Lögberg


Lögberg - 30.12.1937, Qupperneq 2

Lögberg - 30.12.1937, Qupperneq 2
o LÖGBEŒtG, FIMTUDAGINN 30. DESESVIBER 1937. * - Guðmundur biskup góði Arason Sjö alda minning flutt á Hólum 29. ágúst, 1937. (Nokkuð stytt). Eftir Benjamín Kristjánsson. Hipn ió. marz síðastliðinn voru réttar sjö aldir liðnar frá því, að Guðmundtir Arason biskup, sem kallaður var hinn góði, andaðist að Hólum í Hjaltadal, sjötíu og fimm ára að aldri, eftir langan og hrakn ingssaman biskupsdóm. Verður eigi unt í stuttu máli að rekja nákvæm- lega hina viðburðaríku æfisögu hans, enda geri eg ráð fyrir að flestum, sem á mig hlýða, sé hún sæmilega kunn. Heldur vildi eg einkum drepa á þau atriði, sem ljósi mega varpa yfir skapferli hans og örlög, ef vera kynni, að þessi biskup, sem svo oft hefir, bæði lifandi og dáinn, verið ómjúklega dæmdur, mætti verða oss- skiljanlegri og um leið hugþekkari, þar sem hann stendur i straumi at- burðanna, hrakinn og hrjáður eins og sannarlegur píslarvottur og tákn guðskristninnar í landi voru á einni hinni agasömustu öld, sem yfir fs- land hefir gengið. Meðan hatram- legasta borgarastyrjöld geysaði í landinu, svo að hvergi var vært fyr- ir ránum og ofbeldi, trygðarofum, morðum og manndrápi, logar hið andlega ljós guðrækninnar með svo björtum og skærum ljóma í sál þessa farandbiskups, að jafnvel sumir hinna harðsvíruðustu vígamanna og andstæðinga hans urðu að viður- kenna það og glúpnuðu svo í and- stöðunni við hann, eins og Sturla Sighvatsson, að þeir létu leiða sig berfætta á iðrunargöngu milli höf- uðkirknanna i Rónt. Hin ytri at- vik ollu því oft, að ljós þetta sýndist blakta á skari, en þess á milli bloss- aði það upp með svo miklum hita og krafti, að það dró að sér hugi al- mennings. Því að undir allri geðæsing og jafnvægisleysi aldarinnar logaði friðleysi sálnanna eins og falinn eldur. í hinni ytri valdastreitu geysaði viðnámslaust harðvítug og miskunnarlaus öfl haturs og ágirnd- ar eins og vant er að vera, og færðu mönnunum hverfula gleði og stop- ula fullnægju. Þá framgengur Guðmundur biskup hinn góði her- týgjaður andanum og boðar hinn kristna veg bróðurkærleikans og mildinnar, sem svo fáum hefir tekist að festa trúnað á að fornu og nýju. En af því að maðurinn var sterkur, varð baráttan milli hans og hinna veraldlegu höfðingja bæði hörð og löng, þessi barátta milli holdsins og andans, hatursins og kærleikans, sem háð hefir verið í gjörvallri kristninni frá upphafi vega. II. Efniviður þeirra ættstofna, er að Guðmundi stóðu, var hinn ákjósan- legasti, og átti hann ekki langt að telja til ágtæra manna. Að vísu voru sumir föðurfrændur hans, eins og t. d. þeir feðgar Þorðvarður á Ljósavatni og Ögmundur sneis, víga- menn nokkurir og ódælir um sumt, en mikill drengskapur var þó til í þeim, og yfirleitt má telja að í ætt- bálkum þeim, er að Guðmundi standa, gæti sjaldgæfra og yfirgnæf- andi mannkosta. Menn ætla, að Þor- geir Hallason í Hvassafelli, afi hans, hafi verið kominn í beinan legg af Halla hinum hvíta Þorbjarnarsyni á Jórunnarstöðum í Eyjafirði, en hann var á dögum Víga-Glúms mannasættir í héraðinu, sagður vit- ur og réttdæmur og voru synir hans sumir skáld en aðrir vigamenn. Þor- geir var sagður auðugur að fé, spak- ur að viti, heilráður og vinsæll og höfðingi sinnar