Lögberg - 29.12.1938, Blaðsíða 1
51. ÁRGrANGHJR
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1938
NÚMER 52
Lögberg flytur öllum Islendingum innilegar Nýárskveðjur!
SNJÓLÍKAN, SEM VAKIÐ HEFIR FEIKNA AÐDAUN
Þetta prýÖilega ger.Öa snjólík-
an af Sankti KláuSi á hreindýrs-
sleða í sinni venjulegu jólaheim-
sókn er eftir Mrs. G. J. Johnson,
109 Garfield Street í Winnipeg.
Líkan þetta stendur á 16 feta
snjóstalli framan viS heimili
Mrs. Johnson, og tók þaÖ hana
10 daga aÖ ljúka verkinu. Mrs.
Johnson er fyrir löngu kunn af
sinni sérstæðu snjólíkanager'ð
og hefir hlotið verðlaun hvað
ofan i annað; ekki ólíklegt að
hún fái ein verðlaunin enn fyrir
þessa síðustu snjósteypu sína.
Kom sæl og blessuð drotning dýr!
í dag þú stígur “hænu fet,”
en eilíf vizkan ,i því býr
og alheims þyngstu met.
Þó mátt sinn vetrar magni gnýr
er myrkrið fært uin set.
Kom heil og sæl! í hreysi mitt
þú hleypir fyrstu geislum inn.
Þín, systurkveðja er sólskin þitt,
—í sömu átt eg vinn,
að myrkur vakan verði stytt,
svo Vorið komist inn.
í fylgd með þér, til farar snýr
hinn fleygi hugur leitandans.
Þú kannar yztu æfintýr
á öldum ljósvakans.
Þú hleypur allar himinbrýr
í heimi skaparans.
Þú hrekur allan ótta af leið.
Hans einvalds ríki myrkrið er
að mannsins huga magnar seið
og máttinn eignar sér,
og æfinlega í allri neyð
hann ægishjálminn ber.
Eg legg með þér á ljóssins braut,
þó lið mitt nái í fjarlægð skamt.
Eg veit þú enga þekkir þraut
og þér er starfið tamt.
Þó myrkur haldi um himinskaut,
þú heldur áfram samt.
J. S. frá Kaldbak.
Glœsileg hátíðahöld
Hátíðahöldin í gær af tilefni
20 ára fullveldisafmælisins voru
rnjög almenn víða um land. Hér
í Reykjavík voru meiri hátíða-
höld en nokkru sinni áður.
Áhrifaríkasti þáttur þessara
hátíðahalda var áreiðanlega end-
urvarpið frá íslendingum í Win-
nii>eg. Það hófst kl. 15.15 hér,
en þá var morgun í Kanada.
Heyrðust ræður Vestur-íslend-
inga mjög vel, en söngurinn mið-
ur. Endurvarpið hófst með því
að Karlakór Vestur-lslendinga
söng “Sverri konung.” Þá flutti
forseti Þjóðræknisfélagsins, dr.
Rögnvaldur Pétursson erindi, en
síðan talaði dr. Brandur J.
Itrandson læknir. Þá söng frú
Sigríður Olson 4 lög, en síðan
flutti Einar Páll Jónsson kvæði.
Þá talaði Grettir Leó Jóhanns-
son, fulltrúi hinna ungu Vestur-
íslendinga, ávarp, og loks söng
Karlakór Vestur-lslendinga aftur
nokkur lög, og hljómaði söngur
hans, “Fjalladrotning, móðir
mín,” um leið og sambandinu var
slitið. Stjómandi kórsins var
Ragnar H. Ragnar, undirleik
annaðist Gunnar Erlendsson og
einsöngvari var Lárus Melsted.
Útvarp Vestur-Islendinga var
prýðilega skipulagt, og er varla
hægt að ætla, að það hefði getað
tekist betur. Það sýndi á áhrifa-
ríkan hátt ást landa okkar vestan
hafs til gamla lantisins — og
engar kveðjur mun Islendingum
heima hafa þótt jafn vænt um og
þessar hlýju lcveðjur hinna 40
þúsund landa, sem dveljast vest-
an hafs.
