Lögberg - 07.04.1938, Side 7

Lögberg - 07.04.1938, Side 7
JLÖGBERG, FIMTUDAGÍNN 7. APRÍL, 1938 7 “Eg hefi ekki spurt hann að því, en eg get hug-sað mér það. Hann hefir komið tvisvar til Caen, og hann kom með mér til Honfleur. Hann hefir hlotið að þekkja þorpin og með sinni undrunarverð'u skynsemi ratað af sjálfsdáðum veginn á milli. Það er eftir alt varla tuttugu mílur eftir veginum, og fyrir hann svo þrekmikinn og ákveðinn, hefir ekki verið mikið að ganga það; hann hefir sjálfsagt gert meiri þrekvirki um dag- ana. En af því hann var peningalaus, hefir verið erfitt fyrir hann að ná í mat. Honum liefir verið úthýst alstaðar, og hann var því nærri dauður úr hungri þegar hann kom; en nú er hann búinn að ná sér, eins og þú getur séð.” “Já, eg gæti hugsað að honum þætti vænna um eldhúsið þitt en mitt á skipinu L’Utile og eg efast um að liann biðji mig um far bráðlega aftur. ” “Eg held, ábyggilega,” sagði Pigault um leið og hann kvaddi kaftein Paris, “að Zero og eg verðum á landi það sem eftir er dag- anna.” Þannig endaði saga þessa undraverða hunds kafteinsins. Þegar tímar líða verður hún sjálfsagt sögð sem munnmælasaga, en aðaldrættirnir ættu að verða þeir sömu og mínir. Zero lifir enn, og er meðal vina sinna. Þeir sem dvelja við baðstaðina að Villirs og Honlgate og fara til Grace hæðarinnar, sjá í garði livíta hússins, sem er nærri altaf opið, fallegt barn, tveggja ára gamalt, ljóshært, bjart yfirlitum, með rjóðar kinnar; það er drengur, sonur kafteinsins. Hann er auð- vitað lítill ennþá, en liann æyðir tímanum býsna mikið við að toga í skottið og í eyr- un á hundi, sem líkist ekki raunverulega neinum öðrum hundi, — kynblendingur, — það er Zero, dálítið gildari, dálítið feitari en fyrrum, en sami tryggi vinurinn. Honum þykir vænt um litla drenginn húsbóndans og lofar honum að toga sig og hárreita fram og aftur í það óendanlega. Stundum vill það til að Pigault yngri vill fá sér sprett á hest- baki; hann er óvanur en óragur. Hann fer þá á bak Zero, sem er þægðin sjálf, og tekur báðum höndum í hárið á reiðskjótanum, og ef hann er smeikur um að detta af baki, þá tekur liann bara um hálsinn á hundinum, sem hrist- ir þá hausinn hægt, ef honum finst liann ætla að hengjast. Og svo byrjar endalaus reið í kring í garðinum. Surtla og Hvít eru enn á rölti, og verpa ekki síður stundvíslega en áður. Nú hafa kassarnir með hreiðrunum verið færðir upp sex fet frá jörðu, svo Zero, þessi varasami nánungi, nái ekki í þær. Þær þykjast verða hræddar þegar hann sézt, og fara þá að garga og flögra; en hann lætur sem hann taki ekki eftir þeim; lítur ekki við þeim. Við einn gluggan á fyrstu hæð, situr Lise og saumar ýmisljegt handa syni sínum og brosir til kafteinsins, sem situr í skugga skrautplanta nokkurra, niðursokkinn í að lesa um það, sem blöðin segja um ýmislegt f jær og nær, en getur ekki stilt sig um að líta upp annað slagið og brosa, konu sinni til samlætis, að ferðalaginu í garþinum; ferðalagi vinanna tveggja, sem kafteinninn elskar mest næst konunni. Það eru þeir drengurinn snofri og hundurinn vitri. ENDIR. Athugasemd Eg vil taka það fraim við þá af vinum minum, sem óþolinmóðir hafa beðið eftir þessum áramóta-vísum. Að snjallast sé nú, að hætta öllum fettum og brettum. Halda áfram að éta mat og drekka kaffi, kaupa og borga og lesa Heimskringlu og Lögberg. Því óhugsandi er að þau blöð eigi eftir að verða svt) til baka haldandi, að ekki sé óhætt að gera ráð fyrir því á prenti, að menn geti jafnvel Ihér á þessari uppþornuðu syndum spiltri eyðimörk orðið sex- tugir og sjötugir: Ef þeir lifa svo lengi ? Engum þarf heldur að detta það í hug að vísurnar þær arna hafi lent í hendur ræningja, og framhjá þeim hafi verið gengið af öllum, nema