Lögberg - 02.12.1937, Page 7
LÖOBERG, FIMTUDAGINIS 2. DESEMBER, 1937.
7
Fundur Eldorado
Eftir Stephan Zzveig. '
Þreyttur á Evrópu.
1834.—Ameríkuskip siglir frá Le
Havre til New York. MeÖal margra
æfintýramanna um borð, einn meðal
margra hundraða, er maður sem
kallar sig John August Suter, frá
Rynenberg við Basel og er 31 árs.
Honum er um að gera að hafið
verði sem lengst rnilli hans og dóm1-
stólanna í Evrópu. Gjaldþrota,
þjófur og víxlafalsari er hann, hann
hefir skilið konuna og börnin þrjú
eftir forstöðulaus, logið s^r út pen-
inga í París út á falsað skjal og er
nú að leita að nýju hæli. Hinn 7.
júlí fer hann í land í New York og
í tvö ár rekur hann þar allskonar
mögulega og ómögulega atvinnu,
hann er pakkhúsmaður, uppþvotta-
strákur, tannlæknir, lyfsali og gest-
gjáfi. Um stund eirir hann til-
verunni, og setur upp veitingahús,
en svo selur hann það aftur og flyt-
ur — fylgir töfrastraumi þeirra
tíma og lendir í Missouri. Þar ger-
ist hann bóndi og græðist talsvert fé
á stuttum tíma. Þar hefði hann get-
að átt beztu æfi til frambúðar. En
í sifellu er fólk á ferð fram hjá bæj-
ardyrunum hans, skinnavörukaup-
menn, veiðimenn, æfintýramenn og
hermenn. Þeir koma að vestan og
eru á leið vestur og þetta orð vestur
fær töfrahreim í eyrum hans. Hann
veit að þar eru miklar sléttur, sléttur
með nautahjörðum', og þar ferðast
maður dag eftir dag án þess að hitta
nokkurn mann. Svo koma fjöllin,
há og geigvænleg og svo loksins
land, sem enginn veit deili á. Cali-
fornía, landið sem sögur fara af, hið
ríka og órannsakaða land, þar sem
alt flýtur í mjólk og hunangi, opið
hverjum sem vill------það er bara
svo fjarlægt, svo óendanlega fjar-
lægt, og lífshætta að komast þangað.
En John August Suter hefir æfin-
týrablóð i æðum. Hönum nægir
ekki að halda kyrru fyrir og rækta
jörðina. Einn góðan veðurdág árið
1837 selur hann alt sem1 hann á, ger-
ir út leiðangur með uxakerrum og
hestum og hverfur frá Fort Inde-
pendence inn i ókunna landið.
Ferðin til Californíu.
1838.—Ásamt tveimur liðsfor-
ingjum, fimm trúboðum og þremur
konum heldur Suter vestur prerí-
urnar miklu og loks yfir fjöllin til
Kyrrahafs. Þau eru þrjá mánuði
á leiðinni og loksins í október koma
þau til Fort Van Couver. Þá hafa
liðsforingjarnir tveir skilið við þau.
Trúboðarnir vilja ekki fara lengra.
En konurnar þrjár hafa sálast af
vosbúð á leiðinni.
Suter er aleinn. I Van Couver
reýna þeir árangurslaust að kyrsetja
hann, bjóða honum stöðu — hann
hafnar öllu. Hann er segulmagnað-
ur af nafninu dularfulla. Hann
flækist út á Kyrrahaf á hripleku
skipi, kemst alla leið til Sandwich-
eyja og eftir miklar þrautir heldur
hann aftur í austurátt og lendir ein-
hversstaðar á strönd Alaska, á ó-
bygðum stað sem heitir San Fran-
cisco — ekki borgin sem við þekkj-
um í dag, sem orðin er miljónaborg
síðan landskjálftann, nei, aðeins
ömurleg verstöð, heitin eftir Fran-
ciscusmunkunum og ekki einu sinni
höfuðstaðurinn í mexikanska hérað-
inu í Californíu, sem liggur þarna
forsómuð og auð á bezta bletta nýju
álfunnar.
