Lögberg - 09.06.1938, Blaðsíða 3

Lögberg - 09.06.1938, Blaðsíða 3
LÖGrBHRG, FIMTUDAGINN 9. JÚNI, 1938 3 Borg dauðans Lífið í Pompei fyrir tvö þ ú s u n d árum. Eftir Rannveigu Tómasdóttur Það er vor í Neapel. Sólin skin. Við höllum okkur fram á steinriðið við sjóinn. Lognaldan gjálfrar við klettana hjá Castel dell’Ovo. Neopel flóinn er spegilsléttur og skinandi blár. Langt úti rís Capri hátt úr sæ, hún er borgarinnar brynjaði út- vörSur. Borgin er hvit, svona í hæfilegri f jarlægð. Fjarðlægðin hylur gallana, dökku afkimana og eymdina. Héðan sjáum við borg- ina tindrandi hvíta og fagra við bláu víkina. Pálmatrén kasta skugga á hvítan vegginn. Upp úr Vesúvius leggur mikinn reykjarmökk við blá- tæran, skýlausan hi'mininn. Við er- um að tala um að fara og líta nánar á þetta f jall, þar sem eldurinn aldrei slokknar, og á borgina Pompei, sem hulin var sjónum mannanna um 18 aldir. Það er eins og leiðsögu- mennirnir hafi komist á snoðir um, að hér er bita að hreppa. Hann er að vísu magur, en alt er betra en ekki neitt á þessum erfiðu, ferða- mannalausu timum. Þeir ryðjast að okkur eins og soltnir hundar. Granda Joseppi varð hlutskarpastur, hann talar reiprennandi ensku og þýzku, er hreinn og kurteis. Við ökum frá Ráðhústorginu snemma morguns. Göturnar eru margar þröngar og skuggalegar, eftir þeirn koma langar raðir af skröltandi ávaxta- og græn- metisvögnum. Flutningurinn geng- ur ekki hávaðalaust hjá ítölum, það æpir hver í kapp við annan, ógrynni berfættra^barna hlaupa um eða sitja á gangstéttunum og sleikja sólskin- ið. Konur ganga á torgin með körf- ur sinar og krossa sig, þegar þær fara framhjá Maríulíkneski eða ein- hverjum dýrlingi. Leið okkar ligg- ur um mörg smá, nærri sainhang- andi þorp. Þar eru yfir 200 spag- hetti (makaroni) verksmiðjur, en spaghetti er þjóðréttur ítala. Við nemum staðar á stað einum, er Bella Vista (Fagurt útsýni) heitir, en staðir með því nafni eru margir í Italíu. Mig grunar, að Joseppi, okkar ágæti leiðsögumaður, hafi ekki einungis numið þarna staðar til . þess að lofa okkur að njóta hins fagra útsýnis, heldur til þess að fá okkur til að líta inn í sölubúð eina mikla og vinnustofu. Þar er á boð- stólum ýmislegt skart og minja- gripir. Oddhagir menn skera með leifturhraða klassisk andíit i hraun og skeljar. Ef einhverjir af mun- um þessum hefðu haft eigenda- skifti, mundi eflaust smáskildingur hafa runnið í vasa okkar góða Joseppi. Við ökum fram hjá hinni fomu borg Hterculanum sem stendur á fögru'mi stað við sjóinn. Hún eyddist af hraunflóði úr Vesúvius árið 79 e. Kr. Gróðurinn hefir fyr- ir löngu þakið 'hraunið og borgin bygzt. Þá erum við komin til Pompei, en borg dauðans er enn hul- in sjónum okkar af iðgrænum trjám. Þar er snoturt veitingahús, og við setjumst niður í garðinum og fáum okkur ihressingu. Það er sól og logn, blöð trjánna hreyfast ekki. Itali með hrafnsvart hár og tindrandi augu syngur fyrir okkur blíða, fagra söngva, en tveir félagar hans spila undir á fiðlu og gítar. Á eftir kemur diskurinn, er skilding- arnir eiga að hrynja á. Það er þetta, sem mér féll langverst í Italiu, að mega aldrei líta við, án þess að hafa peninga í hendinni. Eg get aldrei losnað við þá tilfinningu, að eg geri lítið úr þei'mi manni, sem eg rétti að skilding. Við göngum um litla, skógi vaxna hæð, þar komum við að hliði einu; þegar inn fyrir það er komið, hverfum við tvö þús- und ár aftur í tímann. Það var árið 79 e. Kr., að Vesúvius var i óhemju vondu skapi. Hann spjó hrauni og ösku yfir alt, sem nærri var, þá grófst Pompei í ösku á þrem dögum. Þar bjuggu þá um 35 þús. rnanns. Það er talið, að trm 2 þús. hafi farist. Nú hefir borgin að nokkru verið grafin upp og er þar að finna hinar fullkomnustu heimildir, sem til eru, um lifnaðar- hætti þeirra tima. Fyrst