ættar. í móðurkyn má ugglaust telja, að Þorgeir Halla- son hafi verið kominn af ætt Þor- geirs Ljósvetningagoða, að m. k. fóru þeir feðgar með Ljósvetninga goðorð, sátu á flestum helztu höfuð- bólum í Eyjafirði og Enjóskadal og höfðu mikil mannaforráð. Innileg trúhneigð var einnig í þessari ætt, því að á gamals aldri losaði Þorgeir Hallason sig við alla veraldarívasan og réðst í klustur að Munkaþverá. Þar var og munkur Þórður sonui hans. Annar son Þorgeirs var Ingi- mundur prestur, sá er fóstraði upp Guðmund og lauk þannig við hann, að hann gaf honunrallar bækur sínar og messuskrúða. Hann var sagður hinn merkilegasti prestur, bók- hneigður með af brigðum og hið mesta göfugmenni. En hvikull var hann nokkuð i háttum og rótlaus. undi sjaldan lengi hag á sama stað og nýtti eigi af sambúð við konu sína. Og má vera, að þó að mjög væri ástúðlegt með þeim frændum, þá hafi þessir heimilishagir Ingi-1 snauðum mönnum. Foreidrar hans mundar prests haft nokkur áhrif á bæði hafa verið örgeðja og tilfinn- í ætt þessari, eins og t. d. Ingibjörg kona Hvamms-Sturlu og Gyríður kona Kolbeins Tumasonar, hafi ver- ið fríðar með afbrigðum. Benda og til þess orð Sigurðar Ormssönar við Guðmund Arason, er hann kom til hans að Svínafelli, fátækur prestur, að honurn hafi fundist hann hafa höfðinglegt yfirbragð: “Mér sýnist svá mikið yfir þér, mælti hann, að mér býður það í skap, að þú verðir ,enn meira ráðandi, en nú ertu.” Sýnist því háfa farið saman í ætt- inni atgervi til líkama og sálar, til- finningaríki mikið og örlyndi og gjafmildi með fádæmum gagnvart inganæm. Úlfheiður, móðir Guð- mundar, hafði verið manni gefin skaplyndi Guðmundar i uppvexti. Ingimundur Þorgeirsson hét eftir móðurbróður sínum en ömmubróð-' nauðug, en síðan er þau Ari feldu ur Guðmúndar, Ingimundi presti á J bugi saman, fékk hún honum mikinn Reykhólum. Á Strlunga saga naun> hluta fjár síns, er virðist hafa verið ast nógu sterk orð til að lofa Ingi- | ebki lítið. En með því að Ari var mund þennan hinn eldri, segir að stórlyndur, segir sagan, lagðist fé hann hafi verið stórmenni í skapi, I þetta brátt í lóg. Átti Guðmundur örr af peningum, sem ætterni hans ! hinn góði þannig ekki langt að sækja gott og hinn mesti j örlyndi sitt, tilfinninga hita, ölmusu- Enn segir í Þorgils gæbi. trúrækni og fræðihneigð, og var til, skáld mætismaður. U-nn segir í sögu Og Hafliða, að hann hafi verið hið mesta göfugmenni, vitur maður og glaðlyndur, vinsæll af allri alþýðu og mikils virtur af mörgum mönn- um göfugum. Loks segir svo: “Hann er góður viðurtakna, er vinir hans sendu honum vandræðamenn, og sendi þá jafnan vel af höndum sér.” Það er glögt, að Guðmundi biskupi hefir mjög brugðið í kyn Reykhólamanna, enda er það eigi að undra, þegar þess er gætt að for- eldrar hans báðir töldust vera af ætt þessari. Var Einar á Reykhólum, faðir Ingimundar prests, sonur Ara Þorgilssonar á Reykhólum Arasonar af ætt Úlfs skjálga. Þeir Reýkhóla- menn voru allir höfðingjar miklir og fóru með Reyknesinga goðorð, þar til Ingimundur prestur gaf Þorgilsi Oddasyni frænda sínum. En í þess- ari ætt fór saman skáldgáfa, fræði- menska og drengskapur með af- brigðum. Valgerður, amma Ara fróða, var dóttir Þorgils á Reykhól- um, og bar hann því mð sama nafn og Ari faðir Guðmundar. En