Lögberg - 06.05.1937, Page 1

Lögberg - 06.05.1937, Page 1
50. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 6. MAÍ, 1937 NÚMER 18 Sœmdur doktors nafnbót DR. VILHJALMUR STEFANSSO.X Háskóli Manitobafylkis hefir ákveÖiÖ aÖ sæma landkönnuðinn víÖfræga, Dr. Vilhjálm Stefánsson, doktors nafnbót i lögum þann 17- þ. ni. Er Dr. Stefánsson þessarar sæmdar löngu maklegur, því í þessu fylki er hann borinn og barnfæddur. Mun það fastmælum bundiÖ, aÖ hann flytji fyrirlestur hér í borginni, og má almenningi vera þaÖ hið mesta tilhlökkunarefni, því Dr. Stefánsson er með fágætum skemtilegur fyrirlesari. Frá Islandi **■*■*■+■■*■*■■+ * * ^ ^ ^ -*• Önnur mesta vatnsvirkjun á Islandi í nýútkomnu Tímariti Verkfræð- ingafélags íslands birtir Árni Fáls- son verkfræðingur áætlanir um virkjun Laxár. Eru það áætlanir hliðstæðar við áætlun um virkjun Goðafoss, og eru gerðar til þess að fá sem áreiðanlegastan samanburð á virkjunarkostnaði, svo ganga megi úr skugga um, hvort fallvatnið sé hæfara til virkjunar, Goðafoss eða Laxá. Varð niðurstaðan sú, að Laxá virðist betur til virkjunar fallin fyrir Akureyri en Goðafoss. Stærð orkuvers er við áætlanirnar um virkjun Laxár miðuð við 2,000 hestöfl eins og við virkjun Goða- foss, þ. e. tvær i,ooo hestafla véla- samstæður, en “vélasalur þegar i upphafi gerður nægilega rúmur fyr- • ir þriðju vélasamstæðu á 200 hest- öfl, er bætt verður við þegar þörf krefur. Áætlanir eru miðaðar við það timakaup og verð á byggingar- efni, sem var s.l. ár, þ. e. það sama sem áætlanir um virkjun Goðafoss eru miðaðar við, en verð á vatns- vélum, rafbúnaði og efni í há- spennulínu við tilboð frá 15. des. '36, sem er hlutfallslega nokkru hærra en tilboð frá 25. marz 1936 í rafbúnað Goðafoss-virkjunar.” —Vísir 7. april. # # # “ísland,> strandar Danska eimskipið “Island” strand- aði í gærmorgun við eyjuna May, utaríega í Leith-firði. Var það á leið til Leith frá Kaupmannahöfn, en ætlaði síðan hingað. Var ákveð- ið fyrir nokkru, að skipið kæmi við í Leith í Islands'ferðum sínum í vor og sumar og var þetta fyrsta ferð þess þá leið á þessu ári. Þegár seinast fréttist voru far- þegar allir komnir í land, en skipið sat fast á kletti og var leki kominn í vélarúmið. Skipshöfnin var þá enn í skipinu til að dæla úr því sjó. Övíst var talið, hvort skipið myndi nást út. Þoka var mikil, þegar skipið strandaði. Farþegarnir, sem voru með skip- inu og ætluðu hingað, munu halda áfram með Brúarfossi 21. þ. m. í einkaskeyti til útvarpsins segir að kvöldblöðin í Kaupmannahöfn flytji samtal við einn af farþegun- um og segir hann, að engin hræðsla hafi gripið fólkið, þegar skipið strandaði og að björgunin hafi farið skipulega fram og rómar hann sér- staklega framkomu skipstjórans, Lydersen.—N. dagbl. 14. apríl. # # # Þingsályktun um utanríkismálin Þingsályktunartillagan um með- ferð utanrikismála var samþykt í sameinuðu þingi í gær. Tillagan var upþhaflega borin fram af fulltrúum stjórnarflokkanna i utanríkismála- nefnd, og bar íhaldsflokkurinn fram aðra tillögu. Við nánari athugun tóku íhaldsmenn sína tillögu aftur og varð samkomulag allra flokka um að tillagan skyldi orðast svo: ■ “Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að undirbúa nú þegar, í samráði við utanríkismálanefnd, þá tilhögun á meðiferð utanríkismála, innanlands og utan, sem bezt kann að henta, er íslendingar neyta upp- sagnarákvæðis sambandslaganna og taka alla meðferð málefna sinna i eigin hendur. Tillögur um mál þessi séu síðan lagðar fyrir Alþingi. Allur kostnaður við urfdirbúning málsins greiðist úr ríkissjóði.” —N. dagbl. 