Lögberg - 12.07.1934, Qupperneq 8
8
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 12. JÚLl 1934
*>
*•
-— —-------—— -■ — -—■ - - +
Ur bœnum og grendinni
——-----------------—.—.—.———-—+
G. T. spil og dans, verSur hald-
ið á föstudaginn í þessari viku og
þriðjudaginn í næstu viku í I.O.G.T.
húsinu á Sargent Ave. Byrjar
stundvislega kl. 8.30 aS kvöldinu.
1. verSlaun $15.00 og átta verS-
laun veitt, þar að auki. Ágætir
hljóSfæraflokkar leika fyrir dans-
inum.—Lofthreinsunartæki af allra
nýjustu gerS eru i byggingunni. —
Inngangur 25C.—Allir velkomnir.
Skuldar-fundur í kvöld (fimtu-
dag)
Mr. G. H. Johnson frá Tessier,
Sask., kom til borgarinnar um helg-
ina. Hann hafSi fariS í skemtiferS
til Detroit, Mich., og var á heimleiS.
t _______ *
Mrs. S. Larson frá Regina, Sask.
hefir dvaliS rúman vikutíma hjá for-
eldrum sínum, Mr. og Mrs. Jón
Ólafsson, 250 Garfield St., Winni-
peg. Hún heldur aftur heimleiSis í
dag.
AnnaS hefti af tímaritinu “Árdís”
er nú til sölu, og kostar 35C eintakið.
“Ársdís” er gefin út einu sinni á ári
af Bandalagi lúterskra kvenna, og
hefir inni aS halda margar fróSlegar
ritgerSir, sem íslenzkum konum hér
í landi mun þykja fróSlegt aS kynn-
ast.
Pantanir sendist til Mrs. B. S.
Benson, 695 Sargent Ave., Winni-
peg.
Gjafir til Betel í júní
Mr. Nikulás Ottenson, Wpg., tvö
eintök af “Minni Nýja íslands”;
Mr. GuSjón Ingimundson, Wpeg.
$5.00; Ónefndur á Gimli $2.00; Ó-
nefndur $1000.00 ; María Gísladóttir,
Gimli, $30.00 og 10 pd. af bandi;
Mr. Trausti Vigfússon, Árborg 19
pd. ull; Mrs. Ingibjörg Walter,
Gardar, N. D., $6.00.
Innilega þakkaS,
/. Jóhannesson, féh.
675 McDermot, Wpeg.
HeiSraSi ritstjóri:
Eg hefi verið beSinn að reyna aS
afla upplýsinga um íslenzkan mann,
sem fór til Ameríku fyrir mörgum
árum, og datt mér i hug, hvort þér
vilduS gera fyrirspurn í blaSi ySar,
til þeirra, er kunnu aS vita eitthvaS
um hann.
MaSur þessi heitir Luther Einars-
son, fæddur 1862 í Hvammi í Dýra-
firSi, Vestur-ísafjarSarsýslu, sonur
Einars Magnússonar rennismiSs.
Hann fluttist vestur um haf rúmlega
tvítugur. Fór til Kyrrahafsstrand-
ar, stundaSi um tíma hveitiflutninga
frá meginlandinu til Vancouver-eyju.
Einnig fréttist aS hann hefSi verið
viS laxveiSar i Rritish Columbia.
SíSan hafa engar áreiSanlegar fregn-
ir borist af honum.
N. G. J.
Reykjavík, ísland.
Þeir, sem kynnu aS hafa kynni af
þessum manni, eru beSnir aS gera
blaSinu aSvart, og mun það senda
þær upplýsingar til viSkomandi fólks
á íslandi.—Ristj.
Mannalát
Þann 7. júlí s. 1. andaðis( hér í
borginni Rósa Einarsson, 79 ára aS
aldri. Hin látna var kona Magn-
úsar Einarssonar, lojý Sutherland
Ave., Winnipeg. Rósa heitin var
jarSsungin frá Fyrstu lútersku
kirkjunni á þriSjudaginn 10. júlí, kl.
