Lögberg - 25.08.1938, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. ÁGÚST 1938.
5
“Bulletin” og hún skuli koma í blaíS-
inu þá í vikunni, og hún veríSi á
ritstjórnarsíÖu blaÖsins. Greinin
kom út í blacSinu orðrétt þann n.
ágúst, svo hún fékk góÖan byr und-
ir báíSa vængi og flýgur út til 70,000
áskrifenda blaÖsins hér í vestrinu.
Er liklegt aÖ eg noti þessa gestrisni
ritstjórans aftur, ef eg kemst yfir
eitthvaÖ merkilegt um Island.
STJÓRNMAL
Ekkert sérstaklega merkilegt er
að frétta héðan. Social Credit
skútan morrar altaf í sama stað.
Kemst hvorki aftur á bak eða á-
fram. Forsætisráðherrann í Alberta
hefir skýrt frá því, í einni “Politico
Religio” stólræðu sinni, að “The
Social Credit Board” og hinn há-
launaði “expert” sem Major Doug-
las sendi Mr. Aberhart til að fræða
hann um “Social Credit” séu nú að
semja alveg nýjan, pólitískan
skrípaleik, sem muni hafa meiri og
betri áhrif en skrípaleikur sá, sem
stjórnin hefir verið að leika í síð-
astliðin þrjú ár. Tíminn leiðir það
í Ijós, hvort þeim tekst það.
Líka hefir forsætisráðherrann
skorað á alla sína fylgifiska að
stofna til hátíðahalds á sem flest-
um stöðum í fylkinu í þessum mán-
uði, til að minnast þess að nú sé
Scoial Credit stjórnin i Alberta
þriggja ára gömul. ‘Finst mörgum
að þetta tiltæki sé gjört til að storka
alþýðunni, sem ekki hefir getað los-
ast við þessa vandræðastjórn, þó
mikið hafi verið reynt til þess. Aðr-
ir lita á það svo, að stjórnin “is
adding insult to injury” >með þessu
tiltæki.
5". Guðmundson.
Önnur kvittun
Málœðinu fylgja yfirsjón-
ir} en sá breytir hyggilega,
sem hefir taum á tungu
sinni,—O.S.D.
Herra Hjálmar Gislason er ekki
latur maður að skrifa. Ennþá fer
hann á stað í Heimskringlu þann
10. ágúst, til að sanna heilagleik
Social Credit stofnunarinnar í Al-
berta; lítill vafi á, að hann hefir
orðið alvarlega innblásinn af froðu-
snakknum og vindbelgnum í Ed-
monton, kind, sem gengur með
A
LIBERAL
ALLOWANCE
For You r
Wafeh tlylst
thangs tool
WATCH
TRADE IT IN
for- a NEW
BtlLOVA
NO DOWN PAYMENT.
17
$2975
17 jtwtlt
$297®
CANADIAN
of TIME
IT jswslt
*297s
3/ie ffa/c/t f)/iop
THORLAKSON and BALDWIN
Watchmalcers and Jewellers
699 SARGENT AVE.
WINNIPEG
ósönnu málæði og kveikir ill-
deilur meðal friðelskandi manna.
Þessir leppalúðar þarna í Edmon-
ton hafa fyrir löngu vilst af vegi
skynseminnar með þessu Social
Credit snakki, sem þeir sjálfir
skilja hvorki upp né niðúr í. Flest
þeirra lagasmíði hafa orðið þeim
sjálfum og öðrum til skaða og
skammar.
Það hefir enga þýðingu að ætla
sér að leiðbeina svona snáðum
hvotki með góðu né illu, því að
hundrað högg á heimskingja hafa
engin áhrif.
Og þar sem Aberhart hefir nú
leynt og ljóst vilst af vegi skynsem-
innar, cr ekkert líklegra en að hann
lendi fljótlega í pólitískum söfnuði
franiliÖinna. Ekki svo nauðsynlegt
að líkaminn þurfi að deyja, enda
engin hætta á slíku; þeir lifa lengst
sem leiðastir eru. Guð vill heldur
ekki dauða syndugs manns, heldur
að hann snúi sér og lifi.