Þor- gils er lýst þannig, að hann hafi ver- ið höfðingi svö mikill í lund, að hann gaf hverjum frjálsum manni mat svo lengi sem hann þiggja vildi og varð af því fjölment jafnan á Reykhólum og stundum þröngt í búi. Sást hann þá heldur ekki fyrir að taka undir vemd sína útlaga og ógæfumenn, sem leituðu trausts hjá honum. Þannig er frá því sagt, að hann hélt eitt sinn alla saman vetur- langt þá: Grettir Ásmundsson og fóstbræður Þormóð og Þorgeir. Enn dýpri rótum stendur göfugmenska þessarar ættar. Ein formóðirin, kona Ara Þorgilssonar á Reykhólum, var Guðrún Ljótsdóttir, Hallssonar af síðu. Það var Ljótur sá, sem lagð- ur var ógildur á Alþingi eftir Njáls- brennu til að firra vandræðum. En Hallur af Síðu og hans afkvæmi er um eitt hið göfugasta í sögu lands vors, og átti hann eins og kunnugt er manna beztan þátt í því að koma á Kristni hér á landi. Og ekki ólík saga er reyndar sögð um Þorgeir Hallason, afa Guðmundar, á Alþingi sér vera ‘ æsku hrundið af nákomn- 1163, er hann fékk afstýrt með vit- urlegum fortölum vandræðum eftir grjótkast það er þá varð, með því að kggja ógild meiðsli Þorvarðar sonar síns. Sýnist þannig í flestu þessu fólki ríkari góðgirndin og sáttfýsin, en óbilgirndin. Og loks kemur fram hjó Ara Þorgeirssyni, föður Guðmundar, drottinholusta og fórn- fýsi á hinn fegursta hátt, er hann setti sig vopnlausan að skildi fyrir Erling jarl á Ryðjökli 2. nóv. 1166 og lét þar líf sitt af mikilli hreysti og drengskap. Mælti jarl þessi orð um: “Það er víst, að þar fór sá maður, er oss hefir bezt fylgt og höfum vér engan jafnhvatan eftir. Varð hann einn búinn til af yður, að gefa sjálfviljandi líf sitt fyrir mitt líf. Nú mun eg eigi hans frænd- um launað fá þann skaða, er þeir hafa beðið fyrir minar sakir.” \ ér sjáum af þessu, sem eg hefi nú sagt af ættmönnum Guðmundar, að hann var af ágætu bergi brotinn og stóðu að honum höfðingjar mikl- ir hvarvetna. Auk þess hefir margt af þessu fólki verið glæsilegt sýnum, einkum er þess getið, að konurnar Ioks trygð sína og óslítandi fórnar- lund i þágu heilagrar kirkju. Alt æru þetta áberandi skapseinkunnir ættmenna hans og forfeðra langt frami í kyn. En hreystin og herzl- an er þar einnig til og nokkurt ráð- ríki. Virðist Guðmundur Arason einna verst hafa unað því, sem hann varð þó oftast að þola biskupsdóms síns, að hann væri borinn ráðum, því að kappið og ráðrikið var svo mikið að eðlisfari. Og enda þótt hann stilti sig oft vel og þess sé ekki getið nema einu sinni, að hann bæði óvinum sínum forbæna, þá var þó óstýrilátt blóðið að eðlisfari, ef það er rétt, sem höfundur prestssögunn- ar segir, að honum hafi í æsku þótt fremur kippa í kynið um ódæld og ráðríki og hafi Ingimundur prestur fóstri hans því oft orðið að beita all- hörðu við hann. Enda þótt hann væri vígður akolútus 12 ára að aldri og tæki næstu ár aðrar djáknaVígsl- ur, þá þótti lítið bera á guðrækni hans f ram. um tvítugsaldurinn. Hann sagði svo sjálfur frá, að hann hafi í upphafi verið barður til bókar, svo að áhuginn til andlegra hluta virðist hafa verið stopull til að byrja með. Til hins sama bendir sagan um kirkjuvígsluna á Kálfanesi, er Guð- mundi þótti skemtilegra, að eiga tal við klerka Þorláks biskups, en vera að tíðum og kirkjuvígslu. Trú hans var enn ekki vakin. En önnur