Lögberg - 05.04.1934, Side 1
47. -\RGANGUR ' WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. APRÍL 1934
FRA ISLANÐI
KOMMÚNISTAR A
AKUREYRI
í gær var haldinn bæjarstjórnar-
fundur á Akureyri. Kommúnistar
fjölmentu þangað og höfðu ærsl í
frammi og hótanir viS bæjarfulltrú-
ana.
Síðan lokuðu þeir bæjarfulltrúana
inni í fundarsalnum og sleptu þeim
ekki út fyr en eftir tvær klukku-
stundir.
Ekki urðu fulltrúarnir fyrir nein-
um aðsúg þegar út kom, en komm-
únistar létu þá vita, að þeim mundi
velgt betur næst.—Mbl. 7. marz.
AFLI I GRIMSEY
varð áriÖ sem leið 52,390 kg. stór-
fiskur og 101,200 kg. smáfiskur í
salt, en töluvert var hert. Róðra
stunduðu 7 smátrillur og 3 árabátar.
—Lúðuafli var meiri en nokkuru
sinni áður og var mest af lúðunni
selt til Akureyrar. Hákarl fekst
enginn, hvernig og hvar sem reynt
var. Mestallur sumaraflinn var
verkaður, metinn og pakkaður í
eynni. Telst það nýlunda, en gafst
ágætlega.
HÆST ARÉTTARDÓM U R
var í morgun kveðinn upp í máli
því, sem Lárus Jónsson fyrv. læknir
á Kleppi, höfðaði gegn rikissjóði,
til skaðabóta fyrir, að honum hefði
ranglega verið vikið úr stöðu sinni.
Með undirdóminum voru L. J.
dæmdar allmiklar bætur, en þeim
dómi var hrundið í hæstarétti. Sýkn-
aði hæstiréttur ríkissjóð algerlega
af kröfum Lárusar og dæmdi hann
til að greiða málskostnað fyrir báð-
um réttum, samtals 500 krónur.
—Vísir 7. marz.
ÚTVARPSNOTENDUM
fjölgar ár frá ári í öllum sveitum
Borgarf jarðaif. Af 28 bæjum i
Reykholtsdalshreppi hafa nú 20 út-
varpstæki. Lík hlutföll eru í fleiri
sveitum Borgarf jarðar. Mestum
erfiðleikum veldur það, að koma
rafgeymum í hleðslu og verða flest-
ir að senda þá til Borgarness.
—Alþbl. '
FLÖSKUSKEYTI
fann Adolf Ásbjörnsson frá Ólafs-
vik í gær rekið á f jörum vestan við
Ólafsvíkurenni. Skeytið var merkt:
nr. 78 frá vísindastofnuninni Yak-
utsk og hafði því verið varpað í sjó
við Síberíuströnd árið 1927.
Ólafsvík, 6- marz.
STARFSMENN
LANDSBANKANS
Nokkurar breytingar hafa verið
gerðar á starfsmannahaldi Lands-
bankans, og mun hér vera um bráða-
birgðaráðstafanir að ræða. Hilmar
Stefánsson, útbússtjóri á Selfossi,
verður aðalféhirðir fyrst um sinn,
en Guðmundur Guðmundsson hefir
fengið lausn frá aðalféhirðisstörf-
um um stundarsakir. Skift hefir
og verið um starfsmenn i útbúinu
á Klapparstíg. Mun Haukur Vig-
fússon verða starfsmaður þar, en
Ingvar Sigurðsson tekur við starfi
1 aðalbankanum. Þá hefir verið
skift um aðstoðargjaldkera aðalfé-
hirðis og gegna þeir öðrum störf-
um, a meðan rannsókn stendur yfir
út af seðlahvarfinu. — Rannsókn í
þvi máli heldur enn áfram, en ekk-
ert hefir enn upplýst i því, sem leitt
hafi grun að nokkrum einstökum
starfsmanni eða orðið til upplýs-
ingar um það með hverjum hætti
peningarnir hafi horfið.
—Vísir'6. marz.
