Lögberg - 04.10.1934, Blaðsíða 1
47. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1934
NÚMER 40
t FRÁ ÍSLANDI
Dýralœknafélag Islands stofnað.
—Dtýralæknar landsins komu saman
til fundar í síSastl. vikunni og hafa
setiÖ á ráðstefnu undanfarna daga.
Eru nú starfandi sex dýralæknar
á landinu, þeir Hannes Jónsson og
Bragi Steingrímsson hér í Reykja-
vík, Sigurður Hlíðar á Akureyri,
Ásgeir Ólafsson í Bórgarnesi, Jón
Pálsson við ÖLfusárbrú og Ásgeir
Einarsson, sem verfiur dýraTæknir í
AustfirÖingaf jórðungi.
Allir þessir menn sátu, fundinn.
—Það sem merkilegast gerðist á
fundinum var það, að ákveðið var
að stofna nýtt félag, Dýralækna-
félag íslands.
Voru kosnir í stjórn þess: Sig-
urður Hlíðar form., Hannes Jóns-
son og Jón Pálsson.
Þá var kosin sérstök fram-
kvæmdánefnd, sem á að annast um
ýmsar framkvæmdir félagsins. 1
hana voru kosnir rHannes Jónsson,
Ásgeir Ólafsson og Jón Pálsson.
Samþykt var að gefa út fjölrit-
að blað, sem á að ræða um sérmál
dýralækna. Ritstjóri þess verður
Ásgeir Ólafsson.
Hannes Jónsson og Sigurður
Hlíðar voru kosnir til að semja frv.
um ráðstafanir gegn næmum ali-
dýrasj úkdómum.
í gær fóru 'allir dýralæknarnir á
fund forsætisráðherra, og ræddu
við hann mál sin.—N. dgbl. 9. sept.
* * *
Verslunarskýrslur fyrir árið 1932
eru komnar frá Hagstofunni. Þetta
ár hefir verðupphæð innflutnings
numið 37.4 milj. króna og er það
ekki nema J4 á móts við innflutn-
inginn næsta ár á undan. Hefir
verðmagn innflutningsins aldrei ver-
ið svo lágt síðan 1915, Stafar það
sennilega af innflutningshömlum,
sem settar voru hausrið 1931, en
komu ekki verulega til framkvæmda
fyr en 1932. Aftur á móti varð út-
flutningur 47.7 milj. krótia eða
svipaður að verðmagni, og næsta
ár á undan. Hefir því verðmagn
útflutnings þetta ár farið 10,434,000
krónum fram úr verðmagni inn-
flutningsins. En næstu þrjú árin á
undan, var innflutningur meiri en
útflutningur og skakkaði alt að 12
milj. króna 1930. Innflutningshöft-
in drógu aðeins úr innflutningnum
meðan vörubirgðir í landinu voru
að seljast. Nú horfir alt öðru vísi
við um utanríkisverzlunina.—Mbl.
* * *
Rafmagnsstraumur drepur liest.
—í gær, 7. sept., vildi það slys til,
að hestur, er Eyjólfur Kolbeins,
Bygg-garði átti, steig á rafmagns-
þráð, sem slitnað hafði frá götu-
ljóskeri og slegist yfir háspennu-
þræðina, vestur hjá verkamannabú-
stöðunum. Hesturinn datt þegar
niður og var dauður eftir rúmar 5
minútur.—Mbl.
* * *
Skipulagsnefnd atznnnuveganna
hefir f>egar hafið starf sitt. Við-
fangsefni sinu hefir hún skift í sex
aðalflokka: 1. Landbúnað, 2. Sjáv-
arútveg, 3. Iðnað, 4. Verzlun, 5.
Flutningar og 6. Húsabyggingar.
Hafa verið gerðar ráðstafanir til að
afla nauðsynlegra upplýsinga, við-
komandi hverri grein. Auk þess
mun hún taka til meðferðar ýms
smærri mál og er sennilegt að hún
muni leggja fram frv. um sum
þeirra á næsta þingi.—N. dagbl. 9.
sept.
