Lögberg - 13.12.1934, Side 4
4
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 13. DEJ3EMBER, 1934.
Hógtjcrg
OeflC Ot bvern fimtudag af
T B K C n L C M B I A P R E 8 8 L I M I T M D
«96 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba.
Otanáakrift ritatjðrans:
BDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
Verð S8.00 um drlð—BorgUt fvrirlram
The ~Lögberg” is printed and published by The Colum-
bia Press, Limited, 695 Sargent Ave„ Wnnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Hagalagðar
Fornleifarannsóknir, er fram hafa farið
í Samaríu undanfarin ár, og unnið hefir ver-
ið að fyrir atbeina Harvard háskólans og hins
hebreska háskóla í Jerúsalem, hafa borið
margháttaðan og mikilvægan vísindalegan á-
rangur, að því er J. W. Crowfoot, merkum
ferða- og fræðimanni segist frá; dvaldi hann
all lengi á þeim stöðvum, er rannsóknirnar
fóru fram, og hefir fyrir skömmu gert skil-
merkilega grein fyrir því ihelzta, er fyrir augu
bar; hafa ritgerðir hans í þessu sambandi
verið birtar í stórblaðinu London Times.
Konungabækurnar geta um fílabeins
höll, er Ahab hafi látið reisa í Samaríu. Spá-
maðurinn Amos úthúðaði lýðnum, eða þó
einkum og sér í lagi höfðingjum hans, fyrir
makra*ki og svall; spáði hann því að þannig
háttað líferni hlyti að enda með skelfingu,
ríkið myndi leysast upp og fílabeinshallirnar
hrynja til grunna.
Frá tíma Ahabs eru nú liðnar tuttugu
og átta aldir; nú eru þær farnar að skila úr
fóðrunum íhuldum fjársjóðum forna tímans
og styrkja með því söguleg rök.
Við rannsóknir þessar hefir fundist
f jöldinn allur af haglega útskornum munum
úr fílábeini; flestir þeirra eru að vísu ekki
noma svipur hjá sjón, þá sumir lialdi sér
furðu vel og gefi allglögga hugmynd um auð
og listræni þeirrar tíðar. Margir eru munir
þessir lagðir fulli og skreyttir litgleri; all-
títt mun það hafa verið í Samaríu á þessu
tímabili, að skreyta hallir og híbýli líkönum
dýra, skornum úr fílabeini; hafa síðustu
rannsóknir dregið minjar þess glögt fram í
dagsljósið Fundir þessir hinir nýju, varpa
margvíslegum fróðleiksbjarma á “fílabeins-
öld” hinna fornu Israelsmanna og menningu,
auk þess sem áhrif þeirra á fornlist Grikkja
skýrast að mun.
# # #
Senotor Huey Long frá Louisiana, hefir
gert lýðum ljóst að hann ætli sér að verða
næsti forseti Bandaríkjanna; ekki einungis
ætli hann sér að verða í kjóri við forseta-
kosningarnar 1936, heldur sé hann staðráð-
inn í því að sannfæra þjóðina um hið persónu-
lega segulmagn sitt með því að verða kosinn.
Hinn aldna og æruverða flokk Republicana
telur Huey Long nú vera í þann veginn að
syngja sitt síðasta vers; þeir Harding, Cool-
ilge og Hoover hafi svo um hnútana búið, að
slíkt. verði óhjákvæmilegt; hann sé aðeins
bráðabirgða griðland útlifaðra afturhalds-
kenninga, er ekki 'þoli dagsljós nútíma þrosk-
ans; æskan hafi með öllu snúið baki við
flokknum og þar af leiðandi sé hann hraðför-
um á leið til grafar. “Engar jómfrúr una þar,
alt eru tómar kerlingar,” sagði skáldið forð-
um; slíkur er í rauninni andinn í ummælum
Huey Longs um Repuhlicana flokkinn syðra.
