Lögberg - 16.09.1937, Qupperneq 1
50. ÁRGANGUB
Frá Islandi
Féll út af bryggju
og druknaði
Siglufirði 19. ág.
ÞaÖ slys vildi til aÖfaranótt síÖ-
astliÖins niiÖvikudags, aÖ annar vél-
stjóri af línuveiÖaskipinu Málmey,
Þorgeir EIís Þorgeirsson úr Hafnar-
firÖi, féll úr af Tynesar-bryggju i
Siglufirði og druknaði.
Náðist hann þegar, en lífgunar-
tilraunir reyndust árangurslausar.
Þorgeir lætur eftir sig konu og þrjú
börn.—Mbl. 20. ág.
* # #
Norrænt lögfræðinga-
mót í Beykjavík
Á lögfræðingaþinginu í Helsing-
fors hafa danskir lögfræðingar boð-
ið fundarmönnum að næsta lög-
fræðingamót Norðurlanda skuli
haldið i Kaupmannahöfn.
Það fylgdi boði dönsku lögfræð-
inganna, að frá þeirra hálfu væri
samt sem áður ekkert því til fyrir-
stöðu, að næsta lögfræðingamót
yrði haldið i Reykjavík, ef islenzkir
lögfræðingar vildu það heldur og
teldu sig hafa ástæður til að efna
til mótsins þar.—Mbl. 20. ág.
# # #
Fornminjafumdur á Kili
Á öræfunum norðan við Kjöl hef-
ir nvl. fundist vopn»eitt mikið, svo
og forn mannvirki, sem ekki eru
áður kunn. Björn Blöndal lög-
gæslumaður, sem er nýkominn ofan
af Kili, hefir skýrt þannig frá:
f Auðkúluheiði sunnan Seyðisár
fann Helgi Geirsson varðmaður á
Kili fyrir skömmu vopn eitt. Lá
það á melbarði ofanjarðar. Öll
lengd vopnsins er 72 cm. og virðist
þó allmikið hafa brotnað framan af
því. Breidd vopnsins er 5)4 cm.
Vopnið er mjög ryðgað, en þar sem
ryðið er dottið af eggjunum er sjá-
anlegt, að eggjarnar hafa verið mjög
hvassar og vopnið beitt. — Ekki
hefir verið leitað þar sem vopnið
fanst, og er því ekki vitað nema
fleiri fornminjar kunni að finnast,
ef staðurinn verður rannsakaður.
Þá hafa viða á sunnanverðri Auð-
kúluheiði eða norðanverðum Kili
fundist mannvirki, sem ekki eru áð-
ur kunn svo vitað sé. Þar á meðal
hefir fundist tóft ein 12 metra löng
og 8 m. að breidd, og umhverfis hana
aðrar minni tóftir eða önnur því-
lík mannvirki.—Ólafur Steingríms-
son úr Hafnarfirði veitti tóftum
þessum athygli og skýrði fréttaritara
útvarpsins frá þeim, en hvorugur
þeirra leiðir neinar getur að því, til
hvers þessar tóftir muni hafa verið
notaðar.—Mbl. 20. ág.
# # #
Nýjar bækur
Þessa dagana hafa komið allmarg-
ar nýjar islenzkar bækur í bóka-
verzlanir. Rit Jónasar Hallgríms-
sonar eru nú komin öll, komu að
þessu sinni öll síðari hefti bindanna,
og er þar með verkið alt komið út.
Jón H. Guðmundsson sendir frá sér
laglega bók, sem hann nefnir: “Frá
liðnum kvöldum.” Vestur-íslenzk
skáldkona, Rannveig Sigbjörnsson,
hefir samið bók, sem hún nefnir
“Þráðarspottar,” og kom út um
helgina. nnfremur kom út drengja-
saga, þýdd, sem heitir “Röskur
drengur.”—Mbl. 24. ág.
# # #
Illviðri Ifiamla veiðum
“Síðastliðinn sólarhring hefir ver-
ið vont veður og snjóað niður i
miðjar hlíðar,” símar fréttaritari
Morgunblaðsins á Siglufirði í gær.
