Lögberg - 04.07.1940, Side 1

Lögberg - 04.07.1940, Side 1
PHONE 86 311 Seven Lines Service and Satisfaction ■v^5»a"' C<*- '■O bP uossjnjo(j H .SJJV PHONE 86 311 Seven Lines Íoírf^’ ^ 0«* ^O- For Better Dry Cleaning and Laundry 53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. JÚLl, 1940 NÚMER 27 Rússar hernema landsvœði í Rúmeníu Þau tíðindi gerðust á fimtu- daginn var, að rússneskar her- sveitir æddu inn vfir landamæri Húmeniu og hernámu Bessarab- iu og norður Búkovínu; var auð- sjáanlega þegar svo um knúta búið, að Carol konungur sé ekki annað vænna en ganga að kröf- uni Rússa andspyrnu og mót- mælalaust; hvort þetta gerðist að ráði Hitler’s er eigi vitað, þó vist sé, að hann hafi eins og ástatt var eigi treyst sér til að standa uppi i hárinu á Stalin. Frá Rúmen- íu er simað að Carol konungur hafi leitað ásjár þeirra Hitlers og Mussolini, og telji sér einu hjálp- arvonina úr þeirri átt; stjórnar- skifti hafa farið fram í Rúmeniu og er hinn nýi forsætisráðherra, Gigurtu, eindreginn fylgjandi Nazista og Fasista stefnunnar. Flugmaðurinn heimsfrœgi, Italo Balbo, lœtur líf sitt í flugslysi Nafn Balbo marskáls hefir verið á hvers manns vörum frá þeim tima er hann tvisvar sinn- um hafði forustu fvrir stórri flugvélaþyrpingu, er flaug frá Hóm til Norður-Ameríku; siðari förina fór. Balbo árið 1933 um ísland á leið til heimssýningar- innar í Chisago; tóku þátt í þeim leiðangri 36 loftför og hlekktist engu þeirra á. Balbo flugmar- skálkur var einn af frumkvöðl- um Fasista hreyfingarinnar ítöl- sku, og var lengi vel Mussolinis önnur lönd þó orð léki á, að ekki myndi öfundslaust með öllu niillum þeirra. Eftir að Ethíóp- íu stríðinu lauk, var Balho sktp- uður landstjóri vfir Libyu, og gegndi hann því embætti til dauðadags. Dauða Balbos bar að þann 29. júní síðastliðinn í orustu við brezkar flugvélar; bviknaði i flugvél hans, og létust bar ásamt honum sjö nafnkendir Halskir flugmenn. Rjómabúið á Lundar vinnur fyrstu verðlaun Á landbúnaðarsýningunni, sem staðið hefir yfir í Brandon und- anfarna daga, vann Maple Leaf Greamery á Lundar fyrstu verð- laun fyrir smjörgerð, og hlaut 97.3 stig; er með þessu sett nýtt niet í smjörgerðarsögu fylkisins. f samkej)ni þessari tóku þátt rjóniabú úr vestur fylkjunum fjórum, á samt Ontario. Að Maple Leaf Creamery fél- aginu standa einungis„íslending- ar. Eigandi þess og framkvæmd- arstjóri er Mr. Joe Breckman ahugasamur dugnaðarmaður, og 'insæll í héraði. Um smjörgerð- *na annast Mr. Grímur Sigurðson þautreyndur í sinni grein, en yfirlitið hefir með höndum Mr. úrimur Jóhannesson, umsjónar- aiaður rjómabúa í austurhluta Manitoba fylkis fyrir hönd fvlk- isst jórnarinnar. Á tveimur síðustu árum hefir ^r- Jóhannesson hlotið þau verð- *aun fylkisstjórnarinnar, sem Ve,tt eru umsjónarmönnum i þeim nmdæmum, er flesta hljóta 'inningu á landbúnaðar og fram- 'eiðslu sýningum fylkisins. Ungverjar og Búlgarar vilja óðir og uppvægir fá nokkurn hluta af Rúmeníu, en þeir Hitler og Muss- olini vilja ógjarna að þeim kröf- um verði framfylgt sem stendur. Republicanar velja forsetaefni Á flokksþingi Republicana í Bandaríkjunum, sem haldið var í Philadelphia í vikunni sem leið, fóru leikar þannig, að Wendell L. Wilkie, 48 ára gamall, for- stjóri umsvifamikilla orku fyrir- tækja, var útnefndur sem forseta efni flokksins við kosningarnar sem fram fara í öndverðum næst- komandi nóvember mánuði; na'stir honum gengu að liðstyrk Thomas E. Dewev, lögfræðingur frá New Áork, og senator Robert Taft. Senator Charles L. Mc- Nary frá Oregon, var kjörinn að varaforsetaefni. Mr. Wilkie fvlgdi lengi vel Demókrötum að málum, en varð viðskila við þó 1033 vegna ágreinings við stefhu núverandi