Lögberg - 03.03.1938, Síða 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3. MARZ, 1938
N'ÚME R 9
Or borg og bygð
ENGEL LUND og DR. EERDINAND RAUTER
Engel Lund, nafnkunn söngkona af dönskum ættum, en fædd á
íslandi, heldur söngsamkomu undir umsjón Women’s Musical
Club, á mánudaginn þann 7. þ. m., í söngsal Winnipeg Auditorium,
kl. 3 siÖdegis. Dr. Ferdinand Rauter verÖur viÖ slaghörpuna.
Engel Lund er víðfræg fyrir þjóðvísnasöng; hún syngur rneðal
annars að þessu sinni eftirgreind, íslenzk þjóðlög: Fífilbrekka
gróin grund; l>í. bí og blaka, og Það er svo margt, ef að er gáð,
o. s. frv.. i skrautbúningi prófessor Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Aðgöngumiðar kosta $1.00, og fást við innganginn.
Ljóðför
(Lesið á Frónsmóti 1938)
Úr fábreytni hversdagsins leitar mitt ljóð
til landsins, sem andann því gaf;
Það finnur sitt eðli í öræfabygð
og alt, er í gleymskunni svaf.
Það spyr ei til átta þó óveður sé
og umhverfis lýsi’ ekki neitt,
en ferðast í örvggi uppruna síns,
sem aldirnar fá ekki breytt.
Og rafvængjað klýfur það rastirnar heim
hvort rökkvuð er nótt eða björt.
í brjóstfylking lífsins það leiðir það fram,
er leynt höfðu óminnin svört.
Það skilgreinir guðseðli moldar og manns
og mótast af langdægra þrá,
og lýkur upp hliðum að helgidóm þeim,
sem heimurinn fegurstan á.
Þó misgreið sé förin þá f jötrar ei neitt
hið fundvísa, íslenzka ljóð;
það gerkannar auðnanna ómælis rúm
og eldvígða sögunnar slóð.
í heiðskygni andans það evgir þau lönd,
er ódreymi tímanna fól,
og blessar in hrímguðu heimalands vé
við hækkandi stjörnur og sól.
I brimstuðlum ljóðsins býr eilífðar afl
og eldur liins norræna manns;
það húmvöku breytir í hábjartan dag
frá hafi til Bláskóga ranns.
Það finnur í guðsdraumi frumleika sinn,
sitt flug og sitt ólgandi blóð.
Þess upphaf er morgunsins upprisu skin,
en ívafið náttmála glóð.
Úr ljóðför að heiman mitt ljóð kemur enn
og lýsir upp bersvæði kunn;
í íslenzkri nýsköpun nemur það lönd,
sem nærast við hjarta míns grunn.
Eg geng með því aleinn minn órudda veg
um urðir og hrikaleg fjöll.
Alt lýtur að endingu lögmáli því,
sem ljóðinu haslaði völl.
1 ___________ Einar P. Jónsson.
hljómboðar
Þessi undurfagra mynd er af fag-
urgerðu dómkirkju líkani, mótuðu í
snjó^ eða klaka, sem Mrs. G. J.
Johnson (Kristín Valgarðson) 109
Garfield Street hér í borginni, hefir
gert framan við heimili sitt, sem
þátttakandi í snjólíkana samkepni
þeirri er blaðið Winnipeg Free Press
á frumkvæði að. Þessi klakakirkja
frú Kristínar er 7ý^ fet á lengd,
MA fet á breidd, en sex fet á hæð.
Framan við kirkjuna er fagur
blómagarður, ásamt tveim tiguleg-
urn grenitrjám; er litblöndun öll svo
eðlileg, að áðdáanlegt verður talið;
blandaði frú Kristin í vatn þeim
ýimsu litum, er þurfa þótti í skraut-
tigla, súlur og línur, og frysti svo í
kæliskáp. og meitlaði því næst niður
hvern hlut út af fyrir sig; tók það
hana átta daga látlaust starf að full-
komna þessa meistaralegu töfra-
kirkju sina, sem í ljósadýrð kvelds-
ins hefir dregjð að sér múg og
margmenni. í hliðstæðri samkepni
í fyrravetur, vann frú Kristín 2.
verðlaun fyrir snjólíkan af veglegu
Austurlanda musteri.
Mr. Ófeigur Sigurðsson frá Red
Deer, Alta., dvaldi í borginni meðan
þjóðræknisþingið stóð yfir.
Mr. Grímur S. Gríinsson frá
Gimli var einn þeirra mörgu utan-
bæjargesta, er sátu nýafstaðið þing
Þjóðræknisfélagsins.
Tíhe Senior Choir of the First
Lutheran Church will hold an At
Home and Silver Tea, in the church
parlors, on March I7th.