AFLABRÖGÐ
Sæmilegar gæftir og ágætur afli
var á Sandi og í Ólafsvík síðastliðna
viku. Áður var gæftaleysi og afli
mjög tregur. Allir bátar úr þessum
veiðistöðvum voru á sjó í dag.
Ólafsvík, 6. marz.
ARSHATIÐ
MENTASKÓLANS
á Akureyri var haldin að venju á
Jónsmessu Hólabiskups. Skóla-
meistari setti hátíðina og bauð gesti
vellcomna og mintist íslands. Því
næst flutti Þórarinn Bijörnsson er-
indi um kenningu Bergsons um hlát-
urinn, eðli hans og hlutverk. Óskar
Magnússon frá Túngunesi signdi
minni Jóns helga. Bárður Jakobs-
son frá Bolungarvík mælti fyrir
tninni skólans, Árni Jónsson á Ak-
ureyri mintist kvenna, en Steingrím-
ur Jónsson bæjarfógeti þakkaði skól-
anum gestanna vegna. Tvöfaldur
kvartett, undir stjórn Guðmundar
Matthíassonar úr Grímsey, söng
yfir borðum. Dans var stiginn fram
undir morgun. Hátíðin hófst kl. 8
að kvöldi. Skólinn var skreyttur
málverkum listfengra nemenda og
fjölbreyttum ljósum. Steindór
kennari Sigurðsson sá um skreyt-
ingu.—Hátíðina sóttu um 300 manns
eða fleiri en nokkru sinni fyr.
Skeyti barst frá háskólastúdentum
útskrifuðum úr Mentaskólanum á
Akureyri.—N. Dagbl. 2. marz.
FRA VIK I MÝRDAL
5. MARZ
Að undanförnu hefir veðrátta
verið mjög umhleypinga- og storma-
söm. Tíðir suðvestanstormar hafa
valdið talsverðum sandágangi í
Víkurkauptúni, þótt ekki séu nærri
eins mikil brögð að því ennþá, eins
og í fyrravetur. Garðar þeir, sem
hlaðnir voru í haust á sandgræðslu-
svæðinu hafa og dregið nokkuð úr
sandfoki inn í kauptúnið.— í suð-
vestanáttinni seint í siðasta mánuði
kom allmikill timburreki á fjörur í
Mýrdal og víðar. Trjáviður þessi er
einkúm plankar, og er talið að þeir
muni skifta hundruðum, sem rekið
hafa á Mýrdalsf jörur og þykir þetta
góður fengur. Annars virðist þetta
hafa legið allengi í sjó og því orðið
misjafnt að gæðum, og fúi kominn í
suma plankana. — Vegna kartöflu-
sýkinnar, sem síðastliðið haust ónýtti
uppskeru manna unnvörpum í Mýr-
dal og víðar, hefir verið gerð fyrir
milligöngu hreppsnefndar Hvamms-
hrepps stórfeld pöntun á útsæðis-
kartöflum fyrir vorið, og er búist
við að Búnaðarfélag íslands fái þær
frá útlöndum. — Tófuvargur gerir
nú mjög vart við sig í sveitum aust-
an Mýrdalssands, einkum í Skaft-
ártungu og Útsíðu. Vita menn ó-
gerla hvaðan tófa hefir komið, nema
ef kynni að vera utan af Landi eða
Rangárvöllum. Hefir hún nokkuð
bitið fé manna, en mest hefir þó
enn borið á slóða og troðningi eftir
dýrið. Hefir nú verið tekin upp
eitrun allsstaðar á þessu svæði, sem
menn ætla að komi að haldi, því svo
var fyrrum, að það eitt dugði, er
tófu var útrýmt úr Skaftafellssýsl-
um nálægt aldamótum síðustu. —
Nýlátnar eru í Skaftafelssýslum
Guðfinna Björnsdóttir ljósmóðir,
miðaldra, kona Lofts Guðmunds-
sonar oddvita á Strönd í Meðallandi
og Kristín Vigfúsdóttir á Borgar-
felli i Skaftártungu, hún var ekkja
Sæmundar Jónssonar, er þar var
hreppstjóri og látinn fyrir mörgum
árum. Kristín var nær 89 ára.
