Lögberg - 17.03.1938, Síða 3
LÖGBBRG, FIMTUDAGINN 17. MARZ, 1938
3
Jórsala meS konunglegri makt. Eftir
svartadauÖa lendir auðurinn í land-
inu í fárra manna höndum og verð-
ur þá auður og örbirgð í landi. Bisk-
upsstóll var settur í Skálholti 1056,
en á Hólum 50 árum síðar. Voru
hinir fyrstu biskupar mestu ágætis
menn, og þrátt fyrir alt og alt voru
biskupsstólarnir mesta menningar-
sl'agæð landsins, alt í gegnum sög-
una, og fyrir utan flesta hinna út-
lendu biskupa, sátu í því embætti
fjölmargir af landsins hæfustu
mönnum. Biskupssetrin voru höf-
uðból og allmikil menning þroskaðist
í skjóli þeirra í gegnum svarta myrk-
ur þessara alda.
Siðskiftin komust á um land alt
um miðja 16. öld, með aðstoð kon-
ungsvaldsins( eftir mikla baráttu, en
Jón biskup Arason er mest kvað að
af öllum biskupum í katólskum sið,
var hálshöggvinn ásamt sonum sin-
um í Skálholti, án dóms og laga, og
verður sá svarti blettur seint skaf-
inn af löndum hans. Var sú bar-
átta á Islandi frekar af pólitískum
en trúarlegur rótum runnin, en ekki
batn'aði hagur lands og þjóðar er
alt lenti undir hið konunglega vald.
Áhrifamestir allra biskupa i lútersk-
um sið voru þeir Brynjólfur Sveins-
son í Skálholti og Guðbrandur Þor-
láksson á Hólum, en skærasta ljósið
sem skein í gegnum myrkur þessara
alda var séra Hallgrímur Pétursson
sálmaskáldið kröftuga og andríka,
sem söng svo vel að “sólin skein i
gegnum dauðans göng.” 1 þrjár ald-
ir hefir ljós hans lýst íslenzkri þjóð,
°& þó ýmsir rithöfundar samtíðar-
innar hafi reynt að rýra gildi hans,
þá stendur sá bautasteinn sent hann
reisti þegar þeir verða gleymdir og
horfnir í tímans djúp.
Á seytjándu öldinni eru Svalbirð-
ingar á Norðurlandi áhrifamikill
kynstofn, sem rís hátt i sögu lands-
ins; höfðingjar tniklir og vitmenn.
1 byrjun seytjándu aldar ber mest á
Oddi Sigurðssyni, mestu ráðandi í
landinu um skeið, vitur maður og
glæsimenni með afburðum, en barn
sinnar tíðar, ógæfan bar hann fyrir
borð; ógæfu fslands hefir margt
orðið að vopni. Þá var hinn mál-
snjalli skörungur Jón biskup Vídalín
spiltist af aldar og tíðarandanum.
Fyrst fer að rofa til í íslenzkri
sögu er Skúli Magnússon ris til
hæstu tignar í landinu. Fyrsti for-
inginn og leiðtoginn í hinni nýju
sögu íslands, ber hann höfuð og
herðar yfir þjóðsína á síðari hluta
átjándu aldar, er hann óefað mesti
ntaður þeirrar aldar, en hann átti
við raman reip að draga.
Nítjánda öldin er öld endurreisnar
og öld ljóðlistar; aldrei hefir skálda-
bekkurinn verið betur setinn, hvert
stórskáldið öðru kröftugra og ekk-
ert hefir vhkið þjóðina betur til
meðvitundar um sjálfa sig en kyngi-
kraftur ljóðlistarinnar. Jónas Hall-
grímsson yrkir herhvöt til þjóðar-
innar með kvæðinu “ísland, farsæld-
ar Frón” og Fjölnismenn töluðu af
krafti svo þjóðin rumskaðist. Svo
kemur þjóðhetjan Jón Sigurðsson.
Séra Matthías, Jón Ólafsson og Ei-
ríkur Magnússon í Cambridge eru
sent eldibrandar í hinni íslenzku
frdsisbaráttu. Þúsund ára hátíðin
og stjórnarbótin er vísir og forboði
meira frelsis og sjálfstæðis, og loks
með Hannes Hafstein í broddi fylk-
ingar fagnar land og þjóð 20. öld-
inni og ísland verður sjálfstætt ríki
1918. Hér er fljótt yfir sögu farið.
En nú mun einhver spyrja: Því er-
um við að hugsa um ísland? Því
að hugsa um fortíðina? Því að líta
til baka? Sá sem það gjörir verður
að saltstólpa. Því ekki að lát hina
dauðu grafa sína dauðu? Því ekki
heldur að horfa frarn á veginn? En
því er að svara, að bezt er að sern
mest sé samræmið í fortíð, nútíð og
framtíð. Eg trúi þvi ekki að við
verðum að saltstólpa eða steingjörv-
ingi þó við ausum af lindum for-
tíðarinnar. Sá, sem ekki gjörir það,
verður andlaus strandaglópur; hann
tapar allri kjölfestu og berst sem
rekald í tímans djúpi.
