Lögberg - 23.12.1937, Síða 5

Lögberg - 23.12.1937, Síða 5
Fimmtíu Ára Minningarblað Lögbergs Tuitugasta og Annan Desember Nítján Hundruð Þrjátíu og Sjö 5 “Prentfélagi Nýja-íslands,” og tveir unnu að útgáfu hins fyrsta íslenzka blaðs hér í landi. “Það voru þeir Sigtryggur Jónasson, aðalstofnandi Framfara, Bergvin Jónsson, sem einnig hafði unnið að útgáfu hans, og Árni Friðriksson, sem verið hafði hluthafi í “Prentfélagi Nýja-ís- lands.’— Um þáttöku stofnenda Lögbergs i fyrirtækinu farast séra Friðrik J. Bergmann þannig orð : “Sigtryggur Jónasson mun hafa verið hinn eini þessara manna, sem nokkurt fé lagði af mörkum til að hleypa fyrirtækinu af stað. En þeir Einar Hjörleifs- son og Ólafur S. Þorgeirsson styrktu fyrirtækið með þvi að leggja til þess meira eða minna af kaupi því, sem þeim var ætlað, öðrum sem ritstjóra, hinum sem prentara. . . . Þeir af útgáfunefndinni, sem eigin- lega unnu nokkuð að blaðinu, voru þeir Einar Hjörleifsson, Ólafur S. Þorgeirsson og Bergvin Jónsson í viðlögum. Var Einar ritstjóri, en þeir prentarar.” (Almanak O. S. Thorgevrssonar, 1906, bls. 67-68). Af stofendum Lögbergs eru nú þrir einir á lífi, þeir Sigtryggur Jónasson og Bergvin Jónsson og Einar Hjörleifsson Kvaran. Einar Hjörleifsson (Kvaran) varð, eins og að ofan getur, fyrsti ritstjóri Lögbergs, en nokkru áður höfðu leiðir skilist með honum og Frimanni B. Anderson (Arngríms- son), útgefanda Heimskringlu. Var Lögbergi, og vestur-íslenzkri blaða- mensku í heild sinni, það ómetanleg- ur gróði, að Einar gerðist ritstjóri blaðsins og skipaði þann sess árum saman; þvi að það varð í höndum hans, eins og vænta mátti af jafn ritsnjöllum manni, hið prýðilegasta að rithætti og að sama skapi vandað og fjölbreytt að efni. Þá var vestur- íslenzkum menningar og þjóðrækn- ismálum ekki siður stórhagur að því, að Einar dvaldist og vann að rit- störfum áruin saman í Winnipeg. Hann var sívinnandi að því, að auðga sem mest andlegt líf landa sinna, þvi að honum lá þungt á hjarta framtíð þeirra í kjörlandi þeirra. Hann var bæði nógu vitur og víðsýnn til þess að sjá, að þeir yrðu að standa á gömlum merg ís- lenzkrar menningar, en lifa þó jafn- hliða og hrærast í hinu vestræna umhverfi og tileinka sér menningar- leg verðmæti þess. Um þessi efni fjalla fjölmargar Lögbergs-gvcmíW hans. (Sjá t. d. hinn gagnmerka fyrirlestur hans: “Hverfum við i sjóinn?” Lögberg 3. apríl — 22. mai 1899. Um dvöl Einars og störf vestra, má annars vísa til ritgerðar dr. Stefáns Einarssonar um það efni, “Þættir af Einari H. Kvaran,” Eimreiðin, júlí-september, 1937). Þó að svo héti i boðsbréfinu og í blaðinu framan af, að Lögberg stæði utan flokka, varð það áður langt um leið, formælandi ákveðinnar lands- mála- og trúmálastefnu, enda hafði skoðanamunur í þeim málum bein- línis átt aðalþátt i stofnun blaðsins. í stjórnmálum hefir Lögberg jafnan aðhylst stefnu frjálslynda flokksins (Liberal Party) í Kanada. Fram eftir árum fylgdi það einnig lýð- veldismönnum (Republicans) i Bandaríkjum að málum, en í seinni tíð hefir