Lögberg - 18.04.1940, Page 4

Lögberg - 18.04.1940, Page 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. APRIL, 1940 ----------------------------------------- -----------HöBbcrs----------------------- GefiB út hvern fimtudag af TUE COLUMBLA PKESS, IiIMlTKD #85 Sargent Ave., Wlnnipes, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnípeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Presa, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 “Ofurefli” Leikfélag Sambandssafnað'ar hefir um langt skeið haldið upyii leikstarfsemi hér í borg við góðan orðstír; vitanlega hafa leik- ritin verið næsta misjöfn að gæðum; sum ógæt, eins og Galdra-Loftur Jóhanns Sigur- .jónssonar; önnur veigaminni, og margfalt rýrari að bókmentagildi; en þrátt fyrir það, hafa leiksýningarnar jafnaðarlegast veitt hinum eldri Islending-um að minsta kosti, marga ánægjulega kveldstund. Og nú, al- veg nýverið, hefir leikfélag þetta sýnt þrisv- ar sinnum í röð “Ofurefli,” sem Árni leik- > ari Sigurðsson hefir búið til leiksviðs úr sögu Binars H. Kvaran. Efni leiksins mun fslendingum nokkurn veginn alment kunn- ugt af sögunni, sem vitaskuld er í margra höndum; sagan felur í sér snarpa árás á hinar eldri trúarbragðasetningar um þær mundir, er höfundur hennar á'tti annríkast við að ryðja andatrúnni veg á Islandi; hann um það ; leikflokkurinn þræðir efnið eins og það í eðli sínu er fró höfundarins hendi, og tekst að mestu sæmilega til um meðferð. Skoðanir hafa jafnan verið harla skift- ar um “Ofurefli” Kvarans; sögunni var lengi vel fundið eitt og annað til foráttu, og það sennilega ekki að ófyrirsynju: menn þóttust verða þess áskynja, að ýmsir ]>eir persónugervingar, er sagan brá upp væri ó- sannir við lífið og samtíðina; að slíkar fyrir- mvndar ómyndir fyndust vart á voru landi, ef þær þá væri ekki með öllu ófinnanlegar; svo sem myndirnar af sóknarnefnd dóm- kirkjusafnaðar Islands; að minsta kosti tvær þeirra, sem verða hvorki meira né minna en andstyggilegar hrygðarmyndir. I>á eru kvenmyndirnar, sumar hverjar, sem leikur- inn bregður upp, alt annað en frýnilegar að ásýndum né innræti; margar konur í Reykja- vík áttu um skeið ekki annars úrkosta, en sækja vatn og bera kol dag út og dag inn, til þess að draga fram lífið; þær töpuðu engu af manngildi sínu við það nema síður væri. Leik þenna má vafalaust sýna á Is- landi án þess að skaðsemd hljótist af; hið eldra fólk vort hér getur einnig horft á hann og hlegið að honum án þess að bíða tjón ó sálu sinni. En annað mál er það, livort slíkt sé eigi í rauninni bjamargreiði við æskulýð vorn af íslenzkum stofni í þessu landi, að bjóða honum upp á slík “blæ- brigði” úr forfeðrasögunni; hvort ekki sé hér um varhugaverða og tvíeggjaða þjóð- ræknisviðleitni að ræða.— Um meðferð leiksins má með fullum rétti margt gott segja; leikurinn vfir höfuð ágætlega æfður; framburður glöggur og leiktjöld prýðileg; á leikstjórinn, hr. Arni Sigoirðsson, þakkir skyldar fyrir “vöruvönd- un” sína í þeim efnum.