Lögberg - 13.12.1934, Side 5

Lögberg - 13.12.1934, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. DEJSEMBEB, 1934. 5 þau, sem tílverunni stjórna. Og þaíSJ verÖa þeir að gera á sviði stjórnmála engu síður en á öðrum sviðum lífsins. Niðurlag. 1 framanrituÖu hefi eg gert til- raun til þess að benda á, hvernig beri að skilja hin ýmsu fyrirbrigði þjóðfélagsins og hvaða afstöðu skuli taka til þeirra og hvernig með skuli farið, svo að hinn rétti og heppilegi árangur fáist. Eg ætlast eigi til þess, að menn haldi að afstaða sú, sem eg hefi lýst, sé sú eina varanlega lausn á hinum þjóðmálalegu og pólitísku viðfangs- efnum. Þær geta verið fleiri. Þetta er mitt sjónarmið og mín tilraun til þess að leysa gáturnar. Hvort menn vilja hlita þessari lausn og þeim kröfum, sem hún gerir, er þeirra mál. En eg vona, að við nákvæma yfirvegun muni menn finna eitt- hvað það, sem ag gagni mætti verða. Hitt er víst, að án mikillar áreynslu og .fórnfýsi verður ekkert lagfært í þessu máli frekar en öðrum. Á meðan mennirnir fara ráns- hendi um alt og hrifsa alt, sem þeir mögulega geta, og vilja fá sem mest fyrir minst, helzt hið mikla ó- samræmi í heiminum, því jafnvæg- inu, frelsinu, bræðralaginu er mis- þyrmt, og stríð og styrjaldir og alls- konar hörmungar þjá mennina. En þegar fórnin, hið mikla við- haldslögmál, sem er grundvöllur al- heims, er orðinn rikjandi með mönnum, ríkir velmegun, friður og bræðralag. Vilji menn feta þá braut i orði og verki, nálgast menn óðum hina miklu guðlegu hugsjón, sem i örófi alda var skráð á musteristöflu al- verunnar: “Svo á jörðu sem á himni” eða fullkomið og guðdóm- legt mannkyn. —Eimreiðin. Æskulýðsskóli á Þelamörk Eftir Albert ólafsson. Þelamörk, nafnið þekkir hver ís- lendingur, sem hefir lesið fornsög- urnar. 1 Landnámu er getið a. m. k. þriggja landnámsmanna, sem voru ættaðir af Þelamörk. í Þelamerkur-fylki (sýslu) getur maður séð töluvert af stórfengleg- ustu náttúrufegurð Noregs. Þar skiftast á ísþakin fjöll og þröngir dalir, fossandi ár, stór stöðuvötn og miklir furu- og greniskógar. Sums staðar hafa allstórir verksmiðju- bæir risið upp á stuttum tíma, eins og t. d. Rjúkan í Vestf jarðardal og Nótodden í Heiðardal. Æfintýra- borgirnar eru þessir bæir vanalega kallaðir hérna. Þar veitir nú stór- iðnaðurinn þúsundum atvinnu, þar sem áður voru hálfhrjóstrugar fjallasveitir. Og vatnsaflið er þar eins og víðar orkulindin, sem iðnað- urinn hefir tekið í sína þjónustu. Eg er nú staddur á Söguvöllum, sem hefir sitt aðsetur i sveit, er heitir Nes á austanverðri Þelamörk. Nes liggur norðan við stórt stöðu- vatn sem heitir Norsjö. Hér er lág- lendi töluvert og mjög frjósamt. Þegar eg lít út yfir héraðið, þá blasa við stórir búgarðar, rennislétt tún og nýplægSir akrar, en inn á milli eru fyrirferðamiklir skógar- runnar, sem veita skjól og gera um- hverfið hlýlegt. Skamt fyrir sunn- an skólann, gefur að líta bláleitar skógarhæðir, sem liggja eins og í skjóli hins háa f jallahrings í norðri. Bæjirnir eru reisulegir, það eru oftast hvítmáluð timburhús og rauð- máluð hlaða og fjós í einu tvílyftu húsi—fjós og fjárhús í fyrstu hæð og hey- og kornhlaða á annari hæð. —Fallegir aldingarðar eru á hverj- um bæ, epli, perur og plómur og önnur aldini eru nú um það bil full- vaxin. Annars setur skógurinn ein- kennilegan blæ yfir alt núna að haustinu. 