16. apríl. Útbreiðsla fjárpestarinnar Borgfirzka fjárpestin er nú að koma í ljós í ýmsum sveitum, þar sem hennar hefir lítið eða ekkert orðið vart áður. Hefir hún komið upp á Björnólfsstöðum í Engihlíð- arhreppi, en áður var hún komin á einn bæ austan Blöndu, Vindhæli, og í Ytri-Þorsteinsstöðum og Vatni í Haukadal, en áður var hún þar komin að Saursstöðum. Gengur sauðfé úr Haukadal og Norðurárdal nokkuð saman á sumrum. Einnig er ótvírætt, að pestin er komin að Klausturhólum í Gríms- nesi og hefir veikinnar þá orðið vart á a. m. k. fjórum bæjum austan- f jalls. Þá hefir veikin færzt vestur á bóginn á Mýrum. Loks eru ýmsir bæir grunaðir í Grímsnesi og Hreppum og sömuleiðis Eystra- Miðfell á Hvalfjarðarströnd og ef til vill fleiri bæir sunnan Skarðs- heiðar, en þar hefir veikinnar ekki gætt hingað til. Að nokkrum dög- um liðnum verður unt að gefa nán- ari upplýsingar um útbreiðslu sýk- innar.—N. dagbl. 9. apríl. FRA STYRJÖLDINNI ASPANI Að því er síðustu fregnir herma, er svo að sjá sem árásarher Francos vegni betur upp á síðkastið. Er nú svo komið, að talið er nokkurn veg- inn víst, að hann hafi hafnarborgina Bilbao þá og þegar á valdi sínu. Bretar hafa verið að l)jarga þaðan konum, börnum og gamalmennum undanfarna daga. KNCÐUR TIL ÞESS AÐ SEGJA AF SÉR Þau tíðindi hafa gerst, að William Aberhart stjórnarformaður í Al- berta, hefir knúð landbúnaðarráð- gjafa sinn, Hon. W. N. Chant, til þess að láta af émbætti. í embætti hans hefir verið skipaður D. B. Mullen, Social Credit þingmaður frá Edmonton. Mr. Chant er þriðji ráðgjafinn sem gengið hefir úr ráðuneyti Aberharts á skömmum tíma. KOMINN Atí GIFTINGU Fullyrt er það nú, samkvæmt nýjustu símfregnum, að Hertoginn af Windsor og Mrs. Simpson, hafi ákveðið að gifta sig síðustu vikuna í þessum mánuði. Á mánudaginn var fékk Mrs. Simpson í Lundúnum löglegan skilnað frá Mr. Ernest Simpson. Jafnskjótt og Hertogan- um bárust þessi tíðindi, lagði hann af stað áleiðis til Frakklands til fundar við konuefni sitt. ÚR BORG OG BYGtí Söfnuðir Kirkjufélagsins eru beðnir að senda sem fyrst ársskýrsl- ur sínar til skrifara fqlagsins, séra Jóhanns Bjarnasonar, Ste. 14 Glen- ora Apts., 774 Toronto St., hér í borg. — Ýmsir söfnuðir eru enn eftir að senda þessar skýrslur, þó margir séu búnir að því nú þegar. Skýrslur þessar eru miðaðar við áramót, sú, er nú á að sendast, á að ná aðeins til síðastliðins nýárs. Er því engin ástæða til að draga að senda skýrslurnar, með því alt efni þeirra er tilbúið fyrir löngu, var al- búið um síðastliðin áramót. BEIÐNI Hver sá, sem getur gefið nokkrar upplýsingar um Sigríði Árnadóttur Backmann (Mrs. Gunnar Back- mann), er vinsamlega beðinn að láta þær í té undirrituðum. Dr. Richard Beck, University Station, Grand Forks, North Dakota, U.S.A. Úr borg og bygð Heklufundur í kveld (fimtudag) á venjulegum stað og tíma. Skemtisamkoma Karlakórs Is- lendinga i Winnipeg, sú, er fram fór i Goodtemplarahúsinu síðastliðið þriðjudagskveld, var næsta fjöl- breytileg og tókst á margan hátt vel. Létu þar “nýir kraftar” til sín heyra, skáld og sólósöngvarar. Auðheyrt var, að í sumum lögunum var flokk- urinn ekki æfður sem skyldi, en um meðferð ýmsra laganna tókst samt sem áður mæta vel til. Samkoman var prýðilega sótt, eins og reyndar sjálfsagt var, því Winnipeg íslend- ingar standa í djúpri þakkarskuld við söngflokkinn og sjtórnanda hans, Ragnar H. Ragnar, fyrir þá miklu rækt, sem hann hefir lagt við æfing- ar flokksins í hjáverkum með öðr- um önnum. ---------- Sunnudaginn 9. maí (Mother’s Day), ferming og altarisganga á Garðar kl. 11 f. h.; messa í Fjal’a- kirkju kl. 2 130. Ensk kveldmessa á Mountain kl. 8. H. Sigtnar. Mr. Aldmar Blöndal, sonur þeirra Mr. og Mrs. Ásgeir Blöndal, kom frá Islandi á mánudagskvöldið eftir nokkurra ára dvöl heima. ÆGILEGIR SKÖGAR- .... ELDAR Síðastliðna þrjá daga hafa ægileg- ir skógareldar geysað norðaustur af SKIPAfíUB KONUNGS- PRENTARI Mr. J. L. Cowie Þann 1. þ. m., tók við konungs- prentara embætti fylkisstjórnar- innar, Mr. J. L. Covvie, sá er und- anfarandi ár hefir gefið út blaðið Carberry News. Er hann alment talinn hinn nýtasti maður og vel til þess fallinn. að gegna sínu nýja