brugðið til beggja skauta um afstöðu blaðsins í þeim efnum, eftir því sem ritstjórarnir hafa litið á þau. f trúarefnum hefir Lögberg jafnan hallast að trúarstefnu kirkju- félagsins lúterska. Þar með er þó alls eigi gefið í skyn, að aðrir hafi ekki einnig átt aðgang að dálkum blaðsins; enda hefir það, einkum á siðari árum, mátt teljast umburðar- lynt mjög í þeim efnum. f rit- stjórnargrein í Lógbergi 16. desem- ber 1891 falla Einari Hjörleifssyni svo orð, og varpa þau ummæli hans nokkru ljósi á stjórnmálastefnu blaðsins: “Áður hafði aðaláherzlan verið lögð á vor sérstöku mál, íslendinga austan hafs og vestan. Blaðið skoð- aði það sitt aðalstarf til bráða- byrgða, að koma mönnum í skilning um, að allur meginþorri vor vildi vera góðir íslendingar, þó að hingað væri komið, svo lengi sem þess yrði auðið. Vér vorum vitanlega taldir iítið annað eða betra en landráða- menn af mjög mörgum frændum vorum heima fyrír. Þá skoðun þurfti að leiðrétta. Og það er óhætt að segja, að allur þorri landa vorra hér vestra hafði litla grein gert sér fyrir þeirri stefnu, er þeir vildu taka sem tslendingar í þessu landi. Það þurftu menn að gera sér ljóst. Og fyrstu árin var Lögberg að leit- ast við að hjálpa mönnum til að komast að niðurstöðu í því efni. En vitaskuld gat það ekki orðið aðal- starf blaðsins til lengdar. í nóvem- ber í fyrra haust hélt eg dálítinn ræðustúf á samkomu, sem haldin var hér í bænum. Eg benti þar á, að það, sem Vestur-íslendingar, eft- ir minni skoðun, ættu að fara að leggja aðaláherzluna á, væri það, að verða góðir borgarar í þessu landi, en að það gætu þeir ekki orðið fyr en þeir færu kappsamlega að taka þátt i málum þessa lands, og þá þyrftu þeir vitaskuld fyrst og fremst að læra að skilja þau. Mín aðalvið- leitni á því ári, sem nú er bráðum útrunnið, hefir verið sú, að standa við þá ræðu, skýra fyrir mönnum aðalmálefni þessa lands, sem lang- flestir Vestur-lslendingar eiga heima i. Þar með var Lögberg orðið fyrst og fremst pólitískt blað. Þess aðal- umtalsefni hefir verið pólitík lands- ins. Eg hefi lagt mitt litla lóð í vogar- skál frjálslynda flokksins blátt á- fram af því, að eg gat ekki sann- færingar minnar vegna lagt það í neina aðra pólitíska vogarskál.” (Smbr. ræðu Einars Hjörleifssonar, “íslendingar og frjálslyndi flokkur- inn,” Lögberg, 24. og 27. febrúar, 1892). Að kalla má frá byrjun hefir ILeirnskringla fylgt íahldsstefnunni (Conservative Party) í Canada og stefnu Þjóðveldissinna (Democrats) í Bandaríkjum, en i trúmálum hall- ast að stefnu þeirra, er eigi áttu samleið með lúterskum mönnum. Hafa hún og Lögberg því staðið á öndverðum meið bæði í þjóðmálum og trúarskoðunum; fór það þá að vonum, að deilur risu milli blaða þessara, og oft æði harðvítugar, einkum fyr á árum; voru ágrein- ingsmálin tiðum sótt og varin af meira kappi en forsjá, og umræð- urnar persónulegar úr hófi fram. En á seinni árum hefir þetta mjög breyst til batnaðar; flokkarnir hafa riðlast, skilningur og viðsýni auk- ist og samvinna á ýmsum sviðum vaxið að sama