'Grenið er dökkgrænt eins og vanalega og furutrén eru dálítið ljósleitari á litinn, en lauf- skógurinn hefir ótal litbrigði frá ljósgulu að dökkbrúnu. Það er ekki aö furða þó að listmálararnir komi hingað á haustin. Rétt fyrir neðan hæðina þar sem skólinn stendur, Albert Ólafsson er œttaður úr Norðurárdal, bróðir Ólafs kristni- boða. Hann fluttist til Noregs fyr- ir fjórtán árum, þá átján ára að aldri. Hefir hann nú um níu ára skeið verið kennari við alþýðuskóla þar og er eflaust eini islerízki kenn- arinn í Noregi. Nú er hann kennari við Sagavoll Ungdomsskule á Þela- mörk, og segir t þessari grein frá skólalífinu þar. rennur straumhæg á í stórum bugð- um. Á vorin er gaman að sjá timbr- ið, þúsundir stórra og lítilla trjáa, sem áin fleytir hægt og þungt á- fram. Við höfum nýlega byrjað vetrar- námskeiðið hérna á æskulýðsskól- anum. Eitthvað um sjötíu ungmenni frá sveitum á Þelamörk eru saman- komin til að stunda nám í sjö mán- uði. Aldur nemenda er 17—18 ára og þeir eru yfirleitt mjög svipaðir íslenzkum sveitaunglingum, nema aö þeir eru kannske ljóshærðari. Málið sem þeir tala er jafnvel tölu- vert blandað gömlum norskum orð- um, sem hver Islendingur kannast við. Söguvalla-skólinn er elstur hinna svokölluðu kristilegu æskulýðsskóla í Noregi. Það eru rúm 40 ár síðan hann var stofnaður og nú starfa eitthvað um þrjátíu þesskonar skól- ar á víð og dreif um Noreg. Þeir eru mjög vel sóttir og stefnuskrá þeirra er falin í þessum þremur greinum: 1. Þeir vilja vekja og glæða and- legt líf æskunnar á kristilegum grundvelli. 2. Þeir veita æskunni kunnáttu og æfingu í þeim fræðigreinum, sem unga fólkið í sveitunum þarfn- ast mest. 3. Þeir vilja hjálpa unglingun- um til að finna ánægju og gleði í allri heiðarlegri vinnu. Skólar þessir hafa mætt mjög miklum vinsældum meðal bænda- lýðsins. Það sýnir sig að það er hægt að trúa þeim fyrir unglingun- um og að þeir glæða andlegt líf og góðar hugsjónir nemendanna. Þeir fylgja þeirri skoðun, að lærdómur- inn er lítils virði ef lífernið er á lágu stigi. Skólahús er þrjú hér á Söguvöll- um. Stærst þeirra er ibúðarhúsið fyrir stúlkur og kenslukonur og einn kennara. Þar eru kenslustofur í neðstu hæð, matreiðslustofur í kjallaranum og handavinnu stofur fyir stúlkur á efstu hæð. Annað hús er bústaður fyrir skólastjóra og íbúð piltanna. Það er einnig mjög skrautlegur samkomustaður fyrir nemendur og trésmíðavinnustofu. 