Fylgi Roosevelts og Demokrata telur
Huey Long einnig vera komið svo að segja á
heljarþrömina. Roosevelt ihafi að vísu
hreint ekki farið svo illa af stað; um hitt
verði þó ekki vilst, að hann hafi átakanlega
skort þrek til þess að hrinda stefnuskrár at-
riðum sínum í framkvæmd; það sé ekki ófyrir-
synju að þjóðin sé farin að fá óbeit á slíku
meðalmensku káki. E(ftir orðum Huey Longs
að dæma, mætti helzt ætla að alt væri snar-
vitlaust og alt dauðvona, annað en hann sjálf-
ur.
En hvaða maður er svo þessi Huey Long,
þegar alt kemur til alls? Hann er Senator
frá Louisiana, eins og þegar hefir verið sagt;
en hann er meira en það; eins og stendur má
svo að orði kveða að hann ráði lofum og lög-
um í ríki sínu og hafi þing þess í hendi sér;
heima fvrir líthúðar hann auðvaldi og stór-
iðju, en í Washington hefir hann aldrei gert
það, svo menn viti til. Nokkrir menn hafa
þá trú, að töluvert sé spunnið í hann sem
stjórnmálamann; ]>eir eru samt miklu fleiri,
er telja hann lýðskrumara og orðhák, er auð-
veldlega geti kollsiglt sig nær sem vera vill.
# # #
Skammdegið er mörgum manninum
þungbært, og iþá ekki hvað sízt þeim, sem
kominn er á efri ár, og fáa eða enga á að,
Þeir eru margir, sem sitja auðum höndum í
skammdeginu, er öfugstreymið í þjóðlífinu
hefir bægt frá starfi. Það er ekki ávalt á-
hlaupaverk “að drepa tímann”eins og kallað
er; en stytta má hann í vissum skilningi og
draga úr leiðindunum við lestur hollra og nyt-
samra bóka.
Bækur eru í rauninni menn, eða það líf-
rænasta er í höfundum þeirra bjó.
Þjððræknisfélag Islendinga í Vestur-
heimi, eða ef til vill réttara sagt, deild þess
í Winnipeg, hefir komið á fót all-mikilvægu
-afni íslenzkra bóka, er auðvelt er að eiga
aðgang að og stytta með því skammdegið;
mun nú svo komið, að safn þetta telji hátt á
áttunda hundrað bóka í góðu ásigkomulagi
til útláns. Er þar margt nýrra ágætisrita,
svo sem “Islendingar” eftir Dr. Guðmund
Finnbogason, “Glæfumaðurinn” eftir Einar
H. Kvaran, ásamt leikritum og ljóðum eftir
góðkunna höfunda. Með lestri hollustu og
fagurliugsuðustu ritanna að heiman höldum
vér lengst við lífrænu sambandi víð stofnþjóð
vora og njótum með henni þeirra verðmæta,
sem því eru samfara. Bókasafns hugmynd
Þjóðræknisfélagsins er góð; hún ætti að verða
vinsæl og metin að verðleikum.
Bókasafli það, er hér um ræðir, hefir nú
trygt sér húsnæði til árs í Jóns Bjamasonar
skóla frá 1. janúar næstkomandi að telja.
Verður það opið til útláns frá kl. 7 til 9 á
miðvikudagskvöldum, sem og á sunnudögum
einhvern stuttan tíma.
Skuldlausir meðlimir Winnipegdeildar
Þjóðræknisfélagsins eiga fullan aðgang að
bókum safnsins gegn 50 centa gjaldi auk-
reitis.
Nýaáta bók Huldu
Eftir professor Richard líeck.
Enn einu sinni kemur Hulda skáldkona
(frú Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) fram
á ritvöllinn íslenzka með fangið fult af fögr-
um ljóðum. Nýjasta bók hennar, ljóðaflokk-
urinn Þú hlustar, Vör, kom út á Akureyri ár-
ið sem leið hjá Þorsteini M. Jónssyni, sem
mikilvirkur gerist nú í bókaútgáfu og harla
vandur að vali.