* * *
fsfiskssala.—Kári seldi í gær í
Cuxhafen fyrir 13. þús. ríkismörk.
Hannes ráðherra seldi í gær i Wes-
ermunde fyrir 21 þús. ríkismörk.—
N. dagbl. 7. sept.
Aldarminning brauðgerðarinnar á
íslandi. — Um þessar mundir eru
100 ár liðin síðan fyrsta brauðgerð-
arhúsið var sett á stofn hér #i
Reykjavik, og var það fyrsta brauð-
gerðin hér á lafidi.
1834, um sumarið, kom Daníel
Bernhöft hingað frá Danmörku, og
hafði hann þá nýlokið meistara-
prófi i bakaraiðn. í fylgd með hon-
um var annar bakari, Heilmann að
nafni.
Þeir settu á fót brauðgerðarhús,
Bernhöftsbakari, þar sem nú er
Brauðgerð Kaupfélags Reykjavík-
ur.
Bakarasveinafélag íslands og
Bakarameistarafélag Reykjavikur
hafa kosið nefndir til að undirbúa
hátiðahöld af þessu tilefni, og fara
þau fram á morgun.
Nefndirnar hafa fengið Guðbrand
Jónsson rithöfund til að semja
minningarrit um bakaraiðnina, og
kemur það út nú um helgina.
Á morgun verður öllum brauð-
sölubúðum lokað kl. 1 Kl. 1.30
verður blómsveigur lagður á leiði
Bernhöfts og Heilmanns og þar
fluttar ræður. Kl. 2 — 3 verður
gestum veitt móttaka á Hótel Borg,
í herbergi nr. 103. En kl. 6.30 hefst
aðalhátíðin á Hótel Borg. Ér þang-
að boðið atvinnumálaráðherra,
danska sendiherranum fyrir hönd
danskra brauð- og köku-gerðar-
manna, borgarstjóra, blaðamönnum
og mörgum fleirum.—Alþýðublaðið
24. ágúst.
* * *
Nýr skattstjóri. í gær setti fjár-
málaráðherra Halldór Sigfússon
endurskoðanda til að vera skatt-
stjóra í Reykjavík. Halldór hefir
áður gegnt varaskattstjórastörfum.
* * *
Skipulagsnefnd hefir ráðið sér
starfsmann, sr. Ragnar Kvaran, og
leigt skrifstofu fyrst um sinn í húsi
Jóns Þorlákssonar við Austurstræti.
* * *
Valdimar Björrisson ritstjóri í
Minneota, sem verið hefir á ferða-
lagi hér í sumar, flytur erindi í út-
varpið kl. 9 á sunnudagskvöldið 9.
sept., er hann nefnir: Austan hafs
og vestan.—N. dagbl.
- * * >K
Enskur togari kom til Vestmanna-
eyja síðdegis í gær með annan ensk-
an togara í eftirdragi, er hafði botn-
vörpuna flækta í skrúfunni, en í
gærmorgun þegar togarinn ætlaði að
leggja af stað, lenti skrúfan á
keðju, að menn ætla, og brotnuðu 3
skrúfublöðin. Er því búist við að
togarann þurfi að draga til Reykja-
víkur til viðgerðar.—N. dagbl. 7.
sept.
* * *
Ríkarður Jónsson myndhöggvari
var í Færeyjum í ágústmánuði og
var þar kennari í tréskurði á kenn-
aranámskeiði í Þórshöfn. Hófst
það 1. ágúst og stóð í hálfan mánuð.
30 kennarar sóttu námskeiðið og 6
aðrir sóttu sérstaklega kenslu Rik-
arðs.—Mbl.