—N. Dagbl.
KOLANAMUR VIÐ
AKLAVIK
Kolalög hafa fundist í jörðu í
nánd við þorpið Aklavík, N. W.
Territories. Þótti það happafundur,
því lítið er um eldsneyti þar um
slóðir og erfitt aðdráttar, én kuld-
inn mikill, þar sem þorpið er á
strönd Norðuríshafsins. Kolin eru
talin jafngóð þeim beztu, er fundist
hafa í Albertafylki.
Alt til þessa hafa íbúar Aklavíkur
höggvið skóg til brenslu, en nú mun
hann á þrotum þar í grend. Allmik-
ið af olíu hefir einnig fundist þar
norður frá en hreinsunartæki eru
svo ófullkomin, að ekki fæst nóg til
hitunar. Verð á kolum í Aklavík er
um $25 tonnið, og verður það mikill
sparnaður, ef hin nýju kol reynast
eins vel og af er látið.
Flestum kom á óvart að kol skyldu
finnast á þessum stað, þþ kemur það
heim við niðurstöður Alexanders
McKenzie, landkönnunarmannsins
fræga, er svæði þetta rannsakaði
1789.
FORN LEIFAFUND UR
1 síðastliðin þrjú ár hafa nokkrir
vísindamenn frá Harvard háskól-
anum verið að rannsaka merkan
fornleifafund í grend við Panama-
skurðinn.
Mið-Amcríka var um eitt skeið
bygð af Indíánum á mjög háu menn-
ingarstigi. Þeir voru náskvldir
Tncunum, sem bjuggu í Suður-Ame-
riku og Aztekum í Mexico. Colum-
bus komst í kynni við þjóðflokk
þennan á fjórðu og síðustu ferð
sinni T502, og flutti til Spánar sagn’-
ir af auðlegð þeirra og menning.
Nokkru seinna fóru Spánverjar að
venja komur sínar til landsins, og
fóru, eins og þeirra var siður, hvar-
vetna með ránum og gripdeildum.
Ýnisa skartgripi fluttu Spánverjar
heim með sér, en þeir voru jafnan
bræddir niður og gullið síðan notað
til annara þarfa.
Aðeins á stöku stað i sögu Spán-
verja, finnast nú sagnir um þessa
merku þjóð, sem bjó i Codé-hérað-
inu, skamt frá þar sem nú er Pan-
amaskurðurinn. Svo mikið vita
menn samt að þjóðin var hraust og
harðfeng, og varðist yfirgangi hvítra
manna. Árið 1531 hörfuðu þó
nokkrir þeirra undan og leituðu hæl-
is í Sierras-f jöllunum. Þar búa af-
komendur þeirra enn í dag.
Fyrir svo sem 30 árum síðan
breytti Codé fljótið (Rio Grande
de Codé) um farveg og ruddi sér
braut i gegnum fornan grafreit.
Fyrir fimm árum síðan áttu nokkrir
Indíánar ferð eftir fljótinu, sem þá
var mjög vatnsb'tið sökum þurka.
Þeir sáu þá glitra á einhverja hluti
á árbakkanum og reyndust þeir vera
úr skýru gulli. Indínarnir seldu
gersemar þessar og keyptu sér
brennivín fyrir. Nokkru seinna
fréttist til Harvard að mjög sér-
kenmlegir og fornlegir hlutir væru
til sölu í skranbúðutn í Panama-
borg. Þá var gerður út leiðangur
til að rannsaka þetta nánar. For-
ingi leiðangursins var Dr. Samuel
Kirkland Lothrop.
Nú var leitað í þessum æfagamla
grafreit og fundust í einni gröfinni
sex beinagrindur, sem lagðar höfðu
verið á stórar hellur, og yfir 2,000
forngripir af ýmsu tægi þar hjá
Þar á meðal voru hálsmen og arm-
bönd úr gulli, sett með dýrum stein-
um. Einnig brjóstverjur úr gulli
með alls konar drekamyndum, og
eyrnahringir, mjög haglega gerðir.