forseta, Franklin D. RooseveU, er honum þótti hallast um of í vinstri átt; hann er talinn maður hagsýnn og hinn þolnasti vinnuvíkingur. Mestur 'hluti franska flotans í höndum Brezka Mr. Churchill lýsti yfir því í þingræðu á miðvikudaginn, að mestur hluti franska flotans væri í höndum Breta; þó hefði flota- deild í Algeríu neitað að ganga Bretum á hönd, og til þess að fyrirbyggja að þau skip félli í hendur Þjóðverjum eða ítölum, sótti brezki flotinn að þeim í orustu, og vann yfir þeim ákveð- inn sigur; þremur frönskum stórorustuskipum var sökt, og mörgum beitiskipum; þau, sem undan komust, voru næsta hart leikin, og litlar líkur til að þau verði sjófær á ný. Mannfall af hálfu Frakka í þessari viðureign var mikið, en af Breta hálfu naumast teljandi. Dr. Ófeigur Ofeigsson Hingað kom til borgarinnar á mánudaginn sunnan frá Roches- ter, Minn., Dr. ófeigur ófeigsson, sá, er á vegum Canadasjóðs stundaði hér nám fyrir nokkr- um árum og aflaði sér hvarvetna hinna mestu vinsælda fyrir drengilega framkomu. Dr. ó- feigur kom til þessa lands fyrir skömmum tíma, eins og sagt var frá hér í blaðinu, en hefir varið þeim tíma í Rochester til þess að kynna sér nokkurar nýjung- ar í læknisfræði; hann gegndi um hríð læknisembætti við ríkis- spítala fslands, en starfrækir nú sjálfur lækningastofu í Reykja- vik. Meðan Dr. ófeigur dvaldi í borginni, var hann gestur Grettis ræðismanns Jóhannsson- ar og frú Jóhannsson, að 910 Palmerston Ave. Dr. ófeigur lagði af stað suður til Rochester á miðvikudagskveldið, en siglir frá New York áleiðis til Reykja- víkur um miðjan mánuðinn. Miss Thruda Backimn, A.T.C.M. Þessi bráðvelgefna unga stúlka, dóttir þeirra Dr. og Mrs. K. J. Backman, hefir nýlega lokið kenn- araprófi í pianóspili með ágætis- einkunn við Toronto Conservatory of Music. Miss Backman hefir frá upphafi stundað nám sitt hjá frú Björgu ísfeld. Roosevelt tekur tvo Republicana í ráðaneyti sitt Það þótti tíðindum sæta er hljóðbært varð um það á dögun- um að Roosevelt, forseti, hefði valið tvo menn úr flokki Repub- licana fyrir ráðanevti sitt. Þess- is voru þeir Henry L. Stimson, er tekur við forustu hermála- i ráðuneytisins, og Frank Knox, blaðaútgefandi í Chicago, er í kjöri var sem varaforsetaefni Re- publicana 1936; verður hvnn flotamálaráðherra. Mr. Stimson var hermálaráðherra í stórnar- tið Hoovers. Til þess að ráðherra útnefning sambandsstjórnar Bandarikjanna sé gild, verður hún að öðlast staðfestingu senat- sins; en slík staðfesting var af- greidd á þriðjudaginn, og taka nú því þessir tveir áminstir menn tafarlaust sæti sitt i ráðuneyti Mr. Roosevelts. Canadiskt herskip ferst Á föstudaginn var sökk cana- diski tundurspillirinn Fraser við vesturströnd Frakklands; á- rekstur við annað skip olli slys- inu; skipshöfnin taldi 115 manns, og létu 45 þeirra lífið. Skip þetta var 1,355 smálestir að stærð, níu ára gamalt, og kom í eigu Canadastjórnar 1937. Þetta er fyrsta herskipið, sem Canada hefir mist í yfirstand- andi styrjöld. General Robert Baden-Powell foringi alheims drengjaskáta samtakanna, sem nú dvelur i hárri elli i Keneyahéraði í Mið- Afríku; hann er 86 ára að aldri. Þýzkur kafbátur sökkvir brezku fangaskipi Á miðvikudaginn sökti þýzkur kafbátur brezka skipinu Aran- dora Star undan ströndum fr- lands, skip þetta, sem var frek- lega 15,000 smálestir að stærð, hafði um 2,000 þýzka og italska herfanga innanborðs, og var á leið til Canada; auk skipshafnar, voru liðlega 400 brezkir gæzlu- menn á skipinu; áætlað er, að helmingur farþegja hafi farist, þó enn sé það eigi vitað með vissu, því þeir, sem komust af, voru að lenda í smáhópum, er siðast fréttist; aðallega voru það brezk skip, er að björguninni unnu. Frá Islandi