Lögberg - 14.06.1934, Side 1

Lögberg - 14.06.1934, Side 1
47. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. JÚNÍ 1934 NÚMER 24 FRÁ ÍSLANDI ALFTIRNAR A TJÖRNINNI í fyrra sumar urpu tvenn álfta- hjón hér við Tjörnina, sem kunnugt er. Átti önnur 3 unga, en hin tvo. Auk þess voru á Tjörninni 3 vetur- gamlar álftir. í fyrrahaust voru álftir þessar ekki vængstýfðar eins og áður hafÖi verið gert og hafa því verið fleyg- ar og frjálsar siðan. í vetur hafa álftir þessar, tólf að tölu, oft komið hingað á Tjörnina, og hafa brunaverðir þá jafnan ann- ast um að gefa þeim. Annars hafa þær haldið sig oft í Kópavogi, Elliðaárvogi ellegar inni á Elliðavatnsengjum. Þegar þær hafa komið hingað hafa ungarnir frá í fyrra jafnan haft forystu, en fjölskyldurnar hafa haldið saman. Þangað til leið að sumarmálum, þá sleit samvistum milli foreldra og unga. Um það leyti varð þess vart, að ein fullorðna álftin var horfin úr hópnutn er álftirnar komu til bæj- arins. Var það annað hjónanna er hreiður átti í fyrra í syðsta hólman- um, sem umkringdur er á Tjarnar- síkinu. 'Hefir sú álft sennilega far- ist, verið skotin, eða annað orðið henni að aldurtila. Tveir smáhólmar hafa yerið gerð- ir í vetur í syðri tjörninni, sunnan við Tjarnarbrúna, en álftirnar eru mestmegnis á suðurtjörninni á sumr- in, haldast ekki við á nyrðri tjörn- inni, því þar er krían þeim of ráð- rík. Nú fer að líða að þeim tíma, er álftir búa sig til varps. Er nú eftir að vita, hvort nokkuð af þessum fleygu, fögru fuglum taka sér ból- festu hér við Tjörnina í sumar. Ef ekkert af þeim kemur munu margir bæjarbúar sakna þeirra mjög. —Mbl. I'RA BLÖNDUÓSI 14. MAI Aðalsýslufundur Austur-Húna- vatnssýslu stóð yfir hér á Blönduósi dagana 4.—9. þ. m. Rúmlega 40 erindi lágu fyrir fundinum auk venjulegra reikninga. Tekjur og gjöld sýslusjóðs voru áætluð kr. 19,362.77. Niðurjöfnuð sýslusjóðs- gjöld voru 16,300 kr. Særsti gjalda- liður áætlunarinnar er til heilbrigðis- mála, 7,150 kr. og næsti skulda-af- borgun 3,500 kr. Tekjur og gjöld sýslusjóðs voru áætluð kr. 25,645.74. Q sambandi við þá áætlun var sam- þykt að ef verkamenn ekki fengjust fyrir 60 til 65 aura kaup um klt. í vor, skuli ekkert unnið að vegagerð, en fénu þá varið til greiðslu á skuld- um sýsluvegasjóðs við ýms vegafé- lög.—Vísir. AFENGISBRUGGUN 1 KEFLAVIK Nýlega fékk Björn Blöndal bréf þess efnis, að bruggun mundi hafa átt sér stað í ^llan vetur í fiskimjöls- verksmiðju í Keflavik. Einnig var þess getið að þar mundi nú áfengi í gerjun og ætti að vinna úr því fyr- ir hvítasunnu. Björn fór því í fyrradag suður í Keflavík og hafði með sér 4 lögregluþjóna. Fyrst er þeir komu inn í verksmiðjuna, sáu þeir ekkert er stutt gæti grun þeirra. En brátt fundu þeir palla tvo uppi undir þaki. Þar fundu þeir olíu- tunnu fulla af áfengi í gerjun. Einn- ig fundu þeir suðupott 30 lítra. Á öðrum stað í verksmiðjunni fundu þeir olíuvél, sem notuð hafði verið við suðuna. Seinast fanst tunna sú, er notuð var við kælingu. Alt var þetta vandlega falið með pokum og leit í fyrstu út sem pokahrúgur væru. Afhenti Björn málið í hend- ur sýslumannsins i Hafnarfirði.