Hér ríkir spánskt reiðileysi, alla
stjórn vantar, sífeld uppþot, vinnu-
tæki og fólk vantar, framtakssemi
til að ráðast í eitthvað vantar. Suter
leigir sér hest, ríður ofan frjósaman
Sacramentodalinn — eins dags leið
nægir til þess að sannfæra hann um,
að hér er ekki aðeins jarðnæði fyrir
eitt býli, stórbýli, heldur fyrir heilt
konungsríki. Daginn eftir fer hann
til Monte Rey. í þessari aumu höf-
uðstaðarnefnu gengur hann á fund
Alverado héraðsstjóra og skýrir
honum frá áformum sínum um
ræktun landsins. Hann hefir haft
'rneð sér “kanaka” frá Kyrrahafs-
eyjum, hann vill flytja þessa vinnu-
sömu menn í stórum stil til megin-
landsins, og hann skuldbindur sig
til að rækta landið og stofna þarna
ofurlítið ríki — Nýju Helvetiu.
—Hversvegna Nýju Helvetiu?
spyr héraðsstjórinn.
—Eg er Svisslendingur og lýð-
veldissinni, svarar Suter.
—Jæja, gerið þér það sem þér
viljið. Eg skal gefa yður einkaleyfi
til tiu ára.
Þar vestra þurfa þeir ekki langan
tíma til að gera kaup. Þegar mað-
urinn er kominn þúsund mílur frá
allri siðmenningu er verðlagið ann-
að á orku hans en hér heima hjá oss.
Nýja Helvetia.
!839. — Lestin mjakast áfram
meðfram Sacramentofljóti. Fremst
er Suter ríðandi með byssu um öxl,
næst honum koma tveir eða þrír
Evrópumenn, síðan 130 hálfnaktir
kanakar, svo þrjátíu uxakerrur með
vistir, útsæði og hergögn, 50 hestar,
75 málasnar, kýr og kindur, og svo
nokkuð af fygliliði. Þetta er herinn,
sem ætlar að leggja undir sig Nýju
Helvetiu.
Framundan þeim æðir stórkostlegt
éldský. Þeir kveikja í skógunum,
það er auðveldasti mátinn til að
ryðja þá. Og undir eins og risalog-
inn hefir eytt landið byrja þeir að
rækta, áður en rokið er úr trjárót-
unurn. Þeir byggja hlöður, grafa
brunna, sá í landið, sem ekki þarf
að plægja, reisa girðingar fyrir
hjarðir sinar. Smámsaman koma
fleiri landnemar úr yfirgefnum trú-
boðanýlendunum.
Árangurinn er stórkostlegur.
Fyrsta árið uppskera þeir 500-falt.
Hlöðurnar verða of litlar, búfénað-
urinn skiftir bíátt þúsundum og
þrátt fyrir áframhaldandi örðug-
leika — viðureignina við hina inn-
fæddu, sem sifelt eru að ráðast á
þá — gerist Helvetia fyrirmyndar
nýlenda. Þarna grafa þeir skurði,
reisa myllur og verksmiðjur, en
prammar ganga upp og ofan ána.
Suter sér ekki aðeins Van Couver og
Sandwicheyjum fyrir matvælum,
heldur einnig öllum skipum, sem
koma við í Californiu. Hann ræktar
aldini — kalifornisku aldinin, sem
nú eru orðin svo víðfræg. Hann
fær sér vínvið frá Frakklandi og úr
Rínardal — hann þrífst. Eftir
nokkur ár veru víðlendar ekrur al-
þaktar vínviði. Hann byggir sjálf-
um sér höll, útvegar sér pianó frá
París úr 180 dagleiða fjarlægð og
gufuvél fær hann frá New York —
60 uxar draga hana vestur yfir þvera
Ameríku. Hann hefir tiltrú og á
innstæðu í stærstu bönkunum í Eng-
landi og Frakklandi, og nú — 45
ára gamall — á hátindi frægðarinn-
ar, minnist hann þess, að fyrir
fjórtán árum skildi hann eftir konu
sína og börn alein einhversstaðar
austur í gömlu veröldinni. Hann
skrifar þeim og biður þau að koma
til sín, í riki sitt. Því að nú er
hann mikill, hann er drotnandi Nýju
Helvetiu, einn af ríkustu mönnum
heiimsins. Og nú hafa Bandaríkja-
inenn náð hinni vanræktu nýlendu
úr greipum Mexikó. Nú er alt trygt.
