Lögberg - 05.08.1937, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. AGÚST, 1937
3
Samkomulag safnaðanna
Prédikun eftir Jakob Jónsson
Eins og yður öllum er kunnugt, er
nú orðið samkomulag um það, að
framvegis hafi eg á hendi prests-
þjónustu fyrir lúterska söfnuðinn
hér í bænum ásamt Quill-Lake söfn-
uði. Með þessari tilraun til sam-
vinnu eru Vatnabygðirnar að stíga
nýtt spor, sem getur orðið örlagaríkt
í framtíð íslenzkrar kristni. Þetta
er í fyrsta sinni, að söfnuðir, sem
tilheyra hvor sínu kirkjufélagi, njóta
þjónustu sama prests, án þess að
þeir um leið segi sig úr lögum við
sín gönilu félög. 1 þessu efni eruð
þér að gerast brautryðjendur, og
það er þess vegna spurt um það i
öðrum héruðum, hvert þér séuð að
stefna, og á hverju þessi nýbreytni
grundvallist í raun og veru ?
“Varðar mest til allra orða
undirstaðan rét sé fundin,”
segir Liljuskáldið Eysteinn Ás-
grímsson. Hver er undirstaða þessa
“nýja sáttmála,” sem hér hefir verið
gerður? Þannig spyrja menn út í
frá. En þess er ekki síður þörf, að
vér sjálf gerum oss grein fyrir því,
sem gert er, og höfum á því réttan
skilning. Þess vegna ætla eg nú að
nota tækifærið, sem þessi helgidagur
gefur mér, til þfss að tala við yður
um; þetta tvent; Hvernig söfnuðirnir
geti haft sama prest og hvernig sófn-
uðirnir geti unnið saman.
Fyrra atriðið er algerlega bomið
undir því, hvaða skilning menn hafa
á stöðu og starfi prestsins, og því,
á hvern hátt hann eigi að reyna að
fullnægja þörf safnaðarins. Um
þetta atriði má ræða fram og aftur,
ef raktar eru margar, ólíkar kenn-
ingar um prestsstarfið, takmark þess
og gildi. En mig langar til að taka
málið fyrst og fremst frá raunhæfri
hlið, með yður og sjálfan mig í huga.
Eg var ungur, þegar eg ákvað að
gerast prestur. Ástæðurnar fyrir
því voru sjálfsagt fleiri en ein, en
þó fyrst og fremst sú, að í lífi sjálfs
mín hafði eg reynt þýðingu guðstrú-
arinnar, og það varð snemma sann-
færing mín, að farsældarleið ein-
staklinga og þjóða væri sú stefna,
sem Jesús Kristur hélt fram, ekki
aðeins í orði, heldur í verkum og
öllum áhrifum. Af þessu leiddi, að
þrátt fyrir alla þá galla, sem á kirkj-
unni hafa verið og eru, þá fanst mér
hún þó hafa valið sér hið bezta hiut-
skifti, þar sem hún flytur þekkingu
á Kristi og starfi hans út á meðal
mannanna. Því að henni og hennar
mönnum er það að þakka, sem heim-
urinn veit um Krist. Þá fanst mér
einnig reynsla sjálfs mín og annarra
staðfesta það, að lifið yrði snautt og
kalt án tilbeiðslu og lofsöngs, og
maðurinn aðeins hálfur maður, og
hann misti sjónar á andlegri hlið til-
veru sinnar og eilífðargildi sjálfs
sin. Þess vegna leit eg svo á, og er
sannfærður um það enn, að guðs-
þjónustur kirkjunnar rnæti eðlilegri
þrá mannsins og veiti endurnæringu
og aukinn kraft þeim þáttum sálar
hans, sem sízt megi verða út undan,
ef hann á að geta staðið beinn og
borið höfuðið hátt i baráttu lífsins.
Eg veit ofur vel, að margt er betur
metið á þeirri vélaöld, sem vér lifum
á, en prestleg og kirkjuleg störf. F.n
þegar á alt er litið, iðrast eg þess
ekki að gerast prestur og er ennþá
sannfærður um, að þegar eg stend í
prédikunarstóli kirkjunnar, er eg að
vinna nauðsynlegt verk í þágu þjóð-
ar minnar og mannfélagsins í heild.