hinum miskunnsama manni. Og ekki lentu þær í slagtog Rúss- anna við norðurheimsskautið — því þá hefði þær hrakið til Grænlands og orðið að taka “bossið” til Win- nipeg? Nei, þetta er alt hugar- burður, eða leirburður, og mér að kenna. Eg sem sé skrifaði vitleysis- lega utan á, svo bréfið lenti í dauða póstinn. Og þar grafa þeir dauðu dautt og og lifandi eftir ástæðum. En þar sem páskatímabilið er byrj- að og englarnir komnir til að undir- búa upprisu-sýningu lífheimsins, þá vildi svo vel til að þeir rákust á vísurnar og komu þeim til skila, og eg gat lagað utanáskriftina, eins og þið sjáið á þessum línum. Þið vilj- ið máske halda því fram að vísurnar séu farnar að dofna, sem Áramóta- vísur fyrir 2937 og 38? Og vil eg þar hlíta ykkar úrskurði. En í þetta sinn lætur maður áramóta- vísu-árið byrja á vorjafndægrum. Enda rímar þá nótt og dagur betur en á jólum. Að svo mæltu vil eg áskilja mér þann rétt í framtíðinni, að mega yrkja Áramótavísur frá 21. desember til 21. marz, að þeim dög- um báðum meðtöldum? Svo vona eg að ykkur öllum líði öðruvísi en illa þangað til á jafndægrum að von. Eða þangað til 21.-3.-1939. Vinsamlegast, /. /. N. ÁRAMÚTA VÍSUR TIL V/NA OG KUNNINGJA Formáli Eg er að verða Óðinn — ær — Ofan úr haus og niður í tær, Þjóta finn og æða óma Út í lengstu fingragóma. * 1 * # Til Einars P. Jónsonar, ritstjóra Þér eg sendi þetta nú, Það er ekki’ af neinni trú; Heldur bara ástar yl— Áttu hans að finna til. # # * Til Stefáns Einarssonar, ritstjóra Eg miðla þér nú mannlífsfræðum Úr mínum braga ask: Öllum þessum kraftakvæðum, Sem kveðin voru í Sask—. # # # Til Magnúsar Bjarnasonar, skálds Oft er svona óskin min Um æfidaga forða: Að kunna’ að grafa gæðin þin f gildi minna orða. # # # Til Guttorms J. Guttormssonar, skálds Guttormur, er þakka þér Þína skálda snilli, Gjöfina, sem gafst þú mér, Góðvilja og hylli. # # # Til Hclgu Stephansson, Steinunnar Inge og Guðbjargar Johnson Sendi eg út minn óskastein— Engan mun eg græta; Honum er ætlað mæðumein Minna vina — bæta. # # # Til Ó. Sigurðssonar Þina alúð að eg met, Nú á að sanna; Hana eg í sambönd set Og sónia manna. # # # Til A. M. P. Jolinson Yfir blindu augun þin Unaðs geislar breiði /Efi þinnar óska-lín, Æsku vona heiði. # # # Til Ó. Péturssonar Hvað sem vinir kærir þínir kunna’ að bjóða, Yfir þig eg er að ljóða Ánægju og heilla-gróða. # # # Bcen “Höndin þin drottinn -hlífi mér” Við heiminum alla jafna, “Og nær sem þú mig hirtir hér” Þá hirtir þú lika hann nafna. # # # A þessu herrans ári Hér í vestri verða margir Valmenn sjötugir; í Winnipeg og út um ísland Oftar sextugir. # # * Jólavísa Af þvi þú ert, Einar minn, —Um það spjallar heimurinn— Bezta skáld sem uppi er, Að undanteknum Gutta og mér! Alt er frosið undan sól, Alt er þýtt á móti sól. Alt er dautt sem aldrei kól, Alt er snautt sem helgar jól. Unga skáldið Ef þú heldur, asninn þinn, Að ólæs stráka hvolpurinn Gæti braga samið sáld; Sýnst, en ekki verið skáld? # # * Hugtök hinna munaðarlausu barna “Að eg skildi fá að fæðast, Fyrir dugnað einhvers manns; Þurfa að éta —þó og klæðast— Það var “misteik” skaparans?” # # # Móður mál Og ennþá vermir sólin, Og á mig sólin skin; Altaf ert þá, mamma, Gæfusólin mín. • # # Til manna Menn verði meira en góðir, Menn þurfa að sjá og skilja, Menn eiga að mannast hljóðir, Menn skulu þrá og dylja. # # # Frcttir í Wynyard ólgar áin Rín! Ymsir bera á hálsi lín! Fáir eru fyllisvín! Flestir kunná’ að skammast sín! # # # 77/ Dr. J. P. Pálssonar Væri eg læknir, líkur þér, Eg lifði í önnum; Sliti þá með töng og tönnum Tunguhöft af gáfumönnum. # # # Gömul visa Rögnvaldur að “Fróni” forðum Fjaðrir þandi. Situr hann nú á sama gandi, Sextugur, í heimalandi. • • # 777 B. Guðmundssonar, tónskálds Ekkert þér að enda ber. Engu hefir þú lofað mér. Nóg er þegar lánið lengist Lífi, og gáfan ekki þrengist. # # # Til H. J. Halldórssonar Ef eg væri vestur frá Vanur þessu "hafti,” Enginn leita þyrfti þá Á þér, að axarskafti? * # # Til P. J. Normans, Betn. B. Bjarna- son, og J. Ó. Normans Litla ást til ykkar bar Eg í þrauta-kreppum. Oft hefir bennar fánýtt far Fleytt óræktar seppum.