Eftir nokkur ár er Suter orðinn rik-
asti maður i heimi.
örlagarík skóflustunga.
1848.—Þá gerist það, að James
W?. Marshall timburmaður Suters
kemur einn góðan veðurdag vaðandi
inn á skrifstofu Suters eins og
þrurna úr heiðskiru lofti — hann
verður að fá að tala við hann undir
eins. Það er ekki lengra en síðan í
gær að hann sendi Marshall upp á
býlið við Coloma til þess að setja
þar upp sögunarmyllu. Og nú er
maðurinn kominn aftur í leyfisleysi,
hann stendur þarna fyrir framan
hann, titrandi af hugaræsingi og af-
læsir hurðinni eftir sér — svo tekur
hann hnefafylli af sandi með gyltum
kornum upp úr vasa sínum. I gær,
þegar hann var að grafa tók hann
eftir þessum einkennilega gylta
málmi. Hann heldur að þetta hljóti
að vera gull, en veit það ekki með
vissu. Hinir hafa hlegið að honum,
þegar hann sagði það. Suter verður
alvarlegur á svipinn, hann hreinsar
gyltu kornin úr sandinum — það er
gull. sþlann einsetur sér að riða upp
eftir tneð Marshall undir eins dag-
inn eftir, en gullæðið sem bráðlega
gagntekur veröldina hefir þegar
gagntekið Marshall — hann ríður
uppeftir undir eins sama kvöldið í
ófæru veðri. Hann þyrstir í viss-
una.
Morguninn eftir kemur Suter til
Coloma. Þeir hlaða fyrir ána og
rannsaka sandinn. Þeir fá sér siju
og hrista hana og gullkornin verða
eftir, glóandi á dökku netinu. Suter
kallar saman hvítu mennina og lætur
þá vinna drengskaparheit að því að
þegja, þangað til sögunrmyllan sé
komin upp. Svo ríður hann alvar-
legur og ákveðinn heim til sin. Stór-
kostlegar hugsanir byltast í honum.
Svo langt aftur í tímann sem hann
þekkir hefir gull aldrei fundist á
svona aðgengilegum stað. Og þetta
land á hann sjálfur, hvern einasta
þumlung. A einni nóttu — í stað
tíu ára — varð John Suter ríkasti
maður veraldarinnar.
Gullœðið. \
Ríkasti maður heimsins> — Nei,
sá fátækasti, aumkunarverðasti og
vonsvikn'asti betlari á jörðinni. Eft-
ir átta daga er leyndarmálið komið
upp. Kona — altaf ko'nan ! — hefir
trúað manni fyrir þessu og gefið
honum nokkur gullkorn. Og nú ger-
ist það, sem ekki átti sér nokkurt
fodæmi. Verkamenn Suters ganga
undir eins úr vistinni. Smiðurinn
hleypur frá smiðjunni, smalarnir frá
fénu, vínyrkjumennirnir frá berjun-
um, allir eru orðnir tryltir, þeir ná
sé í skaftpotta og síjur og þyrpast
upp að myllunni til þess að ná í gull.
