Lögberg - 29.12.1938, Blaðsíða 6

Lögberg - 29.12.1938, Blaðsíða 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1938 G ---------GUÐSDÓMUR—- L_____________________•-________________-J “Ef til vill hafiÖ þér rétt aÖ mæla,” mælti Daníra, ; eftir litla þögn. “En nú hefi eg kosiÖ, og get því ekki breytt til, þó að það kosti líf og hamingju.” Þetta sagði Daníra í svo' ákveðnum róm, að Ger- ald sá sér eigi vera það til neins að fara að mótmæla, en horfði aðeins þegjandi á ungu stúlkuna, á sótugu veggina í herberginu og annað, sem þar var inni. “Þá verðum við að skilja sem fjandmenn, því að það er eg i yðar augum,” mælti hann að lokum. "Daníra! Á þetta að vera skilnaðar-kveðjan?” Drættirnir, sem mynduðust kringunt munnvikin á Daniru, virtust benda á, að hún ætti í miklu hugar- stríði, og að sorgin myndi buga hana. En þetta var aðeins í svip, því að svo var hún þegar orðin jafn hörkuleg og ákveðin sem fyr. “Hr. Steinach!” mælti hún. “Eg er hrædd um að eg hafi þegar tafið yður of lengi frá þvi að gegna skyldu yðar. — A eg að þurfa að minna ýður á það? Að líkindum hafið þér komið hingað ásamt mönnum yðar til þess að taka þorpið. — Vér getum enga mót- stöðu veitt; — hús þetta er því á yðar valdi!” Gerald kiptist við og varð nú einnig einbeittari og hörkulegri. “Yður skjátlast, ungfrú,” svaraði hann. “Eg kom ekki hingað með vopnaða menn, heldur til þess að hitta sáran félaga minn, setn er hér í þropinu að líkindum hér í húsinu. Getið þér gefið mér upplýs- ingar um þetta?” “Sáran félaga yðar? Þetta hlýtur að vera mis- skilningur, því að hér er enginn landa yðar.” “Eg hefi þó sannfrétt að herlið vort var hér i morgun,” svaraði Gerald. “Alveg rétt,” svaraði Danira, “en það fór burt aftur innan klukkutíma.” “En sári maðurinn.” “Þeir skildu engan mann eftir,” svaraði Daníra, "og liöfðu engan sáran manri með sér, enda getið þér rannsakað þorpið, og sannfærst um, að eg segi þetta 'satt.” í sama augnabliki var hurðinni hrundið upp og Jörgen sást á þrepskildinum og mælti; “Eg vildi aðeins láta liðsforingjann vita, að sagan fer að verða býsna ótrúleg, þar sem engir vorra manna sjást í þessu bannsetta þorpi, og þorparinn, sem vísaði okkur leið, er horfinn eins og dögg fyrir sólu.” “Hér í húsinu,” mælti Jörgen ennfremur, um leið og hann skotraði augunum til Daníru, “er djöflagang- urinn verri en nokkurs staðar annars staðar, og bið eg yður því að láta mig ekki fara, því að betra er þó að við séum tveir.” Daníra hrökk við, horfði sýnilega óttaslegin á Gerald og tók upp orðin: “Aðeins tveir? Guð hjálpi mér, hr. Steinach, hafið þér eigi menn yðar með yður?” “Nei, við Jörgen erum aðeins tveir á ferðinni, eins og þér sjáið.” Daníra varð náföl í framan. “Og þér vogið yður þannig í óviná greipar, og það um hánótt?” mælti hún. “Það er óskiljanlcg fífldirfska.” “Eg bjóst við að hitta félaga vora hér,” mælti Gerald. “tíoðin voru svo skýr og ákveðin—” "Hver færði yður þau?” spurði Daníra. “Var mælst til að þér kæmuð einn? Hvar er fylgdarmað- ur yðar? Hafið þér eigi tekið /eftir neinu á leið- inni, er vakið gæti grun yðar?” Spurningar þessar ráku hver aðra og báru