Lögberg - 17.02.1938, Page 4

Lögberg - 17.02.1938, Page 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGLNN 17. FEBRÚAR 1938 Högberg QefiC út hvern fimtudag af THK COLUMBIA PRESS LIMITED 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáakrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, «95 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. Editor: EINAR P. JÓNSSON VerO JJ.00 um ári0 — Borgist fyrirfram The “Lögberg" is printed and published by The Columbla. Press, Lintfted, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Óhjákvæmileg þakkarorð Frá því er Lögberg gaf út minningarblað sitt í tilefni af fimtugs afmælinu, hefir rignt inn á skrifstofu þess í hundraðatali bréfum og símskeytum til ritstjóra og útgefenda, með Idýjum óskum um velfaman blaðsins í fram- tíðinni; væri það alt saman birt yrði það heil- stór bók, en slíkt kemur vitanlega ekki til mála, þó fordæmi séu fvrir, að reynt sé að gera sér gott af minna en því; verður því að nægja í eitt skifti fyrir öll, að hinn frábæri góðhugur í garð blaðsins, sé innilega þakkað- ur, og nái til allra jafnt. Og þetta gildir ekki eingöngu um Islendinga, né heldur þá af öðr- um þjóðstofni, er sendu blaðinu virðingar- kveðjur í tilefni af afmælinu, heldur og ræðis- menn erlendra ríkja í þessu landi, er heiðruðu j>að með faguryrtum símskeytum, sem og ýmsa forustumenn á sviði stjórnmála og at- hafnalífs; var í rauninni í þessu tilliti um hvorki meira né minna að ræða, en samhljóða traustsyfirlýsingu í garð hins íslenzka mann- félags vestanhafs með Lögberg í fararbroddi. Það væri óviðurkvæmilegt ef þessa væri eigi að verðugu minst, og það metið að fullu. Ýms blöð austanhafs, er oss hafa nýverið borist í hendur, minnast einkar lofsamlega á minningarblað Lögbergs, og starfsemi þess í þágu íslenzkra félagssamtaka og menningar- mála. “Vísir” hefir meðal annars þetta að segja, þann 13. janúar síðastliðinn, er nær til beggja íslenzku vestanblaðanna jafnt: “Islenzku blöðin vestanliafs hafa frá því er þau fyrst hófu göngu sína komið Islend- ingum vestra að ómetaulegu gagni. Þau hafa meira en flest annað tengt þá saman, þótt dreifðir séu um hina miklu Vesturálfu, flutt fregnir um störf og félagsleg samtök í hinum ýmsu íslendingabygðum, og }>að, sem oss á Íslandi má ekki þykja minna um vert, flutt mikinn fróðleik héðan til landa vestra, fróð- leik og fréttir, sem landar okkar vestra ella hefði ekki fengið, en þetta hefir aftur leitt til þess, að landar vorir hafa lifað í nánari and- legum tengslum við okkur og land vort. — Vestur-íslenzku blöðin hafa, síðan er fólks- flutningar héðan stöðvuðust að mestu, lifað við þrengri kost en áður, og það sýnir virð- ingarverðan áhuga og dugnað þeirra, sem að blöðunum standa, og þeim, sem kaupa þau, að þau hafa um svo margra áratuga skeið, sem reynd ber vitni, sigrast á öllum erfiðleikum. ” Eftir að hafa farið lofsamlegum ummælum um ritgerð dr. Becks um starfsferil Lögbergss og margt fleira, lýkur Vísis-greininni á þenna veg: “Auk greinar dr. Becks flytur blaðið fjölda margar greinar, meðal annars um Jón Ólafsson skáld. “Nokkur sýnishorn að vestur-íslenzku og rannsóknum um hana,” eftir dr. Stefán Ein- arsson háskólakennara í Baltimore, og ótal margt annað, sem rúm leyfir því miður eigi að telja, meðal annars myndir og greinir um merka Vestur-lslendinga og fyrirtæki.” 