Á einni nóttu er öll sveitin orðin
tóm. Kýrnar baula, en enginn
mjólkar þær, nautahjarðirnar mölva
niður girðingarnar og troða niður
akrana. Aldinin skemmst, mjólkur-
húsið er Iokað, hlöðurnar hrynja, öll
hjól fyrirtækisins standa kyr. Sím-
inn flytur gleðiboðskapinn land úr
landi og undir eins kemur fólkið,
sjómennirnir ganga af skipunum,
embættismennirnir flýj'a skrifstof-
urnar, fólkið kemur í endalausum
halarófum austan og sunnan, gang-
andi, riðandi, akandi — eins og
skriða, engisprettuhópur, gullgraf-
ararnir. Tryltur og Vfsafenginn
hópur, sem þekkir ekki önnur lög en
hnefans, sem ekki hlýðir annari skip-
un en skammbyssunnar, flæðir yfir
hina blómlegu nýlendu. Hann við-
urkennir engan yfirmann, engum
þýðir að nrögla gegn þessurn óalda-
lýð. Þeir drepa búfénað Suters,
rífa'hlöðurnar hans og byggja sér
kofa úr þeim, troða niður akrana
hans, stela vélunum hans — á einni
einustu nóttu er Suter orðinn bláfá-
tækur maður — kafnaðúr í sinu
eigin gulli eins og Midas.
Og hið ákafa sog að gullinu er
orðið enn æfintýralegra. Fréttin er
komin um allan heirn. Frá New
York einni fara 100 skip, frá Þýzka-
landi, Englandi, frá Frakklandi og
frá Sj>áni koma árin 1848, 1849,
1850 og 1851 hópar af æfintýra-
mönnum. Sumir sigla suður fyrir
Horn, en þetta er of löng leið fyrir
þá bráðlátustu og þeir leggja á
hættuleiðina yfir Panamaeiðið. Fé-
lag er stofnað í skyndi til þess að
léggja járnbraut yfir eiðið og þús-
und verkamenn týna lifi við þetta
starf, til þess að spara bráðlátum
^ullnemum tvær—þrjár vikur, svo
að þeir komist sem fyrst í gullið.
Yfir þvert meginlandið fara langar
lestir, fólk af ýmsu kyni og með alls-
konar tungumál, og allir grafa í
landi John Suters eins og þeir ættu
það sjálfir. Á grunni San Francisco,
sem samkvæmt bréfi stjórnarinnar
er eign Suters1 sprettur upp borg með
leifturhraða. Ókunnir menn selja
liver öðrutn eignir hans og nafnið
Nýja Helvetia, konungsríki hans,
hverfur fyrir töfrananfinu: Eldo-
rado, Californi'a.
Suter er orðinn gjaldþrota á ný
og starir lamaður á þetta drekasæði.
í fyrstu reynir hann að grafa sjálf-
ur og færa sér auðæfin í nyt með
vinnufólki sinu, en það fer alt frá
honum. Svo flýr hann á burt frá
gullsvæðinu og sezt að á litlu býli
uppi í fjöllum, langt frá bölvaðri
ánni og vanhelgaða sandinum. Þar
hitta kona hans og börn hann að lok-
um, en konan deyr skömmu eftir að
hún er komin. Ferðalagið hefir ver-
ið henni um megn. En nú eru synir
hans þrír hjá honum, átta hendur til
að rækta jörðina og enn kemur hann
fótunuTn' fyrir sig aftur, með seiglu
og iðni. Hann notar sér frjósemi
jarðarinnar. enn dreymir hann
stóra drauma.
Málaferlin
1850. — California er innlimuð í
Bándaríkin. Nú kernur strangur
agi og loks fer ástandið að lagast
eftir gullæðið. Stjórnleysið er hnept
í fjötra og aftur eru lög í landi.