Annars er ekkert vit í því, að eyða
löngum tíima á þetta S. C. úrþvætti,
sem Aberhart sjálfur skilur ekkert
í, maður, sem yfir höfuð hefir lítið
vit á pólitík; hans lífsstarf um dag-
ana var að kenna krökkum kverið.
Mest hans skraf og mas um pólitík
hefir verið óvita fálm út í veður
og vinda, eins og þegar druknandi
maður grípur i hálmstrá. Með mál-
æðinu hefir hann sérstakt lag á að
fleka fáfróðan, illa uppalinn, ment-
unarlausan aumingjalýð, þá tegund
fólks, sem Canada mætti sér að
skaðlausu helzt án vera, margt
meira og minna gallað af langvar-
andi kúgun og harðstjórn frá Mið-
Evrópulöndunum og þýzk-rúss-
neskum uppreisnaranda, fólk, sem
með réttu skilur ekki hvað er að
búa í frjálsu landi; var ósjálfbjarga
í heimahögum og datt aldrei i hug
að flytja hingað með þeirri hug-
mynd að vinna sér daglegt brauð.
Hafa litla eða enga sjálfsbjargar-
viðleitni til að vera sjálfum sér nóg-
ir. Vilja heldur vera sveitarlimir i
framandi landi, á kostnað þeirra,
sem hafa manndóm til að bjarga sér
og sínum upp á ærlegan máta. Þessi
óþarfalýður, sem lætur sér standa
á sama um alla hluti milli himins
og jarðar, óskar þess hátt og í hljóði
að alt falli í kalda kol, að heimurinn
með öllum hans gögnum og gæðum.
fari veg allrar veraldar, eru gegnum
sósaðir af grimmu uppreisnaræði
frá þeirra eigin heimalandi og ban-
vænum skeytum.
Væri nú ekki nema sanngjamt að
minna herra H. G. á það, að þessi
flokkur manna eru ágætir vinir og
stuðningsmenn í orði og verki S. C.
stjórnarinnar í Alberta, enda er
S. C. stefnan í Alberta af sama
sauðahúsi uppreisn á móti flestu
því, sem gott er og göfugt í fari
manna. Sjórnin í Alberta hefir ekki
reynt að bæta fólkið, þvert á móti;
hún hefir kent fólki óvöndugheit
og óráðvendni í viðskiftum, og með
fjandsamiegu athæfi hefir hún spilt
friði og ró á heimilum manna. En
svo fallega launar Aberhart þeim
stuðningsmöúnum sínum lambið
gráa, að hann segir þeir hafi ekki
meira vit í hausnum en þrettán ára
gamlir unglingar, samkvæmt yfir-
lýsingu hans sjálfs þegar hann
blaðrar í Vancouver; gott að vinna
fyrir svona fugla. í staðinn fyrir
að uppfylla loforð sín við þessa
aumingja, þá kjaftshöggar hann þá.
Sannast þar sem oftar að oft ratast
kjöftugum satt af munni.
Aberhart er ekki sva vitlaus, að
hann fari að gefa líf sitt út fyrir
sína sauði; þeir tímar eru löngu
liðnir. Fólkið í Alberta verður að
fórna lífi sínu fyrir Aberhart.
Með kænskubrögðum svældi hann
undir sig velaunaða stöðu, og þar
situr hann til þess tíma að hann
verður að fara úr vistinni fyrir
illa unnið starf, en þá að líkind-
um fer hann að dæmi Pílatusar:
hann þvær af sér rykið.