Gert er ráð fyrir, að í ár verði gert nokkuð að fyrirhleðslu við Markarfljót. í fjárlögum er svo fyrir mælt, að 50 þúsund krón- um verði varið til þess. Um 12 þúsund krónur af þessari upp- hæð voru þó notaðar í fyrra og verða því dregnar frá fjárveit- ingunni í ár. Fyrirhugað er, að fénu verði varið til að styrkja og lengja varnargarðinn hjá Seljalandi, austan Markarfljóts. Var einnig nokkuð unnið vií þann garð í fyrra sumar. Er honum ætlað að forða því, að kvisl úr Markarfljóti ryðji sér farveg austur með Eyjafjöllun- um, þegar vatn það, er áður féll til sjávar eftir farvegum Ála, Affalls og Þverár, bætist í Mark- arfljót. Þegar lokið er við að styrkja og lengja Seljalands- garðinn, verður snúið sér að fyr- irhleðslu Affallsins og loks að fyrirhleðslu Þverár, sem hvort tveggja eru mikil mannvirki. Fyrir báða farvegu Ála er búið að hlaða. Áætlaður kostnaður við það, sem enn er óunnið, mun vera nær 500 þúsund krónur, en alls er búið að verja um 300 þúsund krónum til fyiárhleðsl- unnar, auk þess sem sjálf Mark- arfljótsbrúin kostaði. Er þvi hér um geisi inikil og dýr mann- virki að ræða, enda mikið í húfi. ♦ Tíðindamaður Timans hefir átt tal við- Ingvar Gunnarsson kennara i Hafnarfirði, umsjónar- manns Hellisgerðis, hins fagra skrúðgai’ðs málfundafélagsins Magna. Hann sagði svo frá skóg- ræktarmálum Hafnfirðinga; — Að þessu sinni verður athafna- litið á sviði skógræktarmála okk- ar Hafnfirðinga. f skógræktar- girðingarnar i undirhlíðum og Sléttuhlíð hefir verið gróðursett ofurlítið af skógplöntum, bæði birki og greni, þó ekki nema um 100 plöntur hvorrar tegundar, því að erfitt var um útvegun trjáplantna. Auk þess hefir verið hlúð að plöntum, sem gróðursettar hafa verið á liðnum árum í friðreitum þessum. f Hellisgerði hófust venjuleg vor- störf fyrir mánuði og eru þar engar verulegar hreytingar um að ræða frá þvi, sem verið hefir. Garðurinn er óðum að færast í sumarskrúð og verður opnaður almenningi nú upp úr mánaða- mótu num. 4- Samkvæmt 1. grein fjárlaga fyrir 1940 verða í ár lagðar 5000 krónur til áframhaldandi rækt- unarvega í Vestmannaeyjum. Hefir á undanförnum árum ver- Séra Kristinn K. ólafson endurkosinn forseti kirkjufél. Embœttismenn Kirkjufélagsins Á nýlega afstöðnu kirkjuþingi að Lundar, voru eftirgreindir menn kosnir til þess að veita forustu málefnum kirkjufélags- ins á nýbyrjuðu starfsári: Forseti—Séra K. K. ólafson Varaforseti—Séra Haraldur Sig- mar. Skrifari—Séra Egill Fáfnis Vara-skrifari—Séra Bjarni Bjarnason. Féhirðir—S. O. Bjerring Vara-féhirðir—Ghr. Sigmar Framkvæmdarnefnd — Séra K. K. ólafson, séra V. ,1. Eylands, S. O. Bjerring, V. Sturlaugson, S. W. Melsted. Betelnefnd—Dr. B. .1. Brandson, .1. J. Swanson, Dr. B. H. Olson, Th. Thorðarson, S. W. Melsted, Endurskoðendur: F. Thorðarson og O. C B’arna- son. ið veittar ofurlitlar fjárhæðir úr rikissjóði til slíkrar vegagerðar, að nokkru leyti til að mæta þeim bensínskatti, sem Eyjarbúar greiða í ríkissjóð af bensínnotk- un bifreiða sinna. f ár verða einnig veittar 1000 krónur til ræktunarvegar á Flatev í Breiða- flrði, og er það í fyrsta skifti, sem fé er lagt úr ríkissjóði til slíks vegar þar. 4- Um þessar mundir er unnið i fyrirhuguðum Snorragarði í ReykhoHi, v Mun nú, vera þar 15 manns að vinna. Áður var nokk- uð byrjað á framræslu. Ríkis- sjóður veitir á þessu ári um 20 þúsund krónur til garðsins, og er talið, að fvrir það fé, svo og gjafadagsverk Ungmennasam- bands Borgarfjarðar, verði hægt að ljúka við framræsluna, leggja vegi um garðstæðið, gera bif- reiðatorg við skólann og girða garðinn, ef girðingarefni verður fáanlegt. Er þá eftir að jafna tii í garðstæðinu, gróðursetja trjáplöntur og annan gróður, gartga frá iþróttavöllum, úti- sundlaug og fleiru. 