Lögberg - 22.11.1934, Síða 1

Lögberg - 22.11.1934, Síða 1
47. ARGANGUR ]| WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 22*. NÓVEMBER 1934 | NÚMER 47 Til Mr. og Mrs. H. D. Gourd á tuttugu cq fimm ára giftingarafmœli þeirra í Árborg simnudaginn 30. september, 1934. Nu er litfagurt landið. Loftið blækyrt og liljótt. 1 uppheims köldustu kynnum Kveikir ljósgjöful nótt. Víkkar útsýn vors auga. Er sem Meistarans liönd Opni hljóðlega hliðin Inn á himinsins lönd. Þó að vordagsins veröld Verði manninum kær, Eru hin hrímlitu haustkvöld Ávalt himninum nær. Þá fer andinn á útleið, Kannar ónumin lönd. Þar sem útsýn í eilífð Opnar Meistarans 'hönd. Þegar hjart-sláttur hulinn Fer um helkaldan svörð, Vorið leysir úr læðing Sérhvert lífsmagn í jörð. Ástir vekur og vonir Vorsins ylríka hönd; En um haustkvöld á Hugur Hlýrri og feguri lönd. Þar sem útsýn í eilífð Opnar Meistarans hönd Hverfur andinn á útleið Inn á friðarins lönd; Skín þá norðurljós niður Gegn um náttmykið svart, Og livert hjónabands haustkvöld Verður hugljúft og bjart. Og þó ferðin sé farin Yfir fjóðung úr öld, Gegnum liaustregn og húmið Skína hnattanna fjöld! Horfi norðurljós niður. Hverfi náttmyrkrið svart. Ykkar hjónabands haustkvöld Verði hugljúft og bjart! 8. E. Björnson. BENNETT UMSKAPAB RAÐUNEYTl SITT Símað er frá Ottawa þann 19. þ. m., að Mr. Bennett hafi þannig umskapað ráðuneyti sitt, að í stjórn- inni taki sæti sem verzlunarráðgjafi i stað H. H. Stevens, Mr. Richard Burpes Hanson, þingmaður York- Sudbury kjördæmisins í New Brunswick, og Mr. Grote Stirling, þingmaður fyrir Yale kjördæmið í British Columbia, sem hermálaráð- gjafi í stað Hon. D. M. Sutherland. Heilbrigðismálaráðgjafinn, Hon. Murray MacLaren hefir vikið úr ráðuneytinu, en Mr. Sutherland verið fengið embætti hans til for- sjár. Hinn nýi verzlunarráðgjafi hefir átt sæti á þingi síðan 1921, en hermálaráðgjafinn frá því 1924. Líkur þykja til að fráfarandi heil- brigðismálaráðgjafi, Mr. MacLaren, verði á næstunni skipaður fylkis- stjóri í New Brunswick. BANDABÍKIN KAUPA CANADISKT IIVEITI Eftir nýjum fregnum að dæma, hafa Bandaríkin keypt undanfarið 600,000 mæla af canadisku hveiti. Fylgir það sögunni að hér sé ein- ungis um að ræða þær tegundir hveitis, er óhæfar þyki til mann- eldis, en notast skuli til skepnufóð- urs syðra. VÍÐTÆKABI RANN- SÓKNAR KRAFIST Einn af þingmönnum frjálslynda flokksins, þeirra, er sæti eiga í hinni konunglegu rannsóknarnefnd, er Mr. Stevens fram til skamms tíma átti forsæti í, Mr. Sam Factor (To- ronto West Centre), hefir krafist þess að rannsóknin verði ekki ein- skorðuð við hin stóru verzlunarfé- lög, heldur skuli hún ná til einstakra kaupmanna lika, með því að orð leiki á að þeir, sumir hverjir, undir- horgi starfsfólki sínu, einkum og sérílagi sendisveinum. FRAM TAKSSAMUR ISLENDINGUR Ungur íslendingur, Mr. Björn A, Björnsson, sonur Mr. og Mrs. Sig- urður Björnson að 679 Beverley St., í Winnipegborg, hefir vakið á sér allmikla athygli fyrir