Lögberg - 02.12.1937, Síða 1

Lögberg - 02.12.1937, Síða 1
50. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 2. DESEMBER, 1937. NÚMER 48 MR. JOHN QUEEN, M.L.A. Hinn nýkjörni borgarstjóri í WiHnipeg Tíu ára afmæli ' Mentaskólans á Akureyri 1 gær mintist Mentaskóli Akur- eyrar þess að liðin voru io ár frá þvi þáverandi kenslumálará'Öhera, Jónas Jónsson veitti skólanum rétt til þess aÖ brautskrá stúdenta, en kensla til stúdentsprófs var þá kom- in á i skólanum. AfmælishátÖ þessi fór þannig fram, aÖ útvarpað var’bæði ræðum og söng, en ræðumenn og söngmenn voru bæði á Akureyri og i salar- kynnum útvarpsins hér. Samkoma var fyrir norðan í samkomuhúsi Akureyrar. Þar voru kennarar, nemendur og starfsmenn skólans og gestir þeirra. Brynleifur Tobíasson setti sam- komuna fyrir norðan, en næstur hontrm talaði Sigurður Guðmunds- son skólameistari um stefnu skólans og markmið. Þá töluðu þeir hér syðra Haraldur Guðmundsson og Jónas Jónsson, en síðan nyrðra Brynleifur, er rakti sögu hins norð- lenska skóla alt frá því að byrjað var að undirbúa stofnun þessa, arf- taka Hólaskóla. Síðan talaði Árni Jónsson nem- andi í 6. bekk skólans, en hér syðra Benedikt Tómasson, en Ragnar Jó- hannesson fldtti skólanum kvæði. Hér söng M. A.-kvartettinn, en skólasöngflokkur Björgvins Guð- mundssonar söng nyrðra. Síðast talaði Sigurður Guðmundsson skóla- meistari, þakkaði m. a. hlýjar kveðj- ur til skólans og hans sjálfs. Frá Islandi Ferðafélag Isla/nds Það var stofnað 27. nóv. 1927 og er því senn tiu ára gamalt. Hefir starfsemi þess frá upphafi verið hin merkasta og þarf ekki því að lýsa. En merkastar eru þó sæluhúsbygg- ingar félagsins. Hefir hið ágæta hús þess-við Hvítárvatn veitt mörg- um skjól og þæga hvíld. Tvö ný sæluhús verða tilbúin á næsta sumri: Annað á Hveravöllum, hitt við Kerlingarfjöll undir Hofsjökli. Tala félagsmanna er um 1500. Það er að vísu all-álitlegt, en stjórn félagsins væntir þess, að 2000 verði þeir orðnir á tíu ára afmælinu. Með 2000 meðlimum, góðum og gildum, rnundi félagið verða þess um komið, að reisa eitt sæluhús árlega.— Árbók félagsins 1937 er nú út komin fyrir nokkuru. Skýrir hún í löngu máli “Lönd og leiðir í Aust- ur- Skaftafellssýslu.” Jón Eyþórsson hefir séð flm út- gáfuna, en margir hafa lagt þar hönd að verki. Eiríkur klerkur Helgason lýsir Öræfum, Mýrum og Nesjum, en Suðursveit Steinþór bóndi Þórðarson i Hala. Um Lón og Norðingaveg ritar Sigurður bóndi Jónsson í Stafafelli. Bræður tveir á Fagurhólsmýri,. Helgi og Sigurður, hafa og lagt til ritaðar heimildir um Öræfi, Breiðamerkur- fjall og Mávabygðir. Kveðst J. E. hafa “skeytt þessa þætti saman,” þ. e. “lýsingar” hinna áður nefndu höfunda, numið'af eða aukið við, eftir því sem betur þótti fara. Sum- staðar hafi hann og “bætt ný-jum köflum inn i.” — Og fyrir því sé ekki “unt að draga greinilegar merkjalínur milli þess, sem hver einstakur hefir lagt til bókarinnar.” Margar ágætar myndir prýða “Ár- bókina.’ ’ Þeim hefir safnað Stein- þór Sigurðsson. Hann hefir og ráðið mestu um myndaval, með þeim Pálma Hannessyni og Gísla Gests- syni. Hér verður ekki út í það farið, að meta verk þeirra höfunda, sem ritað hafa “Ánbókiria” að þessu .sinni. Lýsingar á “landi og leiðum” virðast einkar nákvæmar, en ef til vill óþarflega margorðar á sumum stöðum. Fer betur á því, að höfund- ur varist mærð og málalengingar í sMkum lýsingum. Smekkleysa er það af lakasta tæi, er farið er að “punta upp á” Suður- sveitina með því, að láta þess getið, að þar (á efsta