förum við inn í safn það, sem hefir að geyrna hina ýmsu muni, er upp hafa verið grafnir. Það eru drykkjarker, eld- iiúsáhöld, skrautgripir og snvrti- áhöld. Ekki voru fáar þær krukk- ur og krúsir, sem konur þeirra tíma hafa haft undir andlitssmyrsl sín. Eg held, að núti'makonur séu hafðar fyrir rangri sök, ihvað því viðvíkur, að þær noti meiri fegurðarmeðul, en konur fyrri tíma hafa gert. Þeir súru menn, sem ihafa tileinkað sér þessa trúarjátningu: “Á okkar síð- ustu og verstu tímum,” láta ógjarna af trú sinni. En gaman hefði verið að lofa þeim að hlusta á Joseppi, þegar hann var að lýsa lífinu í Pom- pei á blómatíma Rómaveldis. Við vorum stödd þarna i safninu og það, stem augun dvelja lengst við þar, eru hunda og manna likamir úr sementi. Holdið hefir rotnað, en mót líkamans, klæddum þeim klæð- um og í þeim stellingum, sem hann hefir verið í þá, geymist í öskunni. Niður í þessi steypumót var svo rent sementi og það eru þeir steingerf- ingar, stem' við nú horfum á. Flestir hafa þeir fundist við borgarhliðin og hafa bugðið hönd eða klút fyrir vit sér, til þess að forðast öskuna, en hundarnir stinga undir sig trýn- inu. Borgarhliðin í Pompei voru átta, en þrjú þeirra eru þegar fund- in. Götur þar í borg hafa hvorki verið breiðar eða sléttar. Það eru djúp hjólför eftir vagnana, og á hverju götuhorni, og víðar, eru þrír stökksteinar. Á þeim hafa menn stiklað, þegar vatnið hefir runnið um göturnar eins og í ræsi. Djúp spor eru í steinana eftir það fólk, sem þarna hefir stiklað fyrir þús- undum ára. Götuhliðar húsanna eru ekki mjög ásjálegar, það eru gráir, gluggalausir múrveggir. Á miðjum vegg er innskot, þar eru aðaldyrn ar. Þegar við komum inn úr gang- inum, erum við í “Atriet,” móttöku- sal hússins. I loftinu er stórt, fer- hyrnt gat, þaðan kemur öll birtan. I gólfinu undir þessu mikla gati er grunn, ferhyrnt vatnsþró, en þakið hallast frá öllum hliðum niður að gatinu i loftinu og regnvatnið renn ur í þróna. Beggja megin við “Atriet” sjáum við dyr mjög háar (minst 4)4 m.), og ofan til er hver hurð útskorin, þaðan kemur ljós og loft inn í hin litlu herbergi, sem flest eru svefnherbergi. Við hliðina á “Atriet,” gegnt innganginum, er stórt, ferhyrnt herbergi, á 'milli eru dregin þykk tjöld. Það er “Tablin- um,” vinnustofa húsbóndans. Her bergið er afarhátt undir loft og mjög skreytt. Eiginlega er þetta stór salur. Gólfið er lagt með “Mösaik,” rósótt eða með myndum, veggirnir eru klæddir með mislitum marmaraplötum, eða málaðir með marglitu “útflúri” og líflegum smá- myndum. Loftinu er skift í fer hyrnta reiti, málaða, gylta eða jafn- vel lagða með fílabeini. Af hús- gögnum er ekki mikið, þar er stór, þung, málmslegin kista, það er pen- ingaskrín húsbóndans, svo eru nokkrir stólar og smá borð. Á þeim eru dýrindis könnur og bikarar úr silfri eða bronsi, með listrænum myndum. Inni eru einnig legu- bekkir mieð skrautlegum ábreiðum og fjölda af púðum. Á þeim lágu Rómverjar, er þeir mötuðust. Á milli dyranna, sem liggja inn í ýms smáherbergi, eru líkneski úr mar- mara eða bronsi. Svo komuni við inn í garð umluktan súlu'm', þar eru tré, runnar og yndisleg blóm, smá gosbrunnar, líkneski og brjóstmynd- ir. Út frá þessum garði liggja svo aftur smáherbergi og salir, alt mjög skrautlegt. Flest er fólkið hvít- klætt. Það er í ullarskyrtum, með sjöl, “Toga,” sem lögð eru í marg- brotnar fellingar. Á fótunum hefir það sandala. En þetta er aðeins drauntsýn — drau'msýn, sem sýnir okkur tvö þúsund ár aftur í tímann. Nú er aít auttmg tómt, fólkið dáið, þökin fallin, súlurnar brotnar, á- breiðurnar tjöldin og púðarnir horf- ið, líkneskin og skrautgripirnir flutt burt. Aðeins gólfin og veggmynd- irnar eru að mestu óskemt. Eitt hús er að vísu nú nær því eins og það var þá, það er hús Vetti bræðr- anna. Þeir