Lögberg - 12.07.1934, Side 7

Lögberg - 12.07.1934, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. JírLl 1934 7 ŒFIMINNING Mrs. Jakobína Jónasdóttir Jónsson andaÖist ab heimili sinu Straumnesi í grend vi?5 Riverton, Man., árdegis þann ti. júní s. 1. Hafði hún legiö rúmföst og þjáÖst í meir en fjögur ár; en um meirihluta æfinnar—einkum siðari árin allmörg—hafði hún veriÖ veil að heilsu og stundum legið rúmföst unt Iengri tíma.— Jakobina heitin var fædd 22. apríl 1855; heiti bæjarins þar sem hún fæddist er því ntiÖur ekki kunnugt. Foreldrar hennar voru Jónas Jónsson og Þórný Þorsteinsdóttir; var móÖurætt Jakobínu hin velkunna ReykjahliÖarætt. Hún ólst upp í Mý- vatnssveit. Ung aÖ aldri fluttist hún til Vesturheims áriÖ 1877, og mun hún nærri strax hafa sest aÖ við íslendingafljót. Þann 21. desember sama ár giftist hún unnusta sínum Birni Jónssyni ættuðum úr Borgarfiröi eystra. Fyrst voru þau á landi austan og sunnan við Riverton, er Akrahóll nefndist. En nokkru síðar námu þau land og nefndu þau landnám sitt Straumnes. Þar bjuggu þau unz Bijörn dó, árið 1912. Börn þeirra hjóna eru sem hér segir, upptalin eftir aldurs- röð: Jónina Solveig, gift Wj. G. Rockett, Riverton, Man.; Þórunn, dó ung, um 13 ára að aldri; Kristján Jóhannes, býr á Straumnesi; Emil Karl, einnig heima; Sigríður Stefanía, kona Guðjóns Johnson, Riverton, Man.; Jakob Alexander, til heimilis með bræðrum sínum á Straumnesi.— Tvær fósturdætur ólust upp á Straumnesi alt frá barn- æsku, þær Guðbjörg Björnsson, nú í Winnipeg og Emily Soffía Helgason, sem enn er á Straumnesi og sem annaðist fóstru sína og hjúkraði henni, með aðstoð barna hennar, í hinni löngu sjúkdómslegu hennar. Eftir dauða Björns heitins á Straumnesi bjuggu systkinin áfram með móður sinni, og farn- aðist mjög vel,—Oft var hún heilsuveil og það um lengri tíma, en átti þó mikinn lífsþrótt og þrek. Síðasta baráttan var bæði löng og ströng, en af fremsta megni tóku ástvinir hennar hönd- um saman um að láta henni líða eins vel og unt var í hinum langa sjúkdómi hennar. Hafði hun skýra og ljósa hugsun til hinstu stundar fram. Hún andaðist kl. 6.30 að morgni þess 11. júní s. 1. Jakoþina heitin hafði verið þrekkona að upplagi til, skýr talin og bókelsk; olli það henni mikillar. ánægju að synir henn- ar og fósturdóttir lásu oft fyrir hana í þjáningum hennar. Hún var trúuð kona, og unni trú feðra sinna af heilum hug. Sárt er hennar saknað af börnum og fósturdætrum hennar, tengdasonuni og tryggum vinum frá fyrri og síðari tíð. Börnum sínum og fósturdætrum og dótturbörnum er hún með öllu ó- gleymanleg. Jarðarförin, sem var mjög fjölmenn, fór fram þann 13. júní, fyrst á heimilinu og svo frá lútersku kirkjunni, andlega heimilinu hinnar látnu konu. Minningin um góða móð- ur lifir í þakklátum hjörtum barna hennar—og allra ástvina og kunningja.—Sóknarprestur jarðsöng.—.S'. Ó. Gaman og alvara BROT. I. Minnast mega móðUrjarðar fljóðin, firðar, farand-synir, þegar þúsund þýðir ómar kljúfa kögruð kólgu böndin. Hugar hýsin helgum straumum fyllast, fagna fögrum óði. iSöngelsk sálin sólu ofar, berst á bylgjum blíðra tóna. Minnist muni mærra daga, hýrra, hlýrra heima’ á Fróni. Sali sveita sólin gylti, vermdi vota vanga mína. Svásir syngja söngva börkum, fuglar fleygir, frjálsir, glaðir. Yfir elfur, engi, tinda, þeysast þeir i þúsund sveigum. Blærinn blundar, blómin ungu foldar faðminn fagra skreyta. Daggir drjúpa, dagur lyftist. Gyllir grundir geisli sólar. Hugur heillast. Hulinn máttur alheims afla æðar fyllir dýrri dygð og