bænum, Hala) sé “Þórber^ur Þórðarson borinn 'og barnfæddur!” Er vant að sjá, hvert erindi slík “tilkynning” getur átt til lesenda Árbókarinnar. Þá mun og ýmsum þykja furðu- mikið tré það, sem skýrt er frá að borist hafi á rekafjöru Kálfafells- staðar, laust fyrir aldamótin síðustu. Það var svo ótrúlega mikið, að því er “Árbók” hermir, “að úr því var bygt (sem nú er) á Kálfafellsstað, og nokkru af trénu var auk þess varið til viðgerðar á kirkjunni.” Má því öllum ljóst vera, að sitt hvað merkilegt getur við borið i Suðursveit — við f jöll og sæ! Útvarpið að norðan gekk stór- slysalaust, nema hvað upphaf að tveim ræðum fór forgörðum. Mjög sýndu ræðumenn, í hv? miklum metum norðlenski menta- skólinn er, og hve miklar vonir eru við hann tengdar. í ræðum þeirra Sigurðar skólameistara og Brynleifs kennara kont það greinilega í ljós, að forráðamenn skólans beina starfi sínu einbeittlega að því að sporna gegn öfgum og óbilgirni í þjóðfé- laginu. Er vel þegar skólamenn taka djarflega upp það merki. —Morgunbl. 30. okt. * * * Loðdýralánádeildin og starfsemi hennar Landbúnaðarráðuneytið hefir birt tvær reglugerðir varðandi Loðdýra- rækt, aðra um loðdýrarækt alment og hina um Loðdýralánadeild Bún- aðarbanka Islands. — í sambandi við það hefir blaðið átt viðtal við aðalbankastjóra Búnaðarbankans, Hilmar Stefánsson, og spurst fyrir um störf þessarar nýju lánadeildar. —Hve mikið verður lánað og hve- nær hefjast útlán? —Heimilt er að lána alt að 100 —Vísir 28. nóv. * # * The Men’s Club of the FIRST LUTHERAN CHURCII announce that their next meeting will be held on Mon- day, December 6th, at 8:15 p.m. The guest speaker will be Dr. Sidney E. Smith, M.A, L.L.D., D.C.L., President of the University of Manitoba. Because of the significance of the occasion the executive have ex- tended a cordial inyitation not only to all members of the congregation and their friends, but to the general public, to attend this meeting. The “well-rounded-out” program will be followed by a reception in the church parlors. The program will be as follows: L O Canada. 2. Solo—Mrs. Lincoln Johnson. 3. Introduction of the Guest Speaker—Mr. H. A. Bergman, K.C. , 4. Address: “Peace and Democracy”— Dr. Sidney E. Smith, M.A., L.L.D., D.C.L., President, University of Manitoba. 5. Vote of thanks to Guest Speaker— J. G. Johannson. 6. Solo—Mr. Frank Haldorson. x 7. Reception—“Friendlv Hour” in church parl. Remember, this is an “open” meeting. Everybody is welcome ! þúsund krónur á ári hverju í fimm ár. . • Fé sjóðsins er 10 þúsund króna styrkur úr ríkissjóði árlega í 5 ár, en auk þess ábyrgist ríkissjóður alt að 100 þúsund krónur árlega í 5 ár. Samkvæmt lögunum má lána 40— 60 af hundraði af matsverði loð- dýragarðs — það er af samanlögðu matsverði dýr og girðinga—og fer um lánsfjárhæð meðal annars eftir því, hvort um verður að ræða ein- staklingsbú eða félagsbú, en ekki þarf að gera ráð fyrir að nokkru sinni verði lánað yfir 50 af hundraði af matsverði loðdýragarðs. Búist er við að útlán geti hafist um miðj- an næsta mánuð. —Og hvaða skilyrði setur bank- inn fyrir lánúeitingu til loðdýra- garðs ? —Lán til loðdýragarðs fær enginn fyr en loðdýragarður sá, er veð- setja á, er að fullu kominn upp, og fyrir liggja veðbókarvottorð og vottorð ráðunauts um garðinn og til þess að lánsskjöl séu í lagi, ef um> samvinnubú er að ræða, verður fé- lagið að vera stofnað samkvæmt lögum um samvinnufélög og lög- skráð. Veðbókarvottorð viðkom- kandi sýslumanns og ráðunauts fylgi einnig