á- stæða var einnig fyrir því, að honum var kennidómurinn í fyrstu lítið á- hugamál. Hann grunaði frændur sína um það, að eigi hefði það ráðið litlu um, að hann var til bókar settur, að þeir mættu taka undir sig fé Ara föður hans og sitja einir að manna- forráðum ættarinnar. Hvort sem þetta var rétt eða ekki, gat Guð- mundur ekki að sér gert, nema stinga því að Þorvarði frænda sín- er hann hélt fast að honum biskupstign, og kvað Þorvarði vera meira í mun að koma sér í vanda en virðing. Mun Guðmund sennilega á unglingsárunum hafa sviðið það undirniðri, að honum hefir fundist um frændum úr götu til þeirra mannaforáða, er hann stóð nærri að erfa. Kynti hann sér á þeim ár- um eigi síður veraldar og landslög, en lög kirkjunnar, og hversu harð- vítugur málafylgjumaður hann hefði orðið, má sjá af því, er hann sótti KoII-Odd til sektar fyrir Jón Brandsson vin sinn rúmlega tvítugur að aldri. En Guðmundur Arason er einn af þessum mönnum örlaganna, sem þrátt fyrir allan sinn andlega vask- leik hlýtur að ganga sína mörkuðu braut. Ófús gerist hann prestur og nauðugur biskup, en þrátt fyrir þetta hefir hann yfirgnæfandi" hæfileika til hvorstveggja. Og lífið og atvikin taka nú að vinna ósleitilega að því og ekki mjúklega að fága lund hans, og snúa henni að andlegum hlutum. III. Þegar Guðmundur var nítján ára, gerðist atburður, sem hafði allcljúp áhrif á skap hans. Þá ætlaði hann utan með Ingimundi fóstra sínum, en hrepti óveður fyrir Ströndum og lá við sjálft að allir færist. En er á- STYRKIR TAUGAR OG VEITIR NÝJA HEILSU N U G A-T O N E styrkir taugarnar. skerpir matarlyst, hressir upp á melt- ingarfæri, stuðlar að værum svefni. og bætir heilsuna yfirleitt. NUGA-TONE hefir gengið manna b. meðal I 45 ár, og hefir reynst konum sem körlum sönn hjálparhella. Notið NUGA-TONE. pað fæst I öllum lyfja- búðum. Kaupið hið hreina NUGA- TONE, því fá meðöl bera slíkan árang. ur. Notið UGA-SOL við stýflu. petta úrvals hægðalyf. 50c. ! föllum létti af skipinu og það kendi grunns, var tekið að hyggja að Guð- mundi og hafði hann þá mölbrotið svo annan fót sinn við borðstokk- inn, að þangað horfðu tær er hæll skyldi. Kömust skipverjar við illan leik með Guðmund í land og lá hann þar síðan lengi um veturinn á fátæk- um veturinn á fátækum bóndabæ í fótbrotinu og kvaldist af óyndi. Ingimundur fóstri hans hafði farið til Breiðabólstaðar í Steingrímsfirði, þar sem Jón Brandsson bjó, er átti Steinunni dóttur Sturlu í Hvammi og Ingibjargar Þorgeirsdóttur. Svarf nú svo fast óþreyjan að Guðmundi, að loks helzt hann þar ekki lengur við og gekk um vorið nálægt pásk- um til Breiðabólsstaðar við það, að að út stóðu leggjarbrotin úr fæti hans. Má af þessu marka herzlu hans. Hafðist fóturinn enn þá illa við, sem eðlilegt var, og var þá Guð- mundi komið á Hóla- á Reykjanes til Ilelga prests Skeljungssonar, sem var ágætur maður og hinn mesti læknir. Lét hann draga beinin út úr fæti hans með töng og urðu tveir efldir karlmenn að ganga að, áður en brott gengi. Eigi er þess getið, að Guðmundur mælti nokkuru sinni æðruorð, hvorki er hann fótbrotnaði eða meðan á lækningunni stóð. En nærri má geta um líðan hans andlega og likamlega, er hann liggur einmana og f arlami á ókunnum stöðum mán- uðurn saman. Þá segja æfisögurit- arar hans, að hann