Ennfremur símar hann:
Mörg skip leituðu hafnar vegna
veðurs og sögðu mikinn sjó úti fyr-
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 16. SEPTEMBER 1937
MR. JOHN QUEEN
Hinn óháði flokkur verkamanna hefir í einu hljóði útnefnt Mr. Queen,
fyrrum borgarstjóra, sem borgarstjóraefni við kosningarnar, sem fram
fara til bæjarstjórnarinnar í Winnipeg í næstkomandi nóvember.
ir. Stöðva varð löndun á Siglufirði
í nótt er leið, vegna illveðurs, en
byrjaði aftur á hádegi.
í dag er gott veður, en mikill sjór.
Allir reknetabátar eru nú að fara út
aftur, svo og önnur skip, sem inni
lágu.
I F. Ú. fregn segir, að um nón í
gær hafi 48 skip beðið eftir af-
greiðslu á Siglufirði, með um 23—
24 þús. mál.—Mbl, 26. ág.
# # #
Maður druknar af
“Max Pemberton’’
•Það slys vildi til i fyrrakvöld að
háseti í Max Pemberton, Nikulás
Nikulásson, Framnesveg 46, féll út-
byrðis af togaranum, sem staddur
var í Norðursjónum, og druknaði.
Nikulás *var maður um þrítugt,
kvæntur og átti tvö börn. Hann
var þaulvanur og duglegur sjómaður
og hefir undanfarin ár verið háseti
á Max Pemberton, en þar áður á
öðrum íslenzkum togurum. — Mbl.
26. ág.
# # #
Maður druknar í Kolkuós
Kolkuós 25. ágúst.
Björn Hafliðason á Kolkuósi
druknaði í gær í Kolkuós. Ætlaði
hann að flytj^. bát upp eftir árósn-
um og fór að heiman klukkan að
ganga 12 í gærdag.
Fanst Björn rekinn í árósnum um
kl. 19, en báturinn hefir ekki fund-
ist. Björn lætur eftir sig konu og
tvær dætur uppkomnar.—Mbl.
# # #
Bogi Smith Magnússon
stýrimaður látinn
I gær andaðist í Landsspítalanum
Bogi Smith Magnússon, sonur
Magnúsar Guðmundssonar fyrv.
ráðherra.
Hann var fluttur á spítalann í
gærmorgun úr olíuflutnngaskipinu
Skeljung, en þar hefir hann verið
stýrimaður í nokkur ár.
í fyrrakvöld gekk hann til hvílu
alheill 'heilsu. En þegar skipverjar
vöknuðu um morguninn urðu þeir
þess varir að hann svaf ekki eðli-
legum svefni. Var hann þá sam-
stundis fluttur fluttur á spitalann.
Læknar gerðu alt sem i þeirra valdi
stóð til að bjarga lífi ’ ans. En
hann komst ekki til m j. nndar og
andaðist trm kl. 4.
Foreldrar Boga tóku sér far rneí
Drotningunni á mánudag til I lafnaE
Fór Magnús til þess að sitja fund
löggjafanefndarinnar. Þau fengu
þessa sviplegu harmfregn til Fær-
eyja í gær.—Mbl. 26. ág.
# # #
Fregnir úr Húnaþingi
Karl Helgason símstjóri á Blöndu-
ósi er um þessar mundir gestur hér
í bænum. Nýja dagblaðið hefir hitt
hann að máli og spurt hann tið-
inda úr Húnaþingi.
—Hvernig hefir heyskapur geng-
ið nyrðra?
—Sláttur byrjaði með seinna móti
og spretta á túnum var léleg. Óþerr-
ar hafa gengið og töður velkst, en
ekki hrakist til muna. Um miðjan
ágúst 'gerði nokkra þurkdaga og
náðu menn þá alment heyjum sín-
um.
Fyrri hluti sumarsins var kaldur
og orsakaði það hinn trega gras-
vöxt, en með votviðrunum brá til
meiri hlýinda og hefir sprettu mið-
að vel áfram síðan og mun nú vera
orðin í meðallagi. Þó er yfirleitt
útlit fyrir lítinn heyfeng í sumar
vegna tafa af völdrnn veðurfarsins.
—Hvað getið þér sagt um borg-
firzku veikina og útbreiðslu hennar.
—Það er mikill geigur í mönnum
við þann faraldur, sem von er til.
Virðist veikin sífelt vera að breið-
ast út.
—Hefir verið söltuð síld á Skaga-
strönd í sumar?