2 e. h. --------
Á sunnudaginn 1. júlí, dó aS
heimili sínu, aS Langruth, Man.,
öldungurinn Ólafur Thorleifson,
eftir tveggja og hálfs árs heilsubil-
un; og rúmfastur lá hann síðustu
sex vikurnar. Hann var jarðsung-
inn af séra Jóhanni FriSrikssyni og
lagður til hvílu i grafreit bæjarins
á þriðjudaginn 3. júlí. Hins látna
verður niinst síðar.
SigurSur Sveinson (Swanson),
fæddur þ. 17. maí 1852 á BæjarstæSi
viS SeySisf jörS, andaSist þ. 26. júni
s. 1., að heimili sínu í Upham, N.
Dak., eftir langvarandi sjúkdóms-
stríS.
Foreldrar hans voru Sveinn Sæ-
björnsson og Helga SigurSardóttir.
Þrjú sytkini SigurSar heitins eru
enn á lífi. Sveinbjörn, á Islandi;
María, móðir Ásmundar lögfræðings
og B. T. Benson, í Mouse River
bygð, N. Dak., og Sigurlaug kona
Jóns SigurSssonar í Upham.
Arið 1882 giftist SigurSur Mar-
gréti Ásmundsdóttur. Til Ameríku
fluttu þau áriS 1889. Hafa þau
búiS aðallega við Akra og Upham í
N. Dak., en um tíma einnig í Sel-
kirk, Man.
Tvö börn þeirra hjóna dóu í æsku,
en f jögur eru enn á lífi: Jóhann
Kristján, apótekari, ógiftur; Anna
Kristín, gift Dr. B. K. Björnson,
Eargo, N. Dak.; Helga, gift- Bert
Bíell, hefir matsöluhús í Upham, og
Ásmundur, olíusali, giftur Willena
McTavish í Upham. Svo eru og á
lífi 15 barnabörn og 6 barna-þarna-
börn.
JarSarför SigurSar heitins fór
fram á fimtudaginn þ. 28. júni, frá
kirkju MelanktonssafnaSar í Up-
ham. Séra Bjarni A. ' Bjarnason
jarðsöng.
Á sunnudaginn 8. júlí s. 1. lézt á
Almenna sjúkrahúsinu hér í borg
Gustaf Kjernested frá Narrows,
Man. Hann var jarðsunginn á
þriðjudaginn viS Narrows, Man.
Gustaf var sonur Páls heitins
Kjernested, sem lengi bjó viS Nar-
rows, og fyrri konu hans. Hinn
látni var einhleypur maður.
Hjónavígslur
Laugardaginn 23. júní voru gefin
saman í hjónaband í Holy Trinity
kirkjunni af séra C. Carruthers,
Miss FriSrika Phoebe Byron og Mr.
Harry Standbrook. BrúSurin er
dóttir Mr. og Mrs. W. Byron í
Swan River, en brúðguminn er af
enskum ættum, frá London á Eng-
landi. Heimili brúðhjónanna verS-
ur í Winnipeg.
Ferðist til Islands
með
Canadian Pacific
Eimskipunum
Hin hraða sjóferð frá Canada eftir hinni fögru
St. Lawrence siglingaleið
priðja flokks farrými frá Montreal eða Quebec til Reykjavíkur—
ASra leið $111.50 — BáSar leiSir $197.00
Fargjöld örlítið hærri með “Duchess” og “Empress" skipunum.
öll þjónusta áhyrgst hin ánægjulegasta
Vegabréf ónauðsynleg
‘ Sendið heim eftir konu yðar og börnum eða heitmey, og látið þær
ferðast með CANADIAN PACIFIC til þess að tryggja þeim greiða og
þægilega ferð. Vér ráðstöfum öllu aðlötandi hinu nauðsynlega land-
gönguleyfi.