Undir eins áður en eg lagði á
námsbraut mína, vissi eg það, að hið
laufskrúðuga tré kristninnar hafði
ekki ávalt borið öll blöð af sömu
lögun né blóm af sama lit. Fjöl-
breytni í starfsháttum ekki síður en
kenningu og útlistun hafði ávalt átt
sér stað, frá því að hínn fyrsti vísir
spratt úr moldu. Mér finst, þegar
eg horfi yfir sögu kirkjunnar og
sögu trúarhugmyndanna sem eg sjái
óendanlega röð af myndum. Þær
myndir eru eins ólíkar hver annari
eins og imorgunsárið, hádegið og
kvöldskinið, en þær eru allar til-
raunir mannanna til að mála skin
hinnar sömu sólar. Kynslóð eftir
kynslóð hefir reynt að draga upp
mynd frelsarans frá sem flestum
hliðum, verki hans meðal mannanna,
viðhorfi þeirra til hans. En þvi
lengra sem liðið hefir bæði á náms-
tíma minn og prestsskapartíð, þvi
ljósara finst irnér það verða fyrir
mér, að mitt hlutverk er ekki að
mála upp aftur og aftur myndir ann-
ara manna, heldur að nema staðar
fyrir fyrirmyndinni sjálfri, eins og
hún birtist fyrir innri ugum mínum,
eftir lestur guðspjallanna. Þannig
ber mér að mála hann. Með öðrum
orðum; Það getur verið margt fag-
urt og viturlegt i kenningum annara
um Krist, bæði í fortið og nútíð, en
það fagnaðarerindi, sem eg á að
boða samtíðarmönnum mínum, er
Kristur, eins og eg skil hann sjálfur
—sannleikur hans, eins og samvizka
min og sannfæring býður mér að
flytja hann. Þetta imegin-boðorð
hefir leitt til þess, að mér er ómögu-
legt að fella njig inn í skorður neins
guðfræðikerfis eða trúfræði. Þess-
vegna get eg í einu atriði verið sam-
ferða kaþólskum mönnum, en i öðru
lúterskum, o. s. frv. Mig gildir einu
hvort hugmyndin er frá únítara, ný-
guðfræðingi eða gamalguðfræðingi,
sem kallaðir eru, ef hún er viturleg
eða sönn. Þannig er afstaða mín
'sem prests, gagnvart kenningum
þeirra, sem á undaii mér eða sam-
tímis mér hafa fengist við að mála
myndir í hið mikla safn.
En hvernig get eg nú — sjálfur
óháður öllum flokkum — verið
prestur margra safnaða, sem sumir
eru í Sameinaða kirkjufélaginu, aðr-
ir í Lúterska kirkjufélaginu, og enn
aðrir utan beggja? Þetta var spurn-
ingin sem fyrir lá.
Á liðinni tí$ hafa þessir söfnuðir
ekki ávalt viljað fara sömu leðiir.
En hafið þér veitt því nægilega at-
hygli, að innan sama safnaðar getur
verið afar mikill munur á hugsunar-
hætti fólksins? Þegar eg því kem
hingað í kirkjurnar á sunnudögum,
hitti eg fyrir söfnuð hinna ólíkustu
einstaklinga, alveg án tillits til þess,
í hvaða söfnuði þeir eru. Einn er
íhaldssamur í trúarefnuin, annar
fylgir hinum nýrri stefnum. Einn
þráir að heyra spiritískar prédikanir,
annar hatar spiritisma eins og heit-
an eld. Einn vill að eg tali við og
við að minsta kosti um jafnaðar-
stefnuna og umbætur á þjóðfélag-
inu. Annar álítur gersamlega óvið-
eigandi, að presturinn konii nálægt
svo óguðlegum hlut sem pólitik. Það
er með öðrum orðum fyrirfram vist.
að það má alt af búast við því. að
einhverjir verði mér ósammála og
meira að segja 'hneykslist á því, sem
eg segi. Hvaða gagn er þá að því
fyrir þessa menn að sækja kirkjuna?
Hver er hin rétta afstaða þeirra til
prestsins og kenninga hans ?
Einu sinni á unglingsárum mínum
heyrði eg á tal manna um kenningu
prestanna og voru ekki allir á eitt
sáttir. Þá afgreiddi ein gömul kona
málið með þessari setningu: Já, en
þessu á maður nú að trúa? Þetta
var hennar einasta lausn. Þvi, sem
presturinn sagði, átti maður að trúa,
og presturinn hélt auðvitað ekki
öðru fram en því, sem maður átti að
trúa. Nú skulum vér hugsa oss, að
eitthvert yðar komi hingað tiímessu,
og heyrðuð mig halda fram skoðun-
um, sem yður væri ef til vill 'þvert
um geð. Vér skulum segja sem svo
að eg væri að reyna að sýna fram á
að engill af himni hefði getað látið
taka ljósmynd af sér á jörðinni. Eða
að jafnaðarstefna í stjórnmálum og
samvinnustefna í verzlun væri einn
þáttur í baráttunni fyrir Guðs riki.
