Lögberg - 21.04.1938, Síða 1
51. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 21. APRÍL 1938 NÚMER 16
Lögberg óskar öllum Islendingum góÖs og gleÖilegs sumars •
AUGSBURG COLLEGE söngflokkurinn víðfrœgi. sem efnir til
samsöngs í First English Luthcran kirkjunni, Maryland og Ellice
Avenue licr í borginni þann 2. maí nccstkoinandi.
Bretar og Italir stofna til samninga
^ *
Ur borg og bygð
Frá Islandi
Tregur afli í verstöðvunum
við Faxaflóa, en veður ágætt
Afli er yfirleitt fremur tregur í
verstöðvunum við Faxaflóa, og eru
\>ó gæftir víðasthvar góðar.
1 Keflavík voru flestir bátar á sjó
í gær, en afli misjafn og fremur
tregur, eða hæst ii—12 skippund
og niður í 8o—90 fiska.
í dag er fremur vont veður og
eru aðeins netjabátar á sjó.
Njarðvíkurbátar hafa fengið
hæst 1500 fiska í net.
í Sandgerði var tregur afli í gær,'
enda var veður ekki gott. en í dag
eru allir bátar á sjó, enda er þar
ágætis veður.
Einn bátur frá Sandgerði fór að
veiða loðnu í gær og fékk 20—30
tunnur.
1 Grindavik voru allir bátar á sjó
í gær og allir í dag, en afli fremur
tregur, eða frá nokkrum fiskum
upp í 8—9 skippund.
Á Akranesi var mjög lítill afli í
gær, en engir bátar eru á sjó í dag
sökum aflaleysis, enda þótt ágætt sé
veður.—Alþ.bl. 25. marz.
* # #
Heimssýningin í New York
Undirbúningur undir þátttöku
íslands í heimssýningunni í New
York næsta vor er nú í fullum gangi,
sagði Thor Thors alþm. í gær, er
fréttaritari Morgunblaðsins átti tal
við R3nn, en hann er formaður
sýningarráðs.
—Vilhjálmur Þór. form. fram-
kvæmdarnefndar lagði af stað á-
leiðis til New York með M.s.
Dronning Alexandrine i gærkvöldi,
sagði Thor Thors ennfremur.
—Verður hann um tveggja mán-
aða tima í förinni. Mun hann undir-
rita samninga um þátttöku Islend-
inga í sýningunni. m. a. viðvíkjandi
sýningarhúsinu, sem Island fær á
sýningunni. — Við fáum til af-
nota tvær hæðir, en sýningarplássið
verður samtals 10 þús. ferfet. Þá
mun V. Þ. og athuga ýmislegt fleira
viðvíkjandi sýningunni í New York
og þegar hann kemur aftur mun
sýningarráð og framkvæmdanefnd
taka endanlegar ákvarðanir um
væntanlega tilhögun sýningarinnar.
Undanfarna daga hafa sýningar-
ráð og framkvæmdarnefnd setið á
fundum. Höfum við m. a. ákveðið
að útbúa íslandskvikmynd fyrir
heimssýninguna, er sýni landið og
aðaiatvinnuvegi þjóðarinnar og hof-
um í því augnamiði skoðað kvik-
myndir sem hér eru til um landbún-
að og sjávarútveg. Búumst við við
að geta notað kafla úr þeim.
Þá höfum við skipað ýmsar
nefndir, til þess að vinna að undir-
búningi á sýningu á hinum ýilisu
þáttum atvinnulífsins.
Það verður unnið af kappi að
undirbúningi öllum, sagði Tlior að
lokum, og kappkostað að gera sýn-
inguna að öllu leyti sem vandaðasta,
þannig að hún megi vera landi og
þjóð til sóma.—Mbl. 29. marz.
# # #
Höfnin greiddi 400 þús.
krónur í vinnulaun 1937
Á síðastliðnu ári var unnið mikið
að verklegum framkvæmdum hjá
Reykjavíkurhöfn og greiddi höfnin
alls 400 þúsund krónur í vinnulaun
á árinu.
Aðalframkvæmdirnar voru leng-
ing Æigisgarðs, sem nú er orðinn
fullgerður að mestu, nema hvað
sjálfan hausinn vantar. Þá var
unnið að dýpkun vesturhafnarinnar
°g norðausturhluti hafnarhússins
l>ygður að nokkru leyti.
Ekki er búist við að hægt verði
Síðastliðinn laugardag gerði Mr.
Chamberlain. forsætisráðherra Breta
heyrinkunna samninga um vináttu*
samband milli brezku stjórnarinnar
annarsvegar og ítölsku stjórnarinn-
ar hins vegar, er eigi koma þó til
franikvæmda fyr en vissum ákvæð-
um hefir verið fullnægt. Þessi eru
megin ákvæði samninganna, eða
réttara sagt samninga-uppkastsins.
