Lögberg - 05.07.1934, Blaðsíða 1

Lögberg - 05.07.1934, Blaðsíða 1
47. ARGANGUR , • WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. JÚLl 1934 NÚMER 27 FRÁ ÍSLANDI ÁAKUREYRI voru bygS 38 hús á síðastliÖnu ári, fyrir 540 þús. kr. Af þeim voru 28 ætlwð til íbúSar. Á fsafirði voru bygð 10 hús fyrir um 170 þús. kr. HOSABYGGINGAR I REYKJAVlK Á síðastliðnu ári voru bygÖ 146 hús i Reykjavík fyrir samtals 5 milj. kr. og er það 11/2 milj. kr. meira en 1932. Eftir notkun flokkast húsin þannig: 107 íbúðarhús, 6 skrifstofu- og verzlunarhús, 12 verksmiðjur og vinnustofur, 1 sjúkrahús og 20 gripahús, geymsluhús o. þvl. f hús- um þessum eru alls 204 íbúÖir.— N. dagbl. 12. júní. ÞÓRIR IAKOBSSON frá Hólum í Reykjadal í Þingeyjarsýslu, hafÖi um 12 ára skeið dvalið í Ameríku og kynt sér þar nýjustu framfarir og nýjungar í byggingarlist. Kom hann hingað heim aftur fyrir ári. f félagi við Hallgrím Benediktsson og Co., hefir hann gerst frumkvöð- ull að því, að firmað hefir látið steypa hellur, sem sýna hvernig nýj- ustu og vönduðustu hús vestan hafs eru gerð að utan. Er þetta nýjung, sem húsasmiðir hér ættu að athuga. —Mbl. 31. maí. NÝ SILDAROLIUVERK- SMIÐJA A NORÐEIRÐI Norðfirði 9. júní. Síldaroliuverksmiðja er nú í bygg- ingu hér á Norðfirði, í sambandi við mjölverksmiðju bæjarins. Verk- smiðjubyggingin sjálf er gerð úr járni, en sildarþróin, sem tekur þrjú þúsund mál, úr járnbentri stein- steypu. Er nú lokið byggingu verk- smiðjuhússins, en þróin verður bráð- um fullgerð. Nú er verið að setja vélarnar niður, og verður verk- smiðjan tilbúin í byrjun júlímánað- ar. Umsjón með verkinu hefir Árni Daníelsson verkfræðingur, sem einnig hefir teiknað þróna, og gert áætlanir.—N. dagbl. DANARFREGN Sigurbjörn Einarsson, faðir Björns gjaldkera á Selfossi og þeirra systkina, andaðist á Selfossi 3. þ. m. Sigurbjörn bjó á yngri ár- um í Þingeyjarsýslu og fluttist það- an til Akureyrar til að eiga hægra með að veita börnum sínum skóla- göngu. Sigurbjörn heitinn var myndarmáður hinn mesti, þrekmik- ill og vinsæll. Lík hans verður flutt norður til Akureyrar og jarðsett þar. —N. dagbl. 7. júní. AFLABRÖGÐ eru litil á Akur- eyri um þessar mundir og mun valda skortur á beitu. Sunnienskir togar- ar hafa lagt afla sinn þar á land undanfarna daga og hafa þeir Páll Einarsson og Sverrir Ragnars tekið fiskinn til verkunar. DRENGUR DRUKNAR Akureyri, 5. júní. Síðastliðinn sunnudag var bónd- inn á Björk í Sölvadal, Kári Guð- mundsson, á leið til næsta bæjar, ríðandi. Reiddi hann fyrir framan sig dreng sinn, 9 ára. Leið þeirra lá yfir Hlífá, sem venjulega er sem lækur, en nú er í vexti. f ánni reis hesturinn upp og prjónaði og runnu þá feðgarnir aftur af og féllu í ána. Rotaðist Kári í ánni og varð við- skila við drenginn. Hann kom þó brátt til sjálfs sín aftur, og hafði þá stöðvast á steini í ánni, en dreng- urinn var horfinn. Kári var nokkuð meiddur á höfði, og var fluttur á sjúkrahús Akur- eyrar.