Lögberg - 03.11.1938, Blaðsíða 1
U. ÁROANGUR
Jónas alþingismaður Jónsson heimsœkir ríkisháskólann
í Norður Dakota.
Frá vinstri til hægri: Dr. Richard Beck, forseti deildar háskól-
ans í Norðurlandamálum og bókmentum; Jónas alþingisma'ður
Jónsson; Dr. John C. West, forseti ríkisháskólans. Jónas
alþingismaÖur hélt ræðu í Blaðamannafélagi Háskólans og var
gerður heiðursfélagi þess.
Ur borg og bygð
Herbergi, án húsgagna, fæst til
leigu nú þegar að 591 Sherburn S.t.;
herbergið er bjart og rúmgott.
Sanngjörn leiga. Sími 35 909.
♦ -f -t-
Rev. Arthur M. Knudsen, D.D.,
frá Chicago, 111., skrifari Sameinuðu
lútersku kirkjunnar í Norður-Ame-
ríku, var staddur hér í borginni í
byrjun yfirstandandi viku.
-f -f ♦
Mr. Harold Helgason, sem starfar
fyrir flugher Canada sem “Air
Craftsman No. 1” tafði hér stutt um
síðastl. helgi; var hann á leið frá
Ottawa til Calgary, þar sem hann
mun starfa í framtíðinni.
-f -f -f
If you intend to buy a car or re-
quire financing, see us, or if your
present car requires some extensive
repairs that you are not able to pay
for immediately, see us, we may be
able to assist you to finance that
also.— J. J. Swanson & Co., Ltd.,
601 Paris Bldg., Winnipeg.
-f -f -f
Mrs. S. Helgason frá Cypress
River kom til borgarinnar í síðustu
viku og dvaldi hér nokkra daga; í
fylgd með henni voru fjögur börn
hennar, Helgi, verkfærasali í
Cypress River, Kristjana, Guðlaug
og Mrs. B. J. Anderson og ung
dóttir hennar.
-f -f -f
Mr. og Mrs. Benedikt Eyford frá
Saskatoon dvöldu í borginni um
helgina. Benedikt gegnir ábyrgðar-
stöðu hjá Western Steel félaginu;
hann er sonur þeirra Mr. og Mrs.
Guðmundur Eyford, Ste. 15. Mani-
tou Apartments hér í borg. Þau
Mr. og Mrs. Eyford héldu heim-
leiðis á mánudaginn.
♦ ♦ ♦
Afmælisminning um séra Jón
Bjarnason er ákveðin í Jóns Bjarna-
sonar skóla, 652 Home St., þriðju-
daginn 15. þ. m., kl. 8 e. h. lil sam-
komunnar er stofnað af kennurum
og nemendum J. B. skóla og er
haldin samkvæmt venju liðinna ára.
Allir eru velkomnir. Samskotin eru
frjáls, eftir vilja og getu manna,
en ganga til þarfa skólans. AI-
menningur er mintur á að þarfir
hans eru miklar.
Jumor Ladies Aid of the
Lutheran Church will meet in the
Church Parlors on Tuesday after-
noon at 3 o’clock.
♦ ♦ ♦
Gefin saman í hjónaband 29. okt.
voru James Lig'htfoot Guttormson
og Lára Sigurlaug Ágústa Ander-
son. Séra B. A. Bjarnason gifti,
og fór athöfnin fram á heimili hans
á Gimli. Brúðguminn er sonur Mr.
og Mrs. Gunnar Guttormson, Gimli;
en brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
Oddur Anderson, á Vigri við Gimli.
Daginn eftir giftinguna lögðu ungu
hjónin á stað i fiskiver norður á
W innipegvatn. F ramtíðarheimili
þeirra verður á Gimli,
♦ ♦ ♦
Föstudaginn 28. október s.l. varð
bráðkvaddur við skógarhögg, skamt
frá heimili sínu í Winnipegosis,
bóndinn Jónas Jóhannsson Schalda-
mose; hann var af skagfirzkum ætt-
um, fluttist til þessa lands með for-
eldrum sinum árið 1883 í giftist
Guðrúnu Finnbogadóttur Hjálm-
arssonar 1905, sem lifir mann sinn
ásamt kjördóttur þeirra, Aðalheiði
Ólöfu, giftri konu í námubænum
Flin Flon hér í fylkinu. Jónas var
fullra 66 ára gamall. Hans verður
minst siðar..