Það líður óðfluga að þvi að við
Vestur íslendingar sem heild hverf-
um úr sögunni, töpum tungu og
þjóðerni, en við skulum vinna meðan
dagur er og það er enn langt til
kvölds, ef vel er barist. *
En spursmálið fyrir okkur er ekki
það, að við lifurn sem Islendingar
um aldur og æfi, heldur hitt rniklu
fremur, að við vinnum okkur og ís-
lenzkri þjóð þann orðstýr, sem er
sæmilegur mönnunt af norrænum
stofni. Við skuldum íslandi það og
við skuldum okkar kæru fósturlönd-
um það. Við skulum ekki fljóta
sofandi að feigðarósi. Við skulum
berjast á móti straumnum, vera
duglegir, áreiðanlegir, staðfastir og
trúir hvaða verkahring sem við
störfum í( hugsjónaríkir og viðsýnir.
Það er hverju orði sannara að af
dáðleysi foreldranna í dag súpa
börnin á niorgun, eins og Steingrím-
ur skáld komst svo snildarlega að
orði: “Feðranna dáðleysi er barn-
anna böl og bölvun i nútíð er fram-
tíðar kvöld.”
Eg ætla að ljúka máli mínu með
því að minna ykkur á nokkrar vísur
eftir Stephan G., kraftaskáldið vest-
ur-islenzka, er hann skrifar kunn-
ingja sínum er heima á í sól og
suntri suðursins, og dýrkar það:
Þú krymlar þér hálfgjört við kuld-
ann hér nyrðra
og klökugu fjöllin sem girða mann
af;
unir þér betur við sólskinið syðra,
sumarið lang og brima sælt haf.
En klakann og mjöllin met eg þér
betur,
mjallar og klakans eg fósturbarn er.
Eg á í æfinni oftast nær vetur
enn fleiri en sumrin mín hvernig
sem fer.
Eg veit það er indælt við sækyrra
sanda
að sitja og hvílast þar ládeyðan felst.
En þar ætti eg landnám sent lang-
flestir stranda,
ef liðsint eg gæti eg bygði þar helzt.
Eg veit það er lánsælt að lifa og
njóta,
að leika og hvílast þar hugurinn kýs;
en mér finst það stærra að stríða og
brjóta
í stórviðrum Sefinnar mannrauna ís.
Þann ferðamann lúðan eg lofa og
virði,
er lífsreynslu skaflana brýtur á hlið,
og réttir svo mannlífsins mannrauna
byrði
á langþreyttar axlir og kiknar ei við.
Of oft fanst mér vorbatans viðtakan
blíðust
þá vetrarins langslæðan nærseildist
til,
kveldskinið rósamast, hvíldin sú
þýðust,
er kom þegar slotaði dimmviðra byl.
Þetta kvæði ættu allir íslendingar
að kunna; þetta kvæði ættu allir
íslendingar að lesa eins og bænirnar
sínar og læra af því að lifa.
Hipn heimsfrægi læknir Dr.
Walter Reid sem var Biandaríkja-
maður, sem fann orsök gulu-veik-
innar og sem dó á bezta aldri fyrir
of mikla árenyslu, skrifaði konunni
sinni skömmu áður en hann dó og
lofaði hamingjuna fyrir það að hon-
unt hefði auðnast að vinna verk,
sem þjóð sín og mannkynið hefði
blessun af. Sú hugsun ætti að vera
ríkjandi hjá hverjum manni. Við
Vestur-íslendingar ættum að hafa
hugsjón svipaða og þessi merki
læknir, leggja fram krafta okkar sem
einstaklingar hvar sem við erum, og
þó /sérstak’lega í sameiningu sem
bræðrafylking. Við höfum fengið
góðan orðstir, en höfum lagt okkur
of mikið eftir loíi og hrósi. Við
eigum mikla krafta og vit, sent fer
forgörðum vegnar sundurlyndis,
andvaraleysis og framtaksleysis.
Við þurfum að vekja þá til lifs og
starfs og gleyma þvi ekki að við
ihöfum köllun.
Frétt frá Betel
Staðhæfing sú ,mun ekki úr lausu
lofti gripin, að elliheimilið Betel á
Gimli, sé með hinum allra vinsælustu
stofnunum okkar Vestur-Islendinga,
—og jafnvel kannske hin vinsælasta.
