship” fyrir 1934. Það er, eins og nafnið bendir til, árs styrkur til á- framhaldandi náms utanlaiifls. Upphæðin er $1600. Hermann lauk B. Sc. prófi við Manitoba háskóla síðastliðið vor með ágætis einkunn. Hann leggur fvrir sig eðlisfræði og er nú að búa sig undir að taka meistarapróf (M. Sc.) í þeirri grein. Hann vinnur að eðlisfræðirann sóknum við Cancer Relief and Re- search Institute fylkisins. Næsta haust ætlar hann til Englands og halda áfram námi við Lundúna-há skóla. Auk sinnar sérfræðigrein ar hefir Hermann-skarað fram úr í stærðfræ'ði, hefir ]iar staðið jafn fætis þeim beztu, sem gert hafa stærðfræðina að sinni sérfræðigrein. Hann hefir þrisvar áður fengið verðlaun fyrir nám sitt (Isbister Scholarship árin r928-’29-’30. Enda munu fáir námsmenn njóta eins einróma álits háskólakennar- anna og hann ekki aðeins vegna á- gætis námshæfileika, heldUr engu síður fyrir góða skapgerð, háttprýði og iðjusemi. Hann hefir verið að- stoðarkennari jafnframt náminu síðastliðin 2 ár. Foreldrar Hermanns eru Árni Johnson ættaður úr Þingeyjarsýslu og Sesselja Björnsdóttir frá Selstöð- um í SeyðisfirSi. Hann er fæddut 20. nóv. 1909 að 627 Agnes St. í Winnipeg, og á þar enn heima hjá foreldrum sínum. Hjálmar Gíslason. L TOLLSTRlÐ FRAKKA OG BRETA England og Frakkland eiga nú í tollstríði hvort við annað. Nú i vik- unni ákvað franska stjórnin að tak- marka mjög innflutning enskra kola, og er það gert vegna óánægju þeirrar, sem ríkir meðal námumanna I Frakklandi, út af atvinnuleysi. Þá eru ráðgerðar tollhækkanir á ýmsum vörum. í breska þinginu í gær var rætt um að leggja aukatoll á fransk- ar vörur í mótmælaskyni. FRAKKAR OG ÞJÓÐVERJAR SEMJA SIN A MILLI Utanríkismálaráðherrann hefir tilkynt í neðri málstofunni, að brezka stjórnin hefði stungið upp á því við frakknesku stjórnina, að æskilegt væri að Frakkar og Þjóð- verjar tæki afvopnunarmálin til at- hugunar sin á milli. Kvað ráðherr- ann ekki koma til mála, að afvopn- unar§áttmáli yrði gerður án þátt töku Þjóðverja. skoðuð. Segir hann að stjórnar- skráin sé orðin úrelt, og veiti mönn- um of mikið frelsi, án tilsvarandi aga. FORNMINJ AFUNDUR I kirkjunni Hazia Sofia i Istam- bul hafa fundist hvelfingar, sem áð- ur voru ókunnar. Fundust þar margskonar fjársjóðir frá Byzant- iskum tímum, þar á meðal krossar úr gulli, settir demöntum, og mjög verðmæt kóróna, alsett rúbínum, smarögðum og demöntum. Kirkjan er nú notuð sem forngripasafn. OF MIKIÐ FRELSI OF IJTILL AGI Tardieu, fyrverandi forsætisráð- herra Frakklands, ritar grein í franskt tímarit, og krefst þess að franska stjórnarskráin verði endur- HUDONFLÓA FÉLAGID KAUPIR HLUTA AF JAN MAYEN Aftenposten skýrir frá því, að Hudson Bay Company hafi keypt réttindi Jacobsens á Jan Mayen Birger Jacobsen er heimildarmaður blaðsins. Kaupverðið er 50 þús. stpd. Hinsvegar hefir Board Nord i Oslo, sem er fulltrúi Hudson Bay tilkynt, að kaupin hafi ekki farið fram. (Áður en Norðmenn lögðu Jan Mayen undir sig, hafði norskur maður, Birger Jacobsen numið þar land og búið þar. Líkaði honum ekki er norska stjórnin ætlaði að sölsa undir sig land hans og fór í mál við hana. Það mál stóð lengi yfir, en svo fór, að Jacobsen vann það og hélt réttindum sínum á eynni). HRÉINDÝR TRYLLAST Fælni hljóp að stórri hreindýra- hjörð í Trollheimen og hröpuðu 50 hreindýr til bana þar i fjöllunum. Talið er, að um 600 hreindýr hafi verið í hjörðinni. CARPENTIER FER AD BERJAST AFTUR Hnefaleikamaðurinn Carpentier hefir nú ákveðið að fara aftur að keppa í hnefaleikum og hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, að hann keppi við Andrés Langlais. Nú eru rúmlega 7 ár síðan Carpentier kepti seinast. Siðastliðið föstudagskvöld, lézt að heimili dóttur sinnar, Mrs. H. T. Halvorson í borginni Regina, Mrs. Þórunn E. Jónasson, góð kona og gáfuð, nokkuð við aldur. JARDSKJALFTAR A GRÆNLANDI I Upernivik á Grænlandi varð mikilla jarðskjálfta vart 20. f. m. og eitthvað næstu daga. Jarðskjálft- anna varð ekki vart í Thule, nyrstu nýlendunni, og ekki heldur syðst í landinu. JARNBRAUTARRAN Ræningjar réðust fyrir skemstu á austur-síberísku j árnbrautarlestina, er hún var á leið í gegn um Man- sjúríu, og var það með þeim hætti, að þeir rifu upp járnbrautarteinana, en lestin, sem var á 80 kilómetra ferð, valt út af. Margir menn fór- iTst en ræningjarnir létu greipar sópa meðal þeirra, sem eftir lifðu. SJÓRÆNINGJAR Kínverskir sjóræningjar hafa ver- ið talsvert uppvöðslusamir við strendur Kína og Japan undanfarið. Þeir hafa nýlega ráðist á franskt skip, Commander Henri Ridier, og rænt fjórum Kínverjum, sem voru meðal skipshafnar þess, og haft auk þess á brott með sér meira en 1000 sterlingspund í peningum. Nú krefjast þeir lausnargjalds fyrir fangana. Commerce — Citizenship — Industry — We offer the best courses available in all com- mercial subjects, and have been preparing young men and women for over twenty years to meet the most exacting problems of business. * Cur graduates are ready for any opportunity. We are not content with skill in the specialized sub- jects on our curricula, but make sure that our students understand the requirements of prac- tical life. The result of this care is that our graduates are everywhere found in positions of responsibility and significance in the world of industry. Do These Quahfications Appeal to YOU? oominion On The Mall, and at Elmwood, St. James, St. John’s Telephone 37 181

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.