—Steingrímur læknir telur þó meiðslið ekki hættulegt. Lík drengsins fanst í gær i Núpá, sem Hlífá rennur í. LEIÐANGUR DR. NIELSENS Eftir heimkomu dr. Niels Nielsen eru dönsku blöðin full af frásögn- um'um Vatnajökulsleiðangur hans. Dr. Nielsen segir þar, að hvergi í heimi muni hægt að rannsaka sér- kenni eldgosa eins og þar. Hann tekur það og sérstaklega fram, að í þessum merkilega leiðangri hafi þá leiðangursmenn aldrei skort neitt, og að bæði Danir og íslendingar hafi veitt alla þá hjálp, sem hægt var að veita og sýnt hinn fylsta skilning á tilgangi leiðangursins. HROÐAVÖXTUR I AM 1 SKAGAFIRÐI Mbl. 6. júní. Hitabylgja hefir gengið yfir Norðurland undanfarna daga og valdið gríðarmiklum vatnavöxtum, sérstaklega í Skagafirði. Byrjuðu þessir vatnavextir í fyrramorgun og kom þá svo mikið hlaup i Héraðs- vötn að annað eins hefir ekki komið síðan árið 1925. Er þetta hlaup þó talið heldur minna en þá og byrjaði að fjara nokkuð um hádegi í gær. Héraðsvötnin flæddu yfir alt lág- lendi og var frá Sauðárkróki að sjá í gær eins og einn f jörð yfir Hólm- inn og láglendið alt niður á Borgar- sand. Byrjuðu hlaupin yfir lág- lendið nokkru fyrir framan Héraðs- vatnabrúna hjá Völlum. Hafa þau sumsstaðar brotið skarð í þjóðveg- inn. Dalsá í Djúpadal yfirgaf farveg sinn og flæðir nú yfir viðlendar eyr- ar þar sem hún kemur fram úr gljúfrafarveg sínum um dalinn. f fyrrakvöld var flokkur vega- gerðamanna fluttur til Hegraness, og átti að hefja vinnu við veg fyrir austan nesið. En það reyndist ó- gerningur vegna flóðsins. Hofsá hljóp í skurð rafveitunnar á Hofsósi og olli þar talsverðum skemdum á rafveitunni. Um aðrar eða meiri skemdir af völdum vatna- vaxtanna er enn ekki vitað.— DÓMUR var upp kveðinn í Hæsta- rétti í gær í máli því, er réttvísin og valdstjórnin höfðaði gegn Einari M. Einarssyni, fyrrum skipherra á Ægi. Mál þetta var, sem kunnugt er, höfð- að vegna margvíslegra misfellna, sem urðu hjá Einari í sambandi við töku togarans Belgaum um árið. Dómur Hæstaréttar var á þá leið, að öll málsmeðferð fyrir undirrétti var ónýtt, þar eð rannsókn málsins þótti ekki nægilega ítarleg.—Mbl. 7. júní. FISKAFLINN A ÖLLU LANDINU 1. JÖNI Samkvæmt skýrslu Fiskifélagsins hefir fiskaflinn á öllu landinu hinn 1. júní verið 53,619,920 kg. miðað við fullverkaðan fisk. Er það rúm- lega 4 milj. kg. minna en á sama tíma í fyrra. en talsvert meira en næstu tvö árin þar á undan. f öllum landsfjórðungum hefir aflinn orðið minni á þessu ári heldur en í fyrra, en á nokkrum veiðistöðv- um talsvert meiri, einkum í Vest- mannaeyjum. Þar er aflinn nú 2 milj. kg. meiri en í fyrra. í öðrum verstöðvum hér sunnan- lands hefir afli orðið meiri nú en í fyrra á Stokkseyri, Eyrarbakka, Höfnum, Sandgerði, Garði og Leiru. Hafnarfirði, Akranesi. í verstöðv- unum á Snæfellsnesi hefir afli orðið minni en í fyrra, sérstaklega á Stapa. Þar munar um nær helming. — Mbl. 6. júní. MANNSLAT. Nýlátinn er Kristján Jónsson fvrrum bóndi á Krumshól- um í Mýrasýslu, faðir Sigurjóns, sem þar býr nú. Hann var fæddur 1842 og var því kominn á 10. áratug- inn. Kristján var hraustur dugnað- armaður, en hafði verið rúmfastur nú á annað ár og var þá farin að förlast heyrn og sjón.