Eftir frekari upplýsingum spyrjist fyrir hjá næsta umboðsmanni eða
skrifið til
W. C. CASEY, Steamship General Passenger Agent,
372 Main Street, Winnipeg, Man.
ÞriSjudaginn 3. júlí voru þau
Jón Kristinn Laxdal frá Árborg og
Lára Wilhelmína Isberg frá Baldur
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni aS 493 Lipton
St. BrúShjónin lögðu af staS sam-
dægurs í skemtiferS til Clear Lake.
Heimili þeirra verSur aS Árborg,
þar sem Mr. Laxdal er skólastjóri.
LaugardagskvöldiS 30. júní síS-
astliðinn voru þau Miss Esther D.
Thordarson og Milton J. Hallgrím-
son gefin saman í hjónaband í
Seattle, Wash. Hjónavígsluna fram-
kvæmdi séra Kolbeinn Sæmundsson.
BrúSurin er dóttir þeirra hjónanna
Kolbeins S. Thordarson og Önnu
Jónsdóttur, sem eru vel kunn af
mörgum Vestur-íslendingum. BrúS-
guminn er sonur Péturs heit. Hall-
grímsonar og Hildu konu hans. All-
margir ættingjar og vinir beggja
fjölskyldanna voru viðstaddir gift-
ingarathöfnina og sátu ánægjulegt
samsæti aS henni afstaðinni. Heimili
ungu hjónanna verður í Seattle,
Wash.
Þann 4. þ. m. voru gefin saman í
hjónaband af séra Sig. S. Christo-
pherssyni þau Elín Kristín Hinrik-
son og Gísli Markússon. Athöfnin
fór fram aS heimili Magnúsar Hin-
rikssonar viS Churchbridge, föður
brúðarinnar, að viðstöddum nánustu
ættingjum og vinum. Tóku ungu
hjónin sér skemtiferS til frænda
sinna í Winnipeg og ArgylebygS.
Fylgja þeim hugheilar óskir þeirra
mörgu vina.
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
GuSsþjónustur næsta sunnudag,
15. júlí, verSa meS venjulegum
hætti; ensk messa kl. 11 f. h. og ís-
lenzk messa kl. 7 aS kveldi.
Áætlaðar messur í júlímánuði:
15. júlí, Riverton klukkan 11
árd.; 15. júlí, VíSír, kl. 8.45
síðd.; 22. júlí, Árborg, kl. 11. árd.;
22 júlí, Riverton, kl. 2 síðd.; 22.
júlí, Geysir, kl. 8.45 síSd.; 20. júlí,
Hnausa, kl. 11 árd.; 29. júlí Geysir,
kl. 2 síSd.; 29. júlí, Árborg, kl. 7
síðd. 5\ Ó.
Messur í prestakalli séra GuSm.
P. Johnson verða sem hér segir:—
Sunnudaginn 15. júlí í Hallgríms-
söfnuði, Hólar; sunnudaginn 22.
júlí í Kristness skóla.
Séra Jóhann Bjarnason býst viS
að hafa messu, meS ferming og alt-
arisgöngu, í kirkju Mikleyjarsafn-
aSar sunnudaginn þ. 22 júlí næst-
komandi. Fólk á Mikley er beðið
aS láta fregn þessa berast um eyna
■ins rækilega og hægt er.
GuSsþjónustur í VatnabygSum:
sunnudaginn 15. júlí: í Wynyard kl.
11 f. h., í Kandahar kl. 2 e. h., i
Mozart kl. 4 e. h., í Elfros kl. 7.30
e. h. GuSsþjónustan í Mozart verS-
ur á íslenzku, hinar á ensku.
K. K. Ólafson.
íslenzk messa verður í kirkju
MelanktonssafnaSar aS Upham, N.