Winnipesosis 31. október 1938.
F. H.
fro andrea johnson
Á nýafstöðnu ársþingi bænda og
bændakvenna samtakanna í Mani-
toba, er haldið var í Brandon, var
frú Andrea Johnson endurkosin í
einu hljóði til forseta í félagsskap
hinna sameinuðu bændakvenna í
Manitobafylki.
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3. NÓVEMBER, 1938
NÚMER 44
Demantsafmæli Fyrsta
lúterska safnaðar
Fvrsti lóterski söfnuður var stofuaður árið 1878, og
hefir nó því fullnað sextíu ára fjölþætta og giftudrjóga
starfsemi meðal Islendinga í þessari borg. 1 tilefni af
þessu sög-uríka starfsafmæli sínu, hefir söfnuðurinn
haldið viðeigandi og tilkomumiklar hátíðaguðsþjónustur,
er fjölmenni mikið hefir sótt, auk ýmissa annara hátíða-
brigða.
Traustar hafa þær verið, máttarstoðirnar, er söfnuð-
urinn hefir bygt tilveru sína á í síðastliðin sextíu ár, því
margt fer stundum forgörðum á langtum skemmri tíma;
það er því sýnt, að guðsblessan hefir hvílt yfir starfi
þeirra manna og þeirra kvenna, er grundvöllinn lögðu og
skiluðu niðjunum í hendur gróandi stofnun; að gróðrar-
öfl séu enn að verki í lífi safnaðarins sézt glegst af því,
að á Demantsafmælinu bættust honum 110 nýir meðlimir.
Fyrsti lóterski söfnuður hefir verið lánssamur í for-
ingjavali sínu; átt afburðamönnum á að skipa, svo sem
þeim Dr. Jóni Bjarnasyni og Dr. Birni B. Jónssyni. Vel
hefir og söfnuðinum tekist til um val síns nýja prests,
séra Valdimars J. Eylands, sem sakir ágætra liæfileika
og frábærrar sjálfsræktar, má margháttaðs nytjastarfs
vænta af. Með hliðsjón af glæsilegri fortíð sinni, hefir
söfnuðurinn gilda ástæðu til þess að líta björtum aug-um
á framtíðina.
LUTHERAN HOUR
Dr. Walter A. Maier flytur útvarps-
erindi um trúmál yfir KFYR út-
varpsstöðina í Bismarck, N. D.
(550 kc.) kl. 3.30 e. h. á sunnudag-
inn kemur. Auk þess lætur St.
Louis kirkjusöngflokkurinn frægi,
er samanstendur af 50 röddum, þar
einnig til sín heyra.
HEIMBOÐ
í tilefni af gullbrúðkaupi foreldra
okkar, þeirra Mr. og Mrs. Ólafur J.
Ólafsson, 22 Fermor Ave., St. Vital,
þann 8. nóvember 1938, verÖur tek-
ið á móti gestum á heimilinu frá kl.
2-6 e. h. og frá kl. 7-11 að kveldinu.
Allir vinir gulbrúðhjónanna hjart-
anlega velkomnir.
Jennyt Halldór og Kjartan
(börn gullbrúðhjónanna)
♦ ♦ ♦
Séra Jóhann Bjarnason og kona
hans eru nú búsett í Selkirk, þar
sem séra Jóhann hefir tekið að sér
safnaðarþjónustu hjá Selkirksöfnuði
frá því nú á þessu hausti og þar til
i júnímánaðarlok á næsta sumri.
Bústaður þeirra hjóna er í hinu
stóra og rúmgóða húsi Mr. og Mrs.
R. S. Benson, sunnan til í Selkirk-
bæ. Símanúmer þar er 31. — Utan-
áskrift þeirra Bjarnasons hjóna
verður Box 461, Selkirk.—
♦ ♦ ♦
Hið íslenzka og lúterska kirkju-
félag stendur fyrir útvarpi frá stöð-
inni CJRC í Winnipeg mánudaginn
7. nóvember frá kl. 8:30 til 9 e. h.
Séra Kristinn K. Ólafson flytur
stutta prédikun, en þær Mrs. V. J.