— Póll S. Pálsson, er sýndi Þorbjörn kaupmann ólafsson, hélt í raun og veru leiknum uppi; hlutverk hans vandasamt en heilsteypt frá upphafi til enda; margfalt miður tókst til um séra Þorvald Gunnarsson, er Jochum Ásgeirsson lék. Séra Þorvaldur ó að tákna einbeittan boðbera nýrra hug- sjóna; mann, sem veit hvað hann vill; hvor- ugs þessa verður vart í meðferð hluverks- ins þó leitað væri með logandi ljósi. Ragnar Stefánsson leikur Þorgrím Jónsson háyfir- dómara, gerir það eins og sá sem vald hefir, og verður í rauninni hetja lokaþáttarins; kona hans, frú Margréit (Steinunn Krist- jánsson), kemur ávalt prýðilega vel fyrir á leiksviði, og gerði hlutverki sínu ágæt skil. Grímsa, rúmfastan son Imbu vatnskerling- ar, leikur Friðrik Kristjánsson, og fórst vel úr hendi; einkum var framburður hans á- gætur. Imba vatnskerling oflék hlutverk sitt á öllum sviðum, og í öllum atriðum; á því ber leikstjóri einn fulla ábyrgð; það var á valdi hans, að velja og hafna án þess að hábinda sig um of efni sögunnar, því óhjá- kvæmilegt er, þá sögu er snúið í leik, að hún taki nokkurum myndbreytingum. Vonandi er, að betur takist til um val á næsta leikriti þessa vinsæla leikflokks, sem int hefir af hendi á undangengnum árum, þakkarvert þjóðræknisstarf. Nýja Teátamenti Odds Gottskálkssonar (400 ára minning) Erindi flutt í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, sunnudagskvöldið 14. apríl 1940 Eftir séra Vatdimar J. Eylands. ‘ ‘ 8annleikurinn mun gjöra yður frjálsa.” Jóh. 8:32. Ef alt fer fram ó íslandi þessa daigana eins ög, rök standa til og ráð er gjört fyrir, mun þess hafa verið minst með útvarpserindi frá Reykjavík á föstudaginn var, þann 12. þ. m. að þann dag voru 400 ár liðin frá því að Nýja Testamentið kom út á ís- lenzku máli í þýðingu Odds Gottskálkssonar. Þessa merkilega kirkjusögulega og bók- mentalega viðburðar mun einnig minst í dag í öllum aðalkirkjum landsins, og á annexíu- kirkjunum næsta messudag. Hefir kirkju- ráð landsins með sérstakri fundarsamþykt ráðstafað þessum undirbúningi, og mælst til samvinnu prestastéttarinnar um málið. Þetta mál varðar einnig oss Vestur-ís- lendinga. Vér, sem hér dveljum viljum einnig samstilla hörpur vorar til þakkar og lof- gjörðar; vér viljum þakka þann arf, sem vér höfum beztan þegið, og flutt með os.s hingað vestur, en það er hin kristilega lífs- skoðun, eins og hún er flutt af Kristi sjálf- um, og til vor komin í hinni helgu bók, sem hér um ræðir. “Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa.” Á öllum öldum hafa þeir menn uppi verið, sem trúðu þessum orðum Krists bókstaflega og settu sér því snemma það takmark að leita að, og finna ef unt væri, þann sannleika sem leysir mennina úr ánauð vanþekkingar- innar á verklegum og andlegum sviðum, þann sannleika, sem gjörir mennina frjálsa. Hver kynslóð getur bent á einhver mikil- menni samtíðar sinnar sem sköruðu fram úr öðrum sem leitendur eftir sannleikanum, og voru einnig einkar fengsælir í þessu efni. Er vér flettum blöðum liðinnar sögu mannkynsins sjáum vér að allmargir slíkir menn voru uppi á síðari hluta fimtándu aldar og sextándu öld. Þó voru einskonar leysingatímar í sögu mannsandans, enda tími til kominn eftir hið ömurlega og langa mið- aldamyrkur. Ýmsar stórfeldar uppgötvan- ir standa í anddyji nýja tímans, sem nú hefst. Kompásinn er nýlega fundinn; með hjálp hans