1 Vísis-greininni er endurprentað orðrétt í ís- lenzkri þýðingu, hið undurfagra ávarp til Lögbergs frá landsítjóranum í Canada, lá- varði Tweedsmuir. Þessu jafnframt flytur og Nýja Dagblað- ið einkar hlýyrta ritgerð um Lögberg í tilefni af fimtugsafmælinu, og lætur þess getið, að minningarútgáfa þess afi verið “mjög vönd- uð og skrautleg. ” Blað þetta birtir auk ann- ara ummæla, orðrétt hina fögru og kjarnyrtu samfagnaðarkveðju til Lögbergs frá forsætis- ráðherra íslenzku þjóðarinnar, hr. Hermanni Jónassyni. Frá þjóðræknislegu sjónarmiði séð, hafa áminstar hlýkveðjur til Lögbergs heiman af ættjörðinni, hreint ekkert smáræðis gildi; þær benda ljóst og ákyeðið í þá átt, að ýmsir séu þeir menn heima, er eigi láti sér á sama standa hver verði hlutur vor í framtíð- inni, né heldur um það hvernig tiltakist um viðhald andlegs og menningarlegs sambands milli heimaþjóðarinnar og þjóðarbrotsins vestra. Og óumræðilegt fagnaðarefni yrði oss það í vestrænni dreifingu, ef til lífrænna framkvæmda kæmi í náinni framtíð þau um- mæli Hermanns forsætisráðherra í samfagn- aðarkveðjunni til Lögbergs, “að nú sé meiri áhugi en nokkru sinni áður fyrir því að auka og efla samstarfið milli heimaþjóðarinnar og Íslendinganna vestan hafsins, og að þess verði skamt að bíða að raunhæfar ráðstafanir verði gerðar í samræmi við þennan vaxandi áhuga.” Endarminningar Indriða Einarssonar Eftir prófessor Richard Beck. Tndriði Einarsson: Séð og lifað. Endurminningar. Reykjavík, 1936—452 bls Það er ver,uleg sálarhressing, að lesa þessa bók, því að heiðríkja hugans og mann- dómslund einkenna hana spjalda milli; hún er blátt áfram þrungin af bjartsýni og lífs- fjöri. En þetta kemur engum þeim á óvart, sem átt.hefir því láni að fagna, að kynnast höfundinum; þeSsar endunninningar lians bera allan svip aðlaðandi persónu hans; þær eru sannarlega “hold af hans holdi og blóð af hans blóði.” Dr. Sigurði Nordal geigaði ekki ör frá marki, fremur en svo oft endra- nær, þegar hann komst svo að orði um þessar endurminningar, sem gefnar eru út af hálf- níræðum manni, að ungir menn geta vngst upp við þær.” Það liggur í augum upp, að maður eins og Indriði Einarsson, sem á sér svo langa æfi * að baki og jafnframt óvenjulega margþætta starfssögu, kann frá mörgu að seg-ja. Enda eru þessar endurminningar hans f jölbreyttar að efni, bæði fróðlegar og skemtilegar, því að hann segir flestum betur frá; stíllinn er lipur og mjúkur, með heppilegum litbrigðum gam- ansemi og alvöru; atburðir og menn verða lifandi fyrir sjónum lesandans, og altaf öðru hvoru leiftrar frásögnin af snjöllum og skáld- legum tilþrifum. Það er enginn hversdags- bragur á lýsingum sem þessari: Héraðsvötn eru aldrei iðjulaus. Þau hafa verið að búa um sig á láglendinu í hérað- inu og oftast farið' illa í rúmi. Þótt þau renni í sama farveginum nokkrar aldir í senn, þá láta þau hann aldrei í friði. Þar sem var eyri fyrir nokkru, þar er nú kominn sjö álna djúpur hylur. Þar sem var sjö álna dúpur hylur við bakkann fyrir 40—50 árum, þar er nú kominn grasgróinn undirbakki. Þau eru óróleg sál, sem aldrei fær hvíld; þau eru breytileg sál, sem eilíflega skiftir um útlit. Ofan af Yatnsskarði, eða framan af Mæli- fellsdal, renna vötnin eftir héraðinu, eins og silfurflóð. “Sá, sem ætti þessa silfurnámu, gæti keypt alla jörðina!” kemur ferðamann- inum í hug. A sumrum eru Vötnin oft dökk- blá og tær. t hverjum vexti, sem í þau hleyp- ur, eru þau gulmórauð' og illúðleg. Fyrir neðan Vindheimabrekkur eru þau lygn, en ef jökulhlaup rennur í þau á vetrum, er sagt, að þau sprengi af sér alinnar-þykkan ís. Þá liggja þau í óráði og fleygja af sér fötum. ’ ’ Mikið menningarsögulegt gildi hafa end- urminningar