Er 'þetta tíunda bók skáldkonunnar, og
kennir eigi lítillar fjölbreytni í ritum henn-
ar; auk ljóðasafna hefir hún samið smásögur,
æfintýri, og smágreinasafn, er alt ber vitni
fegurðarþrá hennar, hugarhreinleik og auð-
ugri ljóðgáfu. Það er því hreint ekki ómerki-
'egur skerfur, sem Hulda er búin að leggja til
íslenzkra nútíðarbókmenta. Ritafjöldinn og
fjölbreytnin koma þar samt langt frá ein til
greina. Það var alls engin tilviljun, að Þor-
.steinn Erlingsson, þessi sann-ljóðelski og
þjóðlegi snillingur, hylti Huldu fyrstur
manna (í “Huldupistli,” Þjóðviljinn, 15.
júní, 1905) fyrir ljóðtöfra hennar, og þó eink-
um fyrir það, ihvað henni hafði tekist snildar-
lega, að vekja til lífs á ný þulurnar gömlu og
vinsælu; honum var full ljóst, að íslenzk
ljóðagerð hafi eignast nýjan streng 'þýðleiks
og tónfegurðar í hörpu sína. í sama anda var
það, að Einar Benediktsson nefndi Huldu
“fyrsta gróður vors nýjasta skóla,” í snjöllu
kvæði til hennar (Tlrannir, 1913, bls. 99-101).
Mun það mála sannast, að Guðmundur Guð-
mundsson og Hulda hafi, síðan Jónas Hall-
grímsson leið, átt hvað drýgstan þátt í að
gera íslenzkt ljóðform mýkra, léttara og fjöl-
breyttara en áður var, án þess að lítið sé gert
úr hlutdeild annara, sem fylgt hafa þeim í
spor; enda segir Þorsteinn svo í “Huldu-
pistli”: “Mér fundust þessir tónar enn þá
eiginlegri en samkvns tónar hjá Jónasi og
Guðmundi Guðmundssyni og fanst mér það
þó líkast þeim, en hér fanst mér þetta standa
enn þá dýpra.”
Þó bókin Þú hlustar, Vör sé prentuð sem
handrit og eigi venju samkvæmt að ritdæma
slíkar bækur, má ekki minna vera en útkoruu
hennar sé getið að nokkru, sér í lagi þar sem
í hlut á jafn merk skáldkona og Hulda er.
Þeim til fróðleiks, sem kunna að furða sig á
heiti bókarinnar, má geta þess, að það er á-
varp til ásynjunnar Varar, en frá henni er
þannig sagt í Snorra-Eddu: “Vör, hon er
vitr og spurul, svá at engi hlut má hana
leyna; þat er orðtak, at kona verði vör, þess
er hon verðr vís.” Og fjarri fer því, að
skáldkonan hafi valið þessum ljóðaflokki sín-
um nafn af handahófi; með fölskvalausri
hreinskilni lýsir hún hér dýrkeyptri inuri
reynslu sinni, gerir lesandann hluthafa í
.hjartfólgnustu draumum sínum og kærustu
minningum.
Bjart er yfir inngangskvæðinu, ávarps-
ljóðunum til ásynjunnar, en þar renna saman
tónfegurð og hugsanaauðgi í listræna eind:
“Þín höll er þar sem hæstu tindar brenna,
og heilög vötn á hvössu gr jóti renna.
Hve langt, hve langt úr djúpum Sorgadal.
Hve bratt þeim fót, sem elskar lilju engi,
hve örðugt þeim, sem vorið þráði lengi
að hafa að marki hæsta fjallasal.
En yfir gráts og gleðisöngva alla
þín grjóti hreinsuð vötn úr fjarska kalla
því (hærra æ, sem líður lengra á dag.
—Þökk, Vanadís, þinn hörg eg Ieit
í loga
og ljós þín stór og smá á himinboga.
