Lögberg - 13.12.1934, Side 6

Lögberg - 13.12.1934, Side 6
6 LÖGBEŒtG, FIMT UDAGINN 13. DE'SEMBER, 1934. Heimkomni hermaðurínn Þrír drengir í standandi vandræðum yfii óvæntum atburðum, horfðust nú í augu við Jamie. Óli feiti laut íhöfði undirgefnislega og sagði: “Eg þakka. ” Góða barnið leit beint framan í Jamie og sagði með þessum orðum: “Innilegar þakkir.“ Loks kom Engil- andlit: “Yðar skuldbundinn, herra!” Skáta- foringinn veifaði nú sverðinu í kringum sig og mælti á þess leið: “Eg þakka )>ér aðstoð- ina; skátar mínir þakka þér, og þjóðin í heild sinni þakkar þér. Skáti númer eitt! Sæktu slönguna. Skáti númer tvö! komdu með sóp- ana; skáti númer þrjú, snúðu vatninu á. ” Nú fvlktu skátarnir liði og gengu til verks. Óli feiti greip til sópsins, en Góða barnið og Engilandlit sópuðu saman tómötutætlunum, og hentu þeim í úrgang*skörfuna. Er öllu hafði að heita mátti verið komið í samt lag, og Jamie fór að brjóta heilann um hverju þetta í raun og veru sætti, komst, hann að þeirri niðurstöðu, að hérværi ekki ósennilega um vikulega atburði að ræða í garði býflugna- meistaransj 'þó hann hefði ekki orðið sjónar- vottur að þeim fyrri. Það var engu líkara en skátameistarinn væri í hálfgerðum vandræð- um með sjálfan sig; að eitthvað hefði öðru- vísi farið en ihann hafði ætlast til. “Þið verðið að koma á innbyrðis friði,”’ hrópaði skátaforinginn; “það nær ekki nokkurri átt að hnakkrífast út af slöngunni. Eg sagði skúta númer eitt að fara með hana í burtu.” Nú var Engilandliti nóg boðið. “Þú gerðir enga slíka fyrirskipun; þú sagðir skáta númer þrjú að gera það, og eg er skáti númer þrjú.” Skátaforinginn var auðsjáanlega í þungum þönkum, og nú ávarpaði hann lið sitt í slík- um málblæ, sem væri hann fram að flytja mikilvægt trúnaðarmál. “Engilandlit hefir sennilega á réttu að standa. Eg gaf honum víst fyrirskipun um að koma slöngunni í burtu; númer tvö átti að annast um sópinn, en Óli feiti átti víst að sitja hjá að þessu sinni.” Nú dró skátaforinginn sverð sitt í slíður, þurkaði sér um andlitið á skyrtuerm- inni og hagræddi mittisól sinni. Svo gaf hann fyrirskipanir um það með valdsmann- legri rödd, að dagsverkinu væri lokið. Skáta- foringinn staðnæmdist nú íbeint frammi fyrir Jamie og starði á hann rannsóknaraugum. Óli feiti, Góða barnið og Engilandlit hnypr- uðu sig forvitnislega í kring. Það stóð öld- ungis á sama hversu veikur Jamie var, eða hve (hreinkynjaður Skoti, þá gat samt sem áður ekki hjá því farið, að hann myndi eftir því frá bernskuárunum, er hann átti í erjum og háði stundum íharða hildi við ímyndaða Indíána með dálitla hríslu að sverði, og það jafnvel stundum gílorhungraður; ihann gat þess vegna gert sér það auðveldlega skiljan- legt að líkt gæti verið ástatt með skátafor- ingjann og liðsmenn hans í þetta sinn; hon- um fanst Engilandlit vera eitt hið yndisleg- asta ungmenni, er hann fhefði komist í kynni við í háa herrans tíð; brosið var undur innilegt og sama var um augnatillitið að segja. Komið þið nú með mér félagar góðir, yfir að hressingarskálanum, við fáum þar eitthvað af “heitum hundum”, eða löngum og ef til vill nokkra maísstöngla. ” Fagnað- arópin, er til eyrna Jamie bárust vegna