* * *
Brúarsmíðinrii á Kerlingadalsá er
nú lokið, og hókst umferð um brúna
i síðastl. viku. Brúin er 150 metra
löng, staurabrú, með járnbitum.—
Ánni Klifanda hefir nú verið veitt
í sinn gamla farveg. Hún hefir
valdið allmiklum skemdum á þjóð-
veginum hjá Pétursey, og var hyrj-
að áendurbótum þar í gær.
* * *
Síldarverksmiðjan á Þórshöfn er
hætt störfum. Hún hefir brætt í
sumar 50 þúsund hl. Á Raufarhöfn
hafa verið saltaðar 1300 tunnur af
síld og er söltun þar lokið.
N. dagbl
Brezki Verkamannaflokk-
nrinn heldur þing
Þing verkamannaflokksins brezka
kom saman í Southpoift á Englandi
á mánudaginn 1. október.
Blaðafréttir herma að strax hafi
komið upp ágreiningur á milli hæg-
fara umbótamanna og þeirra rót-
tæku. Þeir fyrnefndu unnu nokk-
urn sigur þegar samþykt var að
heimila framkv'æmdarráðinu að
beita aga við tvo meðlimi flokks-
ins.
Þessir meðlimir eru Lord Mar-
ley, einn færasti maður flokksins í
lávarðadeildinni, og Ellen Wilkin-
son, fyrrum þingmaður. Báðum er
gert að sök að þau hafi starfað með
kommúnistum. Sagt er að fram-
kvæmdarráðið muni mæla með því
að þeim sé vikið úr flokknum, ef
þau sjái ekki að sér.
Marley lávarður neitaði þvi harð-
lega að hann starfaði með kommún-
istum, en hann hefir verið starfandi
í nef nd, sem mynduö var til þess að
liðsinna þýskum og austurrískum
verkamönnum, sem orðið hafa land-
flótta.
Formaður verkamannaflokksins,
W. R. Smith, hélt langa tölu, og
gekk hún út á það aðallega að vara
menn við hættunni, sem stafaði af
fascismanum. Þeirri ræðu var vel
tekið.
Þá var rætt um það á þinginu
hvað bezt yrði að gera, ef að lá-
varöadeildin skyldi í framtíðinni
reyna að koma í veg fyrir nauðsyn-
legar umbætur á stjórnarskránni,
eða aðra löggjöf, sem verkamanna-
flokkurinn myndi vilja innleiða þeg-
ar hann fengi aftur stjórnarvöld.
Þetta er mjög þýðingarmikið at-
riði þar sem margir telja líklegt að
sósíalistar nái aftur völdum í Eng-
landi áður langt um líður. Og þar
sem leiðtogar þeirra eru yfirleitt
miklu róttækari en hinir gömlu, svo
sem MacDonald og Henderson, þá
má gera ráð fyrir öflugri mótspyrnu
í efri deild. Einhver lét í ljós þá
skoðun að konungur yrði beðinn að
veita svo mörgum lávarðstign úr
flokki verkamanna, að meirihluti
fengist í þeirri deild. Þetta kom til
tals á dögum Asquiths, þegar lá-
, varðadeildin tafði fyrir fjárlaga-
frumvörpum hans.
Kappsiglingar
Um miðjan síðasta mánuð hófust
kappsiglingar á milli Englendings-
ins T. O. M. Sopwith og Ameriku-
mannsins Harold Vanderbilt, um
bikarinn fræga, America’s Cup, sem
kept hefir verið um af og til í síð-
astliðin 83 ár og sem Bandaríkja-
menn hafa haldið síðan 1859.
Að þessu sinni fór siglingin frarn
nokkrum mílum utan við Newport,
R.I. Reglugjörð mælir svo fyrir að
sú skútan, sem fyrst vinnur fjórar
kappsiglingar skuli teljast sigur-
vegarinn. Vegalengdin er 30 mílur,
og er ýmist siglt fimtán mílur út
og að markinu eða eftir þríhyrn-
ingi, tíu mílur á hvern kant.