— Mbl. 13. maí. FAGURT ISLENZKT HANDBRAGÐ Fátt íslenzkrar framleiðslu, þeirr- ar er sýnd var í gluggum “íslenzku vikunnar,” mun að fegurð hafa jaínast við heimilisiðnaðinn frá Svalbarði, er sýndur var i gluggum Gudmann’ Efterfölgers hér á Akur- eyri, þótt færri munu því miður hafa tekið eftir en skyldu. Unnið höfðu þær mæðgur frú Bertha Eíndal og frú Helena dóttir hennar. Sérstak- lega er vert að geta um gólfdúk mikinn og fagran, 2^x3!/^ metrar að stærð, al-handflosaðan, þar sem gerð og litum var stilt í hið fegursta samræmi. Sömuleiðis glitofna á- breiðu eða veggtjald, skínandi fag- urt, ofið í sama stíl og gömlu, ís- lenzku glitáklæðin, sem einmitt um siðustu aldamót voru að hverfa úr sögunni, fyrir skilningsleysi lands- manna á eigin ágæti og gleypifýsn þeirra við mörgu útlendu fánýti. Ennfremur var þarna ýmis smærri flosvefnaður, en alt með sama snild- ar handbragðinu.—Á hin útlenda heiðurskona hinar mestu þakkir skil- ið fyrir þessi afrek sín í þágu einn- ar hinnar elstu og fegurstu íslenzkra listgreina.—Dagur. SIRA GUÐM. EINARSSON að Mosfelli er nýlega farinh til Hafnar til þess að sitja þar fund er “Folkekirkeligt Filantropisk For- bund’’ gengst fyrir. Þar koma sam- an fulltrúar frá ýmsum löndum, til að ræða um líknarstarfsemi allskon- ar. SIRA JÖSEP JÓNSSON að Setbergi hefir nýlega verið skip- aður prófastur í Snæfellsnesspró- fastsdæmi. BARNASKÓLANUM er nú lokið að þessu sinni. 1 Mið- bæjarskólanum voru 1,359 börn í vetur, þar með talin börn i Skild- inganesi (kent á tveimur stöðum) en þau voru 80. í Austurbæjarskólan- um var rúmlega 100 börnum fleira, og eru þá talin með börn í skólun- um í Sogamýri og Lauganeshverfi. í Landakotsskólanum voru milli 150 og 160 börn. í æfingadeildum Kennaraskólans voru um 100 börn. , Skólinn var.haldinn í Grænuborg og voru þar 4 deildir, tvær undir stjórn Steingrims Arasonar og tvær undir stjórn ísaks Jónssonar.—Mbl. 16. maí. SÝSL UFUNDUR BORGARFJARÐARSÝSLU haldinn á Akranesi samþykti að sýslan taki 60 þús. kr. lán erlendis og Iáni ríkissjóði féð til þess að gera brú á Andakílsá neðan Fossa og leggja veg frá Skeljabrekku að Bá- reksstöðum. Enn fremur var sam- þykt að sýslusjóður borgi verka- mönnum í vinnu er sýslan leggur fé til, 60 aura kaup á klukkustund. —Mbl. 16. maí. TIL FORNAHVAMMS fór Páll Sigurðsson bílstjóri með farþegabíl nú í vikutíni. Hann segir bílfært upp á Holtavörðuheiði svo langt sem nýi vegurinn nær. Far- þegar fengu hesta yfir heiðina. Ferð- um verður haldið áfram. KVEÐJUSAMSÆTI Söngfélagið Geysir á Akureyri hélt hjónunum Sigtryggi Benedkits- syni og konu hans Margréti Jóns- dóttur, kveðjusamsæti síðastliðinn laugardag, með því að þau hjón flytja nú til Siglufjarðar, og gerði söngfélagið Sigtrygg að heiðursfé- lagavsínum. Mbl. 16. maí. Verkfall í Flin Flon námunum Á laugardaginn var hófst verkfall í námunum við Flin Flon, Man. Um tólf hundruð manns hættu allri vinnu, þegar Hudson Bay Mining and Smelting félagið neitaði að við- urkenna rétt Mine Workers’ Union til að semja, fyrir hönd verkamanna, við félagið. Mine Workers’ Union er nýstofn- að og segja vinnuveitendur í Flin Flon að því sé stjórnað af komm- únistum. Sendinefnd frá verkamannafélag- inu lagði fram þessar kröfur á laug- ardagsmorguninn: 1. Að eigendur námanna viður- kenni Mine Workers’ Union. 