upp- ástungunnar, mundu margborga fyrir það, þó hann ætti fáeinum skildingum færra í vasan- um á eftir. Þessum einkennilegu skátagest- um fanst, mikið til um Jamie; þeim féll vel bjarminn í augum 'hans, og ekki hvað sízt skotfimi hans; hann hafði skotið stönglana niður af girðingunni einn eftir annan, með slíkri nákvæmni, er einungis þaulvanri skyttu var lagin; hann hafði fylgt nákvæmum og föstum reglum, er báru þess órækan vott að hann var enginn viðvaningur, heldur það gagnstæða. Jamie settist nú niður undir eikartré, er stóð þar skamt frá; vafði hann öðrum liand- leggnum um skátaforingjann, en hinum um Engilandlit; hann gætti þess að nægilegt rúm yrði þó fyrir Óla feita og Góða barnið líka; fór hann nú að útskýra fyrir þeim livað það þýddi í ófriði að vera skáti; það væri í raun- inni eitt og hið sama og að vera njósnari; þeir menn er það gerðu, færi á hnotskóg að næt- urlagi hvemig sem viðraði og skriðu á mag- anum yfir hraun og hellur, oft of einatt í verstu húðarrigningu, til þess að njósna um fyrirætlanir og aðstöðu óvinanna. Góða barnið ög Óli feiti íhjúfruðu sig fast upp að Jamie, en skátaforinginn og Engilandlit höll- uðust að brjósti hans þar sem sárið var; hinn síðarnefndi var svo önnum kafinn við blíðu- atlot sín, að það fór alveg framhjá honum þó kallað væri hvað eftir annað með hárri röddu að nú væri “heitu hnudarnir” eða langarnir þegar framreiddir. “Segðu okkur meira, miklu meira. Við höfum aldrei heyrt neitt þessu líkt? Þú hefir lifað upp veruleikann sjálfan; þú 'hefir séð blóðið fossa um orustu- völlinn og tekið sjálfur þáttí vígaferlum. Er það ekki lokkandi? við höfum aðeins látið hugann dvelja við ímyndunina eina.” Jamie mundi nú alt í einu eftir bætiefnunum og ráða- bruggi sínu við Margaret Cameron; hann hafði sannfærst um með sjálfum sér, að ger- breytt mataræði væri það eina hugsanlega, ef nokkur von ætti að vera um heilsubót Jionum til handa. Margaret Cameron hafði verið á sama máli, og þessvegna hafði hún tekið að sér að útbúa handa bonum sérstakar matar- tegundir; nú hafði hann brotið í bága við allar slíkar reglur og hámaði í sig “heitum hundum” með strákunum; fyr mátti nii rota en dauðrota. Það var ekki oft hnífur litlu skátanna hafði komið í feitt; enda hvarf nú ofan í þá hver “heiti hundurinn” á fætur öðrum, ásamt maísstönglum mýktum í smjöri. Bftir hálftíma, eða svo, staulaðist Jamie upp gangstéttina að húsi Margaret Cameron; hún átti að sér að vera föl í andliti, en nú mátti svo heita að andlit hennar væri mjalla- hvítt. Mig skyldi ekki furða að þú hafir fylt þig á “heitum hundum” með strákahnokk- unum þarna niður frá,” sagði hún með nokkrum ásökunarhreim í röddinni. Jamie brosti; hann fann til sektar, þó hún væri nú ef til vildi ekki sérlega stór. “Þú átt koll- gátuna, ” sagði hann. “Voru þeir þó ekki annars gómsætir?” 