Og nú kemur Johu August Suter
fram með kröfur sínar. Hann á alt
landið, sem borgin San Francisco
stendur á. Ríkið er skyldugt til að
bæta horium tapið er hann varð fyr-
ir, er eignum hans var stolið, og
hann heimtar sinn hluta af gullinu,
sein unnið er í landi hans. Og nú
hefjast stórfeldari málaferli en sög-
ur hafa farið af. John August Suter
stefnir 17,221 bónda, sem sezt hafa
að í landi hans og krefst þess að þeir
verði á burt aftur. Hann heimtar
25 miljónir dollara af rikinu fyrir
að það hefir slegið eign sinni á vegi,
skurði, brýr, stíflur og myllur, sem
hann hefir látið gera. Hann heimt-
ar 25 miljón dollara fyrir skemdir á
eignum sínum og auk þess bætur
fyrir gullið. Hann hefir látið elzta
son sinn nema lögfræði i Washing-
ton svo að hann geti flutt málið og
hann notar tekjurnar af búgarði sin-
um til þess að halda áfram málinu.
Á fjórum árum er það flutt fyrir
lægri og æðri réttum.
Dómurinn er loks kveðinn upp 15.
marz 1855. Dómarinn Thompson,
æðsti dómari Californiudikis viður-
kendi fullan eignarrétt John August
Suters á landinu.
Þann daginn er Suter við markið.
Hann er rikasti maður heimsins.
Útkoman.
Ríkasti maður heimsins ? Nei, og
aftur nei, fátækasti betlarinn, ó-
gæfusamasti maðurinn á jarðríki. Á
ný löðrungar armur örlaganna hann
svo, að hann nær sér aldrei aftur.
Eftir að fréttin um dóminn er komin
út fer alt í bál og brand i California.
Tugir þúsunda gera samsæri, lóða-
eigendurnir sem dómurinn gekk út
yfir, skríllinn á götunni, sem ávalt
hefir gaman af ráni og gripdeildum
þetta hyski gerir atlögu að dómhús-
inu og brennir það upp, leitar að
dómaranum til þess að gera út af við
hann og síðan til Suters til þess að
ræna hann aleigu sinni. Elsti son-
ur hans bjargar sér undan bófunum
með því að skjóta sig. Annar er
myrtur. Sá þriðji kemst undan á
flótta, en druknar á flóttanum.
Brennualda gengur yfir Nýju Hel-
vetiu. Býli Suters eru brend til ösku,
vínekrurnar troðnar niður, lausafé
hans öllu rænt, og nú er auðn eftir,
sem skríllinn hefir farið um. Suter
sjálfur kemst nauðulega lífs af.
Eftir það áfall nær hann sér
aldrei aftur. Verk hans er gereytt.
Kona hans og synir þrír eru dáin og
sjálfur er hann bilaður á geðsmun-
unum. í heila hans er aðeins ein
hugsun: rétturinn, málaferlin.
í tuttugu og fimm ár flækist gam-
all og tötralegur maður kringum
dómhúsið i Washington. Á öllum
skrifstofunum þekkir fólkið “gener-
alinn” í blettótta frakkanum og með
bættu skóna, manninn, sem heimtar
miljarðana. Og ávalt eru til sam-
vizkulausir lögfræðingar, sem svíkja
út úr honum síðustu eftirlaunin og
"hjálpa'’ honum með málaferlin.
Sjálfur vill hann ekki hafa peninga.
Hann hatar peninga, þeir hafa gert
hann fátækan, þeir hafa drepið
börnin hans og gerspilt lífi hans.
Hann krefst aðeins réttlætis og berst
fyrir réttlætinu, sínöldrandi og
kvartandi. Hann skýtur máli sínu
til öldungadeildarinnar, hann gerir
allskonar hjálparmenn að trúnaðar-
mönnum sínum og til þess að kóróna
verkið færa þeir hann í einkennis-
búning og fara með hann skrifstofu
af skrifstofu, og frá þingmanni til
þingm'anns. Svona gengur það i
tuttugu ár, frá 1860 til 1880, tuttugu
ára aumlegt betlaralíf. Dag eftir
dag fer hann á stjórnarskrifstofurn-
ar, er spott embættismannanna og
spé götustrákanna, hann — sem á
ríkasta land heimsins, sem annar
höfuðstaður heimsrikisins stendur á
og vex á hverjum klukkutíma. Hann
er látinn bíða. Og þarna, í stiganum
upp að öldungadeildinni fær hann
loksins lausnina 17. júlí 1880. Dauð-
ur betlari er borinn út. Dauður betl-
ari, en í vasa hans er ákærurit, sem
samkvæmt öllurn mannlegum lögum
tryggir honum og afkomendum hans
mestu tign, sent ntannkynssagan
kann að segja frá.