hafi byrjað að skifta um skaplyndi og hugurinn meir tekið að hneigjast að guðlegum efnum. “S'íðan kom nokkuð fyrir á hverjum misserum til siðbótar hon- umi,” segir prestssagan. Guðmundur Arason var vígður til prests af Brandi biskupi Sæmunds- syni 17. marz 1185, 24 ára að aldri. Það var á annan sunnudag i föstu. Bar það mjög saman, að hann var til prests vígður og að hann skildi við tvo vini sína, er honum voru hjartfólgnastir, en það voru þeir Ingimundur fóstri hans og Þorgeir biskupsson, er kvnætur var Guðnýju Þorvarðardóttur frænku hans. Fóru þeir utan um þessar mundir og sá Guðmundur hvorugan síðan. Andlát Ingimundar fóstra hans bar að höndum með þeim sorglegu atburð- um, að hann týndist af Stangarfol- anum ásamt mörgum öðrum góðum drengjum í íslandsferð. Fundust þeir mörgum árum seinna helfrosnir \ óbygðumi Grænlands. Þorgeir biskupssonur lézt í hafi á leið upp. Varð Guðmundi svo mikið um þessa atburði, að nálega mátti kalla, segir prestssagan, að hann skiftist í allan annan mann, en það sem áhorfðist, er hann var i æsku. Var hann þinga- prestur að Hofi á Höfðaströnd, er þetta bar að höndum. Gerðist hann nú svo mikill alvörumaður og trú- maður í föstum og bænahaldi, tíða- gerð, meinlætum og örlyndi, að sum- ir menn óttuðust að héldi við van- sailli. En hversdagslega var hann þó mjög hógvær og spakur í háttum sínum. Hann tók á þessum árum til kenslu prestlinga og var það dag- leg iðja hans tíða á millum að kenna og rita. Kóm nú upp í honum fræði- maðurinn. Hann rannsakaði bækur manna og hendir af hvers manns bókum, þar sem hann kom, það sem hann hafði ekki áður. En mikinn hluta nætur, bæði öndverðar og ofanverðar var hann í kirkju, og gekk til skrifta jafnan, er hann náði fundi kénnimanna. yEtluðu sumir, að hann mætti ekki bera alt saman: harðrétti sitt og óyndi út af andláti vina sinna. Er það glögt, að hér hefir orðið mikil andleg breyting í sál Guð- mundar, er sorg og alvara lífsins sækir hann heim. Sem snöggvast finst honumi hann standa uppi aleinn og vinalaus, á róstusamri og sið- lausri öld, þar sem alt logaði i hatri og illdeilum. En því þjáðari sem hann verður og meir einmana í hinu ytra lífi, þvi meir opnast undirdjúp- in i sál hans. Með heitu ákalli og iðulegri bæn til guðs, og stöðugri umhugsun um lífernissögu drottins og æfi helgra manna, vöknuðu nú til lífsins af alefli margir þeir eðlis- kostir, sem grónir voru í kyni hans. “Altarissakramentið flutti hann og framdi með svo mikilli gæzku og góðfýsi, sem hann sæi sjálfan græð- arann fyrir sér á krossi píndan.” Og stundum þótti mönnum sem þeir sæju bjart ljós yfir höfði hans í messunni, eða eld fara út af munni hans. Er það ekki að efa, að Guð- mundur var fluggáfaður maður, svo sem segir í sögu hans: “hvass í hug- viti og glöggrar greinar bæði til bæk- ur og brjóstvitru.” Hann hefir ver- ið mælskur og andríkur, tilfinning- arnar örar og heitar, og söngmaður, ágætur. Þannig hefir hann haft aJt, sem prýða má góðan kennimann. Enda þótti allur tíðaflutningur hans merkilegur og áhrifamiki.11, og var ;stundum til þess tekið, er hann söng yfir dánum mönnum. T. d. er frá því sagt, er hann jarðsöng Ketil- björgu nunnu i Skálholti, að þá 'Stóðu yfir greftrinum Páll biskup og Gissur Hallsson. “Og var sú þjon- usta svo merkileg, að