Herra H. G. ætti sóma síns vegna,
að skilja við þetta átrúnaðargoð
sitt, S. C., því þó hann skrifi um
það til daganna enda, verður hann
engu nær, en honum sjálfum til ang-
urs eins, að eyða part af æfinni í að
verja jafn illa meinsemd sem þessi
Social Credit illvættur hefir
reynst Alberta, er æfinlega vont og
vanþakklátt verk, þegar til lengdar
lætur að verja rangt mál og ilt að
eiga þræl fyrir einkavin.
Aberhart er nú bráðum úr sög-
unni, og mun það sannast bezt við
næstu kosningar. En nýir menn
taka við; þá mun Social Credit
stjórnin í Alberta, samkvæmt rétt-
læti Guðs og góðra manna, enda á
helslóðum, og það rétt fyrir augun-
um á Aberhart og Hjálmari Gísla-
syni.
102—4th Street N.E.
Calgary, Alberta.
S. Sigurðsson.
Góður síldaraíli
Saltsíldaraflinn á öllu landinu er
í dag orðinn, að heita má, nákvæm-
l'ega jafnmikill og sama dag í fyrra-
sumar, en bræðslusíldaraflinn er
aftur á móti aðeins um þriðjungur
móts við það, sem borist hafði á land
um sama leyti í fyrra.
Síðastliðinn sólarhring voru salt-
aðar um 5,733 tunnur á Siglufirði
og allmörg skip hafa komið í morg-
un með síld, sem þau hafa fengið
inest á Skagafirði, Eyjafirði og
Skjálfanda.
Er mikil síld í sjónum, en þoka
og mikill straumur og hefir það
nokkuð tafið fyrir veiðum.
En andvirði bræðslusíldarinnar
til veiðiflotans um 1200 þúsund
krónur, og andvirði alls síldaraflans
til veiðiflotans það sem af er ver-
tíðinni því aðeins um i)4 miljón
króna.
Útflutningsverðmæti saltsíldar-
aflans, miðað við lágmarksverð síld-
arútvegsnefndar, er hins vegar orð-
ið um 1200 þúsund krónur.
Lágmarksverð á fersksíld til mat-
ésverkunar hefir verið ákveðið kr.
9.50 á tunnu, en var í fyrra kr.
11.50 á tunnu.
Byrjar matéssíldarverkun fyrir
alvöru upp úr-mánaðamótunum, en
aðeins nokkur hundruð tunnur verða
verkaðar nú fyrir mánaðamótin.
—Alþ.bl. 30. júlí.
NORÐURFÖR KRÓNPRINS-
HJÓNANNA
Dronning Alexandrine kom til
Siglufjarðar kl. 9.30 í gwrmorgun
í góðu veðri og sólskinslausu.
Bæjarstjómin efndi til opinberrar
móttöku til heiðurs krónprinshjón-
unum og flutti Guðmundur Hann-
esson bæjarfógeti ræðu. Mikill
mannfjöldi var samankominn á
hryggjunni og hylti krónprinshjónin
með margföldu húrrahrópi.
Frá skipinu var haldið að Hótel
Hjvanneyri, þar sem boðið var upp
á hressingu og karlakórinn Vísir
söng fimm lög, undir stjórn Þor-
móðs Eyjólfssonar. Báru krnóprins-
hjónin mikið lof á söng kórsins.
Áður en skipði lét úr höfn kl.
“•3R og hélt af stað áleiðis til
Akureyrar, voru kirkjan og síldar-
verksmiðjurnar skoðaðar.
Krónprinshjónin komu til Akur-
eyrar kl. 3.45 í gær. Mikill mann-
fjöldi var saman kominn á bryggj-
unni og fagnaði hann krónprins-
hjónunum með húrrahrópum.
Kantötukór Akureyrar söng, Ó, guð
vors lands, undir stjórn Björgvins
Guðmundssonar. Bæjarfógeti, bæj-
arstjóri og bæjarstjórn fögnuðu
hinum tignu gestum. Bæjarstjóri á-
varpaði þá, en bæjarfógetafrúin
fwrði krónprinsessunni blómsveig.