“Mörg stjarna hrapar, lögmál lífs
þær slær.
En guðleg fegurð, eins og ljósitS,
lifir;
þinn ljómi brennur sokknum höllum
yfir
og hvítar dúfur flögra f jær og nær.
Hvað lifa skal mun lífsins drottinn
dæma,
hvert duftsins barn skal reynslu-
bikar tæma.
Senn styttist leið — í ljóma heiðum
skín
þinn lundur, Vör, og kallar mig til
sin.
Ein hef eg gengið urð og fluga-
brúnir,
ein hvlst um nótt og lesið stjörnu-
rúnir
og hlustað alein þegar þögn gaf
svar;
einmana vind um vængi sterka
beðið,
sem völva ein á nóttu ljóð mín
kveðið
er æfin blakti, eins og ljóssins skar.
Ei fylgir neinn, er feril sál skal
hef ja
og fjarlægjast þau mörk, er villa og
tefja.
Kojn blessuð ró, er býr á þessum
f jöllum.
Þú blessuð dís, er ræður efstu
höllum,
minn veika fót munt finna láta stig.
Þann hug, sem útsýn fegri og fegri
þráir
þú, frjáls af duftsins skugga, eigi
smáir,
þín líkn sér þá, sem leita og biðja
þ’g-
Sjá, alt er þitt, sem ung í dölum
fann eg
og alt, er þrautum treyst, á leiðum
vann eg.”
Margt er hugljúfra, klökkra og
i draumrænna ástarsöngva í þessum
ljóðaflokki, léttstígra munarmála,
þar sem orð og efni fallast mjúk-
tega í faðma. Þó eru einlægnin og
hreinleikinn hvergi meiri en í kafl-
anum “Innan vébanda,” um móður-
sorg og móðurást, heimilishelgi og
heimilisfrið. Heimilið er- skáldkon-
unni griðastaður og gróðurreitur,
sem hún lofsyngur og biður fyrir í
tónmjúkum söngvum eins og eftir-
farandi erindum úr “Silfurbrúð-
kaupsljóðum” og lokakvæði flokks-
ins:
“Ef lífið launar nokkuð
þá launar það trygð.
Sé nokkuð hreint í heimi
er það heimilisbygð.
Þú bjarti arineldur,
það eina bál,
sem breytist ei né bliknar
við böl og tál.
Sa byggir ei á sandi,
sem byggir um þig.
Þín stjarna friðmál flytur
á fjarsta stig.”
* * *
“Þú himneski, helgi lundur,
heimilis blessuð vé!
í ykkar skjóli frá ómuna tíð
fyrir öllum stormum var hlé.
Æskan sem blóm þar brosti,
sem brunnur Mímis á jörð
ellin um vísdóm þar vitni bar,
—alt vóx er þann snerti svörð.
* * >1=
Þó ættir þú allan heiminn
en ekki kærleiks gjöf,
hve sárfátæk væri, vinur þín sál,
hún væri sem kölkuð gröf.
Á meðan að mannleg tunga
fær mælt er það sannast orð:
að sem hljómandi málmur og hvell-
andi kall
er hjartalaus maður á storð.
Sem afhöggvin grein á öldum
ef enginn kallar hann vin.
Skín, blessaða heimilis himinsól,
sá hrjáði gleðst við þitt skin.
svo djúpt er ei snævi snivin
hin snauða einstæðingssál
að þiðni’ ei og hlýni, smátt og smátt,
við smábarns vinarinál.”