Gjafir og tiðar heimsóknir fólks til
stofnunarinnar, og hlý umtnwli í
hennar garð úr svo mörgum áttum,
auk þess að ætíð er fyrirliggjandi hjá
stofnun|arinnar, og hlý ummæli í
af umsóknarskjölutn frá tilvonandi
vistfólki, eru sönunnarmerki þess,
að Betel á góð og mikil ítök hjá al-
ntenningi vorum.
Nafnið Betel þýðir; himins hlið,
—og mun það næstum einrónta álit
vistmanna, að heimilið verðskuldi
þetta fagra nafn. Öllum þykir vænt
um forstöðukonuna, Miss Ingu
Johnson, og lúka lofsorði á heimilis-
stjórn hennar. Stundunt geri eg mér
far um að spyrja gamalmennin að
þvi einslega, hvernig þau kunni við
sig á Betel. Ætíð er svarið það, að
aðhlynning þar sé svo góð, að þeim
gæti tæplega liðið betur annarsstað-
| ar. “Það væri eitthvað alvarlega
rangt við þann mann, sem ekki væri
ánægður á Betel,” sagði einn öldung-
nrinn. Nýlega er á “Heimili hins
j fagra sólseturs” (eins og Dr. Stew-
■ art sál. frá Ninette nefndi BeteD
! kominn 99-ára öldungur frá Norður
Dakota; og segist hann sjá eftir því
að hafa ekki komið fyr en hann
gerði. Fyrir aldur sinn hefir mað-
ir þessi góða sjón og heyrn, er minn.
isgóður, — og kann líka heldur
betur en mannganginn á taflborði,
eins og hann sýndi og sannaði hér
einu sinni í vetur. Endist honum
áldur til 14. desemlter n.k., heldur
liann aldarafmæli sitt.
Síðastliðið ár var }mikið heitn-
sóknarár í sögu heimilisins. Sam-
kvæmt uppteknum hætti, komu
kvenfélög bygðar og borgar með
marga broshýra gesti, gómsætar
veitingar, hljómfagran söng og inni-
lega hlýjar kveðjur; er heimilisfólk-
inu ætíð mesta ánægja að þessum
gleðiimótum. Mun víst aldrei hafa
verið f jölmennari heimsókn að Betel,
en þegar kvenfélagið “Framsókn” á
Gimli troðfylti salinn þ. 1. marz í
fyrra. Bændakvenfélagið frá Min-
erva skólahéraði við Gimli kom
skömmu síðar, þ. 25. s. m. “Sigur-
von” kom frá Húsavík þ. 3 júní.
Svo um miðsumarleytið, 15. júlí,
kontu kvenfélagskonur Fyrsta lút-
erska safnaðar frá Winnipeg.
Með Winnipeg kvenfélaginu kom
hin vinsæla og góða söngkona, frú
Sigríður Olson, og skemti með in-
dælum síng. Lét hún heldur ekki við
það sitja að koma einu sinni, en kont
að vörmu spori þ. 28. júlí, og með
henni ungfrú Snjólaug Sigurdson,
organisti Fyrsta lút. safn. Settu þær
upp þarna frábærlega góða söng-
samkomu, eins og vænta mátti af
þessurn siú'ldar listafkonum. Þrír
afbragðs söngmenn hafa og skemt
gamla fólkinu með list sinni á þessu
tímahili. Eru þeir: Ólafur N. Kár-
dal á Gimli, séra Egill H. Fáfnis frá
Glenboro, og Pétur Magnús, söng-
stjóri Sambandssafnað^r í Winni-
peg. Ekki eru þó þar tneð upptaldir
allir söngmennirnir, sem á árinu hafa
komið( sungið og sigrað á Betel.
Karlakór Islendinga í Wirtnipeg,
undir stjórn Ragnars H. Ragnar,
var einnig kærkominn gestahópur,
sent veitti heimilisfólkinu ógleyman-
lega gleðistund.
Meðan á kirkjuþingi stóð á Gimli,
s.l. suinar, var gestkvæmt mjög á
Betel. Auk þess að margir kirkju-
þingsmenn litu þar inn stýrðu fjórir
prestar til skiftir morgunguðræknis-
stund á heimilinu. Voru þeir: Séra
Sigurður Ólafsson, Séra H.araldur
Signtar, séra Valdimar J. Eylands
og séra Rúnólfur Marteinsson. Séra
B. B. Jónsson, D.D., flutti prédikun
þar kirkjuþingssunundaginn( en séra
Jóhann Bjarnason stýrði tnessuhald-
inu. Máunadginn 20. júní sýndi
séra V. J. Eylands prýðilega góðar
skuggamyndir frá íslandi.
Margir aðrir góðir gestir komu
þetta síðastliðna ár, og sumir þeirra
mjög langt að, eins og Guðm. hér-
aðsdóntari Grímsson frá Rugby,
N.D., Hjörtur Thordarson, rafur-
magnsfræðingurinn frægi, frá Chi-
cago, og fröken Halldóra Bjarna-
dóttir frá íslandi.