Gissur vottaði það í þeirri tölu er hann hélt, að þeir þóttust eigi slíkan líksöng heyrt liafa, og virði henni til heilagsleiks, að henni skyldi slíks söngs auðið verða.” Var sá yfirsöngur bæði skil- rikur og társtokkinn, segir Arn- grímur ábóti. Sézt af þessu, að það var ekki aðeins alþýðan fáfróð og hjátrúarfull, sem lét heillast af tíðaflutningi og prestsverkum Guð- mundar góða, heldur og hinir vitr- ustu og lærðustu menn, er gott skyn báru á það, er þeir dæmdu um. En öll var ástundun hans hræsnis- laus og full af elsku til Guðs og manna, segir í sögu Arngríms ábóta. Og hvað sem hann lærði aðra, fylgdi hann fyrir sjálfur í sínum verkum. “Hljóður var hann og athugull hversdagslega, þýður og þekkur í máli, öllum mjúkur og mildur sem at hann lutu í nokkrum hlut. Þvi unni honu'mi hvert mannsbarn.” Alt gaf hann, sem hann gat við sig los- að, og sagt er, að meðan hann var prestur hefði hann aldrei færri en sjö ölmusumenn á framfæri sínu og móður sína hina áttundu, en hann annaðist hann með mikilli ástúð til dauðadags. Ágerðust nú föstur hans og bæna- Iiald og ölmusugæði, svo að land- frægt verður, og í ímyndun alþýð- unnar fer að leika um hann hinn dul- arfulli ljómi dýrlingsins. Menn fara að keppa um prestsþjónustu hans. Frá Hofi fer hann að Mikla- bæ, síðan í Viðvik, þaðan að Völlum í Svarfaðardal, síðan að Upsum og Reynistað og loks að Víðimýri til Kolbeins Tumasonar. Til dæmis um vinsældir hans, er hann var á Völl- um, er það, að þegar Halldóra abba- dís Eyjólfsdóttir úr Kirkjubæ bað Fann að ráðast þangað austur ti! búsforystu með sér og hann hafði heitið þessu, fóru sveitamenn til og báðu Brand biskup að banná honum brottferð, og gerði hann það. En hvarvetna að tóku honum nú að ber- ast heimboð frá merkum mönnum, og æðri og lægri sóttu hann heim langar leiðir til að skrifta fyrir hon- um eða leita lækninga til hans. Jafn- vel sjálfur Brandur biskup gerði hann að skriftaföður sínum. Tók hann upp marga hluti í trú sína, er menn höfðu ekki átt að venjast áður, svo sem vatnavígslur og helga dóma. Segir svo frá þessu í sögu Arngríms ábóta, að á þeim árum umkringdi hann nálega landið með vatnsvígsl- um sínum og heilsugjöfum, svo að um allar áttir landsins streymdi sú blessan Guðs, er fylgdi bænarorðum hans. Þar sem eigi voru brunnar eða lindir, vígði hann rennandi vötn og vöð mönnum til farsældar. Vatnið mun hann haf a vígt á þann hátt, að niður í það brá hann heil- agra manna beinum eða öðrum hdg- um dómum, er hann hafði jafnan meðferðis, blessaði síðan yfir með krossmarki og ákallaði Krists nafn. Á líkan hátt munu lækningar hans hafa farið frm. Notaði hann mjög til þeirra vígt vatn og helga dóma, til þess að enginn eignaði honum sjálfum kraft til þessa. Þó er þess stundum getið, að hann notaði munnvatn sitt og aðgerðir líkar þeim, er um getur í Nýja testament- inu. Kom stundum á hann höfgi, er hann lá á bæn yfir lækningum þessum, og var þá ekki trútt um, að hann þætti birtast á öðrum stöðum og vinna þar ýms máttarverk í fjar- lægð líkamans með krafti andarinn- ar. Þó að erfitt sé, að henda reiður á þeim sögum, sem um þetta hafa myndast, og þær kunni að hafa ýkst allmjög í meðförum, þá er þó ein- hver fótur fyrir öllu, enda eru sög- urnar, sem af Guðmundi eru sagðar, ekkert ótrúlegri, en