Lögberg - 30.09.1937, Page 7
LÖGBEKG, FIMTUDAGÍNN 30. SEPTEMBEK, 1937.
7
Heimilisguðrækni
Konan, sem skrifar þessa grein
hefir gert að einlcunnarorðum
fyrir henni: “1 sálarþroska
svanna, hýr sigur kynslóð-
anna.”
Líklega er ekkert viSfangsefni
hér i heimi, eins erfitt og aÖ átta sig
á samtíÖinni. Skynja straumhvörf
hins hraðfleyga framhjáfarandi
tíma. “Og kunna hn réttu ráÖ a'ð
gefa.”
Á stórfeldum tímamótum, eins og
nú, þegar breytingar ver'ða svo örar,
og ó'Öfluga, og sjálfsagt fremur en
nokkru sinni áður. og snerta svo að
segja öll svið þjóðlifsins; alt frá
stjórn- og mentamálum, og atvinnu-
lífi og inn í sjálft heimilislífið. Og
þar mæta erfiðleikarnir og úrlausn-
arefnin einkum kvenþjóðinni.
Það fær ekki hugsandi mönnurn
dulist, að þrátt fyrir alla ytri menn-
ingu og framfarir, getur verið um
sðferðislega hnignun og ábyrgðar-
leysi að ræða.
Ekki þarf að efa það, að margt
af því. er nýi tíminn lætur oss í skaut
falla, er gott og blessað. En hinu
er ekki að neita að “göróttur er
drykkurinn.” Og er það að vonum,
því alstaðar liggja hinir breiðu og
mjóu vegir samhliða, og sýnir það
bezt, að oss er ætlað að vera á verði.
Leita vits, og láta grön síga.
Eitt af. því bezta, er nýi tíminn
hefir fært oss, er óefað útvarpið,
það stækkar sjóndeildarhringinn, og
brúar fjarlægðir. Ennig fyrir kon-
ur ætti útvarpið að geta verið góð
hjálp, og sá vettvangur, þar sem þær
geta náð saman, víðs vegar úr strjál-
býlinu og rætt sín áhugamál.
í vetur var, svo sem kunnugt er,
tekinn á dagskrá útvarpsins einn
tíimi á viku, fyrir húsmæður, þar
sem þeim gæfist kostur á að ræða
um hin margþættu, og vandasömu
störf húsfreyjunnar. Þessir timar
þyrftu að halda áfram. Margar
þarfar og góðar leiðbeiningar koma í
.tímum þessum. Sumar ruku í að
opna glugga, aðrar að taka til í hér-
bergjum. Hjúkrunarkonurnar fóru
í hvíta sloppa og kendu að leggja
bakstra. og mun það hafa komið sér
vel í inflúenzunni. En “eitt er nauð-
sytilegt.” Á það var ekki minst.
ÞaÖ voru vonbrigði. Það gleymdist
að minnast á grundvöllnn, er sann-
farsælt heimili skal byggja á. Það
hefði þó vissulega verið þess vert,
og ástæða til, að verja svo sem ein-
um tíma, til þess að tala um kristileg
málefni.
Það getur þó varla nokkrum dul-
ist, og allra sízt mæðrunum, er hafa
barnauppeldið á hendi, að kristi-
legra áhrifa er þörf inn á heimilin.
Annað eins reiptog og nú á sér stað
með blessaða unglingana.
Það er mikið talað um nú á tím-
um, hvað mikið þurfi að gera fyrir
börnin, einkum þeim til líkams-
þroska. Það er gott það sem það
nær. Það er aldrei of mikið gert
fyrir þau. En þó að kennarar og
uppeldisfræðingar leggi sinn skerf
til, verða heimilin ekki, og eiga ekki
að vera^ leyst frá skyldum sínum
gagnvart börnum1 sínum.
Eg held að hinn hreini þróttmikli
kristindómur sé heillavænlegri fyrir
æskuna, heldur en hið ímyndaða
frelsi, og loforð um gull og græna
skóga, er flokkshyggjan heldur svo
mjög að unglingum nú, sem svo
verður það sker vonbrigðanna, er
menn brjóta óþyrmilegast bátinn
sinn á.