endurbætur á einu og öðru í sambandi við notkun útvarpstækja, svo sem hljómauka eða gjallarhorns; rekur hann nú viðskifti upp á eigin spýtur í þessari grein, undir nafninu B. A. Björn- son Sound System. Radio tímaritið, “Listen Tn,” sem gefið er út hér í borginni, septem- ber-heftið, fer lofsamlegum orðum um Mr. Bíjörnsson og hljómauka- kerfi hans. Er þar meðal annars komist svo að orði: “Á Radíó sýningunni miklu, er haldin var hér í borginni nýverið, vakti fátt almennari ánægju, af því er til skemtana taldist, en unglinga- söngflokkur frú Guðrúnar Helga- son, er þar söng; hve skýrt og skil- merkilega heyrðist til flokksins má að miklu leyti þakka hinum ágæta útbúnaði Mr. Björnssons, er vafa- laust má teljast einna fullkomnast- ur slikrar tegundar í Vestur-Can- ada.” Við hátíð þá, er haldin var í Win- nipeg Auditorium í tilefni af inn- setning hins nýja forseta Manitoba háskólans, var hljómaukakerfi Mr. Björnssons viðhaft og reyndist í hvívetna prýðisvel. Við íslendinga- dags hátíðahöldin á Gimli hefir Mr. Björnsson komið til aðstoðar með gjallarhorn sín og gert gestum marg. falt hægra fyrir með að njóta skemtiskrárinnar en ella mundi ver- ið hafa. Mr. Björnsson er góður fslendingur, áhugasamur um starf sitt og líklegur til forustu í grein sinni. AFTU RIIALDSMENN VELJA ÞINGMA NNSEFNI Flokkur Afturhaldsmanna i Mið- Winnipeg kjördæminu hinu nyrðra, hefir kjörið R. R. Pattinson að merkisbera í því kjördæmi við næstu sambandskosningar. Er hann sett- ur út til höfuðs Mr. Woodsworth. Mr. Pattinson gaf sig um hríð eitt- hvað við fasteignasölu hér í borg- inni að því er sagt er. GASPARRI KARDÍNALI LATINN Hinn 19. þessa mánaðar lézt i Rómaborg einn hinna áhrifamestu manna kaþólsku kirkjunnar sinnar samtíðar, Gasparri kardínáli. 82 ara að aldri. Hafði hann með hönd- um meðferð utanríkismáh fyrir Vatikanið meðan á heimsstyrjöld- inni miklu stóð frá 1914. Arið 1932 hafði núverandi páfi mælt með Gasparri kardinála sem eftirmanni sinum, ef honum yrði lengri lií- daga auðið en sér. ÞJÓÐAFUNDUR UM HVEITIRÆKT OG HVEITISÖLU ' Á fundi, er hófst í Budapest síð- astliðinn þriðjudag, er um fram- leiðslu hveitis og markaðshorfur fjallar, voru mættir fulltrúar frá tuttugu og einni þjóð. Forseti fundar þessa eða þings, var kosinn sendiherra Bandaríkjanna i Ung- verjalandi, Mr. William A. Mac- Murray. Landbúnaðarráðgjafi ungversku stjórnarinnar, Dr. Nico- las Kalloy, taldi kreppuna á sviði viðskiftalífsins einkum og sérílagi stafa frá lágvirði hveitis. BRETAR AUKA VÍGVARNIR Hermálaráðgjafi brezku stjórn- arinnar, Hailsham lávarður, lýsti nýverið yfir því í lávarðastofunni, að þó þjóðin bæri mjög fyrir brjósti takmörkun vígbúnaðar, og gerði sér ljósa grein fyrir raunverulegu gildi slíks, þá gæti hún þó, eins og á- statt væri með aðrar þjóðir, undir engum kringumstæðum stigið neitt það spor, er veikt gæti öryggi henn- ar eða ríkisheildarinnar brezku. Með þetta fyrir augum, hefði stjórnin talið það óumflýjanlegt að verja $400,000 til þess að bæta loft- flotahöfnina í Singapore og $250,- 000 til endurbóta á flughöfninni í Hongkong. ÞINGIÐ / SASKATCIIE- WAN KVATT TIL FUNDA Á fimudaginn þann 15. þ. m., fór fram þingsetning í Saskatche- wan. Hafði núverandi forsætisráð- gjafi, Hon. James Gardiner, lýst yfir því i kosningahríðinni í sum- ar, að þingi yrði stefnt til funda á öndverðum vetri, til þess að ráð- stafa ýmsum helztu nauðsynjamál- tim fylkisins. Búist er við að auka- þing þetta muni ekki eiga setu nema háífsmánaðar tíma, eða svo. Stjórn- arboðskapurinn hafði inni að halda þrjji eftirgreind meginatriði: 1. Að teknar verði ákvarðanir um það með hvaða hætti helzt megi reisa við f járhag hinna ýmsu stjórn- arstofnana, sem og iðnað og land- búnað í fylkinu, og afgreiða þar að lútandi löggjöf. 2. Nýmæli laga, er að því lúta að koma búskap til sveita á fastan grundvöll og reisa við þau héruð, er harðast hafa verið leikin af völd- uin ofþurka. 3. Að efla að nýju lánstraust fylkisbúa og fylkisins út á við. Stjórnarflokkinn skipa 49 liber- alar, en stjórnarandstæðingar- (C. C.F.), eru 6 i alt, með Mr. Wil- liams, þingmann Wadena kjördæm- is að foringja. ISLENDINGI SÝNT BANATILRÆÐI Á laugardagsmorguninn var, fluttu dagblöð þessarar borgar þá fregn, að Rögnvaldi Vídal hótel- stjóra að Hodgson, Man., hefði ver- ið veitt banatilræði, í gistihúsi sinu snemmendis undanfarinnar nætur; hafði þetta gerst með þeim hætti, að ungur maður, Brockman að nafni, skaut á Mr. Vídal tveim skotum; fór annað skotið í gegnum líkama hans örskamt neðan Við hjartað, en hitt misti alveg marks. Mr. Vídal var fluttur hingað með fyrstu eimlest að norðan og settur á Al- menna sjúkrahúsið til grandsjkoð- unar og lækninga. Er Lögbergi það mikið ánægjuefni, fjölskyldu Mr. Vídals vegna, sem og íslend- inga í heild, að geta flutt þá fregn að góð líkindi séu til að hann nái heilsu sinni að fullu. Maður sá, er sýndi Mr. Vídal banatilræðið var þegar handsamað- ur og fluttur til borgarinnar til gæslu, þar til mál hans verður tekið til rannsóknar. SKIPAÐUR FYLKISSTJÓRI W| J. Tupper, K.C., hefir verið skipaður fylkisstjóri í Manitoba frá 1. desember næstkomandi að telja, í stað Hon. J. D. McGregor, er þá lætur af embætti. Hinn nýi fylkis- stjóri er sonur Sir Charles Tupper, og er fæddur þann 29. dag júnímán- aðar árið 1862. Lauk hann prófi í lögum við Harvard háskóla 1885; stundaði málafærslu í Nova Scotia árlangt fyrst þar á eftir, en fluttist þvi næst til Manitoba, þar sem hann hefir gegnt lögmannsstörfum jafn- an síðan. Mr. Tupper hefir gefið sig all- mikið við opinberum málum og var kosinn á fylkisþing í Manitoba árið 1920 fyrir hönd íhaldsflokksins. Kona hans er Margaret, dóttir Mac- donalds fyrrum dómsforseta í Nova Scotia fylki. Eiga þau fimm börn, tvo sonu og þrjár dætur. Ur bænum Mr. Gamaliel Thorleifsson frá Garðar, N. Dak., kom til borgar- innar siðastliðinn föstudag og dvaldi hér fram um miðja yfirstandandi viku. Mr. Sigmundur Laxdal frá Garð- ar, N. Dak., kom