Að móttökuathöfninni lokinni var
ekið inn að Laugalandi. Forstöðu-
kona kvennaskólans þar, Valgerður
Halldórsdóttir, sýndi krónprins-
hjónunum skólann. — Síðan var
drukkið te. Að því búnu var ekið
aftur til Akureyrar og krónprins-
hjónunum sýndur skemtigarðurinn,
en síðan fóru þau um borð í Dr.
Alexandrine. Kl. 7 í gær var krón
prinshjónunum haldin veizla í
Mentaskóla Akureyrar, og stóð hún
yfir er blaðið hafði síðast fregnir
frá Akureyri..
—N. Dagbl. 28. júli.
/ SARUM
Eg sit hér ein á ýztu nöf
út við kaldan sæinn,
og lít ei framar
ljúfa sólskinsdaginn.
Hér við áður undum tvö
okkar sælustundir,
nú eru lífsins gæði
gengin undir.
Við töluðum um yndi og ást,
er æfin hefði að bjóða
—og hversu lífið gæfi — alt
hið góða.
Við vorum glöð þá gæfustund
—en gráturinn beið i leyni.
Nú er hann horfinn
ástvinurinn eini.
Hafið grimma hreif hann burt.
hafið engu vægir.
Gráðugur er hinn
grimmlundaði Ægir.
Sit eg ein í sárum1 hér—
sorgin sker mitt hjarta,
vafið myrkri
vonarljósið bjarta.
Aðalheiður Jónsdóttir.
—Lesbók.
Kona ein'í New York, 34 ára að
aldri og fráskilin, stefndi föður sín-
um um daginn fyrir þá sök, að hann
hefði flengt hana.
Hún hafði komið heim kvöld eitt,
eftir að klukkan var orðin tíu, en
slíkt næturrölt kunni gamli maður-
inn ekki við og náði því í vöndinn.
Endirnin varð sá, að rétturinn
kvað það ekki koma að isök, þó að
dóttirin væri úti til miðnættis alt að
tvisvar í viku, en gamli maðurinn
hristi höfuðið yfir ósköpunum og
flýði út úr réttarsalnum.
Amerísk skólastúlka átti að skrifa
stil um mótorihjólið. Stíllinn átti
að vera 250 orð, og hann var svo-
hljóðandi:
“Frændi minn keypti mótorhjól i
sumar. Hann ók á því upp í sveit,
en þá kom það fyrir, að mótorhjólið
eyðilagðist. Þetta eru 25 orð. Hin
225 orðin sagði frændi minn, þegar
mótorhjólið eyðilagðis’t, en þau eru
ekki hafandi eftir.’
—Mbl.
OUR ENROLMENT
IS A MONTH AHEAD
OF LAST YEAR
when we were filled to capacity
The MANITOBA offers you the
íollowing advantages:
#The reputation of the only college which has NEVER
admitted a grade IX or X student.
#A college whose results in open competitive Dominion Gov-
ernment examinations surpassed all others for the past
three years.
#A limited enrolment of 200 with far more space per student
than in any other college.
# Ideal working/ conditions with extra large classrooms,
separately air-conditioned and with exceptional light, result-
ing in better work and quicker progress.
# Private large furnished lounge for girls.
# Buffet counter in school where students staying for lunch
may obtain milk, tea, coffee, soft drinks, etc.
I
ICELANDIC STUDENTS . . .
Because of our happy experience with lcelandic students
in the past we offer you a special invitation to join our college.
\ •
MANITQBA KKr
The most up-to-date and progressive
business college in Western Canada.
ENDERTON BLDG., 334 Portage Ave., (4 Doors West of Eaton’s)
President: F. H. Brooks, B.A., S.F.A.E., S.F.C.C.I. PHONE 26 565
DAY CLASSES. EVENING SCHOOL Mondays and Thursdays
If you cannot attend college ask for our “HOME STUDY” booklet.