vott um slíkan kviða, að Gerald fór nú að lokum að átta sig á því, að hann væri í hættu staddur. Ifann greip ósjálfrátt fastara um spjótskaftið og svaraði: “Eg var beðinn að koma einn, og það hefði eg gjört, ef Jörgen hefði eigi krafist þess að fá að fara með mér. — Við mættum engurn á leiðinni, en þótti kynlegt að fylgdarmaðurinn hvarf, án þess vér viss- um, hvað af honum varð. — En til sönnunar því, að hann segði satt, afhenti hann mér bréfaveski félaga mins og nokkur blöð úr vasabók hans.” “Það sannar alls ekkert,” mælti Daníra, “þar eð þessu getur vel hafa verið stolið, eða það hefir fund- ist. — Þetta er aðeins uppspuni, til að ginna yður hingað.” “En hver getur haft hag af því?” spurði Gerald. “Hvernig getið þér spurt svona?” mæltn Daníra, af mikilli ákefð. “Marco Obrevic hefir svarið, að hefna sín á yður, og hann stendur við orð sín. — Það er úti um yður.” Gerald fölnaði er hann «i í hve mikilli hættu hann var staddur; en Jörgen mælti hálf-ertnislega: “Fer eigi sem eg sagði yður? Nú erum við hér sem mýs i gildru.” Gerald, er skildi nú glögt, hvernig þessu var varið, varð blóðrjóður í andliti og mælti afar-reiði- lega: "Það er svivirðilegt áform! En við verðum að verja okkur, Jörgen, meðan við drögum andann, svo að morðingjunum verði líf okkar fulldýrt.” “Eg tek nokkra á samvizkuna!” svaraði Jörgen, senj einnig var orðinn afarreiður. — Látum þetta morðingja-illþýði koma! Við erum hvergi smeikir.” “Nei, nei, öll mótspyrna væri til einskis,” greip Daníra fram í. “Þegar Marco kemur, hefir hann tífaldan mannafla, svo að alls ekki verður um neinn bardaga að ræða, heldur verðið þið þegar handsam- aðir lifandi, og—” Hún endaði eigi setninguna, því að hryllingur fór um hana alla, enda gerðist þess eigi þörf, þar sem Gerald og Jörgen voru nákunnugir hernaðar-aðferð uppreisnarmanna. “Við berjumst samt,” mælti Gerald. “Komum okkur út undir bert loft, Jörgen, svo að við sjáum betur, hvað fram fer, enda eigi óhugsandi, að við get- um þá brotist áfram til manna vorra.” Að svo mœltu sneri hann til dyra, en Daníra gekk á milli hans og hurðarinnar og mælti: “Það er ómögulegt! Það er að ganga í vísan dauðann. — Marco veit óefað þegar, að þér hafið gegnt áskoruninni, og lætur allsstaðar gera yður fyrir- sát. — Hér er aðeins um eitt ráð að ræða, eins og sakir standa.” • Að svo mæltu hraðaði hún sér inn i hliðarher- bergið þar sem tengdasystir hennar svaf, og var þai enn þá dimmara. Hún hlustaði stundarkorn og heyrði, að hún svaf, og dró andann djúpt og rólega. Daníra lét hurðina síðan hægt aftur á eftir sér, og sneri aftur til Geralds. “Viljið þér fylgjast með mér, og reiða yður á mig?” mælti hún. “Treysta mér algjörlega?” Augu þeirra mættust nokkur augnablik og duldist Gerald eigi, að hún sem áður hafði verið svo harð- neskjuleg og ósveigjanleg var sem gjörsamlega breytt, siðan hún vissi, í hvaða hættu hann var staddur. Hann sá dauða-angistina skína út úr stór’u dökku augunum hennar og varpaði sú sjón — þrátt fyrir lífsháskann, sem hann var staddur í — lýsandi sólar- geisla inn í sál hans, því að nú skildi hann glögt af hverju þessi angist hennar