Lögberg - 28.09.1939, Síða 1
PHONE 86 311
Seven Idnes
-■ov
vv
Servloe
and Satisfaction
PHONE 80 311
Seven Lines
s#
,#
&e.
í'or
Better
vV°
> -S Dry Cleaning
and Haundry
V*0°
52. ÁRGANGUR
Hnrold Jóhnnnsson, M.A.
Ressi ungi og efnilegi maður
leggur af stað austur til Mon-
treal á föstudaginn, ásamf frú
sinni, þar sem hann tekst á
hendur vellaunaða ábyrgðar-
stöðu við efnarannsóknar-
deild Ogilvie Flour Mills, Ltd.
Undanfarin ár hefir Harold
starfað að efnarannsóknum
fyrir sambandsstjórnina; hann
er sonur Gunnlaugs kaup-
manns Jóhannssonar hér i
borg.
Forsœtisráðherra
Rúmeníu myrtur
Á fimtudaginn þann 21. þ.
m., var forsætisráðherra Rú-
meníu, Armand Calinescu,
myrtur i híl sínum á leið til
konungshallarinnar í Bucha-
rest; þetta gerðist um hádegis-
bil; tveir bílar veittu um hríð
forsætisráðherra eftirför;
hröðuðu þeir scr mjög; um
leið og þeir óku fram hjá, létu
illræðismenn, er í bílnum
voru, kúlum rigna að forsætis-
ráðherra þar sem hann sat í
framsæti við hlið ökumanns
síns, og beið hann svo að
segja samstundis bana af. Sex
menn voru skömmu síðar
handsamaðir, sakaðir um
morðið, og skotnir samdægurs
á sama blettinum og forsætis-
ráðherra var myrtur.
KJÖRINN TIL FORSETA
Mr. John A. Vopni, ritstjóri
og útgefandi vikublaðsins
Davidson Leader, hefir verið
kjörinn forseti vikuhlaðasam-
bandsins í Saskatchewan:
hann er sonur þeirra Mr. og
Mrs. J. J. Vopni hér í borg-
inni; hefir honum lánast hið
bezta blaðafyrirta'ki sitt i
Saskatchewan.
KONUNGSAFMÆLI
Síðastliðinn þriðjudag átti
Hans Hátign, konungur fs-
lands og Danmerkur, Kristján
hinn tíundi, sextíu og níu ára
afmæli; hefir hann í ríkis-
stjórnartíð sinni notið al-
mennra ástsælda og heimsólt
ísland hvað ofan í annað.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. SEPTEMBER, 1939
Or borg og bygð
Mr. og' Mrs. E. L. Summers
eru nýkomin heim úr þriggja
vikna ferðalagi suður um
Bandaríki; fóru þau meðal
annars til New York.
+ ♦
Miss Elín Sigurðsson, dótt-
ir séra Jónasar A. Sigurðsson-
ar heitins, fór suður til New
York þann 9. þ. m. til þess,
að starfa um hrið við íslands-
deild heimssýningarinnar;
móðir hennar, frá Stefanía,
dvelur hjá systur sinni í
Pembina fram eftir haustinu.
> -f
Þau Mr. og Mrs. Hannes J.
Lindal, 912 Jersey Ave., buðu
til sín meðlimum Phoenix
klúbbsins á sunnudaginn var;
þar flutti skáldkonan, Mrs.
L a u r a Goodman-Salverson
ræðu; aðrir viðstaddir íslend-
ingar voru frú Guðrún H.
Finnsdóttir, rithöfundur, Mrs.
Steindór Jakobsson, systir
Mrs. Salverson, og Mr. og Mrs.
Einar P. Jónsson.
-f -f
Þriðjudaginn 19. sept. s.l.
voru gefin saman i hjónaband
í lúterslcu kirkjunni í Glen-
borO, þau ungfrú Olive Good-
ine og Wilhelm Joel. Brúður-
in er af enskum ættum, dóttir
Mr. og Mrs. Oliver Goodine,
er lengi hafa< í Glenboro búið,
en brúðguminn er sonur Mr.
og Mrs. Friðbjörns Joel, er
búa skamt fyrir norðan Bald-
ur, Man. Framtíðarheimili
hinna ungu hjóna verður við
Baldur. Séra E. H. Fáfnis
gifti.
