Lögberg - 04.07.1940, Blaðsíða 3

Lögberg - 04.07.1940, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. JÚLI, 1940 3 annaðhvort eru sérkennilegir fulltrúar fyrir viss þjóðarein- kenni eða ineð dæmi sínu og starfi eru lifandi þættir hinnar sögulegu arfleifðar. Um margt af þessu má vísa til þess, sem fjallað er um i fyrri bindunum. En til þess að gera yfirlit sög- unnar skýrara, munu ýmsir við- aukar verða látnir fylga bókinni, þar á meðal greinargerð fyrir efnahag þjóðarinnar fyr og síð- ar, sem áður er getið um (með hliðsjón af I. bindi og til viðbót- ar því, sem þar er sagt), — skýrsla um mannfjölda á ýms- um tímum, að svo miklu leyti sem unt er að komast þar að sæmilega öruggum niðurstöðum, — og annáll um helztu atburði og merkismenn, sem hefir ekki þótt ástæða til að geta um í aðalyfirlitinu, en fröðlegt er fvrir lesendur að vita nokkur deili á. Aðalsjónarmiðinu í þessari bók er þegar lýst hér að framan. Eg gæti um það að miklu leyti tekið undir orð ameríska rithöf-, undarins, James Harvey Rohin- sons: “Eg hef lengi verið þeirr- ar skoðunar, að hinn eini veru- legi skerfur, sem sagnfræðing- arnir geta lagt til framfara vits og skilnings, sé að kynna sér fortíðina með sífelt vakandi auga á samtíðinni.” Þó að það sé ekki tilgangur minn í þessu riti að prédika mínar __ skoðanir uni það, hvernig leysa megi ýms Vandamál nútímans (það má vera að eg geri það seinna meir á öðrum vettvangi), þá ættu sum af þessum vandamálum að skýr- ast við það, að rætur þeirra eru raktar aftur í tímann. Einstök dæmi þessa má nefna. Þó að miklar ytri byltingar hafi átt sér stað í trúarsetningum og lífs- skoðun íslendinga, svo sem kristnitakan árið 1000, viðgang- ur hins kaþólska kirkjuvalds á miðöldum, siðaskiftin á 16. öld, hinn strangi rétttrúnaður á 17. öld, skynsemishyggja nútímans, þá er samt órofið samband milli lífsskoðana þeirra nú á dögum og á elztu tímum, land- námsöldinni. Eitt af því, sem jafnan hefir ráðið miklu í sálar- hfi íslendinga og afstöðu þeirra gagnvart öðrum þjóðum, er tog- streita milli vanmeta og ofmeta. Enn í dag eiga þeir bágt með að líta rólega og hreinskilnis- lega á aðstæður sínar, hvað þeir eru, geta og eiga og hvað þá skortir, hvað þeim er um megn. þeim hættir annars vegar við sjálfbirgingsskap, hins vegar við furðulegu dóingreindarleysi á tízku og nýjungar. Þennan þátt 1 fari þjóðarinnar má rekja mjög *angt aftur í tímann, og í sain- handi við hann standa bæði suin Uierkustu afrek hennar og mestu skyssur. Það má telja höfuð- nauðsyn fyrir íslendinga, bæði Vegna andlegrar heilbrigði þjóð- lífs og einstaklinga og vegna skynsamlegrar afstöðu til ýmissa *nenningarmála og þjóðmála, að stefna að meiri einlægni og ber- sýni í dómum um sjálfa sig, en hvorugt fæst án meiri þekking- ar- Hinn sögulegi arfur þeirra er blandinn, sagan hefir ekki einungis skilið þeim eftir afrek, tyrirmyndir og verðinæti, heldur ynús konar mein og víti, sem siður er haldið á lofti og sizt n>eð skilningi á uppruna þeirra. f-f Þetta rit um íslenzka menn- lnh'u, sem höfundur hefir hug a að rita af sem mestri hrein- skdni, gæti vakið greinda les- endur til þess að hugsa betur en áður um það, hver vandi og Ve9semd cr í því fólgin, aff vera s cndingnr nú á dögum, væri a<5alti]gangi þess náð. Eins og áður er sagt, hel •niinn verið of naumur til þe gera sundurliðaða áætlun u j* .t Verkið og semja við alla tpf^nda, seni leitað mun ver ’ aðlIr en þessi greinargerð v f)etta einkum við um vH UI- bindi. Nokkuð hefir a«r'ð -8ert’ °g Var S-Íalfss snúa sér þegar að I. bindir KJORKAUP A brúkuðum bílum ’29 Chevrolet Sedan $ 95 ’26 Dodge Sedan 125 ’29 Durant Sedan 125 ’30 Essex Sedan 125 ’30 Ford Tudor 175 ’31 Nash Sedan ........ 