geta menn nú siglt hin bráðu höf, sem engum manni voru áður fær. Hinn hreyfanlegi prentstíll kom til sögunnar, flýtti það mjög fyrir útbreiðslu allskonar fróð- leiks. Ný meginlönd fundust og nýjar sigl- ingaleiðir opnuðust. Columbus fann Ame- ríku, Vasco Da Gama fann siglingaleiðina til Indlands um Góðrarvonarhöfða. Koperník- ur flutti þá furðulegu kenningu að jörðin gengi umhverfis sólina. Myndlistin eignað- ist snillinga eins og Michael Angelo og Raphael. Mundi þá guðfræðin eða hin and- legu vísindi verða sett hjá er slík risaskref voru stigin ó hinum raunhæfu og verklegu sviðum'! Á þeim vettvangi kom einnig fram nýr og stórvirkur landkönnuður, Marteinn Lúter. Guðfræði miðaldanna hafði reist múrvegg einn mikinn milli Guðs og manna, og voldug stofnun var fram komin sem taldi sig hafa einkaleyfi til að hleypa mönnum yfir þann vegg, benti sú stofnun þá líka á ákveðið fley og ferjumenn, sem einir væru þess umkomnir að tryggja mönnum far yfir móðuna miklu. Lúter reif niður þennan múrvegg, opnaði mönnum greiðan aðgang að Guðs náð í Jesú Kristi, og sýndi fram á að manninum mundi óhætt að kasta sér í sjó náð'arinnar eins og Pétur gjörði forðum, í fullu trausti þess að Kris'tur itiundi rétta honum hönd sína og færa hann að landi. Kolumbus fann nýja heimsálfu, Koperníkus fann nýtt nóttúrulögmál, Lúter fann nýja bók, sem opnaði mönnum leið til þekkingar og andlegs þroska. Hann fann þessa bók bundna járnkeðju, hann leysti hana og opnaði svo allur heimurinn mætti lesa innihald hennar. Þótt ekki væri bókin í sjálfu sér ný, var hún samt óþekt allri al- þýðn manna, og skilin af þeim einum, sem læsir voru á latneska tungu, og jafnvel á því máli var hún í fárra manna höndum. Alt frá þeirri stund er Lúter fann heilaga ritn- ingu skipaði hún öndvegið í trúarumbóta- viðleitni þjóðanna. Upp frá því varð hún hin dýrmæta perla, sem menn vildu eignast af því að hún gjörði þá frjálsa, hún varð hið mikla ljós, sem ekki mátti framar setja undir mæliker. Til þess að útbreiða kristna trú þótti það nú allra hluta nauðsynlegast að birta rétta þýðing biblíunnar, einkum Nýja Testamentisins. Á þessu sviði eiga allar þjóðir sína forvígismenn og brautryðjendur. Guð gaf heiminum Lúter, en Islandi var Oddur Gottskálksson gefinn. Með þýðing sinni á Nýja Testamentinu lagði hann einn horsteininn í menningarmusteri hinnar íslenzku þjóðar; hann hjálpaði til þess að leysa hana af klafa forneskju og fáfræði svo að hún mætti öðlast hið sanna frelsi Guðs harna. Oddur Gottskálksson er sá af forvígismönnum siðbótarinnar, sem alment vekur mesta sam- úð og virðingu þeirra, er kynna sér þetta stórfelda og róstusama tímabil sögu vorrar. Hann kemur oss fyrir sjónir sem einlægur maður, áhugasamur um kristileg velferðamál, og algjörlega tállaus í fari þegar á alt er litið. Hann er talinn fæddur árið 1500, sonur Gottskálks biskups að Hólum, sem kallaður hefir verið “hinn grimmi.” Sneinma mun Oddur hafa verið settur til menta, og sigldi síðan til Noregs og Þýzka- lands til framhaldsnáms. Á Þýzkalandi mun hann hafa komist í kynni við kenningar Lúters, og ef til vill kynst' sið- bótarfrömuðinum sjálfum per- sónulega. Oddur var svo sem að líkum