2. Að enginn verkamaður, sem tilheyrir Mine Workers’ Union, verði rekinn frá vinnu. 3. Að öllum verkamönnum, hvort sem þeir eru vinnulausir eða ekki, sé heimilt að ganga í verkamanna- félög. 4. Að allir, sem mist hafi vinnu við nátnurnar síðustu daga, séu aft- ur teknir í þjónustu félagsins. 5. Að kaup sé ekki lækkað en sú lækkun sem þegar hafi verið gerð, sé numin úr gildi. 6. Að ef að slys verði í námunni, megi ekki snerta við neinu fyr en leiðtogar verkamannafélaganna hafi rannsakað allar kringumstæður. 7. Að átta stunda vinnutími sé á- kveðinn, en aukavinna betur borguð. Mr. Green, formaður við námurn- ar neitaði að viðurkenna Mine 'vVorkers’ Union eða að taka til greina tillögur þess. Þá var verk- fallið hafið. Á sunnudaginn, þegar fréttin kom hingað til Winnipeg lögðu nokkrir embættismenn námufélagsins af stað til Flin Flon, með hraðlest. Með þeim fóru 19 menn úr riddara-lög- reglunni. Nokkrir menn eru enn í námun- um til að varna skemdum á verk- færum. Verkfallsmenn vildu ekki leyfa að matur væri fluttur til þeirra, og mun lögreglan eiga að sjá um, að ekki hljótist vandræði af þessurn deilum. Nokkrir foringjar verkamanna- flokksins hér í borginni hafa skorað á Bracken forsætisráðherra að jafna deiluna, með því að kref jast þess, að vinnuveitendur viðurkenni tafar- laust rétt verkamannafélagsins til að semja fyrir hönd meðlima sinna, um kaupgjaTd og vinnukjör. Hvað fylk- isstjórnin gerir er enn óvíst. Námufélagið segist reiðubúið að semja við verkamenn sína hvern í sínu lagi, eða jafnvel við erindreka þeirra, séu þeir löglega kosnir af verkamönnum sjálfum. Við Mine Wlorkers’ Union vilja þeir ekkert eiga. Admiral Togo Japanski sjóforinginn Togo lést fyrir nokkrum dögum. Hann varð heimsfrægur þegar. japanski flotinn vann sinn fræga sigur á Rússum 27. maí 1905. Togo var þá aðmíráll japanska flotans og stjórnaði hon- um af mestu snild, í orustunni, sem kend er við Tsushima. Orusta þessi er réttilega talin ein sú merkasta, sem nokkurntíma hefir háð verið á sjó. Upp frá þeim degi varð Japan stórveldi. Ávalt síðan hefir Togo verið þjóðhetja Japana og verið næstum tilbeðinn af alþýðu þar í landi. Síðustu árin lá hann rúm- fastur. Krabbamein í tungunni dró hann til dauða. Ríkið sá um út- förina og er það sérstakt virðingar- merki, sem sýnt er aðeins mætustu mönnum þjóðarinnar. Nýr flokksforingi Framkvæmdarnefnd samveldis- manna (Republicana) í Bandaríkj- unum héldu fund í Chicago á dög- unum, til að kjósa nýjan formann í stað Everett Sanders, er sagt hefir af sér. Fundurinn kaus Henry