—N. dagbl. 15. júni. SVANHVIT JÓHANNESSON, LL.B. Hún er dóttir Dr. Sig. Júl. Jó- hannessonar og konu hans. Hún út- skrifaðist í lögfræði síðastliðið ár með heiðurseinkunn og var henni veitt málaflutningsleyfi (called to the Bar) 26. júní. Meðan hún stundaði lögfræðis- nám var hún stöðugt hjá Hon. E. J. McMurray and C. T. Greschuk; hefir hún nú byrjað lögfræðisstörf í skrifstofu þeirra. Brownlee segir af sér Hon. J. E. Brownlee, stjórnar- formaður Albertafylkis hefir sagt lausu embætti sínu. Talið er líklegt að Hon. George’Hoadley, heilbrigð- ismálaráðgjafi, verði eftirmaður hans. Á laugardaginn var kveðinn upp dómur í máli því, sem ung stúlka. Vivian MacMillan frá Edson, Alta.. höfðaði gegn stjórnarformanninum. Hún bar það fyrir rétti að Brown- leé hefði dregið sig á tálar, og krafð- ist skaðabóta. Stúlka þessi vann i tvö ár á skrifstofu dómsmálaráðu- neytis Alberta í Edmonton, og kvað hún Brownlee hafa gint sig að heiman, og útvegað sér þetta starf, svo að hann ætti hægar með að koma fram áformi sínu. Brownlec neitaði þessu, en kviðdómurinn dæmdi stúlkunni $10.000 í skaðabætur og föður hennar, sem einnig lögsótti Brownlee, $5:000. Ives, yfirréttar- dómari, neitaði að staðfesta dóminn og er það sjaldgæft að úrskurðut kviðdóms sé ekki tekinn gildur í svona málum. Eflaust verður mál- inu skotið til áfríjunarréttar. Brownlee hefir gegnt stjórnarfor- mannsstöðu í Alberta síðan I925> °& hefir jafnan þótt hinn ágætasti mað- ur og miklum gáfum gæddur. Hneykslismál þetta hefir valdið miklu umtali. Doktors-nafnbót Eftirfylgjandi bréf var oss sent af Th. Thorvaldson, prófesor við Sas- katchewan háskólann. Blaðið kann honum beztu þakkir fyrir. Herra ritstjóri Lögbergs: Mér datt í hug að Lögberg myndi máske vilja geta þess að 18. þ. m. veitti Wisconsin háskóli landa okk- ar Thomas Jóhann Árnason, syni Thordar Árnasonar og Sigurrósar konu hans að Mozart, Saskatchewan, doktorsstig í heimspeki (Ph. D.) Dr. Árnason útskrifaðist frá Sas- katchewan háskóla sem sérfræðing- ur í líffræði (Biology) vorið 1931, og var veitt meistarastig (M. Sc.) af sama skóla vorið 1932. Sama ár veitti Wisconsin háskóli honum námsstyrk (Fellowship) og eftir tveggja ára starf þar var honum veitt doktorsstigið. Sérfag Dr. Árnasonar er Gctietics og doktors- ritgerð hans fjallaði um: Cyto- genetics of hybrids betzveen Zco mays and Euchlaena mexicana. Vinsamlegast, Thorbergur Thorvaldson. Newton lögregluáljóri faer lausn frá embætti VandrœSi í Þýskalandi Chris. H. Newton, lögreglustjóri í Winnipeg, sagði lausu embætti sínu á miðvikudaginn í fyrri viku. Hann hafði þá verið í þjónustu lög- reglunnar hér í 31 ár og lögreglu- stjóri í 15 ár. Hann þótti duglegur maður og var mikils metinn jafnt