þessar, t. d. lýsingar höfundar á uppvaxtarárunum í Skagafirði, bændahöfð- ingjum þar, fræðimönnum og skáldum. Sama máli gegnir um frásagnir hans frá skólaárun- um í Reykjavík og Kaupmannahöfn, einkum er fróðleg lýsing hans á Reykjavík og lífinu þar á námsárum hans. 1 köflunum um skóla- árin er einnig lýst kennurum höfundar og skólabræðrum hans, og eru þær lýsingar margar hverjar sérstaklega athyglisverðar, ritðar af sanngirni og glöggskygni. Eftir- minnilegum og smúðarríkum myndum bregð- ur höfundur t. d. upp af þeim skáldunum Kristjáni Jónssyni og Gesti Pálssyni, sem báðir voru honum samtíða í skóla. Ekki mun það auðvelt að lýsa lundarfari Kristjáns og lífshorfi betur í einni setningu en hér er gert: “Hans ógæfa var, að hann sá aldrei sólskinsstundirnar í lífinu.” Að loknu háskólanámi sínu í hagfræði, gekk Indriði í þjónustu landsins og var embættis- maður þess í 40 ár, fyrst árum saman sem endurskoðandi landsreikninganna, , síðar skrifstofustjóri í Stjórnarráðinu, og átti einnig um skeið sæti á Alþingi. Gegndi hann embættisstörfum undir þrem landhöfðingjum og eftir það undir íslenzkum ráðherrum fram til 1918. Hefir hann því frá mörgu og næsta merkilegu að, segja frá embættistíð sinni, landshögum, stjórnmálum og þjóðlífinu í heild sinni. Er hinn mesti gróði að þeim frá- sögum öllum, ekki sízt hvað snertir fjármál landsins og annan hag, því að hann var þeim hnútum manna kunnugastur; hefir hann einnig, utan minninga þessara, ritað margt um íslenzka hagfræði. Agætar eru einnig lýsingar Indriða á yfirboðurum hans og öðr- um samverkamönnum frá embættisárunum, slíkum merkismönnum sem Arna landfógeta Thorsteinsson, og þeim landsöhöfðingjunum Hilmar Finsen, Bergi Thorberg og Magnúsi Stephensen; ber hann þeim öllum vel söguna, enda lætur hann engan þeirra manna, sem hann segir fró, gjalda skoðanamunar í þjóð- málum eða öðrum efnum. En ahugamál Indriða hafa náð langt út yfir svið embættisstarfa hans, fjármálanna. Hann hefir verið Good-Templar í meir en hálfa öld, og jafnhliða um langt skeið einn af helztu og kunnustu forystu- mönnum islenzkra bindindismála; gætir þeirra j>ví eðlilega drjúgum í æfimjnningutn hans. Annað er það þó; sem þar er enn þá fyrirferðarmeira: — leikhús og leiklist. Ekkert hefir verið Jndriða hugstæðara eða samgrónara. Til þess að sannfærast um það, þarí maður ekki annað heldur en að lesa minningakaflann “Er þetta ekki það mesta i heimi?” um áhrifin, er Oti- legumenn séra Matthíasar, fyrsta leikrit, sem Indriði sá leikið, höfðu á hann. Það var sem eldingu hefði slegið niður í sál hans; leikritaskáld- ið í honum var glaðvaknað, og hefir aldrei sofnað siðan. En það hefir verið um Indriða eins og fjölmarga fleiri andans menn, ekki sízt með þjóð vorri; hann 'hefir fram á síðustu ár, orðið að hafa hugstæðustu áhugamál sín í hjáverkum frá thnafrekum og á- byrgðarmiklum opinberum störfum. Þrátt fyrir þjið hefir honum auðnast að auðga íslenzkar bókmentir að eigi allfáum merkum frumsömdum leikritum; og hann hefir ennfremur séð rætast að nokkru leyti stærstu hugsjón sína: stofnun þjóðleikhúss á Islandi. Það menningarmál hefir hann öllum öðrum fremur borið fyr ir brjósti árum skman; og því er það einlæg ósk hinna mörgu vina hans og aðdáenda, að hann megi sjá þá hug- sjón rætast að fullu og öllu. Það væru nokkur laun þrotlausrar starf- semi hans að þvi márki. Indriði er þó eigi aðeins merki- legt leikritaskáld og helzti frömuður islenzkrar leiklistar. Hann hefir unnið stórvirki sem leikritaþýðari á islenzka tungu, með Shakespeare- þýðingum