P. Fletcher til leiðtoga. Fundur þessi vakti afar mikla eftirtekt í Bandaríkjunum, því að framtíð flokksins þótti að miklu leyti undir því komin að hægt væri að sameina hin ýmsu brot og koma á samvinnu fyrir næstu kosningar. Innati flokksins eru mjög skift- ar skoðanir um það hvernig beri að skoða stefnu Roosevelts forseta. Hinir afturhaldssamari vilja að þingmenn flokksins beiti sér á móti öllum ráðstöfunum forsetans. Þeir vilja engu láta breyta frá því, sem var, áður en Roosevelt náði völdum. Aðrir vilja að flokkurinn styðji alla þá löggjöf, sem skvnsamleg sýnist vera og hjálpi þannig til að rétta við hag landsins. Hvorugur flokksparturinn fékk að ráða algerlega á fundinum og varð það að sættum að Henry P. Fletcher var kosinn formaður nefnd- arinnar. Fletcher hefir fengist allmikið við stjórnmál, og hefir skipað margar vandasamar stöður. Hann hefir verið sendiherra Bandaríkjanna í Chile, Mexico og ítaliu. Fyrsta em- bætti hans í þjónustu ríkisins var skrifara embætti við hendiherra- deildina í Cuba, árið 1902. Hann hefir jafnan verið talinn leiðitamur flokksmaður. Hér fyr á árum, þeg- ar Boies Penrose, senator, réði lof- um og lögum í Pennsylvania ríki, sótti Fletcher jafnan leyfi til hans, áður en hann gerði nokkrar ákveðn- ar ákvarðanir i stjórnmálum eða tók við nokkrum embættum, eftir þvi sem hann sjálfur segir. Fletcher er fæddur í Pennsylvania og ólst þar upp. Vinstri menn innan flokksins eru fremur óánægðir með valið og álíta Fletcher of hlyntan auðvaldinu. Þeir hefðu fremur kosið einhvern rót- tækari mann úr Vesturríkjunum. Samt eru flestir republikanar á- nægðir og vænta hins bezta af hin- um nýja leiðtoga, sem er glæsimenni í framkomu og góðum gáfum gædd- ur. Jarðskálftar á íslandi Skeyti frá Reykjavík til blaðsins Chicago Tribune, dagsett 4. júní, gerir meira úr jarðskjálftununi við Eyjafjörð, heldur en Associated Press, sem fréttina sendi til Winni- peg blaðanna um daginn. Eftir Tribune fréttinni að dæma hefir þegar orðið stórtjón af jarð- skjálftunum, alt að því miljón króna skaði og fleiri hundruð hús hafa hrunið eða skekst. í einu þorpi voru kðeitis 4 hús af 50, sem ekki hrundu, og kirkjan færðist af grunni, nokk- ur fet. Engir menn hafa rneiðst, því allir á þessu svæði hafa flutt sig úr hús- um og búa nú í tjöldum. Mestur skaði hefir orðið í þorp- inu Dalvik og þar í grenditíni. Bretar auka loftflotann Bretar hafa lengi verið smeykir við hinn öfluga flugher Frakka og Þjóðverja. Nú er í ráði að bæta 600 loftskipum við breska flugliðið, og verða þá Englendingar jafn sterkir Frökkum á þessu sviði. Það verða um fimm ár þangað til allar þessar flugvélar verða fullgerðar. Nú er vonlaust um að stórveldin fáist til þess að minka herútbúnað og liggur því ekki annað fyrir en að hver þjóð sjái um sig, eftir því sem efni leyfa. Kosningar Næsta þriðjudag, 19. júni, verð- ur gengið til kosninga í Saskatche- wan og Ontario. Kosningabardag- inn hefir verið bitur og er ómögulegt að segja hver úrslitin verða. Þrír