utan lands sem innan. Undir stjórn hans hefir lögreglulið þessarar borg- ar fengið á sig afbragðs orð. Úrsmiður nokkur hér í borg, Jo- seph Erlicky að nafni, höfðaði mál á móti lögreglustjóranum fyrir skömmu; átti lögreglustjórinn að hafa barið úrsmiðinn, er þeim varð sundurorða á götum borgarinnar seint á laugardagskveldið 2. júní s. 1. Málið hefir ekki verið útkljáð enn. G. St. L. Stubbs, fyrrum dómari, sótti málið fyrir Erlicky, en nú hef- ir hann fengið annan lögmann. Lík- lega verður sáttum komið á i mál- inu, og kemur þá ekki til réttar- rannsóknar. Mál þeta mún hafa orsakað það, að einhverju leyti, að Newton sagði af sér. Eftirmaður hans hefir ekki verið útnefndur en á meðan gegnir George Smith, yfirmaður leynilögreglu- deildarinnar, embættinu. EftirlaunNewtons verða um $250 til $275 á mánuði, en fult kaup fær hann til 1. janúar 1935, því uppsögn hans er miðuð við þann dag. Hann gegnir samt ekki neinum embættis- störfum lengur. Sambandsþingi slitið Sambandsþinginu var slitið á þriðjudagskveldið; það hefir setið Sl/2 mánuð og mikið starfað. Helstu mál, sem afgreidd hafa verið eru lögin um stofnun söluráðs, nýju bankalögin (stofnun mið- banka), lögin um látveitingar til bænda og lögin um hveitiflutninga á Stórvötnunum, og breytingar á kosningalögunum. Reynt var á síðustu stundu að fá stjórnina til að skipa konunglega rannsóknarnefnd. til að komast fyrir orsakir vandræðanna í Kingston fangelsinu. Það fékst ekki. Stevens- nefndin mun halda áfram sem kon- unglcg neínd því verki hennar er enn ekki lokið. Nýmæli þótti það, að stjórnin svifti Doukhobors kosningarrétti. Talsmenn stjómarinnar segja að Doukhobors hafi viljað þetta sjálfir, en aðrir segja að þeir hafi það helzt til saka unnið að greiða jafnan at- kvæði með þingmönnum frjálslynda flokksins. Verkfallið í Flin Flon Ekki er verkfallinu í Flin Elon námunum enn lokið, og verður út- litið stöðugt ískyggilegra. Á laug- ardaginn var urðu slagsmál, þegar nokkrir verkfallsmenn géngu úr verkamannafélaginu og vildu fá að byrja á vinnu sinni aftur. Þetta tókst ekki, þvi að hinir munu vera í meirihluta, enn sem komið er. Riddaralögreglan réði ekki við neitt, enda var hún þar liðfá. Bæjarráð- ið hefir nú skorað á fylkisstjórnina, að senda fleiri lögreglumenn þang- að, og á þriðjudag voru 14 menn sendir í flugvél þangað norður. Um sama leyti fóru 34 lögreglumenn frá Regina. Alls eru þar nú um 100 lögreglumenn. Mr. Jónas Pálsson hefir nýlega fengið yfirkennara embætti við hljómfræðadeild Columbian háskól- ans í New Westminster, B.