Réttilega hafa ritdómarar lagt á-
herslu á það, eins og hér hefir gert
verið, hversu óvenjulegir söngtöfr-
ar búa í ljóðum Huldu; en þau eru
miklu meira en þýðir og blíðmálir
hörpuhljómar einir saman; fagurt
Ijóðform þeirra er hæfur ytri bún-
ingur djúpra og viðkvæmra hugs-
ana, skriftamál hreinnar og göfugr-
ar skáldsálar, sem á sýn inn í
drauma- og duliðsheima mannlegr-
ar tilveru og kýs að opna öðrum
þær veraldir með töfralykli listar
sinnar. Um tilverurétt og nauðsyn
slíkra skálda má vitna til spaklegra
orða Þorsteins Erlingssonar í
“Huldupistli”: “Þær ljóðadísir eru
fagrar, sem láta sönginn fara eins
og snæljós gegnum þoku og myrk-
ur sálnanna, eða gera hina fölsku
tóna aldarinnar að viðbjóð eða at-
hlægi, þær fljúga margar frítt og
hátt, en eg þekki enga svo albyrga,
að henni væri ekki hagur, að eiga
þessa vængi til skiptanna, til þess
að bregða sér á út-yfir sjóndeildar-
hringinn.”
Þjóðskipulag og þróun
Eftir Jón Arnason.
(Framh.)
Hitt getur átt sér stað, að honum
þyki ekki nógu vel og drjúglega
farið með fé hins opinbera, en hann
fer sömu leiðina og áður að fá það
leiðrétt. Hann reynir að skapa al-
menningsálit, sem lagfærir misfell-
urnar. Hann gerist ekki byltinga-
maður né neitar að greiða, af því
að honum finst illa með féð farið.
í einkalífi sínu fer hann sömu
leiðina. Hann er alstaðar hreinn
og ákveðinn og áreiðanlegur, og
gefur öðrum sama rétt og hann
heimtar sér til handa. Hann er
ætíð hjálpsamur og reiðubúinn að
aðstoða menn og málleysingja, hve-
nær sem tækifæri gefst og þess er
þörf. Hann skoðar sig frekar sem
niiðlara en eiganda verðmætanna,
sem hann hefir undir höndum. Þess
vegna notar hann fjármuni sína,
siðferðisþroska, þekkingu og and-
lega hæfileika þannig, að þeir komi
heildinni að sem fylstum notum.
Hann veit, að hagur heildarinnar
er hagur einstaklingsins. Heildin
fyrst og einstaklingarnir njóta ó-
hjákvæmilega ávaxtanna. Hann
skoðar sig frekar sem þjón heldur
en húsbónda, því sá er mestur, sem
þjónar bezt. Þjónustan er grunn-
tónn lífsins.
Þetta eru einkenni hins góða
þjóðfélagsþegns og þó mikið meira,
sem hér verður eigi talið.
Hið fullkomna þjóðfclag
Eins og til er hugmyndin um góð-
an og fullkominn þjóðfélagsþegn,
eins hlýtur einnig að vera til hug-
myndin um fullkomið þjóðfélag.
En fullkomið þjóðfélag getur að
sjálfsögðu eigi birst nema til sé all-
fjölmennur flokkur góðra og full-
kominna þegna. Er því lýst hér að
framan hvernig þeir séu.
Alllíklegt er þó, að eigi verði allir
jafn þroskaðir í hinu fullkomna
þjóðfélagi frekar en nú, en hitt mun
mega ætla, að alt verði þá komið í
hærra yeldi en nú á sér stað. Einn-
ig má telja víst, að það verði fá
þjóðfélög, sem ná þessari hæð, því
önnur þjóðfélög, er standa á Iægra
stigi, verða einnig til þá eins og nú,
þótt þau ÖII standi miklu hærra en
þau þjóðfélög, sem hæst eru nú I
þroska. Hin fullkomnu þjóðfélög-
in munu þá hafa forystuna í heim-
inum, jafnvel þó að þau séu ekki
eins fjölmenn og hin, alveg eins og
nú á sér stað. Sá hluti hins full-
komna þjóðfélags, sem hæst stend-
ur að þroska, mun verða aðalráð-
andi þess. Því þjóðfélagi ráða vitr-
ir og fullkomnir þegnar, sem hafa
eingöngu hvöt til þess að vinna fyr-
ir hina minna þroskuðu samþegna
sína og aðstoða þá á alla lund. Líf-
ið verður þar einfalt, látlaust og
heilbrigt, fylt gleði og krafti. Þar
veit hver maður, hvað honum bezt
hentar, hvað starf og viðfangsefni
áhrærir. Þar verður engin barátta
um auð, völd og metorð. Slikan
hégóma er ekki þar að finna. Þess
vegna verður þar friður og velsæld.