drenglund, göfgi, ■megni, móði, mildi, hreysti. Firðar frjálsir, frama gjarnir, muna myndir mála, skreyta. Markið móta, miða, sigta; hefjast handa, hugum stórir. Eldur, orka, iðni, gætni, móta mannsins megin gjörðir. Heilla hörgar hugann örfa, gáfna gróður, gullinn þroska. Vakið, vinnið, vösku sveinar! Trygða tengsla treystið böndin. Norrænn niðji Niflungs ætta, hugsar, heggur, hörfar ekki. II. Vitið vinnur, veitir ráðin. Mögnuð mundin möndul stýrir. Þungur þeysist þúfnabaninn yfir órutt akurlendið. Bændur byggja býlin smáu; ryðja, rækta rima blásna. Völlinn væna víkka, stækka; greiðir girða grösug túnin. Vatnaveitur víðar breiðast yfir iðgræn engja flæmin. Stíflur styrkar strauminn hefta. Starar-stráin stöðugt lengjast. Bændur, búfólk, börnin smáu, líta lónin lygnu, fögru. Blóma breiður blunda kringum, sveipuð svásum sólarljóma. Foldar faðminn fagra skreytir fjölær fylking fegri blóma. Minni mínu mun eg treysta til að telja tugi þeirra. KAUPIÐ AVALT LUMBER THE EMPIRE SASlT& DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET. WLNNIPEG, MAN. PHONE »5 551. III. Fífill, fjóla, fifa, smári, gullbrá, geitla, grájurt, einir, Holurt, hæra, humall, gríta, blástör, bleikja, blájurt, reynir. Krækill, kúmen, krossjurt, netla, lójurt, línstör, liðgras, ilmreyr, mjaðurt, mósef, mura, súra, melur, marstör, maðra, skurfa. Augnfró, alurt, arfi, burkni, fergin, flækja faxgras, hreðka, dýrgras, dökksef, dúnurt, eski, blómkál, broddstör, blóðberg, nykra. Skriðstör, skúfgras, skrautstör, puntur, sóldögg, sænál, sólber, limur, steinjurt, stjúpblóm, strandkál, jafni, sveifgras, sæhvönn, svartstör, knollsef. Þistill, þráðsef, þyrnir, tvitönn, þefjurt, þursi, þrílaufungur. vallnál, vingull, vatnsnál, trefja, vorblóm, vallkorn, vetrarlilja. Bjúgstör, blástör, bjöllulilja, dvergstör, draumrós, dílaburkni, elfing, einir, engjavöndur, flagsef, flóstör, f jallanóra. Grænkál, gullstör, græðisúra, hnappastör, hjartgras, hélunjóli, hvítkál, kollstör, kattartunga, melgras, móstör, músareyra. IV. Álftakólfur, ástagras, aronsvöndur, blásveifgras, arfanóra, eyrarrós, engjafifill, þyrnirós. B.rekkuf ífill, brjóstagras, brenninetla, lyfjagras, biðukolla, blöðrujurt brekkusóley, lúsajurt. Bugðu-puntur, brönugras, blöndustrokkur, hásveifgras, f jallabrúða, f jörukál, fálkapungur, hrossanál. Fugla-ertur, fryggjargras, f jallasmári, köldugras, garðabrúða, geitnalauf, gullintoppa, rjúpnalauf. Fjandafæla, fagurblóm, f jalla-dúnurt, grá-vorblóm, hliðafífill, hnappastör, hraknaklukka, flóastör. Hélu-vorblóm, hjónagras, hjartafífill, lambagras, heluhnoðri, hávingull, holtasóley, sauðvingull. Hundasúra, hofsóley, Heiðadúnurt, dvergsóley, lakasjóður, laugasef, laugabrúða, mýrasef. Meyjarauga, munablóm, maríuvöndur, tún-vorblóm, ljósalykkja, loðvíðir liðasóley, rauðvíðir. Mýra-elfting, mýrastör, mýrasóley, ljósastör, skollafingur, skollaber, skollakambur, krækiber. Músareyra, mosalyng, móa-nóra, sortulyng, lónasóley, lambablóm, linda-dúnurt, skriðnablóm. Skari fífill, skógviður, skollareipi, skrautpuntur, mýraf jóla, munkahetta, týsf jóla. • Vallar-foxgras, vorbrúða, vallarsveifgras, haustbrúða, tröllastakkur, trippanál, trjónubrúsi, skarfakál. Varpasveifgras, vetrarblóm, vatnamari, klukkublóm, þursafingur, þyrnirós, þráðanykra, engjarós. Davíd Björnsson. Ávarpsorð til Sigurðar Skagfield söngvara, flutt í Arborg 18. júni s. I. Beai ín )ílmcl CLEANLINES5 OF PLANT AND PRODUCT Drewry’s Standard Iager ESTABLISHED IÖ77 PHONE 57 QQI , Hafið í huga hreinindi ölsins og ölgerðarinnar Inst i sálum margra Is’endtrga bvi listræni og draumkend þrá. Hver og einn af okkur býr yfir óskalandi hugsana og tilfinningalífs, sem ekki er numið nema að litlu leyti. Marg- ir eru í álögum, sem að hversdags- kjör, annir og ábyrgð hafa hnept okkur í. — Þessvegna er það, að kygni og skilningur islenzkra skálda hefir jafnan verið þjóð vorri svo undur kær, — hefir opnað nýjan heim, utan og ofan við hversdagslif- ið og baráttu þess, lýst upp einstigi reyslunnar og leyst úr álögum.