Lögberg - 05.08.1937, Blaðsíða 3

Lögberg - 05.08.1937, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. AGÚST, 1937 3 Samkomulag safnaðanna Prédikun eftir Jakob Jónsson Eins og yður öllum er kunnugt, er nú orðið samkomulag um það, að framvegis hafi eg á hendi prests- þjónustu fyrir lúterska söfnuðinn hér í bænum ásamt Quill-Lake söfn- uði. Með þessari tilraun til sam- vinnu eru Vatnabygðirnar að stíga nýtt spor, sem getur orðið örlagaríkt í framtíð íslenzkrar kristni. Þetta er í fyrsta sinni, að söfnuðir, sem tilheyra hvor sínu kirkjufélagi, njóta þjónustu sama prests, án þess að þeir um leið segi sig úr lögum við sín gönilu félög. 1 þessu efni eruð þér að gerast brautryðjendur, og það er þess vegna spurt um það i öðrum héruðum, hvert þér séuð að stefna, og á hverju þessi nýbreytni grundvallist í raun og veru ? “Varðar mest til allra orða undirstaðan rét sé fundin,” segir Liljuskáldið Eysteinn Ás- grímsson. Hver er undirstaða þessa “nýja sáttmála,” sem hér hefir verið gerður? Þannig spyrja menn út í frá. En þess er ekki síður þörf, að vér sjálf gerum oss grein fyrir því, sem gert er, og höfum á því réttan skilning. Þess vegna ætla eg nú að nota tækifærið, sem þessi helgidagur gefur mér, til þfss að tala við yður um; þetta tvent; Hvernig söfnuðirnir geti haft sama prest og hvernig sófn- uðirnir geti unnið saman. Fyrra atriðið er algerlega bomið undir því, hvaða skilning menn hafa á stöðu og starfi prestsins, og því, á hvern hátt hann eigi að reyna að fullnægja þörf safnaðarins. Um þetta atriði má ræða fram og aftur, ef raktar eru margar, ólíkar kenn- ingar um prestsstarfið, takmark þess og gildi. En mig langar til að taka málið fyrst og fremst frá raunhæfri hlið, með yður og sjálfan mig í huga. Eg var ungur, þegar eg ákvað að gerast prestur. Ástæðurnar fyrir því voru sjálfsagt fleiri en ein, en þó fyrst og fremst sú, að í lífi sjálfs mín hafði eg reynt þýðingu guðstrú- arinnar, og það varð snemma sann- færing mín, að farsældarleið ein- staklinga og þjóða væri sú stefna, sem Jesús Kristur hélt fram, ekki aðeins í orði, heldur í verkum og öllum áhrifum. Af þessu leiddi, að þrátt fyrir alla þá galla, sem á kirkj- unni hafa verið og eru, þá fanst mér hún þó hafa valið sér hið bezta hiut- skifti, þar sem hún flytur þekkingu á Kristi og starfi hans út á meðal mannanna. Því að henni og hennar mönnum er það að þakka, sem heim- urinn veit um Krist. Þá fanst mér einnig reynsla sjálfs mín og annarra staðfesta það, að lifið yrði snautt og kalt án tilbeiðslu og lofsöngs, og maðurinn aðeins hálfur maður, og hann misti sjónar á andlegri hlið til- veru sinnar og eilífðargildi sjálfs sin. Þess vegna leit eg svo á, og er sannfærður um það enn, að guðs- þjónustur kirkjunnar rnæti eðlilegri þrá mannsins og veiti endurnæringu og aukinn kraft þeim þáttum sálar hans, sem sízt megi verða út undan, ef hann á að geta staðið beinn og borið höfuðið hátt i baráttu lífsins. Eg veit ofur vel, að margt er betur metið á þeirri vélaöld, sem vér lifum á, en prestleg og kirkjuleg störf. F.n þegar á alt er litið, iðrast eg þess ekki að gerast prestur og er ennþá sannfærður um, að þegar eg stend í prédikunarstóli kirkjunnar, er eg að vinna nauðsynlegt verk í þágu þjóð- ar minnar og mannfélagsins í heild. Undir eins áður en eg lagði á námsbraut mína, vissi eg það, að hið laufskrúðuga tré kristninnar hafði ekki ávalt borið öll blöð af sömu lögun né blóm af sama lit. Fjöl- breytni í starfsháttum ekki síður en kenningu og útlistun hafði ávalt átt sér stað, frá því að hínn fyrsti vísir spratt úr moldu. Mér finst, þegar eg