Enginn hefir hingað til gert kröfu
til arfs eftir John Suter, engir af-
komendur sannað kröfur sínar. San
Francisoo og alt nágrenni borgar-
innar stendur enn á ókunnum
grunni. —Fálkinn, 23. okt.
-----------------1 V
SÖNG-KVEÐJA
Jón gamil smiður hafði frelsast
á unga aldri. Snemma morguns
daginn sem hann varð 60 ára komu
nokkrir af félögum hans úr hernunt
og fóru að spila út fyrir húsinu hans.
Þeir sungu fyrst og spiluðu eitt lag,
því næst annað, en þegar þeir voru
að búa sig undir að taka þriðja lag-
ið, kom konan hans út á þröskuldinn
og sagði:
—Eg held að það sé ekki vert að
þið syngið meira, piltar, því hann
Jón minn fór til vinnunnar fyrir
klukkutíma siðan.
\
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man..............B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota...........B. S. Thorvardson
Árborg, Man..........................Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man................Sumarliði Kárdal
Baldur, Man..............................O. Anderson
Bantry, N. Dakota.......Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash............Arni Símonarson
Blaine, Wash................Arni Símonarson
Bredenbury, Sask.................S. Loptson
Brown, Man. ....................J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask...............S. Loptsön
Cypress River, Man........................O. Anderson
Dafoe, Sask.................J. G. Stephanson
Edinburg, N. Dakota.......Ijónas S. Bergmann
Elfros, Sask.......Mrs. J. H. Goodmundson
Foam Lake, Sask.........J. J. Sveinbjörnsson
Gárðar, N. Dakota..........Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask.....................C. Paulson
Geysir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson
Gimli, Man.....................F. O. Lyngdal
Glenboro, Man...................O. Anderson
Hallson, N. Dakota.......S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man.........Magnús Jóhannesson
Hecla, Man...............Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota........................John Norman
Husavick, Man.................F. O. Lyngdal
ívanhoe, Minn......................B. Jones
Kandahar, Sask...............J. G. Stephanson
Langruth, Man............................John Valdimarson
Leslie, Sask.............................Jón Ólafsson
Lundar, Man..................Jón Halldórsson
Markerville, Alta. ............O. Sigurdson
Minneota, Minn.....................B. Jones
Mountain, N. Dak...........S. J. Hallgrímson
Mozart, Sask............J. J. Sveinbjörnsson
Oak Point, Man.................A. J. Skagfeld
Oakview, Man..................Búi Thorlacius
Otto, Mari..................Jón Halldórsson
Point Roberts, Wash.............S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta................O. Sigurdson
Reykjavík, Man................Árni Paulson
Riverton, Man.........................Björn Hjörleifsson
Seattle, Wash. ................J. J. Middal
Selkirk, Man.............................Th. Thorsteinsson
Siglunes P.O., Man........Magnús Jóhannesson
Silver Bay, Man...........................Búi Thorlacius
Svold, N. Dak............B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask..............J. Kr. Johnson
Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð
Víðir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson
Vogar, Man...............Magnús Jóhannesson
Westbourne, Man.........................Jón Valdimarsson
Winnipegosis, Man.....Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach................F. O. Lyngdal
Wynyard, Sask..............J. G. Stephanson
THOSE WHOM WE SERVE ■
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS
BECAUSE-
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV-
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER
WE DELIVER.
COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE
WINNIPEG
PHONE 86 327