— Listhæfni þín, Sigurður söngvari, samfara fágætri söngrödd er þú héfir að vöggugjöf hlotið, er að hrifningarmagni til, náskyld skálds- ins fögru list. Þú hefir nú dvalið meðal Vestur-lslendinga hátt á fjórða ár og sungið viðsvegar vor á meðal, áheyrendum þinum til óþrot- legrar ánægju. Fyrir okkur full- orðna fólkinu hefir þú opnað nýja heima eftirlangana og innibyrgðrar útþrár, er við áður gerðum okkur ó- ljósa grein fyrir, en sem i hillingum hafa blánað fyrir sjónum okkar við áhrifamátt og töframagn li^tar þinn- ar, skilnings og meðferðar á orðum og efni. Aldrei hefir islenzkan átt slíka hljómdýpt eða tónahæð i eyr- um voru sem þá, er hún hefir öðlast fyrir meðferð þina. Tign málsins og fallþunga þess, en einnig ljúfari og léttari tóna auðnast þér að túlka á ógleymanlegan hátt.—Sjaldan hef- ir mér virst meiri tign því fylgjandi að vera íslendingur, en þegar eg hefi hlustað á söngva þína. Tónar þínir hafa fundið leið að sálum vorum og lifa í minni þjóðar- brotsins hér vestra. Vér þökkum ó- blandnar ánægjustundir er þú hefir oss veitt. Þú hefir þrifið oss heim í anda,—heim til landsins helga, þú hefir túlkað tóna úr djúpi þjóðar og sögu—frá hjarta landsins sjálfs. Vorblæ og aftansvala, sólhita sum- arsins og helkulda vetrar — vald storma og brimgný—og blíðan blæ bergmál af klukkum álfanna hefir þú látið enduróma í eyrum vorum— er vesturslóðir byggjum, f jærri ást- kærri feðrajörð. Þú hefir tengt nýjum böndum við ísland, íslend- inga er vestan hafs dvelja. Vér árnum þér góðs gengis er þú nú snýrð áleiðis til átthaga þinna. Mætti hvert spor þitt leiða þig nær hátindi listarinnar, er þú stöðugt sækir fram til sigurhæða. Viðkynn- ingin við þig, göfgi anda þíns, lúf- leiki þinn, listræni sálar þinnar er ættmennum þínum og untiendum ógleymanleg þó leiðir skilji. S. Ó. Mr. Ragnar H. Ragnar spilaði undir af venjulegri list og spilaði sóló, meðan söngvarinn tók sér hvild. Hrifning og þakklæti áheyr- enda lýsti sér í allri afstöðu gagn- vart þessum listrænu mönnum, er veittu öllum viðstöddum ógleyman- lega unaðsstund. Nærri allir viðstaddir þökkuðu söngvaranum, kvöddu hann með handabandi og árnuðu honum far- sældar og fararheilla. Hugheilar þakkir og liamingju- óskir! Sigurður Ólafsson. Oxford hreyfingin Framh, frá hls. 5 Qxford Group hefir fyrir mark- mið að lárta veröldina þreifa á krafti Heilags Anda til andlegrar og efna- legrar umstillingar og' betrunar; að vekja oss, hvern fvrir sig, til með- vitundar um að vér erum að sóa vorum andlega arfi, og að synd er það að hafna og hafa að engu þau ráð, sem Guð hefir gert fyrir oss öllum. Framh. Sigurður Skagfield söngvari hélt kveðju “konsert” sinn í Árhorg, eins og auglýst hafði verið, mánudags- kvöldið 18. júní s. I.; aðsóknin var ágæt og var lúterska kirkjan, þar sem söngsamkoman fór fram, full af fólki.