ítalir játast undir það, að kveðja
heim allan her sinn frá Spáni, ásamt
vopnabirgðum, að lokinni borgara-
styrjöldinni. Stjórn Breta heitir
því á hinn bóginn, að beita sér fyrir
því, að Þjóðbandalagið viðurkenni
full yfirráð Itala yfir Ethiópíu.
ftalir ganga ennfremur inn á það,
að framkvæma eins mikið á þessu
ári eins og gert var á árinu sem
leið.—Mbl. 25. marz.
# # #
Endurskipun stjórnarinnar
Áður en gengið var til dagskrár í
neðri deild í gær, kvaddi Hermann
Jónasson forsætisráðherra sér hljóðs
og mælti á þessa leið:
Það hafa komið raddir um það
opinberlega, að vísu utan þings, að
óeðlilegt þætti að stjórnin sæti, eftir
að Alþýðuflokkurinn dró út sinn
ráðherra.
Það má segja að ekki er allskostar
óeðlilegt, að slíkar raddir hafi konr
ið fram, en þar gætir nokkurs mis-
skilnings.
Rökin, sem legið hafa til þess að
stjórnin hefir ekki sagt af sér eru,
að talið var líklegt að gerðardóms-
lögin sem samþykt voru nýlega á
Alþingi myndu valda nokkrum erf-
iðleikum í framkvæmdinni. Þess-
vegna taldi stjórnin ekki rétt að
segja af sér.
Mér skilst, hélt forsætisráðherr-
ann áfram, að þingmenn hafi verið
stjórninni sammála um þetta og er
eg þeirn þakklátur fyrir það. Rökin,
sem eg hefi fyrir þessu eru, að hér
hafa verið daglega haldnir þing-
fundir síðan breytingin varð á
stjórninni og enginn þingmaður
hreyft andtnælum, ekki einu sinni
fundið ástæðu til að spyrja.
En nú er lausn kaupdeilunnar að
að hlíta í einu og öllu ákvæðum
flotamálasamninganna milli Breta,
Bandaríkjaþjóðarinnar og Frakka,
er undirskrifaðir voru í London
1936. Báðar þjóðir, Bretar og
Italir undirgangast að hhta fyrir-
mælunum frá 1888 um frjálsar al-
þjóð(asiglingar um Suez-skurðinn;
ennfremur að tilkynna livor annari,
ef i ráði væri að byggja nýjar flota-
stöðvar við austurhluta Miðjarðar-
hafsins. Þá heita og Italir því, að
veita brezkum borgurum fullkomið
trúarbragðafrelsi í Austur-Afríku,
auk þess sem ráðgert er að dregnar
verði á þeim svæðum skýrari landa-
merkjalínur en- í gildi hafa verið
fram að þessu.
nálgast og þessar ástæður fyrir setu
stjórnarinnar því ekki lengur fyrir
hendi. Eg mun því nú hefja eftir-
grenslan um hið pólitiska viðhorf á
Alþingi og tilkynna síðan þinginu
hvað við tekur.
Er forsætisráðherrann hafði lokið
máli sinu, kvaddi Haraldur Guð-
mundsson sér hljóðs og sagði: Eg
spyr forsætisráðherrann hvort hon-
um sé það kunnugt, að togaradeih
an sé í raun og veru leyst.
Forsætisráðherrann svaraði: Eg
geri ráð fyrir að lausnin sé að nálg-
ast.
Frekari umræður urðu ekki um
þetta í þinginu.
—Mbl. 23. marz.
FRANCO KVEÐST HAFA
UNNIÐ FULLNAÐAR-
SIGUR
í útvarpserindi, sem foringi árás-
arhersins á Spáni flutti á þriðju-
daginn. skoraði hann á stjórnina að
gefast upp nú þegar og útiloka með
því óþarfar blóðsúthellingar, með
því að sýnt væri að hersveitir sínar
hefðu í rauninni unnið fullnaðar-
sigur. Tjáðist Franco geta fullviss-
að andstæðinga sína um það, að þeir
myndu sæta sanngirni og réttvisi af
sinni hálfu, er til málamiðlunar
kæmi.
Fjölmennið á sumarfagnaðinn í
Fyrstu lútersku kirkju í kveld,
fimtudagskveldið þann 21. apríl.
Mr. Björn Hjörleifsson frá
Riverton kom til borgarinnar á
mánudaginn og dvaldi hér fram
eftir vikunni.
Mr. Eysteinn Árnason skólastjóri
frá Riverton var staddur í borginni
á mánudaginn.
Þeir séra Egill H. Fáfnis og Mr.
Árni Sveinsson frá Glenboro, voru
staddir í borginni á mánudaginn.