Að loknu þessu endurvarpi á-
varpaði forsætisráðherrann Vest-
ur-Islendinga, en síðan var sung-
inn þjóðsöngurinn, og var hvoru
tveggja endurvarpað vestanhafs.
Þegar í gæmiorgun var
Reykjavík flöggum skreytt.
Stúdentar, eldri og yngri, söfn-
uðust saman við Stúdentagarð-
inn kl. 1 og gengu þaðan í fylk-
ingu ásamt sveit íþróttamanna
og með Lúðrasveit Reykjavíkur
í farabroddi, að leiði Jóns Sig-
urðssonar forseta. Þar flutti
formaður Stúdentaráðsins ræðu,
en síðan var lagður fagur blóm-
sveigur á leiði forsetans. Nú
hélt fylkingin að Alþingishúsinu
og var mynduð fánaborg um
styttu Jóns forseta. Var þarna
mikill mannfjöldi saman kominn.
Af svölum Alþingishússins flutti
Pétur Magnússon hæztaréttar-
málafærslumaður ræðu, en síðan
var þjóðsöngurinn leikinn.
Kl. 1 flufcti forsætisráðherra,
Hermann Jónasson, ávarp til
þjóðarinnar.—Alþbl. 2. des.
Á krossgötum
Jón Þorvarðsson á Suðureyri
í Súgandafirði hefir sagt Tíman-
um eftirfarandi fréttir: I sumar
var byrjað á hafnargerð á Suð-
ureyri og steyptur skjólgarður,
er kostaði um fimmtán þúsund
kró.ntir, ásaimt plani. I haust
hefir verið unnið að uppfyllingu
innan við garðinn. Er fé til á-
framhaldandi hafnargerðar veitt
á fjárlögum næsta 'árs. I vor
var unnið að vegagerð yfir
Botnsheiði og lögð braut frá
Breiðdalsheiðarvegi niður í
Botnsdal. 'Er enn vegleysa um
dalinn, ekki löng leið, en mjög
erfið og er áætlað að vegarlagn-
ing þar kosti urn 35 þúsund
krónur. Þegar sú torfæra er
yfirstigin er Súgandaf jörður
kominn í önugt akvegarsamband
við Isafjörð og önnur helztu
bygðarlög á Vestfjörðum
♦
Þrátt fyrir þessar framkvæmd-
ir hefir verið unnið að fram-
leiðslunni með fullum krafti.
Fintmtán bátar stunduðu veið-
ar frá Suðureyri í sumar. Af
þeim var einn um þrjátíu smá-
lesta vélbátur, þrír 10—12 smá-
lesta vélbátar, fimm minni vél-
bátar og sex hreyfilbátar. Stærsti
vélbáturinn stundaði síldveiðar
fyrir Norðurlandi um síldarver-
tiðina og aflaði veí. Tveir bátar
voru að dragnótaveiðum framan
af sumri og fluttu aflann tii
Bildudals og Isafjarðar. Annar
þeirra stundaði reknetaveiðar er
leið á sumarið. Hinir bátarnir
stunduðu í sumar nær eingöngu
veiðar á handfæri og öfluðu á-
gætlega. Fengu beztu dráttar-
menn alt að 500 krónur i hlut í
júli og litlu minna í ágúst. Aðal -
fiskilóðin liggur skamt út af
f jarðarmynninu og er venjulega
um klukkutíma sókn á miðin. I
haust hafa flestir bátar veitt á
lóðir og aflinn oftast verið seld-
ur í togara. Hefir fiskast dávcl
og betur en undanfarin haust.