Get eg nú búist við þvi, ef þú ert
einlægur andstæðingur spiritismans
e^a samvinnustefnunnar og jafnað-
arstefnunnar, að þú segir kunningj-
um þínum frá orðum prestsins og
bætir við: “Þessu á maður nú að
trúa — og þessu ætla eg að trúa
héðan af, af því að presturinn sagði
það.”
Nei, sem betur fer rnundi enginn
yðar líta svo á, að presturinn væri
til þess settur að drotna yfir trú
yðar og ráða yfir skoðunum^ yðar.
Hvort sem presturinn er eg eða ann-
ar, þá hlustið þér á orð hans til þess
að fá þar fróðleik, hvatningu og
uppörfun til hugsunar og góðrar
breytni. Og alt þetta getið þér engu
siður fengið hjá presti, sem! stund-
um hugsar öðruvísi en þér. Þér
græðið ekki mest á því að tala við
menn, sem alt af eru yður sammála,
og hugsun yðar og trúarlif örfast
ekki alt af mest við að hlusta á
ræðumenn, sem þér getið verið sam-
mála í öllu. Það er í fáum orðum
álit vor flestra, og vonandi allra, að
presturinn geti ekki verið drotnari
yfir trú fólksins, heldur samverka-
maður að þeirri gleði, sem Kristur
flutti því. Á þessu byggist nú sú
tilraun til samkomulags safnaðanna
hér, sem nú er hafin. Hér á enginn
að vera annars drottinn í trúarefn-
um, því að einn er allra drottinn. En
hér eiga að vera samverkamenn að
þeirri gleði. sem lífið á bezta til.
Eg hefi talað við yður um það, að
presturinn eigi ekki að vera drotnari
yfir trú yðar. Slíkt er ekki hlut-
verk kennimannanna. En á hvern
hátt geta þeir þá verið samverka-
menn að gleði fólksins?
Allir eiga eitthvað, sem eykur
gleði í lífi þeirra. Frá því að vér
brosum sem lítil börn við fallegum
gullum til þess að vér sem fullorðnir
menn skynjum gleði hugsjónalífs og
starfs, er lífið stöðugt að rétta eitt-
hvað það að oss, sem færir imeð sér
gleði, eykur hana eða eflir. Enginn
hefir lifað svo erfiða eða sorg-
þrungna æfi, að hann minnist ekki
ótal gleðilinda, sem hann hefir
drukkið af.
1 THOSE WHOM WE SERVE |
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING =
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS =
BECA USE— |
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- |§
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF ||
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER jj|
WE DELIVER. =
| COLUMBIA PRESS LIMITED |
695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327
Svona gleði átti einn; önnur gef st
aðeins fáum í senn, eins og Þor-
steinn Erlingsson segir um ásthrifna
elskendur, sem troða döggvott gras-
ið um íslenzka vornótt:
“í dögg á Edens aldin-reinum
sjást aldrei nema tveggja spor.”
En til er sú gleði, sem hundruð og
þúsundir ntanna geta átt og notið í
senn. Hafið þér nokkurntíma hugs-
að um, að þetta er orsökin til þess
að söfnuðir vorir í Vesturheimi
hafa orðið til? Vér sjálf eða feður
vorir fluttust hingað af landinu, sem
Eggert kvað um:
“ísland ögrum skorið,
eg vil nefna þig,
sem á brjóstum borið
og blessað hefir mig.
Fyrir skikkun skaparans
vertu blessað. Blessi þig
blessað nafnið hans.”
Sú tilfinning, sem andar frá þessum
ljóðlínum, býross öllinn í brjósti, og
við hana er tengd ein hin helgasta
gleði, sem í huganum fær dvalið.