4- Vinnu í görðum er nú um það bil að verða lokið viðast hvar. Hafa menn yfirleitt sett niður í garða sína á tímabilinu frá miðj- um maí og nú fram að mánaða- mótum. Er það fremur í seinna Íagi. Veldur því kuldatið sú og votviðri, er gengu fyrri hluta maímánaðaj. Langflestir þeir, sem óttast þurfa sýki eða myglu i kartöflum sínum eða maðk í bóli, munu reyna að stemma stigu fyrir ófögnuði þessum með þeim ráðuni, sem tiltækileg- ust eru og bezt gefast. Að und- an förnu hafa ýmsir slíkir kvill- ar valdið stórtjóni i görðum manna hér á Suðvesturlandi og reyndar viða. —Tíminn 30. maí. Afmæli Jóns Sigurðssonar Hin tvö félög í Bellingham, Wash., Kári og Harpa, héldu sam- eiginlega sitt árlega sumargildi þann 16. júni s.l. Samkoma þessi var vel sótt, og er það álit rnargra að hún hafi verið ein af hinum beztu af þessari tegund, sem haldin hefir verið i Bellingham. Þar komu fram ýmsir ágætir ræðumenn, þrir af þeim ungir Is- lendingar frá Bellingham og ná- grenni. Fyrsti tölumaður var séra Hall- dór Johnson frá Blaine, Wash.; hann er skörulegur ræðumaður. Ræða hans var vafin úr aðalefni dagsins, um líf Jóns Sigurðssonar, eða öllu heldur kaflar úr lífi Jóns Sigurðssonar. Næsti ræðumaður var Rjarni LynghoJt frá Point Roberts. Byrj- aði hann tölu sina með venjulegri gamansemi og gáska og mátti heyra raftana bergmála hlátur manna að skrítlum hans. Endaði hann þó tölu sína með dálitilli sannri sögu sem færði heim sann- inn fyrir því að margir íslending- ar, hvort heldur þeir eru glæsilegir útlits sem víkingar eða eru niður- beygðir af erfiði og raunum, eiga eigi að síður í mörgum tilfellum mjög djúpt og rikt sálarlif og skáldlegan anda. Næstur var Erlingur Ólafsson skólakennari frá Blaine, Wash. Ræða hans gekk út á mentun, og ábyrgð þá er kennarar yf irleitt bæru á herðurn sér, þar eð þeir bæru stærsta hlutann í að skapa bæði hið innra og ytra líf ungling- anna. A kennaranum hvílir það verk að innræta hjá þeim virðir.gu fyrir hinu sanna og rétta. Næsti ræðumaður var Leo Good- man, ungur lögfræðingur, fæddur og uppalinn í Bellingham. Gaf hann ágrip af sögu Islands; lýsti stöðuglyndi og trúmensku þjóðar- innar og hélt þvi fastlega fram að þeir myndu lítt fundnir í þjóð- málasvikum eða stjórnarbyltingum. Síðastur en ekki síztur var lög- fræðingurinn Einar Símonarson frá Lynden, sonur hins vel þekta manns Þorgeirs Símonarsonar frá White Horn. Ræða hans var víðtæk og skörulega flutt. Hann talaði um þjóðmenningu Islendinga bæði á fyrri og siðari öldum. Hann mint- ist einnig á hið andlega þrek og hið ríka sálarlíf sem svo margir af þeim eru gæddir og sem hefir i allar þessar aldir, og í gegnum alla þeirra erfiðleika bæði sem ein- staklingar og einnig sem þjóð, hald- ið þeim frá að glatast með öllu. Hann mintist Jóns Sigurðssonar, sem eins fremsta og mesta frelsara íslendinga og íslands. Söngflokkurinn undir stjórn H. S. Helgasonar gjörði sitt itrasta til að skemta með íslenzkum söngvum. Auk alls þessa hafði fólk þá ánægju að hlusta á hina hljómfögru riidd Jules Samuelssonar frá Point Roberts, sem söng þrjá einöngva Að lokinni skemtiskránni fóru fram ýmsir leikir. Forseti dagsins var Franz Sophusson. Veður var hið fegursta og hinn trjáskreytti og fagri garð- ur jók á ánægju og gleði dagsins. Eftir kaffidrykkju og snæðing fóru menn heim, fullvissir um það að dagurinn hefði verið hinn á- nægjulegasti. C. S. Þessa dagana er unnið að því, að mála sundlaugina í Reyk- holtsskóla. Sennilega verða skólabyggingar einnig málaðar að mestu leyti að utan í sumar, að því er Jóhann Frímann, skóla- stjóri í Reykholti hefir tjáð Tím- anum.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.