horfi yfir sögu kirkjunnar og sögu trúarhugmyndanna sem eg sjái óendanlega röð af myndum. Þær myndir eru eins ólíkar hver annari eins og imorgunsárið, hádegið og kvöldskinið, en þær eru allar til- raunir mannanna til að mála skin hinnar sömu sólar. Kynslóð eftir kynslóð hefir reynt að draga upp mynd frelsarans frá sem flestum hliðum, verki hans meðal mannanna, viðhorfi þeirra til hans. En þvi lengra sem liðið hefir bæði á náms- tíma minn og prestsskapartíð, þvi ljósara finst irnér það verða fyrir mér, að mitt hlutverk er ekki að mála upp aftur og aftur myndir ann- ara manna, heldur að nema staðar fyrir fyrirmyndinni sjálfri, eins og hún birtist fyrir innri ugum mínum, eftir lestur guðspjallanna. Þannig ber mér að mála hann. Með öðrum orðum; Það getur verið margt fag- urt og viturlegt i kenningum annara um Krist, bæði í fortið og nútíð, en það fagnaðarerindi, sem eg á að boða samtíðarmönnum mínum, er Kristur, eins og eg skil hann sjálfur —sannleikur hans, eins og samvizka min og sannfæring býður mér að flytja hann. Þetta imegin-boðorð hefir leitt til þess, að mér er ómögu- legt að fella njig inn í skorður neins guðfræðikerfis eða trúfræði. Þess- vegna get eg í einu atriði verið sam- ferða kaþólskum mönnum, en i öðru lúterskum, o. s. frv. Mig gildir einu hvort hugmyndin er frá únítara, ný- guðfræðingi eða gamalguðfræðingi, sem kallaðir eru, ef hún er viturleg eða sönn. Þannig er afstaða mín 'sem prests, gagnvart kenningum þeirra, sem á undaii mér eða sam- tímis mér hafa fengist við að mála myndir í hið mikla safn. En hvernig get eg nú — sjálfur óháður öllum flokkum — verið prestur margra safnaða, sem sumir eru í Sameinaða kirkjufélaginu, aðr- ir í Lúterska kirkjufélaginu, og enn aðrir utan beggja? Þetta var spurn- ingin sem fyrir lá. Á liðinni tí$ hafa þessir söfnuðir ekki ávalt viljað fara sömu leðiir. En hafið þér veitt því nægilega at- hygli, að innan sama safnaðar getur verið afar mikill munur á hugsunar- hætti fólksins? Þegar eg því kem hingað í kirkjurnar á sunnudögum, hitti eg fyrir söfnuð hinna ólíkustu einstaklinga, alveg án tillits til þess, í hvaða söfnuði þeir eru. Einn er íhaldssamur í trúarefnuin, annar fylgir hinum nýrri stefnum. Einn þráir að heyra spiritískar prédikanir, annar hatar spiritisma eins og heit- an eld. Einn vill að eg tali við og við að minsta kosti um jafnaðar- stefnuna og umbætur á þjóðfélag- inu. Annar álítur gersamlega óvið- eigandi, að presturinn konii nálægt svo óguðlegum hlut sem pólitik. Það er með öðrum orðum fyrirfram vist. að það má alt af búast við því. að einhverjir verði mér ósammála og meira að segja 'hneykslist á því, sem eg segi. Hvaða gagn er þá að því fyrir þessa menn að sækja kirkjuna? Hver er hin rétta afstaða þeirra til prestsins og kenninga hans ? Einu sinni á unglingsárum mínum heyrði eg á tal manna um kenningu prestanna og voru ekki allir á eitt sáttir. Þá afgreiddi ein gömul kona málið með þessari setningu: Já, en þessu á maður nú að trúa? Þetta var hennar einasta lausn. Þvi, sem presturinn sagði, átti maður að trúa, og presturinn hélt auðvitað ekki öðru fram en því, sem maður átti að trúa. Nú skulum vér hugsa oss, að eitthvert yðar komi hingað tiímessu, og heyrðuð mig halda fram skoðun- um, sem yður væri ef til vill 'þvert um geð. Vér skulum segja sem svo að eg væri að reyna að sýna fram á að engill af himni hefði getað látið taka ljósmynd af sér á jörðinni. Eða að jafnaðarstefna í stjórnmálum og samvinnustefna í verzlun væri einn þáttur í baráttunni fyrir Guðs riki. Get eg nú búist við þvi, ef þú ert einlægur andstæðingur spiritismans