Dr. D. C. M. Hlallson, 2Ó4 Har-
grave Street, er nýlagður af stað
suður til Georgia til framhaldsnáms
í skurðlækningum. Værður hann
að heiman um óákveðinn tíma.
Mr. og Mrs. F. Stephenson, Ste.
5 Baldwin, Apts., lögðu af stað
austur til Toronto á laugardaginn
var í heimsókn til dóttur sinnar og
tengdasonar, Mr. og Mrs. John
David Eaton.
Mr. Guðmundur S. Grimson hér-
aðsdómari frá Rugby, N. Dak.,
dvaldi í borginni yfir þjóðræknis-
þingið. Með honum kom systir
hans Mrs. Friðrik Reinholt frá
Grand Forks.
Fundi, sem ákveðið haf ði verið að
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnað-
ar héldi þann 3. þ. m., hefir verið
frestað til þess 10. þ. m., og verður
þá haldinn i samkomusal kirkjunnar
kl. 3 síðdegis.
The Men’s Club of the First
Lutheran Chuach will hold a dinner
meeting tonight, Thursday, March
3rd, at 6.30 p.m. The past presidents
of the Club will act as hosts and
the members of the club are invited
to a free dinner meeting. All mem,-
bers must þhone in their reserva-
tions if they intend to attend, to the
president, Norman Bergman, 39 043.
Col. H. M. Hannesson will be the
guest speaker and Mr. J. J. Swan-
son, second president of the Club
will preside. Rev. Eylands will
be introduced to the Club members
and all mamlbers are urged to accept
this invitation of the past presidents.
J. M. DAVIDSON,
Mr. Davidson, sem verið hefir
framkvæmdarstjóri við Manitoba
Industrial Development Board frá
upphafi þeirrar stofnunar, hefir nú
látið af þvi starfi, en tekið í þess
stað við féhirðissýslan hjá North-
Wést Laundry Limited hér í liorg-
inni, í félagi við bræður sína, sem
veitt hafa því fyrirtæki forstöðu.
Mr. Davidson á jafnframt framveg-
is sæti í fratnkvæmdarnefnd Mani-
j toba Industrial Development stofn-
j unarinnar.
Dr. Ingimundson verður staddur
í Riverton á þriðjudaginn þann 8.
þessa anánaðar.
Séra Valdimar J. Eylands frá
Bellingham, Wash. e,r væntanlegur
til borgarinnar um þessar mundir.
Heimilisiðnaðarfélagið heldur sinn
næsta fund að heimili Mrs. Hannes
J. Lindal, 912 Jessie Ave., á mið-
vikudagskveldið 9. þ. m., kl. 8.
ATHYGLI
Fundur verður í St. Heklu í kvöld
(fimtudag), og svo annan hvern
fimtudag, eins og að undanförnu.
íslenzk öldruð kona vön hús-
i
verkum, óskast á fáment heimili
skarnt frá Wynyard. Upplýsingar
að Box 122, Wynyard, Sask.
A meeting of the Young Peoples
Society of the First Lutheran
Church will be held on Monday,
March 7. This meeting will take
the form of a hike — weather per-
mitting. All those wishing to attend,
please, get in touch witli Marvin
Haldorson.
On Monday, March 14, Magistrate
P. B. Graham will address the
Young People’s Society. All young
people are welcome.
í. • -----------------
OFT ER ÞÖRF EN NO
ER NAUÐSYN
Með því að nú er tekið að síga á
seinni hlutann fram til næsta kirkju-
þings, er hér með skorað á þá kaup-
endur Sameiningarinnar, sem enn
hafa ekki greitt áskriftargjöld sín,
að bregðast skjótlega við, og senda
þau nú þegar til féhirðis,. Mrs. B.
S. Benson, 695 Sargent Avenue,
Winnipeg. Hver einasti og einn
kaupandi verður að vera skuldlaus
við Sameininguna er næsta kirkju-
þing kemur saman!
The Wánnipeg Chamber Orchestra
sem Mr. Frank pianokennari Thor-
olfson stofnaði og stjórnar, efnir til
hljómleika í Fyrstu lútersku kirkju
þriðjudaginn þann 22. þ. m., kl. 8.30
e. h. Til aðstoðar við þessa hljóm-
leika verða Pearl Johnson, Irene
Diehl og Bohdan Lechow. Mr.
Thorolfson er ágætur sönglaga höf-
undur og hljómsveitarstjóri, og má
því ganga út frá þvi sem gefnu, að
þessi sámkoma hans verði fjölsótt.