lætur alinn upp í strangleika kaþólskrar trúar, kom honum því margt í hinum nýja sið einkennilega fyrir sjón- ir. Mjög furðaði hann sig samt á því hve margir efnilegir og gáf- aðir menn snerust frá hinum forna sið til hinnar nýju trúar. Þar kom og að hann sjálfur var á báðum áttum. Sýnir þessi þáttur æfisögu Odds ljósast trú- aralvöru og einlægni þessa manns. Eftir alllanga baráttu við sjálfan sig, og mikinn lestur bóka um trúarleg efni, afréð hann að leita leiðbeiningar Guðs um það hvort væri sannara, ka- þólska trúin eða sú lúterska. í þrjár nætur reis hann úr rekkju er allir voru í svefni, kraup á gólfið og bað til Drottins lengi nætur. Bað hann Guð að opna hjarta sitt og sýna sér sann- leikann, jafnframt vann hann það heit að hann skyldi alla daga æfi sinnar fylgja og styðja þá trú er sannari reyndist að feng- inni bænheyrslu. Þegar þrjár nætur voru liðnar, rann nýtt ljós upp fyrir Oddi. Nú stóðu hinar nýju kenningar ljóslifandi fyrir honum, en áður höfðu þær verið næsta torskildar. Jafnframt hafði hann gleymt hinum gömlu trúarfræðum. Nú var ekki leng- ur um að villast. Fékk Oddur sér nú Nýja Testamentið og tók að lesa það af kappi, og aðrar bækur um trúarleg efni. Margt er líkt með Lúter og Oddi. Báðir voru þeir einlægir alvörumenn, og innilega trúræknir. Báðir lögðu fyrir sig lögfræði þótt hvorugur virðist hafa haft áhuga fyrir þeim fræðum. Lúter hætti reyndar skjótlega laganámi, en Oddur Jauk við nám sitt og varð valdsmaður á íslandi um hríð. Þótt hann væri ef til vill betur að sér í guðfræði en lögfræði, tók hann samt aldrei prests- vígslu. Báðir háðu þeir Oddur og Lúter sárt sálarstríð, og björg- uðu sér frá sturlun með bænar- málum. Báðir reyndust þeir brautryðjendur á sviði kristilegra mála, með því að gefa þjóðum sínum Nýja Testamentið á móð- urmálinu. Var þýðing Lúters prentuð aðeins átján árum á undan þýðingu Odds. Strax er Oddur kom heim frá Þýzkalandi hóf hann þýðingar- starf sitt. Varð hann að fara mjög dult með þetta verk vegna afstöðu ögmundar biskups, sem var mjög ákveðinn fylgismaður hins forna siðar. Kom þar að Oddur taldi sig ekki óhultan með verk þetta í bæjarhúsum á Skálholti, en lét byggja sér pall úti í fjósi og flutti þangað skrif- föng sín og bækur. Lét hann svo um mælt að þar væri hlýrra að sitja að skriftum. Er svo að sjá að hinn aldraði biskup hafi látið sér þessa skýring á athæfi Odds vel líka. Undir þessum kringumstæðum hóf Oddur starf sitt og byrjaði á að þýða Matteusar guðspjall. Er sagt að hann hafi eitt sinn kom- ist svo að orði við einn félaga sinn að einkennileg væri sú ráð- stöfun Guðs: Guðs sonur hefði ekki fengið annað rúm til að hvíla í en jötu, er hann fæddist í þennan heim, en nú yrði hann (Oddur) að hýrast í gripahúsi er hann tæki sér fyrir hendur að segja frá fæðingu Guðs sonar, og þýða guðspjöllin um hann. Ekki lauk þó Oddur við verkið í Skál- holti, en mun hafa unnið að því einnig í Danmörku en þar var bókin síðan prentuð, að undan- farinni rannsókn guðfræðikenn- ara Háskólans á þýðingunni og að fenginni fyrirskipun konungs um útgáfu hennar. Var þvi verki lokið 12. apríl 1540. Hefir Nýja Testamentið þannig verið í eigu hinnar íslenzku þjóðar