e^a samvinnustefnunnar og jafnað- arstefnunnar, að þú segir kunningj- um þínum frá orðum prestsins og bætir við: “Þessu á maður nú að trúa — og þessu ætla eg að trúa héðan af, af því að presturinn sagði það.” Nei, sem betur fer rnundi enginn yðar líta svo á, að presturinn væri til þess settur að drotna yfir trú yðar og ráða yfir skoðunum^ yðar. Hvort sem presturinn er eg eða ann- ar, þá hlustið þér á orð hans til þess að fá þar fróðleik, hvatningu og uppörfun til hugsunar og góðrar breytni. Og alt þetta getið þér engu siður fengið hjá presti, sem! stund- um hugsar öðruvísi en þér. Þér græðið ekki mest á því að tala við menn, sem alt af eru yður sammála, og hugsun yðar og trúarlif örfast ekki alt af mest við að hlusta á ræðumenn, sem þér getið verið sam- mála í öllu. Það er í fáum orðum álit vor flestra, og vonandi allra, að presturinn geti ekki verið drotnari yfir trú fólksins, heldur samverka- maður að þeirri gleði, sem Kristur flutti því. Á þessu byggist nú sú tilraun til samkomulags safnaðanna hér, sem nú er hafin. Hér á enginn að vera annars drottinn í trúarefn- um, því að einn er allra drottinn. En hér eiga að vera samverkamenn að þeirri gleði. sem lífið á bezta til. Eg hefi talað við yður um það, að presturinn eigi ekki að vera drotnari yfir trú yðar. Slíkt er ekki hlut- verk kennimannanna. En á hvern hátt geta þeir þá verið samverka- menn að gleði fólksins? Allir eiga eitthvað, sem eykur gleði í lífi þeirra. Frá því að vér brosum sem lítil börn við fallegum gullum til þess að vér sem fullorðnir menn skynjum gleði hugsjónalífs og starfs, er lífið stöðugt að rétta eitt- hvað það að oss, sem færir imeð sér gleði, eykur hana eða eflir. Enginn hefir lifað svo erfiða eða sorg- þrungna æfi, að hann minnist ekki ótal gleðilinda, sem hann hefir drukkið af. 1 THOSE WHOM WE SERVE | IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING = AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS = BECA USE— | OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- |§ ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF || THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER jj| WE DELIVER. = | COLUMBIA PRESS LIMITED | 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327 Svona gleði átti einn; önnur gef st aðeins fáum í senn, eins og Þor- steinn Erlingsson segir um ásthrifna elskendur, sem troða döggvott gras- ið um íslenzka vornótt: “í dögg á Edens aldin-reinum sjást aldrei nema tveggja spor.” En til er sú gleði, sem hundruð og þúsundir ntanna geta átt og notið í senn. Hafið þér nokkurntíma hugs- að um, að þetta er orsökin til þess að söfnuðir vorir í Vesturheimi hafa orðið til? Vér sjálf eða feður vorir fluttust hingað af landinu, sem Eggert kvað um: “ísland ögrum skorið, eg vil nefna þig, sem á brjóstum borið og blessað hefir mig. Fyrir skikkun skaparans vertu blessað. Blessi þig blessað nafnið hans.” Sú tilfinning, sem andar frá þessum ljóðlínum, býross öllinn í brjósti, og við hana er tengd ein hin helgasta gleði, sem í huganum fær dvalið. Þar er gleðin yfir móðurbrjóstum Islands, sem í bernsku vorri nærði bljúgar sálir, hlúði að því fagra og góða í hjörtum smælingjanna og kveikti þann yl, sem ávalt geymist, þótt augað líti aldrei framar Islands vogskornu strönd. Landið er horfið oss, sunium fyrir fult og alt. Gleði þá, sem þar var vakin, eigum vér enn. Það hefir tengt oss saman í f jarlægri heimsálfu ; og þessi tilfinn- ing heldur áfram að ganga að erfð- um til barna vorra og tengja þau sarnan —: “hjarta við hjarta, hönd við hönd.” Eg sagði áðan, að ýmsir myndu spyrja að