Þar er gleðin yfir móðurbrjóstum
Islands, sem í bernsku vorri nærði
bljúgar sálir, hlúði að því fagra og
góða í hjörtum smælingjanna og
kveikti þann yl, sem ávalt geymist,
þótt augað líti aldrei framar Islands
vogskornu strönd. Landið er horfið
oss, sunium fyrir fult og alt. Gleði
þá, sem þar var vakin, eigum vér
enn. Það hefir tengt oss saman í
f jarlægri heimsálfu ; og þessi tilfinn-
ing heldur áfram að ganga að erfð-
um til barna vorra og tengja þau
sarnan —: “hjarta við hjarta, hönd
við hönd.”
Eg sagði áðan, að ýmsir myndu
spyrja að því, hvernig tveir söfnuð-
ir ólíkra kirkjufélaga gætu unnið
saman. Það er meðal annars af því
að sem íslendingar stöndum vér í
svipuðum sporum og sá duftsins
son, sem Einar Benediktsson yrkir
um í kvæðinu “Norðurljós.” Fyrir
augum vor allra blasir mynd af ís-
lenzkri “grund og vog undir gull-
hvelfdum boga,” glitrandi sandkom
strandarinnar og iðandi norðurljós
yfir fjöllunum. Þegar vér beinum
sjónum vorum í austurátt, lyftist
hugurinn hátt yfir smáskærur, ó-
samlyndi og dægurþras:
V
“Nú finst mér það alt svo litið og
lágt,
sem lifað er fyrir og barist er móti.
Þó kasti þeir grjóti og hati og hóti
við hverja smásál eg er i sátt.
Því bláloftið hvelfist svo bjart og
hátt.
Nú brosir hver stjarna, þótt vonirnar
svíki,
og hugurinn lyftist í æðri átt.
Nú andar guðs kraftur i duftsins
líki. f
Vér skynjum vorn þrótt, vér þekkj-
um í nótt
vorn þegnrétt í ljóssins riki.
Allar skærur hverfa og verða að
engu fyrir ofurmagni þeirrar gleði,
sam fylgir vissunni um þegnrétt í
ljóssins ríki. Alt ósamkomulag vík-
ur fyrir sameiginlegri gleði yfir því
blálofti, sem hvelfist svo bjart og
hátt yfir höfði allra íslendinga
jafnt, frá vöggu til grafar, hvar sem
þeir fara um heiminn — norður-
ljósahimininn yfir fjöllunum heima.
Eitt af þvi, sem á að efla þessa
gleði og varðveita hana, er íslenzka
kirkjan. Og því skyldu menn ekki
geta orðið samverkamenn á þessu
sviði, þó ólíkt sé um ýms trúarat-
riði hugsað? Og því ætti það ekki
að skoðast sem sjálfsagt mál, að ís-
lenzkur prestur sé samverkamaður
ísl. safnaða að þessari gleði, þó að
þeir nefni sig ýmsum nöfnum og
kenni sig ekki allir við sömu stefnu.
Næst vil eg nefna þá gleði, sem
tengd er við lífið í þessu landi, sem
vér búuim í. Það mun einhverjum
finnast fulldjarft að tala um gleði,
þegar sólbrunnir akrar blasa við
augum, og fátækt og skortur liggja í
leyni við húshorn f jölda heimila. En
minnumst landnemanna, sem fyrst
settust að i þessu landi. Þeir áttu
ekki gleði allsnægtanna frekar en
vér, — heldur gleði vonarinnar urn
bjarta framtíð. Þeir voru samverka-
menn að þeirri gleði, sem er sam-
fara sigurvinningum mannsandans
yfir náttúrunni. Vér eigum sams-
Business and Professional Cards
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON DR. B. H.OLSON
216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Ofíice tlmar 2-3 Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment
Heimili: 214 WAVERLET ST. Only
Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE
Winnipeg, Manltoba Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK Dr. P. H. T. Thorlakson
Sérfrœðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum. 205 Medical Arts Bldg.
216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts.
Cor. Graham & Kennedy Phone 22 866
Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 6 Skrifstofuslmi — 22 261 Heimili — 401 991 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson Dr. D. C. M. Hallson
Viðtalstlmi 3-5 e. h. Stundar skurðlækningar og almennar lœkningar
218 SHERBURN ST. Slmi 30 877 264 HARGRAVE ST. —Gegnt Eaton’s— Winnipeg
Slmi 22 775
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
— H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögjrœOingur J. T. THORSON, K.C.
Skrifstofa: Room 811 McArthur íslenzkur lögfrœöingur
Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 800 GREAT WEST PERM. BLD.