Þar verða stjórnmálaskoðanir og
stjórnmálaflokkar, en hið pólitíska
ástand verður alt annað en nú á sér
stað.
Ágreiningur verður eigi svo mjög
um stefnur, þær verða ákveðnar og
fastar, að svo miklu leyti sem þær
koma til greina. En um aðferðir
getur orðið ágreiningur nokkur. En
sá skoðanamismunur veldur aldrei
deilum, eins og nú, því öll mál verða
rædd og afgreidd með friði og í
fullkomnu bróðerni. Er það meðal
annars vegna þess, að ágirndin
þekkist ekki, sem nú er rót allra
örðugleika. En orsök ágirndar er
vanþekking. Pólitisk flokkaskift-
ing verður til þá, en með alt öðrum
hætti en nú. Framsóknarflokkur
(rajas) verður þá orðinn mjög fá-
mennur og eins ihaldsflokkur
(tamas), en jafnvægisflokkurinn
(sattva) verður þá stærstur og ræð-
ur mestu. Er sá flokkur varla til
nú. Hann verður stærstur, vegna
þess að hann samsvarar vizkunni
og þekkingunni, sem að lokum fæst
við margendurtekna reynslu. Öll
sú pólitíska þróun, sem hefir átt sér
stað um aldaraðir, ber í skauti sér
þennan árangur.
Hvernig verður stjórnarfyrir-
komulagið i hinu fullkomna þjóðfé-
lagi? Þannig mundi einhverjum
detta í hug að spyrja.
Það verður einveldið.
Einveldið er hið eina fyrirkomu-
lag, sem tilveran þekkir. Alt annað
fyrirkomulag er aðeins millibilsá-
stand, sem fyr eða síðar hverfur úr
sögunni. EinveMið er fyrst og síð-
ast.
1 fyrndinni hrifsaði hinn sterki
herkonungur til sín valdið og réði
yfir þegnunum skilyrðislaust. Þeg-
ar fram í sótti varð hann að af-
henda þegnunum nokkurn hluta af
þessu valdi sínu, því þeir urðu líka
að taka þátt í stjórninni. Þeir urðu
að vita hvað það er að stjórna. Og
þeir fengu þingbundið konungsvald.
Síðan lýðveldi með forseta. Svo
kemur jafnaðarmannaríki, svo lýð-
stjórnarríki. En að lokum, þegar
menn hafa reynt þetta alt saman,
þá hverfa þeir aftur að einveldinu.
En það einveldi, sem þá sér dags-
ljósið, hvílir á alt öðrum grund-
velli en hið fyrra. Það verður af-
hent þeim vitrasta og bezta af fús-
um og frjálsum vilja hinna þrosk-
uðu þegna hins fullkomna þjóðfé-
lags. Þá fyrst er lagður sá rétti
grundvöllur undir varanlegt friðar-
ríki, en eigi fyr.
Að einveldið sé hið eina fyrir-
komulag, sem tilveran þekkir, birt-
ist í hinni Iægri náttúru, meðal ann-
ars í starfi og stjórnarfyrirkomu-
lagi býfíugnanna. Þar ræður nátt-
úran og náttúruöflin óskorað yfir
fyrirkomulaginu og benda með því á
hvað verða muni siðar nieð mönn-
um, er þeir hafa komist í fult sam-
ræmi við náttúruna og starf henn-
ar. Mennirnir eiga sem sé að lok-
um að birta að frjálsri leið lögmál