voru stórauðugir, ó- giftir Rómverjar, og lifðu sællifi miklu. Það, sem fallið var af húsi þeirra, hefir verið bygt upp. Ekk- ert hefir þaðan verið tekið, þar eru líkneski og súlur úrx hreinum mar- fara. Þær plöntur, sem vaxið hafa í garðinum á liðnum öldum, hafa verið gróðursettar þar á ný. I þess- um garði erum við nú, þegar Joseppi með beygingum, handapaiti og allri kurteisi Italans, biður "hinar heiðr- uðu dömur,” eins og hann kemst að orði, að setjast niður. Hann labb- ar með stóra lyklakippu á undan karlmönnunum að lokuðu herbergi, sem körlum er aðeins leyft að sjá. Þar hverfa þeir inn i rökkrið, en við sitjum eftir úti i sólskininu. Hvað var að sjá á þessu'm leyndardóms- fulla stað, fékk eg aldrei að vita. Svo komum við í baðhúsið, það er eina húsið, sem haldið hefir þakinu, vegna þess að það var hvolfþak; myndir og “útflúr” er málað á loft og veggi. Þar bafði verið heitt og kalt vatnsbað og einnig gufubað, sem hitað var með hringrás milli veggja. Fyrir utan baðhúsið var stór leikvöllur og skamt þaðan stærsta veitingahúsið í borginni. Þar voru löng borð með misjafnlega stórum götum. Þar hafa vínkerin verið geymd. Við kotnum að þró einni mikilli. Leiðsögumaðurinn segir okkur þá ótrúlegu sögu, að hún hafi verið til þess ætluð að æla í hana, þegar menn höfðu etið og drukkið um of. Svo mikið var ó- hófið í þá daga. Þar er og hring- leikhús eitt mikið. Alþýðu manna hefir setið á hæstu bekkjunum. Þangað upp lágu mjóar steintröpp- ur, og voru þær mjög slitnar af fót- um þeirra þúsunda, sem þarna höfðu horft á leika, merki þess, hve leik- hús hafa verið vel sótt í þá daga. Við kotoum i Forum. Niú eru súl- urnar brotnar, en líkneskin flutt í Nazionale safnið í Neapel, en það hefir að geyma feiknin öll af lista- verkum frá Pompei. Víða þar, sem við förurn, sjást þess glögg merki, hvar gert hefir verið við eftir land- skjálftana, sem urðu 15 árum fyrir gosið mikla. Nú erum við stödd á Via dell Abondanza (Allsnægtagöt- unni). Þar er brunnur og rennandi vatn. Brunnurinn er stórt, gróf- gert mannsandlit, höggvið í stein. Munnurinn spýtir ísköldu vatni. Eg halla mér fram og teyga svaladrykk af þessum vöru'm eins og þúsundir manna fyrir þúsundum ára hafa gert, en steinninn, sem eg ósjálfrátt styð höndum á, er slitinn af lófum löngu liðinna kynslóða. Við yfir- gefum hina dauðu borg. Við borg- arhliðið lít eg til baka og sé nokkra af íbúunum skjótast inn i hús eða yfir götu. Það eru eðlur, hinar litlu, grænu eðlur, sem nú eru ein- ustu íbúar þessarar borgar. —Dvöl. THE YPA CONVENTION (By N. J. A.) The Third Annual Conference of the Young People’s Associ- ation of the Evangelical Icelandic Lutheran Svnod of North America was held in Arborg, Man., Friday, Saturday and Sun- day, May 20, 21 and 22. Thirtv delegates in addition to great numbers of guests attended froni most Icelandic communities in Manitoba and North Dakota, U.S.A. Many important matters were discussed and passed and the conference proved to be a great success. — Vera M. Johannsson, Winni- peg, was re-elected President and the slate of officers were elected as follows for the year 1938-39: Vice-president, Thos. E. Oleson, Glenboro; secretary, Gissur Elia- son, Arborg; as^istant secretary, Eggert Erlendson, Hensel, N.D.; Treasurer, Paul Finnbogason, Winnipeg; assistant treasurer, Josephine Johnson, Selkirk; ex- ecutive committee, Jim. Snidal, Winnipeg; Eyvi Anderson, Glen- boro; Margaret Sigurdsson, Ar- borg; Marvin Solmundson, Gimli, and Jolin Nordal, Baldur. Norton J. Anderson, Selkirk, was re-elected editor of the Y.P.A. official publication, “The En- deavour.” Daniel Snidal, Win- nipeg, replaced John K. Hjalmar son as business manager. Delegates arrived in Arborg at 5 p.m. Friday, and were register- ed at Ardals church