Lögberg - 20.05.1937, Blaðsíða 1
50. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. MAÍ, 1937
NÚMER 20
Frá Islandi
168 þús. króna síldarbrœðslu-
stöð á Húsavík
Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Júl-
íus Havsteen, hefir dvaliÖ hér í
Reykjavík tvo sí'Öustu mánuði til
að undirbúa og semja um byggingu
á síldarbræðslustöð í Húsavík.
Á sunnudagsmorguninn hitti
fréttaritari Morgunblaðsins sýslu-
mann uppi í Sundhöll, og spurði
hann hvað þessum máli liði.
—Eins og þér sjálfir sjáið, þá er
eg nú að synda — og eg er að synda
þessum málum upp á strönd veru-
leikans! í gær var endanlega lokið
öllum samninguim’ verki þessu að-
lútandi, og vinna verður hafin þeg-
ar í næsta mánuði, og þá á síldar-
bræðslustöðin í Húsavík að verða
fullger í , september næstkomandi.
Vinnuafköst hennar verða 400 mál
á sólarhring.
—Bjarni Þorsteinsson, hefir tek-
ið að sér alt verkið, fyrir hönd vél-
smiðjunnar “Héðinn,” fyrir 168
þúsund krónur. Þar af þurfa 80
þúsund krónur til greiðslu á bygg-
ingarefni og vélum — og hefir
Eandsbaitkinn gengist inn á að yifir-
færa þá fjárupphæð smátt og smátt
á næstu þremur árum.
Verksmiðjan verður reist á upp-
fyllingunni ofan við bryggjuna —
en sú uppfylling verður stækkuð
nokkuð til suðurs, og er sá kostn-
aður talinn með í hundrað sextíu og
átta þúsund króna tilboðinu, sem nú
er fastráðið að taka.
—Hve langan undirbúning hefir
þetta haft ?
.Það er fyrst og fremst nýja haf-
skipabryggjan okkar á Húsavík, sem
hefir þegar, og á eftir að skapa ný
og margþætt atvinnuskilyrði í þorp-
inu, — en aukinn vegur Húsavíkur
er hagur fyrir alla Þingeyjarsýslu,
eins og gefur að skilja.
Strax og bryggjan var fullgerð
var Húsvíkingum, og öllum síld-
veiðimönnum, sem sild söltuðu í
Húsavík í fyrra, það þegar íjóst, að
hér þurfti að reisa síldarbræðslu-
Kristján X, konungur Islendinga og Dana og Alexandra drotning
Kristján tíundi heiðraður
Tuttugu og fimm ára ríkisafmælis
þessa ástsæla konungs Dana og Is-
lendinga var minst hér í Winnipeg
með veglegri veizlu 14. þ. m. Stóð
það hóf í Music and Art skálanum
og gekst “Bræðrafélag Dana” fyrir
þvi. Um hundrað manns sátu boð-
ið. Var sezt að matborðum kl. hálf
átta síðdegis. Elestir gestanna voru
danskir menn og konur, en að há-
borði sátu samhliða forystu inönn-
unum dönsku boðnir málsvarar
frændþjóðanna sænsku, norsku og
íslenzku. Konungs-fulltrúinn Al-
bert C. Johnson, konsúll, skipaði
öndvegi, ásamt frú- sinni, og svaraði
fyrir konun'gs hönd minni konungs-
ins. Aðrir boðsgestir íslenzkir voru
dr. B. J. Brandson, Mr. H. A. Berg-
man, K.C., og dr. Björn B. Jónsson
og konur þeirra. Mælti dr. Brand-
son fyrir minni Islands en hinir tveir
fluttu stutt ávörp.
Samkomustjóri var danskur mað-
ur, R. J. R. Bonneland. Fyrir minni
Kristján tíunda mælti Hans A.
Brodahl, en ifyrir minni Georgs VI.
Breta-konungs, mælti Fred Hansen.
Kai Scholer talaði fyrir minni Can-
ada og danski presturinn A. Th.
Schultz fyrir minni Danmerkur.
Kveðju frá Svium bar fram sænski
könsúllinn, H. P. A. Hermanson og
Norðmanna kveðjuna flutti séra
O. H* Walby fyrir hönd norska
konsúlsins. Við hvert minni var
sunginn þjóðsöngur viðkomandi
þjóðar. Fyrir hönd borgarstjórans
mætti Paul Bardal, öldurmaður, og
flutti kveðju borgarbúa. Var alt
þetta hin bezta skemtun og öll veizl-
an hin hátíðlegasta. Eftir er staðið
var upp frá borðum, var stiginn
dans fram eftir nóttinni.
Það var samhliða vitnisburður
allra ræðumanna að Kristján tíundi
hefði reynst Dönum og íslending-
mn hinn ágætasti þjóðhöfðingi og
að þvi vikið af öllum, hve lýðræðis-
hugsjón nútímans hefði fengið að
njóta sín vel á ríkisáruin þessa al-
þýðlega og milda konungs.
Samsætið fól Albert konsúl áð
framvísa hugheilum hamingju-ósk-
um til hans Hátignar Kristjáns ti-
unda.
stöð.