stafaði. "Eg fylgi yður — þótt í dauðann væri!” mælti hann og rétti henni hendina. “Talið nú eigi yfir yður, hr, liðsforingi,” mælti Jörgen, sem þóttist sannfærður um, að þetta oftraust Geralds hlyti að valda dauða þeirra beggja.” “Þú þegir og hlýðir!” mælti Gerald. “En ekki vil eg neyða þig til þess að fylgjast með mér. Vertu því kyrr ef þú vilt það heldur!” “Eg fylgi yður, foringi!” mælti Jörgen. “Þar sem þér eruð þar vil eg og vera, og ef þér steypið yður beint í verstu glötun, þá steypist eg — í guðs nafni — með yður.” Gerald losaði sverð sitt úr slíðrum og athugaði hvort byssa sín væri hlaðin, áður en þau gengu út og fanst honum það þá vera ærið hressandi, að draga að sér úti-loftið, eftir hitann og svækjuna, sem inni hafði verið, enda þótt stormurinn næddi biturt og myrkur væri svart. Eigi duldist honum að vísu, að lífshættan vofði yfir við hvert fótmálið, er hann gekk; en Daníra hélt nú í \fyrsta skifti í höndina á honum, og gengu þau þannig hálftíma í gagnstæða átt, er Gerald hafði komið. Þau áttu fult í fangi að brjótast gegn veðrinu, sem æstist æ meira og meira, og leið því hvorugu þeirra, né Jörgen, orð frá rnunni. Svona gengu þau áfram, og áfram- innan um sí- felda kletta og gjótur, unz Daníra nam loks staðar, sneri sér við benti ofan i gjá eina og mælti: “Þá er nú komið að takmarkinu! Hérna er Wila- cjuell.” Gerald nam nú einnig staðar, og horfði í þá átt, er hún benti, og sá þá, rétt fyrir framan fætur sér, hyldýpis gjá, er afarstór klettur slútti fram yfir og virtist hann svo laus sem vænta mætti að hann ylti þá og þegar ofan í gjána. Hinu megin virtist gjáin á hinn bóginn viðáttu meiri, því að þar glitraði í tunglskininu á ofurlitla lækjarsitru, er leið hægt og hægt niðandi áfram. “Skyldi það vera þangað sem okkur er ætlað að fara?” mælti Jörgen í hálfum hljóðum við liðsforingj- ann, og var sýnilega all-tortrygginn. “Þessi heljar- klettur slútir fram og getur dottið og drepið okkur er minst varir.” “Kletturinn hrynur eigi,” mælti Daníra, er heyrt I hafði orð Jörgens. “Hann hefir hangið svona öldum saman og enginn stormur bifað honum. Komið með mér!” Um leið og hún mælti þetta, fór hún að fara ofan í gjána og Gerald fór mótmælalaust á eftir henni, svo að Jörgen sá sér eigi annað fært, en að fylgjast einnig með þeim. Gjáin var eigi eins djúp eins og hún virtist vera svo að eftir fáar mínútur voru þau komin að litlu lækjarsitrunni, er rann í botni gjáarinnar. Lækurinn var aðeins lítil sitra, er kemur i rign- ingum, en hverfur í þurkunum, en engu að síður voru þó hér og hvar græn grasstrá þar umhverfis. Daníra hallaðist upp að klettinum, og dró mjög þungt andann. Var það af þreytu, eftiri ganginn, eða af geðshræringu ? Hún skalf öll, eins og hrísla og virtist þurfa ein- hvers stuðnings. “Nú erum við komin þangað sem ætlað var,” mælti hún lágt. “Hér er ykkur óhætt.” Gerald er nú hafði litast um, hristi höfuðið og var sýnilega mjög vantrúaður. “Okkur er aðeins óhætt unz menn verða þess varir að, við erum hér,” mælti hann, “og þess mun skamt að biða, því að Obrevic þekkir óefað gjá þessa engu siður en þér, og þegar hann finnur