— í upphafi samkonutnnar ávarpaði sóknarprestur söngv'arann nokkrum orðum. Síðar mælti hr. Ásm. P. Jóhansson frá Winnipeg, er þar var staddur ásamt frú sinni, hlý og vin- gjarnleg orð til söngvarans fvrir liönd Þjóðræknisfélagsins og mint- ist þess hve þarft verk að hann hefði af hendi leyst með listrænum söng sinum, Vestur-íslendingum til handa. í samkomulok flutti Guttormur skáld Guttormsson frá Riverton söngvaranum kvæði, einkar fagurt, sérkennilegt og skáldlegt. Sá er línur þessar ritar hefir heyrt hr. Skagfield syngja átta sinnum, á dvalartíma hans hér vestra, og þyk- ist þess fullviss að aldrei hafi hann sungið af meiri list en að þessu sinni. Tekníska þekkingu hefi eg að sönnu, því miður, ekki til að bera, en tilfinning mín er sú, óg eg hvgg flestra, er við voru staddir, að þar hafi haldist í hendur undursamlegt hljómmagn söngvarans, næmleiki skilnings í meðferð, sem jafnan, samfara fágætu aðdráttarafli, er hann laðaði hjörtu áheyrenda sinna að sér með. Mikill meirihluti söngvanna voru islenzkir, ýmsir áður kunnir og kær- ir, en nú með öllu ógleymanlegir, fyrir tign þá, er söngur Sigurðar sveipaði þá i.—Lengst mun mér i minni lifa “Vor,” er lagið eftir Jón tónskáld Friðfinnsson, en ljóðið er ort af Jóhanni skáldi Sigurjónssvni, undur fagurt og tignarlegt, þar sem að lagið sjálft, efni þess og listhæfni söngvarans hélst i hendur. Lagið við ljúfa Ijóðið “Danny Boy," í þýð- ingu Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar var einkar fagurt—og eltir mann með yndislegum blæbrigðum er í því búa. Timinn leið fljótt, og þótt að söngvarinn héldi áfram i fulla tvo klukkutíma, þráði fólk að lengur hefði unaðsstundin varað. VERNDUN SAUÐNAUTA A GRÆNLANDI t seinasta hefti af danska tíma- ritinu “Naturens Vidundere,” er grein eftir Jennow, forstjóra veiði- félagsins “Nanok.” Brýtur hann þar upp á því efni, að byrjaðar sé há- karlaveiðar og laxveiðar í stórum stíl hjá Austur-Grænlandi til þess að afla fóðurs handa hundum þeirra leiðangra, sem þar eru. Að tindan- förnu hafa sauðnaut verið brytjuð þar niður til hundafóðurs og þykir sýnt, ef þessu heldur áfram, að sauð- nautin verði aldauða, áður langt um líður, í ýmsum héruðum Austur- Grænlands. Þessari uppástungu Jennows hefir verið vel tekið í Danmörku. Hefir Tuborg-sjóðurinn heitið “Nanok”- félaginu 2,000 króna styrk ef það vill byrja á hákarla- og laxveiðum þar vestra, og á næstu f járlögum er 5,000 króna f járveiting til félagsins. Berlingske Tidende hafa átt tal við Oldendow skrifstofustjóra Græfilandsverzlunarinnar um þessa fyrirætlun og lét hann svo um mælt: —Mér list mjög vel á þessa hug- mynd og vona að hún verði til þess að sauðnautunum í Grænlandi verði hlíft meira en verið hefir. Hákarl og lax er fyrirtaks hundafóður, en gæta verður þess að gefa hundun- um ekki hákarlinn nýjan, því að hann er þá áfengur, en af hvaða ástæðu það er veit eg ekki. Senni- lega er eitthvert eitur í honum. Eg hefi með eigin augum horft á hunda sem átu nýveiddan hákarl og það var hörmung að sjá hvernig þeim varð af honum. Þeir urðu blátt áfram ó- sjálfbjarga, gátu varla staðið á fót- unum, slefuðu og stundu af áhrif- unum, alveg eins og þeir væri dauðadruknir.—Lesb. Mbl. Pabbi: Pétur minn, nú höfum við eignast litla systur. Pétur: Já, þið hafið ráð á þvi, en að eg geti fengið reiðhjól, það er alveg ómögulegt. STYRKIR TAUGAR OG VEITIR NÝJA HEILSU N U G A-T O N E styrldr taugarnar, skerpir matarlyst, hressir upp á melt- in^arfæri, stuðlar a5 værum svefni. og bætir heilsuna yfirieitt. NUGA-TONE hefir gengið manna á meSal í 45 ár, og hefir reynst konum sem körlum sönn hjálparhella. Notið NUGA-TONE. pað fæst t öllum lyfja- bóðum. Kaupið hið hreina NUGA- TONE, því fá meðöl bera slfkan árang- ur.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.