Lögberg - 30.12.1937, Blaðsíða 1

Lögberg - 30.12.1937, Blaðsíða 1
50. ARGANGUR | WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 30. DESEMBER 1937. 1 NÚMER 52 LÖGBE RG ÓSK/ lR öllum íslendingum farsæi .S NÝAí tS! —- - - ♦- - - -— Eg man þig (Sigríður Sigui’ðardóttir Helgason, dáin 1937) Eg man þig bezt með bros í augum er bauðst þú gestum inn. Hve bjart og holt í húsi þlnu, og hlýtt við' arinn þinn! Hver vinur velkominn. Eg mán þig vel hjá vöggu smárri, þá vanda’ að höndum bar. Eg sá þig leita æðra athvarfs,— og úrlausn birtist þar, sem barn í vöggu var. Eg man þig lengst á landnáms árum. —1 litum hreinum skín, þín höfðingslund og hjálpfús andi, og hetju sporin þín. —Þér fylgdi sólarsýn. Jakobina Johnson. Ferðalag karlakórs Reykjavíkur (Frásögn Árna Benediktssonar) Icelandic Newspaper Lögberg Issues Jubilee Number Marking in brilliant style and with a masterpiece of the typo- grapher’s art, completion of 50 years of continuous publication, the Log- berg, Canada’s premier Icelandic newspaper, issues from its Winni- peg office, Columbia Press, Toronto street and Sargent avenue, a 52- page number under date of Jan. 14, 1938. It carries greetings to its read- ers of both British and Icelandic origin, and greetings from Lord Tweedsmuir, governor-general; Rt. Hon. W. L. Mackenzie King, prime minister; Hon. John Bracken, pre- mier of Manitoba; Mayor F. E. War- riner, J. T. Thorson, K.C., M.P.; Oddur Olafson, M.L.A.; Miss Salome Halldorson, M.L.A.; Prof. Watson Kirkconnell; H. P. Albert Herman- son, Swedish consul, and many other citizens of Canadian and Ice- landic parentage. In his letter of congratulation, Lord Tweedsmuir declares his life- long admiration for the Icelandic people, and hopes “the Icelanders in Canada will always cherish their racial traditions, for they are a priceless contribution to Canadian culture.” Governor William ^Langer, of North Dakota, on behalf of his state and for himself personally, writes from Bismarck to express apprecia- tion of the cultural contribution of the Icelandic people to the United States and Canada, adding: “They have proved themselves worthy descendants of the ‘pioneers of free- dom’ in Northern Europe.” Premier Mackenzie King says: “The occasion serves to emphasize the important contribution which throughout half a century, the Log- berg has made to liberal thought and opinion as well, the service it has rendered in fostering between those of Icelandic ancestry and the citizens of Canada generally, that good will and mutual understanding which is so essential to the unity and welfare of our country.” On the front page the golden jubilee of “Logberg” bears the arms of Canada and of Iceland, flanking the Icelandic flag, a map of Iceland, a picture of an ancient Viking ship, the whole being the design of a young Winnipeg Icelandic woman. Literary contributions by local and Manitoba Icelanders abound, among the most notable being that of Johann Briem, 92, of Riverton. II- lustrations are numerous, and being printed on high gloss paper, make a fine contribution to the artistic make-up of the number. The first editor was Einar H. Kvaran; its present editor, Einar P. Jonsson. —From the Winnipeg Free Press, Dec. 24, 1937. MAONÚS GUÐMUNDSSON FYRV. RÁÐIIERRA LÁTINN Samkvæmt nýkonmum blöðum að heiman, lézt af völdum lungnabólgu á sjúkrahúsi í Reykjavik þann 28. nóvember síðastliðinn, Magnús Guð- mundsson, þingmaður Skagfirðinga og uim langt skeið f jármálaráðherra Islands. Var hanu alveg vafalaust einn af