Það er þegar komið greinilega i
ljós, að á svæðinu milli Gjögurs og
Langaness nægir ekki ein síldar-
bræðslustöð í Raufarhöfn — heldur
þyrfti líka 1,000 — 1,500 mála
bræðslustöð í Húsavík, ef vel ætti
að vera, því sá staður er hinn ákjós-
anlegasii að dómi allra, sem skyn
bera á þessi mál. En til svo stórrar
stöðvar fékst hvorki fé né bygging-
arleyfi að þessu sinni.
Á síðastliðnu sumri voru saltaðar
við bryggju á Húsavík 6 þúsund
tunnur af síld — en margir, sem þar
vildu leggja upp veiði sína, urðu
frá að hverfa, vegna þess, að nokk-
ur hluti aflans var bræðslusíld. Að-
staða öll til söltunar líkaði ágæt-
lega.
—Hvaða félög og einstaklingar
hafa sérstaklega borið uppi þetta
síldarbræðslumál á Húsavík?
—í fyrsta lagi hreppsnefnd og
hafnarnefnd Húsavíkur — en um
þetta mál standa allir Þingeyingar
óskiftir og hafa, bæði heima fyrir
og utan sýslunnar, sýnt málinu mik-
inn skilning — t. d. með f jársöifnun
meðal Þingeyinga hér í Reykjavík,
sem Halldór Sigfússon skattstjóri
hefir gengist fyrir.
Samstarfsmenn mínir hafa aðal-
lega verið Karl Kristjánsson spari-
sjóðsstjóri og Benedikt Björnsson
skólastjóri og oddviti Húsavíkur-
hrepps og samstarfsmenn mínir í
hafnarnefnd. — Mbl. 27. apríl.
Fröken Halldóra Bjarna-
dóttir
Hingað kemur til borgarinnar í
lok yfirstandandi viku, fröken Hall-
dóra Bjarnadóttir, útgefandi og rit-
stjófi tímritsins “Hlín,” sem helgað
er málefnum íslenzkra kvenna,
prýðilega vandað rit, er nýtur víð-
tækrar útbreiðslu á Fróni.
Að komu fröken Halldóru stend-
ur Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi, kvenfélögin íslenzku
hér í borginni og vafalaust víðar.
Fröken ‘Halldóra er fyrir löngu
kunn fyrir afskifti sín af heimilis-
iðnaðarmálum á íslandi og forustu
á því sviði; hefir hún unnið landi
sínu og þjóð ómetanlegt gagn með
samtökum, ræðum og ritum, er að
þessu þarfa metnaðarmáli lúta. Hún
kemur hingað með ógrynnin öll af
íslenzkum handiðnaði, er hún hygst
að sýna hér í borg, sem og út um ný-
bygðir vorar, flestar hverjar, jafn-
framt því sem að hún að sjálfsögðu
flytur erindi.
Þeir sem kynst hafa tímaritinu
Hlín, eru fróðari en ella um þau á-
hugamál, er fröken Halldóra eink-
um og sérílagi ber fyrir brjósti. Urrt
það verður ekki vilst, að bak við
Hlín og þak við áhugamálin, standi
heilsteypt kona, sem veit hvað hún
vill. Sagt verður vitaskuld frá því
nokkru ger, hvernig samkomum
fröken Halldóru og ferðalögum
hennar verður. háttað, er tækifæri
hefir gefist til þess að ráðgast við
hana; hún er aðeins ókomin til borg-
arinnar. Islendingar vestan hafs
fagna þar góðum gesti sem fröken
Halldóra Bjarnason er.
Kirkjuþing
Hið f'imtugasta og þriðja ársþing Hins evangeliska
lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi verður
haldið í kirkju Gimli safnaðar að Gimli, Manitoba,
dagana 17.—21. júní, 1937. Þingið verður hafið með
hátíðlegri guðsþjónustu og altarisgöngu fimtudaginu
17. júní kl. 8 að kvöldinu. Ejru allir söfnuðir kirkju-
félagsins beðnir að senda erindreka á þingið eftir því
sem þeim er heimilað að lögum. Embættismenn og
fastanefndir minnist þesis að allar skýrslur ber að
leggja fram á fyrsta þingdegi.
Dagsett í Seattle, Washington,
8. maí, 1937.
K. K. Ólafsson,
forseti kirkjufélagsins.
Arni G. Eggertson, K.C.
Dr. Vilhjálmur Stefánsson
Frá því var sagt í síðasta blaði, að
Manitobaháskólinn hefði ákveðið að
sæma Dr. Vilhjálm Stefánsson,
landkönnuðinn og rithöfundinn
heimsfræga, doktorsnafnbót í lög-
um; kom hann hingað á mánudags-
morguninn og flutti ræðu um kvöld-
ið i Wjnnipeg Auditorium, þar sem
háskólinn afhenti honum heiðurs-
skírteinið. Framkvæmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins kom til fundar
við Dr. Stefánsson á C.P.R. járn-
brautarstöðinni, áSamt nokkrum
öðrum vinum hans. Á þriðjudag-
inn flutti hann ræði í Canadian
Club og um kveldið var honum hald-
ið- virðulegt og f jölment samsæti á
Royal Alexandra hótelinu, er Þjóð-
ræknisfélagið hafði stofnað til.