sinum, þó eigi séu þær enn komnar á prent. Hann hefir á siðustu árum — síðan hann varð sjötugur —- þýtt ekki færri en 14 merkisleikrit hins mikla enska rneist- ara. Þetta verk hefir verið þýðand- anum “andleg leikfimi” á kvöldvök- unni eftir langan starfsdag í þágu lands og þjóðar. Munu þess fá dæmi að maður svo háaldraður ráð- f ist i slíkt bókmentalegt þrekvirki; en það er einungis talandi vottur um ódrepandi lifsfjör Indriða, hinn síi- unga og æskuglaða anda hans. Hann minnti á það í ræðu á 75 ára afmæli sínu, að hann væri í raun og veru aðeins þrisvar sinnum 25 ára. Og nú, þegar hann er kominn hátt á níunda tuginn, er hann aðeins næst- . um þrisvar þrítugur. Ekki er eg í minsta vafa um, að lífsreglur þær, sem höfundur telur upp nær sögulokum, hafi átt sinn þátt í langlífi hans, og þær eru meir en þess virði, að athygli sé dregin að þeim: “Vertu eins og sólskífan, teldu aðeins sólskinsstundirnar, sem þú lifir, og mundu þær. Ýttu hinumi ti! hliðar í minninu. Hataðu aldrei nokkra manneskju. Hatrið eitrar sálarlíf þeirra, sem bera það í brjósti. Gerðu aldrei svo litið úr sjálfum þér, að þú öfundir nokkurn mann. Öfundin er marg oftast bygð á þekkingarleysi á hinum raunveru- legu kjörum annara. Hún veldur sjónskekkju, sem gerir þig óhæfan til að ráða góðum bjargráðum fyr- ir sjálfan þig og aðra. Hún gerir þig að minni manni en þú þarft að vera, að rniinni manni í þínum eigin augum. Þú ert þar sjálfur hæsta- réttardómari i þínu eigin máli.” Endurminningar Indriða eru því um ált hin gagnmerkasta bók, sem allir íslenzkir bókamenn og öll ís- lenzk lestrarfélög vestur hér ættu að eignast. Minningar þessar eru hvorutveggja i senn margþætt lýsing á íslenzku menningarlífi, og glögg mynd af fjölhæfum manni og at- kvæðamiklum, og sjaldgæfu glæsi- menni. Og þó eg sé gallharður Good- Templar, vil eg hjartanlega taka undir þessi ummæli dr. Nordals: “Ef það er ek’ki hneykslanlegt að kveða svo að orði um annan eins templara, þá finst mér vænst um bókina fyrir það, að bún geymir Týnið ekki verðmætum skjölum m Þér megið ekki við því að glata borg- arabréfi yðar, eldsábvrgðarskírtein- nm, eignarbréfum eða öðrum verðmæt- um skjölum. Slík skjöl ætti þér ávalt að geyma í yðar eigin öryggishólfi í Royal bankanum. Trygt öryggishólf er gert af stáli og geymt í bankanum,—enginn nema þér sjálfur getur opnað það, og það kostar innan við cent á dag. Biðjið útibús- stjórann að sýna yður eitt þessara hólfa. THE ROYAL BANK OF CANADA Eignir yfir $800,000,000 Indriða Einarsson í spíritus handa ókomnum kynslóðum. Það eiga margir mienn eftir að rétta úr sér og verða léttari í spori við að lesa hana.” Séð út um glugga — frá Osló til Þrándheims — Einhver ferðalangur hefir komist þannig að orði, að sá sem vilji kom- ast hjá því að sjá land það, sem hann fer um, skuli setjast í járn- brautarvagn og berast með honum um landið. Mig hefir lengi langað til Þránd- heims, þar sem svo margir Islend- ingar dvöldu ýmist lengur eða skem- ur á fyrri öldum, og líta þar yfir land og bæ. í síðustu utanför minni hafði eg aflað mér lítilsháttar er- lends gjaldeyris með fyrirlestrahöld- um og mér fanst þess vegna að eg mætti nú leyfa mér einhvern “þarfa” án þess að gera gjaldeyrisnefnd eða öðrum ennþá hærri stjórnarvöldum grein fyrir því. Og þar sem eg nú var staddur í Osló þá sagði eg við sjálfan mig: Þú skreppur norður til Þrándheims, því óvíst er að betra tækifæri gefist síðar.. Og sem sagt, svo gert. Og' ýtti ekki lítið undir mig að þarna fékk eg tíma og tæki- færi til að