10. KAFLI. Næst þegar símabjallan hringdi var Jamie kvaddur til sjúkrahússins. Klukkan var rétt um tvö, er hann tók sporvagninn inn í bæinn. Hann var ekki í nokkrum minstu vandræðum með að finna sjúkrahúsið, enda var það mesta stórhýsið þeirrar tegundar í bænum. Er þangað kom var honum tafar- laust fylgt inn í herbergi býflugnameistar- ans; þetta var rúmgott herbergi og sólbjart; á borði einu stóð mikil blómkrukka með ynd- islegustn rósum; fylti angan þeirra herberg- ið. Jamie kannaðist við anganina, eða að minsta kosti fanst honum það; rósimar hlutu að vera úr einhverju blómabeði Margrétar Cameron. Jamie lá við yfiriiði vegna þess, er nú fyrir augu bar; hann vissi vel að bý- flugnameistarinn, maðurinn, er hann hafði aðstoðað upp í sjúkravagninn, var veikur; ef til vildi mikið og hættidega veikur; en að hann væri þannig á sig kominn og raun bar vitni um, átti hann örðugt með að gera sér grein fyrir; honum hafði virst, þó maðurinn væri auðsjáanlega veikur, sem full líkindi væri á að hann gæti komist til heilsu aftur; hann hafði sýnst vöðvasterkur maður með óbugandi viljakraft. Eins og ásigkomulagi hans nú var háttað, var helzt svo að sjá sem hvert einasta líffæri væri að syngja sitt síð- asta vers. En hvað hendin framrétta var skinin og mögur! Au-gun báru vitni um sára þreytu og andvökur. Jamie færði stól sinn fast að rúmi sjúklingsins. Fyrst af öllu verð eg að segja þér frá því, að eg er með öllu brynjaður gagnvart býflugunum; þær hafa hvergi komið á mig sári. Eg hefi ávalt verið í treyjunni og roðið mig allan í gulum kanel, eins og þú skipaðir fyrir. Mér hefir gengið vel að vatna þeim, og saltskerfurinn hefir, að því er eg bezt veit, verið hæfilega mikill. Hinn ungi félagi þinn í býflugnaræktinni er ánægður með starf mitt og lætur vel yfir við- gangi búsins.” “Félagi minn ber flestum fremurt skyn á býflugnarækt, ” sagði sjúkl- ingurinn, “jafnvel á það feykilega vanda- verk hvemig stýfa skuli drotningarvængi. ” “Þú mátt reiða þig á, að alt gengur vel bý- flugunum viðvíkjandi,” sagði Jamie. “Mar- grét Cameron bað mig um að skila til þín sinni innilegustu kveðju með fullvissu um það, að blómgróður allur væri í ákjósanlegu lagi í garðinum, og að um heimilið væri ann- ast eftir beztu föngum. Það verður alt í röð og reglu, húsbóndi góður, þegar þú kemur heim,” sagði Jamie. Sjúklingurinn brosti góðlátlega. “Mér geðjaðist þegar vel að þér á veginum; eg fann það einhvernveginn á mér að þú mundir reynast vel og verða trúr þjónn; eg var ekki í neinum vafa um að mínar dýr- mætustu uppáhaldseignir yrði örugíar í þinni varðveitslu; eg hafði ekki minstu hugmynd um hvernig á þér stóð, eða að þú værir með öllu ókunnugur á þessum slóðum; það var engu líkara en þú bærist upp í hendurnar á mér eins og áhald, sem eg undir engum kring- umstæðum gæti án verið. Skátinn litli! Já, blessaður litli félagi minn! Slík sál er ekki á hverju strái.” “Félagi þinn, litli skátinn, kemur oft í garðinn,” sagði Jamie. “Þó er eg í rauninni í töluverðum vafa um garðinn og gildi hans án þín. Eg á eftir að segja þér ívent. Mér var sagt fyrir um matreiðsluna; að “heitu hundarnir” ættu að vera klofnir og þar fram eftir götunum, og laukurinn brún- aður. Jamie stakk nú nokkrum skildingum í hinn pappírshvíta lófa býflugnameistarans; það er fyrir “heitan hund” og maísstöngul. ” Býflugnameistarinn brosti; hann lukti lófa sínum um skildingana, — Þessa kærkomnu smápeninga, er litli skátinn félagi hans hafði talið út handa honum; ekki ósennilega höfðu greipar verið látnar