*'C. Blöð þaðan að vestan fara lofsamlegum orðum um hæfileika þessa landa vors. Jónas Pálson var i mörg ár hljómlistarkennari hér í borg. Um síðustu helgi var róstusamt í Þýskalandi. I nokkrar vikur hefir borið talsvert á mótþróa þar i landi, gegn stjórn Hitlers, og gerðusf nokkrir menn svo djarfir að láta óánægju sina i ljós opinberlega. Sá sem reið á vaðið var vísi-kanzlari von Papen. Hann hélt ræðu þann 17. júni s. 1., þar sem hann ávítaði Hitler og þá liðsmenn hans, sem mest ofstæki hafa sýnt í því að kæfa allar mótbárur andstæðinga, hvað skynsamlegar sem þær hafa verið. Þótti mörgum von Papen djarf- mæltur og óttuðust um f ramtið hans, en Hitler lét sér nægja. að leggja bann við því að ræða þessi væri birt í þýskum blöðum. Svo liðu nokkrir dagar og varð skjótt sýnilegt að skoðanir manna innan Nazista-flokksins voru orðn- ar mjög skiftar. Hægri armur flokksins með von Papen og Schleicher í broddi fylkingar, heimt- uðu meiri réttindi fyrir trúmála- flokka, sérstaklega kaþólska, innan ríkisins. Einnig gáfu þeir í skyn, að þjóðin myndi taka því vel ef að einhver prinsinn af Hohenzollern ættinni væri tekinn til keisara. Vinstri mönnum, aftur á móti, fanst að Hitler vera af fylgitamur auð- valdinu og gerði lítið til að hnekkja valdi þess. Svo mikið kvað að þess- ari óánægju að ýmsir spáðu því að stór breyting yrði á stefnu flokksins og að Hitler yrði jafnvel vikið frá. Á laugardaginn var ákvað þvska stjórnin að hreinsa til innan f’okks- ins. Nokkrar deildir rikishersins voru kallaðar út og einnig lögregl- an í Berlín. Eftir nokkrar klukku- stundir var búið að handsama helztu forsprakka stormliða og þá aðra, sem grunur var á. Foringi storm- sveitanna, Ernst Roehm kafteinn, var sviftur embætti og framdi sjálfs- morð nokkru seinna. (Síðustu frétt- ir telja líklegra að hann hafi verið drepinn). Roehn var einn af hin- Kirkjuþingið í síðasta blaði var lítillega minst á gerðir kirkjuþingsins, sem hald- ið var í Selkirk dagana 22.-26. júní. Embættismenn kirkjufélagsins verða þeir sömu og verið hefir: Séra K. K. Ólafson, forseti; séra Jóhann Bjarnason, skrifari; og Mr. S. O. Bijerring fáhirðir. Vara- menn eru þeir sömu og áður. Framkvæmdarnefnd var endurkosin nema hvað séra Theodore Sigurðs- son kemur í stað Árna Eggertsonar. Helsta mál á dagskrá var skóla- málið. Niðurstaðan í því máli varð sú að skólanefndinni var falið að sjá um starfrækslu skólans næsta ár. Ef hún sér sér fært, á að halda skólanum opnum næsta ár. Annars á nefndin að selja eignina, svo fram- arlega, sem hægt verður með því móti að mæta öllum skuldum, sem nú hvíla á eignum skólans. Skatt- ar hafa ekki verið borgaðir í nokk- ur ár og nemur sú upphæð nú $2400. Til að hægt væri að bjarga eigninni, fekk skólanefndin 600 dollara lán úr heiðingjatrúboðssjóði, og skal það lán borgað eins fljótt og mögu- legt er. Á þinginu fengust loforð til skólans, sem námu rúmlega tveimur þriðju af þessari upphæð. Þá var nefndinni leyft að veðsetja skólaeignina í annað sinn, ef því yrði við komið. Nú þegar mun hún veð- sett á 5,000 dollara, eða þar um bil. Mme. Marie Curie, sú sem fann radium og tvisvar hlaut Nobelsverð- launin fyrir vísindastarf sitt, dó á miðvikudagsmorguninn 4. júli á heilsuhæli í Valence á Frakklandi. Hún var 67 ára að aldri, fædd í Warsaw á Póllandi 7. nóv. 1867. um róttækustu mönnum í Nazista- flokknum og