Heimsóknir “sem í frásögur eru
færandi” eru og tíðar á þessu yfir-
standandi ári. Séra Guðm. P. John-
...
Announcing the Opening of . . .
The SALAD BOWL
RELIABLE FRUIT AND VEGETABLES
798 SARGENT AVENUE
(Opp. The Rose Theatre)
Plione 35 887
A. ODDY
Everything for a Crisp Salad . . . We have Fresh Orange Juice
and Grape Fruit Juice . . . while you wait.
Fancy Fruit Baskets Our Specialty — Kraft Products
Prompt Dclivery Service
Don’t Miss the Opening Date — March 15
I THOSE WHOM WE SERVE j
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING H
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS H
BECAUSE- |
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- =j
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF Sj
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER ^
WE DELIVER. * =§
| COLUMBIA PRESS LIMITED |
= 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327
son flutti prédikun við heimilismessu
2. janúar, og sýndi íslenzkar skugga-
myndir næsta dag. Brigadier H. C.
Habkirk, foringi í Hjálpræðishern-
um, leit inn um miðjan s.l. mánuð.
Ófeigur Sigurdson( frá Red Deer,
Alta., og Guðm. dómari Grímsson
stóðu við um stund þ. 24. febr. Mik-
ið fagnaðarefni fyrir heimilisfólkið
var það, er dr. Brandson var svo vel
til heilsu kominn eftir sjúkdómslegu
ekki alls fyrir löngu, að hann gat
heimsótt á ný ‘‘heimilisbörnin” sin á
Betel.
Kvenfélagið “Gimli Women’s In-
stitute,” sem samanstendur bæði af
íslenzkum og annara þjóða konum,
hafði glaða stund með vistfólkinu
þ. 5. febrúar, en á afmælisdegi
Betel, þ. 1. marz, kom kvenfélag
Gimli lúterska safnaðar, “Fram.
sókn.” Hafa konur þessar síðar-
nefndu hertekið afmælisdaginn til
árlegrar Betelheimsóknar. Heimsókn
þeirra nú var hin ánægjulegasta í
alla staði. Séra B. A. Bjarnason bar
fram kveðju kvenfélagsins, frú Lára
Tergesen las fagurt ávarp, frú
Christiana O. L. Chiswell bar fram
ljóð snildarlega vel, og Lárus Árna-
son þakkaði kvenfélaginu fyrir hönd
heimilisfólksins með vel völdum
orðurn.
Hinn ungi og ágæti tenór-söngv-
ari, Ólafur N. Kárdal á Gimli, hefir
söngsamkomu árlega á Betel. Var
hann þar kærkominn gestur þ. 4.
marz s.l., og söng þá “eins og sá sem
vald hefir.” Undirspilið annaðist
ungfrú Sylvia Thorsteinsson. Eru
þau bæði, Ólafur og Sylvia, nýkom.
in heim eftir sex mánaða nám á
fjarlægutn stöðum. Var ungfrúin
við Toronto Conservatory of Music,
þar í borg, og útskrifaðist hún með
heiðri og sóma: en Mr. Kárdal
hlýddi málshættinum fræga, “Go
West, young man; go west,” og tók
sitt fullkomnunar náim i Bellingham,
Wash. Hin frábærlega góða fram-
koma þessa unga og gáfaða lista-
fólks veitti Betel-fólki uanðsrika
stund, sem seint mun úr minni líða.
B. A. B.
Business and Professional Cards |
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834-—Office tlmar 2-3 Heimili: 214 WAVERLET ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK SérfrœCingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofuslml — 22 261 •Heimili — 401 9»1 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson ViCtalstlmi 3-5 e. h. 218 SHERBURN ST. Slmi 30 877 Dr. D. C. M. Hallson Stundar skurðlækningar og almennar lœknlngar 264 HARGRAVE ST. —Gegnt Eaton’s— Winnipeg Slmi 22 775
DR. A. V. JOHNSON Tannlæknir 212 Curry Bldg., Winnipeg (Gegnt pósthúsinu) Sími: 96 210 - Heimils: 28 086 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlceknar 4 06 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEO
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
• H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögfrœOincrur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. íslenzkur lögfrœðingur 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phon« 9 4 668
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Ijindal, K.C., A. Buhr Bjöm Stefánsson Telephone »7 621 Offices: 325 MAIN STREET
BUSINESS CARDS
PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver
A.S.BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaCur s& bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legstelna. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talslmi: 601 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEQ Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægl. PHONE 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fastelgnir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og blf- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pægilegur og rólegur bústaOur < miObiki borgorinnar. Herbergi $2.00 og þar yflr; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Agætar máltiðir 40c—60c Free Parking for Ghuests