sópa um handraðann. “Félagi þinn vann veðmál,” sagði Jamie, “og þessvegna er heimilinu undir engum kring- umstæðum hætt við gjaldþroti.” “Vel að verið!” sagði býflugnameistarinn og hlýtt á- nægjubros leið um varir hans; það fer sjald- an hjá því að litli skátinn hitti í mark.” “Félagi þinn er góðhjartaður og ástúðleg- ur,” sagði Jamie; “hann mundi alt leggja í sölurnar fyrir það að heimta þig heim aftur heilan á 'heilsu.” Býflugnameistarinn hand- lék skildingana. “Já, eg efast ekki um að það, sem þú segir sé satt og rétt; jafn göfuga sál liittir maður ekki á hverju strái. Láttu ekki félaga minn vita um það, að eg megi hvorki neyta “líeitra hunda” né maís- stöngla; segðu honum einungis að eg sé hon- um fjarska þakklátur- fyrir nærgætnina og hugulsemina. Og ef þú heldur að heilsa mín leyfi samfundi við hann, þá skaltu koma með hann næst. ” “Það yrði mér mikið ánægju- efni,” svaraði Jamie; “nú er heimsóknar- tíminn líkast til á enda. Dr. Grayson lagði ríkt á við mig að dvelja ekki hjá þér í einu nema fáeinar mínútur.” “Það verður þá þannig að vera,” ságði sjúklingurinn. “En vænt þætti mér um það, ef þú í tómstundum þínum frá býflugnavafstrinu, tækir þér bók og bók úr safni mínu, er um meðferð og sér- kenni býflugna f jallar, og læsir með athygli; slíkt kemur að ómetanlegum notum. Dr. Grayson vill tala við þig nokkur orð á skrif- stofu sinni, áður en þú ferð. 0g viltu svo ekki draga út skúffuna þá arna og stinga umslag- inu sem þar er í vasa þinn; í því er falin smá- vægileg þóknun fyrir það ómak, sem þú hefir gert þér og þá ánægju, sem þú hefir veitt mér með komu þinni hingað og fræðslunni um það hvernig alt gangi heima. Segðu Margréti að rósirnar, sem hún sendi mér, hafi innilega glatt mig og bréfin hennar, þó stutt séu, geri hið sama; skilaðu til ’hennar að eg biðji hana að halda áfram að skrifa mér þangað til e-g kem heim, með því að líkur eru til þess að svo ve-rði, þó þær séu ef til vill fremur dauf- ar. Og nú ætla eg að kveðja þig. Eg vil þér skiljist að eg hugsa oft til þín; gleymdu ekki að finna Dr. Grayson; hann er sannkallaður dánumaður; hver veit nema hann sjái ein- hver ráð til þess að hressa upp á heilsu þína? Vertu nú sæll á ný, góðurinn minn. ” “Já, vlertu sæll, ”endurtók Jamie, og gerðu þér far umað njóta eins rækilegrar hvíldar og frekast má verða. Við Margrét Cameron og litli skátinn munum gera alt, sem í okkar valdi stendur til þess að annast um búið og heim- ilið.” Jamie vitjaði nú á fund Dr. Graysons, og injian hálftíma eða svo, var -hann lagður af stað heim með heilstóran pakka af sáraum búðum undir hendinni, en ekki einn einasta dropa af meðölum. Dr. Grayson hafði stað- hæft við hann að náttúran væri í raun og veru bezti og áhrifamesti læknirinn; hann skyldi reyna að fylgja eins nákvæmlega og auðið yrði kröfum sinna eigin tilfinninga, eða réttara sagit fyrirmælum náttúrunnar; þess vegna væri ekkert því til fyrirstöðu, að hann fengi sér dýfu í sjónum, er hann fyndi til hvatar í þá átt, eða flatmagaði sig annað veifið í heitum sandinum við ströndina. Og úr því fullkomnustu sjúkrahús stjórnarinn- ar -hefðu reynst þess ómegnug að bæta hon- um, þá væri ekkert því til fvrirstöðu