skapi. Svo sem Heimskringla, var Lögberg fram eftir árum hlynt vesturferðum af íslandi, ekki sízt fyrst framan af. Lógberg var í fyrstu hið sama að stærð og Heimskringla, 4 blaðsíður, 5 dálkar á síðu, 18 þumlungar að lengd. Með byrjun þriðja árgangs var það stækkað um helming að blaðsiðutali, og varð því 8. bls. í sama broti. Síðar var það tvsivar stækkað, árið 1904 í 6 dálka að breidd og 19 þml. að lengd; og árið 1911 í 7 dálka að breidd og 21 y2 þumlung að lengd. Varð það þá langstærsta fréttablað á íslenzku. Árið 1932 var það aftur minkað nið- ur í 6 dálka blaðsíður, og hefir það haldist siðan. Lógberg er og hefir lengst af verið vikublað, en frá því 24. febrúar, 1892 til 16. janúar 1895, kom það út tvisvar í viku, miðviku- daga og laugardaga. Stofnenda Lögbergs hefir þegar verið getið. Vorið 1890 skifti blað- ið um eigendur, en þó aðeins í tak- mörkuðum skilningi. Var þá stofn- að hlutafélag með $10,000 höfuð- stól, er nefndist “The Lögberg Printing and Publishing Company, Limited.” Voru í því hinir upp- runalegu útgefendur blaðsins, og að auk nokkrir vinir þeira og skoðana- bræður. Fyrsta stjórnarnefnd hins nýja félags var skipuð þessum mönnum: Sigtryggur Jónasson, forseti; Árni Friðriksson, vara-forseti, Jón Ólafsson, skrifari, féhirðir og ráðsmaður, Páll S. Bárdal, Andrés Freeman. Gaf útgáfufélag þetta nú út blaðið næstu tuttugu árin, en þá (1911) var stofnað nýtt hlutafélag með auknum höfuðstól, undir nafninu: “The Nokkrir af ritáljórum Lögbergs, er lengst hafa haft ritátjórnina með höndum EINAR H. KVARAN, fyrsti ritstjóri Lögergs. SIGTRYGGUR JÓNASSON MAGNOS PAULSON JÓN J. BILDFELL EINAR P. JÓNSSON, núverandi ritstjóri Lögbergs Columbia Press, Limited.” Er þeirr- ar breytingar, meðal annars, lýst á þessa leið í samnefndri ritstjórnar- grein (23. marz, 1911): “Félag þetta (“The Lögberg Printing and Publishing Company”) hefir siðan (1890) gefið út blaðið, þó að ýmis- legar breytingar hafi orðið í stjórn þess, þar til um síðustu áramót, að nýtt félag var stofnað, er keypt hefir blaðið “Lögberg, ásamt öllum eignum félagsins. Þetta nýja fé- lag heitir “The Columbia Press, Limited” og hefir nýskeð verið lög- gilt. Höfuðstóll þess er $50,000, og eru hluthafar sömu og áður, en nokkrir nýir hafa bætst við. Félags- stjórnin er og hin sama, sem var í gamla félaginu: J. J. Vopni, forseti, A. Freeman, vara-forseti, J. A. Blöndal, ráðsmaður, Thomas H. Johnson, Chr. Ólafsson. Þetta nýja félag tekur nú við Lögbergi og öllum eignum félagsins, eins og áður er frá skýrt, og kaupir þar að auki mjög mikið af nýjum prentáhöldum, og tekur að sér alls- konar prentun, bæði á ensku og is- letizku, og hefir fleiri mönnum á að skipa.”