í nákvæmlega 400 ár. Þýðing Odds Gottskálkssonar á Nýja Testamentinu er stór- merkur viðburður í bókmenta- sögu fslendinga. En hér er ekki aðeins um kirkjulegt og kristi- legt þrekvirki og nauðsynjaverk að ræða, heldur einnig þjóðern- islegt afrek, sem aldrei verður fullþakkað. Sjaldan hefir ís- lenzkri tungu og þjóðernisvitund verið jafn mikil hætta búin eins og í upphafi siðbótaaldarinnar. Hér var um sterka öldu að ræða sem reis suður í löndum, var barin fram með hervaldi og borin upp á vængjum prentlistarinnar oft án tillits til þjóðernis þeirra landa, sem hún fór um. Af frá- sögunni um þýðing Nýja Testa- mentisins verður það ljóst hví- líkum erfiðleikum prentun á ís- lenzkri bók var háð á þessum tímum. Oddur varð jafnvel að láta smíða nýjan stíl til þess að frágangur bókarinnar gæti orðið við hæfi íslenzkrar tungu. En hann heimtaði að sérkenni málsins og íslenzkrar stafagerð- ar fengi að njóta sín í prentun bókarinnar. Páll E. ólason sagn-. fræðingur bendir á það hvað hér var í húfi, og bendir á siðaskift- in í Noregi til samanburðar. í Noregi leiddu siðaskiftin til full- kominnar glötunar á hinni fornu tungu og allra sjálfstæðra bók- menta uin margar aldir, segir hann. En forgöngumenn siða- skiftanna á íslandi fóru að dæmi Odds og létu það jafnan sitja fyrir að birta höfuðrit trúar sinnar á íslenzku máli. Hefðu þeir ekki gjört þetta er næsta ólíklegt að öðruvísi hefði farið fyrir fslendingum í þessu efni, en fyrir frændum vorum Norð- mönnum. Hin íslenzka þjóð stendur því í tvöfaldri þakkar- skuld við Odd Gottskálksson. Hann hefir með starfi sínu lagt grundvöllinn að varðveizlu þess sem oss er kærast, en það er trú vor og tunga. “Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa.” Sannleikurinn, sem Oddur gjörði Jæsilegan ís- lenzkri alþýðu gjörir mennina frjálsa vegna þess að hann veitir fræðslu i þeim efnum sem oss ríður mest á að fræðast um. Orðið frá Guði, sem til vor kem- ur i kenningu og persónu Jesú Krists, bendir oss á sannleikann um oss sjálfa. Það skýrir fyrir oss uppruna mannsins á jörð- unni og tilgang mannlífsins. Hver er maðurinn að þú minnist hans og mannsins barn að þú vitjir þess? Undir svarinu við þessari spurningu sálmaskálds- ins, er frelsi mannsins, heill hans og hamingja komin. Er 'maður- inn aðeins skepna til þess sköp- uð að lifa eftir lögmáli hnefa- réttarins og frumskóganna? Er hann aðeins örlítið peð á tafl- borði tilverunnar spilað fram af ópersónulegum og dutlungafull- um máttarvöldum. Orð bókar- innar sem Oddur þýddi svarar á þá leið að hver maður sé Guðs barn, að vísu í álögum, en Guðs barn engu að siður, óendanlega dýrmæt vera í augum föðurins, sem lífið gaf. Orðið frá Guði, sem Kristur flutti birtir oss einn- ig sannleikann um syndina, hvernig hún lamar alla mann- lega viðleitni, og særir menn til ólífis ef hinn mikli læknir er ei til hvaddur. En höfuðpersónan í hinni helgu bók er einmitt læknirinn, sem vill styrkja alla lama menn, lækna þá sem sjúk- ir eru, og græða öll sár mann- anna. Með lífi sinu, kenning sinni og sjálfsafneitun vill Krist- ur sýna oss hvernig vér eigum að ganga á Guðs vegum. Með endurlausn sinni og upprisu opnar hann oss