flokkar sækjast nú eftir völd- unum. Tala þingmanna í Saskat- chewan hefir verið lækkuð úr 63 ofan í 55. Frjálslyndi flokkurinn hefir menn í kjöri í öllum kjördæm- unum og C.C.F. flokkurinn að lík- ingum einnig. Sama er að segja um íhaldsflokkinn. Kosningar í Athabasca kjördæminu fara fram 24. júlí. í Ontario er baráttan á milli gömlu flokkanna tveggja. C.C.F. kemur varla nema örfáum mönnum á þing, eftir þvi sem kunnugir menn segja. Atkvæðagreiðsla Literary Digeát Eins og minst var á hér í blaðinu fyrir nokkrum vikurn b;i hefir stór- blaðið Literary Digest rekist á hend- ur að komast eftir því hvað vin- sældir Roosevelts forseta séu mikl- ar þar i landi. Þetta er gert með því að senda atkvæðaseðla út um alt lancl og eru þeir, sem seðlana fá, beðnir að svara tveimur spurning- um. 1. Hvort þeir séu hlyntir stefnu Roosevelts og, 2. með hverjum þeir hafi greitt atkvæði 1932. Nú eru komnir aftur til blaðsins 625,920 miðar, frá 25 ríkjum. Af þessari tölu eru 370,491 með Roose- velt og 255,429 á móti. Öll rikin, jienia tvö, \’ermont og Maine, gefa Roosevelt meirihluta atkvæða. Mest- um vinsældum á hann að fagna í Texas, eftir þessari atkvæðagreiðslu að dæma. Þar fær hann 5,187 at- kvæði af 6,583. I Pennsylvania, Ohio o£ öðrum iðnaðarríkjum hefir fylgi Roosevelts aukist talsvert frá þvi 1932. í Nebraska og Iowa, þar sem ókyrð er á bændum, hafa vin- sældir hans minkað töluvert. Enn eru engin atkvæði komin frá Dakotarikjunum, en í Minnesota hefir Roosevelt þegar fengið 4,365 atkvæði með sér, en 2,343 á móti. Ekki er nema lítill hluti allra at- kvæðaseðla, sem sendir voru, komn- ir til baka og eiga þessar tölur ef til vill eftir að breytast eitthvað. Þá þarf ekki að taka það fram að at- kvæðagreiðsla þessi hefir ekkert gildi annað en það að sýna all-glögg- lega hvernig hugur fólks er yfirleitt til Roosevelts. Fróðlegt er í þessu sambandi að geta þess að nemendum við stærstu háskóla Bandaríkjanna voru einnig sendir atkvæðaseðlar. Flestir nem- endur við Harvard og Yale háskól- ana mörkuðu þá og sendu aftur um hæl. Við Harvard eru 1,083 me® stefnu Roosevelts og 639 á móti. Við Yale eru 973 með, en 640 á móti. Þetta er mjög eftirtektarvert þvi að svipuð atkvæðagreiðsla 1932 leiddi í ljós að yfirgnæfandi meiri- hluti námsmanna við þessa háskóla voru þá með Hoover. Þannig féllu atkvæði 1932: Við Harvard: Hover 1,741; Roosevelt 620; Thomas (sósíalisti) 484. Við Yale: Hoover 1,416) Roosevelt 370; Thomas 347. Yirtist þetta benda til þess að yngri mentamenn séu að fallast á stefnu forsetans. Alsherjar atkvæðagreiðslan sýnir, nú sem stendur, að næstum 20% af þeim, sem Roosevelt kusu 1932 hafa nú snúist á móti honum. Aftur á móti hafa 34.52% af þeim, sem þá greiddu atkvæði með Hoover, nú skift um skoðun. Skýrslur eru nýkomnar út um út- flutning Japana og hefir útflutning- ur verið 20% meiri en á sama tíma í fyrra. — Innflutningur Japana á sama tima hafði aukist um 8%. Cuba sjálfstætt ríki Öldungaráð Bandaríkjanna hefir nýlega numið úr