-f -f
Á fimtudaginn i vikunni
sem leið, kom til borgarinnar
Miss Anna Bjarnason frá New
York. Hún er dóttir Mr. og
Mrs. H. Bjarnason, 704 Victor
St. Hygst hún að dvelja hér
hjá foreldrum sínum mánað-
artíma og hverfa svo aftur til
New York, þar sem hún hefir
mjög góða stöðu sem hjúkr-
unarkona við stóra spítala, og
hefir haft nokkur undanfarin
ár. Sama dag komu einnig
til borgarinnar sonur þeirra
Mr. og Mrs. Bjarnason, Ottó,
verkfræðingur frá Ontario, og
kona hans Mable Lydia
Brownlee. Eiga foreldrar
hennar heima i Port Arthur,
Ontario og fór giftingin þar
fram daginn áður en þau
komu til Winnipeg. Ungu
hjónin fóru á laugardaginn á-
léiðis til Banff og fleiri staða
þar vestra, og ætla að vera
þar nokkra daga og koma svo
aftur til Winnipeg og vera hér
eitthvað, áður en þau hverfa
aftur til Ontario, þar sem Mr.
Ottó Bjarnason hefir ágæta
stöðu há einu af hinum stóru
námafélögum. Lögberg óskar
hinum ungu og stórmyndar-
legu hjónum til hamingju.
Þann 16. þ. m. voru gefirr
saman í hjónaband í Calgary
borg, þau Miss Sigrún Ander-
son og Mr. F. W. N. Johnson.
Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
Jónas Anderson í Cypress
River, Man., en brúðguminn
sonur Mr. og Mrs. F. C. John-
son i Vancouver, B. C. Rev.
A. Patterson framkvæmdi
hjónavígsluna. Ungu hjónin
fóru brúðkaupsferð sína til
Banff og Lake Louise. Lög-
berg flytur þeim innilegar
árnaðaróskir. Framtíðarheim-
ili þeirra verður í Calgary þar
sem Mr. Johnson starfar í
þjónustu C.P.F. járnbrautar-
félagsins.
> >
Jón Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., heldur sinn næsta
fund í I.O.D.E. salnum, 200
Donalda-byggingunni á þriðju-
dagskveldið þann 3. október
næstkomandi. Undirbúningur
verður þar gerður að Silver
Tea, sem haldið verður í T.
Eatons Assembly Hall í næsta
mánuði, sem og ráðstafanir í
sambandi við liknarstarfsemi
viðvíkjandi striðinu. Það er
afaráríðandi að allir meðlimir
sæki fundinn, sem og þær
konur, er liðsinni vilja veita;
þess er einnig vænst, að nýir
meðlimir innritist á fundi
þessum.
Hin fagra Brúarkirkja var
hátíðlega skreytt laugardag-
inn 23. sept. s.l., er ungfrú
Dorothy Anderson og Jón
Harold Nordal voru gift, að
fjölmenni viðstöddu. Brúð-
urin er dóttir Mrs. B. ,1. And-
erson og fyrri manns hennar
Jóns Skúlasonar Anderson, en
brúðguminn er sonur Mrs.
Jakobínu Nordal, ekkju Magn-
úsar Nordal er nú er fyrir
skömmu látinn. Að gifting-
unni lokinni sátu vinir og
venzlamenni rausnarlega
veizlu á heimili brúðarinnar.
Eftir stutta skemtiferð til
ýmsra staða í Canada, verður
heimili ungu hjónnana að Brú
á búgarði brúðgumans. Séra
E. H. Fáfnis gifti.
-♦- -f
Mr. Gísli Johnson, prent-
smiðjustjóri, 906 Banning St.,
kom heim á mánudaginn eftir
rúma viku heimsókn til dótt-
ur sinnar. frú Bergþóru Rob-
son í Toronto.
-f -♦-
Mr. F. O. Lyngdal, fyrrum
kaupmaður á Gimli, kom til
borgarinnar á mánudaginn á-
samt frú sinni; dvöldu þau í
sumar austur við Timmins,
Ont., þar sem Mr. Lyngdal
rak verzlun í félagi við tengda-
son sinn, Mr. Harry Anderson.
Þau Mr. og Mrs. Lyngdal eru
í þann veginn að leggja af
stað vestur að hafi, þar sem
þau dvelja að minsta kosti í
vetur. Hinir mörgu vinir
þeirra árna þeim ánægjulegrar
dvalar á hinni fögru Kyrra-
hafsströnd.
Þriðjudaginn þann 19. sept.
mán. lézt nála:gt Bredenbury,
Sask. Jónína Sigríður Gísla-
son, kona Jóns Gislasonar.