—Síldarsöltun hófst á Skaga-
strönd í fyrra sumar og var þeim
atvinnurekstri haldið áfram í ár. Þó
hefir engin síld borist til söltunar
síðustu þrjár vikurnar, enda þótt ó-
venjulega mikil síld hafi verið fyrir
Norðurlandi á þeim tíma. Vöntun á
sildarbræðslustöð á Skagaströnd
veldur sennilega mestu þar um.
Bygging slíkrar stöðvar væri þýð-
ingarmikil, ekki einasta fyrir kaup-
túnið heldur og héraðið umhverfis,
síldarútveginn Og atvinnulífið í heild.
—Nýja dagbl. 25. ág.
# * #
tJ tflutningsv e rð mæti
Útflutningsverðmæti síldarinnar
var 21. þ. m., 20 miljónir 286 þús-
und krónur. Hæsti aflahlutur há-
seta á togara er kr. 1,120.12 netto,
á vélbát 2,244.66 @g á línuveiðara
kr. 2»333-77 brútto.—Nýja dagbl.
24. ágúst.
“íslandssíld” Norðmanna
Samkvæmt útvarpsfregn í gær
gekk í gildi í Noregi 10 þ. m. ný
reglugerð um mat á Islandssíld.
Eftir þessari reglugerð er það ó-
heknilt að senda nokkra sild, sem
veidd hefir verið við ísland beint á
markað án þess að hún sé rnetin og
merkt i Noregi. Þó er svo ákveð-
ið, að fiskimálastjórnin hafi rétt til
að gefa undanþágu frá þessu á-
kvæði, ef síldin er seld beint til
vefksmiðju^ sem notar hana sem hrá-
efni til iðnaðar, en selur hana ekki
frá sér sem síld til neyzlu undir
einu nafni.
Matsmenn hafa þegar verið skip-
aðir og hafa þeir fengið fyrirmæli
um, að rannsaka nákvæmlega alla
síld, sem veidd 'hefir verið við Is-
land og gefa einungis matvottorð
þeirri síld, sém fullkomlega fullnæg-
ir þeim ákvæðum um gæði og með-
ferð, sem sett er í hinni nýju reglu-
gerð um mat síldar, sem er veidd við
ísland.
Mega þetta heita góð tíðindi hér
á landi. Hingað til hafa norskir út-
gerðarmenn, sem sent hafa skip til
veiða hér við land, oft og einatt selt
veiði sína sem “íslandssíld” og
“Islands-Matjes” án þess að láta
þess. jafnframt gétið, að hún sé
,veidd og verkuð á skipsfjöl utan
landhelgi. Enda hafa þessir keppi-
nautar okkar sumir reynst helzt til
lítið vöruvandir, og oft saltað svo
snemmveidda og magra síld að háski
hefir stafað af á markaði fyrir hina
raunverulegu Islandssíld. — Nýja
dagbl. 22. ág.
UATÍÐLEGAB OG UPP-
BYGGJANDI SAMKOMUB
Samkomur þær, er fram fóru i
Fyrstu lútersku kirkju, guðsþjón-
ustan, er prestur safnaðarins, Dr.
Björn B. Jónsson, flutti á sunnu-
dagskvöldið og samkoman á þriðju-
dagskvöldið, þóttu með afbrigðum
tilkomumiklar og uppbyggilegar.
Var sunnudags guðsþjónustan helg-
uð því fólki, eldra sem yngra, er
fermt hafði verið innan vébanda
Fyrsta lúterska safnaðar.
Karlaklúbbur safnaðarins, undir
forustu hins ötula og framtaks-
sama forseta síns, Mr. Normans S.
Bergman, átti frumkvæði að þessum
fjölsóttu samkomum; spáir þetta
góðu um árvekni og athafnir safn-
aðarstarfsins á starfsári því, sem nú
er svo að segja nýbyrjað eftir sum-
arfríið.
SENATOB LYNN J.
FBAZIEB KVONGAST
Á þriðjudaginn þann 7. þ. m..
voru gefin saman í hjónaband að
Mountain, North Dakota, þau Sena-
tor Lynn J. Frazier, fyrrum ríkis-
stjóri og Mrs. Catherine Paulson frá
Concrete. Séra Haraldur Sigmar
framkvæmdi hjónavígsluna á heimili
sínu. Senator Frazier var giftur
áður, en misti konu sína fyrir tveim-
ur árum; hann á fimm börn á lífi af
því hjónabandi. Hin nýja Mrs.