mætustu mönnum íslenzku þjóðarinnar, þeirra, er við opinber mál voru riðnir siðasta aldarfjórð- unginn. Magnús heitinn þótti ágæt- ur lögfræðingur, og átti yfir að ráða i víðri merkingu, þeim hyggindum, sem í hag koma. Hann var Húnvetn- ingur í ætt, og 58 ára að aldri, er dauða hans bar að höndum. Kaiilakór Reykjavíkur kom heim úr utanför sinni með Dronning Alexandrine kl. 3.30 e. h. í gær. Skipið var fánum skreytt, þegar það lagðist að landi, og kórinn heilsaði mannfjöldanum, sem hafði safnast saman á hfnarbakkanum, með því að syngja tvö lög. Síðan ávarpaði Sig- fús Halldórs frá Höfnum kórinn og bauð hann velkominn,- Tók mann- fjöldinn undir þá ósk með húrra- hrópum. Fararstjóri, dr. Guðbrand- ur Jónsson, þakkaði af hálfu kórs- ins. Nýja dagblaðið náði seinna um daginn tali af Árna Benediktssyni bókara, sem var einn af söngmönn- unum, og bað hann um fréttir úr ferðalaginu. —Ferðin hefir heppnast mjög vel, sagði Árni. Við lögðum af stað með Gullfossi 2. nóv. og setti hann okkur í land í Esbjerg, en þaðan fórum við með lest til Kaupmannahafnar. Komum við þangað 8. nóv. um f jög- urleytið og urðum að syngja þar strax um kvöldið. Frá Kaupmanna- höfn fórum við til Berlínar þann 11. og sungum þar daginn eftir. Til Prag fórum við þann 13. og sungum þar um kvöldið í einum frægasta söngsal borgarinnar. Til Vín fórum við næsta dag og sungum þar þann 15. og daginn þar á eftir sungum við í austurríska útvarpið. Þann 17. fór- um við til Leipzig og sungum þar daginn eftir. Þann 19. fórum við til Hamborgar og var tilætlunin að við syngjum þar. 1 Berlín og Leipzig höfðu skrifstofur, sem annast um slíkar skemtanir, séð um undirbún- inginn fyrir okkur, en í Haiji’borg hafði Nordische Geseilschaft tekið þetta að sér. Þegar til kom líkaði okkur ekki húsakynnin, þar sem við áttura að syngja og fleira í sambandi við undirbúninginn, og varð því ekk- ert úr því að við hefðum þar opin- bera söngskemtun. Hinsvegar kom- um við á skemtun hjá.félaginu og sungum þar nokkur lög. Til Kaupmannahafnar komum við aftur þann 21. og sungum þá í danska útvarpið. Einnig sungum við þar inn á nokkrar grammofón- plötur fyrir “His Master’s Voice.” Þaðan héldum við heimleiðis með Dronning Alexandrine þann 24. —Hvernig var aðsóknin og undir- tektir áheyrenda? —Aðsóknin mátti allsstaðar telj- ast mjög góð. Áheyrendur munu á öllum stöðum hafa verið nokkuð á annað þúsund manns, nema í Kaup- mannahöfn, en þar var salurinn svo þéttskipaður, að fleiri munu ekki hafa komist inn. Mest mun aðsókn- in hafa verið í Vín Hrifning áheyr- enda virtist allsstaðar mjög mikil og fagnaðarlætin og lófaklappið svo mikið, að okkur þótti stundum nóg um. Blaðadómar voru allsstaðar framúrskarandi góðir. í Nýja dag- blaðinu' mun hafa verið nokkuð sagt frá dómum Hafnarblaðanna, en mér er óhætt að segja að við fengum enn meira hrós í blöðum hinna borganna. Gefst ef til vill tækifæri til að segja nánar frá því síðar. Yfirleitt má líka segja, að móttökurnar, sem vio fengum í ferðalaginu hafi verið mjög góðar. Sérstaklega vil eg þó nefna móttökurnar í Vínarborg. Fé- lag Norðurlandavina hafði annast undirbúninginn og sá um að sérstak- lega var tekið á móti okkur á járn- brautarstöðinni. Var síðan á allan hátt reynt að gera okkur dvölina sem skemtilegasta, og vil eg í því sam- bandi minnast tveggja manna, hins þekta íslandsvinar, baron von Jaden, og dansk-íslenzka konsúlsins, Julius Meinl. Sá síðarnefndi bauð okkur til kvöldverðar á einu dýrasta veit- ingahúsi borgarinnar og lét fara með okkur um borgina, til að sýna okkur ýmsa helztu sögustaðina. 