aldavinur Hitlers. Þá var von Schleicher hershofðifigi, fyrrum kanzlari, skotinn til dauðs ásamt konu sinni. Hann á að hafa sýnt mótþróa, þegar lögreglan í Berlín ætlaði að handtaka hann. Þessu hélt áfram allan laugardag- inn og fram yfir helgina. Þá höfðu fleiri hundruð menn verið teknir af lífi, eftir því sem blöðin hér segja. Flestir voru þeir liðsforingjar í storm-sveitum Nazista, en þar segir stjórnin að vandræðin hafi byrjað. Allan mánudaginn voru herdeildir á ferðinni í Berlín. Herskálar storm- sveitanna voru umkringdir og grun- aðir menn handteknir. Elestir voru kallaðir fyrir herrétt og gefnar þrjár mínútur til að færa fram vörn í mál- um sínum. Siðan voru þeir teknir og líflátnir, en bumbur barðar á meðan, svo að skotin heyrðust ekki. Von Papen var tekinn og settur í gæzluvarðhald, en var fljótlega slept aftur. Hindenburg forseti mun hafa óttast um vin sinn og skipaði svo fyrir að ríkisherinn bæri ábyrgð á því að hann sakaði ekki. Annars er sagt að forsetinn sé samþykkur þeim ráðstöfunum, sem Hitler hefir gert til að bæla niður allan mótþróa í flokki Nazista. Hermann Wilhelm Goering, for- sætisráðherra Prússlands og hægri hönd Hitlers, hefir gefið hernum og lögreglunni allar skipanir, og ber því ábyrgðina á gerðum þeirra. Sagt er að von Papen missi vísi- kanzlara embættið, og fer það þá til Goerings. í stað Roehms hefir Victor Lutze verið skipaður yfir- foringi stormsveitanna. Á þriðjudaginn var alt með kyrr- um kjörum í Berlín og öðrum stór- borgum Þýskalands og Hitler fast- ari í sess en nokkurn tíma áður. Samt halda margir að vandræði hans séu nú fyrst að byrja, og spá því, að borgarastríð sé fyrir dyrum. Jarðskjálftarnir halda áfram Dalvík, sunnudag. Jarðskálftarnir halda hér áfram. Á laugardagskvöld komu hér tveir kippir; á sunnudagsnótt einn, og enn einn á sunudagsmorgun. Gísli Jónsson fyrv. sýslunefndar- maður að Hofi í Svarfaðardal er hér staddur. Hann hefir verið við skoðunargerð á jarðskjálftasvæðinu í Svarfaðardal undanfarna daga. Hann segir að allir bæir í Svarfað- ardal, fram að Urðum að vestan- verðu og Syðra-Hvarfi að austan- verðu séu meira og minna skemdir. En þó hafa peningshús og hlöður yfirleitt orðið fyrir meiri skemdum en sjálf bæjarhúsin. Á þessu svæði eru um 35 bæir. Sketndir á Litla-Árskógsandi. Þá segir ennfremur í þessari Dal- víkurfregn að nokkur býli við Litla- Árskógsand hafi skemst mjög í jarðskjálftunum. Á Látrarströnd urðu og meiri skemdir, en fréttist um í byrjun. Og á Grenivík er sláturhús Kaup- félags Eyfirðinga almikið skemt. Snarpir kippir í gœrkvöldi. í Svarfaðardal og á Dalvík var fólk farið að vona að nú væri jarð- skjálftunum lokið. Voru margir, sem hingað til hafa sofið i tiöldum farnir að hugsa um að flytja í húsin aftur. En í gærkvöld kl. 7 kom snarpur kippur og annar kl. 10 mínútur yfir 8. Svo nú varð fólk óttaslegið að nýju á jarðskjálftasvæðinu.—Mbl. 12. júní.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.