1 þriðja húsinu er stór leikfimis- salur og geymsla. Námsgreinar eru bæði verklegar og bóklegar og geta nemendur valið hvort þeir vilja bóklega eða verk- legu deildina. Bibliusögur, móður- mál og reikningur eru þó skyldu- fög. Mikil áherzla er lögð á það, að nemendur noti skólaveruna sem bezt. Áhugasamir nemendur nota oft frístundirnar í handavinnustof- unum. Piltar æfa sig viö trésmíði, en stúlkur stunda saum eða vafnað, eða matreiðslu. Maður verður oft að dást að handlægni og áhuga unglinganna í þeim verklegu grein- um, enda hefir þjóðlegur heimilis- iðnaður þrifist mjög vel um margar aldir hér á Þelamörk. Kirkjan hérna i sveitinni, sem er orðin 700 ára gömul, sýnir það að hér hafa lifað margir listamenn í tréskurði og rósamálningu. Að loknu námskeiði er haldin sýning á handavinnu nemenda og það hvetur þá sjálfsagt til að gera sitt ítrasta. Á sýningu þessari getur maður séð marga þarflega hluti fyrir vanaleg sveitaheimili, svo sem borð, stóla, skápa, hyllur, kistur, fötur, ábreiður, dúka og vinnuföt og alt er unnið mei? þjóðlegu sniði. Af bóklegum fögum er lögð mest áhersla á móðurmálskenslu. Eins og margir þekkja til, þá hafa Norð- menn tvö ritríiál, nýnorsku eða landsmál og bókmál eða ríkismál. Og allir, sem ætla sér að ganga mentaveginn, verða að kunna bæði málin. En það er skiljanlegt, að það tekur langan tíma, að verða jafn ritfær á tveimur málum, einkum vegna þess að málin eru svo svipuð að nemendur eiga oft erfitt með að aðgreina þau. Þar sem svo mörg ungmenni eru saman komin, þá gefur að skilja, að það er oft glaumur og gleði á Söguvöllum. Nemendur mynda fé- lag og boða til fundar eða skemti- samkomu, einu sinni í viku. Ritari les þá skrifaða fundargerð frá síð- asta fundi og ritstjóri les handritað blað, sem fjallar um helstu áhuga- mál nemenda. Annars er fyrirlest- ur eða samtal um helztu nauðsynja- mál æskunnar, sögur og hljóðfæra- sláttur og skuggamyndir eða fræð- andi kvikmyndir vanaleg dagskrá á þessum samkomum. Allar samkom- ur og skemtanir eiga að vera fræð- andi og hollar fyrir unglingana. Að neyta áfengis er stranglega bannað og tizkudansar eru einnig bannlýst- ir bæði vegna þess að það þykir truflun fyrir starfið, og svo eru ný- tízkudansar ekki talin neitt göfg- andi skemtun fyrir unglinga á þeim aldri. Norðmenn hafa næga reynslu fyrir því að mikil skemtanafýsn getur gersamlega spilt öllu góðu æskulýðsstarfi, hvort heldur það er i skóla eða félagi, ef hún fær að drotna þar. Öðru hvoru fer allur skólalýður i skemtigöngu um holt og hæðir og kynnir sér markverða staði í nánd við skólann. Skamt héðan er t. d. þúsund ára gamall haugur, þar sem sagan segir að smákóngur einn, sem barðist á móti Haraldi hárfagra sé grafinn. Oft förum við í skíða- ferðir og þá þykir piltum gaman að æfa sig við stökk í hengibröttum brekkum. Einn af skólapiltunum, sem var hérna síðastliðinn vetur stökk hæglega sextíu metra á skíð- um. Er það vegleg og þróttmikil íþrótt. Um langan aldur hafa beztu skíðamenn Noregs verið frá Þela- mörk, og sá, sem hefir heimsmet í skíðastökki er ættaður af Þela- mörk. Tvisvar sinnum á dag brunar Suðurlandslestin frá Oslo, rétt fram hjá skólanum. Það er aðeins fjögra tíma ferð með járnbraut héðan og til höfuðborgarinnar. Það er fljótlega farið þrátt fyrir að vegalengdin er ca. 280 kílómetrar. En þegar hraðlestin blæs hjá stöð- inni í Nesi, þá er það