PHONES 95 052 og 39 043 Phone 94 668
BUSINESS CARDS
Ákjósanlegur gististaöur Fyrir tslandingat Vingjarnleg aðbúð. Sanngjarnt verð. Cornwall Hotel MAIN & RUPERT Sími 94 742 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 .WINNIPEG
•
A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsimi: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út* vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. PHONE 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fðlks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757— Hbimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pægilegur og rólegur bústaöur i miöbiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Agætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Ghuesta
konar von. Vér eigum að vera sam-
verkamenn að þeirri gleði, sem er
samfara sigurvinningum mannsand-
ans yfir sjálfum sér. Oss er að
skiljast það, að jafnvel uppskeru-
brestur í hálfu Saskatohewan ætti
ekki að gera neitt verulega til né frá,
ef sambúðarhættir þjóðarinnar allr-
ar og mannkynsins yfirleitt væru
réttlátir og á góðsemi bygðir. Vér
væntum þess, að sá tími komi ein-
hverntíma, að vit, sanngirni og kær-
leikur verði undirstaðan undir hinu
ytra skpulagi, og þá rætist fyrirheit
gleðinnar. Gerumst öll saimverka-
menn að þeirri gleði þegur i stað,
með því að færa vora eigin félags-
hætti í áttina til hins háa marks.
Leitumst við að gera vort eigið
bygðarlag að gróðurreit þess bezta,
sem vér finnum, að þar má þrifast
af mannkostum og menning. Að
þessu geta unnið saman einstakling-
ar af öllum söfnuðum, ásamt prest-
inum og öðrum, sem því vilja sinna.
Samverkamenn að þessari gleði
getum vér meðal annars orðið með
því að varðveita kirkju vora sean
menningarstofnun til fræðslu og
upplýsingar, hvatningar og uppörf-
unar, tengilið til samtaka í félagsleg-
um efnum.
Loks er það nú gleðin, sem Páll
postuli á sérstaklega við. Það er
gleðin, sem fylgir trú yðar á guð,
samfélagi yðar um fagnaðarerindi
Jesú Krists. Ef til vill hafið þér
stundum litið svo á, að einmitt þarna
ættuð þér f átt sameiginlegt, skoðan-
irnar hafi svo oft verið skiftar og
leiðirnar ólíkar. En hugsið nú úm
það, sem eg sagði áðan um mynd-
irnar, sem mennirnir á liðnum öld-
um hafa verið að mála af Kristi eða
honum til dýrðar. Þessar myndir eru
ólikar, en þær eru allar sprottnar af
hinni sömu gleði.yfir komu hans í
heiminn, löngun til þess að gera
hann skiljanlegan og vilja á því að
umskapa mannlífið- i hans mynd.
Reynum nú, vinir mínir, að líta vora
eigin samvinnu frá sama sjónarmiði.
Þegar vér t. d. komum saman hér i
kirkjunni á helguin dögum, erum
vér ekki hingað komnir til að dæma
hver annan fyrir þær ófullkomnu
myndir, sem vér gerum oss hver
fyrir sig af Kristi eða hjálpræði
hans, heldur til þess að fullnægja
þeirri gleði, sem Kristur hefir á vor-
um beztu stundum vakið hjá oss.
Þarna erum vér samverkamenn við
hverja guðsþjónustu. Yér syúgjum
sálma og lofsöngva, sem hef ja hug-
ann upp á við. Vér biðjumst fyrir
í sameiningu, komum fram fyrir guð
eins og hópur af ólíkum börnum,
sem öll finna þó, að þau eiga hann
að föður. Vér sitjum hér saman,
hugsum vel hver um annan, stundum
betur en vér gerðum suma virku
dagana, og styrkjum þannig eða
hnýtum á ný þau samúðartengsl,
sem guð vill að séu milli mannanna
á þeirri jörð, er hann skóp. Einskis
vildi eg frmeur óska í sambandi við
samkomulag safnaðanna, en að eg
mætti verða samverkamaður yðar í
þvi að leggja rækt við þá gleði, sem
trúin skapar i hjörtum yðar, hvaða
flokki, sem þér tilheyrið og hvaða
stefnu, sem þér fylgið.
I því, sem eg hefi sagt hér við
yður í dag, hefi eg lagt áherzlu á
það, að samkomulagið, sem söfnuð-
irnir hafa gert með sér, byggist á
samvinnu um gleði vora, en ekki
yfirdrotnan eins yfir annars trú. Vér
eigum svo marga þörf sameiginlega,
(Framh. á bls. 7)