fjölda rnargar sögur aðrar, um ýmsa vitrana menn og géðhrifalækna kristninnar frá upphafi. Oss er það öllum kunnugt, að sögur líks eðlis ganga ótal marg- ar á meðal vor enn þann dag í dag, og er trúað af fjölda fólks. í ritn- ingunni og trúarbragðasögu margra þjóða úir og grúir af sögum um menn, sem gæddir hafi verið slíkum lækningakrafti, og það er alkunna að einmitt meinlæti og andlegar æfingar eins og þær, er Guðmundur Arason stundaði, færa að jafnaði i vöxt þann furðulega andlega styrk, sem með manninum býr. I sambandi við þetta eru f jölmargar sögur, ’ sem benda til þess, að hann hafi verið forvitri og ráðið yfir óvenjulegri skygni. Margir hafa talið, að allar þessar frásagnir um Guðmund stafi frá hindurvitnum tómum. En eg fyrir mitt leyti efast ekki um, að ýmis- legt af þessu hafi sannleik að geyma. Alt, sem sagt er af Guðmundi, bend- ir til þess, að hann hafi verið ecstatic, eins og t. d. Páll og fjölda mörg önnur stórmenni trúarinnar. Slíku ástandi fylgja sterkar geðs- hræringar og er stundum eins og maðurinn sé innblásinn og magnaður af æðra krafti, en stundum legst hann í dásvefn og birtast honum þá vitranir og sýnir. Emkenni þessara manna er oftastnær það, að þeir eru trúaðir og kunna að vekja aðra rnenn til trúar. En að trúin geti leyst furðulega og ótæmandi krafta úr læðingi í sálardjúpinu, hæfir oss eigi að efast um — því að sjálfur meistarinn sagði, að trúin gæti flutt fjöll. Þá hættir oss mótmælendum mjög til að lita á vatnavígslurnar og dýrk- un helgra beina sem aumustu hjátrú, og var jafnvel ekki trútt um, að Þórir erkibiskup áteldi hann fyrir vatnavígslur hans, og þætti hann vígslugjarn um of. En Guðm.undur varði mál sitt af svo mikilli snilli, að erkibiskup fékk ekki orða bundist og mælti: “Harla vænar greinir gefur Guð fyrir yðvarn munn.” En vörn Guðmundar var á þá leið, að hann tryði því, að almáttugur Guð mundi ótæpt gefa miskunn sína og anda heilagan. Og ef á þennan hátt mætti, fremur en annan, vékja trú fólksins á miskunn hans og heilsugjöf, þá skifti manstu máli um aðferðina. Enda hefði sjálfur Krist- ur bezt helgað vötn öll með hérvist sinni, er hann steig niður í Jórdan og heilagur andi krismaði vatnið með sinni ásján. “En alt vatn er eitt og frá þessu vatni spretta síðan ýmislegar rásir um jörðina, heilagn kirkju til nytsemdar sálar og lík- ama.” Hin sama hugsun vakti vitanlega fyrir honum með helgra manna bein og aðra helga dóma. Tækist með þessum yfirtáknum, að vekja mátt trúarinnar í sálum mannanna, þá var takmarkinu náð. Aðeins, ef vakin væri tilfinningin í mannssálunum fyrir hinu hcilaga og eilifa — og gróðursett traustið á því, þá er þar með straúmi hinnar guðdómlegu náðar veitt inn í mannlífið. Þetta virðist hafa staðið mjög ljóst fyrir Guðmundi og veit eg ekki, hvort oss hæfir að dæma hann hindurvitna- mann fyrir þetta. Ef til vill hefir prótestantiska kirkjan of mjög flaskað á því, að skilja ekki þetta merkilega samspil milli hinna ytri tákna og innri andlegu sanninda.— Hún hefir aldrei skilið það, að hin ytri tákn geta stórkostlega hjálpað vexti og skilningi andlega lífsins, að m. k. meðan það er ennþá í bernsku og óþroska. Á þessu bygg- ist kraftur allrar symbólisku (tákn- rænna athafna). 2

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.