Frazier er ekkja; misti mann sinn,
Joseph Paulson, árið 1930; hún er
átta barna móðir. Heimili þeirra
Senator Frazier og frúar hans, verð-
ur að Hoople, N. Dak., þar sem
Senatorinn stundar búskap i stórum
stfl.
HEIMSFBÆGUB STJOBN-
MÁLAMAÐUB LATINN
Nýlátinn er einn af víðfrægustu
og áhrifamestu stjórnmálamönnum
Norðurálfunnar, Thomas G. Mas-
aryk. fyrsti forseti Czechoslovakiu
lýðveldisins, víðsýnn maður og víð-
mentur, kominn á níræðisaldur; var
hann um mörg ár háskólakennari,
áður en hann tók að gefa sig við
stjórnmálum.
Þegar Austurríkis og Ungverja-
Alberta's Mail Order
Governaient
Á laugardaginn var birtist stutt
ritstjórnargrein í Edmonton Journal
með þessari yfirskrift. Gef eg hér
lauslega þýðingu á þessari grein rit-
stjórans, því hún bendir svo greini-
lega áj stjórnarfarsfyrirkomulagið,
sem nú á sér stað í Alberta.
“Það er nú orðið mjög vafasamt,
hvort almenningur í Alberta gjörir
sig lengur ánægðan með þessa “mail
order” stjórn, sem nú situr hér við
völdin.
Það er nú á allra vitorði, að
Premier Aberhart og ráðuneyti hans
taka skipunum frá Major C. H.
Douglas í London á Englandi, eða
hinu svokallaða “Social Credit
Board,” sem Mr. Douglas hefir al-
gjörlega í sinni hendi, og sem ekki
starfar neitt, nema samkvæmt því
sem Mr. Douglas segir þeim fyrir.
Það sem mesta undrun vekur á með-
al hugsandi manna og kvenna hér í
Alberta, er það, að Alberta-stjórnin
yirðist verða að bíða eftir útkomu
vikublaðsins “Social Credit” sem
gefið er út í London af Mr. C. H.
Douglas, til þess hún viti hvað hún
megi aðhafast næst.
Fyrir tveimur vikum'síðan birtist
í þessu málgagni Douglasar, upp-
lýsing um það, að Major Douglas
hafi skorað á “The Social Credit
Board” í Alberta, að láta þingið sem
þá sat, löggilda “The Press Act,”
sem Aberhart-stjórnin hefir lengi
haft á prjónunum. En til allrar
lukku var þingið uppleyst þegar
þessi skipun frá útlöndum kom til
nefndarinnar.
“Nú í gær,” segir ritstjórinn,
“kom sú upplýsing i þessu sama
málgagni Mr. Douglasar, að Mr.
Aberhart hafi í hyggju að kalla
saman aukaþing í Alberta, til að
gefa út í annað sinn þau lög, sem
sambandsstjórnin í Ottawa hafi ný-
lega synjað um löggildingu.
Major Douglas veit alt af fyrstur
allra, hvað Alberta-stjórnin ætlar
séra að gjöra næst, áður en nokkrir
af borgurum fylkisins vita neitt um
það. Jafnvel áður en Mr. Aberhart
veit það sjálfur. Það er Major
Douglas sem segir stjórninni fyrir
verkum. Þannig gengur það undir
“Mail Order” stjórn.
Þetta “Press Act,” sem ritstjór-
inn getur um, að Major Douglas
vilji fá löggilt hér í Alberta, ákveð-
ur, að öll blöð eða blaðaútgefendur
í Alberta, verði að hafa leyfisbréf
frá stjórninni, til að iialda úti blöð-
um sínum. Þegar stjórninni finst
hún þurfi að þagga niður í ein-
hverjum þessara blaðastjóra, þá er
það mjög auðvelt; taka frá þeim
leyfisbréfið, og blöðin verða að
hætta að koma út. Mr. Aberhart
hefir oft gefið það til kynna, að
hann hefði i hyggju að þessi lög
verði innleidd hér. Meirihluti af
leiðtogum Social Credit sinna, hefir
til þessa tíma, sett sig upp á móti
slíkri Nazista löggjöf.