Dak., sunnudaginn þ. 15. júli n. k.,
kl. 1 e. h. Séra Bjarni A. Bjarna-
son prédikar. Ungmennafélagssam-
koma aS kveldinu kl. 8.
GuSsþjónustur boðast í Betel
söfnuði þ. 15. og í kirkju Konkordíu
safnaðar þ. 22. þessa mánaðar.
Sig. S. Christopherson.
Messur í prestakalli séra II: Sig-
mar, sunnudagana 15. og 22. júlí:
(15. júlí) í Vídalínskirkju kl. 11 f.
h.; í Péturskirkju kl. 2 e. h. (tvö,
en ekki þrjú) ; i GarSar kl. 8. Gjört
er ráS fyrir aS séra H. B. Thor-
grimson frá Grand Forks prédiki
viS þessar messur. — (22. júlí) í
Fjallakirkju kl. 11 f. h.; í Eyford
kl. 2 e. h. og í Mountain kl. 8 aS
kveldi. Fólk er beðið aS veita þessu
messuboði athygli.
MessuboS í Lundar- og Lúters-
söfnuSum: GuSsþjónusta í Lúters-
söfnuði sunnudaginn þ. 15. júlí kl.
2 e. h. og i LundarsöfnuSi sama dag
kl. 8 að kvöldinu.
KVBÐJUORÐ
Af því aS eg er aS fara úr borg-
inni út á land, þar sem eg mun dvelja
þaS sem eftir er sumarsins, þá biS
eg blöSin hér, Lögberg og Heims-
kringlu um aS skila kærri kveðju
minni til allra vina og kunningja,
sem eg hefi ekki getaS kvatt, og eg
óska að sumartíminn verSi þeim á-
nægjusamur og arSberandi. Svo
þakka eg af hrærSum hug, allar þær
skemtistundir, sem þiS hafiS veitt
mér, þá fundum okkar hefir boriS
saman. Drottinn blessi framtíS ykk-
ar. Þessa biður ykkar einlægur vin
og kunningi,
Gísli Jónsson.
Mrs. S- Jóhannson, Brown, P.O.,
Man., sem verið hefir gestur í bæn-
um, fór heimlei.Sis síðastliSinn
sunnudag.
Þessi börn voru fermd í Lundar
kirkju sunnudagirm 8. júli kl. 2 é. h.:
Jón Trausti Lindal, Halldór Sig-
urður Arnfinson, Oscar Hördal,
Baldur Rósmundur Stefánsson,
Thelma Sigurlaug Olafson, Kristj-
ana SigríSur Hördal, Eiizabeth
Maria Brandson, Ruby Monica GuS-
rún Halldórson, Vilhelmina Berg-
thora Bergthorson, Emily Thelma
Halldórson, Jónína Eiríkson, Sigur-
lín Eiríkson, Thora Violet Lindal,
GuSrún Irene Stinson.
Miss GuSrún Jóhannson frá
Saskatoon, er nýkomin til borgar-
innar. Hún dvehir á heimili föSur
síns, Gunnlaugs Jóhannsonar, 757
Sargent Ave. Miss Jóhannson, sem
er útlærð hjúkrunarkona, lítur eftir
heilbrigði skólabarna í Saskatoon.
Hún verður hér í borginni yfir sum-
armánuðina.
Ófeigur Ófeigsson læknir og kona
hans lögSu af staS.í skemtiferS vest-
ur á Kyrrahafsströnd á föstudags-
kveldiS. Læknishjónin ætla sér aS
koma viS í bygSum Islendinga viS
Wynyard og í Markerville, Alta., á
leiðinni; því næst fara þau til Van-
couver og svo til Seattle og annara
staða þar sem íslendingar búa á
ströndinni.
Dr. Ófeigsson er fyrsti maSur,
sem styrk hlaut úr Canada-sjóSi, til
sérnáms við hérlenda háskóla. Hann
hefir starfaS viS Almenna sjúkra-
húsiS hér í borginni síSan sr.emma
í vetur, en fékk nú tveggja mánaða
sumarleyfi.