fara eftir endilöngum Guðbrandsdalnum og skoða hann út um gluggann á járnbrautarvagnin- um. Eg hefði nú auðvitað heldur kosið að fara fótgangandi, koma til bændanna, sem eru gildir búþegnar og gista hjá seljastúlkum um sumar- nætur. Ferðalagið hefði þá sjálf- sagt orðið ólíkt rómantískara en það varð. En til þess hafði eg nú engan tíma, enda var veturinn að byrja, fyrst í nóvember. Svo settist eg upp í lestina einn föstudagsmorgun um níu-leytið og svo höldum við út úr húsaþvögunni í Osló. Eftir um þriggja tíma akst- ur erum við komnir að Litlahamri. Þar eru á 6. þúsund íbúar. Þar býr Sigrid Undset. Þarna byrjar eigin- lega Guðbrandsdalurinn. Litlihamar liggur yndislega, móti austri, húsin eru ekki stór. Þarna við bæinn eru hin Skandinavisku söfn, þar sem sjá má alt viðvíkjandi menningu bænd- anna, hús og búshluti, sem hvort- tveggja eru listaverk sem þjóðin má vera hreykin af. Það ætla eg að skoða á leiðinni til baka. Fyrir neðan bæinn er stöðuvatnið Mjösna, langt og mjótt og til mikillar prýði. Litli'hamar er eini stóri bærinn í dalnum og þar er mikil verzlun og iðnaður og straumurinn af ferða- fólkinu berst þangað allan ársins hring. Á vatninu fljóta trjástofnar. sem fleytt hefir verið efst úr dölum og berast nú með hinum hæga straumi niður að sögunarverksmiðj - um og borðabunkarnir standa alt í kring um þær. Og þarna eru aðrar verksmiðjur sem vinna úr viðnum ýmiskonar gagnlega hluti og nyt- samleg efni. Þannig skapar skóg- urinn vinnu og vellíðan í landinu. Gott eiga þeir bændurnir í Guð- brandsdalnum — og yfirleitt í Noregi, þar sem ekki þarf annað en ganga út í skóg og fella tré á eigin landi til húsabygginga og annars, sem, með þarf. Og ólíkt standa þeir betur að vígi en íslenzku bændurnir, sem verða að kaupa hverja spýtu fyrir beinharða peninga. Ekki að furða þó bær bóndans hér sé Jág- reistari en þar. Þó hefi eg oft dáðst að hinum gömlu bæjum íslenzku bændanna. Þar var farið viturlega og sparlega með hið dýra aðkeypta efni og bæirnir gömlu voru margir fagrir útlits, með prýddum vind- skeiðum og voru í fullu samræmi við okkar dýrðlegu náttúru. Enda kom enginn prófessor nálægt þeim. Það er tap að þeir skuli vera að hverfa og sumir þeirra ættu skilið að geym- ast á “útisafni” nálægt höfuðstaðn- um. Við þurfum að eignast slikt safn þar sem alt er saman komið sem kemur hinu daglega lífi almúg- ans við. Vernda það þjóðlega, góða sem eftir er. Það er ekki staðið lengi við i Litlahamri. Skafnt þar fyrir ofan, liggur afdalur í vesturátt, þar er Aulestad, óðal Björnstjerne Bjöm- sons. En ekki sézt þanað út uni\ gluggann. Svo mjókkar Mjösna Og Lögurinn tekur við. Nú erum við komnir í sjálfan dalinn. Næsta stöð heitir Fáberg. Þaðan liggur vegur upp í Gausdalsbygðir og til Jötun- heima, hrikafjalla, eins og nafnið bendir til. Lögurinn er grágrænn á litinn, af jökulvatni, meðfram hon- um þýtur lestin og framhjá Hunder- fossi, frægum veiðistað, enda er þar veiðilegt, það sér maður fljótt, þó lestin hraði sér. Fyrir ofan og neðan er skógur. Þungbúið dökkgrænt greni og þöll á bergi, en, hin sígræna, breiða lífgast upp með ljósari litum. Það er björkin hvítstofnaða sem veldur því og elmir og ösp. Er ekki björkin • fegursta tré skógarins, sumar og vetur? Svo mun víst mörgum finn- ast. Á vatnsbakkanum standa svo lægri runnar. Lauftrén hafa felt blöðin sín, en þó finst mér ekki beint vetrarlegt, það gerir grenið og furan. Eg hirði ekki um að nefna nöfn járnbrautarstöðvanna, því þær eru

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.