Þarna fundust líka speglar úr fægð-
um steini eða krystalli, ýmsar mynd-
ir telgdar úr hvalsrifjum, spjóts-
oddar úr fiskbeinum, hálsbönd úr
hákarlstönnum og villigaltartennur
greyptar í gullumgerðir.
SELAVEIÐl
Árlega er gerður út floti selveiða- |
skipa frá Nýfundnalandi, og er !
hann að veiðum mánuðum saman í !
Norðurishafinu. Nú er bráðlega |
von á flotanum heim aftur með
stærstu veiði, sem fengist hefir í
f jöldamörg ár. I St. John’s, höfuð-
borg Nýfundnalands, er uppi fótur
og fit, og verður veiðimönnunum
fagnað með veizlum og hátíðahöld-
um, þegar heim kemur.
Yfirmaður flotans er Abraham
Kean, fyrrum fiskimálaráðgjafi í
stjórn Nýfundnalands, og skipstjóri
á skipinu Beothic. Hann er 79 ára
gamall og hefir stundað selveiðar i
62 ár. Kean hefir veitt yfir miljón
seli á skip sin.
Átta gufuskip eru í flotanum og
hefir “Imogene” mestan afla, eða
52 þúsund seli. Næst er “Beothic”
með 40 þúsund seli. Stærsta skipið
er “Thetis” með 100 manna skips-
höfn. Það skip lenti í ís og brotnaði
skrúfan á því á dögunum, og
berst það nú fyrir straum og vindi.
Þó er skipið ekki sagt í hættu og
verður dregið í höfn, þegar nógu
stórt skip fæst til þeirrar ferðar.
Enn mun nóg af sel á ísaflóunum
þar norður frá, og veiðast stundum
alt að fjögur þúsund selir á dag.
STAVISKY HNEYKSLIÐ
Enn er verið að rannsaka Stavisky
tnálin í Frakklandi, en lítið er enn
örðið uppvíst í því máli, og lítið hefir
gerst, nema hvað nokkrir lægri em-
bætismenn bæði í Paris og Bayonne
hafa orðið að láta af störfum sínum.
Aðal sökudólgarnir ganga enn lausir
þrátt fyrir öll ósköpin, sem á hafa
"engið. Franska stjórnin er völt í
sessi og miáfeir eflaust völd, ef ekki
verður látið til skarar skríða. Ýmsir
færustu menn úr leynilögregluliði
Frakka hafa verið skipaðir í rann-
sóknarnefndina, og hafa þeir sér til
aðstoðar tvo færustu leynilögreglu-
menn Breta, þá Fredrick Wensley,
fyrrum yfirlögregluþjón við Scot-
land Yard og Sir Basil Thomson,
sem frægur varð fyrir handtöku
Mata Hari, spæjarans nafnkunna.
Sir Basil átti mestan þátt í þvi að
hún varð sönnuð að sök.
Margt er nú komið i ljós, sem
áður var hulið. Til dæmis þykir nú
sannað, að Stavisky hafi verið inyrt-
ur, en hafi ekki framið sjálfsmorð,
eins og ætlað var í fyrstu.
Morðingjar dómarans Albert
Prince eru enn ófundnir, en lög-
reglan segist vera á hælum þeirra.
Tveir menn hafa svarið fyrir rétti
að skrifari Staviskys, Gilbert Ro-
manigno, hafi vaktað bústað dóm-
arans í nokkra daga fyrir morðið.
Gimsteinar þeir, sem Stavisky
kom undan, áður en Bayonne búð-
inni var lokað, hafa nú fundist, að
minsta kosti nokkuð af þeim. I
hinni velþektu veðlánabúð Suttons
í Lundúnum fundust gimsteinar,
sem Stavisky hafði átt. Þeir eru
metnir á hálfa miljón dollara. Þá
fekk lögreglan grun um að eitthvað
af verðmætum Staviskys væri að
finna í húsi einu í Fontenay-saos-
Bois. Þar var leitað og fanst þá
ekkert nema tvær nýgrafnar holur,
önnur í kjallaranum en hin i garð-
inum framan við húsið. Þóttust
menn vita að einhverjir, annað hvort
úr lögregluliðinu eða dómsmála-
ráðuneytinu, hefðu gert húseigend-
unum aðvart.