175 CONSOLIDAIED MOTORSII0. 235 MAIN ST. WINNIPEG um landið, sem einna lengstan undirbúning þarf og ritstjórinn mun hlutast minst til um. Þess- ir menn hafa þegar heitið að rita mestan hluta þess bindis: mag. sc. Arni Friðriksson fiski- fræðingur, Hákon Bjarnason skógræktarstjóri, dr. phil. Þor- kell Jóhannesson og fil. lic. Sig- urður Þórarinsson. Fleiri mætir menn hafa haft góð orð um að leggja þar nokuð að mörkum, þó að það sé ekki fullráðið. En eg veit, að í þetta sinn þarf ekki að nefna fleiri nöfn til þess að sannfæra Ifélagsmenn um, að reynt verði að gera alt verkið svo vel úr garði sem kostur er á með samvinnu við hæfustu menn á hverju sviði. Þessa greinargerð álít eg nægilega í bráðina til þess að félagsmenn Máls og menningar eigi að geta skorið úr því hver fyrir sig, hvort þeir vilji stuðla að því, að þetta fyrirhugaða rit- verk, Arfur íslendinga, verði flutt ofan úr skýjunum og nið- ur á jörðina. , 1. júli 1939. Sigurður Nordal. Sjódraugurinn Eftir Kristjón Jónsson. Það var um miðjan vetur á fyrsta tug þessarar aldar, á hinni svokölluðu skútuöld, að við þrír, Gísli, Bjarni og eg, áttum að vaka yfir skipi því, er við vorum hásetar á. Skipið var gert út á handfæraveiðar frá Hafnarfirði, og var nýkomið inn úr fiskitúr. Það var búið að skipa upp fisk- inum og út salti og átti skipið að sigla úr höfn næstu daga. Við þessir þrír vorum ekki úr firðinum eða Reykjavík, áttum heima upp í sveit. Það dæmdist því á okkur að líta eftir skipinu, i landlegum. Við höfðum lagt í ofninn í káetunni og var þar mjög hlýtt og notalegt. Við spiluðum l’hombre af kappi, og leið að vökulokum, áður en okkur varði. Gísli var að gefa og Bjarni var að taka í nefið. Heyrum við þá að gengið er eftir þilfar- inu fram á skipið og farið að hringla í keðjum. Heyrist okkur eins og væri farið að “stikka út.” — “Þetta tjáir ekki, við verðum að hjálpa til að “stikka út” keðjunum. Þetta er víst stýrimaðurinn,” mælti Gísli. Við Bjarni samþyktum það. Við fleygðum frá okkur spilunum og göngum allir upp á þilfarið, og fram á skipið, en þar er þá enginn maður, og ekki sjáanlegt að hreyft hefði verið við keðj- unum. Bjarni segir: “Fyrst við erum komnir upp, þá er bezt að við “stikkum” svo sem tveim liðum.” — Gísli heldur að það sé óþarfi, en þó gerum við þetta, og að þvi loknu fórum við niður aftur. Við höfum einhvern ó- nota geig, og gátum ekki farið að spila, en fengum okkur kaffi og töluðum saman á þessa leið: “Mér heyrðist ábyggilega, að einhver væri á gangi uppi á þil- farinu, heyrðist ykkur það ekki líka?” sagði Gísli. “Jú, það var gengið eftir þil- farinu og hringlað í keðjunum, og bezt gæti eg trúað, að það færi að hvessa bráðum,” sagði Bjarni. “Það lítur ekki út fyrir það, þetta er kjaraveður,” gegndi eg. “Jæja, sannaðu til, drengur minn það verður kominn storm- ur á morgun. Eg hefi oft vitað það áður, að skipsdraugar segðu manni fyrir, ef óveður væri i nánd,” sagði Bjarni. “Góði Bjarni, segðu okkur draugasögu og hafðu hana dá- lítið mergjaða,” sagði eg. “Já, gerðu það,” sagði Gísli. Bjarni mælti eftir dálitla þögn: ‘‘Jæja, það er bezt að eg segi ykkur hvað kom fyrir koju- félaga minn, er var mér sam- skipa í hitteðfyrra á henni Milly.” Og hóf þá Bjarni frá- sögu þessa. “Það var fyrir nokkrum ár- um, að þessi félagi minn var á einni Geirsjagtinni, og var hann sá eini, sem átti heima norður í landi, allir hinir hásetar á því skipi áttu heima í Reykjavik. Það talaðist því þannig til, að hann einn vekti yfir skipinu í fyrstu inniveru. Þetta var af- burða kjarkmaður, sem ekki lét alt fyrir brjósti brenna og þegar allir hásetar eru komnir í land, kemur hann sér fyrir í káetunni. Þar var bæði hlýtt og bjart. Hann hafði skemtilega bók að lesa, og sat við lesturinn stjórn- borðsmegin við káetuborðið. Svo líður á kvöldið að ekki ber til tíðinda. Þegar klukkan er að verða * ellefu, heyrir hann, að gengið er eftir þilfari skútunnar og hyggur hann að einhver hafi lent við skipið frá nágrannaskip- um þeim, er lágu á höfninni, skamt í burtu. Hann var mjög sokkinn niður í bókarlesturinn og hugði sem svo, að gesturinn mundi koma niður í káetuna, enda reyndist það svo. Eftir stutta stund er gengið rösklega niður káetustigann, og er hann lítur upp úr bókinni, sér hann hvar skuggalegur maður situr hinu megin við káetuborðið. Hann ímyndar sér að einhver félaga hans eða kunningja ætli að gera sér leik að því að hræða hann og yrðir þvi ekki á ná- unga þenna. Hann tekur því bókina, sem hann var að lesa í, og heldur lestrinum áfram góða stund, án þess að líta upp. Hon- um verður samt litið upp úr bókinni yfir borðið, sér þá enn þenna skuggalega náunga og veitir hann honum nú frekari athygli. Það, sem honum fanst einkennilegast við hann, er að hann sá káetuþilið í gegn- um hann, sem var hinu megin við hann. Einnig sér hann, að hann heldur vinstri hendinni um rýtingsskaft, sem stóð í gegnum hann í hjartastað. Sýndist hon- um blóðbuna renna frá sárinu. Um leið og hann sá þetta varð hann gripinn megnustu hræðslu og fanst sem kalt vatn rynni nið- ur herðar sér, og mátt drægi úr líkamanum. Eftir augnablik sér hann drauginn taka rýtinginn úr sárinu og ota honum að sér yfir borðið. f sama bili fær hann vald' yfir sjálfum sér, þýtur upp stigann, losar fangalínuna úr skipsbátnum og stekkur út i hann. Leggur út árarnar og tekur lífróður í land. Sér hann drauginn aftur á skipinu út við borðstokkinn ota rýtingnum i áttina til sin. Þegar hann er kominn í land, fer hann heim til stýrimanns. Þegar hann sér ljósið, fellur hann í öngvit. Er hann raknar við eftir nokkurn tíma segir hann frá þvi, hvað fyrir sig hefði borið. Við Gísli höfðum hlustað með athygli á frásögn Barna. Og er henni var lokið, heyrðum við hvin, og rættist það, sem Barni hafði spáð. Um morguninn var kominn ofsastormur. —Vísir. Gullbrúðkaup hér í Minneapolis hafa fslending- ar fæðst og alist upp, gift sig, eignast börn og buru — og dáið drotni sinum, í rúm 50 ár, án þess að mikið veður hafið verið úr því gert. Silfurbrúðkaup all- algeng, en gullbrúðkaup sjald- gæfari. Samkomur og “picnic” árlega, þar sem oft eru um 250 manns. En litilli eða engri prentsvertu hefir verið eytt á slikt. Seinasta “picnic” okkar varð þó all-merkilegt. Þetta var þ. 16. f. m. Um 150 viðstaddir Valdimar Björnson sagði okkur seinustu fréttir að heiman, með sinni alþektu mælsku og skiir- ungsskap. Minti hann okkur líka á afmælisdag Jóns Sigurðssonar, og fræddi margan landann um þennan inikla stjórnmálamann. En