1 Leipzig lét borgarstjórinn fara með okkur um borgina og í Kaupmannahöfn var okkur haldin veizla í íslands- vinafélaginu. Mér er óhætt að segja það að lok- um, að við erum allir vel ánægðir yfir förinni og þó sérstaklega þeim dómum, sem söngur kórsins hefir hlotið. Vonum við fullkomlega, að sá tilgangur fararinnar, að auka þekkingu á þjóð og landi hafi hepn- ast eins vel og hægt var. —Nýja dagbl. 30. nóv. JÓN J. SAMSON IIEIÐRAÐUR Mr. Jón J. Samson, fyrsti Islend- ingurinn, sem gerðist meðlimur skipulagsbunclinnar lögreglu í Can- ada, og sennilega í Vesturheitni yfir- leitt, hefir nú látið af starfi með eftirlaunum eftir þrjátíu og þriggja ára starfsemi á þessu sviði. Og þó hann hafi enn eigi að f ullu náð þvi aldurstakmarki, sem þjónar Royal Canadian Mounties verða að hlita til þess að fá lausn frá starfi, þá munaði það svo litlu, að yfirmenn hans í Ottawa töldu rétt að veita honum hvíld. Mr. Samson hefir glæsilegan lögregluferil að baki, og þar sem á öðrum sviðum mannlegra athafna, notið virðingar og trausts. Á aðfangadagsimorguninn, kl. 10, var Mr. Samson boðaður til þess að mæta í réttarsalnum, þar setn hann hefir starfað allmörg undanfarin ár; var réttarhöldum skyndilega slitið, og að vörmu spori bað Mr. Murray lögregludómari Mr. Samson að rísa á fætur. Flutti dómarinn fagurorð- aða ræðu í garð Mr. Samsons, og þakkaði honum fyrir hönd vina og samstarfsmanna, langt, ánægjulegt °g öyggilegt starf, um leið og hann afhenti honum gjöf, sem varanlegan virðingarvott. Að því loknu þakk- aði Mr. Samson með prýðilegri tölu, velvildarvott þann og ógleymanlegan hlýhug, sem ummætlin, gjöfin og kveðjustundin bæri vott um. Var athöfn þessi að öllu leyti hin virðu- legasta. Bréf til Lögbergs Glenboro, Manitoba, Jóladagskvöldið 1937. Herra ritstjóri Lögbergs, Einar Páll Jónsson. Kæri vin:— Eg þykist hafa varið deginum vel, því nú er eg nærri búinn að lesa Lögberg frá enda til enda, 52 blað- síður. Sem ritstjóra þakka eg þér fyrir þetta ágæta minningarblað. Það er sannanlega útgáfunefndinni til sóma og ödlum íslendingum í heildinni hér vestan hafs. Ritgjörð- irnar hver annari betri og kvæðin líka, að því leyti, sem eg hefi bezt vit á. Auðvitað tekur gott skáld að dæma skáldskap, en því miður er eg það ekki. Það hefir verið siður minn undanfarin ár að senda kunn- ingjum mínum heimia á íslandi ís- lenzku vikublöðin svona við og við. Vildi eg nú biðja þig að gjöra svo vel og senda tvö minningarblöð; utanáskriftina læt eg fylgja. Getur þú svo sent mér reikninginn. Eg get varla hugsað mér betri ný- ársgjöf fyrir gamla kunningja. Sem ritstjóra vii eg sérstaklega þakka þér fyrir blaðið. Þáð ber í alla staði merki þess, að það hefir mann fyrir fráman, sem er stöðu sinni vaxinn. Eg hefi veitt þvi eftir- tekt síðastliðin ár, að þú hefir að rniklu leyti haldið út úr blaðinu ó- heilbrigðum skoðunum, bæði um trúmál og önnur málefni, og skáld- skaparrugli sem að mínu áliti getur ekki kallast annað en leirburður. Það er meira en hægt er að segja um suma aðra ritstjóra íslenzku blað- anna á síðastliðnum 35 árum eða síðan eg varð lesari þeirra, en sem skáld stendur þú betur að vígi en hinir. Framsíða blaðsins er eitt listaverk. Er þáð ánægjulegt að vita, að það eru verk Islendinga að öllu leyti; átt þú og frú Brynhildur Johnson þakk- ir skilið. Það ber með sér að íslenzk listræni og dómgreind hefir unnið þar jöfnum höndum. Strax og mað- ur litur á blaðið, blasir við íslenzki fáninn og vor ástkæri þjóðsöngur, Ó, Guð vors lands!. Hvað getur verið smekklegra