# * #
Eg hefi oft óskað þess, að konur
og kvenfélög vildu láta málefni
kristindómsins riieira til sin taka, en
þær gera. Þær geta á ýmsan hátt
stutt safnaðarstarfið. Meðal ann-
ars imeð því að láta sér ant um
kirkjurnar, fegra þær og prýða, og
umhverfi þeirra. Sækja vel helgar
tíðir, og leitast við að hafa áhrif á
aðra til krkjurækni. Taka upp fall-
ið merki kristinnar trúar á heimil-
unum. Heimilisguðræknin hefir
verið lögð niður. Hvað hafa heim-
ilin fengið í staðinn? Er oss ljóst
hvað vér höfum mist? Eg sakna
húslestranna, þessara hljóðu kyr-
látu kvöldstunda, með huvekju söng
og bæn.
Það er sannfæring mín, að heim-
ilisguðræknin má ekki leggjast nið-
ur, ef krstin trú á að vera lifandi og
starfandi. Þá ætti að fela prestun-
um algerlega kristinfræðslu barna,
ekki einungis undir fermingu, heldur
þurfa þeir að vera leiðtogar æsku-
lýðsins, fram á fullorðins ár.
# * #
í úrræðaleysi því, er heimurinn er
nú staddur, hefir það verið viður-
kent og játað, að kristindómurinn sé
það eina. er hjálpað getur, ef hann
fær það. En lifið og sagan sýnir
oss í skuggsjá fortíðarinnar, að hin-
ar göfugustu hugsjónir hafa tíðum
átt erfitt uppdráttar í mannheimi.
Það er leitast við að krossfesta hug-
sjónirnar, ekki síður en boðbera
þeirra. Og þannig er það með
kristindóminn. Hann hefir of
sjaldan fengið að vera mönnunum
það sem honum er ætlað.
Renni maður þuganuim aftur i
tíma kristninnar hér á landi. einkum
þess tíma, er biskupsstólarnir voru
með mestum blóma, sézt að kristi-
legt líf hefir verið hér áhrifaimeira,
starfsamara og innilegra en nú. Og
liggja þar til eðlilegar, alvarlegar
ástæður.
# # #
4 PUBLIC NOTICE Auction Sale of School Lands
The following School Lands will be offered for sale,
subject to a reserve Drice, by public auction at the Vil-
lage of Arborg, in Manitoba, at 10 a.m. on Thursdaý,
October 14, 1937:—
S.E. 11-23-1 W.P.M. S.W. 11-22-2 E.P.M.
N.E. 11-23-1 W.P.M. S.E. 11-23-2 E.P.M. t
N.W. 11-23-1 W.P.M. N.E. 11-23-2 E.P.M.
S.W. 11-23-1 W.P.M. N.W. 11-23-2 E.P.M.
S.E. 29-23-1 W.P.M. S.W. 11-23-2 E.P.M.
N.E. 29-23-1 W.P.M. N.E. 29-23-2 E.P.M.
N.W. 29-23-1 W.P.M. S.E. 11-24-2 E.P.M.
S.W. 29-23-1 W.P.M. N.E. 11-24-2 E.P.M.
S.E. 29-24-1 W.P.M. N.W. 11-24-2 E.P.M.
N.W. 29-24-1 W.P.M. S.W. 11-24-2 E.P.M
S.W. 29-24-1 W.P.M. S.E. 29-22-3 E.P.M.
S.E. 29 23-1 E.P.M. v S.E. 11-23-3 E.P.M.
N.E. 29-23-1 E.P.M. N.E. 11-23-3 E.P.M.
N.W. 29-23-1 E.P.M. N.W. 11-23-3 E.P.M
S.W. 29-23-1 E.P.M. S.W. 11-23-3 E.P.M
S.E. 11-24-1 E.P.M. S.E. 29-23-3 E.P.M
N.W. 11-24-1 E.P.M. N.E. 29-23-3 E.P M
S.W. 11-24-1 E.P.M. N.W. 29-23-3 E.P.M.
S.E. 11-22-2 E.P.M. S.W. 29-23-3 E.P.M.
N.E. 11-22-2 E.P.M.
Reserve price, terms and conditions of sale may be
secured on application to the Lands Branch, Department
of Mines and Natural Resources, 318 Law Courts Build-
ing, Winnipeg, Manitoba.