— “Þó er vægð” að vita: það Verið hefir svona! Nú er gott að glingra að Gullum æsku vona? Til S. S. Bcrgmans Hermir ljóða-línan mín Lendi hún hjá þér, góði; Gjaman mun eg gullin þin Geyma i mínum sjóði. # # # Glímdi ekki við Guð í fáu líkur ísrael— Æjfidaga nesti! Glíman var við heimsku, hel, Hræsni, fals og lesti! * # # Þegar eg verð sextugur. Þið öfundið mig ekki Af áratugum sex,— Því sextugfölduð syndin Á sjötugs aldri vex? # * # M óðins Sumir telja svik og lygi Sannleika á háu stigi? . * # * 777 G. Þórarinssonar Engar bætur eg fæ spurt, Eða kæti-fréttir:— “Rekkur mætur rýmdi burt, Rústin grætur eftir.” # # # 777 B. N. Árnasonar Eg sé að vitið vemdar þig, Og villu mun það hlífa. Ef fjandinn skyldi skifta’ um mig, Þú skalt hann sundur rífa. # # # Til Guðbrandar Guðbrandssonar (í Þingvallabygð er hann nú búinn að vera einstæðingur og einbúi nálega 50 ár). Ef lifir þú Guðbrandur einmana enn, Þá ættu að sjálfsögðu guðir og menn, Að skammast sín fyrir skeytingar- leysið; Eg skil þá undan, sem vitja um hreysið. # # # Svona gengur það ' Þar sem eymd og auðnuleysi Alment kenna dagleg fræði, Verður dauðinn hafður hægri Hönd og lífsins æðstu gæði # # # 777 /. ó . skálds frá Kaldbak Eg vil bara játa nú— Jóhann, ekki síður en þú: Gauðrifuð þetta gæðaskinn —Gerðuð , ónýtan spámanninn. # # # Til S. B. Benediktsson Fremstur varst í fylking mót þeim stóru, Ferlegastur eins í trúar-róti! Á þig báru ýmsir beitta klóru; Altaf beitti Sigfús skalla’ á móti. # # # 777 /. og G. Arnasonar Finn eg heimahögum frá hlýju til mín leggja; Sumt af henni segja má— Sameign ykkar beggja. * # # Til G. H. Finnsdóttur Eg hefi hugað altaf að Öllum þínum sögum. Skyldi Gísla gruna það— Gá að skónum*) mínurn? *)S.br, “Græna skó“ Sjá ágæta sögu eftir G. H. F. í jólablaði Lög- bergs 1937. # * * Til stúlku •Sannleikurinn særir þig, Sízt má honum flíka. Ef þú hefir elskað mig, Þá elska eg þig lika. # # # 777 hinna Það er kjánaskapur að kyssa mig, Hvað sem þið viljið nú reyna.— Ef kerlingin skyldi skilja við mig, Þá skiljið þið hvað eg meina # # # Koss og kross Að gefa og þiggja gæfu koss Eg góðlegasta jarðarhnoss. Kunna’ að bölva beint, og kross, Bænin svo að styrki oss. # # # Rauga hillan Á þessum slétta þjóðaveg Þekkist gott frá illu. Margir fara, eins og eg, Inn á ranga hillu. Athugasemd Með góðum hug og góðum vilja,. Er gott að lifa, starfa, skilja. Með góðum hug er gott að þreyja; Með góðum hug er bezt að deyja. # # # Jarðar hrap Á ið gamla, ætlar jörð Enn á ný að hrapa. Utanum sólu auka-gjörð Úr því mun hún skapa. Svona mun hún sólar brag Saman árin stíma; Lengstu nótt og lægsta dag Lætur hún jólin ríma. ' * # # Niðurlag Sögu ekki segi eg lengur nú; Sumu’ í henni mun eg leyna alla. En lengri dagur,—líf mitt er og trú, Svo ljóðið mætti dagrenningu kalla. 24.-12.—'37. Jak. J. Norman. GEFINS Blóma og matjurta frœ ÚTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ- INU, EÐA BORGIÐ YÐAR EIGIÐ ASKRIFTAR- GJALD FYRIRFRAM. Fræið er nákvæmlega rannsakað og ábyrgst að öllu leyti TAKIÐ ÞESSU KOSTABOÐI! Hver gamall kaupandi, sem borgar blaðiS fyrirfram, $3.00 áskrift- argjald til 1. janúar 1939, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum, 1., 2. og 3 (I hverju safni eru 6tal tegundir af fræi eins og auglýsingin ber meO sér). Hver, sem sendir tvö endurnýjuð áskriftargjöld, $6.00 borgaða fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4 þar að aukl. Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að velja tvö söfnin nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4. þar að auki. Allir pakkar sendir mðttakanda að kostnaðarlausu. No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets BEETS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficlent seed for 20 feet of row. CABBAGE, Enkhui/.en. Good all round variety. Packet will grow 1,000 lbs. of cabbage. OARKOTS, Half Dong Ohantenay. The best all round Carrot. Enough seed for 40 to 50 feet of row. COCUMBEIt, Early Fortune. Pickles, sweet or sour, add zest to any meal. This packet will sow 10 to 12 hills. IjETTUCE, Grand Hapids. Ijoose Leaf variety. Cool, crisp, green lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row. LETTUCE, Hanson, Head. Ready aíter the Leaf Lettuce. ONION, Yellow Globe Danvers. A splendid winter keeper. ONION, White Portugal. A popular white onion for cooklng or pickles. Packet will sow 16 to 20 feet of drill. PARSNIP, Half Long Guemsey. Sufficiént to sow 40 to 60 feet of drill. PUMPKIN. Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills. RADISH, French Breakfast. Cool, crisp, quick-growing variety. This packet will sow 25 to 30 feet of drill. TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet will produce 75 to 100 plants. TURNIP, Wldte Summer Table. Early, quick-growing. Packet will sow 25 to 30 feet of drill. FLOWER GARDEN, Surprise Flower Mixturc. Eaeily grown annual flowers blended for a succession of bloom. SPAGHETTI, Malabar Melon or Angel’s Hair. Boil and cut off the top and the edible contents resemble spaghetti. No. 2 COLLECTION SPENCER SWEET PEA COLLECTION 8—NEW BEAUTIFUL SHADES—8 Regular full size packets. Best and newest shades in respective color class. A worth-while saving buying two. See regular Sweet Pea List also. SEXTET QUEEN. Pure White. GEO. SHAWYER. Orange Pink. Five and six blooms on a stem. WELCOME. DazDzling Scarlet. WHAT .TOY, A Delightful Cream. MRS. A. SEARLES. Rich Pink BEAUTY. Blush Pink. shading Orient Red. SMILES. Salmon Shrimp Pink. RED BOY. Rich Crimson. No. 3 COLLECTION—Flowers, 15 Packets EDGING BORDER MIXTURE. MATHIOLA. Evening scented ASTERS, Queen of the Market, stocks. the earliest bloomers. MIGNONETTE. Well balanced BACHELOR’S BUTTON. Many mixtured of the old favorlte. i t ... NASTURTIUM. Dwarf Tom ! ' K.w Thumb. You can never have CALIFORNIA POPP . too rnany Nasturtlums. prize Hybrids. CLARKIA. Novelty Mlxture. PETUNIA. Choice Mixed Hy- CLIMBERS. Flowering climb- brids. ing vines mixed. POPPY. Shirley. Delicate New COSMOS. New Early Crowned Art ghades. EVERbASTINGS Newest shades ZINNIA. Giant Dahlia Flowered. ...” ’ Newest Shades. mi*ed. N0 4—ROOT CROP COLLECTION Note The Ten Big Oversize Packets BEETS Half Long Blood (Large PARlSNLPS, Early Short Round Packet) (Large Packet) CABBAGE, Enkhu.zen (Large *A™SH, „.^French ... Breakfast CARROT, Chantenay Half Ixmg 1 PacTet). ^The (Large Packet) early white summer table ONION, Yellow Globe Hanvers, turnip. (Large Packet) TURNIP, Swede Canadian Gem LETTUCE. Grand Rapids. This (Large Paoket) packet will sow 20 to 25 feet ONION. White Piekllng (Large of row. Packet) Sendið áskriftargjald yðar í dag (Notið þennan seðil) To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg, Man. Sendi hér með $.........sem ( ) ára áskriftar- gjald fyrir “Lögberg.” Sendið póst fritt söfnin Nos.: Nafn — ............................................... Heimilisfang ......................................... Fylld ................................................

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.