by the sec- retary. Margaret Sigurdson, Ar- borg Y.P.S. president and her committee then biletted the dele- gates and guests in the homes in the district. At 7 p.m. a short religious ser- vice was conducted in the church by Rev. S. Olafson, of Arborg, who then welcomed the delegates and guests on behalf of the com- munity. Following this the con- ference was officially opened by the president, Miss Vera M. Johannsson with a grand concert. Rev. Fafnis brought greetings from the synodical committee on behalf of the Lutheran Synod, and Miss Margaret Sigurdsson, Y.P.S. president of Arborg, wel- comed the young people of the community. Musical and instru- mental numbers were greatly en- joyed by the large audience in attendance. Lily Stefansson, Selkirk, and Eggert Erlendson, Hensel, N.D., gave commendable addresses. The first business session of the conference was held Saturday morning at 9.45 a.m., at which reports from executive officers and committees were brought in. Greetings were given from the following societies: Bru, Glen- Arni Sveinson and Thos. Oleson took the service. The closing session of the con- ference was held Sunday after- noon at which the nominating committee consisting of Tim Stone, Lily Stefansson, Harold Bjornson, Lorraine Graham and Eleanor Anderson, brought in the slate of officers for electioru The committee on “The Endeavour” brought in a motion to the effect that a special committee of five be set up to formulate a future policy for the per’iodical before September. Those chosen on the committee were: Norton Ander- son, Josephine Olafson, Eggert Erlendson, Daniel Snidal and Thos. Oleson. Briefs on a unified programme of activities for Y.P.A. societies were given by Norton J. Ander- son and Rev. E. H. Fafnis. The convention after debate appoiftted a central cominittee to study the situation in all societies and to draw up a unified programme. The committee consists of: Rev. E. H. Fafnis, Tim Stone, Norton Anderson, Norma Benson and Jim Snidal. The convention closed with a banquet in Arborg Hall. Com- munity singing and an im- promptu programme was enjoy- ed. Those called on to speak were: Rev. S. Olafson, Rev. E. H. Fafnis, Vera Johannsson, Thos. Oleson, Margaret Sigurdson, Gis- sur Eliason, Arni Sveinson, Eg- gert Erlendson, Norton Ander- son. The delegates and guests then departed for their homes and respective societies with re- newed enthusiasm and inspira- tion to carry on the young peo- ple’s work. Delegates who will represent the Y.P.A. at the Synodical Con- vention are Vera M. Johannsson and Arni Sveinson with Thos. Oleson vice-delegate. The inter-synodical committee for the year 1938-39 will be Rev. E. H. Fafnis, Rev. B. A. Bjarna- son and Gissur Eliason. ÞAKKARORÐ Til allra, sem hluttekningu sýndu við hið sviplega fráfall okkar ást- kæra sonar og bróður Jóns Þor- steins Carle, og sem á ýmsan hátt mýktu sár okkar í okkar djúpu sorg og missi. Við þökkum innilega og af hjarta blómin, samúðarskeytin og nærveru ykkar við jarðarförina og biðjum góðan Guð að launa ríkulega hina miklu hluttekningu ykkar í vorn garð. \ Jón J. Henry Ingveldur Henry Jóhann G. Henry Lilja G. Goodman Jón E. Einarson boro, Hensel, Gimli, Winnipeg, Arborg, Baldur and Selkirk. Resolution and noininating com- mittees were appointed in the session. Rev. E. H. Fafnis, Glenboro, was re-elected secretary of the Phcket Testament League, after the conference voted its approval of the aims of the League and had pledged its collective support. Rev. Fafnis, who presented his brief for the League stressed the importance of reading the Bible with our friends or alone, every day. He made it clear that in joining the Pocket Testament League, members were in no manner forced to follow the