eins og hún vilji minna okkur, sem búum hérna á Söguvöllum á nútíðina og hvers hún krefst af okkur. Gufuaflið og rafmagnið, sem knýr lestina áfram er tákn hins nýja tíma. , í október 1934. —Lesb. Mbl. Gjafir í <Jllbilee, sjóðinn Á næsta kirkjuþingi verður minst fimtíu ára afmælis Hins. ev. lút. kirkjufélags Islendinga í Vestur- heimi. Aðal hlutverk kirkjufélags- ins er viðhald og efling kristnihalds í bygðum vorum. Það er vort heimatrúboð. Að borin sé fram frjáls afmælisgjöf til þess, auk hinna venjulegu árlegu tillaga til starfseminnar, á að vera einn þátt- ur í hátíðahaldinu næsta ár. Engin gjöf í sjóðinn má fara fram úr ein- um dollar frá hverjum einstaklingi, þó allar minni gjafir séu vel þegn- ar. Þar sem ástæður leyfa gætu margir eða allir meðlimir í fjöl- skyldu tekið þátt og væri það æski- legt. Áður auglýst ............$200.15 Safnað af J. ,Tliorðarson, Langruth. Mr. og Mrs. B. Bjarnason .. 2.00 Mr. og Mrs. R. M. Pálson .. x.oo Mr. og Mrs. B. Eyolfson .... 0.50 Miss L. Valdimarsson ........0.50 Mr. og Mrs. S. B. Olson .. 0.50 Mr. og Mrs. G. Thorleifson .. 0.50 Mrs. S. Gottfred ............0.50 Mrs. O. Thorleifson......... 0.50 Mr. og Mrs. B. Ingimundson 0.50 Mr. og Mrs. J. Thorðarson .. 2.00 Mr. G. J. Thorðarson ....... 0.50 Mr. A. Thorðarson ...........0.50 Gordon Thorðarson ...........0.50 Mr. og Mrs. G. F. Thorðarson 1.00 Mrs. Ólafur Egilson..........0.50 Egílsons bræður .............0.50 Ónefndur ....................1.00 Framvísað af séra Sigurði Ólafssyni, Arborg Tveir vinir, Riverton .... 1.00 J. P. Vatnsdal, Geysir....0.25 Mrs. Agnes P. Vatnsdal, Geysir .................... 0.25 Sigurður Jónsson Vatnsdal, Geysir .................... 0.25 Samtals ..............$214.90 18. des. 1934. Kvittað fyrir með þökkum, S. O. Bjerring féh. NÝ SKALDSAGA eftir Sigrid Undset. Skáldkonan Sigrid Undset hefir skrifað nýja bók, “Elleve aar,” sem kemur út næstu daga. 1 bókinni eru lýsingar frá , uppvaxtarárum I hennar og er mælt, að i bók þessari ’ kanni hún nýja stigu seni skáld. “Norðurljós” . “Norður loga ljósin há lofts um boga dregin, himinvogum iða á af vindflogum slegin.” —Sig. Breiðfjörð. Eldri íslendingar Islands lengi sakna, glæðast innri eldar, æskudraumar vakna. Yndisleg var Urður, eldri barnaleikir, Verðandi var varma vorsins elda kveikir. Norðurljósa logar lofts um boga rísa, ofar fannhjúp fjalla foldu á norður-ísa. Bndurminninganna aldrei tæmist sjóður. Ljúft er höfði’ að halla hjarta sinnar móður. Ungir þegar eldast, ungdóms fjöri glata, aldnir munu yngjast, » æðri lífssvið rata. Sú er lífsins saga— segja hana þori: Ungir gerast gamlir, gamlir fagna vori. Gömlu, góðu börnin gleðji sig við elda, ljúfmæt sú er lífsmynd langra vetrarkvelda. Kæti kvíða eyðir, kveðum fyrri bögur! Heilli unga og aldna íslendingasögur. 