til borgarinnar fyrir síðustu helgi, ásamt Morris syni sínum og dvaldi hér nokkra daga. Miss Pearl Hanson píanókennari frá McCreary, Man., kom til borg- arinnar á mánudaginn, til þess að vera viðstödd hljómleika rússneska pianósnillingsins og tónskáldsins Rachmaninoffs. Mis$ Hanson hélt heiinleiðis daginn eftir. Mr. Gestur Vídal frá Hnausa, Man., var staddur i borginni á laugardaginn var. Dorcasfélag Fyrsta lúterska safn- aðar heldur Concert í samkomusal Fyrstú lútersku kirkju á mánudags- kveldið þann 3. desember næstkom- andi. Mrs. Sigurmundi Sigurðsson frá Churchill, Man., dvelur í borginni um þessar mundir. Mr. Sigvaldi Nordal frá Selkirk, Man., var staddur í borginni í lok fyrri viku. Mr. Ingimundur Erlendsson frá Steep Rock, Man., kom til borgar- innar á mánudaginn til þess að leita sér lækninga. Mr. og Mrs. Björgvin Jóhannes- son frá Selkirk, Man., voru í bprg- I inni siðastliðinn föstudag. Mr. W. H. Paulson, fyrrum fylk- isþingmaður í Saskatchewan, er fluttur frá Leslie vestur til Regina, ásamt frú sinni. ÁRSFUNDUR hins yngra kven- félags (Junior Ladies’ Aid) Fyrsta lúterska safnaðar, var haldinn í samkomusal k;irkju,nnar á þriðju- daginn þann 13. þ. m. Eftir að skýrslur höfðu verið lesnar upp og samþyktar, var gengið til kosninga, og hlutu eftirgreindar konur kosn- ingu fyrir næsta starfsár: Heiðursforseti, Mrs. B. B. Jóns- son; forseti, Mrs. Paul Bardal; vara-forseti, Mrs. L. G. Johnson; ritari, Mrs. Walter Jóhannson; vara-ritari Mrs. Baldi Baldwin; fé- hirðir, Mrs. T. E. Thorsteinsson, vara-féh., Mrs. Ben. Baldwin; fé- laganefnd, Mrs. O. Olson og Mrs. W. Fridfinnson; skemtinefnd Mrs. J. G. Jóhannson og Mrs. S. Stone. Nemendasamband Jóns Bjarna- sonar skóla hélt hið annað ársmót sitt í St. Regis Hotel hér i borg á föstudagskvöldið i síðastliðinni viku, 16. nóv. Fór þar fram máltíð ásamt ræðum. Mótinu stýrði Mr. Harald J. Stephenson, sem var end- urkosinn forseti á ársfundi félags- ins í haust. Aðrir embættismenn sambandsins eru: varaforseti, Claude Main; skrifari, Valborg Nielson, aðstoðar-skrifari, James McMillan ; féhirðir, Hugrún Jónas- son ; aðrir í stjórnarnefndinni: Mrs. Lína Goodman, Otto Bjarnason, Sam Shewczuk, Ethel Gfreen. í máltíðarlok flutti forseti ræðu um starf og horfur félagsins. Aðrir ræðumenn voru: Dr. J. A. Bíldfell, Miss Salome íjalldórson, Miss Ethel Green, séra Rúnólfur Mar- teinsson, Jón J. Bíldfell og Árni Eggertson. Aðsókn var góð og á- nægja mikil með félagið og starf þess. TIL ISLENSKRA KJÓSENDA 1 2. KJÖRDEILD! Athygli minni hefir verið beint að því, að íslenzkum kjósendum í 2. kjördeild hafi borist í hendur bréf, þar sem fram á það er farið, að þeir veiti fylgi ákveðnum fram- bjóðanda, öðrum en mér; er svo látið líta út sem bréf þetta sé stílað af íslenzkum kjósendum í kjör- deildinni. Með því að umrætt bréf er aðeins sent íslenzkum kjósend- um, er það auðsætt að tilgangur- inn hlýtur að vera sá, að rýra fylgi mitt meðal íslendinga eins og frek- ast