em- bætti. Edmonton og gert mikinn usla; er mælt að níu heimili í grend við Breton, hafi brunnið til kaldra kola og nokkuð af búpeningi farist. Stjórnin i Alberta hefir að sögn leitað ásjár Royal Canadian Mount- ed Police til þess að reyna að stemma stigu fyrir frekari útbreiðslu skógareldanna á þessum svæðum í samráði við skóggæslumenn og sjálfboðalið úr grendinni. LÆTUR AF EMBÆTTI Mr. PhHip Purcell Þann 30. apríl siðastliðinn, var konungsprentara Manitobafylkis, Mr. Philip Purcell, veitt lausn frá embætti, með fullum eftirlaunum; er hann maður nokkuð hniginn að aldri og hefir verið næsta heilsuveill upp á síðkastið. Mr. Purcell hefir gegnt konungs- prentara embættinu um tuttugu ára skeið með stakri alúð og reglusemi; var skipaður í það af Norris-stjórn- inni, skömmu eftir að hún tók við völdum. Mr. Purcell er bráðgáfað- ur maður. listrænn, ljóðelskur og mikill vinur íslendinga. Er vonandi að honum bætist svo heilsa, að hann fái i ró og næði gefið sig alfan við hugðarefnum sínum. Mr. Purcell er fæddur í Ont- ario, en hefir dvalið full 50 ár í Manitoba; gaf hann sig jafnan við blaðatnensku, bæði í Brandon og Winnipeg, þar til hann tók við því embætti, sem fyr var getið, og hann nú hefir látið af. CR BOBG OG BYGÐ Þessi börn og ungmenni voru sett í embætti s.l. laugardag í bamastúk- unni “Gimli” No. 7, I.O.G.T. F.Æ.T.—Anna Árnason Æ.T.—Haraldur Benson V.T.—Margrét Árnason K.—Kristjana Thordarson Dr.—Alice Helgason A.D.—Grace Jonasson R.—Margrét Lee A.R.—Þórey Thompson F. R.—Margrét Olson G. —June Einarsson V.—Harvey Lee Ú.V.—Carlyle Johannesson Mr. Guðlaugur Sigurðsson frá Lundar, Man., kom til borgarinnar í byrjun vikunnar, og dvaldist hér í nokkra daga. Veitið athygli auglýsingunni um “Young Peoples’ Organization Meeting,” sem haldinnn verður í' Goodtemplarahúsinu þann 11. þ. m. Þetta er mál, sem alla þjóðrækna íslendinga varðar, og ættu því sem allra flestir að sækja fund þenna. Það verður undir æskunni komið að sjálfsögðú; hvernig þjóðræknis- málum vorum reiðir af í framtíð- inni. Þeir Óskar Magnússon og Árni Brandson frá Hnausa, Man., voru staddir í borginni á föstudaginn í vikunni sem leið. Mr. Ólafur Hallson kaupmaður frá Eriksdale, kom til borgarinnar á fimtudaginn í vikunni sem leið, á- samt móður sinni, Mrs. H. O. Hall- son og Margréti dóttur sinni. Þeir Tryggvd Ingjaldsson, Hall- dór Erlendsson, Mr. Guðmundson og Elli Sigurðsson frá Arborg, komu til borgarinnar á mánudaginn. Eftirleit Sauðljóst þó að sýnist valla, samt er haldið beint af stað. Gönguþráin grípur alla, gróðahlutdeild spáir það. Einhversstaðar inn til fjalla afdrep næst er liúmar að. Mikið skal til mikils vinna; margan vantar lamb og sauð. Þeir, sem eitthvað af þeim finna, eiga von um kryddað brauð — roðadíla rósakinna, rökkurkoss og faðmlags-auð. Margt er gilið göngumanni gestaþraut er syrtir að; liætt við því að gáskaglanni gleymi sér á slíkum stað, gangi á hljóð í liamraranni — liirði livorki um stöng né vað. Fjallakóngi fatast ekki forustan né ráðin glögg; líkt og út í æsar þekki öræfanna brigðin snögg.— Særir fram úr sortans mekki sauðalióp með víkings rögg. * # # Áð er loks hjá lindum auðum,— leitin stóð í daga fimm. Tylft af lömbum, tug af sauðum, taldi úr vörzlu afrétt grimm. Ekki er hollráð hyggjublauðum heiðaruóttin löng og dimm. # # # Einn var sá, er ólund kvaldi eftir leit hins fyrsta dags; heim sér skemsta veginn valdi, vék úr fylking bræðralags.— Illur þræll á undanhaldi á ei bjargarvon né hags. Sá drakk aldrei ljóss af lindum,— löðurmensku þráðinn spann; engan dag af efstu tindum útsýn yfir lífið fann; merktur óttans erfðasyndum, engin kona dáði hann. # # * Yfir veldi öræfanna eldar himins lýsa rótt. Stimpluð bjarma fyrstu fanna ferðin verður greiðar sótt. Glatt er skapið göngumanna, gott að komast heim í nótt! Einar P. Jónsson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.