— Frá aukinni starfsemi þessa nýja útgáfufélags er frekar skýrt í yfir- litsgreininni “Lögberg þrjátíu ára” (20. desember 1917): “Færði þetta nýja félag bráðlega út kvíarnar, reisti stórhýsi á suðausturhorninu á William Avenue og Sherbrooke Street, þar sem gamla prentsmiðjan stóð. Leigir félagið þar út skrif- stofur og íbúðir og hefir þar einnig skrifstofur sínar og prentsmiðju. Er þar rekið prentverk í stórum stíl og f jölda fólks veitt atvinna. Getur prentsmiðja þessi að mörgu leyti mælt sig við beztu prentsmiðjur borgarinnar.” Ekki hefir þó þar við setið. Tólf árum síðar flutti prentsmiðja Lóg- bergs í ný og hentugri húsakynni, og segir þannig frá þeirri ráðbreytni í greininni “Lögberg flutt” (13. september, 1923): “Fyrir nokkru síðan seldi Columbia Press byggingu þá, Columbia Building, á horni Sher- brooke og William stræta, sem það hefir verið í síðan það bygði hana árið 1911, og hefir nú bygt nýja byggingu á norðaustur horni Sar- gent Avenue og Toronto Street, og flytur þangað að fullu og öllu þessa viku. Bygging sú hin nýja er 104 fet á lengd og 64 fet á breidd, ein- lyft, og er í alla staði hin hentug- asta fyrir prentsmiðju. Vélar allar og vinnustofur eru á sama gólfi, og eins haganlega fyrir komið og unt er. Byggingin sjálf er bygð úr múrsteini, með steinsteypugólfi og hituð með miðstöðvar gufuhitunar- vél.” Er þar enn vistarvera Lóg- bergs og Columibia Press. Auk þeirra, sem þegar hafa verið nefndir, hafa þessir átt sæti í út- gáfunefnd Lögbergs um lengra eða skemra skeið: Magnús Paulson, B. T. Björnson og Jón J. Bíldfell; var hinn siðastnefndi, á mismunandi tímum, forseti, ritari og ráðsmaður. Núverandi útgáfunefnd er þannig skipuð: H. A. Bergman, K.C., forseti (síðan 1920) Dr. B. J. Brandson, vara-forseti Fred Stephenson, ritari og gjald- keri (síðan 1927) E. F. Stephenson H. J. Stephenson. En Fred Stephenson (Friðrik Stefánsson frá Skálá í Skagafjarð- arsýslu) hefir verið aðaleigandi blaðsins síðan 1934. Skal þá horfið aftur að ritstjórum Lögbergs og starfstið þeirra. Fram á þriðja ár þess hafði Einar Hjör- leifsson einn ritstjórnina á hendi, en þá varð Jón Ólafsson meðrit- stjóri hans og ráðsmaður blaðsins; en Jón hafði komið vestur 20. apríl 1890, og tók við starfi sinu við Lögberg þrem dögum siðar. Unnu þeir nú um hrið saman að blaðinu, en með byrjun fjórða árgangs hætti Einar við ritstjórnina, og var svo til ætlast, að Jón hefði hana einn með höndum; en bráðlega fór þó sam- vinnan milli hans og útgefenda út um þúfur, og hvarf hann frá rit- stjórn blaðsins eftir einar þrjár vik- ur. Urðu út af brottför hans harðar deilur og langar milli hans og útgef- enda Lögbergs, og einnig milli þeirra fyrvrandi samverkamanna, Jóns og Einars. Má lesa um leiðindaerjur þessar allar í Lögbergi og Heims- kringlu sumarið 1891, en Jón hafði þá gerst ritstjóri hinnar síðarnefndu. Tók Einar þá við ritstjórn Lögbergs á ný og gegndi henni aðstoðar- mannslaust að kalla má þangað til hann fór alfari til íslands. Síðasta blaðið undir ritstjórn hans er dag- sett 28. febrúar 1895. Hafði hann þá verið ritstjóri Lógbergs í rúm- lega sjö ár. Segir Einar meðal ann- ars í “Kveðju” sinni: “Og það er sannfæring mín, að jafn mikið fylgi eins og Lögberg hefir haft meðal Vestur-íslendinga hin síðaTÍ ár, hafi enn ekkert islenzkt blað haft austan hafs né vestan.” Óhætt mun mega bæta þ.ví við, að Einar