Fyrsta siglingin fór fram á laug-
ardaginn 15. sept. og varð þá skúta
\ anderbilts, Rainbow, nokkuð á
undan að marki, en þar sem byr var
lítill, tókst Rainbow ekki að sigla
vegalengdina innan 5J-2 klukku-
stundar og var því kappsigling þessi
dæmd ógild, þar sem lögin ákveöa
að skúturnar megi ekki vera lengur
en 5V2 klukkustund á leiðinni.
Á mánudaginn var aftur siglt og
varð þá skúta Sopwiths, Endeavor,
nokkuð á undan. Fór alt á sömu
leið daginn eftir, sem var þriðju-
dagur.
Þegar hér var komið urðu menn
vongóðir um að. Sopwith myndi
s*Rra. þar sem skúta hans virtist dá-
lítið hraðskreiðari en Rainbow, enda
Frú Sigríður Jóhannsson látin
Síðastliðið mánudagskveld lézt á Almenna sjúkrahúsinu
hér í borginni, frú Sigríður Jóhannsson, kona Asmundar P.
Jóhannssonar byggingameistara að 910 Palmerston Ave., eftir
langa og stranga legu. Innvortis meinsemd varð henni að bana.
Frú Sigríður var fædd á Huki í Miðfirði í Húnaþingi þann 17.
dag septembermánaðar árið 1878. Voru foreldrar hennar þau
Jónas Guðmundsson og Helga Stefánsdóttir, er þar bjuggu.
Þann 9. júní 1899 giftist Sigríður eftirlifandi eiginmanni sin-
um, Ásmundi P. Jóhannssyni, og fluttist með honum vestur um
haf; komu þau hjón til Winnipeg 2. ágúst árið 1900, og þar stóð
heimfli þeirra upp frá því.
Auk eiginmanns síns, lætur frú Sigríður eftir sig þrjá
mannvænlega ' sorn^, Jónas Valdimar, kvæntan Kristínu Þor-
vardson, Kára Vilhelm, kvæntan Maríu Matthews og Gretti
I.eo, kvæntan Leilah Dovvers, af amerískum stofni. Þrjú syst-
kyni frú Sigriðar eru á lífi á tslandi: Jónas í Reykjavík, Stefán
bondi á föðurleifð hennar, Húki, og Arndís, gift Jónasi Þor-
steinssyni, bónda á Oddsstöðum i Hrútafirði.
Frú Sigríður Jóhannsson hafði átt við langvarandi van-
heilsu að búa; jafnvel svo tugum ára skifti; höfðu þó allar
hugsanlegar tilraunir, er í mannlegu valdi stóðu, verið gerðar
heima og erlendis, til að afla henni heilsubótar; var það áköf
höfuðveiki, cr aö henni svarf um langt skeið og olli h^nni
nokkurrar sjóndepru;‘hún var tápgeðjuð kona með fágætum,
og bar þrautir sínar sem sönn, norræn hetja. Jafnóðum og af
henni bráði, eða höfuðverkjaflogunum linti, tók hún upp sína
meðfæddu gleði og varð umhverfi hennar þá sólbjart og unaðs-
rikt; hún var húsmóðir í þess orðs fylztu og sönnustu merk-
ingu, manni sínum hollráður og trúr förunautur og sonum sin-
um innileg móðir; um hana má svipað segja og Bergþóru konu
Njáls, að hún var drengur góður.
Verksvið frú Sigríðar lá að langmestu leyti innan vébanda
heimilisins; þar elskaði hún mest og þar undi hún bezt; hún
var listræn kona að eðlisfari, næm á fegurð íslenzkra ljóða og
naut ósegjanlegs yndis af söng. Vinfastari manneskju en frú
Sigríði, get eg tæpast hugsað mér; um það get eg dæmt af
reynd, eftir frekra tuttugu ára umgengi við hana og heimili
hennar; sömu sögu munu þeir aðrir hafa að segja, er nokkur
veruleg kynni höfðu af henni.