svo var þarna skamt frá stórt borð, þar sem sátu 43 manns; borðið hlaðið allskonar góðgæti, eins og vera ber á “picnic.” En svo komumst við að því, að hér væri fjölskylda Jóns Leifur að hafa sitt eigið “picnic”, og um leið að halda upp á gullbrúðkaupsafmæli Jóns Vernharðssonar Leifur og Finn- bjargar Finnsdóttur. Vissi þetta fólk ekkert um “picnic” okkar landanna, né vissum við hverjir voru við þetta stóra borð, fyr en seinna. En þarna voru öU börn gömlu hjónanna, tveir synir og átta dætur, og menn þeirra, en þó ekki öll hin 28 barnabörn, enda voru sum börn Jóns og Finnbjargar komin langa leið að, því þessi stóra fjölskylda er tvístruð um alt norðvestrið, frá Detroit, Mich. til Idaho. Mr. og Mrs. Jón Leifur hafa verið hér um tima, en látið lítið á sér bera, enda komin af þeim aldri, finst þeim. Er Jón ættað- ur af Stokkseyri, en Finnbjörg af Eyrarbakka. Á hún bróður í Rvík, Finnboga að nafni Finns- son, sem er vel þektur heima. Giftu þau sig i Stokkseyrarkirkju 12. júni 1890, en komu hingað til landsins 1893. Áttu þau heima í Norður Dakota í 41 ár; stunduðu búskap nálægt Akra um tima, en i 28 löng ár flutti Jón póst. Um margra ára skeið keyrði hann 35 milur á dag, en seinna um 22 mílur. Vita þeir bezt, sem kunnugir eru í Norður Dakota, hvers konar staða það hafi verið hér á fyrri árum, þó jafnvel sé það kannske ekki sældarbrauð nú á dögum. Börn Jóns og Finnbjargar eru sem hér segir: Ágúst Leifur, Grand Forks, N. Dak. Walter (Valdimar) Leifur, Minneapolis, Minn. Victoria, Mrs. Gunnar John- son, Milton, N. Dak. Elizabeth, Mrs. O. C. Voeks, Minneapolis, Minn. Octavia, Mrs. Fred Hyland, Port Hill, Idaho. Vilhelmina, Mrs. O. Schafer, Detroit, Mich. Sigríður, Mrs. P. 1". Watson, Minneapolis, Minn. Lillian, Mrs. John Goulett, Minneapolis, Minn. Sigurrós, Mrs. Ray Lyon, Minneapolis, Minn. Helen, Mrs. L. M. Duprey, Minneapolis, Minn. Um hinar mörgu, löngu póst- ferðir Jóns mætti margt segja. Líka mætti geta þess að hann varð ekki ríkur i þessari æru- verðu stöðu hjá Uncle Sam. En þessum hjónum tókst að koma 10 börnum á legg — tíu börnum, sem eru prýðilega samtaka i því að láta foreldrum sínum líða vel í ellinni, að slíkt er saga til næsta bæjar. Fjölskyldur, sem eru þannig samtaka, eru ódrep- andi, hvað sem á gengur. Væri óskandi að hið sama mætti segja um allar aðrar íslenzkar fjöl- skyldur hér og annarstaðar. Á demantsafmæli þessara hjóna vona eg að senda blöðunum fréttir af þeim. Minneapolis, 30. júní, ’40. G. T. Athelstan. $ttðÍWðð DR. B. H. OLSON Phones: 35 076 . 906 047 Consultation by Appointment Only Heimlli: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba anb A Caibá Dr. P. H. T. Thorlakson DR. B. J. BRANDSON 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 216-220 Medical ArU Bldg. Cor. Graham og Kennedy SU. Phone 21 834—Office ttmar 3-4.30 • Res. 114 QRENFELL BLVD. Phone 62 200 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdömum 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy ViðtalsUmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusimi 22 251 Heimilissimi 401 991 DR. A. V. JOHNSON Dr. S. J. Johannesson Dentist 806 BROADWAY • Talsimi 30 877 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 27 702 • Viðtálstimi 3—5 e. h. DR. K. J. AUSTMANN 512 MEDICAL ARTS. BLDG. Stundar eingöngu, Augna- Eyrna-, Nef og H41s- sjúkdöma. Viötalstimi 10—12 fyrir hádegi 3—6 