Eylands og Mrs. Grace Johnson
syngja. Allir, sem styðja vilja út-
varp kirkjufélagsins eru beðnir að
senda tillög sín til S, O. Bjerring,
550 Banning St., Winnipeg.
♦ ♦ ♦
Jónas Jónasson fyrverandi mjólk-
ursali í Wánnipeg, en nú í Reykja-
vík, hefir sent vestur nokkur sýnis-
horn íslenzkra frímerkja, 30, 40 og
60 aura, helguð minningu Leifs Ei-
ríkssonr (Leifr Eiricsson Day, Oct.
9th, 1938.). Miði þessi, sem fer vel
í ramma, er af venjulegri póstspjalds
stærð. Ofan við nafn Leifs Eiríks-
sonar er fáni íslands. Þessi laglegu
Leifsmerki fást hjá J. J. Swanson
&■ Co., 601 Paris Bldg., Winnipeg,
og kosta 75C.
Gunnar Gunnarsson
skáld
flytur að Skriðuklaustri
í Fljótsdal
Lausafregnir hafa heyrst um það,
að Gunnar Gunnarsson hafi í hyggju
að flytja heim til íslands á næsta
ári. Hann kom ásamt frú sinni með
síðuStu ferð Novu til Austurlands.
Þau voru á Hallormsstað í gær. Átti
Morgunblaðið símtal við Gunnar.
Er tíðindamaður blaðsins spurði
hann hvort rétt væri her.mt, að þau
hjón hugsuðu sér að flytja hingað
til lands búferlum, svaraði hann:
—Við höfum fest kaup á jörð hér.
—Skriðuklaustri ?
—Já.
—Og ætlið að setjast þar að.
—Það er ekki ákveðið. En ætli
það verði ekki svo. En áður en við
flytjum þangað þarf að byggja þar
íbúðarhús.
—Á það að komast upp að sumri ?
—Svo er talað um, og ef það tekst
að koma húsinu upp nægilega
snemma, þá flytjum við líklega heim
fyrir haustið.
—Og takið við búskap á jörð-
inni ?
—Það er erfitt að segja. Þetta
eru erfiðir tímar fyrir búskap nú á
dögum, ekki álitlegt að hugsa um
það.
—Komið þið hjónin ekkert til
Reykjavíkur að þessu sinni?
—Líklega ekki; tökum okkur
sennilega far með Novu til baka.
Eg býst svo við að koma til landsins
aftur með vorinu, og þá kem eg til
Reykjavíkur.
—Hvað líður næstu bók yðar?
—Hún getur ekki komið út í
haust eins og tilætlunin var, vegna
þess að eg þurfti að fara þessa ferð
áður en eg hafði lokið við hana.
Hún verður að bíða til vorsins, efleg-
ar til næsta hausts.
—Hvert er efni hennar?
—Það er saga, sem gerist nálægt
vorum tímum og verður ein af bók-
unum í hinum sögulega bálki bóka
minna, að visu styðst hún ekki eins
við sögulegar heimildir sem hinar
fyrri.
—Morgunbl. 7. okt.
IHALDSMENN VINNA 1
SVEITA- OG BÆJAR-
STJÓRNA RKOSNINGUM
Símað er frá London á miðviku-
i
dagsmorguninn, að kosningar þær til
bæja- og sveitarstjórna, sem fram
fóru á Bretlandi hinu mikla á
þriðjudag, hafi íhaldsflokknum auk-
ist allmjög fylgi. I London bættust
flokki íhaldsins allmörg sæti á kostn-
að hinna óháðu verkamanna sam-
taka.
FARMER FIDDLERS
Art McEwing og félagar hans Farmer Fiddlers. sem spila á
hverju laugardagskveldi yfir CKY útvarpsstöðina i Winnipeg,
kl. 11 C.S.T., og kl. 10 Mountain Standard Time. Herb Pauls
er einsöngvari flokksins.
FRÉTTIR
Árásarhersveitir Japana í Kína
hafa nú náð á vald sitt borgunum
Canton og Hankow; er þá svo að
komið, að einungis þrjár, kínversk-
ar hafnarborgir eru ófallnar i hend-
ur Japönum.