Með fráfalli frú Sigriðar er eigi aðeins heitur og þungur
harmur kveðinn að eiginmanni hennar, sonum og öðru sifja-
liði, heldur og þeim öðrum, er því láni áttu að fagna að eiga
hana að vini. Um minningu hennar verður bjart, eins og
þeirra annara, er einlægir voru við málstað samferöafólksins
—og lífsins.
Jarðarför frú Sigríðar fer fram á fimtudaginn 4. þ. m.,
hefst með húskveðju á heimilinu, 910 Palmerston, kl. 1.45 e. h.,
flytur séra Rúnólfur'Marteinsson þar kveðjuorð, en frá Fyrstu
lútersku kirkju klukkan hálf þrjú. Stýrir sóknarpresturinn, Dr.
■B. B. Jónsson kveðjuathöfninni í kirkjunni, sem og í Brook-
side grafreit. Jarðarförin fer fram undir umsjón A. S. Bardal.
Einar P. Jórisson.
setti hún nýtt met á þriðjudaginn,
þegar hún fór 30 mílurnar á 3 klst.,
10 mín. og 13 sek. Samt tóku góðii
sjómenn eftir því að skipshöfnin
enska var mun seinni og klaufalegri
í öllum snúningum, og átti oft bágt
meö að höndla seglin. Einnig var
auðséð að Sopwith kunni ekki að
stjórna skútu sinni eins vel og Van-
derbilt, sem er siglingagarpur.
Á miðvikudaginn 19. sept. var
siglt í fjórða sinn. Þá vann Van-
derbilt. Daginn eftir varð hlé, til
að Sopwith gæti fengið nýtt stórsegl.
Á föstudaginn var svo kept í fimta
sinn og Vanderbilt varð hlutskarp-
ari. Sopwith mótmælti úrskurðinum
og sagði að Vanderbilt hefði hrotið
reglugerðina meö því að neita að
víkja þegar Endeavor, sem þá var á
undan, sneri í veg fyrir Rainbow, til
að draga -wnd úr seglum hennar.
En það er áskilið í lögum að það
skipið, sem á undan er, megi sigla
eins og því þykir bezt, og skuli þá
hitt ætíð víkja úr vegi svo að ekki
verði árekstur. Dótnnefnd neitaði
að taka mótmæli Sopwith til greina,
þar sem hann hefði ekki dregið upp
rauða flaggið, sem táknar mótmæli,
í tæka tiö.
Út af atviki þessu urðu snarpar
umræður, og mun Sopwith hafa
reiðst mjög.
Á laugardaginn 22. sept. og á
mánudaginn þ. 24. var siglt og vann
VTanderbilt í bæði skifti. Hafði
hann þá unnið f jórum sinnum, Sop-
with tvisvar, en fyrsta siglingin var
dæmd ógild, eins og áður er sagt.
Verður því America’s Cup í vörsl-
um Bandaríkjanna fyrst um sinn.
Skúturnar, sem ætlaðar eru til
þessara kappsiglinga eru hin mestu
dvergasmíði. Þær eru um hundrað
fet á lengd, en mjóar og lágar i sjó.
Möstin eru yfir 160 fet á hæð og
seglin afarstór. í kjölnum eru um
12 tonn af blýi, en reglugerðin á-
kveður hvað seglfesta skuli vera
mikil. Sagt er að hvor þessi skúta
kosti um hálfa miljón dollara.
Bandaríkjaskipið Rainbow eiga
nokkrir auðkýfingar í New York,
þar á meðal Morgan og Vanderbilt-
arnir. Harold Vanderbilt, stýrimað-
ur á Rainbow er einn af ættinni.
Endeavor lét T. O. M. Sopwith
byggja sjálfur, en hann er enskur
miljónamæringur. Gii'æddi fé sitt
á flugvélasmíði. Á stríðsárunum
keypti stjórn Breta ógrynnin öll af
Sopwith flugvélum og þóttu þær
góðar. Nú er félag hans hið stærsta
af þeirri tegund i Englandi.