Mr. Marteinn M. Jónasson, póst-
meistari frá Árborg, var staddur í
borginni á mánudaginn, ásamt frú
sinni.
Þeir Oddur Ólafsson, M.L.A. og
Óli Ólafsson bróðir hans frá River-
ton, fóru vestur til Arran, Sask., um
miðja fyrri viku í heimsókn til
Björns bróður sins, sem þar veitir
forustu kornhlöðu.
Mr. og Mrs. Sveinn Indriðason
frá Oxbow, Sask., koniu til borgar-
innar á fimtudaginn í vikunni sem
leið ásamt Mrs. Th. Indriðason, og
dvöldu hér fram um miðja yfir-
standandi viku. 'Mrs. Sveinn Ind-
riðason er dóttir þeirra Mr. og Mrs.
S. W. Melsted.
Karlakór Islendinga í Winnipeg
auglýsir í þessu blaði hljómleika, er
haldnir verða í Fyrstu lútersku
kirkjunni í Winnipæg, miðvikud. 4.
maí — í Oddfellows Hall, Glenboro,
miðvikud. ,11 mai og að Gimli
föstud. þann 20. mai.
Leikflokkur Sambandssafnaðar,
er sýndi leikinn “Jósafat” eftir E.
H. Kvaran, tvær vikur nýlega, við
góða aðsókn og orðstír, hefir nú
ráðgert að endurtaka leikinn hér í
Winnipeg mánudagskvöldið 16. maí.
Einnig mun flokkurinn hafa í
hyggju að sýna leikinn utan bæjar
i þeim bygðum íslendinga, er hent-
ugleikar leyfa.
Samsóng frestað
Söngsamkomu þeirri, sem aug-
lýst var að Ólafur N. Kárdal, tenór-
söngvari, héldi í Riverton síðastlið-
ið þriðjudagskveld, með aðstoð
Ragnars H. Ragnar, varð að fresta
sakir óveðurs og lítt færra vega.
Nú er ákveðið að söngskemtan
þessi verði haldin á sama stað og
tíma á þriðjudagskveldið þann 26.
þ. m. Fólk er vinsamlegast beðið að
veita þessari óumflýjanlegu breyt-
ingu fulla athygli, og fjölmenna á
samkomuna, i næstu viku.
Barnasöngsútvarp
Barnakórinn íslenzki í Winnipeg
syngur í útvarp föstudaginn 22.
april n.k. kl. 8.05 e. h. yfir þessar
stöðvar:
CJRC—Winnipeg
CJGX—Yorkton
CJRM—Regina
og stuttbylgjust. (short wave)
CJRO og CJRX.
Flokknum stjórnar R. H. Ragnar,
við hljóðfærið ungfrú Lily Bergson.
Islendingar ættu að nota þetta tæki-
■færi að hlusta á al-íslenzkan söng,
og æskilegt væri að þeir sendu skrif-
lega þakklæti sitt til CJRC Radio
Station, Royal Alexandra Hotel,
Winnipeg.
Mr. Jón Pálmason frá Keewatin,
Ont., var staddur í borginni seinni-
part vikunnar sem leið.
Mr. og Mrs. F. O. Úyngdal frá
Gimli, voru stödd i borginni seinni
part fyrri viku.
Mr. Th. Thordarson kaupmaður
á Gimli var staddur í borginni á
mánudaginn.
Mr. Frank Jóhajinsson rafstöðv-
arstjóri frá Langdon, N. Dak., kom
til borgarinnar á mánudaginn, með
konu sína til lækninga.
We can arrange the financing of
automobiles being purchased or re-
paired, at very reasonable rates.
Consult us — J. J. Swanson & Co.,
Ltd., 601 Paris Bldg., Winnipeg.
Mr. og Mrs. Hávarður Guð-
mundsson frá Hayland, Man., voru
stödd í borginni í byrjun yfirstand-
andi viku, ásamt Hjálmari syni sín-
um. Með þeim kom einnig að norð-
an Mr. Óskar Hávarðson.
Sambandssöfnuðurinn í Árborg
heldur skemtisamkornu í kirkjunni
á miðvikudagskveldið þann 27. þ. m.
Þar flytur Dr. Rögnvaldur Péturs-
son erindi um íslandsför sína i
fyrra. Upplestur: Ragn. Stefánsson.
Mr. A. S. Bardal, stórtemplar, fór
norður til Árborgar á mánudaginn,
ásamt frú sinni og séra G. P. John-
son, til þess að stofnsetja þar
Goodtemplarastúku. Ferðafólk þetta
kom heim aftur á þriðjudagsmorg-
uninn.
Leiðrétting
í gjafalista til Betel fyrir síðasta
mánuð, sem birtur var í Lögbergi,
féll út nafn eins gefandans, Mr.