má verða. Eg vil vara landa mína við því, að láta ekki þetta undirhyggju til- tæki ráða neinu um athafnir sínar, er að kjörborðinu kemur á föstu- daginn. Vinsamlegast, Victor B. Anderson. bæjarfulltrúi. AÐALFUNDUR Eyrsta lúterska safnaðar verður haldinn í fundarsal kirkjunnar á þriðjudagskvöldið þann 27. þ. m., kl. 8. Áríðandi að safnaðarmeð- limir fjölmenni. Mr. Karl Jónasson, trésmiður, 628 Alverstone St. hér í borginni, er unnið hefir að , húsasmíði undati- farandi við Sjö Systra Fossa, kom heim um helgina snöggva ferð. Mrs. D. R. McLeod frá Selkirk, kom til borgarinnar síðastliðinn laugardag í heimsókn til foreldra sinna, Mr. og Mrs. Kristján Good- man, Agnes Street. Mr. J. K. Jónasson frá Vogar, er nýkominn til borgarinnar, eftir vikudvöl hjá vinum og kunningjum i nyrðri bygðum Nýja íslands. Lögberg spurði hann tíöinda, en fékk aðeins þetta svar: Upp við nöglu enginn skar; eg með gleði róma. Viðtökurnar voru þar víst með snild og sóma.— Mr. Th. Thorðarson kaupmaður á Gimli var í borginni um miðja vikuna sem leið. Mr. Guðmundur Sigurðsson frá Ashern, Man., er staddur t borginni um þessar mundir. Ungmennafélag Fyrsta lút. safn- aðar heldur fund í fundarsal kirkj- unnar, föstudaginn 23. nóvember. Mr. Gísli Sigmundsson kaupmað- ur að Hnausa, Man., var staddur i borginni síðastliðinn laugardag. Fjölmennið á fyrirlesturinn, er Dr. J. A. Ríldfell flytur í Good- templarahúsinu þ. 28. þ. m., til arðs fyrir Jóns Bjarnasonar skóla um dvöl sína á Baffinlandi. Fimtudagskvöldið 15. nóv., hélt Jóns Bjarnasonar skóli minningar- hátíð í samkomusal Fyrstu lút. kirkju. Samkomusalurinn var smekklega prýddur. Var það verk unnið af skólapiltum. Aðsókn var ágæt. Á móti gestum var tekið af Miss Halldórson, séra Rúnólfi og Mrs. Marteinsson. Kaffi og brauð stóð öllum, til boða. Var það undir umsjón eins kennarans, Miss B. Gíslason. Hefðarfrúr, enskar og íslenzkar, skenktu kaffið við borðin. Séra Björn B. Jónsson, D.D., flutti ýtarlega og góða ræðu um Dr. Jón Bjarnason. Auk þess var skemt með söng og píanóspili. Skólapilt- ur, sem tilheyrir “Round-up Ran- gers” lék með miklu fjöri á harmó- niku. Annar úr þeim flokki sýndi líkamlegar íþróttir, sömuleiðis lítil stúlka. Báðir söngflokkar Salome Halldórson, karlakór og kvennakór, skemtu með söng. Að öllu þessu ,var ágæt skemtun. Þú komát sem geálur Þú komst sem gestur úr glaumi heimsins, en grátur fólst undir þinni brá. Og þú varst saklaus sem svanur hvítur, en syndar skuggi á herðum lá. Þú varst ei ástmey mín,—aðeins gestur um örfá dægur,—og svo ei meir. Þú komst sem flögrandi fugl á glugga, sem feykir burt aftur næturþeyr. Við vorum saman sem systir, bróðir í synd,—i arfleifð hins göfga manns, sem fæddist til þess að fallnir rísi við fótskör eilífa kærleikans. Já, þú varst saklaus sem svanur hvítur, en syndar skuggi á herðum lá. Þú komst sem gestur úr glaumi heimsins, en grátur fólst undir þinni brá. Jakob StnárL

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.