að sjálfsögðu. —Hversu hátt verða svo dýrin metin og hversu fer ef ekki verður staðið i skilum? —Mat dýra ákveður lánveitandi og ráðunautur á hverjum tíma, og mun þar verða farið lítð eitt upp fyrir skinnaverð. Beztu dýr verða sennilega ekki metin hærra til lán- lölui en 300-61 4XX) krónur og- lakari dýr þaðan af minna. Eftir því ætti lán til bús með f jórum fyrsta flokks silfurrefum að verða 600 til 700 krónur, auk láns út á girðingar, en hvað viðvíkur girðingunni, verður sennilega lítið tillit tekið til annars en aðkeypts útlends efnis og vinnu kunnáttumanna, ef um verður að ræða. Verði vanskil verður fyrst gengið að búinu. Nægi það ekki til fullrar greiðslu láns, er lántakandi, svo sem venja er til, skuldbundinn persónu- lega fyrir eftirstöðvum og yerður hann að greiða þær. Að lokum kvað bankastjórinn lán ekki verða veitt að þessu sinni, öðr- um en þeim, sem búa á f járpestar- svæðinu og þá fyrst þeim, sem, orðið hafa fyrir mestu tjóni af völdum Miss THELMA GUTTORi\!SON Miss Guttormson, vann eins og kunnugt er Matthews Scholarship, ekki alls fyrir löngu. 'Nú hefir hún lokið fullnaðarprófi, A.T.C.M. við hljómlistardeild Manitoba háskólans, sem “Solo Performer” í píanóspili, með ágætis einkunn. Einnig hefir hún hlotið L.R.S.M. stig frá Royal Schools of Music í London. Má þetta kallast vel að verið, og er vin- um hennar og velunnurum það hið mesta ánægjuefni. Miss Guttormsson er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Björn Guttormson að 987 Minto Street, og þar hefir hún kenslustofu sína. Símanúmer henn- ar er 30974. MR. PAUL BARDAL. Við bæjarstjórnarkosningar, sem fram fóru hér í borg á föstudaginn, var Mr. Bardal endurkosinn í 2. kjördeild með svo miklu afli at- kvæða, að hann hafði á annað þús- und umfram þá hlutfallstölu, sem til þess þurfti að ná kosningu. veikinnar.—Timinn 3. nóv. # # # Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 var háð á Akueyrir dagana 16. og 17. okt. r937- Á þinginu mættu 28 fulltrú- ar frá 9 stúkum og :hik þess margir aðrir templarar. Að þinginu loknu var haldinn almennur templara- fundur og fluttu þeir þar erindi: Brynleifur Tobíasson og Pétur Sig- urðsson. Á þinginu voru m. a. eftirfarandi tillögur samþyktar: 1. Löggæslunefnd Umdæmisstúk- unnar nr. 5 á Akureyri og Áfengis- varnanefnd Akureyrar hafa kornið sér saman um að leggja eftirfarandi tillögur fyrir hustþingið 1937: a) Að skora á Alþingi og ríkis- stjórn, að breyta núgildandi áfengis- lögum í það horf, að öllum kaup- stöðum sé veittur sami réttur og öðr- um lögsagnarumdæmutn landsins, til þess að ákveða sjálfir, hvort áfeng- issala skuli leyfð innan þeirra vé- banda. b) Að það ákvæði verði sett inn í gildandi áfengislöggjöf, að enginn einstakur maður, hvort sem er í heimahúsum eða annarsstaðar, megi hafa meira en 2 lítra af áfengi i vörslum sínum í einu. c) Að enginn, hvorki félög eða einstaklingar, hafi leyfi til að halda samkomur, hvort sem er í sveit, kaupstöðum eða kauptúnum, nema að maður með lögregluvald sé á staðnum til eftirlits með því, að á- íengi sé ekki um hönd haft, sem leitt geti til ölvunar eða óspekta. Vanræksla í þessu efni varði rétt- indamissi til samkomuhalds um lengri eða skemri tíma. d) Þingið felur framkvæmdar- nefnd sinni, að leita eftir samvinnu við ungmennafélögin í Norðlend- ingaf jórðungi, og hvetja þau til að gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að hafa; m. a. með opinber- um: umræðufundum um bindindis- og menningarmál, áhrif i þá átt, að ölvaðir menn verði útilokaðir frá öllu opinberu samkomuhaldi. Samþyktar tillögur frá ýmsum fulltrúum: 1. Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 skorar á Alþingi að veita á næstu fjárlögum a. m. k. 30 þús. kr. til Stórstúku íslands til bind- indisstarfsemi. 2. Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 skorar á ríkisstjórnina, að gera það að skilyrði fyrir sérleyfisveit- ingu til fólksflutninga, að sérleyfis- hafi flytji ekki ölvaða menn í bif- reiðum sínum, ennfr. að. banna stranglega reykingar í slíkum bif- reiðum. 3. Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 skorar á Alþingi og ríkisstjóm- ina, að veita á næstu f járlögum ríf- legan styrk til byggingar og starf- rækslu sjómannaheimilisins á Siglu- firði.—Dagur, 28. okt. # # # Bandaríki Norðurlanda Bók Wenner-Grens, forstjóra (sem gaf 30 milj. króna til eflingar samvinnu Norðurlanda) um sam- vinnu norrænna þjóða, er nú komin út í bókaverzlanir í Sviþjóð, Dan- mörku, Noregi og Finnlandi. I bók þessari stingur Wenner- Gren upp á því, að Norðurlönd skipuleggi með sér félagsskap, sem í ýmsum aðaldráttum sé sniðinn eft- ir hinu breska ríkjasambandi, þann- ig, að hvert ríki hafi sjálfstæði sitt óskert, en standi þó í náinni sam- vinnu við öll hin um ýms mál, þar á meðal verzlunarsamninga, utanrík- ismál og landvarnir. Wenner-Gren telur, að með þess háttar félagsskap Norðurlandaríkj- anna megi þoka hugsuninni um Bandaríki Evrópu eitt skref áleiðis. —Mbl. 30. okt. ÁRSFUNDUR FYRSTA LÚTERSKA SAFN.. var haldinn í kirkjunni á þriðjudags- kveldið var við feykilega aðsókn. í fjarveru forseta, Dr. B. J. Brand- sons, sem verið hefir lasinn um hríð, gegndi varaforseti, Mr. A. C. John- son, forsetastarfi. Skýrslur frá öll- um deildum safnaðarins voru lesnar upp og samþyktar; báru þær allar vott um aukið athafnalíf og þroska. Eftirgreindir menn voru kosnir í stjórn sfnaðarins: Dr. B. J. Brandson, A. C. John- son, Fred Thordarson, S. W. Mel- sted, Jim Snidal, G. F. Jónasson, J. G. Johannson, Th. Stone, Albert Wathne, J. J. Vopni. Jljáknanefnd: J. J. Swanson, S. O. Bjerring, Miss Thea Hermann, Miss Vala Jónasson, B. Baldwin, Miss Guðrún Bíldfell, Mrs. B. Nicholson, Mrs. K. J. Backman, B. J. Johnson. Yfirskoðunarmenn: H. J. H. Palmason, Paul Bardal. Þann 11. ágúst næstkomandi á söfnuðurinn 60 ára afmæli, og verð- ur nefnd til þess að undirbúa hátíða- hald í þvi tilefni, kosin á safnaðar- fundi, sem kvatt verður til með það fyrir augum. ARSFUNDUR Liberál samtakanna í Mið- I Vinnipeg kjördæminu hinui nyrðra. Fundur þessi fór fram í Music and Arts byggingunni síðastliðið þriðjudagskvöld við afarmikla að- sókn. Skýrslur allar í góðu lagi og afgreiddar í einu hljóði. Til heiðursforseta voru kjörnir þeir Rt. Hon. W. L. Mackenzie King, Hon. T. A. Crerar og Mr. W. J. Lindal, K.C. Til forseta var kosinn Mr. Paul Bardal, bæjarfulltrúi, en að vara- forseta, Mr. W. S. Melsted. RANNSÓKNARNEFND TEKUR TIL STARFA iKonunglegá rannsóknarnefndin, undir forustu Rowells dómsforseta í Ontario, er á að kynna sér fjárhag fylkjanna og fjárhagslega afstöðu þeirra til sambandsstjórnar, er nú sezt á rökstóla hér í borginni; hafa þegar verið haldnir f jórir fundir. Úr borg og bygð Dr. Rögnvaldur Pétursson flytur fyrirlestur um Islandsför sina og Is- land, í Sainbandskirkjunni þann 2. þ. m. kl. 8.30 að kveldi. Búast má við miklu fjölmenni. Dr. Pétursson endurtekur þetta erindi i kirkju Quill Lake safnaðar í Wynyard þann 4. þ. m.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.