I Mýrdal i Vestur-Skaftafells-
sýslu voru í sumar bygð fjögur
ibúðarhús, tvö í hvorum hreppi,
öll eftir teikningu og fyrirsögn
teiknistofu landbúnáðarins. Tvö
þessara húsa, að Suður-Fossi og
Lækjarbakka, hafa nær eingöngu
verið bygð af heimilismönnum
án aðkeyptrar vinnu. Þau eru
snotur að útliti og vönduð að
frágangi og virðast ætla að reyn-
ast vel. Hin ibúðarhúsin voru
reist að Sólheimakoti og Eyjar-
hólum. — Auk þessa hafa viða
verið bygð fjós, áburðarskýli og
votheyshlöður.
Búnaðarfélögin í Mýrdal hafa
undanfarin ár unnið að því að
bæta umi áburðarhirðingu bænda.
Hafa þau meðal annars staðið
fyrir sameiginlegum innkaupum
á sementi, lánað félagsmönnum
út á væntanlegan jarðabótastyrk
og lánað steypumót. Hefir með
þessum hætti talsverðu verið um
þokað í þá átt að bæta nýtingu
þess áburðar, er til fellst.
♦
I Vikurkauptúni hefir verið
gerð ný vatnsleiðsla. Var hin
gamla mjög takmörkuð og vatn-
ið tekið úr tærri bergvatnslind
langt uppi ,í Reynisfjalli og leitt
í tréstokkum! til kauptúnsins. Nú
er og verið að koma upp full-
komnum slökkviútbúnaði í Vík
og er kostnaðurinn, sem af því
leiðir um átta þúsund krónur.
Rafstöðin hefir verið stækkuð
að mun og geta Víkurbúar nú
fengið rafmagn til ljósa og suðu
fyrir 120 krónur árs-“kíló-
wattið.”
—Tíminn 26. nóv.
FRÁ SPANI
Um þær mundir, er jólahátíð-
in var hringd inn, hóf General
Eranco, foringi árásarhersins á
Spáni, afarmikla sókn gegn liðs-
sveitum stjórnarinnar í Catalonia
fylki; láta símfregnir þess getið.
að um 10 þúsundir manna af
báðum hliðum muni hafa látið
líf i þessari ægilegu orrahríð;
mælt er að sveitir Francos hafi
unnið allmjög á, og engan veg-
inn ólíklegt talið, að stjórnin
verði knúð til þess að flytja að-
setur sitt burt úr Bercelona.
Drotning dagsins
22. desember, 1938.
Barnakór R. H. Ragnars
Undanfarið hafa allmargir
farið þess á leit við mig að
tæki fleiri börn í barnakórinn og
hefi eg því í huga að æfa tvo
kóra nú eftir nýárið, ef nógu
mörg sönghæf börn óska eftir
söngkenslu. Er eg að láta
prenta mörg ný lög og vil gjarna
byrja æfingar í næstu viku. Þeir
foreldrar er hafa hug á að not-
færa sér þetta tækifæri geta
símað mér eða komið að sjá mig.
Heimilisfang mitt er 522 Furby
St. og símanúmer 31 476. Það
er mjög áríðandi að umsóknir
komi sem allra fyrst, því eg ætia
að æfa aðeins um tíu vikur,
tvisvar í viku og ef vel gengur
stofna til hljómleika að því
loknu. Vil eg vinsamlega mœl-
ast til að þeir, er unna bama-
söng auglýsi þetta svo, að þátt-
taka megi verða sem almennust.
R. H. Ragnar.
LIMA-FUNDINUM
LOKIÐ
Þann 27. þ. m. sleit hinum 8.
fundi amerískra þjóða, sem
haldinn var i borginni Lima í
Peru; fulltrúar frá tuttugu og
einni þjóð sóttu fundinn, er
fram fór á fjórum tungunmlum,
ensku, frönsku, portúgölsku og
spænsku. Fundurinn samþykti
að stofna til varnarsambands
meðal hinna amerísku þjóða ti!
þess að verjast yfirgangi og á-
róðursstarfi erlendra þjóða.
t