rules ofthe League. The convention gave approval to a plan to set up a Loyalty Fund, the purpose of which would be to accept subscriptions; the money to be used for the fur- therance of the Y.P.A. policies. The convention unanimously felt the need of financial aid from sources other than those open at the present time, and stressed the need of more finances. Con- tributions will be solicited from interested organizations and in- dividual contributions may take the form of: (1) ordinarv good- will contributions; in memoriam and bequests. (2) Honorary membership fees. The afternoon session heard a brief on leadership training pre- sented by Mrs. S. Olafson, Ar- borg, in the absence of Asgeir Bardal, of Winnipeg, who was to have given it. Delegates debated the subject at some length and the proposal to set up a summer retreat where Lutheran ministers would instruct the young people in leadership training was de- feated when taken to motion. The Y.P.A., in a resolution thanked the Lutheran Women’s League for their proposal and offered all possible co-operation to set up leadership training courses in the various congregations. The short Saturday evening session heard a brief on “The Endeavour” given by John K. Hjalmarson, business manager. He summed up the activities of the periodical for the year and presented recommendations. A committee was elected to ineet and consider the question of the periodical. Those chosen were: John Hjalmarson, Norton Ander- son, Thos. Oleson, Eggert Erlend- son and Lee Thorvardson. Sunday morning the pulpits of three of the churches in the dis- trict were occupied by Y.P.A. speakers. Rev. Fafnis conducted the service in Ardals church; at Riverton Jim Snidal and Lee Thorvardson spoke; at Geysir 5S5$SS55555455S5555555555SS5$555445$5555444455S$55«5445555«$5S5«5SS$5S5$55S5$55» Business and Professional Cards DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 VVinnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultatton by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manltoba DR. ROBERT BLACK SérfrœCingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy ViStalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofuslmi — 22 2 61 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 206 Medieal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy 8ts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 Dr. S. J. Johannesson ViCtalstlmi 3-5 e. h. 21« SHERBURN ST. Slmi 30 877 DRS. H. R. & H. W. TWEED TannUxknar 4 06 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 26 54 5 WINNIPBO H. A. BERGMAN, K.C. tslemkur lögfrœSincrur Skrifstofa: Room 811 McArthur Bullding, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. íslenxkur löofrceOingvr 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94 668 LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solioitors, Notaries, etc. W. J. Lindal, K.C., A. Buhr Björn Stefánsson Teleplione 97 621 Offices: 325 MAIN STREET Arlington Pharmacy Sérfræðingar í lyfjaforskriftum 796 SARGENT AVE. við ArUngton SlMI 35 550 Finni oss I sambandi við Iyf, vindlinga, brjóstsykur o. fl. PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEO Fíisteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningal&n og eldsábyrgB af öllu tægi. PHONE 94 221 A.S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður s& bexti. Ennfremur seiur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talstmi: 86 607 Heimilis talslmi: 601 662 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEQ pcegilegur og rólegur bústaOur < mAObiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yflr; með baðklefa $3.00 og þar yflr. Agætar m&ltíðir 40c—60c Free Parking for Ouests

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.