Premier Aberhart hefir lengi
hrósað sjálfum sér fyrir að hafa
stofnsett hér hina fyrstu Social
Credit stjórn í heiminum. Nú get-
ur hann stungið annari f jöður í hatt
sinn og hælt sér fyrir að vera sá
fyrsti að koma á fót “Mail Order
Government” og “Long Distance
Control.”
S. Guðmundson.
lands keisaradæmið leystist upp að
aflokinni heimsstyrjöldinni frá 1914,
kom Masaryk til sögunnar, og stofn-
aði, Czeohoslovakiu lýðveldið; var
hann alment kallaður faðir þjóðar
sinnar.
NCMER 37
VICTOR B. ANDERSON
Mr. Anderson hefir verið út-
nefndur í einu hljóði til þess að vera
merki$beri hins óháða verkamanna-
flokks i 2. kjördeild, við bæjar-
stjórnarkosningar næsta nóvember.
Mr. Anderson reyndist ágætlega
þau árin, sem hann sat í bæjarstjóm
og verðskuldar endurkosningu og
eindreginn stuðning Islendinga.
HLYNTUB ÞVI AÐ ÞJOÐ-
VEBJUM VEBÐI FENGNAB
FYBBI NÝLENDUB SINAB
Mr. Charles Te Water, umboðs-
maður Suður-Afríku stjórnarinnar í
Lundúnum, var nýverið staddur í
Montreal og flutti þar ræðu, þar sem
hann lýsti einbeittlega yfir þeirri
skoðun sinni, að heimsfriðarins
vegna( teldi hann það alveg sjálf-
sagt, að Þjóðverjum yrði fengnar í
hendur þær nýlendur, er þeir voru
sviftir samkvæmt ákvæðum Versala-
samninganna.
Úr borg og bygð
Þessir íslenzku nemendur luku
hljómlistarprófi við Manitoba há-
skólann í sumar:
Louise Jónasson, Grade II, piano;
Gloria Sivertson, Grade IV, piano,
honors, 70 marks, and Theory ist
Class Honors, 95 marks; Doris
Goodman, Grade V, piano, ist Class
Honors, 82 marks and Tíheory,
Honors, 77 marks.
Þessir nemendur hafa allir lært
hjá Björgu Frederickson. Einn af
nemendum hennar, Cora Doig, tók
Senior Toronto Conservatory próf
(Grade X) og hlaut næst hæstu
mörk veitt í Winnipeg.
Gjafir til sumarheimilis íslenzkra
barna.
Kvenfélag Sambandssafnaðar,
Riverton, 25.00; Kvenfél. “Liljan”,
Hnausa, $10.00; Dr. J. T. Thorson,
■ Winnipeg, $5.00; Mrs. Ingibjörg
Bjarnason, Wynyard, $1.00; Sveinn
Thorvaldsson, M.B.E., Riverton,
$100.00; Hjörtur Guðmundsson,
Árnes, $2.00; Jóhann Johnson,
Bjargi, Mikley, $1.00; Riverton
Transfer (work value), $1.00;
Kvenfél. Sambandssafnaðar, Ár-
borg, 4 pör þurkur; Mrs. G. Laxdal,
Leslie, $5.00; Mrs. J. Ásgeirsson,
Winnipeg, $6.00; Mrs. John Ander-
son, Winnipeg, -3.00; Mrs. Bald-
vinsson, Winnipeg, -3.00; Mrs. J.
Sigurdsson, Wjinnipeg, -1.50; Mrs.
Sam. Sigurdsson, Winnipeg, -1.00;
Mrs. F. Hanson, Winnipeg, -2.00;
G. Eiríksson, Winnipeg, $6.00;
Parmes Magnússon, Winnipeg,
$2.00; Mrs. Hinriksson, Winnipeg,
50C; Mrs. Bower, Winnipeg, $1.00;
Mrs. Benson, Winnipeg, $1.00; Mrs.
J. Bjarnason, Winnipeg, $1.00; S.
B. Stefánsson (ferðakostnaður),
$3.00; Rev. P. M. Pétursson (ferða-
kostnaður) $3.00.
Fyrir þessar gjafir kvittast með
þakklæti,
Mrs. H. v. Renesse,
féhirðir nefndarinnar.