DATED at Winnipeg, in Manitoba, this llth day of
September, A.D. 1937.
R. W. GYLES,
Director of Lands.
Meðan kirkja og skóli störfuðu
saman, oft í höndum ágætis tnanna,
hefir verið unnið mikið og gott verk
í þágu kristni og menningar og því
eðlilegt, að áhrifin bærust þaðan út
um alt land. Það verður því ekki
án sorgar hugsað til þeirra tíma^ er
biskupsstólarnir á Hólum og Skál-
holti háðu úrslitabaráttuna fyrir til-
veru sinni, á einhverjum þeim erfið-
ustu timum, er yfir landið hafa
gengið. Og eins og vænta mátti
urðu afleðingarnar þær, að kristilegt
líf dapraðist. Kirkjugöngur og
kirkjulegir helgisiðir, er áður þóttu
sjálfsagðir, og jafnvel skylda, fóru
smám saman þverrandi; en deyfð
og tómlæti gagnvart öllu slíku hefir
farið í vöxt. Og heimilisguðrækn-
in, þessi hátíðlegi og sjálfsagði þátt-
ur í heimilislífinu, lagður niður.
Enda er nú svo komið, að sjálft
löggjafarvaldið sér vænlegast, að
stefna að því, að slökkva þenhan litt
logandi hörkveik kristinnar trúar í
landinu, með því að fækka svo
prestum og kirkjum, að kirkjan
verði óstarfhæf og áhrifalaus. Og
heggur þar sá, er hlífa skyldi.
# * #
En andinn verður ekki slöktur.
Vonandi renna nú bráðlega upp nýir
og betri tímar í kristilegu safnaðar-
starfi hér. Margt bendir til að nú
roði fyrir nýrri vakningu i kirkju
vorri. Fjársöfnun og gjafir til
kirkna bera þess ljósan vott, að al-
þýða ann kristindóminum af hjarta.
Og þá er ekki síður fagnaðarefni,
sá áhugi, sem vaknaður er fyrir þvi,
að endurreisa forna merkisstaði, sem
kirkjulegar minningar eru bundnar
við. Þar er vissulega tilefni fyrir
konur að leggja hönd á pláginn.
Með því sýna menn ást á málefni
kristindómsins og virðingu fyrir
minningu hinna mætu fræðimanna,
er þar hafa lifað og starfað.
# # #
Hóladýrðin er ekki horfin, þó að
hinar dýrðlegu kaþólsku messugerð-
ir og hátíðasöngur heyrist þaðan
ekki framar. Og þó að aldraða fólk-
ið eigi ekki framar elliheimili á þess-
um fornheilaga stað, þar sem það
getur fundið hvíld og hulið harma
sína og fátækt í skjóli minninganna
um hinn “blessaða biskup.”
Eg vona að Norðlendingar elski
Hólakirkju og bændamenninguna, er
þar vex og þroskast á leiði fornra
minninga,, og að þeir segi ávalt með
ást og virðingu: “Heim að Hólum.”
Eg veit, að hið fagra söguríka
Skálholt verður aldrei framar bisk-
upssetur. Timarnir eru breyttir. Eg
veit, að sama rósin sprettur þar
aldrei aftur, en önnur fegri getur
ávalt vaxið á meiði kristinnar
kirkju, ef vér viljum1.
Skálholt ætti aftur að verða
dýrðlegur staður, endurreistur með
fagurri Vídalinskirkju. Máske býr
hún þar enn, mentagyðjan, meðal
Iandvætta og ljósálfa, og sé að bíða
eftir, að setjast aftur í öndvegi. Og
gera garðinn frægan.
Þjóðin hefir efni á að byggja
kirkjur, er samboðnar eru menning-
arþjóð, og viðhalda kristindómi i
landinu, en hún hefir ekki efni á að
láta það ógert eða vanrækja það.
Það er komið meir en mál, að fara
að sýna kirkjum landsins þann sóma,
hvað byggingarstíl og útlit snertir,
að þær beri af gripahúsum staðar-
ins.