Hana syrgja, auk eiginmanns
hennar, fimm börn uppkomin
og fjöldi vina og vandamanna.
Jarðarfor hennar fór fram
við kirkju Konkordia safnaðar
þ. 21. s. m. að viðstöddum
fjölda fólks. Hún var jarð-
sungin af presti Konkordia
safnaðar.
Laugadagsskólinn
Laugardagsskóli Þjóðrækn-
isfélagsins verður settur í
Jóns Bjarnasonar skóla stund-
víslega kl. 10 fyrir hádegi á
laugardaginn kemur þann 30.
september. Eins og að und-
anförnu, hefir skólinn einvala
kennaraliði á að skipa, og eins
og á liðnum árum, verður
kenslan ókeypis.
Þau foreldri, sem ant láta
sér um viðhald ástkæra og yl-
hýra málsins, láta það von-
andi ekki undir höfuð leggj-
ast, að láta börn sín verða
þessarar dýrmætu tilsagnar
aðnjótandi. Skólinn verðskuld-
ar það, að íslendingar styðji
hann, og auðsýni honum, og
viðleitni þeirri er hann starfar
að, sjálfsagða og tilhlýðilega
ræktarsemi.
Orn Arnarson skáld
Á öðrum stað hér í blaðinu
birtist langur og fyrir margra
hluta sakir prýðilegur Ijóð-
flokkur, ortur í tilefni af
heimsókn Guttorms ,1. Gutt-
ormssonar skálds til íslands í
fyrra; höfundur þessa ljóð-
máls er örn Arnarson, einn
af beztu ljóðskáldum íslenzku
þjóðarinnar, þeirra, er nú eru
uppi; eru sum kvæði hans
snildarverk, svo sem “Stjáni
blái,” er Lögberg endurbirti úr
Eimreiðinni fyrir tveimur ár-
um.—
örn Arnarson er ljóðgervi-
nafn höfundarins; hann heit-
ir Magnús Stefánsson, Norð-
mýlingur að ætt, fæddur i
Gunnólfsvik við Langanes-
strönd.
NÚMER 38
Kriálján Goodman
látinn
Á laugardaginn þann 23.
þ. m., lézt að heimili sínu,
576 Agnes Street hér í borg-
inni eftir langvarandi van-
heilsu, Kristján Guðinundsson
Goodman, hniginn mjög að
aldri. Kristján var fæddur í
Garðahverfi á Álftanesi þann
22. dag júnímánaðar árið
1855; hann kvæntist eftirlif-
andi ekkju sinni, Jónu Magn-
útdóttur, ættaðri einnig úr
Garðahverfi þann 6. nóvember
1880; þau hjón fluttu vestur
um haf 1886 og settust þegar
að í Winnipeg, þar sem heim-
ili þeirra hefir staðið jafnan
síðan.
Þeim Kristjáni og Jónu varð
9 barna auðið; tvö þeirra dóu
í æsku; hin 7 verða hér talin
í aldursröð:
Valgerður, ekkja í heiina-
húsum; Haraldur, kvæntur
maður í Cleveland, Ohio;
Jóhann, kvæntur maður i
Chicago; Árnína McLeod i
Selkirk; Kristján Otto og John
Valtýr í Winnipeg, og Lilja
Bergman, einnig búsett í Win-
nipeg; öll eru þessi systkini
hin mannvænlegustu og njóta
almennra vinsælda. Kristján
heitinn var sæmdarmaður,
sem ekki mátti vita vamm sitt
í neinu; hann stundaði húsa-
málningar og, veggfóðrun i
Winnipeg í full 35 ár, eða
meðan starfsþrek hans entist;
var honum hvíldin hinsta kær-
komin eftir margra ára þungt
sjúkdómsstríð; ástríkrar um-
önnunar af hálfu konu sinnar
og barna naut hann ávalt sem
þá er bezt getur.
Systur, Guðrúnu Nellis, að
Dauphin. Man., hvtur Kristján
heitinn eftir sig.
Útför Kj-istjáns fór fram frá
Fyrstu lútersku kirkju á
þriðjudaginn, að viðstöddum
fjölmennum hópi vina. Prest-
ur safnaðarins, séra Valdimar
J. Eylands flutti kveðjumálin,
en einsöng söng Mrs. Connie
Jóhannesson.
HAKKARORÐ
Innilegt lijartans þakklæti
flytjum við hér með öllum
þeim mörgu vinum. er heiðr-
(Framh. á bls. 7)