0. T. Johnson. Lesið á fundi félagsins “Norðurljós” í Edmonton, Alberta. Jónína Guðrún Jónsdóttir Gunnarsson Á GRUND. Jónína Guðrún Jónsdóttir, kona Sigmundar Gunnarssonar bónda á Grund í Geysisbygð, andaðist að heimili sínu þann 27. nóv. s. 1., eftir stutta legu. Hún var fædd 28. okt. 1852, og voru foreldrar hennar Jón Jónsson frá Undirvegg í Keld- uhverfi, en móðir hennar Rannveig Friðfinnsdóttir. Jónína giftist ung Sigmundi Gunnarssyni frá Syðra-Álandi í Þistilf irði í Norður-Þingeyjarsýslu. Þau fluttu vestur um haf 1891, en settust að á Grund t%’eimur árum síðar, áttu þau fulla fjörutiu ára dvöl saman á Grund. Börn þeirra voru: Sigrún, fyrri kona Jóns Nordals í Árborg, nú löngu látin. Gísli, kaupmaðui í Hnausa, Man., kvæntur Ólöfu Sigur- björgu Daníelsdóttur, Daníelssonar pósts Sigurðssonar. Felix Sigurbjörn, bóndi á Grund. Rannveig, gift Andrési fóstursyni Finnboga Finnbogasonar. Gunnar, dáinn 1928, 36 ára að aldri. Sigurrós, gift R. R. Moore, búsett i Moose Jaw, Sask. Auk þess ólust upp á Grund þrjár stúlkur af ættstofni þeirra hjóna og gengu hjónin þeim í góðra foreldra stað, og var heimilið þeim jafnan góðra foreldra heimilí, sem það og var fjölmennum hópi barnabarna þeirra, tengdafólki, skyldmtnnum og þeim er þar kyntust. Hin látna kona var að allra dómi er til hennar þektu góð kona, er vildi í hvívetna til góðs fram koma. Kærleikur sá, er hún átti sér í sál, var sannur og þráði jafnan útrás öðrum til blessunar; hún var því börnum sínum ógleymanlega góð og umhyggjusöm og sömuleiðis fósturdætrunum. En góðvilji hennar náði til allra, er hún kyntist og mun hún sein-gleymd nágrönnum, tengdafólki og vinum. Grundarheimilinu er og viðbrugðið fyrir gestrisni og lætur svo ummælt maður einn, er bygðarþátt eða landnámssögu héraðsins hefir ritað, að þar hafi: “skáli staðiðjvið þjóðbraut þvera, og Jónína laðað þangað þreytta og þurfandi vegfarendur, að dæmi Geirríðar og annara göfugra landnámskvenna íslands.” Munu þau utnmæli Magn- úsar fræðimanns á Storð sönn vera, og eiga við um mörg heimili bæði fyr og síðar, og áttu einkar vel viö um heimilið á Grund og hugarfar þeirra, er þar bjuggu. Að dómi mér kunnugri manna mun hversdagsleg gleði og öruggleiki hafa einkent Jónínu heitina.. En gleði og örugg- leiki eru ávextir trúarinnar, og hana átti hún í ríkum mæli, og var trúin henni leiðarljós og stoð á langi og starfsríkri æfileið. En hún átti einnig ákveðinn og óbilugan viljakraft og dug til framsóknar, svo fágætt mun verið hafa; og stóð hún styrk og örugg við hlið mannsins síns og hélt vörð um heimilið með bjartri útsýn og dug til framsóknar, má því telja starf hennar stórt og Vel af hendi leyst—og hvíldin kærkomin og á hentugri tíð. Jarðarförin fór fram frá heimili hinnar látnu og frá Geysiskirkju þann 30. nóv. að viðstöddu miklu f jölmenni: f jöl- mennum hópi ástvina, afkomenda, tengdafólks og sveitunga og vina. Var dagurinn bjartur og fagur eins og minning ást- vinarins sem verið var að kveðja. Almennur harmur var sýni- legur, og tilfinningum skyldra og vandalausra virðist mér bezt lýst í stöku einni eftir Jakob Thorarensen skáld í niðurlagi saknaðaróðs er þannig hljóðar: “Blæða undir inst í lundu.