Stýrði því Dr. Röngvaldur Péturs-
son. Stuttar ræður fluttu Joseph
T. Thorson, K.C., Marino Hannes-
son, lögfræðingur, Dr. Björn B.
Jónsson og Sveinn Thorvaldson,
kaupmaður frá Riverton. Dr^Sveinn
E. Bjömsson flutti heiðursgestinum
drápu, en með yndislegum söng
skemti veizlugestum frú Sigríður
Olson, með aðstoð ungfrú Snjó-
laugar Sigurðson. Dr. Stefánsson
flutti langa, skemtilega og iturhugs-
aða ræðu, er verða mun veizlugest-
um lengi minnisstæð; er Dr. Stef-
ánsson óvenju skemtilegur ræðu-
maður, bráðfyndinn, orðsnjall og
rökfastur.
Um komu Dr. Vilhjálms Stefáns-
sonar má heimfæra ummælin fornu
og víðfrægu: “Kom, sá og sigraði.”
Ágætur fiskafli
á Húsavik
Húsavík.
Ágætur afli má nú heita hér og er
fiskurinn á grunnmiðum.
Allar fleytur frá Húsavík stunda
veiðar og hafa aflað frá 500 kg. á
árabáta upp I 6,000 kg. á vélbáta.
Loðna hefir jafnóðum aflast svo
nægt hefir til beitu.
Fiskurinn liggur alla leið frá
Rauðunúpum til Flateyjar. — Mbl.
28. apríl.
Á krýningardaginn þann 12. þ.
m., var hr. Árni G. Eggertsson lög-
fræðingur í Wynyard, Sask., sæmd-
ur K.C. nafnbót af fylkisstjórn-
inni í Saskatchewan; var hann þess-
arar sæmdar löngu maklegur sakir
frábærrar elju og athafna i stöðu
sinni.
Árni G. Eggertson er fæddur í
Winnipeg þann 10. janúar árið
1896; sonur tatorkumannsins al-
kunna Árna Eggertsonar fasteigna-
sala og fyrri konu hans Oddnýjar
Jónínu Jakobsdóttur, sem látin er
fyrir allmörgum árum. Skólament-
un sína hlaut Árni lögfræðingur alla
í Winnipeg, og útskrifaðist i lögurn
af háskóla Manitobafylkis vorið
1921, með ágætum vitnisburði;
stundaði hann hér lögmannsstörf
um hríð, en fluttist þó brátt til Wyn-
yard, þar sem hann hefir gefið sig
að málafærslustörfum jafnan síð-
an. Nýtur bann hvarvetna góðs
álits; eigi aðeins sem lögf ræðingur,
heldur og engu síður sem áhrifa-
mikill félagsmaður og góður dreng-
ur.— •
Kona Árna er Maja dóttir Gríms
Laxdals, fyrrum kaupmanns, og
frúar hans, Sveinbjargar Torfa-
dóttur Laxdal. Þau Árni G. Egg-
ertson og frú hans eiga þrjú mann-
vænleg börn, tvo drengi og eina
stúlku. Er heimili þeirra viðbrugð-
ið lyrir risnu og íslenzkan höfð-
ingsskap.
MRS. PULLMAN-LOWDEN
Mrs. Pullman-Lowden frá Ohicago, 111. (áður
Miss Sigrún Magnússon frá Silver Bay), hefir
dvalið nálægt hálfsmánaðar tima hjá foreldr-
um sínum, þeim Mr. og Mrs. Ólafur Magnús-
son við Silver Bay, P.O., hér í fylkinu. Hún
leggur af stað heimleiðis í dag.
PHILIP SNOWDEN
LÁTINN
Fyrverandi ráðgjafi tveggja
stjórna á Bretlandi, og um nokkurt
ára skeið meðlimur lávarðadeildar-
innar, Philip Snowden, er nýlega
látinn i Lundúnum. Þótti hann
gáfumaður með afbrigðum og var
annálaður 'fyrir mælsku. Lávarður
Snowden fylgdi lengi verkamanna-
flokknum að málum, og gerðist
f jármálaráðgjafi í hinu síðara
verkamannaráðuneyti Ramsay Mac-
Donalds. Sama embætti gegndi
hann einnig um hríð í samsteypu-
stjórn þeirri, er Mr. MacDonald
myndaði í satnvinnu við íhaldsflokk-
inn, en sagði því embætti af sér
vegna ágreinings við Mr. Mac-
Donald og var þá hafinn til lávarðs-
tignar.
Úr borg og bygð
Dr. og Mrs. S. E. Björnsson frá
Árborg voru stödd í borginni á
þrigjudaginn.
Sveinn Thorvaldsson, kaupmaður
frá Riverton, kom til borgarinnar á
þriðjudagsmorguninn.
Frú Andrea Johnson frá Árborg
var stödd í borginni á þriðjudaginn.