að flýja í faðm nátúrunnar og láta hana kveða upp dóm á annan -hvorn veg. Jamie velt því fyrir sér um stund, er fram hafði farið á skrifstof- unni milli hans og Dr. Grays'ons. Það olli hon- um ósegjanlegrar ánægju að vita til þess að umlníðirnar, sem hann hafði fengið, gátu þó ekki gert honum mein; að þær miklu fremur verði spillingu en hitt, var þó talsverð hugg- un, e-r tekið var tillit til þess er á undan var gengið; að vfsu varð hann að játa það með sjálfum sér að ihann hefði í rauninni aldrei haft minstu hugmynd um það, sem læknarnir og hjúkrunarkonurnar -höfðu verið að gera við liann; víst var þó um það, að honum hafði ekki batnað til muna; að minsta kosti gat hann ekki gert sér þess grein. Nú skaut upp í huga hans einu og öðru, er hann í rauninni vanhagaði um. Gott væri til þess að vita, ef svo mikið af skildingum væri í umslaginu að það hrykki til þess að bæta upp það, sem hann tók úr skúffunni til þess að borga fyrir giftingarhringinn og leyfisbréfið; hann af- réð því að opna það; honum lá við yfirliði. Hann taldi saman dagana, sem hann hafði verið í þjónustu býflugnameistarans; hann hafði fengið þar fæði og húsnæði, auk fata býflugnameistarans, er liann mátti nota að vild; en að hann fengi jafnmikið kaup og ráða mátti af því er umslagið hafði að geyma, náði ekki nokkurri átt. Hann velti því fyrir sér hvort allir menn í landinu, óbrotnir verka- menn eins og hann, lamaður ofan í kaupið, fengi jafn mikið fyrir vinnu sína; hann hand- lék peningana um stund og starði á þá undr- unaraugum. Það var ekki einasta að hann gæti endurgreitt það, sem hann liafði tekið .raustataki fyrir -giftingarhringinn og leyf- isbréfið, heldur ætti hann stórmikinn afgang. Hann stakk peningunum í vasann, en kom þeim þannig fyrir að hann gæti auðveldlega handleikið þá. Ef heilsubilaður maður gat með réttu unnið fyrir svona miklum pening- nm, hvað gæti þá ekki hraustur og heilbrigð- nr maður? Dr. Grayson hafði sagt að salt- ur særinn, sólskinið og hið tæra loft væri öft og einatt líklegasti læknirinn. Alt þetta mátti reyna.; nóg var af saltvatni í sjónum; þá var heldur hvorki um að ræða skort sólskins né lífræns andrúmslofts. Jamie ypti snöggvast öxlum; með ann- ari hendinni fitlaði hann við peningana í vasa sínum, en strauk hinni um sárið á brjóstinu; honum fanst það tæplega eins viðkvæmt o-g það átti að sér. Ef hann hefði unnið reglu- bundið fyrir svoha miklum peningum, unnið í garðinum eftir þörfum, ihaldið hylli manns eins og býflugnameistarans, átt góða konu og börn, er bæri nafn hans, hlaut það að vera einhvers virði að ganga á hólm við sjúkdóm og dauða og lifa nytsömu lífi, eins lengi og auðið yrði. Um það varð að minsta kosti ekki vilst, að hann gæti -orðið ósegjanlegrar á- nægju aðnjótandi við störf sín í garðinum í samfélagi við litla skátann. Jamie kom við í hinum og þessum búð- um og keypti þar eitt og annað; fann hann til nokkurs metnaðar við innkaupin með því hann vissi sig þess megnugan, að greiða fyrir varning sinn í fríðu. Svo hélt hann heim á bóginn; honum fanst helzit sem ;endaskiftd væri orðin á öllum sköpuðum hlutum; meðal annars hugsaði hann nú aðeins um það að lifa og komast til