— Ástarþökk á hinstu stundu inna eg vil, en orðin bila; insta hug skal þögnin skila.” Sigurður Ólafsson. Friðrik Johnson 1875-1934 Eins og áður hefir verið getið um í blöðunum, lézt Friðrik Johnson, póstafgreiðslumaður í Hensel 25. október þessa árs. Friðrik sál. fæddist 2. ágúst 1875 > Miðdal í Húnavatns- sýslu á íslandi. Foreldrar hatis voru hjónin Jón Bjarnason og Elinborg Bjarnadóttir. Til Ameríku fluttu þau hjón 1883, með tvö börn sín, Kristinu og Friðrik. Höfðu þau áður mist þrjá syni, er dóu i æsku. Þau hjón fluttu þegar til íslenzku bygöarinnar í Pembina, N. Dak., og settust að í grend við Akra, þar sem fyrir var frændfólk Elinborgar. Friðrik sál. ólst þar upp með foreldrum sínum, þar til er hann giftist sumarið 1897, eftirlifandi konu sinni, Önnu Þrúði Eiriksdóttur. Þau hjón bjuggu þar um þriggja eða fjögra ára skeið í grend við Akra; en árið 1901 fluttu þau til Hensel-bæjar. Og þar bjuggu þau ávalt síðan. Stuttu eftir að þau komu þangað var Friðrik sál. veitt póstafgreiðsluem- bættið þar, og hélt hann því alt til dauðadags. Einnig hafði hann þar dálitla verzlun á eigin reikning. Friðrik Johnson var fríður sýnum og vel vaxinn. Hann var mjög viðmótsþýður, skrafhreifinn, glaðvær og fyndinn i orði. Hann var sérlega vel ge'finn og bókhneigður. Á starfi hans öllu var hin bezta reglusemi, sem marka má af því, meðal ann- ars, hve vinsæll hann var í stöðu sinni, og hversu mikils trausts hann naut bæði hjá póststjórninni og fólkinu. Um margra ára skeið var hann lika starfsamur meðlimur í A.O.U.W. félag- inu. Var hann um langt skeið skrifari og féhirðir í því félagi, og naut trausts og virðingar félagsbræðra sinna þar. Því em- bætti gegndi hann einnig til dauðadags. Eins og áður er að vikið átti Friðrik sál bara eina systur. Bræður hans höfðu dáið í æsku. En foreldrar hans tóku til fósturs bæði stúlku og dreng. Stúlkan heitir Elizabeth; er hún gift kona, Mrs. McLean, og býr í Sherwood, N. Dak. Drengurinn hét Valdimar Pálsson; hann dó árið 1922. Kristín systir Friðriks giftist Ingimundi Leví. En hann dó á bezta aldri, og var Kristín þá eftir skilin í fátækt með þrjú ung börn. Friðrik sál. reyndist henni og börnum hennar frá- bærlega vel. Liðsinti hann henni á margan hátt og var börnum hennar ástúðlegur og góður. Sjálf var Kristín mjög heilsubiluð mörg síðustu ár æfinnar og lézt fyrir 9 árum siðan. Og var Friðrik sál. börnum hennar einnig þá kærleiksríkur og hjálp- samur. Hjónunum Friðrik og Önnu varð ekki barna auðið. En þau tóku til fósturs einn dreng, Eirík Halldórsson, sem er bróð- ursonur Önnu. Kom Eiríkur til þeirra þegar faðir hans dó, og liefir síðan verið hjá þeim og notið góðs uppeldis þar sem þeirra eiginn sonur. Friðrik sál. var jarðsunginn frá heimili sinu, samkomuhúsi A.O.U.W. félagsins í Hensel og Vídalíns kirkju. Séra H. Sigmar jarðsöng. Var hann lagður til hvíldar í grafreit Ví- dalínssafnaðar Afar mikið fjölmenni fylgdi honum til grafar. Kom það greinilega í ljós að ekki einasta var hann sárt syrgður af ástvina hópnum, heldur var og lika almennur söknuðu í sveitinni. H. S. ■; r

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.