gildi Platt-Iögin svonefndu, sem veittu Bandaríkjun- jum vald til að skera úr öllum deilu- málum eyjarskekkja, ef þeim bauð svo við að horfa. Platt-lögin hafa verið í gildi síðan árið 1902. Þegar þingið í Cuba hefir formlega sam- þykt breytingu þessa, verður þjóðin algerlega frjáls. I mörg ár hefir eyjarskekkjum verið meinlega við afskifti Banda- ríkjanna af sérmálum sínum. All- , oft hafa herskip verið send til eyj- anna, til að bæla niður uppreisnir, og álita margir að bandaríska stjórn- in hafi stundum styrkt þá forseta cil valda á eyjunum, sem bezt hefir verið trúað til að gæta hagsmuna stærri þjóðarinnar. Nú er Bandaríkjunum ekki leng- ur heimilt að senda herskip til Cuba, né heldur að skifta sér af fjármál- um hennar. Kunnugir menn ætla að stjórn Mendieta forseta sé nú orðin föst í sessi og muni í framtíðinni takast að koma á reglu í landinu, þótt enn séu miklir erfiðleikar framundan. Nikkel Nikkelnámurnar í Sudbury og Falconbridge eru nú óðum að auka framleiðslu sína til að mæta eftir- spurn, sem stöðugt fer vaxandi. Stjórnarskýrslur sýna að í apríl- mánuði var nikkel framleiðsla í Canada 12,924,418 pund, og er það meira en nokkurntíma hefir verið framleitt hér í landi, á einum mán- uði, að undanskildum nóvember 1929. , Allir vita að eftirspurnin eftir málmi þessum stafar aðallega af því að allar stórþjóðirnar eru nú að hervæðast, en nikkel er rnikið notað við framleiðslu skotfæra og vopna. Þingmenn í Ottawa skilja þetta mjög vel en geta ekki aðgert. Jafn- vel þótt bannað væri að selja nikkel út úr landinu, myndi það ekki koma í veg fyrir aukna vopnaframleiðslu. I stað nikkels má nota ýmsa málm- blendinga aðra, þótt slíkt yrði kostn- aðarmeira. , Vinnur nýtt met Karl Guðmundson frá Engle- wood, Calif., setti nýtt met í fót- knattleik sinum í Berkeley, Cal., laugardaginn hinn 26. maí s. 1., með þvi að kasta hnettinum 203 fet jyí þuml. Að þessum mikla vinning af stöðnum var hann sæmdur stórri gull-medalíu og meira af þar við- eigandi heiðri. Þessi ungi, efnilegi maður er að- eins 18 ára, yngsti sonur Bjarna smiðs Guðmunssonar og konu hans Inigbjargar Jónsdóttur, er áður fyr bjuggu í Winnipeg og síðar í Foam Lake, Sask., Canada. Þau búa nú í stórum bæ, er nefnist Englewood, rétt utan til við Los Angeles, Cal. Eg sendi hér með Lögbergi úrklippu úr einu af dagblöðunum hér, og færi gjarnan betur á að þýða hana, ef rit- stjórinn vildi heldur gera það, en að birta mína frásögn. Þá má geta þess til skýringar að unglingur þessi er 6 fet 2 þuml. á hæð, kraftagóður og snar, með góðmannlegan og traustverðan svip. Hann er nýút- skrifaður af miðskóla, en hefir nú þegar fengið tilboð um frítt nám- skeið á “university”, og ef til vill fleiri tækifæri til auðs og frama. Karl fer heldur ekkert dult með að hann sé íslendingur, frekar en foreldrar hans, og er það því meiri ástæða fyrir alla íslendinga að sam- gieðjast yfir þessum markverða sigri þessa unga manns. Erl. Johnson.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.