okkur eigi i þorpinu, heldur hann leitinni áfram.” “Það gérir hann,” svaraði Daníra; “en hann nem- ur staðar hjá gjánni, og stígur eigi fæti sínum hér, nema ef vera skyldi í því skyni að rétta yður höndina til sátta því að hversu hefnigjarn sem hann kann að vera, dirfist hann eigi að misbjóða helgi þessa staðar.” Gerald varð steinhissa og virti nú gjána enn betur fyrir sér. “V'ar það sakir þessa, að þér fóruð hingað með okkur?” spurði hann. “Hvað er það, sem helgi staðar þessa veldur?” "Það er mér ókunnugt,” svaraði Daníra, “hvort því valda munnmæli ,eða hjátrú, en víst er um það, að staður þessi hefir verið talinn friðhelgur frá ó- munatíð og enginn veit þess dæmi að þeirri friðhelgi hafi nokkuru sinni raskað verið. — Þetta er mér í barns-minni, enda hefi eg sannfærs-t enn betur um þetta, síðan eg kom hingað aftur. — Hér er morð- ingjanum og landráðamanninum óhætt, og hver sem reyndi að raska helgi þessa staðar myndi hvorki talinn í kirkju græfur, né i húsum hæfur.” “Og yður dettur í h-ug að þessi friðhelgi verndi einnig útlendinginn og fjandmanninn?” spurði Gerald. "Já,” svaraði hún, f svo ákveðnum róm, að Gerald mótmælti ekki, enda þótt hann væri ærið efablandinn. “Hér virðist mikið um torskildar gátur!” mælti hann dræmt. “Réttast að bíða og sjá, hver ráðningin verður. — Að líkindum erum við umsetnir af fjölda fjandmanna og getur það því naumast kallast rag- menska, þótt við freistum á hvern hátt, sem a-uðið er, að frelsa okkur.” Að svo mæltu fór hann að svipast eftir Jörgen, er þegar hafði sem hygginn maður, tekið að rannsaka gjána og klifrast síðan upp á klettasnör eina, er hann eigi varð neins vísari er tortryggilegt þætti. Þarna sat hann á verði, því að hann sá þaðan glögt, livað Gerald leið, og söntuleiðis ef einhver kom að gjáaropinu. En þó að hann sæi Gerald og Daníru, sem hann enn hafði all-illan bifur á, gat hann þó eigi heyrt hvað þau spjölluðu saman sakir óveðursins; en hann var “hvergi hræddur hjörs í þrá,” og beið þess þvi ókvíðinn, er að höndum bæri. Daníra hallaðist enn upp við klettinn og hrökk við er Gerald gekk til hennar. Gerald vék sér aftur frá henni og lýsti augnaráð hans töluverðri gremju. Danira veitti því enga eftirtekt eða lét sem hún sæi það ekki, enda þótt tunglið skini beint framan í þau en mælti hvatlega: "Ilvar eru menn yðar?” “f kastalanum,” svaraði Gerald. “Við fylgdumst þangað allir í gær, ásamt þeim, er vér veittum lið.” “Cirunar þá engan i hvaða háska þér eruð stadd- ir ?” “Fráleitt” svaraði Gerald. “Þessi svívirðilegu launráð voru svo vel hugsuð! Deyjandi félagi, er biður mig að veita sér siðasta — og til sanninda merkis l>réfaveski hans, eigin handar rit, og nafn þorps þess, er vér hugðuim allir, að hermenn vorir liefðu sezt að í —, já, slunginn hefir Obrevic verið, sízt er því að neita; en karlmannlegra hefði það þó óneitanlega verið, að ganga beint framan að mér, þar sem eg hefi eigi hlaupið í felur fyrir honum. — En honum hefir þótt sér sæ'mra, að hegða sér sem sví- virðilegur morðingi, enda þótt hann þykist vera her- maður, og höfðingi.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.