sjálfur hafi ekki átt minstan hlut í þeim vin- sældurm og áhrifum blaðsins. Er það ekki ofmælt, er segir í fyr- nefndri yfirlitsgrein “Lögberg þrjá- tíu ára” (20. desember 1917) : “Bragurinn á félagslífi íslendinga tók stakkaskiftum miklum þau sjö árin, sem Einar Hjörleifsson var við ritstjórn Lögbergs, og þótt fleiri komi þar til sögunnar, og ekki væri rétt að þakka Einari Hjörleifssyni það einum, þá átti hann vissulega sinn þátt í því og hann ekki litinn.” Stjórnarnefnd Lógbergs hélt Einari veglega skilnaðarveizlu 4. apríl 1891, er 55 manns sóttu. Sigtryggur Jónasson tók við rit- stjórn Lögbergs af Einari (7. marz 1895) og hafði hana á hendi til 18. júlí 1901. Enginn ritstjóri er því- næst tilgreindur fram að 21. nóv- ember, en þá tók Magnús Paulson, áður ráðsmaður blaðsins, við rit- stjórninni og annaðist hana til haustsins 1905. Hinn 19. október þ. á. gerðist Stefán Björnsson cand. theol. (nú prófastur á Eskifirði) aðalritstjóri blaðsins og var það uppihaldslaust næstu níu árin, eða þangað til í aprílbyrjun 1914, er hann hvarf aftur til íslands. Urðu nú alltíðar breytingar á rit- stjórn Lögbergs næstu árin. Dr. Sigurður Júl. Jóhannesson tók við henni af séra Stefáni og kom fyrsta blaðið undir ritstjórn hans út 9. apríl 1914; annaðist hann hana síð- an til 3. september, en varð þá að láta hana af hendi vegna afstöðu sinnar til heimsstyrjaldarinnar, sem þá var skollinn á, eða öllu heldur vegna andstöðu sinnar gegn þátttöku Kanada í styrjöldinni. Varð Krist- ján Sigurðsson kandidat (bróðir Ögmundar skólastjóra Sigurðsson- ar), sem verið hafði aðstoðarrit- stjóri Stefáns Björnssonar, þá rit- stjóri blaðsins um rúmt ár. En að þeim tíma liðnum (7. október, 1915) tók Dr. Sig. J. Jóhannesson aftur við ritstjórninni og gegndi henni fram i nóvemberbyrjun 1917. Eng- inn ritstjóri er þvinæst tilgreindur til áramóta. En með nýári 1918 tók Jón J. Bíldfell (frá Bildsfelli í Grafningi í Ámessýslu) við ritstjórn Lögbergs og hafði hana með höndum sam- fleytt í meir en níu ár, til 3. febrú- ar 1927. Einar P. Jónsson skáld (frá Háreksstöðum á Jökuldal), er verið hafði um mörg ár aðstoðar- ritstjóri Bíildfells, varð þá aðalrit- stjóri, en Finnur Jónsson (frá Mel- um í Hrútafirði), áður bóksali í Winnipeg, tók við meðritstjórastarf- inu. Sá Einar um aðalritstjórnina næstu fimm árin. Tók Finnur þá við henni um ársbil, 1932-33, en síð- an Einar aftur um rúmt ár, til 1. febrúar, 1934; Heimir Þorgrímsson (sonur Adams prests Þorgrímsson- ar frá Nesi i Aðaldal) varð þá rit- stjórinn fram til 1. september það haust, en síðan hefir Einar séð uni ritstjórnina einn saman. Auk þeirra, sem að ofan eru tald- ir, hafa þessir verið meðritstjórar Lögbergs: Hannes S. Blöndal skáld, i tið Magnúsar Paulson og fyrstu ár séra Stefáns Björnssonar (1902- 1907) ; Björn Pálsson (Ólafssonar skálds), 1907-1908; Baldur Sveins- son blaðamaður (frá Húsavík á Tjörnesi), 1908-1911; og Egill Er- lendsson, 1914-1915. (Framhald á sjöundu blaðsíðu)

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.