Sveins Sveinssonar á Betel, er gaf
$10.00. Þetta er hér með vinsam-
legast leiðrétt.
The Junior Ladies’ Aid of the
First Lutheran "Church, Victor St.,
have planned a Diamond Jubilee
Tea and entertainment to be held
in the church parlors from 2.30 to
10.30 p.m., Wednesday, April 27th.
Mrs. B. B. Jónsson and Mrs. G.
F. Jonasosn will receive the guests
with Mrs. B. C. McAlpine and Mrs.
J. Thordarson, the General Con-
veners. Table hostesses will be
Mrs. P. Bardal, Mrs. J. D. Jonas-
son, Mrs. O. R. Phipps and Mrs.
L Simmons. The home cooking
will be in charge of Mrs. J. Eager,
Mrs. M. Magnusson; candy in
charge of Mrs. J. Snidal and Mrs.
E. S. Feldsted; Novelties in charge
of Mrs. J. P. Markuson and Mrs.
F. H. Wieneke; Decorating Com-
mitte: Mrs. A. Blondal, Mrs. Oliver
G. Bjornson and Mrs. T. Stone.
Mrs. W. R. Pottruff will be in
charge of the exchequer.
1 he program is arranged by Mrs.
G. K. Stephenson. It consists of
two plays under the direction of
Mrs, Gladys Rutherford. One of
the plays, “Mrs. Pat and the Law”
was the English winner in the recent
Manitoba Regional Dramatic Festi-
val and is entered as the Manitoba
represeintaitiýe Sn 1 the Dominion
Finals to be held the week begin-
ning May i6th.
FRANK THOROLFSON, pianisti
er leikur piano solo á söngskemtun
Karlakórs íslendinga í Winnipeg í
Fyrstu lútersku kirkju á miðviku-
dagskveldið þann 4. mat næstkom-
andi.
Sitt af hverju
Eftir S. Baldvinsson.
Bandaríkjaþjóðin í Ameríku er
fyrir löngu orðlögð fyrir hvað stór-
brotin hún er á öllum sviðum, og
sýnist að hafa fé til allra fram-
kvæmda sem henni dettur i hug. Nú
eru þeir að enda við að byggja afar-
stóra kirkju í New York borg, sem
á að hafa sæti fyrir 40 þúsund
manns og vera fullgjörð fyrir sýn-
inguna 1939. Byrjað vár að safna
fé til hennar með frjálsum sam-
skotum árið 1892, og komið saman
17 miljónir dollara; þó vantar enn
eina miljón dollara til að fullnægja
öllu útflúri á henni, en ekki talinn
neinn efi á, að slíkt lítilræði fáist,
þvi það er metnaðarmálefni, sem
ætíð fær góðan byr í Bandaríkj-
unum.
Gólfrúm kirkjunnar er 3,360 fer-
hyrnings faðmar, en þó eiga að vera
svo sterkir hljóðberar í henni, að
ræða prestsins heyrist út í hvert
horn. Eg held þeir séu nú að skáka
páfanum í Róm. — Það tók 40 ár
aÖ byggja Péturskirkjuna hans, og
allan þann tíma var verið að safna
saman fé til hennar með syndalausn-
arsölu og margs konar blekkingum;
samt veit enginn hvað hún varð dýr
á endanum, því fjöldi manna vann
við byggingu hennar kauplaust, og
þóttist afplána syndir sinar með því.
En Bandaríkjamenn eru lika at-
kvæðamenn á öðrum sviðum, því
nýlega sá eg það í fregnum, að
sunnan að ránsmenn þar höfðu rifið
upp stálteina af tveggja mílna langri
járnbraut, sem ekki hefir verið not-
uð í nokkur ár, og selt stálið fyrir
góða peninga, áður en eigendurnir
vissu af, og skilorður maður frá
Chicago, sem hér var á ferð í vetur,
sagði mér að það væri orðið algengt
að bófar kæmu með flokk af mönn-
um o\j rifu niður til grunna góð hús
i borginni og seldu jafnóðum viðinn
til Gyðinga og væru horfnir á burtu
áður en lögreglan hefði hendur í
hári þeirra, og einu sinni hefðu bóf-
ar brotist inn á inngirta lóð þar
sem geymd voru yfir vetur, verðmæt
verkfæri, mörg þúsund dollara virði,
og flutt alt á burtu á einum degi og
selt það til annara félaga fyrir pen-
inga út í liönd, og sloppið með alt
á brott, eins og víkingarnir fyrrum.
Þó þetta sé ótrúlegt, er það því
miður áreiðanlegt, svo það er orðið
varasamt að eiga hús í eyði, í
þeirri borg.
Nýlega sátum við að sumbli sex
landar í Winnipegborg og ræddum
um ýms þau málefni, sem voru á
Framh. á bls. 5