ÞAKKLÆTI.
\
Innilegustu þakkir langar mig til
aS biðja Lögberg aS færa þeim
mörgu, bæði vinum og vandalausum,
sem hluttekningu sýndu mér svo ó-
tvíræða viS lát mannsins míns, Sig-
urðar Eiríkssonar Hólm i Framnes-
bygS, er lézt 3. júní. ÞaS vita allir,
sem reynt hafa, hvaS ástvinamissir
getur veriS sár, en sem betur fer
hafa margir þá einmitt reynt, hvers
verS vinátta fólks er. Og af þeim
er eg ein. SamhygSin, hjálpsemin
og ástúðin, sem mér og mínum nán-
ustu hefir veriS sýnd í raunum mín-
um, hefir veriS svo einlæg, svo inni-
leg, svo “löguS eftir hjartans sár-
um,” eins og skáldiS komst aS orði,
aS veitt hefir mér huggun og þrótt
til að bera raunir mínar. Til þess
að vera viS útförina, komu kunn-
ingjar langt aS auk hins mikla f jölda
sambygðarmanna, er þar var stadd-
ur. SamhygS þá og alla þá umhyggju
og velvild, sem mér og börnum mín-
um og nánustu skyldmennum hefir
veriS sýnd við ástvinamissinn brest-
ur mig orð til aS þakka sem eg kysi,
en aS þaS sé geymt en ekki gleymt,
langaSi mig aS tjá þeim.
Eg get ekki tiltekiS nöfn, þau
yrðu svo mörg; eSa lýst hvaS hver
og einn hefir fyrir mig gert. AS
nefna verS eg þó blómin mörgu, sem
á kistuna voru send og hluttekning-
ar og huggunarbréfin, sem mér voru
skrifuS. En innilega þökk biS eg
aS flytja hverjum og einum.
Árborg, Man., 7. júlí, 1934.
Guðrún S. Hólm.
—ÞekkirSu nágrarínakonu þína
svo vel, aS þú getir talað við hana?
—Eg þekki hana svo vel að eg
tala alls ekki viS hana.
NÝ—þægileg bók
í vasa
SJÁLFVIRK
— EITT BLAÐ t EINU —
pægilegri og betri bðk í vasann.
llundrað l^löð fyrir fimm cent.
Zig-Zag cigarettu-blöð eru búin
til úr bezta efni. Neitið öllum
eftirllkingum.
ZIGZAG
ÆTTATÖLUR
peir menn og konur, sem af fs-
lenzku bergi eru brotnir geta
fengið samda ættartölu sína gegn
sanngjörnum ómakslaunum með
því að leita til mfn um það.
GUNNAR pORSTEINSSON
P.O. Box 608
Reykjavík, lceland.
í veislu nokkurri kyntist sænski
málarinn, Carl Larsson, stórkaup-
manni nokkrum, og stórkaupmaður-
inn baS hann aS gefa sér heilræSi:
—Eg á son, Sem bæði skrifar og
málar. Hvort á eg heldur að láta
hann verða rithöfund eSa málara?
—Rithöfund, sagði Larsson hik-
laust.
—Hversvegna? spurði stórkaup-
maðurinn.
—Vegna þess aS pappír er miklu
ódýrari en málaraléreft.
—Eg skal láta þig vita þaS, aS eg
er húsbóndi á minu heimili.
—Sama segi eg; því aS konan mín
er líka í sumarfríi.
Gestur: Hann er meS augun henn-
ar móSur sinnar.
MóSir: Já, og munn og nef föS-
ur síns.
Drengur: Og í buxum bróSur
síns.
—ViS konur erum betri heldur en
þiS karlmennirnir; viS eigum t. d.
hægra meS aS gleyma.
—Já, og þiS eigiS líka miklu
hægra með aS muna þaS, sem þiS
hafiS gleymt.—Lesb. Mbl.