val- ið Neðst á myndinni þar sem skip- ið er sýnt með uppdrætti Islands verð eg að játa að eg skil ekki hvað á að tákna eða hvaða sögu hún á að segja. Stiafnbúinn stendur þar við dreka'höfuðið og sýnist vera að benda út á sjóinn langt í burtu, en þessir kappar aftur í skutnum, eða minsta kosti annar þeirra, heldur dauðaháldi í Rifstanga, eins og þeir séu að draga landið á eftir sér eða öllu heldur að innbyrða það, því skipið hallast svo mikið. Mér finst að hefði farið betur að uppdráttur Islands hefði verið sýndur fyrir stefni eða til hægri, og knörinn ver- ið að sigla inn á Reykjavíkurhöfn. Stefnbúinn gæti þá verið Ingólfur Arnarson og félagar hans. Hefði kannske mátt sýna öndvegissúlurnar mara í flæðanmálinu ekki sízt ef skipið hefði verið heldur minna. Sjórinn og uppdráttur landsins hefði þá getað verið hlutfallslega stærri. Hefði þá myndin, frá mínu sjónarmiði haft meira sögulegt gildi, eða auðveldara að átta sig á hvað hún á að sýna. Þú sk'alt ekki taka þetta sem að- finning, heldur sem bendingu til þín, sem þú getur haft á bak við eyrað og tekið til greina, þegar þú sem rit- stjóri Lögbergs, ef tir 50 ár, ferð að skreyta framisíðuna á hundrað ára afmæli þess. Eg er strax farinn að hlakka til að sjá það og lesa. Að endingu vil eg þakka öllum, sem skrifuðu í blaðið bæði bundið og óbundið mál. Það er alt hvað öðru betra. Vil eg sérstaklega þakka herra Jóni-J. Bildfell f^rir sína á- gætu ritgjörð “Straumar.” Þar er margt vel sagt og orð í tíma töluð og drepið þar á málefni, sem flest- um sönnum Islendingum eru kær. Einnig vil eg þakka herra Ragnari H. Ragnar fyrir sína snjöllu rit- gjörð “Tónlist og menning. Það veitir ekki af að hrófla við dauða- rnóki okkar landanna annað slagið og skeitingarleysi okkar með við- hald íslenzkunnar. Þetta fagra og fræga mál, sem margar mentaþjóðir keppast nú við að nema, en niðjar okkar vilja hvorki heyra né sjá, jafnvel þó þeir séu hámentaðir. Auðvitað eru margar heiðarlegar undantekningar, sem betur fer, en því miður eru þær alt of fáar. Og ekki er síður þörf á viðhaldi ís- lenzkr tónlistar, en þar sýnist þó vera meiri áhugi fyrir, í ýmsum bæjum og bygðum. Að síðustu vil eg segja við rit- stjórann og taka undir með Dr. S. J. Johannessyni. Þú átt að yrkja meira, því allir vilja hlusta á þig. Að margra dómi ertu nú viðurkendur eitt af okkar snjöllustu skáldum. Er það spá min að innan fárra ára mun- um við krýna þig sem lárviðarskáld okkar Vestur-Islendinga. Lengi lifi Lögberg og ritstjóri þess, Einar Páll Jónsson! G. Lambertsen. FLUTTUR TIL V ANCOUVER Mr. Halvdan Thorlakson, sem lengi hefir verið í þjónustu Hudsons Bay verzlunarfélagsins, og nú um nokkur undanfarin ár í Winnipeg, er nú fluttur til Vancouver ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hann tekst á hendur forstj órasýslan hjá téðu félagi. Mr. Thorlakson er vinmarg- ur hér í borg, og árna vinir hans honum gæfu og gengis í hinu nýja umhverfi hans vestur við hafið. ÞRIR ISLENZKIR SKtÐA- MENN TIL NOREGS Norska skíðasambandið hefir I>oð- ið 3 íslenzkum skiðamönnum á skíðanámskeið, sem haldið verður um hátíðarnar í Mjöllfjöllunum yið Bergensbrautina. Er þegar ákveðið að þrír fulltrúar fari, einn frá hvoru félaginu: Ár- mann, I. R. og K. R. I fyrstu var búist við að 7—10 íslenzkir skíðamenn mundu geta sótt mót þetta og var þá til ætlast að fulltrúar frá Skiðafélagi Reykjavík- ur og frá Siglufirði og ísafirði yrðu með, en úr því gat ekki orðið vegna þess að þáttaka íslendinga er tak- mörkuð við 3 menn. Ekki er alveg afráðið hvaða skíða- tnenn sækja þetta mót. Héðan fara skíðamennirnir 16. desember og koma aftur 10. janúar. —Morgunbl. 