Þjóðin vill vera sjálfstæð og
sterk, og hún á að vera það, en þá
má hún heldur ekki byggja hús sitt
á sandi, með því að vera kærulaus
um þau æðstu og dýrustu verðmæti,
er hún hefir eignast.
Það er verið að tala um alþjóða-
bandalag kvenna í þágu friðarins,
og er það hin brýnasta þörf. Eg
held að það sé ekki unt, að vinna á
annan hátt betur að málefni friðar-
ins, en með því að efla kristindóm-
inn. Allar kristnar kvenþjóðir
heimsins ættu nú að fylkja sér und-
ir merki friðarhöfðingjans, Krists,
og gefa gætur að hvað til friðarins
heyrir, á þessum tímum.
Þakklætisskuldin mikla, þörfin
fyrir hjálp, og trún og traustið á
sigurvissu málefni, ætti að knýja á
hjörtu allra góðra, hugsandi kvenna,
* * ♦
að ganga frarn’, til sóknar og varnar,
i baráttunni fyrir kristilegum heims-
frið, og byrja á sínum eigin heim-
ilum.
Vermireitur kristilegs lífs og
starfs verður fyrst og fremst að vera
heima. . Kona.
Morgunbl. 22. ág.
Er kristin trú að tapa
eða vinna ?
Iðulga hreyfirþessi spurning sér
hjá mönnum og verður svarið ýmist
neitandi eða játandi.
í þessu sambandi virðist ekki úr
vegi að minnast þeirra atburða,, seni
nú gerast meðal þjóðanna, vik eg
sérstaklega að orðum C. T. Wang.
Hann er kínverskur að uppruna, og
talinn ágætismaður og mentaður vel.
Hann segir á þessa leið:
Eg tel það hrósvert fyrir þjóð
mína að hafa áunnið heilhuga hlut-
tekt annara þjóða á hennar örðugu
framsóknarbraut, en ágætara er þó
það, að Kristur er að vinna sér fylgi
í huga og hjörtum landa minna. Það
er öhætt að trúa þvi sem raunveru-
legum sannleik, að fótspor frelsar-
ans eru á hverri stundu að verða
skírari. Er þetta merkilegt vegna
þess sérstaklega, að ótal trúarbrögð
hafa átt sér formælendur löngu áð-
ur en kristin kenning barst þjóðinni.
Fransiscan munkar komu þar við
land 1307 og Robert Morrison af
hálfu mótmælenda 1807. Búddistar
komu hingað 25 árum fyrir fæðingu
Krists, og Lao-Tze nálega 600 árum
fyr og Confucius um líkt leyti.
Mencius boðaði trú sína 1600 árum
fyrir komu Fransicana munkanna.
Þegar kristin trú loksins barst til
landsins, virtist lítill möguleiki á því
að henni gæti orðið mikið ágengt.
Iðulega var sagt við hina fyrstu
kristnu trúboða: “Þið getið ekkert
áunnið hér og getið ekki sigrast á
þeim öflum, sem fyrir eru.”
9
Við bárum þennan fámenna hóp
saman við miljónirnar mörgu, feng-
um við naumast varist brosi, og
sögðum við menn þessa: Enginn
má við margnum. Vð ráðleggjum
ykkur að halda heim hið bráðasta og
hugsa ekkert til starfs hér.”
Hinn fámenni hópur lét ekki telja
sér hughvarf. Saga þeirra hér-
lendis líkist ýkjufullri skáldsögu.
Enginn heilsýnn maður getur neitað
þeim vaxandi áhrifum, sem þessi
Htli hópur hefir komið til leiðar. Ein-
hver hin stórkostlegasta hreyfing,
sem hefir átt sér stað á síðari tímum
er farin að gerbreyta hugsunarhætti
og lifnaðarháttum hinnar kinversku
þjóðar. Hreyfing þessi gengur und-
ir nafninu: “Hreyfing hins nýja
lífs.” I þessu sambandi eru hin
kristilegu áhrif mjög áberandi, enda
varð ‘hreyfingu þessari hrundið af
stað fyrir kristileg áhrif. Nokkrir
kristnir menn eiga sæti í stjórn
landsins og hafa þeir að hlutföllum
afar mikil áhrif.