heilsu; umhugsunin um sjúk- dóm og dauða var fokin út í veður og vind, aldrei þessu vant. Jamie lagði nú frá sér hlutina, sem hann hafði keypt, og gekk í áttina til bekkjar, er í garðinum stóð. A bekknum fann hann litla skátann steinsofandi og hringaðan eins og flu-gdreka; hann einsetti sér að fara eins var- lega og frekast var hugsanlegt, til þess að vekja ekki litla skátann; þetta mistókst þó fvrir þá sök að steinn, er hann rak fótinn í sporðreistist og orsakaði slíkan skarkala að litli skátinn hrökk upp; um andlitið lék barns- legt blíðubros. “Hvað er nú hendi næst,” spurði hann? “Eg er þreyttur,” sag'ði Jamie; “óvanalega þreyttur; eg er svo að segja nýkominn af sjúkrahúsinu úr heimsókn til býflugnameistarans; honum líður nú miklu betur; hann bað mig að skila til þín ástarkveðju og þakka þér gjafirnar, er þú sendir honum; það yrði honum óseg'janlegt • ánægjuefni, ef þú heimsæktir hann einhvern daginn; eg geri það áður en langt um líður? En hverju fær 'þreyttur maður áorkað ? Jamie brosti. Maður verður að hafa eitthvað fyrir stafni til þess að gefa hverri einustu stund lífsins gildi, eða er það ekki rétt skil- ið?” spurði Jamie. “Getur maður ekki á sumum augnablikum tekið fulla líkamshvíld, en starfað samt sem áður að sálrænum efn- um! Hverju mundir þú svara, ef eg færi þess á leit við þig, að þú veittir mér tilsögn í öll- um þeim helztu fræðum, sem þér eru kunn, þó ekki væri nema svo sem klukkustund á dag?” Litli skátinn loit sakleysislegum rannsóknar- augum á Jamie. “Skil eg það rétt,” sagði hann, “að þér sé ant um að fræðast af mér um býflugur og býflugnarækt? Sé svo, ætti það að verða tiltölulega létt verk; þó skilst mér á hinn bóginn sem það ætti að vera auð- velt fyrir þig að afla þér nauðsynlegustu upp- lýsinga af öllum þeim mörgu -og mikilvægu bókum, sem um þessi efni f jalla, og fáanlegar eru í safni býflugnameistarans. Það stendur þó sennilega ekki alt saman í bókum, sem þú veizt?” spurði Jamie. “Nei! Síður en svo.” Bækur eru ágætar, margar hverjar og hafa oft mikilsverðan fróðleik að geyma; þó þar sé ávalt eitthvað undan dregið, eða fram hjá einhverju því gengið, sem nauðsynlegt er áð vita og ekki verður á annan hátt lært, en af lífinu sjálfu Lfklegast er skynsamlegast að láta þig einan um það á hverju þú myndir byrja viðvíkjandi fræðslu miniii í býflugna- rækt og öðru þar að lútandi. Litli skátinn néri saman moldugum lóf- unum; alt í einu sneri 'hann sér'að Jamie o-g I)ar fram eftirgreinda spurningu. Gettu þess til ef þú getur, hvað það var er eg fyrst spurði býflugnameistarann að?” “Var það ekki um það hversvegna hann gæfi sig við bý- flngnarækt ? ” Litli skátinn svaraði spurn- ingunni með því að hrista Ii-öfuðið, er átti að skiljast sem neitun. “Nei! Það fyrsta, sem eg spurði um var það hverju það sætti að bý- flugnagarðar væru ávalt -bláir að ]it. Eg veit að þú getur hvorki .svarað þessu né skilið það,” sagði litli skátinn ofur varfærnislega. Það er guðs vegna.” Jamie vissi ekki hvað- an á sig stóð veðrið. ‘ ‘ Guðs vegna! Hvernig á eg að skilja það ? ” “ Eg skal reyna að gera þér það skiljanlegt,” sagði litli skátinn. * *

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.