því, hvernig tveir söfnuð- ir ólíkra kirkjufélaga gætu unnið saman. Það er meðal annars af því að sem íslendingar stöndum vér í svipuðum sporum og sá duftsins son, sem Einar Benediktsson yrkir um í kvæðinu “Norðurljós.” Fyrir augum vor allra blasir mynd af ís- lenzkri “grund og vog undir gull- hvelfdum boga,” glitrandi sandkom strandarinnar og iðandi norðurljós yfir fjöllunum. Þegar vér beinum sjónum vorum í austurátt, lyftist hugurinn hátt yfir smáskærur, ó- samlyndi og dægurþras: V “Nú finst mér það alt svo litið og lágt, sem lifað er fyrir og barist er móti. Þó kasti þeir grjóti og hati og hóti við hverja smásál eg er i sátt. Því bláloftið hvelfist svo bjart og hátt. Nú brosir hver stjarna, þótt vonirnar svíki, og hugurinn lyftist í æðri átt. Nú andar guðs kraftur i duftsins líki. f Vér skynjum vorn þrótt, vér þekkj- um í nótt vorn þegnrétt í ljóssins riki. Allar skærur hverfa og verða að engu fyrir ofurmagni þeirrar gleði, sam fylgir vissunni um þegnrétt í ljóssins ríki. Alt ósamkomulag vík- ur fyrir sameiginlegri gleði yfir því blálofti, sem hvelfist svo bjart og hátt yfir höfði allra íslendinga jafnt, frá vöggu til grafar, hvar sem þeir fara um heiminn — norður- ljósahimininn yfir fjöllunum heima. Eitt af þvi, sem á að efla þessa gleði og varðveita hana, er íslenzka kirkjan. Og því skyldu menn ekki geta orðið samverkamenn á þessu sviði, þó ólíkt sé um ýms trúarat- riði hugsað? Og því ætti það ekki að skoðast sem sjálfsagt mál, að ís- lenzkur prestur sé samverkamaður ísl. safnaða að þessari gleði, þó að þeir nefni sig ýmsum nöfnum og kenni sig ekki allir við sömu stefnu. Næst vil eg nefna þá gleði, sem tengd er við lífið í þessu landi, sem vér búuim í. Það mun einhverjum finnast fulldjarft að tala um gleði, þegar sólbrunnir akrar blasa við augum, og fátækt og skortur liggja í leyni við húshorn f jölda heimila. En minnumst landnemanna, sem fyrst settust að i þessu landi. Þeir áttu ekki gleði allsnægtanna frekar en vér, — heldur gleði vonarinnar urn bjarta framtíð. Þeir voru samverka- menn að þeirri gleði, sem er sam- fara sigurvinningum mannsandans yfir náttúrunni. Vér eigum sams- Business and Professional Cards PHYSICIANS and SURGEONS DR. B. J. BRANDSON DR. B. H.OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Ofíice tlmar 2-3 Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Heimili: 214 WAVERLET ST. Only Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manltoba Winnipeg, Manitoba DR. ROBERT BLACK Dr. P. H. T. Thorlakson Sérfrœðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum. 205 Medical Arts Bldg. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Cor. Graham & Kennedy Phone 22 866 Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 6 Skrifstofuslmi — 22 261 Heimili — 401 991 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 Dr. S. J. Johannesson Dr. D. C. M. Hallson Viðtalstlmi 3-5 e. h. Stundar skurðlækningar og almennar lœkningar 218 SHERBURN ST. Slmi 30 877 264 HARGRAVE ST. —Gegnt Eaton’s— Winnipeg Slmi 22 775 BARRISTERS, SOLICITORS, ETC. — H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögjrœOingur J. T. THORSON, K.C. Skrifstofa: Room 811 McArthur íslenzkur lögfrœöingur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 800 GREAT WEST PERM. BLD. PHONES 95 052 og 39 043 Phone 94 668 BUSINESS CARDS Ákjósanlegur gististaöur Fyrir tslandingat Vingjarnleg aðbúð. Sanngjarnt verð. Cornwall Hotel MAIN & RUPERT Sími 94 742 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 .WINNIPEG • A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsimi: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út* vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. PHONE 94 221 A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fðlks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757— Hbimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pægilegur og rólegur bústaöur i miöbiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Agætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Ghuesta konar von. Vér eigum að vera sam- verkamenn að þeirri gleði, sem er samfara sigurvinningum mannsand- ans yfir sjálfum sér. Oss er að skiljast það, að jafnvel uppskeru- brestur í hálfu Saskatohewan ætti ekki að gera neitt verulega til né frá, ef sambúðarhættir þjóðarinnar allr- ar og mannkynsins yfirleitt væru réttlátir og á góðsemi bygðir. Vér væntum þess, að sá tími komi ein- hverntíma, að vit, sanngirni og kær- leikur verði undirstaðan undir hinu ytra skpulagi, og þá rætist fyrirheit gleðinnar. Gerumst öll saimverka- menn að þeirri gleði þegur i stað, með því að færa vora eigin félags- hætti í áttina til hins háa marks. Leitumst við að gera vort eigið bygðarlag að gróðurreit þess bezta, sem vér finnum, að þar má þrifast af mannkostum og menning. Að þessu geta unnið saman einstakling- ar af öllum söfnuðum, ásamt prest- inum og öðrum, sem því vilja sinna. Samverkamenn að þessari gleði getum vér meðal annars orðið með því að varðveita kirkju vora sean menningarstofnun til fræðslu og upplýsingar, hvatningar og uppörf- unar, tengilið til samtaka í félagsleg- um efnum. Loks er það nú gleðin, sem Páll postuli á sérstaklega við. Það er gleðin, sem fylgir trú yðar á guð, samfélagi yðar um fagnaðarerindi Jesú Krists. Ef til vill hafið þér stundum litið svo á, að einmitt þarna ættuð þér f átt sameiginlegt, skoðan- irnar hafi svo oft verið skiftar og leiðirnar ólíkar. En hugsið nú úm það, sem eg sagði áðan um mynd- irnar, sem mennirnir á liðnum öld- um hafa verið að mála af Kristi eða honum til dýrðar. Þessar myndir eru ólikar, en þær eru allar sprottnar af hinni sömu gleði.yfir komu hans í heiminn, löngun til þess að gera hann skiljanlegan og vilja á því að umskapa mannlífið- i hans mynd. Reynum nú, vinir mínir, að líta vora eigin samvinnu frá sama sjónarmiði. Þegar vér t. d. komum saman hér i kirkjunni á helguin dögum, erum vér ekki hingað komnir til að dæma hver annan fyrir þær ófullkomnu myndir, sem vér gerum oss hver fyrir sig af Kristi eða hjálpræði hans, heldur til þess að fullnægja þeirri gleði, sem Kristur hefir á vor- um beztu stundum vakið hjá oss. Þarna erum vér samverkamenn við hverja guðsþjónustu. Yér syúgjum sálma og lofsöngva, sem hef ja hug- ann upp á við. Vér biðjumst fyrir í sameiningu, komum fram fyrir guð eins og hópur af ólíkum börnum, sem öll finna þó, að þau eiga hann að föður. Vér sitjum hér saman, hugsum vel hver um annan, stundum betur en vér gerðum suma virku dagana, og styrkjum þannig eða hnýtum á ný þau samúðartengsl, sem guð vill að séu milli mannanna á þeirri jörð, er hann skóp. Einskis vildi eg frmeur óska í sambandi við samkomulag safnaðanna, en að eg mætti verða samverkamaður yðar í þvi að leggja rækt við þá gleði, sem trúin skapar i hjörtum yðar, hvaða flokki, sem þér tilheyrið og hvaða stefnu, sem þér fylgið. I því, sem eg hefi sagt hér við yður í dag, hefi eg lagt áherzlu á það, að samkomulagið, sem söfnuð- irnir hafa gert með sér, byggist á samvinnu um gleði vora, en ekki yfirdrotnan eins yfir annars trú. Vér eigum svo marga þörf sameiginlega, (Framh. á bls. 7)

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.