2. des. Lögberg’s Jubilee The fiftieth anniversary of Log- berg, Icelandic language newspaper, published in Winnipeg, is celebrated in a special edition issued of 52 pages, the biggest newspaper ever printed in Icelandic, according to its editor. The front page is in three colors, entirely the work of Winnipeg Ice- landic craftsmen. The edition, with greetings from outstanding Iceland- ers of Canada and United States and from the Governor-General, Premier King and the governor of the state of North Dakota, and with a wealth of original poetry and prose, is a not- able event in the life of the local Ice- landic community. Its significance is dwelt upon in a letter of congratulation from Pro- fessor Watson Kirkconnell, of Wes- ley college, noted Canadian author. He says: “No other race in Canada has shown an interest in literature comparable to that of the Icelandics. Although Quebec was founded in 1608, in the greatest century of French authorship, it was not until 1768 that Canada’s first newspaper, the ‘Gazette de Quebec,’ was föund- ed. Although the Icelandic migration to Canada did not begin until 1873, yet by 1877 the first Icelandic news- paper in Canada, ‘Framfari,’ (now extinct), was founded at Icelandic River, Manitoba, while the two Win- peg weeklies, ‘Heimskringla’ and ‘Loberg’ have been issued without interruption since 1886 and 1888 re- spectively. Book publication in Ice- landic has been copious since 1892. “The part played by a paper like ‘Logberg’ in fostering an Icelandic literature in Canada has been beyond calculation. It has also helped to maintain a proud consciousness of the legacy of culture that lies behind them in Iceland and to develop a sympathetic audience for Icelandic authors in Canada. Its columns, for instance, have always been far more hospitable to original verse and fic- tion than have the corresponding weekly newspapers of Anglo-Cana- dians; and the editors have often been distinguished writers them- selves, like Einar Hjorleifsson Kvar- an a generation ago, and Einar Pall Jonsson today.” The editor Kvaran referred to now lives in Iceland and is ranked as one of the greatest modern writers irt the language. The pithiest greeting is from Lord Tweedsmuir, and ends with the sen- tence, “I hope the Icelanders of Can- ada will always cherish their racial traditions, for they are a priceless contribution to Canadian culture.”— J. C. R. in The Winnipeg Tribune, Dec. 28, 1937. ISLENZKUR FIÐLUNEMI / VINARBORG Einhverjir hafa e. t. v. veitt því athygli í frásögninni af Mið-Evrópu för Karlakórs Reykjavíkur í blað- inu í gær, að á hljómleikunum í Vínarborg lék ungur íslenzkur fiðlu- nemi, Björn Ólafsson, nokkur lög. Björn hefir stundað fiðlunám i Vín í f jögur ár, en hafði áður lokið prófi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann er aðeins tvítugur að aldri. C(arl) L(afite), einn af kunn- ustu tónlistargagnrýnendum i Vín, ritar í Volks-Zeitung eftir samsöng- inn, “að íslenzku söngvaramir hafi unnið algeran sigur.” Um Björn segir C. L.: “Ósvikinn Norðurlanda- afkomandi er . . . hinn ungi Björn Ólafsson Björnsson, einn hinna fáu ísfendinga, sem hér eru búsettir, bú- inn augljósum fiðluhæfileikum, með hljómmiklum söngtón, geðríki og f jaðunmagnaðri tækni, og vakti hann, ásamt Schulhof (prófessor) sem lék undir, mestan fögnuð þetta kvöld . . .” Pr. —Morgunbl. 1. des.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.