Að kappsiglingunni lokinni var
það dómur flestra að Endeavor væri
hraðskreiðari, sérstaklega í góðum
byr, en aö Vanderbilt væri miklu
færari sjómaður, og skipshöfn hans
mun betri en sú enska. Allir skip-
verjar Vanderbilts voru af skandi-
naviskum ættum.
Legion of Decency
Kaþólskir prélátar í Bandaríkj-
unum tóku upp á því síðastliðið vor
að banna sóknarbörnum sínum að
sækja* þau kvikmyndahús, sem, að
þeirra dómi, sýndu ljótar og sið-
spillandi myndir. Til að boð þetta
kæmi að tilætluðum notum var
stofnaður félagsskapur meðal ka-
þólskra manna, sem nefndi sig
Legion of Decency. Nú hafa tvær
miljónir manna skuldbundið sig til
þess að taka úrskurð biskupa sinna
til greina í þessu efni, og aö sækja
ekki þær myndir, sem settar hafa
verið á “svarta listann.”
Mundelein kardínáli frá Chicago
var staddur í Róm á dögunum, til
þess að halda upp á 25 ára biskups-
afmæli sitt. Hann lét svo ummælt
þar, að Legion of Decency heföi
miklu góðu til leiðar komið nú þeg-
ar og að banninu myndi nú lyft i
bráðina, svo að framleiðendur kvik-
mynda gætu áttað sig og gert nauð-
synlegar ráðstafanir til þess að bæta
vörur sínar.
Síðan Legion of Decency var
stofnað hefir aðsókn að kvikmynd-
um, miðað við sama tímabil árið
sem leið, aukist um 10% til 30%.
Kaþólskir halda því fram að fyr-
ir sinn atbeina hafi myndirnar batn-
~að ^ð mun og séu því betur sóttar.
Óvinir félagsins segja aftur á
móti að það hafi aukið aðsókn að lé-
legum myndum, með því að vekja
á þeim eftirtekt.
Övilhallir menn ætla að orsökin
sé sú að myndir séu skemtilegri en
áður og að fólk hafi nú meiri pen-
inga og meira tóm til þess að sækja
leikhúsin.
Dougherty kardínáli í Philadel-
phia sagði, þegar hann frétti orð
Mundeleins, að skoðanir hans væru
ekki bindandi á kaþólskt fólk í öðr-
um biskupsumdæmum, og ef að
Vatikanið gæfi engar gagngerðar
skipanir, þá myndi Ivegion of De-
cencv halda áfram starfi sínu.
Lindbergh-málið
Böndin berast nú stöðugt að
Bruno Hauptman, og þykir mörg-
um fullsannað aö hann sé maður-
inn, sem stal barni þeirra Lind-
berghs hjónanna, og tók við lausn-
argjaldinu af Dr. John Condon.
Eitthvað meira af péningum þeim
hefir fundist á heimili Hauptmans
og ýmislegt annað hefir komið í
Ijós, sem bendir á sekt hans.
Þrátt fyrir þetta neitar Haupt-
inan því staðfast\ega að hann sé
sekur. Lögreglan hefir spurt hann
í þaula dögum saman og viðhaft
aðrar algengar aðferðir til þess að
fá hann til að játa á sig glæpinn.
Á dögunum fluttu blöðin þá frétt
að helzt væri í ráði aö fá hann til
að meðganga með því að setja grát-
andi barn í næsta klefa. Þetta þótti
-*kki allskostar heppilegt og var þá
stungið upp á því að gera hljóm-
plötu af barnsgráti og spila hana.
Hvorugt hefir verið gert ennþá og
verður eflaust vikið frá svo ótil-
hlýðilegum áformum.
Heyrst hefir að eitthvað af pen-
ingum hafi fundist, sem ekki verða
raktir til Hauptmans. Ef það reyn-
'st rétt hafa einhverjir veriö í vit-
orði með honum.