eftir hádegl Skrifttofusími 80 887 Heimilissimi 48 551 H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrasOinaur • Skrifstofa: Room 811 McArthur Bulldlng, Portage Ave. P.O. Box 1656 Phones 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. isienzkur XöafræSingur • 800 GREAT WEST PERM. Bldg. Phone 94 668 A. S. BARDAL 848 SHERBROOOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnlsvarða og legstelna, Skrlfstofu talsiml 86 607 Helmilis talsiml 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPEG. • Fastelgnasalar. Lelgja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgö, bifreiðaábyrgð o. s. frv. PHONE 26 821 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEG • pceoUegur og rólegur bústaöur i miðbiki borgarinnar Herbergi $2.00 og þar yflr; með baðkiefa $3.00 og þar yíir. Agætar rnáKIðir 40c—60c Free Parking for Ouests Endurburður Svo sem kunnugt má vera, hefir það verið og er enn á vor- um dögum nokkuð útbreidd trú að fólk væri stundum endurbor- ið. í íslenzku þjóðlífi að minsta kosti fram að síðustu aldamót- um var það nokkuð almenn trú að það fyrirbrigði sem kallað var að “vitja nafns” benti sterklega i þessa átt. En þó var venju- lega farið mjög dult með það, og að mestu haldið leyndu, eins og reyndar mörgum öðrum svefnvitrunum og draumum. Á Norðurlöndum var þessi trú all- útbreidd að því er ráða má af fornaldarsögum Norðurlanda. Svo segir i Helga kviðu Hjör- varðssonar: “Helgi og Sváfa er sagt að væri endurborin” bls. 258, og ennfremur á bls. 278: “Helgi og Sigrún er kallat at væri endurborin.” Þegar Ása- Þór þreytti í höll ,útgarða-Loka hafa sumir viljað láta vera tákn- mynd af þremur jarðvistum, en auðvitað ekki endilega allar hér á vorri jarðstjörnu. Því fjarlægð á milli himinhnatta kemur ekki til greina í hugheimum. Það getum vér rannsakað sjálfir án þess að vera nokkrir sérstakir dulspekingar. Það kemur nógu berlega fram þegar Þjálfi þreytir skeiðið við Huga í höll útgarða- Loka, að ekki er til neins fyrir hlaupagarpa jarðarinnar að ætla sér að ná hraða “hugans.” Þó maðurinn telji sig geta efast um alt, þá getur honum aldrei bland- ast hugur um það, að á þessari jörð verður hann aldrei nema örstutta stund. Hvernig sem hann reynir, þá verður hann aft- ur og aftur að játa hverfulleik- ann. Nú er rétti timinn til að athuga hvar vér stöndum á sálu- hjálpar veginum. —M. I. Jón Sigurdson Chapter, l.O.D.E. APPEAL FOR FUND Áður auglýst $103.05 Mrs. P. Neville 100 Ferguson Taxi ............25 Dr. & Mrs. B. J. Brandson 2.00 Mrs. Steinunn Berg 5.00 Vina 5.00 Dr. & Mrs. P. H. T. Thor- lakson 5.00 Jón Sigurdson, Selkirk 1.00 Magnús Guðlaugson 1.00 Rose Bjarnason 100 Mr. & Mrs. W. J. Lindal 5.00 Mr. & Mrs. H. Peterson 5.00 Mr. & Mrs. L. Thomsen 2.00 Mr. & Mrs. P. Anderson 5.00 Dr. & Mrs. B. H. Olson 2.00 Miss Vala Jónasson 1.00 Mr. & Mrs. S. O. Bjerring 3.00 Mr. & Mrs. H. Anderson 1.00 A friend .50 Mrs. H. Thorolfson 1.00 Mrs. L. Smith .......... .50 Mr. & Mrs. P. J. Sivertsen 2.00 Mrs. Hudson ..............75 Mrs. H. G. Henrickson 1.00 $154.05 Þann 15. júlí verður þessum sjóð lokað. Er það því vinsam- legast óskað að allir er vilja leggja fram tillag gjöri það taf- arlaust. Með þakklæti fyrir hönd fé- lagsins, Mrs. J. B. Skaptason, • 378 Maryland St. Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave. BORGIÐ I.ÖGBERG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.