hlið himins. Orð bókarinnar, sem Oddur þýddi sýnir oss sáluhjálparveginn eina bæði í þessu lífi og annars heims — og vegurinn er Kristur. Um fjögur hundruð ára bil hefir heilög ritning verið það ljós, sem einna bezt hefir lýst hinni islenzku þjóð. Þrátt fyrir undirokun og eldgos, harðæri og hörmungar hafa íslenzkir menn fundið sálum sínum styrk í þeim boðskap er hún flytur. Hún hefir gjört anda þeirra frjálsan, jafnvel þótt líkaminn hafi verið háður óblíðum náttúruöflum og skilningssljóum stjórnarvöldum. Eintak þessarar blessuðu frelsis- skrár mannkynsins var í mörg- um tilfellum næstum sá eini jarðneski auður, sem frum- byggjendurnir islenzku fluttu með sér hingað vestur um haf. Er vér í dag minnumst frum- herjanna á sviði frjálsra trúar- bragða með þjóð vorri hljótum vér hér vestra að minnast Dr. Jóns Bjarnasonar. Hann var sá leiðtoginn á meðal vor, sem hélt um langan aldur merki hinnar helgu bókar hátt á lofti, og safn- aði þjóðbræðrum sínumumhana þrátt fyrir fátækt þeirra á frum- býlingsárunum. Vér minnumst þess að hann hjálpaði til að koma kirkjufélagi voru á stofn, að hann var forseti þess lengur en nokkur annar maður í sögu þess fram á þennan dag, að hann var fyrsti prestur þessa safnað- ar, að vér sem kirkjufélag og söfnuður erum enn að byggja á þeim traustu undirstöðum er hann lagði. Áhrif hans og orð lifa enn vor á meðal. Fyrir fimmtíu árum síðan flutti hann ræðu í tilefni af þeim sama við- burði, sem eg hefi gjört að um- ræðuefni hér í kvöld, þýðing Nýja Testamentisins á íslenzka tungu. Bæðan var flutt seint um haustið 1890. Þar farast Dr. Jöni svo orð um heilaga ritn- ingu: “í framandi landi fjar- lægrar heimsálfu höfum vér flutt með oss vort erfðagóz, einn- ig þetta bezta, sem vér eigum. í hvert skifti sem vér hugsum um það fáum vér hvöt til að lita heim til hinnar elskuðu klaka- bundnu ættjarðar. Það, sem vert er að lifa uppá, og óhætt að deyja uppá, og það eina, sem ó- hætt er að ganga með.inn í vet- ur vors eigin lífs, það eignuð- umst vér hinir fullorðnu þó þar. . . .” Á þessum örlagaríku timum fáum vér sem nú lifurn einnig hvöt til að líta heim til hinnar elskuðu ættjarðar. Saga nútím- ans er feiknstöfum skráð, og þá einnig saga íslands, þessa síð- ustu daga. “Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa” segir Kristur. Samkvæmt blaðafregnum frá Evrópu hefir hin islenzka' þjóð nú fyrir fáum dögum lýst sig fullfrjálsa og óháða að öllu leyti útlendum ríkjum og valdhöfum eftir hart nær sjö alda samband við erlend konungsriki. Fljótt á litið virðist það ekki hafa verið sannleikurinn, sein varð orsök þeirrar yfirlýsingar um fullkomið frelsi fslandi til handa, heldur óbeinlínis sá maður meðal vald- hafanna, sem vér hugsum oss i andstöðu við flest það, er til- heyrir réttlæti og sannleika. Fæstir á meðal vor bjuggust við þvi að lifa slíka stund sem þá er nú er upprunnin, og þess er eg fullviss að engir sannir fslend- ingar á fslandi eða hér vestra hafa óskað þess að draumurinn um fullkomið frelsi fslandi til handa næði fram að ganga með þeim hæti, sem raun er á orðin. Innileg samúð er fúslega tjáð þeirri frændþjóð

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.