I síðasta blaði var þess getið, að
haldin yrði “Old Titners” dans-
skemtun í Árborg til arðs fyrir
lestrarfélagið þar á staðnum. Þess-
ari samkomu hefir verið frestað til
föstudagskveldsins þann 11. þ. m.,
og eru íslendingar í Árborg og grend
vinsamlegast beðnir að veita þessari
breytingu fyigstu athygli og fjöl-
menna hið bezta á samkomuna.
EMBÆTTISMENN
ÞJÓÐRÆKNISFELA GSINS
Á þinglokadegi voru eftirgreindir
menn kjörnir í framkvæmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins fyrir nýbyrjað
starfsár:
Dr. Rögnv. Pétursson, forseti.
Dr. Richard Beck, vara-forseti.
Gísli Jónsson, skrifari.
B. E. Johnson, vara-skrifari.
Árni Eggertsson, féhirðir.
Ásmundur P. Jóhannsson, vara-
féhirðir.
Guðmann Levy, fjármálaritari.
Séra Egill H. Fáfnis, vara-fjár-
málaritari.
W. S. Melsted, skjalavörður.
Yfirskoðunarmenn: Grettir Jó-
hannson og Steindór Jakobsson.
Sönglög eftir Þórarinn Jónsson
Þessi nýútkomna sönglagabók
inniheldur 40 sönglög við ágætis-
kvæði merkra skálda austan hafs og
vestan. Þau eru öll þýð og songhæf,
á mátulegu raddsviði fyrir alþýðu-
söng og undirraddirnar svo auðveld-
ar, að liver sá, sem eitthvað leikur á
stofuorgel eða pianó, getur haft
þeirra full not. Prentun er skýr og
góð aflestrar, og svipar mjög að
frágangi.til alþýðusöngvanna ís-
lenzku, sem sumir nefna “Kinda-
bækur” eða “Fjárlög,” þó stærri í
brotum, Þessi bók er góð viðbót
við íslenzka alþýðusöngva, og ætti
að vera kærkominn gestur allra sem
hljóðfæri hafa og heimilissöng iðka.
Örfá eintök hafa borist hingað
vestur, og verða send eftir pöntunum
aðeins. Þau fást hjá ritstjóra Lög-
bergs, E. P. Jónssyni, og ritara
Þjóðræknisfélagsins, Gísla Jónssyni,
906 Banning St., Winnipæg, og
Magnúsi Peterson, 313 Horace Ave.
Norwood, Man.; kostar p>óstfrítt
2 dali.
Pílagrímar
(Flutt á Frónsmóti 1938)
Sé eg líkt og fjöll í fjarska,
fvlking prúða líða hjá,
pílagríma jiúsund þreyta
þunga göngu tinda á,—
vökumenn og vormenn þjóða;
vonardirfska skín af brá,
Meðan lýðir morgunsvæfir
mæddust þrældóms hlekkjum í,
þoka heimsku* og hindurvitna
höfug grúfðí eins og blý,
vonadjarfir vorsins synir
vökuljóðin sungu ný.
Líf og blóð þeir vormenn vígðu
vonum betri þjóðarhags,
trúir hugsjón hárri reyndust
hinsta fram til sólarlags;
þeirra Mekka:—munarljúfur
morgunroði nýrri dags.
Mörkuð enn í alda fannir
eru þeirra blóðug spoi;,
vitna’ um stóra vökudrauma
vorsins sona, trú og þor;
yfir breiðan ára sæinn
ómar þeirra rödd til vor.
Hver, sem eyru hefir, heyri
hreina, djúpa eggjan þá—
sterka eins og brim á björgum—
berast yfir tímans sjá:—
Staf þinn gríp og stefndu glaður
stærstu drauma tinda á.
Richard Beck.
Remembrance
By Helen Swinburne
I bend above the sparkling pool
Where deeply flowetli memory’s well:
I fill my cup unto the full
Therewith: I drink the water cool
and fall beneat.h its mystic spell.
# # #
Like summer with its flowery ways
And leafage green and scented air,
Like summer with its lilting lays,
Remembrance of sweet yesterdays
To me returneth passing fair.
Mirrored before mine eyes, appear
The faces that I used to know;
And echoed from the past I hear
Words and laughter — ah, how dear
Those happy days of long ago.
Like summer with its azure sky,
Its golden light beyond eompare
And warm winds that gently sigh,
Remembrance of the days gone by
To me returnetli passing fair.
Kvæði þetta helgar höfundurinn, Helen Swinburn-Lloyd,
hálfrar-aldar minningarblaði Lögbergs. Helen er dóttir prófessor
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds og frúar hans, Eleanor
Sveinbjörnsson; hefir hún ort fjölda mildra og blæfagurra ljóða,
er minna, mörg hver, ljóslega á hinn islenzka uppruna hennar í
föðurætt.—Ritstj.