Svo er æsing manna mikil út af
þessu hneyksli að fangar nokkrir,
sem teknir höfðu verið i sambandi
við mál þetta, voru teknir af skriln-
um og næstum drepnir, meðan verið
var að flytja þá frá Bayonne til
París. _________________
SAKAMAÐUR FUNDINN
James Fahey, Jasper, Alta., var
fyrir skömmu tekinn fastur fyrir
brot á friðunarlögum Albertafylkis.
Hann hafði verið að veiða dýr i
NÚMER 14
Eldgos í Skeiðarárjökli
Óljósar fregnir hafa borist hingað
vestur um eldgos í Skeiðarárjökli.
Umbrot i jöklinum byrjuðu á föstu-
daginn var og heyrðust drunurnar
í 155 mílna fjarlægð. Svo mikið
kvað að eldgosinu á þriðjudaginn,
að aska féll um alt Austurland.
Samkvæmt skeyti frá íslandi á
þriðjudaginn, var talið að upptökin
væru einhversstaðar í Vatnajökli,
norðan við Skeiðará.
Ekki verður enn sagt hvað alvar-
legt þetta gos kann að vera, en um-
brot í gýgnum hafa ágerst undan-
farna daga.
leyfisleysi, og komst það upp er
fingraför hans fundust á gildrunum.
Við nánari rannsókn kom í ljós að
Fahey heitir réttu nafni Frank
Grigware og hafði hann, fyrir 24 ár-
um siðan, brotist út úr Leavenworth
fangelsinu í Bandarikjunum. Hann
hafði verið dæmdur til lífstíðar
fangavistar fyrir póstrán.
Nú heimtar stjórn Bandaríkjanna
að Fahey sé framseldur, en það mæl-
ist illa fyrir, þar sem hann hefir þótt
hinn mesti sómamaður öll þau ár
er hann hefir dvalið í Albertafylki.
Enn hafa engar ráðstafnir verið
gerðar þessu viðvíkjandi, en málið
kemur fyrir um miðjan þenna mán-
uð.
Þingmenn Albertafylkis hafa látið
i ljó meðaumkun sína með manni
þessum og hafa skorað á Roosevelt
forseta að sýna vægð í þessu til-
felli.
DAFOE OTNEFNDUR TIL
KANZLARAEMRÆTTIS
T. W. Dafoe, aðalritstjóri-Winni-
peg Free Press, verður, að öllum
likindum, næsti kanzlari Manitoba
háskólans. Ejrlcibiskup Matheson
hefir gegnt þvi heiðursembætti til
margra ára, en hefir nú sagt af sér
sökum elli og lasleika.
Dafoe er löngu orðinn þjóðkunn-
ur maður fyrir skrif sín. Hann er
einn af áhrifamestu ritstjórum
þessa lands og er honum með út-
nefningu þessari verðugur sómi
sýndur.
STÆRSTI STJÖRNU-SJÓN-
AUKI HEIMSINS
í borginni Corning í New York
ér verið að steypa glerið í stærsta
stjörnu-sjónauka heimsins. Sjón-
glerið er 16 fet og 8 þumlungar að
þvermáli, um 2 fet á þykt, og veg-
ur um 34 smálestir. Glerið er brætt
við 1500 stiga hita, mældan á Cel-
cius, og er svo helt í mótið. Um
4 þúsund manns höfðu komið saman
til að horfa á meðan spegillinn yrði
steyptur og stóð það fólk á háum
palli ofan við bræðsluofninn, 50 í
senn.
Hingað til hafa slík gler verið
steypt í Evrópu, og þykir það hinn
mesti vandi, en nú eru Ameríku-
menn svo langt komnir í þessari list,
að óhætt var talið að treysta þeim
fyrir verkinu. Dr. George Vest Mc-
Cauley, eðlisfræðingur, hafði um-
sjón með smíðinni.
Stærsti stjörnu-sjónauki, sem áð-
ur var til, er sá í stjörnuturninum á
Mount Wilson, Cal., og er sjóngler
hans réttum helmingi minni en það
sem nú er í smíðum.