Mrs. R. Rogers dáin
Á miSvikudagsmorguninn í fyrri
viku Iézt Mrs. Robert Rogers, aS
heimili sínu 197 Roslyn Road í Win-
nipeg. MaSur hennar, Hon. Robert 1
Rogers, var í mörg ár leiðandi maS-
ur í flokki íhaldsmanna hér í landi.
Hann var um eitt skeiS ráðherra í
sambandsstjórninni og hafSi þá um-
sjón meS innflytjendamálum. Þau
hjónin tóku því mikinn þátt í öllu
félagslífi, bæði hér í borg og í Ot-
tawa og fékk Mrs. Rogers það orS á
sig aS vera meS afbrigðum gestrisin
og viSmótsþýS kona. Flestir merk-
ir gestir, sem til landsins komu, nutu
þeirrar gestrisni meira og minna.
Mrs. Rogers starfaði einnig mik-
iS aS þjóSfélagsmálum. Hún var,
engu síður en maSur hennar, dugleg
aS starfa í þágu flokks sins. Forseíi
Women’s Conservative Club var hún
lengi, auk margra annara, svo sem
Women’s Canadian Club í Winni-
peg, og Clover Leaf Club, einnig í
Winnipeg.
Bemiett-þrælar
Þó aS bænda- og búalið
böndum láti reirast;
þegiS öll um þrælsnafniS,
þaS má aldrei heyrast.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Commercial Courses
What are you going to do when
school is over? .
Have you thought of taking a
Commercial Course?
The Columbia Press, Limited, can
place you with any of the following
Commercial Schools of the city.
SUCCESS BUSINESS COLLEGE
DOMINION BUSINESS COLLEGE
ANGUS SCHOOL OF COMMERCE
HOOD BUSINESS COLLEGE
Come in and talk this over with
us for it will be to your advantage
to consult us.
We are offering you a discount of
25% of the regular tuition fee.
The Columbia Press Limited
695 Sargent Ave.
Winnipeg, Man.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annant grelðloga um alt, æm a>
nutnlngrum lýtur, am&um eða mtAr-
um. Hvergi sanngrjarnara verð.
Heimill: 762 VICTOR 8TREET
Siml: 24 600
KOMIÐ TIL OKKAR
Góðir, notaðir, Bílar
ViS höfum mikið úrval meS
lágu verði.
Chevrolet of Oldsmobile
umboSsmenn.
C0NS0LIDATED M0T0RS LTO
235 MAIN ST., Sími 92 716
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellers
699 SARGENT AVE., WPG.
Sendið áskriftargjald yðar
fyrir “The New World,” mán-
aðarrit til eflingar stefnu
Co-operative Commonwealth
Federation í Canada.
Aðeins EINN dollar á ári
sent póstfrítt
Útgefendur
The New World
1452 ROSS AVE.
Winipeg, Manitoba
224 NOTRE DAME AVE.
Winnlpeg, Man.
Phone 96 647
MEYERS STUDIOS
LIMITED
Largest Photographtc Organiza-
tion in Canada.
STUDIO PORTRÁITS
COMVIERCIAL PHOTOS
Family Groups and Children
a Specialty
Open Evenings by Appointment
LAFAYETTE H0LLYW00D
StudloH Studios
189 PORTAGK Av. SASKATOON
Wlnnlpegr, Man. Sask.
We SpeciaUze in Amateur
Developing and Printing
Portlís
Þér fáið aldrei betri fata-
hreinsun fyrir jafn litla pen-
inga, eins og hjá PERTH’S
Smá viSgerðir ókeypis—öll
föt ábyrgst gegn skemdum.
Fötin sótt til yðar og skilaS
aftur. Sanngjarnt verð. Alt
þetta stySur að þvi aS gera
PERTH’S beztu fatahreinsun-
arstofuna.
• • *
482 & 484 PORTAGE AVE.
Sími 37 266
I