Eftirtektarverð eru hin kristilegu
áhrif á f jármálin. i Margskonar
byrði hefir verið létt af lítilmagnan-
um, bændur sem urðu að taka lánsfé
guldu frá 30 til 100 af hundraði í
rentu; nú er vanagjald 3—4 af sörnu
upphæð hlutfallslega. Bændasam-
tökin eru talandi vottur um áhrif
kristinnar trúar.
Hin heillavænlegu áhrif er sjáan-
leg í trúarlegri fullvissu, í staðinn
fyrir kenningar þær og hindurvitni,
sem hin flóknu hjátrúarkerfi höfðu
á boðstólum. Trúin á allskonar ó-
vætti verður að rýma fyrir ljósi
kristindómsins, og hindurvitni .mörg
og almenn líða undir lok, eftir því
sem kristin trú ryður sér til rúms,
og áhrif hennar meir áberandi með
ári hverju.
Þá er vert að minnast hreyfingar-
innar í Bandarikjunum, sem gengur
undir nafninu: “The National
Preaching Mission.”
Áttatíu úrvals prédikarar úr
Bandaríkjunum og víðar að skiftu
með sér verkum á liðnu ári og heim-
sóttu helztu staði.
Sá, sem skýrir frá starfinu segir á
þessa leið:
“Ef þú heldur að kristindómurinn
sé búinn að sjá sitt fegursta, og að
guðsríki hafi fluzt í fjarlægð utan
vébanda veraldarinnar, hefðir þú
haft gott af því að vera staddur
suður í Philadelphia einn sunnudag
á síðastliðnu hausti. Þar hefðir þú
litið tuttugu þúsund manns, sem kom
* þar saman til bænafundar.
Eða ef þú hefðir verið til staðins
í New York, þegar starfsmenn þess-
ir hófu starf sitt þar og sjá nítján
þúsund manns samankomna.
Slæpingja einurn varð að orði:
“Hvaða stórtíðndi standa nú til?
Eru menn að horfa á hnefaleikara
eða eitthvað því um líkt?”
“Nei,” svaraði einhver, “Guð er
hér á ferð.”
Það verður haldið uppteknum
hætti á þessu ári, og með svipuðu
fyrirkomulagi. Aldrei í sögu þessa
lands hafa jafnmargar kirkjudeildir
tekið þátt í hreyfingu þessari eins
og nú. Allir voru fundirnir svo f jöl-
sóttir, að menn komust iðulega ekki
að til að fá sæti, og einlægur frjáls-
leiki ríkti á öllum stöðum.
Einn af þeim, sem tók mikinn þátt
í starf inu lét svo um mælt: “Það eitt
var augljóst hvar sem við komum,
að menn hungrar og þyrstir and-
Rga.”
Ræðum þessara prédikara var út-
varpað um land alt, og þrjú hundr-
uð aukafundi varð að halda til þess
að sinna þeim, sem ekki komust að á
annan hátt, og víða talað undir beru
lofti. Fundir tileinkaðir ungu fólki
voru og víða haldnir, og fundir sem
voru tileinkaðir ýmsum starfsmönn-
um og skrifstofumönnum, var ávalt
húsfyllir á öllum stöðum.
Kostnaðurinn við starf og ferða-
lög þessara manna varð um $60,000
og kom það fé alt inn með frjálsum
samskotum.
Ekki er hægt að svo komnu að
bera mælivað á þau.áhrif, sem starf
þetta kann að hafa; engum getur
blandast hugur um það, að þau
hljóta að verða rnikil og góð. Það
að þessi hreyfing er svo öflug og
víðtæk virðist þó benda til þess, að
afl er nóg, ef á er tekið. Sýna það
meðal annars smá atvik, sem komu
fyrir á ferðalagi þessu.
Maður nokkur kom til eins pré-
dikarans og sagði: “Eg hlustaði á
þig í gærkvöldi, reyndar ætlaði eg
mér ekki að gera það, þvi eg hafði
ásett mér að fara rakleiðis til að
drekkja mér, en þegar eg hlustaði á
ræðu þína, snerist mér hugur, og nú
sé eg tilgang eigin lífs.”
Tvær ungar stúlkur í Kansas City
skrifuðu miða til Stanley Jones, sem
var einn af ræðumönnunum, og
heimsfrægur maður.