Það verða að minsta kosti f jögur
ár þangað til glerið er fullgert. Fyrst
þarf að kæla glerið, og tekur það
tiu mánuði; síðan þarf að slípa það
mjög vandlega, og verður það að
gerast smám saman svo það ekki
hitni og aflagist. Alt þetta verk mun
taka um þrjú ár, að minsta kosti.
Sex miljónir dollara voru veittar
fyrir nokkru úr Rockefeller-sjóðn-
um (Rockefeller Foundation) svo
að hægt væri að ráðast í þetta fyrir-
tæki. Ótal stjörnu- og eðlisfræðing-
ar voru kvaddir til ráðagjörða, og
tókst þeim að lokum að ráða fram
úr þeim örðugleikum, sem í vegi
voru.
Þegar sjónaukinn verður full-
smíðaður, verður hann -sendur til
Californiu og settur i stjörnuturn
California Institute of Technology
i Pasadena.
Með sjónauka þessum ætti að
sjást þrisvar sinnum lengra út í him-
ingeiminn en áður hefir sést.
ÍSLENDINGUR SKIPAR
FORSÆTI
Mr. S. E. Johnson, 1083 Dowm-
ing St., Winnipeg, var nýlega kos-
inn forseti United Commercial Tra-
vellers of America.
Mr. J. Snydal frá Shoal Lake var
forseti þessa félags á undan Mr.
Johnson.
Mr. S. E. Johnson er Islendingur,
sonur þeirra Mr. og Mrs. Einar
Johnson, 1083 Downing St., Win-
nipeg. Þau bjuggu fyr við Lundar,
Man.
Mr. Johnson er dugnaðar- og
gáfumaður og mun standa vel í
stöðu sinni. Hann er einn af um-
boðsmönnum Codvilles félagsins hér
í fylki.
RORG RRENNUR
FellibylUr og eldur gerðu stór-
tjón í borginni Hakodate í Japan,
síðustu viku. Vindurinn kom með
70 mílna hraða á klukkustund utan
af sjó og lagði í rústir timburhjalla
og vörtiskýli við höfnina. Þegar
þök fuku af húsum, kviknaði þegar
eldur og barst hann með geisihraða
um borgina. Slökkviliðið fékk ekki
við neitt ráðið og brunnu þarna um
23 þúsund hús. Fimtán hundruð
manns dóu og tvö þúsund meiddust.
Tuttugu og þrjár þúsundir urðu
húsnæðislausar.
Þetta er stærsti eldur, sem komið
hefir upp í Japan, síðan Takio brann
1923.
Herskip voru þegar send til Hako-
date og fóru þau með klæðnað og
vistir til íbúanna. I borginni var
ljótt um að litast eftir eldinn og
flóðið. Lík í hundraðatali láu í
fjörunum; hafði bylurinn valdið
vatnsflóði í borginni og hafði það
skolað líkunum til sjávar með út-
falli. Hópar af hröfnum komu
fljúgandi ofan úr fjöllunum, morg-
uninn eftir, og flögruðu þeir yfir
borginni.
Hakodate er níunda stærsta borgin
i Japan.
SAMUEL INSULL TEKINN
FASTUR
Loks mun nú komið að því að
Bandaríkin handsami Insull. Skipið
Maiotis, sem Insull leigði á dögun-
um, var sett fast í Marmarahafinu
af tyrknesku yfirvöldunum, og tóku
þau Insull og fóru með hann til
Istambul (Konstantinopel), og er
hann þar í varðhaldi.
Tyrkir hafa tilkynt Bandaríkja-
stjórninni að fanganum verði ekki
slept og megi hún láta sækja hann.
Endar hér að líkindum hinn lang-
varandi eltingaleikur við Insull.
Fjárbálabraskarinn kvað bera sig
illa. Hann þykist vera ofsóttur af
Bandaríkjastjórninni og gerir mikið
úr því hve gamall hann sé orðinn og
heilsutæpur.
Að líkindum verða einhverjir
bandarískir lögregluþjónar sendir til
Týrklands til að sækja Insull.