♦
Hersveitir Francos uppreistar-
foringja á Spáni hafa nýverið unnið
hvern stórsigurinn á fætur öðrum á
Ebro vígstöðvunum. Chamerlain-
stjórnin mælir með þvi í brezka
þinginu, að Franco verði veitt full-
komin stjórnarfarsleg viðurkenning
á Spáni. 4.
♦
Símað er frá Berlín á mánudag-
inn, að Þjóðverjar krefjist þess, að
þeim verði tafarlaust fengnar i
hendur þær Afríkunýlendur sínar,
er þeir voru sviftir samkvæmt
Versalasamningunum. Búist er við
nýjum f jórveldafundi í sambandi
við úrlausn málsins.
♦
Símað er frá Ottawa á þriðju-
daginn, að W.F.A. Turgeon hafi
verið skipaður háyfirdómari í Sas-
katchewan í stað Sir F. W. G.
Haultain, er lét af embætti fyrir
aldurssakir. Sir Haultain er nú
áttræður að aldri og nýlega genginn
í heilagt hjónaband.
♦
B.rezku konungshjónin hafa á-
kveðið að taka hðimboði Banda-
rikjastjórnar um að koma til Wash-
ington næsta sumar; dvelja þau þar
í gistivináttu Roovelts forseta og
frúar hans í þrjá sólarhringa.
GJAFIR TIL BETEL
j OKTÓBER 1938
Dr. B. J. Brandson, Box Apples:
Vinkona á Betel, $3.00; H. R-
(Betel), $1.00; The United Farm
Women of Manitoba, Gimli Local,
$20.00; Mrs. W. J. McCarthy,
Arnot, Man., $1.00; Mr. H. Nichol-
son, Gimli, Man., Case of Oranges
and Box Apples; Mr. Kristján
Kernested, Gimli, Hefti af Ársritinu
“Hlín”; Dr. og Mrs. Blöndal, Wpg.,
$5.00; Mr. B. T. Björnsson, Hensel,
N. D., $5.00; Blómsveigasjóður
kvenfél. Frelsissafnaðar, Baldur, í
minningu um Olgeir Frederickson,
$23.18; Gjöf úr dánarbúi Lilju J.
Nordman, sent af G. J. Oleson,
Glenboro, $18.50.
Kærar þakkir,
J. J. Swanson, féhirðir.
601 Paris Bldg. Wpeg
viðskiftasamningar
norðmanna og
islendinga
Vegna væntanlegra viðskifta-
samninga milli íslands og Noregs
hefir verzlunarmálaráðuneytið
norska beðist umsagnar iðjurekenda-
sambandsins norska um það, hverj-
ir örugleikar séu á útflutningi Norð-
manna til íslands.
Iðjurekendasambandið 'hefir leit-
að til ýmissa iðjurekenda og verzl-
unarhúsa og láta flestir í ljós, að
ærnir örðugleikar séu á sölu til Is-
lands, einkum vegna gjaldeyrisvand-
ræða, en ísland sé, vegna viðskifta-
samninga sinna við Þýzkaland og
ítalíu, bundið við að kaupa mjög
mikið í þessum löndum, enda séu
þau hvort um sig miklir kaupendur
að íslenzkri framleiðslu.
Iðjurekendasambandið leggur
mikla áherzlu á það, að í verzlunar-
samningum þeim, sem fyrir dyrum
standa verði lögð áherzla á að greiða
fyrir sölu norskra afurða til íslands.
—Morgunbl. 6. okt.
SlGrURÐUR SIGURÐSSON
kaupmaður í Calgary
Nú eru svo að segja liðin 20 ár
síðan Mr. Sigurðsson stofnaði hús-
gagnverzlun þá, er gengur undir
nafninu Alberta Furníture Com-
pany, og nú er orðin eitt af meiri-
háttar fyrirtækjum Calgary-borgar í
þeirri grein; er Mr. Sigurðsson á-
gætur íslendingur og dugandi við-
skiftafrömuður.
Þann 28. september siðastliðinn,
kvongaðist Mr. Sigurðsson, og gekk
að eiga ekkjufrú Edith Wade í
Calgary. Fóru þau brúðkaupsferð
sína vestur um Kyrrahafsströnd og
víðsvegar um Bandaríki.
Lögberg árnar þeim Mr. og Mrs.
Sigurðsson giftusamlegrar fram-
tíðar.
I