“Hafir þú nokkur huggunarorð
að flytja tveimur ungum stúlkum,
sem ganga nú á háskóla, en sjá enga
þýðngu fyrir lifi sínu og hafa ásett
sér að stytta sér aldur, þá biðjum
við þig að segja það.”
Stanley Jones f lutti svo erindi sitt,
hafandi í huga orð þessara stúlkna,
sem ekki létu nafns síns getið.
Komu þær svo seinna til hans og
kváðust svo hafa skipast við ræðu
hans, að þær ætluðu sér hér eftir að
helga Kristi lif sitt og að feta í hans
fótspor.
I St. Louis kom það fyrir þegar
prédikararnir fóru þaðan, að reynt
var til þess að fá þá til að vera leng-
ur. Borgarstjórinn í St. Louis hafði
þau ummæli, að “ef þið gætuð verið
hér eina viku enn, mundi eg ekki
þurfa neina löggæslumenn, Lög-
regluþjónarnir og dómárarnir gefa
þær skýrslur, að glæpalifnaður hafi
stórum minkað meðan þið voruð hér
og öll regla um umferð um stræti
borgarinnar miklu auðveldari þessa
fjóra daga, sem þið eruð búnir að
vera hjá okkur.”
Það sem nú hefir verið tekið fram
er aðeins sýnishorn af því, sem gerist
um allan heim.
Á íslandi er sterk hreyfing í garð
kristirinar trúar. Stjórn Rússa er i
öngþveiti út af því, að geta ekki út-
rýmt kristindómi úr landinu. Hitler
situr með sáran skallann af sömu á-
stæðu og likar illa hvernig gengur
að koma að hinni fornu ásatrú.
N. Y. C.
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man...............B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota...........B. S. Thorvardson
Árborg, Man...............Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man.................Sumarliði Kárdal
Baldur, Man...............................O. Anderson
Bantry, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash. .........Arni Símonarson
Blaine, Wash. .............Arni Símonarson
Bredenbury, Sask. ...............S. Loptson
Brown, Man. .....................J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakota.......B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask................S. Loptson
Cyþress River, Man........................O. Anderson
Dafoe, Sask..................J. G. Stephanson
Edinburg, N. Dakota........Jónas S. Bergmann
Elfros, Sask........Mrs. J. H. Goodmundson
Foam Lake, Sask..........J. J. Sveinbjörnsson
Garðar, N. Dakota...........Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask......................C. Paulson
Geysir, Man...............Tryggvi Ingjaldsson
Gimli, Man.....................F. O. Lyngdai
Glenboro, Man.............................O. Anderson
Hallson, N. Dakota ....’þ.S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man........Magnús Jóhannesson
Hecla, Man................Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota.......................John Norman
Husavick, Man..................F. O. Lyngdal
Ivanhoe, Minn.......................B. Jones
Kandahar, Sask...............J. G. Stephanson
Langruth, Man...........................John Valdimarson
Leslie, Sask.............................Jón Ólafsson
Lundar, Man...............................Jón Halldórsson
Markerville, Alta..........................O. Sigurdson
Minneota, Minn......................B. Jones
Mountain, N. Dak............S. J. Hallgrímson
Mozart, Sask.............J. J. Sveinbjörnsson
Oak Point, Man.................A. J. Skagfeld
Oakview, Man..................Búi Thorlacius
Otto, Man................................Jón Halldórsson
'Point Roberts, Wash........... .S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta.................O. Sigurdson
Reykjavík, Man.................Árni Paulson
Riverton, Man...........................Björn Hjörleifsson
Seattle, Wash. .................J. J. Middal
Selkirl^, Man............................Th. Thorsteinsson
Siglunes P.O., Man.........Magnús Jóhannesson
Silver Bay, Man..........................Búi Thorlacius
Svold, N. Dak.............B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask...............J. Kr. Johnson
Upham, N. Dakota.........Einar J. Breiðfjörð
Viðir, Man...............Tryggvi Ingjaldsson
Vogar, Man.............................Magnús Jóhannesson
Westbourne, Man..........................Jón Valdimarsson
Winnipegosis, Man......Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beadh.................F. O. Lyngdal
Wynyard, Sask...............J. G. Stephanson